27. mars 2026 /

Mál nr. 56/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 56/2026

Föstudaginn 27. mars 2026

A gegn umboðsmanni skuldara

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Þann 22. janúar 2026 barst úrskurðarnefnd velferðarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara, dags. 2. janúar 2026, um niðurfellingu á heimild kæranda til að leita greiðsluaðlögunar.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun umboðsmanns skuldara, dags. 15. september 2025, var kæranda veitt heimild til að leita greiðsluaðlögunar skv. lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.). Tilkynning barst frá umsjónarmanni greiðsluaðlögunarumleitana þann 4. desember 2025 um að fram væru komnar ástæður sem leiða ættu til þess að heimild kæranda til greiðsluaðlögunar yrði felld niður. Í bréfinu var kæranda veitt færi á að andmæla fyrirsjáanlegri niðurfellingu á heimild til að leita greiðsluaðlögunar. Tölvupóstur barst frá kæranda 8. desember og 11. desember 2025 til umboðsmanns skuldara. Með ákvörðun umboðsmanns skuldara, dags. 2. janúar 2026, var heimild kæranda til að leita greiðsluaðlögunar felld niður á grundvelli 1. mgr. 15. gr. lge., sbr. b-lið 6. gr. lge. og a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. janúar 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 26. janúar 2026, var upplýst að kæra hefði borist að kærufresti liðnum og óskað skýringa. Kærandi brást ekki við erindi úrskurðarnefndarinnar.

 

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. lge. er ákvörðun umboðsmanns skuldara um niðurfellingu greiðsluaðlögunarumleitana kæranleg til úrskurðarnefndar velferðarmála innan tveggja vikna frá því að ákvörðunin barst skuldara og skal þá tímabil greiðsluaðlögunarumleitana standa þar til niðurstaða úrskurðarnefndar liggur fyrir.

Þegar kæra berst að liðnum kærufresti skal vísa henni frá samkvæmt 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. lagaákvæðisins, eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 2. tölul. þess.

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um ákvörðun umboðsmanns skuldara með bréfi, dags. 2. janúar 2026, sem var birt samdægurs í pósthólfi kæranda á þjónustugátt stjórnvalda á island.is. Þegar gögn eru aðgengileg í pósthólfi island.is teljast þau birt viðtakanda, sbr. 7. gr. laga nr. 105/2021 um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Samkvæmt því byrjaði kærufrestur að líða 2. janúar 2026. Kæra barst úrskurðarnefndinni 22. janúar 2026 og var þá kærufrestur liðinn.

Engar haldbærar skýringar hafa komið fram af hálfu kæranda á því hvers vegna kæran barst úrskurðarnefndinni að liðnum kærufresti. Þá liggur ekkert fyrir í gögnum málsins sem gefur til kynna að afsakanlegt verði talið að hún hafi ekki borist fyrr. Önnur atvik málsins þykja heldur ekki leiða til þess að veigamiklar ástæður mæli með því að málið verði tekið til meðferðar á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Af þessum sökum er máli þessu vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson