13. maí 2026 /

Úrskurður nr. 237/2026

Hinn 13. maí 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 237/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU24050059

Kæra […]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 8. maí 2024 kærði kona sem kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. apríl 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Sómalíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 18. desember 2022. Kvaðst kærandi heita […] og vera fædd […]. Hún hafi komið með flugi frá Tenerife. Hún kvaðst eiga 16 ára gamlan bróður og 3 ára systur. Móðir hennar hafi látist þegar hún hafi verið 3 ára og faðir hennar fengið heilablóðfall árið 2019 og látist. Kærandi kvaðst ekki vera bólusett við Covid-19, vera heilsuhraust, peningalaus og án skilríkja. Fjölskylda hennar hafi borgað fyrir ferðalag hennar og fyrir aðstoðarmann hennar við ferðalagið. Kærandi kvaðst vera flýja Al-Shabaab, meðlimir samtakanna hafi komið heim til hennar og [...]. Þeir hafi byrjað að koma þegar hún hafi verið 15 ára og henni hafi verið [...] ítrekað síðan þá. Kærandi kvaðst ekki þekkja neinn hér á landi, hún tali sómölsku og ágætis ensku.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 16. febrúar 2023 og 2. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst hafa komið til landsins með pappíra sem smyglari hafi útvegað henni, hún hafi aldrei átt vegabréf og hafi engin önnur skilríki. Kærandi kvaðst hafa fengið aðstoð smyglara til að ferðast frá Sómalíu til Íslands. Hún hafi fengið pappíra og flugmiða frá honum. Kærandi hafi flogið með smyglaranum frá Sómalíu til Tyrklands, þaðan hafi hún flogið hún ein til Grikklands þar sem hún hafi hitt smyglarann aftur og þau endað á Tenerife. Þaðan hafi hún svo flogið hún ein til Íslands. Kærandi nafngreindi smyglarann en kvaðst ekki þekkja hann né hafa leið til að hafa samband við hann. Frænka hennar hafi greitt honum að minnsta kosti 1500 dollara fyrir þjónustuna sína. Kærandi kvaðst ekki skulda honum peninga.

Kærandi kvaðst vera fædd í [...] í Sómalíu. Hún kvaðst vera uppalin í bænum [...], [...] í Neðra-Shabelle. Næstu bæir eða borgir kvað kærandi vera [...] og [...]. Aðspurð um helstu ættbálkana í Sómalíu kvað kærandi það vera [...]. Kærandi kvaðst hafa stundað nám þar til hún hafi náð sjötta eða sjöunda bekk í skóla í [...]. Faðir kæranda hafi kennt henni ensku en hún hafi einnig lært hana í skóla. Kærandi kvaðst hafa verið búsett með stjúpmóður sinni í neðra-Shabelle. Hún hafi starfað við að hjálpa stjúpmóður sinni í kaffiteríu sem hafi verið starfrækt í húsnæði þeirra. Þegar faðir hennar hafi verið á lífi hafi hann starfað við að flytja grænmeti til Mógadisjú.

Kærandi kvaðst tilheyra minnihluta ættbálknum [...] sem hafi tengsl við [...], [...], [...] og [...]. Kærandi kvað ættbálkinn vera þekktan fyrir að vera Sheikhs eða Imamas, þau kenni fólki trúnna og baki og selji sætan mat. Kærandi kvaðst hafa upplifað mikla mismunun á grundvelli ættbálkaaðildar sinnar sökum þess að móðir hennar tilheyrði meirihluta ættbálknum [...] og hún hafi gifst föður kæranda sem hafi verið af minnihlutaættbálki. Í kjölfarið hafi ættbálkur móður hennar hætt öllum samskiptum við hana. Kærandi kvaðst eiga tvö systkini, einn albróður og eina hálfsystur sem faðir hennar hafi eignast með stjúpmóður hennar. Móðir kæranda hafi látist þegar hún hafi verið þriggja ára og faðir hennar látist þegar hún hafi verið 15 ára, eftir það hafi hún búið hjá stjúpmóður sinni. Kærandi kvaðst ekki vera meðlimur stjórnmálaflokks eða hafa tekið þátt í flokksstarfi. Kærandi kvaðst vera við góða heilsu.

Aðspurð út í helstu ástæður flótta síns kvað kærandi að faðir hennar hafi verið beðin um að gifta hana til nafngreinds aðila (hér eftir A) sem hafi verið sonur móðurbróður kæranda og meðlimur Al-Shabaab. Kærandi hafi verið á aldrinum 14-15 ára þegar maðurinn og faðir hans hafi fyrst komið til föður hennar og farið fram á hjúskapinn. Faðir hennar hafi neitað og fyrir það verið settur í fangelsi, þar sem hann hafi látist vegna blóðþrýstings eftir um viku í haldi. Eftir að faðir hennar hafi látist hafi A, frændi hennar komið heim til kæranda og viljað giftast henni, þegar kærandi hafi neitað hafi A ráðist að henni og reynt að [...]. Kærandi hafi öskrað og frænka hennar komið að. Kærandi og stjúpmóðir hennar hafi í kjölfarið talað við leiðtoga Al-Shabaab í þorpinu og upplýst hann um hvað A hafi gert henni. Leiðtoginn hafi hins vegar ekki trúað þeim og sagt kæranda að meðlimir Al-Shabaab gerðu ekki slíkt, hún ætti ekki að tala um þetta aftur. Eftir þetta atvik sá kærandi A ekki í um tvö ár en á þeim tíma hafi nokkrar stúlkur verið sendar til að upplýsa kæranda um að A væri enn að bíða eftir henni, hann ætlaði að koma aftur og taka hana og stjúpmóðir hennar ætti því ekki að gifta hana öðrum manni. Þá hafi Al-Shabaab meðlimir talað við hana líkt og hún væri eiginkona A. A hafi síðan komið aftur þegar kærandi hafi verið í kringum 17 ára aldur og sagt frænku hennar að hann væri að fara í heilagt stríð (Jihad) og að hann vilji giftast kæranda áður en hann færi. Þá hafi frænka hennar sagt stjúpmóður hennar að senda hana til Mógadisjú. A hafi reynt að ráðast að henni í þó nokkur skipti. Eitt af þeim atvikum hafi átt sér stað í kaffiteríunni þegar hann hafi komið með öðrum meðlimum Al-Shabaab. Kærandi hafi verið með yngri bróður sínum sem meðlimir Al-Shabaab hafi lamið. Eftir þetta hafi kærandi farið til frænku sinnar í Mógadisjú. A hafi haft samband við stjúpmóður kæranda og sagt við hana að hann vissi hvar hún væri og að hann væri að koma til Mógadisjú fljótlega. A hafi hótað kæranda og sagt að hún gæti ekki komið sér undan aftur og þetta væri í síðasta sinn. A hafi haft samband við kæranda í gegnum síma eftir að hún hafi flúið til Mógadisjú. Kærandi hafi ávallt verið inni og hrædd við að fara út eftir að hún hafi flust til frænku sinnar. Frænka hennar hafi tilheyrt sama ættbálki og hún en maður frænkur hennar hafi tilheyrt [...] sem sé einnig minnihlutaættbálkur. Aðspurð kvað kærandi hvorki frænku sína né eiginmann hennar getað verndað hana gegn A. Kærandi kvaðst ekki hafa getað leitað til lögreglunnar eða yfirvalda vegna tengsla þeirra við Al-Shabaab. Eftir að hafa sagt frænku sinni frá símtali A þá hafi frænka hennar haft samband við smyglara og þannig hafi kærandi komist frá Sómalíu í lok árs 2022.

Í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun staðfesti kærandi að heimabær sinn væri [...] í [...]. Hún kvaðst ekki geta framvísað neinum skilríkjum. Aðspurð út í heimsóknir A kvaðst kærandi ekki muna nákvæmlega hvenær hann hafi fyrst komið og rætt við föður hennar varðandi hjónaband þeirra á milli, en það hafi verið undir lok árs 2018. Kærandi hafi fyrst séð A þegar hún hafi verið um 14 eða 15 ára gömul og kvaðst hún ekki vita hvenær hann flutti í heimabæ hennar. A hafi sagt við föður hennar að hann vildi hana sem eiginkonu, hvort sem honum líkaði betur eða verr. Kærandi kvað meðlimi Al-Shabaab hafi tekið föður hennar og þeir ætlað að kenna honum um trúnna. Tveimur vikum síðar hafi þeir komið með lík föður hennar. Hún kvað jafnframt að faðir A hafi komið í veg fyrir að A hafi gifst henni án samþykkis föður hennar. A og faðir hans hafi reynt að fá föður kæranda til að samþykkja hjónabandið og það hafi verið ástæða þess að faðir hennar hafi verið tekinn. Faðir A hafi síðar látist í átökum. Kærandi lýsti því þegar A hafi komið aftur eftir að faðir hennar hafi látist. Hún kvaðst ekki muna nákvæma dagsetningu en kvað það hafa verið árið 2019, um þremur mánuðum eftir Ramadan. Hún hafi þá verið ein í eldhúsinu þegar A hafi komið inn með öðrum mönnum. Hann hafi tekið af henni andlitsslæðuna (e. hijab) og áreitt hana. Hún hafi öskrað og bróðir hennar heyrt það. A hafi þá lamið bróður kæranda og ýtt henni áður en þeir hafi farið á brott. Stjúpmóðir hennar, sem hafi verið í hinum hluta heimilisins, hafi heyrt öskur og séð mennina hlaupa í burtu. Kærandi kvaðst hafa upplýst leiðtoga Al-Shabaab um stöðu sína þegar þeir hafi komið og keypt te hjá kæranda og stjúpmóður hennar. Í apríl eða maí 2022 hafi A komið inná heimili þeirra þegar kærandi var þar með stjúpmóður sinni, bróður og systur. A hafi lýst því yfir að kærandi yrði hans og að enginn gæti komið í veg fyrir hjónaband þeirra. Hann hafi ekki reynt að [...] eða áreita hana við það tilefni, heldur lagt hönd á öxl hennar. Aðspurð taldi kærandi að A hefði komið í tíu skipti inná heimili hennar á tímabilinu frá maí til ágúst 2022. Hann hafi verið ágengur og haldið því fram að enginn annar mætti fá hana. Þó A hafi ekki beitt kæranda líkamlegu ofbeldi hafi hann slegið bróður hennar. Eftir að kærandi hafi flutt til frænku sinnar í [...] í Mógadisjú þá hafi A hringt í frænku kæranda og kærandi ekki vitað hvernig hann vissi hvar hún væri eða hvernig hann hafi fengið númerið hennar. Kærandi hafi verið í Mógadisjú í mánuð áður en hún hafi farið frá Sómalíu.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 26. apríl 2024. Greinargerð barst kærunefnd 22. maí 2024. Viðbótargögn bárust nefndinni 7. október 2025 og 11. febrúar 2026. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum frá kæranda með tölvubréfi, dags. 10. febrúar 2026. Frekari viðbótargögn bárust 16. febrúar 2026.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð kæranda er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Sómalíu mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á fyrri upplifunum sínum og ástæðuríkum ótta við ofsóknir. Kærandi byggir á því að tilheyra þjóðfélagshópi sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, vegna stöðu sinnar sem kona í Sómalíu og þolandi kynbundins ofbeldis sem hafi flúið ætlað nauðungarhjónaband af hálfu Al-Shabaab meðlims. Kærandi telur auk þess að hún búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli trúarbragða sbr. b-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á einstaklingsbundnum þáttum og almennu alvarlegu ástandi í heimaríki. Kærandi hafi þolað endurtekið kynbundið ofbeldi af hálfu Al-Shabaab meðlima, sem hafi lýst sér í líkamlegu ofbeldi, kynferðisofbeldi og loks tilraunar til nauðungarhjónabands. Auk einstaklingsbundinna þátta þá ríki veruleg öryggisógn af því að vera á heimasvæði kæranda í ljósi átaka á svæðinu.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á almennum aðstæðum í heimaríki og erfiðum félagslegum aðstæðum. Þá eigi kærandi ekki afturkvæmt til Sómalíu. Báðir foreldrar kæranda séu látin og fjölskyldumeðlimir sem séu hluti af Al-Shabaab samtökunum hafi viljað gifta hana nauðungarhjónabandi sem barn. Kærandi sé jaðarsett sökum aldurs hennar, kyns og þjóðfélagsstöðu hennar í landinu auk fyrri reynslu.

Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að málsmeðferð kæranda hefur staðið yfir lengi. Þá hafi verið tekið bæði efnisviðtal og framhaldsviðtal við kæranda með árs millibili, án þess að tekist hafi verið að rannsaka málið með fullnægjandi hætti.

Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu og réttmætisreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Í greinargerð kæranda er vísað til þess að Útlendingastofnun hafi borið að fjalla ítarlegar um stöðu kvenna í Sómalíu við úrlausn máls hennar og vísað til úrskurðar kærunefndar nr. 57/2023 því til stuðnings. Skortur á slíkri umfjöllun sé ekki í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærandi gerir auk þess athugasemdir við trúverðugleikamat stofnunarinnar sérstaklega í tengslum við umfjöllun um ættbálk kæranda. Útlendingastofnun vísi í skýrslu EUAA frá árinu 2021 sem fjalli um stöðu [...] ættbálksins líkt og hún hafi verið á 7.-9. áratug 20 aldar. Út frá þessu er talið að Útlendingastofnun hafi miðað við rangar landaupplýsingar og hin kærða ákvörðun því haldin ógildingarannmarka er varði rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins. Kærunefnd hefur við meðferð málsins farið yfir þær landaupplýsingar sem byggt var á við meðferð málsins, þ.m.t. upplýsingar um stöðu Ashraf-ættbálksins og lagt sjálfstætt og heilstætt mat á framlögð gögn, frásögn kæranda og aðstæður í heimaríki með hliðsjón af uppfærðum landaupplýsingum. Þótt fallast megi á að umfjöllun Útlendingastofnunar um stöðu Ashraf-ættbálksins hafi ekki tekið með nægjanlegum hætti mið af nýrri landaupplýsingum um stöðu ættbálksins sem minnihlutahóps í Sómalíu verður ekki séð að sá annmarki hafi haft áhrif á efnislega niðurstöðu þessa máls. Að því virtu telst því hafa verið bætt úr þeim annmarka og þykir því ekki ástæða til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar af þeim sökum.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er að öðru leyti í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

  1. ríkið,

  2. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

  3. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn til að sanna á sér deili og að það væri mat stofnunarinnar að kærandi hafi ekki sannað hver hún sé með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og tungumála og staðháttaprófs. Fékk kærandi +3 í einkunn sem þýðir að niðurstöður prófsins væru án alls vafa í samræmi við mállýsku sem prófuð var og það talið renna stoðum undir framburð kæranda að hún kunni að hafa verið uppalin í Wanla Weyn umdæmi í Neðra-Shabelle héraði í Sómalíu. Útlendingastofnun komst að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hennar væri að öðru leyti óupplýst, þ. á m. nafn hennar og fæðingardagur.

Í tölvubréfi talsmanns kæranda sem barst kærunefnd dags. 7. október 2025 kemur fram að kærandi hafi fengið útgefið fæðingavottorð frá sómalska sendiráðinu í París. Meðfylgjandi væri afrit af því og frumritið væri á leið til landsins. Nefndinni barst tölvubréf talsmanns kæranda, dags. 23. október 2025, um að frumritið hafi verið að berast og hægt væri að leggja það fram ef nefndin teldi þörf á því. Með tölvubréfi 10. febrúar 2026 óskaði kærunefnd eftir því að kærandi legði fram frumrit fæðingarvottorðs hjá nefndinni. Þá var einnig óskað eftir frekari upplýsingum varðandi vottorðið á borð við hvernig kærandi aflaði þessa vottorðs, hvaða gögn lægju til grundvallar útgáfu þess, hvort kærandi gæti gert grein fyrir þeim gögnum og hvernig þeirra var aflað hafi hún þau ekki tiltæk.

Hinn 11. febrúar 2026 barst frumrit af fæðingarvottorði, dags. 25. september 2025, í móttöku nefndarinnar. Á vottorðinu kemur fram að nafn kæranda sé […], hún sé fædd […] í Marka, Sómalíu og vottorðið hafi verið gefið út af sómalska sendiráðinu í París. Var fæðingarvottorðið sent til rannsóknar hjá lögreglu 13. febrúar 2026.

Kærunefnd bárust svör kæranda við viðbótarspurningum með tölvubréfi dags. 16. febrúar 2026 auk skjals sem virðist afrit af kvittun fyrir sendingu frumritsins af fæðingarvottorði kæranda frá franska sendiráðinu í París. Kvaðst kærandi hafa fengið fæðingarvottorðið í gegnum sómalskan embættismann sem hafi starfað fyrir franska sendiráðið. Hann hafi aðstoðað sómalska ríkisborgara við að fá borgaraleg skjöl hér á landi. Hún hafi hitt hann persónulega hér á landi og óskað eftir fæðingavottorði. Hún hafi átt við hann stutt viðtal, þar sem hún hafi deilt persónuupplýsingum sínum, upplýsingum um uppruna sinn og hvar heimabær hennar hafi verið. Embættismaðurinn hafi síðan sent fæðingarvottorðið til talsmanns í gegnum flutningafyrirtæki.

Skjalarannsóknarskýrsla lögreglu barst kærunefnd dags. 22. mars 2026. Niðurstöður skýrslunnar kveða á um að skjalið sé ótraust að forminu til en enga fölsun er að sjá. Á skjalinu sem var til rannsóknar kemur fram að það hafi verið gefið út 25. september 2025 af sendiráði Sómalíu í París, Frakklandi. Þá er gerð athugasemd í skýrslunni við að óljóst sé á hvaða gögnum útgáfa skjalsins byggir.

Þá er til þess að líta að opinber gögn frá Sómalíu eru almennt metin ótraust þar sem almanna skráningu þar í landi er verulega ábótavant og útgáfa falsaðra skjala algeng, líkt og ítarlega var fjallað um í úrskurði kærunefndar nr. 297/2020, dags. 10. september 2020. Hafa alþjóðleg stjórnvöld, svo sem kanadíska innflytjendaráðið, metið það svo að vegabréf útgefin af sómölskum yfirvöldum séu ekki áreiðanleg, meðal annars þar sem engir trúverðugir eða sannanlegir skráningaraðilar séu til útgáfu aðalskjala, svo sem fæðingarvottorða eða skrá yfir staðfestingu á ríkisborgararétti.

Varðandi útgáfu fæðingarvottorðsins þá er það ekki dregið í efa að kærandi hafi hitt fulltrúa franska sendiráðsins í París hér á landi enda hefur kærunefnd fengið staðfestingu frá fulltrúa utanríkisráðuneytisins að slík sendinefnd hafi komið til Íslands frá sendiráði Sómalíu í París. Hins vegar þá liggur ekki fyrir hvaða gögn hafa legið til grundvallar útgáfu vottorðsins. Út frá skýringum kæranda verður ráðið að vottorðið hafi verið gefið út á grundvelli upplýsinga sem hún veitti sjálf um nafn, fæðingardag, uppruna og heimabæ án þess að leggja fram gögn eða annað þeim staðhæfingum til stuðnings. Kærandi svaraði þá ekki spurningum kærunefndar um það hvort hún hafi lagt fram gögn til stuðnings auðkenni sínu eða gerði frekari grein fyrir því hvernig hún hafi staðfest auðkenni sitt fyrir sendifulltrúa sómalska sendiráðsins. Almennt eru fæðingarvottorð ein og sér ekki metin fullnægjandi til sönnunar á auðkenni þó þau geti í samhengi við önnur gögn og mat á trúverðugleika leitt líkum að auðkenni. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að fæðingavottorð sem kærandi hefur lagt fram til sönnunar á auðkenni sínu séu ótraust þar sem ekki er hægt að sannreyna að útgáfa þess byggi á traustum gögnum um auðkenni kæranda. Verður því ekki lagt til grundvallar að það staðfesti auðkenni kæranda.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar um ríkisfang kæranda og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari sem hafi á einhverjum tímapunkti verið búsett í Wanla Weyn umdæmi í Neðra-Shabelle, en auðkenni hennar sé að öðru leyti óupplýst.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. ágúst 2025);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 1. júlí 2024);
  • 2024 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, 28. febrúar 2025);
  • Access to Land and Tenure Documents. A situational analysis of minority groups in SouthWest, Jubaland and Puntland States of Somalia (Norwegian Refugee Council (NRC), febrúar 2025);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2024 – The State of the World’s Human Rights; Somalia 2024 (Amnesty International, 29. apríl 2025);
  • Amnesty International Report 2023 – The State of the World’s Human Rights; Somalia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Assessment Report on Minority Groups – Somalia 2025 (Minority Empowerment & Development Agency (MEDA, 27. febrúar 2025);
  • Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
  • BTI 2024 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 19. mars 2024);
  • Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
  • Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
  • Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, október 2025);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, febrúar 2025);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Humanitarian situation in Mogadishu (UK Home Office, júlí 2025);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, janúar 2019);
  • Country Policy and Information Note: Somalia – Mogadishu: Al Shabab and the security situation (UK Home Office, júní 2025);
  • Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
  • Country Reports on Terrorism 2023 – Somalia (US Department of State, 12. desember 2024);
  • DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
  • EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
  • EUAA, COI Report – Somalia: Country Focus (EUAA, maí 2025);
  • EUAA, COI Report – Somalia: Security Situation (EUAA, maí 2025);
  • Fråga – svar. Somalia. Allmän information om staden Qoryooley samt säkerhetsläget (Migrationverket, 14. apríl 2014);
  • Freedom in the World 2025 – Somalia (Freedom House, 2025);
  • Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2024);
  • Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
  • Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, 6. september 2022);
  • Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
  • Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
  • Qoryooley – Community Stabilization Index Lower Shabelle (Alþjóðlega fólksflutningsstofnunin (IOM), janúar 2022);
  • Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
  • Query response on Somalia: Low status groups (Landinfo, 12. desember 2016);
  • Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mógadisjú, Somalia (UNHCR, 25. 6. september 2013);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 3. júní 2024);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 30. september 2025);
  • Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
  • Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
  • Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
  • Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
  • Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia country profile (BBC, 2. janúar 2024);
  • Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
  • Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
  • Somalia: Ekteskap og skilsmisse (Landinfo, 26. ágúst 2024);
  • Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
  • Somalia. Impact of clan conflicts (ACAPS (Assessment Capacities Project), 19. mars 2025);
  • Somalia: Information on the Degodia clan, including distinguishing features, locations, occupations and position in the clan hierarchy; treatment (2014 – August 2016) Immigrations and Refugee Board of Canda, 2. September 2016;
  • Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
  • Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
  • Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
  • Somalia; Major political, security, and humanitarian developments [q24-2025] (EUAA, 13. ágúst 2025);
  • Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
  • Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
  • Somalia: Sikkerhetssituasjonen I Mogadishu per januar 2026 (Landinfo, 19. febrúar 2026);
  • Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
  • The World Factbook – Somalia (CIA, síðast uppfært 19. janúar 2026);
  • Vefsíða Minority Rights Group – Occupational groups in Somalia (https://minorityrights.org/communities/occupational-groups/, síðast uppfært í nóvember 2024) og
  • Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í nóvember 2024).

Sómalía er sambandslýðveldi með rúmlega 20 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2025 áttu sér stað tæp sex þúsund svokölluð öryggisatvik frá apríl 2023 til mars 2025, þ.e. bardagar, sprengingar og ofbeldi, m.a. gagnvart almennum borgurum. Hafi slík atvik verið að meðaltali 250 á mánuði.

Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti margvíslegri skattheimtu við eftirlitsstöðvar og á ýmsar afurðir, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (e. The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og öðrum bæjum suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og koma á stöðugleika og öryggi í landinu. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman t.d. til þess að gera árásir. Slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2025 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslum Landinfo frá 2018 og 2026 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti hafi lögreglan takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í suður- og mið-Sómalíu. Í skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá október 2024 kemur fram að sprengjuárásir séu ógn við almenning í Sómalíu og óbreyttir borgarar um þriðjungur skráðra mannfalla á tímabilinu frá ágúst 2023 til júlí 2024. Fram kemur í skýrslunni og skýrslu Landinfo frá 2026 að óbreyttir borgarar hafi ekki verið bein skotmörk sprengjuárásanna en árásir Al-Shabaab beinist einkum að ákveðnum skotmörkum s.s. byggingum eða búnaði yfirvalda sem og háttsettum einstaklingum.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að í Sómalíu séu fimm stærstu ættbálkarnir Darood, Hawiye, Isaaq, Dir og Rahanwyen (sem samanstendur af ættbálkunum Digil og Mirifle). Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt framangreindum heimildum telst ættbálkurinn Ashraf, til minnihlutahópar af þeim ættbálkum í Sómalíu sem iðki íslams trú. Heiti ættbálksins Ashraf sé fleirtala orðsins Sharif sem sé heiðurstitill kominn frá arabísku orði sem þýði göfugur. Meðlimir ættbálksins séu taldir vera afkomendur Fatimu, dóttur Múhameðs spámanns og sona hennar, Hasan og Hussein. Undirættflokkar Hasan séu Mohamed Sharif, Sharif Ali, Sharif Ahmed og Sharif Sarman. Undir Hussein flokkinn tilheyra undirættflokkarnir Reer Sharif Magbul, Sharif Ahmed og Sharif Balaaw (einnig nefndir Baalawi). Framangreindir flokkar séu þó ekki tæmandi eða endanlegir og líklegt að heildarfjöldi undirættbálka Ashraf séu fleiri. Ættbálkurinn sé hluti af Benadiri-minnihlutahópnum og hafi verið jaðarsettir innan sómalska samfélagsins. Meðlimir ættbálksins sæti oft mismunun sökum þess að þeir iðki trúna með öðrum hætti en aðrir ættbálkar. Ættbálkurinn hafi sögulega gegnt mikilvægu sáttamiðlunarhlutverki í átökum milli ættbálka og notið virðingar og verndar tiltekinna ættbálka. Þrátt fyrir að hafa náð pólitískum áhrifum og árangri á sviði menntunar og viðskipta við arabalönd sæti meðlimir Ashraf ættbálksins enn mismunun og mannréttindabrotum vegna uppruna síns, en talið sé að ættbálkurinn hafi flust til Sómalíu á tólftu öldinni. Samkvæmt skýrslu EUAA frá maí 2025 séu meðlimir Ashraf ættbálksins aðallega búsettir í kringum Mógadisjú og upp til Afgoye. Sumir búi einnig meðal Digil-fólksins í Bakool-héraði. Meðlimir ættbálksins sem búi meðferð suðurströnd Sómalíu séu taldir hluti af Benadiri minnihlutahópnum. Aðrir meðlimir ættbálksins búi í suðurhluta landsins í Baidoa, Hudur og Bulo Hawo, í Baay-, Bakool- og Gedo-héruðunum og séu taldir tilheyra Hasan ættkvísl Ashraf.

Neðri-Shabelle stjórnsýslusvæðið er staðsett í Suð-vestur fylki í Sómalíu. Höfuðborg Neðri-Shabelle er Marka en borgin Baraawe er opinber höfuðborg Suðvestur-fylkis. Í skýrslu EUAA frá maí 2025 kemur fram að Neðri-Shabelle sé þekkt fyrir að vera aðal landbúnaðarsvæði landsins og sé mikilvægt vegna staðsetningar sinnar við tvo aðalvegi sem tengi Mógadisjú við Baidoa og Kismayo, sem og vegna hafnarborganna Marka og Baraawe. Þá kemur fram að Neðri-Shabelle skiptist í sjö héruð: Marka, Wanla Weyn, Afgooye, Qoryooley, Baraawe, Kurtunwaarey og Sablaale. Íbúafjölda Neðri-Shabelle hafi verið lýst sem mjög fjölbreyttum og flóknum, sem samanstandi af fjölda Digil-Mirifle undirættbálka, Biyomaal (Dir) ættbálknum í kringum Marka og fjölmörgum Hawiye ættbálkum í austri. Neðri-Shabelle sé eitt af þeim svæðum í Sómalíu þar sem yfirráð Al-Shabaab hafi verið hvað sterkust, meðal annars vegna einangrunar frá mannúðaraðstoð, valdbeitingar samtakanna gegn íbúum sem séu krafðir um skattheimtu í formi uppskeru og hárrar tíðni barnsrána í þeim tilgangi að þvinga þau í raðir samtakanna. Fram kemur að tilraunir til að berjast gegn Al-Shabaab hafi verið takmarkaðar við einstaka loftárásir frá og með byrjun árs 2024. Á síðari mánuðum 2024 hafi þó átt sér stað nokkrar öryggisaðgerðir sem hafi beinst að vígi, felustöðum og eftirlitsstöðvum Al-Shabaab, og hafi fregnir meðal annars hermt að háttsettur foringi innan Al-Shabaab og tugir bardagamanna samtakanna hafi látist í loftárásum. Þá kemur fram að á árinu 2024 hafi ofbeldi milli ættbálka aukist verulega. Mikil spenna hafi verið á milli ættbálkahópa á svæðunum Baraawe, Qoryooley og Wanla Weyn, sem hafi stigmagnast í vopnað ofbeldi í júní-júlí 2024, þar á meðal átök í Qoryooley milli Jiido og Garre ættbálkanna, sem báðir séu hluti af Digil höfuðættbálknum, þar sem að minnsta kosti tveir hafi látist. Samkvæmt fyrirliggjandi skýrslum EUAA frá 2025 hafa áhrif Al-Shabaab verið veruleg í Wanla Weyn-héraði um langt skeið. Svæðið sé mikilvægt fyrir samtökin vegna staðsetningu héraðsins á milli Mógadisjú og Baidoa. Þá hafi samtökin nýtt sér yfirráð og áhrif á landsbyggðinni m.a. til skattheimtu og eftirlits. Þá bera skýrslurnar með sér að öryggisástand í Wanla Weyn sé áfram óstöðugt og að reglulega eigi sér stað átök milli Al-Shabaab, stjórnarhers og tengdra vígahópa. Einnig hafi íbúar svæðisins þurft að sæta þrýstingi af hálfu samtakanna, m.a. vegna þvingaðrar nýliðunar, skattheimtu og hótana gagnvart þeim sem teljist andsnúnir samtökunum eða neiti að hlíta fyrirmælum þeirra. Þá kemur auk þess fram að möguleikar stjórnvalda til að veita einstaklingum virka vernd á svæðinu séu takmarkaðir, einkum utan stærri þéttbýliskjarna.

Í skýrslu EUAA frá 2025 kemur fram að konur og stúlkur standi frammi fyrir margs konar áskorunum í Sómalíu, m.a. þvinguðum hjónaböndum á barnsaldri, kynfæralimlestingum, heimilisofbeldi, kynferðis- og kynbundnu ofbeldi, auk takmarkana á skólagöngu. Sómölsk lög og réttarkerfið veiti takmarkaða vernd gegn mismunun á grundvelli kyns. Konur eigi erfitt uppdráttar á mörgum sviðum, m.a. á sviði húsnæðis, menntunar og atvinnu. Þá njóti þær ekki jafnréttis þegar komi að því að erfa eignir og sé þeim oft neitað um þær eignir sem þær eigi lagalegan rétt á vegna félagslegra viðhorfa sem mismuni konum. Í skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að nauðganir og annað kynferðisofbeldi sé mjög útbreitt í Sómalíu, einkum í suður- og mið-Sómalíu og á svæðum innan Puntlands. Meirihluti brotanna sé ekki tilkynntur til lögreglu, einkum sökum víðtæks refsileysis innan réttarkerfisins og ótta og skömm þolenda. Heimilisofbeldi í garð kvenna í Sómalíu sé jafnframt lýst sem „hömlulausu“. Konur séu berskjaldaðar fyrir kynferðisofbeldi á vinnumarkaði og sé algengt að karlmenn, sem sjái um ráðningar innan bæði einkageirans og hins opinbera, krefjist einhvers konar kynlífsþjónustu gegn ráðningu. Konur hafa litla möguleika á að kvarta yfir slíku ofbeldi, en nær öruggt að konur missi vinnuna geri þær það. Fyrir vikið neyðist margar konur til að þola kynferðislega misnotkun til að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Þá sé þátttaka kvenna í stjórnmálastörfum takmörkuð vegna viðhorfa sem einkennist af mismunun og fjandskap í garð þeirra. Einstæðar konur séu almennt í viðkvæmari stöðu en giftar konur, en skortur á vernd í bland við viðhorf feðraveldisins í Sómalíu leiði til mismununar og útilokunar einstæðra kvenna. Einstæðar konur standi t.a.m. frammi fyrir erfiðleikum við að leigja eigið húsnæði þar sem þær þurfi karlmann til að ábyrgjast leigufyrirkomulagið. Þá eigi einstæðar konur sérstaklega á hættu að sæta kynbundnu ofbeldi þar sem þær neyðist til að vera á vinnumarki til að geta mætt grunnþörfum fjölskyldu sinnar og vegna staðalímynda í samfélaginu sem álíti konur og stúlkur veikburða. Í skýrslu Landinfo frá 26. ágúst 2024, kemur fram að leynileg hjónabönd séu algeng og almennt samþykkt í Sómalíu. Slík hjónabönd eigi sér stað án samþykkis fjölskyldna hjónaefnanna, annað hvort þar sem fjölskyldan viti ekki af fyrirhuguðum hjúskap eða fjölskyldan hafi hafnað bónorðinu. Til að slíkur hjúskapur sé löglegur verði hjónaefni að ferðast tiltekna vegalengd fjarri heimili sínu, samkvæmt hefð sé slíkt ferðalag um þriggja daga ferð á kameldýri, eða um 90 kílómetrar, þó að vegalengd geti farið eftir vilja þess einstaklings sem gefi hjónaefnin saman.

Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu miklar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2024 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á persónubundnum aðstæðum sínum og ástæðuríkum ótta við ofsóknir í heimaríki. Kærandi byggir á því að tilheyra þjóðfélagshópi vegna stöðu sinnar sem kona í Sómalíu og þolandi kynbundins ofbeldis sbr. d - liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur auk þess að hún búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli trúarbragða sbr. b-liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Kærandi greindi frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að vera fædd í [...] borg í Neðra-Shabelle en hafi flust til [...] þegar hún hafi verið þriggja ára gömul og alist upp þar. Þá hafi kærandi verið búsett í Mógadisjú í um mánuð hjá frænku sinni áður en hún hafi flúið heimaríki. Nafngreindur meðlimur Al-Shabaab, frændi hennar, A, hafi ítrekað reynt að þvinga hana til hjónabands, beitt hana hótunum og ofbeldi. A hafi byrjað að koma inná heimili hennar þegar hún hafi verið 14 eða 15 ára gömul og krafist þess að fá að giftast henni en faðir kæranda hafi neitað. Faðir kæranda hafi af þeim sökum verið tekinn af meðlimum Al-Shabaab og haldið í um viku tíma. Kvað kærandi að þessir aðilar hafi tekið föður hennar til þess að kenna honum trúnna en hann væri ekki að iðka hana rétt. Faðir kæranda hafi látist um einni viku eftir að hafa verið tekinn af meðlimum Al-Shabaab sökum blóðþrýstingsvandamála. A hafi ráðist að kæranda skömmu eftir andlát föður hennar og gert tilraun til nauðgunar. Kærandi hafi síðan ekki séð A í einhvern tíma, en hann hafi farið að berjast í stríði fyrir hönd Al-Shabaab en komið aftur þegar kærandi hafi verið um 17 ára. Þá hafi A komið heim til hennar í ófá skipti og lýst yfir vilja sínum um að giftast henni. Kærandi kvað A hafa slegið bróður hennar í eitt sinn. Þá kvað kærandi að A hafi hringt í sig eftir að hún hafi flutt til frænku sinnar í Mógadisjú en seinna leiðrétti hún sig og kvað hann hafa hringt í frænku sína. Kærandi vissi ekki hvernig hann hafi fundið hvar hún væri né fengið símanúmerið hjá frænku sinni. Í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að faðir A hafi komið í veg fyrir að A hafi gifst henni án samþykkis föður hennar. A og faðir hans hafi reynt að sannfæra föður hennar um að samþykkja hjónabandið en hann hafi neitað og í kjölfarið verið tekinn af meðlimum Al-Shabaab. Faðir A hafi síðar látist í átökum. Kærandi kvað A hafa komið um tíu skipti heim til hennar á tímabilinu maí til ágúst 2022. A hafi verið ágengur en hafi ekki beitt kæranda líkamlegu ofbeldi.

Þar sem nokkuð var um óskýrleika og misræmi í frásögn kæranda í viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda með tölvubréfi, dags. 10. febrúar 2026. Var annars vegar óskað eftir upplýsingum varðandi fæðingarvottorð kæranda og hins vegar frekari skýringum varðandi frásögn kæranda um ástæðu flótta hennar frá heimaríki. Var m.a. spurt út í þá mismunun sem kærandi kvaðst hafa orðið fyrir á grundvelli þess að kærandi og faðir hennar hafi tilheyrt minnihlutaættbálki en móðir hennar meirihlutaættbálki, samskipti A og föður hans við föður kæranda vegna hjónabands, umfang áreitis og ofbeldis af hálfu A og tilraun kæranda til að leita aðstoðar hjá Al-Shabaab vegna háttsemi A. Með tölvubréfi, dags. 16. febrúar 2026, bárust nefndinni umbeðnar upplýsingar. Í svörum sínum greindi kærandi nánar frá því að fjölskylda móður hennar hafi verið andvíg hjónabandi foreldra hennar vegna minnihlutaættbálkaaðildar föður hennar og að faðir hennar hafi sætt niðurlægingu og mismunun af þeim sökum. Þá greindi kærandi frá því að A hafi komið tvisvar að máli við föður hennar vegna hjónabands, að hann hafi síðar reynt að [...]. Þá greindi hún auk þess frá því að hún ásamt stjúpmóður sinni hafi rætt við leiðtoga Al-Shabaab í kaffiteríu þeirra en hann auk annarra meðlima Al-Shabaab hafi reglulega komið að kaupa te.

Margt í framburði kæranda dregur úr trúverðugleika frásagnar hennar af ástæðu flótta. Einkum er um að ræða misræmi hvað varðar eðli og umfang þess ofbeldis sem hún kvaðst hafa sætt af hálfu A, samskipti A og föður hans við föður kæranda vegna ætlaðs hjónabands, tímalínu atburða auk samskipta A við kæranda eftir að hún hafi flutt til Mógadisjú. Þá gætti misræmis í frásögn kæranda um hvort A hafi reynt að [...], umfang og eðli þess ofbeldis sem kærandi kvaðst hafa sætt af hans hálfu, hvort A hafi haft beint samband við kæranda eftir flutning hennar til Mógadisjú eða eingöngu við frænku hennar eða stjúpmóður, hversu oft bróðir kæranda hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu A og með hvaða hætti kærandi hafi leitað aðstoðar hjá forsvarsmönnum Al-Shabaab vegna háttsemi A. Þá er að mati kærunefndar ótrúverðugt að valdamikill meðlimur Al-Shabaab hafi um árabil ekki gengið til hjónabands við kæranda þrátt fyrir yfirburðastöðu og ítrekaðar hótanir þess efnis. Er það ennfremur ekki í samræmi við heimildir sem benda til þess að meðlimir Al-Shabaab hiki ekki við að ná fram vilja sínum með afli og ofbeldi. Er framagreint því til þess fallið að draga úr trúverðugleika frásagnar kæranda.

Kærandi hefur auk þess ekki getað lagt fram nein gögn sem styðja frásögn hennar um að hún hafi verið ofsótt af hálfu A, meðlims Al-Shabaab. Þrátt fyrir að tekið sé mið af aldri kæranda og þeirri erfiðu reynslu sem hún kvaðst hafa orðið fyrir telur kærunefnd að misræmið lúti að svo veigamiklum atriðum í frásögn hennar að það dragi verulega úr trúverðugleika hennar hvað varðar framangreint. Verður því með vísan til frásagnar kæranda, gagna málsins og heimilda um Sómalíu ekki lagt til grundvallar við úrlausn málsins að þvinga hafi átt kæranda til að giftast, A, meðlimi Al-Shabaab í heimaríki.

Heimildir bera með sér að konur og stúlkur í Sómalíu geti sætt athöfnum sem séu svo alvarlegar í eðli sínu að þær jafngildi ofsóknum. Þegar athafnir séu hins vegar eingöngu mismunun í eðli sínu, skuli einstaklingsbundið mat á því hvort slíkt geti talist ofsóknir taka mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafnanna eða því hvort þær stafi af samansafni athafna. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2022 eru aðstæður í Sómalíu ekki slíkar að allar konur teljist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli kyns síns. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar er það mat kærunefndar að almennar aðstæður kvenna í Sómalíu séu ekki slíkar að þær geti einar og sér talist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst hafa alist upp á heimili föður síns og stjúpmóður, hún hafi gengið í skóla og unnið í rekstri fjölskyldunnar. Greindi hún ekki frá því að hafa sætt mismunun eða áreiti á grundvelli kyns síns öðru en að framan hefur verið rakið. Er það því mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hún eigi á hættu ofsóknir á grundvelli stöðu sinnar sem kona í Sómalíu og þolandi kynbundins ofbeldis í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga.

Auk framangreinds byggir kærandi á því að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í Sómalíu á grundvelli ættbálkaaðildar sinnar. Kærandi greindi frá því að ættbálkur móður hennar [...], meirihlutaættbálkur, hafi mismunað kæranda á grundvelli þess að kærandi sjálf og faðir hennar tilheyrðu minnihlutaættbálki. Fram kom í svari kæranda til kærunefndar dags. 16. febrúar 2026, að faðir hennar hafi upplýst hana um að móðurfjölskylda hennar hafi verið andvíg hjónabandi foreldra hennar. Það hafi verið á grundvelli þess að móðir kæranda tilheyrði meirihlutaættbálki en faðir hennar tilheyrði minnihluta ættbálki. Eftir að foreldrar kæranda hafi gengið í hjónaband hafi móðurfjölskyldan ekki samþykkt föður kæranda inn í fjölskylduna, heldur ítrekað niðurlægt hann og mismunað honum. Samkvæmt frásögn kæranda hafi það jafnframt haft áhrif á stöðu hans innan samfélagsins og leitt til þess að hann hafi orðið fyrir virðingarleysi á vinnustaðnum. Eftir andlát móður kæranda hafi afstaða móðurfjölskyldu kæranda gagnvart föður hennar versnað og honum verið kennt um andlát móður hennar. Vegna þessa hafi faðir kæranda ákveðið að flytja til [...] með börnin sín þegar kærandi hafi verið um þriggja ára. Þá greindi kærandi ekki frá því að hafa sjálf orðið fyrir mismunun af hálfu móðurfjölskyldu sinnar eða að fjölskyldan hafi orðið fyrir mismunun eða öðru áreiti eftir að þau hafi flutt til [...]. Kærandi kvaðst tilheyra ættbálknum [...] sem er í minnihluta í Sómalíu. Samkvæmt fyrirliggjandi landaupplýsingum getur staða einstaklinga af minnihlutaættbálkum í Sómalíu verið lakari en annarra, m.a. hvað varðar félagslega stöðu, aðgengi að vernd og áhrif innan samfélagsins. Þó verður ekki ráðið af landaheimildum að aðild að Ashraf-ættbálki og Hasan-undirættbálki, leiði almennt eitt og sér til ofsókna. Þá verður ekki ráðið af frásögn kæranda að hún hafi sjálf sætt slíkri mismunun, áreiti eða að hún hafi mátt sæta áreiti eða meðferð sem náð getur því marki að teljast ofsóknir á grundvelli aðildar sinnar að minnihlutaættbálki. Með hliðsjón af frásögn kæranda og framangreindum landaupplýsingum hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún eigi á hættu ofsóknir á grundvelli ættbálkaaðildar í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Byggir kærandi á einstaklingsbundnum þáttum og almennu alvarlegu ástandi í heimaríki.

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að frásögn kæranda um að hún eigi hættu á að verða fyrir ofsóknum í heimaríki sé ótrúverðug. Að öðru leyti er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til þess að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hennar leiði til þess að hún eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hún til baka, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð málsins hefur verið lagt til grundvallar að kærandi komi frá [...] umdæmi í neðra-Shabelle. Samkvæmt skýrslu EUAA frá ágúst 2023 og korti á vefsíðu Political geography now frá júní 2025 fara sómölsk stjórnvöld með yfirráð í bæjunum [...], Barawe, Afoogye, Qoryoley, [...] og Awdghegle. Benda gögn því til þess að sómölsk stjórnvöld fari með yfirráð yfir heimasvæði kæranda. Samkvæmt leiðbeiningum EUAA frá október 2025 leiðir viðvera einstaklings ein og sér í Neðra-Shabelle héraði ekki til þess að viðkomandi teljist eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi c-liðar 15. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2011/95/EB (e. Qualification Directive). Hins vegar nái handahófskennt ofbeldi á svæðinu háu stigi og því þurfi minna að koma til við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum viðkomandi til að rökstuddar líkur verði taldar á því að viðkomandi muni eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi ákvæðisins verði honum gert að fara aftur til Neðra-Shabelle umdæmis. Með vísan til framangreinds og fyrirliggjandi gagna í málinu verður ekki séð að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í heimaríki hennar, s.s. vegna ættbálks hennar, fyrir þeirri hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á erfiðum almennum aðstæðum í heimaríki og erfiðum félagslegum aðstæðum.

Ljóst er að Sómalía glímir við ýmsa erfiðleika er tengjast almennu öryggisástandi í landinu sem og efnahag landsins og hafa stjórnvöld í landinu unnið að því með aðstoð alþjóðlegra aðila að bæta úr en enn sé langt í land. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki er það þó niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda þar nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Kærandi lagði fram gögn frá göngudeild sóttvarna, dags. 8. mars 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga. Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hún geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hana verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengilegt þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali greindi kærandi frá því að báðir foreldrar hennar séu látnir og fjölskyldumeðlimur sem sé hluti af Al-Shabaab samtökunum hafi viljað gifta hana nauðungarhjónabandi sem barn. Kærandi byggir auk þess á því að hún sé jaðarsett sökum ungs aldurs, kyns hennar auk þjóðfélagsstöðu í heimaríki. Með vísan í framangreint trúverðugleikamat verður ekki lagt til grundvallar að staða hennar sé verri en annarra kvenna í heimaríki. Kærandi hefur greint frá því að eiga bakland í heimaríki, hún hafi verið búsett hjá stjúpmóður sinni og systkinum þar sem hún hafi starfað í kaffiteríu á vegum stjúpmóður sinnar. Þá kemur einnig fram að hún hafi verið búsett í um mánuð hjá frænku sinni í Mógadisjú. Af gögnum málsins verður því talið að hún hafi getað framfleytt sér í heimaríki og njóti stuðnings fjölskyldu og ættingja. Kærandi er ung að árum og almennt heilsuhraust og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 18. desember 2022 og hafði málsmeðferð í máli hennar þá náð tímamörkum ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku framangreindra breytingalaga og á ákvæðið því við í máli kæranda.

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um er að ræða barn skal miðað við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d- liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærandi hefur lagt fram fæðingavottorð sem hún kveður hafa verið útgefið af sómalska sendiráðinu í París, Frakklandi. Með vísan til þess sem að framan er rakið hvað varðar gildi þess vottorðs og um auðkenni kæranda þá er ljóst að vafi sé uppi um auðkenni kæranda. Skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eru því ekki uppfyllt.

Þar sem kærandi uppfyllir ekki framangreind skilyrði verður henni ekki veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá verður ekki talið að ástæða sé til þess að falla frá framangreindum skilyrðum í samræmi við 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í svörum kæranda kom fram að hún hefði ekki tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Hún telji brottvísun og endurkomubann ósanngjarna ráðstöfun þar sem hún hafi komið hingað til lands í leit að hæli og hún viti ekki hvert annað hún geti farið.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir