28. maí 2026 /

Mál nr. 78/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 78/2026

Fimmtudaginn 28. maí 2026

A gegn B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.

Með kæru, dags. 29. janúar 2026, kærði C, lögmaður, f.h. A9, til úrskurðarnefndar velferðarmála úrskurð umdæmisráðs G frá 15. janúar 2026 vegna umgengni kæranda við börn hans, D og E.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Drengurinn D,  X ára og stúlkan, E, X ára, eru börn kæranda. Börin lúta sameiginlegri forsjá foreldra sinna, kæranda og F. Börnin hafa verið vistuð utan heimilis frá því í september 2025 en áður höfðu þau verið vistuð utan heimilis frá febrúar 2024 til janúar 2025.

Með úrskurði héraðsdóms Suðurlands var fallist á kröfu B um áframhaldandi vistun barnanna í 12 mánuði eða til janúar 2027. Kærandi hefur skotið þeim úrskurði til Landsréttar.

Kærandi hafnaði tillögum B um umgengni hans við börnin og var málið því lagt fyrir umdæmisráð G. Úrskurðarorð hins kærða úrskurðar er svohljóðandi, auk þess sem þar er bent á kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála:

„E, og D, skulu eiga umgengni við föður sinn A, einu sinni í mánuði, í allt að eina og hálfa klukkustund í senn, undir eftirliti í húsnæði á vegum B á meðan börnin eru vistuð utan heimilis.“

Lögmaður kæranda lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 29. janúar 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 3. febrúar 2026, var óskað eftir greinargerð B ásamt gögnum málsins. Greinargerð B barst nefndinni með bréfi, dags. 27. febrúar 2026, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. mars 2026, var hún send lögmanni kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að hinum kærða úrskurði verði hrundið og honum heimilað að rækja umgengni við börn sín hverja helgi, tvo tíma í senn, án eftirlits. Kærandi vilji koma eftirfarandi rökstuðningi á framfæri fyrir þeirri kröfu að hann eigi að fá umgengni við börnin án eftirlits.

Lagagrundvöllur og grundvallarsjónarmið

Réttur barns til umgengni við foreldra sína og réttur foreldra til umgengni við börn sín séu grundvallarmannréttindi  sem  njóta  verndar  í  íslenskum  lögum  og  alþjóðlegum  samningum sem Ísland er aðili að.

1.      Stjórnarskrá Íslands:

Samkvæmt 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 á hver maður rétt til friðhelgi einkalífs, fjölskyldulífs og heimilis. Takmörkun  á  þessum rétti verður að vera byggð á lögum og vera nauðsynleg og í eðlilegu  samræmi við það markmið sem stefnt er að.

2.      Mannréttindasáttmáli  Evrópu  (MSE):

Rétt til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu tryggir 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr.  lög  nr.  62/1994. Mannréttindadómstóll Evrópu hafi ítrekað lagt áherslu á mikilvægi þess að viðhalda fjölskylduböndum og að takmarkanir á umgengni verði að vera lögmætar,  nauðsynlegar og í réttu hlutfalli við þau markmið sem þeim sé ætlað að þjóna.

3.      Barnaverndarlög nr. 80/2002:

Í 74. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 komi skýrt fram að barn eigi rétt til umgengni við foreldra og aðra sem því séu nákomnir. Foreldrar eigi einnig rétt til umgengni við barn í fóstri nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt sé að með ráðstöfun þess í fóstur. Við mat á þessu skuli m.a. taka tillit til  þess hversu lengi fóstri sé ætlað að vara.

4.      Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna:

Í 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmálans sé kveðið á um að það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang við allar ákvarðanir sem varða það. Í 1. mgr. 9. gr. sé jafnframt áréttað að aðildarríki skuli tryggja að barn sé ekki skilið frá foreldrum sínum gegn vilja þeirra, nema þegar aðskilnaður sé nauðsynlegur með tilliti til hagsmuna barnsins.

 

 

Hagsmunir barnsins og umgengni án eftirlits

Þótt hagsmunir barnsins skuli ávallt vera í fyrirrúmi, telji kærandi að umgengni án eftirlits  þjóni hagsmunum barnanna mun betur en umgengni undir eftirliti.

1.      Eðlileg tengslamyndun: Umgengni undir eftirliti sé í eðli sínu íþyngjandi og hamlar  eðlilegri tengslamyndun milli foreldris og barns. Slíkar aðstæður skapa óþarfa  spennu og óþægindi, sem geta haft neikvæð áhrif á gæði umgengninnar og  möguleika á að byggja upp traust og nánd.

2.      Engin sýnileg hætta: Engar upplýsingar liggja fyrir í málinu sem benda til þess að kærandi sé börnunum hættulegur eða að umgengni án eftirlits myndi skaða börnin. Ef  ekki sé hægt að sýna fram á saknæma háttsemi eða yfirvofandi hættu frá föður, sé ekki réttlætanlegt að beita svo íþyngjandi ráðstöfun sem umgengni undir eftirliti sé.

3.      Meðalhófsreglan: Úrskurður umdæmisráðs um umgengni verði að samræmast  meðalhófsreglunni, sem felur í sér að ekki megi beita íþyngjandi ráðstöfunum nema þær séu nauðsynlegar til að ná markmiðinu og standi í réttu hlutfalli við það. Ef vægari ráðstöfun getur náð sama markmiði skal hún valin. Ef umgengni án  eftirlits sé möguleg  án þess að tefla hagsmunum barnanna í hættu, þá sé takmörkun með eftirliti óþörf og brýtur í bága við meðalhófsregluna.

Vilji barna og tengsl við uppruna

1.        Réttur til að þekkja uppruna: Börnum ber réttur til að þekkja uppruna sinn og viðhalda tengslum við kynforeldra sína, jafnvel þótt þau séu í fóstri.

2.        Vilji barnanna: Þótt afstaða barna sé metin út frá aldri og þroska, skal taka tillit til vilja þeirra þegar slíkt sé mögulegt og það stríðir ekki gegn hagsmunum þeirra. Að leyfa umgengni án eftirlits gæti stuðlað að því að þessi vilji verði uppfylltur á eðlilegri hátt.

Með vísan til framangreinds sé það mat kæranda að ákvörðun umdæmisráðs G um umgengni undir eftirliti sé of íþyngjandi og ósamrýmanleg hagsmunum barnanna. Er þess krafist að úrskurðarnefnd velferðarmála felli úrskurð umdæmisráðs G úr gildi og ákveði að umgengni föður við börnin fari fram án eftirlits.

III.  Sjónarmið B

Í greinargerð barnaverndarþjónustunnar komi fram að með úrskurðinum hafi verið fallist á kröfu barnaverndarþjónustunnar um að börnin skuli eiga umgengni við kæranda, einu sinni í mánuði, í allt að eina og hálfa klukkustund í senn, undir eftirliti í húsnæði á vegum B á meðan börnin séu vistuð utan heimilis.

Barnaverndarþjónustan telur ekki tilefni til þess að fallast á kröfur kæranda enda sé það í samræmi við hagsmuni barnanna að hinn kærði úrskurður standi óraskaður og sé í því sambandi vísað til forsendna í hinum kærða úrskurði.

Vinnsla barnaverndarmála barnanna, sé ítarlega rakin í úrskurðum héraðsdóms G nr. U-24/2026 og U- 25/2026 frá 16. febrúar 2026 og í hinum kærða úrskurði umdæmisráðs G þar sem umgengni sé rakin sérstaklega og í greinargerð barnaverndarþjónustunnar sem lögð hafi verið fyrir fund umdæmisráðs G. Barnaverndarþjónustan vísar til umfjöllunar á málavöxtum í þeim gögnum sem og annarra gagna málsins en gerð verði grein fyrir helstu málavöxtum sem lúta að kæru sérstaklega.

Um er að ræða stúlkuna E, sem sé X ára gömul og drenginn D, sem sé X ára gamall, en þau lúta sameiginlegri forsjá foreldra sinna.  Foreldrar barnanna hafa slitið samvistum. Kærandi hafði verið með börnin í sinni umsjá frá því að vistun á vegum B utan heimilis lauk í janúar 2025. Kærandi hafi flutt með börnin á I í júní 2025 en áður hafi kærandi búið með börnunum á I. Kærandi sé með […] sem hann lenti í þegar hann var X ára gamall. Börnin hafa nú verið vistuð utan heimilis kæranda frá 3. september 2025. Fyrst með neyðarvistun skv. 31. gr. barnaverndarlaga í kjölfar tilkynninga frá leikskóla drengsins um ofbeldi kæranda í garð drengsins. Við könnun máls hjá kæranda sagði drengurinn ítrekað frá ofbeldi af hendi föður í sinn garð. Þá hafi stúlkan greint frá vanlíðan á heimili kæranda, að faðir blóti og öskri á hana og yngri bróður. Þá hafi hún greint frá því að kærandi hafi tekið harkalega í öxl hennar og dregið hana inn í herbergi, ásamt því að hún hafi orðið vitni að því að faðir beitti bróður hennar líkamlegu ofbeldi. Einnig hafi stúlkan greint frá því þann 11. desember 2025 að faðir hafi hrint henni, slegið hana og litla bróður hennar í andlitið. Jafnframt væri hún stundum hrædd hjá pabba sínum en vildi samt hitta hann.

Mál barnanna hafi verið lagt fyrir umdæmisráð G þann 17. september 2025 þar sem fallist hafi verið á vistun barnanna utan heimilis í fjóra mánuði samkvæmt 27. gr. barnaverndarlaga. Kærandi hafi skotið úrskurði umdæmisráðs G frá 18. september 2025 til héraðsdóms þar sem kröfum kæranda um að fella hann úr gildi hafi verið hafnað með úrskurði héraðsdóms G þann 7. nóvember 2025 í máli nr. U-502/2025. Kærandi hafi kært úrskurð héraðsdóms til Landsréttar sem með úrskurði þann 5. desember 2025 í máli nr. 774/2025 staðfesti úrskurð héraðsdóms.

Eftir að umdæmisráð G úrskurðaði um umgengni undir eftirliti í hinum kærða úrskurði hafi héraðsdómur G í málum nr. U-24/2026 og U-25/2026, frá dags. 16. febrúar 2026, úrskurðað um áframhaldandi vistun barnanna 12 mánuði eða til og með 17. janúar 2027, sbr. 1. mgr. 28. gr. barnaverndarlaga. Kærandi hafi skotið þeim úrskurðum til Landsréttar.

Fram komi í gögnum málsins að Í sálfræðingur hafi unnið mat á forsjárhæfni foreldra þegar málið hafi verið til meðferðar hjá B. Í matinu hafi verið dregið í efa að kærandi hefði getu til að skilja og mæta þörfum barnanna á mismunandi þroskastigum. Bent hafi verið á að varnaraðili hefði orðið fyrir heilaskaða og að slíkt gæti valdið skertri dómgreind, tilfinningaleysi, hvatvísi, skapofsaköstum, ofbeldishneigð og skertu innsæi og athygli. Matsmaður hafi talið þessi einkenni eiga við kæranda með hliðsjón af gögnum, viðtölum og upplýsingum frá aðilum sem þekkja hann. Niðurstöður CAPI-prófs hafi einnig bent til þess að kærandi væri líklegur til að beita börnin ofbeldi, og kærandi viðurkenndi sjálfur að hann þyrfti að vinna í því að halda stjórn á sér í umönnun barnanna. Í svörum matsmanns við spurningu um hvort dagleg umönnun og uppeldi foreldra gæti verið alvarlega ábótavant ef börnin færu aftur í þeirra umsjá, kom fram að vandinn væri svo alvarlegur, flókinn og langvarandi að hvorugu foreldri væri treystandi til að tryggja öryggi og velferð barnanna. Líklegt væri að börnin yrðu fyrir varanlegum skaða ef þau færu aftur í þeirra umsjá. Fyrir dómi í málum héraðsdóms G nr. U-24/2026 og U-25/2026 frá 16. febrúar 2026 staðfesti Í matsgerð sína og að matsgerðin ætti enn við um kæranda þó svo að matsgerðin hafi verið unnin í tengslum við fyrra barnaverndarmál barnanna. Aðspurð kvað Í að kærandi væri alls ekki fær um að hafa börnin í sinni umsjá. Það gæti tvímælalaust valdið börnunum skaða að fara aftur í hans umsjá þótt ljóst væri að kærandi vildi þeim vel. Kærandi hafi ekki gert sér grein fyrir hversu illa börnunum liði og að margt hefði verið að við hans uppeldisaðferðir. Í taldi að erfitt yrði að bæta forsjárhæfni kæranda svo vel væri meðal annars vegna þess hversu erfitt hefði verið að leiðbeina honum.

Kærandi hafi hafnað því að hafa beitt börnin ofbeldi og kannist ekki við frásagnir barnanna, hann hafi þvert á móti sýnt börnunum umhyggju, ást og alúð og það sé börnunum fyrir bestu að þau séu í hans umsjá.

Fram komi í úrskurðum héraðsdóms að kærandi hafi greint svo frá við aðalmeðferð málanna að ekki kæmi til greina að koma í umgengni við börnin undir eftirliti, enda ætlaði hann sér ekki að vinna með starfsmönnum barnaverndarþjónustunnar. Hann teldi enga þörf á eftirliti og hann vildi ekki vinna með starfsmönnum barnaverndarþjónustunnar vegna hegðunar þeirra og framkomu við vinnslu málsins.

Í úrskurðum héraðdóms komi ítrekað fram að kærandi eigi langa vegferð fyrir höndum til að teljast öruggur uppalandi barnanna. Hann þurfi að sækja sér aðstoð og jafnframt að vera til fullnægjandi samvinnu við barnavernd um að byggja upp forsjárhæfni sína og nýta nauðsynlegan stuðning við umönnun. Þrátt fyrir tilraunir barnaverndarþjónustu til þess að fá kæranda til samstarfs hafi það ekki gengið. Líkt og fram komi í gögnum málsins og hinum kærða úrskurði hafi umgengni að hluta til gengið vel en ekki verði horft fram hjá því að eftirlitsaðilar hafi þurft að hafa afskipti af hegðun kæranda við umgengni. Skortur á getu kæranda til að setja þarfir barna sinna fram yfir eigin komi hins vegar fram við umgengni þegar hann gerir óraunhæfar kröfur um samskipti af hálfu dóttur og setur son í erfiða aðstöðu með því að bjóða honum val sem ekki sé raunhæft. Þá velji kærandi frekar enga umgengni þvert á vilja barna en að sæta eftirliti. Í greinargerð kæranda fyrir umdæmisráð sé bent á það hlutverk barnaverndar að styðja foreldri til að efla tengsl við barn og því ætti kærandi að fá tækifæri til að vera einn með börnum sínum. Þessu sé hafnað af hálfu barnaverndarþjónustu. Tekið sé undir það mat umdæmisráðs að ætla megi í ljósi forsögu máls að starfsfólki barnaverndar sé betur unnt að styðja við tenglamyndun kæranda með því að vera til staðar og veita leiðsögn í umgengni. Er varðar önnur rök í greinargerð kæranda um rétt barna til umgengni við foreldra og þess hvort sannað hafi verið að ofbeldi hafi átt sér stað sé rétt að árétta að ekki sé farið fram á að neita kæranda um umgengni heldur að hún fari fram undir eftirliti.

Barnaverndarþjónustan telji í ljósi langvarandi vanda kæranda, innsæisleysis hans í eigin vanda sem uppalanda, forsögu máls, fyrirliggjandi forsjárhæfnismats og skorts á samvinnu við vinnslu máls hjá barnavernd og viðeigandi stuðningsúrræðum sé ekki orðið tímabært að heimila umgengni án eftirlits og að hafna verði kröfu kæranda.

Barnaverndarþjónustan hafni þeim fullyrðingum kæranda að umgengni án eftirlits þjóni hagsmunum barnanna betur en umgengni undir eftirliti og að úrskurður umdæmisráðs G sé of íþyngjandi og ósamrýmanleg hagsmunum barnanna. Ákvörðun og vinnsla málsins hafi byggst á meðalhófi og jafnræði og hafi verið reist á málefnalegum sjónarmiðum. Frá því að vinnsla málsins hófst hjá barnaverndarþjónustunni hafi ítrekað verið reynt að hafa samstarf við kæranda um vinnslu málsins og til þess að stuðla að aukinni velferð barnanna hjá kæranda. Kærandi hafi frá 3. nóvember 2025 neitað að koma í umgengni við börnin nema umgengnin fari fram án eftirlits. Við mat á hagsmunum barnanna hafi verið lögð til grundvallar meginreglur barnaverndarlaga nr. 80/2002, en einnig hafi verið litið til 71. gr. og 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. og lög nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu. Horft hafi verið til þess hvaða þjónaði hagsmunum barnanna best sbr. 1. ml. 3. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga en þar sé ítrekað að þegar afstaða sé tekin til umgengni barns við foreldra og aðra nákomna við ráðstöfun í fóstur skuli tekið mið af þeim hagsmunum.

Barnaverndarþjónustan telji könnun og vinnslu málsins hafa verið unna í samræmi við ákvæði barnaverndarlaga. Í ljósi þess að lítil sem engin samvinna hafi náðst við kæranda um að þiggja stuðningsúrræði sem honum hafi verið boðin og að samþykkja meðferðar og umgengnisáætlanir hafi það verið mat barnaverndarþjónustunnar að ekki væri unnt að grípa til vægari úrræða en að fara fram á að umdæmisráð G úrskurði um umgengni undir eftirlit í ljósi þeirra brýnu hagsmuna barnanna og réttinda sem felast í að búa við öryggi í daglegu lífi og þroskavænleg uppeldisskilyrði, sbr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003.

Barnaverndarþjónustan telji að krafa um umgengni undir eftirliti vera í samræmi við meginreglur barnaverndarstarfs sem tilgreindar séu í 4. gr. barnaverndarlaga þar sem mælt sé fyrir um að í barnverndarstarfi skuli beita þeim ráðstöfunum sem ætla megi að séu barni fyrir bestu og að hagsmunir barna skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi í starfsemi barnaverndaryfirvalda.

Að mati barnaverndarþjónustunnar sé kröfugerðin í málinu í samræmi við meðalhófsreglu enda sé hún að mati barnaverndarþjónustunnar sú vægasta sem hægt sé að grípa til þannig að hagsmunir barnanna verði tryggðir á meðan áfram sé unnið að bættum aðstæðum barnanna og kæranda.

Kröfugerð barnaverndarþjónustu um að umgengni barnanna við kæranda skuli fara fram undir eftirliti sé í samræmi við hagsmuni þeirra og skyldur stjórnvalda gagnvart þeim skv. samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem lögfestur hafi verið á Íslandi með lögum nr. 19/2013. Í 2. og 6. gr. samningsins sé kveðið á um að aðildarríki hans skuli í hvívetna virða réttindi barna og tryggja eftir fremsta megni að börn megi lifa og þroskast. Í 1. mgr. 3. gr. samningsins kemur fram að það sem er barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðilar, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir er varða börn.

Að mati barnaverndarþjónustunnar verði að virða réttindi barnanna sem um ræðir til þess að búa við viðunandi aðstæður og umönnun í daglegu lífi sbr. fyrrgreind ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sbr. lög nr. 19/2013 og ákvæði barnalaga enda sé ekki forsvaranlegt að ekki sé eftirlit með umgengni þeirra við kæranda á þessu tímamarki. Barnaverndarþjónustan telji einsýnt að engin vægari úrræði séu tæk til þess að tryggja öryggi þeirra á meðan látið verður reyna á hvort kærandi fáist til þess að vera í samvinnu og þiggja viðeigandi stuðningsúrræði til þess að bæta forsjárhæfni sína. Barnaverndarþjónustan byggi jafnframt á því að réttindi barnanna felist í því að búa við öryggi og stöðugleika í daglegu lífi. Það sé því mat barnaverndarþjónustunnar að hagsmunir kæranda verði að víkja fyrir brýnum hagsmunum barnanna við vinnslu málsins.

Áréttað sé að það sé mat barnaverndarþjónustunnar að við vinnslu málsins og í hinum kærða úrskurði hafi verið tekið réttmætt tillit til vilja barnanna í samræmi við aldur þeirra og þroska. Börnunum hafi verið skipaður talsmaður og afstaða þeirra könnuð og lýstu þau vilja sínum til að hitta kæranda. Barnaverndaryfirvöld beri ábyrgð á að velferðar barnanna sé gætt eins og kostur sé, að teknu tilliti til réttar þeirra til að umgangast föður sinn. Tekið sé undir mat umdæmisráðs að með vísan til gagna málsins og hagsmuna barnanna sé það þeim til hagsbóta að umgengni þeirra við kæranda verði með þeim hætti sem tillögur barnaverndarþjónustunnar hljóða á um. Afskipti barnaverndaryfirvalda skuli grundvallast af meðalhófi og sérstakar ráðstafanir aðeins réttlætanlegar beri nauðsyn til vegna hagsmuna barnsins, sbr. 7. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga. Umgengni með framangreindum hætti telst ekki brjóta gegn meðalhófsreglu, enda verður ekki talið að umgengni án eftirlits sé börnunum til hagsbóta með vísan til gagna málsins.

  1. Afstaða barnanna

Í málinu liggur fyrir skýrslur talsmanns barnanna, dags. 30. nóvember 2025, sem meðal annars ræddi við börnin um umgengni við kæranda.

Í skýrslu talmanns um drenginn kom fram að hann vilji hitta föður sinn og hann sakni hans.

Í skýrslu talsmanns um stúlkuna kom fram að hún sakni hans og vilji hitta hann en ekki mikið, allavegana ekki á meðan hann sé reiður.

V.  Niðurstaða

Drengurinn D,  X ára og stúlkan E, X ára, eru börn kæranda og lúta forsjá foreldra sinna. Börnin hafa verið vistuð utan heimilis frá september 2025 en áður höfðu þau verið vistuð utan heimilis frá ferbúar 2024 til janúar 2025.

Með hinum kærða úrskurði umdæmisráðs G frá 15. janúar 2026 var ákveðið að umgengni kæranda við börnin væri einu sinni í mánuði, í allt að eina og hálfa klukkustund í senn, undir eftirliti í húsnæði á vegum barnaverndarþjónustunnar.

Kærandi gerir kröfu um umgengni hverja helgi, tvo tíma í senn, án eftirlits.

Úrskurðarnefndin bendir á að samkvæmt 4. mgr. 51. gr. bvl. getur nefndin einungis staðfest úrskurð að niðurstöðu til eða hrundið honum að nokkru eða öllu leyti. Þá getur úrskurðarnefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju. Í þessu felst að úrskurðarnefndin getur ekki breytt hinum kærða úrskurði.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. bvl. á barn rétt á umgengni við foreldra og aðra sem eru því nákomnir. Foreldrar eiga með sama hætti rétt á umgengni við barn sitt í fóstri samkvæmt 2. mgr. sömu lagagreinar, nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt er að með ráðstöfun þess í fóstur. Við mat á þessu skal meðal annars taka tillit til þess hversu lengi fóstri er ætlað að vara. Samkvæmt 3. mgr. lagagreinarinnar skal taka afstöðu til umgengni barns, sem ráðstafað er í fóstur, við foreldra og aðra nákomna og skal taka mið af því hvað þjóni best hagsmunum barnsins. Samkvæmt 4. mgr. sömu lagagreinar hefur umdæmisráð barnaverndar úrskurðarvald um ágreiningsefni er varða umgengni barns við foreldra og aðra nákomna, hvort sem það varðar rétt til umgengni, umfang umgengnisréttarins eða framkvæmd.

Það er meginregla í barnaverndarstarfi að hagsmunir barns skuli ávallt vera í fyrirrúmi og beita skuli þeim ráðstöfunum sem barni eru fyrir bestu. Við úrlausn þessa máls ber því að líta til þeirrar stöðu sem börnin eru í. Það er gert til þess að unnt sé að taka ákvörðun um umgengni kæranda við börnin á þann hátt að hún þjóni hagsmunum þeirra best, sbr. 3. mgr. 74. gr. bvl.

Að mati úrskurðarnefndarinnar ber við úrlausn málsins að líta fyrst og fremst til þess hvaða hagsmuni börnin hafi af umgengni við kæranda. Í skýrslu talsmanns kemur fram að börnin sakni kæranda og vilja bæði eiga umgengni við hann.

Samkvæmt gögnum málsins hefur umgengni kæranda við börnin að hluta til gengið vel. Þrátt fyrir það virðist sem samvinna kæranda við barnaverndarþjónustu hafi verið ábótavant og hafa eftirlitsaðilar þurft að hafa afskipti af hegðun kæranda í umgengni við börnin. Í ljósi þessa og forsögu málsins verður að líta svo á að það séu hagsmunir barnanna að umgengni fari fram undir eftirliti og í húsnæði á vegum barnaverndarþjónustunnar þar sem hægt er að leiðbeina kæranda og gæta öryggis barnanna. Hvað varðar tíðni umgengni er það mat úrskurðarnefndarinnar að umgengni einu sinni í mánuði sé viðeigandi miðað við þá stöðu sem börnin eru í.

Með hliðsjón af atvikum máls verður að mati úrskurðarnefndarinnar talið að umgengnin hafi verið ákveðin í samræmi við þau sjónarmið sem leggja ber til grundvallar samkvæmt 2., 3. og 4. mgr. 74. gr. bvl.

Með vísan til alls þess, sem að framan greinir, ber að staðfesta hinn kærða úrskurð umdæmisráð G.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Úrskurður umdæmisráðs G frá 15. janúar 2026 varðandi umgengni D og E, við A, er staðfestur.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson