1. maí 2026 /

Mál nr. 142/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 142/2026

Fimmtudaginn 28. maí 2026

A gegn B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.

Með kæru, dags. 16. febrúar 2026, kærði C lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun B, dags. 2. desember 2025, um synjun á beiðni hennar um afléttingu nafnleyndar vegna tilkynningar í barnaverndarmáli varðandi barn kæranda.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

B barst tilkynning undir nafnleynd þann 12. september 2025. Efni tilkynningar voru áhyggjur um að sonur kæranda fengi ekki nauðsynlega leiðsögn og það uppeldi sem hann þarfnast. Með beiðni lögmanns kærenda til B, dags. 27. október 2025  var óskað eftir því að nafnleynd tilkynningar yrði aflétt. Beiðninni var synjað með ákvörðun B, dags. 2. desember 2025, þar sem er ekki væru fyrir hendi sérstakar ástæður til að falla frá nafnleynd sbr. áskilnað 19. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl).

Lögmaður kæranda lagði  fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 23. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 25. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefnd velferðarmála eftir greinargerð B vegna kærunnar. Viðbótargögn vegna kæru bárust 27. febrúar 2026 og voru þær sendar B til kynningar með bréfi, dags. 16. mars 2026. Greinargerð B barst með bréfi, dags. 4. mars 2026 og var hún send lögmanni kæranda til kynningar með bréfi, dags. 11. mars 2026. Athugasemdir lögmanns kæranda við greinargerð B barst með bréfi, dags. 25. mars 2026 og voru þær sendar B til kynningar með bréfi, dags. 30. mars 2026. Engar frekari athugasemdir bárust.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir kröfu um að hinni kærðu ákvörðun B verði hnekkt og að samþykkt verði sú krafa kæranda um að aflétt verði nafnleynd af tilkynningu.

Vísað er til bréfs B, dags. 22. september 2025, til kæranda vegna sonar hennar í tilefni af tilkynningu undir nafnleynd, dags. 12. september 2025, þar sem lýst hafi verið  áhyggjum af því að drengurinn fengi ekki þá leiðsögn og uppeldi sem hann þarfnaðist. Fram kom í bréfi B að ekki hafi þótt tilefni til afskipta barnaverndar.

Einnig sé vísað til bréfs lögmanns kæranda, dags. 27. október 2025 þar sem þess hafi verið  krafist f.h. kæranda að B aflétti nafnleynd af þeirri tilkynningu sem vísað hafi verið til í bréfi B. Lagðar hafi verið fram umsagnir nokkurra aðila, sem allir hafi borið um einstakt samband þeirra mæðgina, gott atlæti og aðbúnað drengsins og fyrirmyndar uppeldi.

Enn fremur sé vísað til bréfs B, dags. 2. desember 2025, þar sem beiðni um afléttingu nafnleyndar var hafnað og ekki talið að sérstakar ástæður, sem áskildar séu fyrir afléttingu nafnleyndar, væru fyrir hendi.

Ofangreind ákvörðun er kærð til úrskurðarnefndar og þess krafist að ákvörðun B verði hnekkt og að samþykkt verði sú krafa kæranda um að aflétt verði nafnleynd af téðri tilkynningu. Fyrir þessu séu veigamikil rök, efnislega og lagalega.

Þess ber að geta að drengurinn er algjör sólargeisli móður sinnar, […]. Kærandi hafi haft grun um það að einn fjölskyldumeðlimur í þessari fjölskyldu sé tengdur eða hafi vitneskju um þá tilkynningu sem fyrst barst B. Sterkari grunur leikur á að aðilinn á bak við tilkynningu sé […] sem á dreng sem hafi verið í afar takmörkuðu sambandi við drenginn og á hún sennilega í fullu fangi með uppeldi sonar síns. Sá drengur hafi komið í örfá skipti á heimili kæranda og ekki hægt að byggja neitt á því sem kemur fram í tilkynningunni til þeirra á takmörkuðum samskiptum þeirra.

Í kjölfar þessa máls hafi það því miður raungerst að öll fjölskylda þessara frændsystkina hafi dregið verulega úr samskiptum við þau mæðgin og vilja meina að kærandi reki upphaflegu tilkynninguna til þeirra. Það hefur kærandi hins vegar aldrei gert. Í fyrsta sinn í mörg ár hafi […] með þessari fjölskyldu sinni sem sé þeim mikil vonbrigði, sérstaklega drengnum.

Mesta fórnarlamb þessa máls sé því miður drengurinn sem hafi misst mest allt samband við […] frændsystkini sín. Þetta mál hafi legið þungt á kæranda og fólki henni tengdu. Það sé kæranda og drengnum afar mikilvægt að fá nafnleynd þessari aflétt, þó ekki væri til nema þess að ná fjölskyldu þeirra til baka. Kæranda sé það líka í mun að geta haft áhrif á það inn á hvaða heimili drengurinn venur komur sínar í leik með vinum sínum og vill fyrir alla muni ekki að hann fari inn á heimili þess sem velur að senda inn röklausa tilkynningu um son hennar og efast um getu hennar til að sinna móðurhlutverkinu.

Téðar umsagnir séu frá einstaklingum sem séu í miklum og nánum samskiptum við kæranda og son hennar. Umsagnirnar sýna, þannig að yfir allan vafa sé hafið, að tilkynningin til B hafi algerlega verið tilefnislaus. En tilkynningin hafi ekki aðeins verið tilefnislaus, heldur hafi það blasið við að hún hafi verið send inn af annarlegum hvötum; hreinni og klárri illfýsi. Ekki sé nokkur spurning um það að hinn nafnlausi tilkynnandi hafi vísvitandi komið á framfæri rangri eða villandi tilkynningu um kæranda og son hennar. Allar hjálagðar umsagnir beri þess glöggt merki.

Til stuðnings kröfu um afléttingu nafnleyndar sé vísar kærandi til 19. gr. bvl., sbr. 13. gr. reglugerðar nr. 56/2004 um málsmeðferð fyrir barnavernd. Þar segir að óski tilkynnandi skv. 16. gr. barnaverndarlaga nafnleyndar gagnvart öðrum en nefndinni skuli það virt nema sérstakar ástæður mæli gegn því. Fái barnaverndarnefnd rökstuddan grun um að tilkynnandi hafi vísvitandi komið á framfæri rangri eða villandi tilkynningu geti nefndin tekið ákvörðun um að aflétta nafnleyndinni. Hinn rökstuddi grunur sem vísað sé til í lögunum og reglugerðinni blasir við þá er skoðaðar séu umsagnirnar sem lagðar hafi verið fram.

Í athugasemdum lögmanns kæranda við greinargerð B segir að hinn rökstuddi grunur sem vísað sé til í lögunum og reglugerð blasi við þegar skoðaðar séu umsagnirnar sem lagðar hafi verið fram með kröfu kæranda. Því sjónarmiði B sé alfarið hafnað að umsagnir þær sem kærandi hafi lagt fram með beiðni sinni sýni ekki fram á tilkynningin hafi verið send inn af annarlegum hvötum, enda augljóst að tilkynningin átti ekki við rök að styðjast. Sjónarmið B séu að þessu leyti algerlega órökstudd.

Sjónarmið greinargerðar með 19. gr. um vernd tilkynnanda eigi ekki við vegna þess að það komi skýrlega fram að verndin sé bundin við það að ekki sé verið að gera annað en að gæta hagsmuna tiltekins barns. Tilkynning í þessu tilviki beri það með sér efnislega og með hliðsjón af umsögnum um kæranda og son hennar að tilkynnandi hafi verið að gæta einhverra annarra hagsmuna en barnsins.

Því sé síðan hafnað að tilefni sé til þess að vísa kæru frá úrskurðarnefndinni þar sem ekki hafi veri kært innan lögbundins frests. Kærufrestir séu með ýmsu móti, en algengasti kærufresturinn í stjórnsýslunni sé þrír mánuðir. Í ákvörðun B frá 2. desember 2025 hafi lengd kærufrests ekki verið tiltekin eins og venja sé í niðurlagi stjórnvaldsákvörðunar. Það sé því afsakanlegt að fara fram yfir tímamörk.

III.  Sjónarmið B

Í greinargerð B kemur fram að um sé að ræða dreng sem lýtur forsjá móður sinnar. Mál drengsins hafi ekki verið til vinnslu hjá B að öðru leyti en vegna tilkynningar sem barst í máli drengsins þann 12. september 2025.

Þann 12. september 2025 barst B tilkynning undir nafnleynd um áhyggjur af velferð drengsins. Kom m.a. fram að viðkomandi hafi orðið vitni af því að drengnum hafi ekki verið sett nein mörk og að drengurinn hafi sjálfur greint frá því að hann ljúgi að kæranda og hún trúi honum alltaf. Þá kom fram að hegðun drengsins virtist engar afleiðingar hafa með sér og drengurinn hafði óheftan aðgang að samfélagsmiðlum og tali illa til annarra barna. Þá kom fram að kæranda taki þátt í að hylma yfir hegðun drengsins og tali neikvætt um útlit og eiginleika annarra barna. Lýst hafi verið áhyggjum að drengurinn fái ekki nauðsynlega leiðsögn og uppeldi sem hann þarfnist og hegðun drengsins geti verið skaðleg öðrum börnum.

Tilkynningin hafi verið tekin fyrir á úthlutunarfundi B þann 16. september 2025 skv. 1. mgr. 21. gr. bvl. Málinu hafi verið lokað í kjölfarið með bréfi en það hafi verið mat Barnaverndar að efni tilkynningar hafi ekki gefið tilefni til afskipta á grundvelli bvl. Kæranda hafi verið leiðbeint að fylgjast vel með netnotkun drengsins og leita sér uppeldisaðstoðar ef hún væri í þörf fyrir slíkt og var vísað til D vegna þessa, sbr. lokabréf þess efnis, dags. 22. september 2025.

Þann 27. október 2025 barst Barnavernd beiðni lögmanns kæranda um afléttingu á nafnleynd á tilkynningunni. Meðfylgjandi beiðni lögmanns voru umsagnir aðila í kringum kæranda sem hafi átt að sýna að tilkynningin hafi verið algerlega tilefnislaus og kom fram að tilkynningin hafi verið send inn af annarlegum hvötum eins og nánar komi fram í erindi lögmanns, dags. 27. október 2026 sem fylgdi með kæru lögmanns til úrskurðarnefndar.

Beiðni um afléttingu nafnleyndar hafi verið synjað í bréfi til lögmanns kæranda þann 2. desember 2025 með vísan til þess að B taldi að ekki væru fyrir hendi sérstakar ástæður sem áskildar séu til þess að aflétta megi nafnleynd sbr. 19. gr. bvl. Þrátt fyrir að ekki sé dregið í efa að kæranda sé mikilvægt að fá að vita hver tilkynnti til barnaverndar taldi barnavernd að ákvæði 19. gr. væri ekki uppfyllt. Við það mat hafi m.a. verið haft til hliðsjónar þau sjónarmið sem fram komi í athugasemdum með 19. gr. frumvarpsins til bvl. og séu eftirfarandi:

„Þegar rætt er um nafnleynd tilkynnanda í barnaverndarmálum vegast einkum á þrenns konar sjónarmið. Í fyrsta lagi sjónarmið um réttláta málsmeðferð. Samkvæmt þeim hefur aðili máls rétt til að vita hver tilkynnti um ófullnægjandi aðbúnað barns. Það kann að skipta hann miklu máli til þess að andmælaréttur hans nýtist að fullu. Sé lögð áhersla á þetta sjónarmið leiðir það til þess að gera verður ráð fyrir því sem meginreglu að aðili eigi rétt á að vita hver tilkynnandi er. Er gengið út frá þeirri meginreglu í þessu frumvarpi.

Í öðru lagi koma til þau sjónarmið sem varða vernd tilkynnanda. Þá er lögð áhersla á það sjónarmið að tilkynnandi sjálfur, sem er ekki að gera annað en að gæta hagsmuna tiltekins barns og um leið opinberra hagsmuna, eigi rétt á því að vera laus við þau óþægindi sem vitneskja aðila kann að hafa í för með sér fyrir tilkynnanda.

Í þriðja lagi koma síðan til athugunar sjónarmið sem varða virkni og árangur í barnaverndarstarfi. Því er haldið fram að sé tilkynnendum ekki tryggð nafnleynd muni það fæla þá frá því að tilkynna. Afleiðingin yrði sú að barnaverndarnefnd fengi ekki upplýsingar um hagi barna þótt full þörf kynni á afskiptum hennar. Tvö síðarnefndu sjónarmiðin eru augljóslega tengd.

Í ákvæðinu er farin sú leið að byggja á nafnleynd tilkynnanda sem aðalreglu með sama hætti og gert er í gildandi lögum. Það byggist á því að sjónarmiðið um virkni og árangur í barnaverndarstarfi vegi þyngst þeirra sjónarmiða sem kynnt voru hér að framan. Nauðsynlegt er að upplýsingar um aðbúnað barna berist greiðlega til barnaverndarnefndar. Jafnframt er byggt á því sjónarmiði, sem er tengt hinu fyrrnefnda, að verði tilkynnendum ekki tryggð nafnleynd muni það fæla þá frá að tilkynna. Afleiðingin yrði sú að barnaverndarnefnd fengi ekki upplýsingar um hagi barna þótt full þörf væri á afskiptum hennar. Ákvæði núgildandi laga og frumvarpsins um nafnleynd endurspegla sérstöðu barnaverndarmála innan stjórnsýslunnar, að börn eru ekki talin þess umkomin að gæta hagsmuna sinna sjálf með því að snúa sér til barnaverndaryfirvalda….“

Lögmaður kæranda hafi vísað m.a. til þess í kæru sinni til úrskurðarnefndar að öll fjölskyldan hafi dregið verulega úr samskiptum við þau mæðgin og vilja meina að kærandi reki upphaflegu tilkynninguna til þeirra. Hafi það haft þær afleiðingar að mæðgin hafi ekki […] með fjölskyldu sinni sem hafi verið þeim mikil vonbrigði og vísar til þess að mesta fórnarlamb málsins sé drengurinn sem hafi nú misst mest allt samband […] frændsystkini sín.

Þá vísar lögmaður til umsagna sem hafi verið meðfylgjandi kæru frá aðilum sem standa að kæranda og/eða drengnum og telur tilkynninguna ekki aðeins tilefnislausa heldur blasi við að hún hafi verið send inn af annarlegum hvötum; hreinni og klárri illfýsi. Áðurnefnt lokabréf, dags. 22. september 2025, vegna tilkynningarinnar hafi verið sent kæranda og hafa engir aðrir utankomandi einstaklingar fengið upplýsingar um málefni þeirra mæðgna hjá B. Verður því ekki séð hvernig sú málsmeðferð hafi komið samskiptum þeirra mæðgna við fjölskyldu sína úr skorðum nema þá væntanlega með háttsemi kæranda gagnvart fjölskyldunni í kjölfar þess að hafa fengið lokabréfið sent til sín. Þá sé það mat B að það að kærandi hafi fengið aðila í kringum sig til að skrifa jákvæðar umsagnir ekki færa rök fyrir því að tilkynningin hafi verið tilefnislaus né að það hafi blasið við að hún hafi verið send inn af annarlegum hvötum eins og lögmaður vísar til í kæru sinni.

B telur því mikilvægt að tilkynnandi fái að njóta nafnleyndar sbr. 19. gr. bvl. Almenningur hafi tilkynningarskyldu til barnaverndarþjónustu skv. 16. gr. bvl. ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisástæður, verða fyrir ofbeldi eða heilsu þeirra og þroska er stofnað í hættu. Fái tilkynnandi ekki að njóta nafnleyndar sbr. 19. gr., skapast sú hætta að almenningur fælist frá því að senda tilkynningar til barnaverndaryfirvalda, með þeim afleiðingum að barnaverndaryfirvöld fái ekki upplýsingar um hagi barna þótt að full þörf væri á afskiptum hennar.

Sú ákvörðun sem tekin hafi verið hjá B að synja beiðni um afléttingu nafnleyndar hafi verið gert með hagsmuni barnsins í huga, eins og kveðið sé á um í meginreglum barnaverndarstarfs sbr. 4. gr. bvl. Hagsmunir barnaverndarstarfsins í heild verði að vega þyngra en hagsmunir einstakra málsaðila af því að fá nafnleynd tilkynnanda í máli sínu aflétt.

Eins og rakið hafi verið sé mikilvægt að tilkynnandi geti notið nafnleyndar ef þess sé óskað og sé það mat B að nafnleynd sé meginregla vegna tilkynninga eins og fram kemur í fyrrgreindum athugasemdum við frumvarp barnaverndarlaga.

Þá sé einnig vakin athygli á því að hin kærða ákvörðun B sem tekin hafi verið og kynnt þann 2. desember 2025 hafi verið kæranleg til úrskurðarnefndar velferðarmála sbr. 2. mgr. 19. gr. bvl. og hafi kærufrestur verið fjórar vikur skv. 1. mgr. 51. gr. bvl. en kæran hafi verið lögð fram þann 16. febrúar 2026. Í ljósi framangreinds sé fyrir hönd B gerð krafa um að málinu verði vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála í ljósi þess að ákvörðunin hafi ekki verið kærð innan lögbundins frests en til vara sé gerð krafa um að hin kærða ákvörðun, þess efnis að afléttingu á nafnleynd á tilkynnanda í máli drengsins hafi verið synjað, verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar þá ákvörðun B að synja kröfu kæranda um að nafnleynd verði aflétt vegna tilkynningar sem barst 12. september 2025.

Samkvæmt 5. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála nr. 85/2015 er kærufrestur til nefndarinnar þrír mánuðir nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggir á. Í 1. mgr. 51. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.) sem kæran byggir á, er kveðið á um fjögurra vikna kærufrest frá því viðkomandi var tilkynnt um úrskurð eða ákvörðun.

Í 20. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem fjallar um um birtingu ákvörðunar, segir í 2. tölulið 2. mgr. 20. gr., sbr. 3. mgr. 20. gr. að þegar ákvörðun er tilkynnt skriflega skal veita m.a. leiðbeiningar um  kæruheimild, kærufresti og svo hvert skuli beina kæru. Samkvæmt 28. gr. stjórnsýslulaga skal samkvæmt 1. tölulið 1. mgr. vísa kæru frá hafi hún borist að liðnum kærufresti nema að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr.

Í ljósi þess að í hinni kærðu ákvörðun var ekki tilgreindur skammur kærufrestur barnaverndarlaga verður að líta svo á að afsakanlegt sé að kæra hafi ekki borist fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Kærunni verður því ekki vísað frá nefndinni á þeim forsendum að kæran hafi borist að liðnum kærufresti.

Reglur um nafnleynd koma fram í 19. gr. bvl. og tengjast reglum um tilkynningarskyldu sem fram koma í 16. gr. sömu laga. Í 1. mgr. 16. gr. laganna er kveðið á um tilkynningarskyldu almennings. Þar segir að öllum sé skylt að tilkynna til barnaverndarþjónustu ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.

Í 2. mgr. 19. gr. bvl. kemur fram að óski tilkynnandi samkvæmt 16. gr. laganna eftir nafnleynd gagnvart öðrum en barnaverndarþjónustu skal það virt nema sérstakar ástæður mæli gegn því. Þessi regla kemur einnig fram í 13. gr. reglugerðar nr. 56/2004 um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd. Þar segir að fái barnaverndarnefnd rökstuddan grun um að tilkynnandi hafi vísvitandi komið á framfæri rangri eða villandi tilkynningu geti nefndin tekið ákvörðun um að aflétta nafnleyndinni. Samkvæmt þessu er meginreglan sú að nafnleynd verður ekki aflétt, nema í þeim undantekningartilvikum að sérstakar ástæður séu fyrir því. Þess ber að geta að það getur varðað sektum eða fangelsi allt að tveimur árum að koma vísvitandi röngum eða villandi upplýsingum á framfæri við barnaverndarþjónustu um atriði sem barnaverndarlög taka til.

Þegar tilkynning berst barnaverndaryfirvöldum um ætlaðar óviðunandi aðstæður barns hvílir sú skylda á barnaverndaryfirvöldum að hefja ekki könnun máls, nema rökstuddur grunur sé um að tilefni sé til þess, sbr. 5. mgr. 21. gr. bvl.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er til þess að líta að samkvæmt 2. mgr. 19. gr. bvl. er meginreglan sú að nafnleyndar skuli gætt varðandi tilkynningar samkvæmt 16. gr. laganna og þurfa sérstakar ástæður að vera fyrir hendi til að nafnleynd sé ekki virt og þá meðal annars með hliðsjón af 1. mgr. 4. gr. bvl. Úrskurðarnefndin telur að ekki beri að aflétta nafnleynd þrátt fyrir að ekki hafi reynst ástæða til frekari afskipta barnaverndaryfirvalda vegna tilkynningar og málinu lokað. Ekki verður talið að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í því máli sem hér um ræðir sem réttlæti að nafnleynd sé aflétt. Samkvæmt framansögðu ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun B frá 2. desember 2025 um að synja beiðni A, um afléttingu nafnleyndar vegna tilkynningar um barn hennar, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson