Mál nr. 808/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 808/2025
Þriðjudaginn 17. mars 2026
A gegn B
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.
Með kæru, dags. 16. desember 2025, kærði C lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála úrskurð B frá 12. desember 2025, um að synja kæranda um aðgang að gögnum í barnaverndarmáli.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með hinum kærða úrskurði hafnaði B að afhenda kæranda tiltekin gögn í barnaverndarmáli vegna dóttur kæranda. Í úrskurðarorðum hins kærða úrskurðar segir, auk þess sem bent var á kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála:
„B ákveður að takmarka skuli aðgang A að gögnum úr barnaverndarmáli dóttur hennar D, á grundvelli 2. mgr. 45. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Beiðanda skulu afhend þau gögn sem liggja fyrir í barnaverndarmáli dóttur hennar, önnur en þau sem hér eru eftirtalin:
10. Upplýsingar frá skóla, barst 24. október 2025
12. Viðtal við barn, 11.11.2025
13. Viðtal við barn, 18.11.2025
16. Tilkynning, 28.11.2025
17. Tilkynning, 28.11.2025
18. Viðtal við barn, 02.12.2025
20. Viðtal við móður, 03.12.2025
23. Beiðni um lögreglurannsókn, 04.12.2025.“.
Lögmaður kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 16. desember 2025. Með bréfi, dags. 17. desember 2025, til B eystra var óskað eftir greinargerð ásamt gögnum málsins. Greinargerð barnaverndarþjónustunnar barst með bréfi, dags. 30. desember 2025, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. janúar 2026, var hún send lögmanni kæranda til kynningar og honum veittur frestur til að gera athugasemdir. Athugasemdir lögmanns kæranda bárust með bréfi, dags. 9. janúar 2026 og voru þær sendar barnaverndarþjónustunni til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. janúar 2026. Athugasemdir barnaverndarþjónustunnar bárust með bréfi, dags. 26. janúar 2026 og voru þær sendar lögmanni kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. janúar 2026. Þann 28. janúar 2026 tilkynnti lögmaður kæranda að ekki væru gerðar frekari athugasemdir í málinu en óskaði eftir því að tekin yrði efnisleg afstaða til þess hvort heimilt hafi verið að halda eftir gögnum þótt gögn verði afhent. Með tölvupósti, dags. 29. janúar 2026 tilkynnti barnaverndarþjónustan að öll umdeild gögn hafi verið afhent lögmanni kæranda. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi krefst þess í fyrsta lagi að neyðarvistun utan heimilis verði felld niður. Í öðru lagi krefst kærandi þess að afhent verði öll gögn málsins en til vara að afhend verði gögn merkt. 10, 12, 13, 16, 17 og 20 og að kæranda verði tilkynnt um ástæðu neyðarvistunar dags. 12. desember 2025.
Fram kemur í kæru að ekkert raunverulegt samkomulag hafi verið um að stúlkan yrði vistuð utan heimilis. Stúlkan hafi verið sótt í skóla án þess að kærandi hafi verið látin vita. Kærandi hafi svo verið heimsótt á heimili og henni sagt að hún þyrfti að skrifa undir að barnið yrði vistað utan heimilis. Henni hafi ekki verið kynntur réttur til að fá ráðgjöf lögmanns eða að hún hefði tök á því að neita að skrifa undir. B hafi þannig í reynd beitt neyðarráðstöfun þann 2. desember og beitt svo yfirburðarstöðu sinni og sérþekkingu, auk andlegs ástands kæranda eftir að hafa verið tilkynnt um töku barns af heimili, til að þvinga kæranda til að samþykkja vistun utan heimilis.
Þann 10. desember hafi samþykkið verið afturkallað. Það hafi ekki verið fyrr en 12. desember sem gripið hafi verið til neyðarráðstöfunar. Stúlkunni hafi því verið haldið í vistun utan heimilis án lagaheimildar.
Samkvæmt þeim gögnum sem lögð hafi verið fram hafa komið fram ítrekaðar tilkynningar um fíkniefnaneyslu en efni þeirra hefur ítrekað verið hrakið með því að kærandi gangist í fíkniefnapróf. Eins og staðan sé núna hafi kæranda ekki verið veittar nokkrar upplýsingar um það hver sé ástæða þess að B hafi gripið inn með svo alvarlegum hætti sem raun ber vitni. Einu upplýsingarnar sem kærandi hafi fengið sé að það sé búið að tilkynna lögreglu um atvik máls. Kærandi hafi ekki einu sinni verið upplýst um eðli þeirra ásakana eða tilkynninga sem fram hafa komið. Kærandi sé algjörlega í myrkrinu með það hvað standi þarna að baki. Þær tilkynningar sem þegar hafi verið afhentar séu getgátur einstaklinga um meinta fíkniefnaneyslu kæranda og kærasta hennar. Byggja þær á sögusögnum og engu öðru. Kærasti kæranda hafi fyrir árið 2020 verið sakaður af barnsmóðir sinni um að hafa snert barn þeirra. Rannsókn barnaverndar og lögreglu hafi hins vegar leitt í ljós að engin rök voru að baki ásökunum.
Barnaverndarþjónustan hafi gengið hart fram og nýtt sér að kærandi hafi brotnað niður þegar henni hafi verið tilkynnt að búið væri að fjarlægja barnið af heimilinu. Kærandi sé ekki sú eina sem hafi lýst slíkum vinnubrögðum af B þ.e. að tilkynna að búið sé að fjarlægja barnið og leita svo eftirásamþykkis.
Kærandi geti ekki nýtt lögbundinn andmælarétt sinn þegar hún hafi ekki lágmarksupplýsingar um meint brot sitt.
Í athugasemdum lögmanns kæranda við greinargerð barnaverndarþjónustunnar segir kærandi komi að neðangreindum andsvörum, leiðréttingum og/eða skýringum.
1. Kærandi standi við atvikalýsingu sína. Henni hafi verið tilkynnt um að barnið yrði tekið og hún yrði að skrifa undir blað sem lagt hafi verið fyrir hana. Kærandi hafi verið í uppnámi. Henni hafi ekki verið gefið neitt val í þessum efnum eða henni kynntur réttur sinn til að hafna kröfu starfsmanna barnaverndar. Samþykki hafi verið dregið til baka 10. desember 2025 kl. 9.36 með bréfi lögmanns þess efnis þ.s. gögn hafi ekki verið afhent lögmanni og upplýsingar um að kærandi hefði samþykkt vistun utan heimilis kom fyrst fram 10. desember 2025 kl. 9:03.
2. Kærandi falli frá 1. kröfulið kröfu sinnar enda kvað Umdæmisráð U upp úrskurð um vistun utan heimilis þann 23. desember 2025 sem lýtur að kæru til dómstóla.
3. Kærandi leiðréttir og bætir við 2. kröfulið krafna sinna_: „Kærandi krefst þess að úrskurður B 15.12.2025 verði felldur úr gildi og B gert að afhenda öll gögn máls.“_ Efnislega hafi leiðrétting kröfu engin áhrif á málið enda hafi það ekki haft áhrif á efnisleg andsvör B sem hafa komið fram þrátt fyrir kröfu um frávísun. Úrskurðarnefnd sé ekki dómstóll og gilda ekki jafn stífar reglur og fyrir dómstólum og í framkvæmd verið talið nóg að kærandi geri vilja sinn nægjanlega skýran svo afstöðu megi taka til athugasemda hans við tilgreindri stjórnsýsluákvörðun.
4. Varðandi 3ja kröfulið þá hafi B ekki upplýst um ástæðu vistunar utan heimilis. Það fari gegn upplýsingarskyldu 15 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og góðri stjórnsýslu. Hindrar slíkt andmælarétt kæranda skv. 13 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
5. Kærandi geti ekki rökstutt beiðni sína um gögn með öðrum hætti en að halda því fram að synjun B um afhendingu þeirra sé ekki réttmæt. Kærandi viti ekki hver sé ástæða vistunar utan heimilis þ.s. öll afhend gögn hafa verið yfirstrikuð um raunverulega ástæðu inngrips barnaverndar. Um afstöðu stúlkunnar veit kærandi ekkert þ.s. afhend gögn gefa ekkert upp um afstöðu hennar. Vilji barns til þess að önnur gögn en persónuleg skjöl barnsins s.s. dagbækur eða annað slíkt, geta að engu hnikað til upplýsingarskyldu stjórnvalda skv. 15 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 við töku íþyngjandi ákvarðana. Hvort rannsóknarhagsmunir lögreglu eða barnaverndar séu til staðar og varði öll þau gögn sem synjað sé afhendingar um hafi kærandi enga getu til að taka afstöðu til, sér í lagi í ljósi þess að hún veit ekki hvers eðlis ásakanir séu. Ærnar ástæður þurfa að liggja að baki svo gögn sem standa að baki íþyngjandi ákvörðun stjórnvalds séu ekki afhent.
6. Því sé vísað á bug að kæra sé verulega ruglandi. Kæra sé einblöðungur og rökstuðningur í kæru sé rétt rúmar 15 línur. Komi þar mjög skýrt fram að kærandi geti ekki nýtt lögbundinn andmælarétt sinn þegar hún hafi ekki lágmarksupplýsingar um meint brot sitt.
Í viðbótarathugasemdum lögmanns kæranda segir að ekki séu gerðar frekari athugasemdir en krafa sé gerð um að tekin verði efnisleg afstaða til þess hvort heimilt hafi verið að halda eftir gögnum með þessum hætti þótt gögn hafi verið afhent.
III. Sjónarmið B
Í greinargerð barnaverndarþjónustunnar kemur fram að sé þess krafist aðallega að kærunni verði vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála. Til vara sé þess krafist að úrskurður B frá 15. desember 2025, þar sem kæranda hafi verið synjað um afhendingu tiltekinna gagna í máli sem varðar dóttur hennar, verði staðfestur.
Um sé að ræða kæru á úrskurði B frá 15. desember 2025 er varðar beiðni kæranda um gögn í barnaverndarmáli dóttur hennar. Úrskurðarorðin kveða á um að takmarka skuli aðgang kæranda að tilteknum gögnum úr barnaverndarmáli dóttur hennar á grundvelli 2. mgr. 45. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Kærandi hafi því fengið afhend öll gögn málsins til 9. desember 2025, að undanskildum gögnum sem upptalin séu í úrskurðinum og bera númerin 10, 12, 13, 16, 17, 18, 20 og 23.
Í kæru dags. 16. desember 2025 gerir kærandi eftirfarandi kröfur:
1. Að neyðarvistun utan heimilis verði felld niður.
2. Að afhend verði öll gögn málsins en til vara að afhend verði gögn merkt 10, 12, 13, 16, 17 og 20.
3. Að kæranda verði tilkynnt um ástæðu neyðarvistunar dags. 12. desember 2025.
Frávísunarkrafa
B krefst þess aðalega að kærunni verði vísað frá úrskurðarnefndinni þar sem kröfur kæranda séu ekki tækar og í kærunni sé hvergi að finna rökstuðning fyrir því hvers vegna það eigi að fella úr gildi ákvörðun barnaverndarþjónustunnar um að takmarka aðgang að tilteknum gögnum í máli dóttur kæranda.
Í kærunni sé kröfugerðin þríþætt, þ.e. í fyrsta lagi að neyðarvistun utan heimilis verði felld úr gildi, í öðru lagi að afhend verði öll gögn málsins eða til vara að tiltekin gögn verði afhend og í þriðja lagi að kæranda verði tilkynnt um ástæðu neyðarvistunar dags. 12. desember 2025. Barnaverndarþjónustan telji ljóst að kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála sé ekki til staðar hvað varðar kröfur nr. 1 og 3 og því geti úrskurðarnefndin ekki fjallað um þær kröfur. Hvað kröfu nr. 2 varðar, þá telji barnaverndarþjónustan að krafan sé gölluð þar sem ekki sé krafist þess að ákvörðun/úrskurður barnaverndarþjónustu frá 15. desember 2025 verði felldur úr gildi, auk þess sem engar málsástæður eða rök sem tilgreind séu í kærunni varða þá kröfu. Því sé með öllu óljóst á hverju sú krafa byggir. Í rökstuðningi fyrir kæru sé einungis fjallað um neyðarráðstöfunina, sem sé úrskurðinum um gögn málsins óviðkomandi.
Þrátt fyrir að úrskurðarnefndin geti ekki úrskurðað um þann hluta kæru sem tengist neyðarráðstöfuninni þá telji barnaverndarþjónustan rétt að leiðrétta þær rangfærslur sem fram koma í kærunni. Þeirri atvikalýsingu sem fram kemur í kærunni sé harðlega mótmælt í heild sinni. Staðreyndin er sú að dóttir kæranda hafi verið vistuð utan heimilis kæranda fyrst með skriflegu samþykki kæranda þann 2. desember 2025, en síðar hafi kærandi dregið samþykki sitt til baka vegna ráðlegginga lögmanns síns, líkt og sjá má t.d. af meðfylgjandi tölvupósti frá kæranda dags. 12. desember 2025. Gripið hafi verið til neyðarráðstöfunar þann 12. desember 2025 og kæranda verið tilkynnt um það. Málið hafi verið tekið fyrir hjá umdæmisráði U þann 22. desember 2025 og með úrskurði sem dagsettur sé sama dag hafi verið fallist á kröfur barnaverndarþjónustu um að dóttir kæranda yrði vistuð áfram á núverandi dvalarstað í fjóra mánuði.
Það sé því alfarið rangt að ekki hafi verið til staðar samkomulag um að stúlkan væri vistuð utan heimilis, að stúlkan hafi verið sótt án þess að kærandi hafi verið látin vita, að kærandi hafi verið þvinguð 2. desember, o.s.frv. Gögn málsins sýni fram á að það sem fram kemur í kærunni sé ekki rétt. Málatilbúnaði kæranda sé því mótmælt í heild sinni.
Þess beri að geta að framsetning kærunnar sé verulega ruglandi. Aftasta fylgiskjalið í gagnapakkanum sem barnaverndarþjónusta fékk afhent ber heitið „kæra umboðsmanna til úrskurðarnefndar velferðarmála“ og þar segir að verið sé að kæra ákvörðun dagsetta 12. desember 2025 og þar séu fylgiskjöl tilgreind sem eiga að innihalda rökstuðning. Þetta sé ekki í samræmi við þá kæru sem barnaverndarþjónustu barst frá úrskurðarnefndinni, barnaverndarþjónusta hafi verið beðin um að svara kæru þar sem verið sé að kæra ákvörðun dagsetta 15. desember 2025 (væntanlega úrskurð um gögn). Ef um sé að ræða tvær mismunandi kærur með mismunandi rökstuðningi þá veki barnaverndarþjónusta athygli á því að einungis hafi verið óskað eftir greinargerð varðandi þá kæru sem varðar úrskurð dags. 15. desember 2025 og barnaverndarþjónusta veit ekki til þess að þau fylgigögn sem tilgreind voru í „kæru umboðsmanns“ hafi fylgt.
Krafa um að ákvörðun barnaverndarþjónustu verði staðfest
Til vara sé þess krafist að úrskurður B frá 15. desember 2025, þar sem kæranda var synjað um afhendingu tiltekinna gagna í máli sem varðar dóttur hennar, verði staðfestur. Í þeirri kröfu barnaverndarþjónustu felst krafa um að öllum kröfum kæranda verði hafnað.
Eftirfarandi röksemdir barnaverndarþjónustu eiga við um bæði aðalkröfu og varakröfu kæranda, þ.e. aðalkröfu um að öll gögn málsins verði afhent og varakröfu um að afhent verði gögn nr. 10, 12, 13, 16, 17 og 20. Barnaverndarþjónustan telji að niðurstaðan verði sú sama ef fallist verði á aðal- eða varakröfu kæranda, þ.e. að rannsóknarhagsmunum verði teflt í tvísýnu og hagsmunir barnsins hljóti skaða af. Auk þess bendir barnaverndarþjónusta á að úrskurðarnefndin getur ekki efnislega breytt úrskurði barnaverndarþjónustu eða kveðið á um að tiltekin gögn skuli afhent, líkt og kærandi krefst.
Barnaverndarþjónusta vísi til þeirra sjónarmiða sem fram koma í hinum kærða úrskurði frá 15. desember 2025 en úrskurðurinn byggi á þeim sjónarmiðum að ekki sé unnt að afhenda kæranda tiltekin gögn í barnaverndarmáli dóttur hennar vegna ríkra rannsóknarhagsmuna og vegna þess að barnaverndarþjónusta mat það þannig að afhending gagnanna að svo stöddu myndi skaða hagsmuni barnsins, sbr. 2. mgr. 45. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Þess skal getið að hvert gagn fyrir sig var metið m.t.t. þess hvort nauðsynlegt væri að takmarka aðgang að svo stöddu.
Fyrir liggur að barnaverndarþjónusta óskaði eftir lögreglurannsókn þann 4. desember sl., þar sem kærandi hafði stöðu sakbornings. Sú rannsókn sé enn á byrjunarstigum skv. upplýsingum frá lögreglu og kærandi hafi til að mynda ekki enn verið kölluð til skýrslutöku. Því sé það mat barnaverndarþjónustu að ekki sé unnt að afhenda tiltekin gögn sem hafa að geyma upplýsingar sem snúa að rannsókn lögreglu, þar sem hætta þykir á að afhending gagnanna myndi spilla rannsókn lögreglu, t.d. gæti það haft áhrif á framburð ef gögnin séu afhend að svo stöddu. Af sömu ástæðu hafi kærandi ekki fengið upplýsingar um innihald þeirra gagna sem um ræðir. Á meðan málið sé ekki til lykta leitt og sé enn á frumstigum hjá lögreglu þykir ljóst að með því að afhenda viðkvæm gögn í málinu geti það haft áhrif á rannsókn lögreglu. Í því sambandi þurfi stúlkan að njóta vafans til þess að hagsmunir hennar verði nægilega tryggðir. Jafnframt sé verið að virða vilja stúlkunnar, sem sé X ára gömul og hafi verið skýr í sinni afstöðu varðandi afhendingu tiltekinna gagna. Mikilvægt sé að gæta trúnaðar við stúlkuna. Þá sé einnig mikilvægt að tefla ekki rannsóknarhagsmunum í tvísýnu en með því sé jafnframt verið að vernda hagsmuni stúlkunnar. Komu þau sjónarmið m.a. fram í úrskurði kærunefndar barnaverndarmála frá 9. desember 2015 í máli nr. 26/2015. Að mati barnaverndarþjónustu liggi ekki vafi á því að afhending umræddra gagna til kæranda að svo stöddu muni skaða hagsmuni stúlkunnar. Málið sé á sérstaklega viðkvæmu stigi núna en þegar rannsóknarhagsmunir séu ekki lengur í húfi geti kærandi óskað eftir endurskoðun á ákvörðuninni hjá barnaverndarþjónustunni.
Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. barnaverndarlaga skal barnaverndarþjónusta með nægilegum fyrirvara láta aðilum máls í té öll gögn sem málið varða og koma til álita við úrlausn þess, enda tryggi þeir trúnað. Í 2. mgr. 45. gr. barnaverndarlaganna sé þó mælt fyrir um takmörkun á rétti til aðgangs að gögnum barnaverndarmáls en þar segir m.a. að barnaverndarþjónusta geti með rökstuddum úrskurði takmarkað aðgang aðila að tilteknum gögnum ef hún telur að það geti skaðað hagsmuni barns og samband þess við foreldra eða aðra. Ríkir einkahagsmunir réttlæta þannig frávik frá upplýsingarétti skv. 1. mgr. 45. gr. barnaverndarlaga. Eðli málsins samkvæmt geta upplýsingar um málefni barns verið mjög viðkvæmar og því sé mikilvægt að aðgangur að þeim séu settar ákveðnar skorður. Við mat á því hvort synja eigi upplýsingagjöf til aðila máls eða gera undanþágur frá meginreglunni, ber einnig að líta til 1. mgr. 17. gr. stjórnsýslulaga. Það sé viðurkennt í framkvæmd að hagsmunir foreldris af því að fá umbeðnar upplýsingar skulu víkja fyrir hagsmunum barnsins, t.d. ef það sé talið óheppilegt eða skaðlegt fyrir barnið eða samband barns og foreldis. Á það m.a. stoð í þeirri meginreglu í barnarétti að þar sem réttindi barna og foreldra togast á, vega hagsmunir barna þyngra. Með vísan til alls þess sem hér hefur verið rakið, auk meðfylgjandi gagna, telji B að hagsmunir barnsins krefjist þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað og úrskurður barnaverndarþjónustu frá 15. desember 2025 staðfestur.
Í viðbótargreinargerð barnaverndarþjónustunnar við athugasemdir kæranda segir að gerðar séu eftirfarandi athugasemdir:
1. Það sé rangt að kærandi sé ekki upplýstur um afstöðu stúlkunnar en það hafi komið fram við meðferð málsins, m.a. í greinargerð fyrir umdæmisráði, að stúlkan hafi greint frá því á afgerandi hátt að hún vildi vera vistuð utan heimilis. Í samtali við talsmann greindi stúlkan frá mun betri líðan eftir að vistun hófst og kvaðst ekki tilbúin til að umgangast kæranda eða vera í samskiptum við hana að svo stöddu. Þá hafi stúlkan lýst yfir miklum áhyggjum við starfsmenn barnaverndarþjónustu að kærandi fái ýmis gögn um sig í hendur. Hinn kærði úrskurður barnaverndarþjónustu byggi þó aðallega á rannsóknarhagsmunum, en annað mat muni fara fram þegar rannsóknarhagsmunir séu ekki lengur í húfi.
2. Staða málsins í dag sé sú að stúlkan hafi farið í skýrslutöku í Barnahúsi þann 15. janúar sl. og margt komið þar fram. Lögmaður kæranda hafði áður upplýst barnaverndarþjónustu um að kærandi hefði mætt í skýrslutöku þann 12. janúar en lögregla upplýsti barnaverndarþjónustu um að það hefði verið skýrslutaka sem kærandi hafi óskað sjálf eftir. Því eigi lögregla enn eftir að boða kæranda í skýrslutöku þar sem atvik séu borin undir hana og að mati lögreglu því ekki óhætt að afhenda gögnin strax. Áætlað hafi verið að taka þá skýrslu af kæranda 21. janúar sl. og búið hafi verið að upplýsa lögmann kæranda um að ákvörðun um að halda eftir gögnum yrði endurskoðuð að skýrslutöku lokinni. Kærandi hafi afboðað sig í þá skýrslutöku og því hafi ekki enn tekist að taka skýrslu af henni. Um leið og það hafi verið gert muni barnaverndarþjónusta endurskoða afstöðu sína til afhendingu gagna. Barnaverndarþjónusta sé því að fylgjast vel með framvindu málsins hjá lögreglu og muni endurskoða afstöðu sína eftir því sem upplýsingar berast. Ef kærandi mætir í skýrslutöku hjá lögreglu þykir líklegt að barnaverndarþjónusta verði búin að endurskoða afstöðu sína og jafnvel afhenda umrædd gögn þegar úrskurðarnefndin tekur málið fyrir.
Að öðru leyti telji barnaverndarþjónustan sig þegar hafa svarað því sem fram komi í athugasemdum kæranda og sé málsatvikalýsingu þar mótmælt í heild sinni. Svör barnaverndarþjónustunnar sem fram komu í greinargerð dagsettri 30. desember 2025 séu því ítrekuð. B telji málsmeðferð hafa verið í samræmi við lög og í samræmi við það sem hafi verið stúlkunni fyrir bestu.
IV. Niðurstaða
Hinn kærði úrskurður B snýr eingöngu að synjun kæranda um aðgang að tilteknum gögnum barnaverndarmáls á grundvelli 2. mgr. 45. gr. bvl.
Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. bvl. skal barnaverndarþjónusta með nægilegum fyrirvara láta aðilum máls í té öll gögn sem málið varða og koma til álita við úrlausn þess, enda tryggi þeir trúnað. Í 2. mgr. 45. gr. bvl. kemur fram að barnaverndarþjónusta geti með rökstuddum úrskurði takmarkað aðgang aðila að tilteknum gögnum ef hún telur að það geti skaðað hagsmuni barns og samband þess við foreldra eða aðra. Barnaverndarþjónustan getur einnig úrskurðað að aðilar og lögmenn þeirra geti kynnt sér skjöl og önnur gögn án þess að þau eða ljósrit af þeim séu afhent.
Undir rekstri málsins hjá úrskurðarnefnd velferðarmála barst tölvupóstur frá B þess efnis að þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að hefðu verið afhent lögmanni kæranda. Lögmaður kæranda gerir þá kröfu að úrskurðarnefndin taki efnislega afstöðu til þess hvort barnaverndarþjónustunni hafi verið heimilt að halda eftir gögnum með þessum hætti þótt gögn hafi verið afhent.
Kæranda var synjað um aðgang að tilteknum gögnum barnaverndarmálsins með úrskurði 12. desember 2025 og var sú ákvörðun kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála 16. desember 2025. Þann 29. janúar 2026 tilkynnti barnaverndarþjónustan að umrædd gögn hefðu verið afhent lögmanni kæranda. Í ljósi þess að umrædd gögn hafa öll verið afhent kæranda er það mat úrskurðarnefndarinnar að lögvarðir hagsmunir hennar af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar og því ekki ástæða til að leysa úr málinu efnislega. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, vegna synjunar B frá 12. desember 2025 um aðgang hennar að gögnum barnaverndarmáls, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson