- október 2026 /
Mál nr. 21/2026-Úrskurður
.
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 21/2026
Fimmtudaginn 28. maí 2026
A og B gegn C
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.
Með kæru, móttekinni 9. janúar 2026, kærði D lögmaður, f.h. A og B, til úrskurðarnefndar velferðarmála, úrskurð umdæmisráðs E, dags. 3. desember 2025 en undirritaður 14. desember 2025, um úrræði án samþykkis foreldra vegna drengsins, F, á grundvelli 1. mgr. 26. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.).
I. Málsatvik og málsmeðferð
Drengurinn, F, er X ára sonur kærenda. Kærendur, sem eru foreldrar drengsins, fara sameiginlega með forsjá hans og býr hann hjá þeim.
Mál drengsins hefur verið til meðferðar hjá C og hafa alls verið gerðar fimm áætlanir um meðferð máls skv. 23. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.) með það að markmiði að bæta aðbúnað og líðan drengsins.
Samkvæmt hinum kærða úrskurði umdæmisráðs var fallist á forsendur fyrir tillögum C hvað varðar eftirlit með heimili drengsins og samþættingu þjónustu í þágu farsældar hans. Hafnað var kröfu barnaverndarþjónustu um að úrskurðað verði um að drengurinn skuli njóta sálfræðimeðferðar.
Úrskurðarorð hins kærða úrskurðar er svohljóðandi, auk þess sem þar er bent á kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála:
„1. Hafnað er kröfu barnaverndar um að F, skuli fá sálfræðiaðstoð samkvæmt b-lið 1. mgr. 26. gr. barnaverndarlaga.
2. Óboðað eftirlit skal vera með heimili F, skv. a-lið 1. mgr. 26. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
3. Samþætta skal þjónustu í þágu farsældar F, samkvæmt d-lið 1. mgr. 26. gr. barnaverndarlaga.
4. Ráðstafanir samkvæmt liðum 2 og 3 hér að framan skulu gilda til sex mánaða frá og með uppkvaðningu þessa úrskurðar.“
Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 9. janúar 2026. Með bréfi, dags. 12. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefnd velferðarmála eftir greinargerð C vegna kærunnar. Greinargerð C barst með bréfi, dags. 28. janúar 2026, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. febrúar 2026, var hún send lögmanni kærenda. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kærenda
Kærendur krefjast þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og að hafnað verði öllum kröfum barnaverndarþjónustunnar í málinu.
Með úrskurði hinn 14. desember 2025 féllst umdæmisráð E á tillögur C um að heimila eftirlit með heimili kærenda og samþættingu í þjónustu í þágu barns kærenda, sbr. a. og d. lið 1. mgr. 26. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Umdæmisráð féllst á kröfur kærenda um að hafna kröfu barnaverndarþjónustunnar um að úrskurða um að drengurinn skuli njóta sálfræðimeðferðar samkvæmt b. lið 1. mgr. 26. gr. barnaverndarlaga.
Málefni barns kærenda hafa verið á borði C síðan 17. júlí 2024, frá því að fyrsta tilkynning barst til barnaverndarþjónustunnar en í heildina hafi borist sex tilkynningar til barnaverndarþjónustunnar. Það liggi fyrir að fjölskyldan búi við nýjan raunveruleika en kærandi, móðir barnsins, hafi greinst […] og sé fjölskyldan enn að aðlagast þeim breytingum sem því fylgja. Virðist sem allar þær tilkynningar sem borist hafi barnavernd tengist þeim veikindum og því hvernig fjölskyldan hafi þurft að aðlagast breyttum aðstæðum í kjölfar þeirra.
Í kjölfar fyrstu tveggja tilkynninganna kvaðst barnaverndarþjónustan hafa sent kærendum boðunarbréf, sem ekki bárust til kærenda. Þann 18. ágúst 2024 barst tilkynning í gegnum Neyðarlínuna og fór teymisstjóri barnaverndarþjónustunnar ásamt lögreglu að heimili kærenda. Daginn eftir, þann 19. ágúst 2024, hafi kærandi, faðir drengsins, mætt til fundar með teymisstjóranum en þar kvaðst kærandi undrandi yfir vinnubrögðum barnaverndarþjónustunnar. Allt frá þessum tímapunkti hafi kærandi lýst því yfir að hann vilji ekki aðkomu umrædds teymisfulltrúa að málum er varði málefni fjölskyldunnar, þar sem hann sé ósáttur við vinnubrögð hennar. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og skýran vilja kærenda um að teymisstjórinn sinni ekki málefnum fjölskyldunnar hafi fyrrnefndur teymisstjóri haft aðkomu að málinu, allt þangað til nýlega en teymisstjórinn hafi látið að störfum hjá C. Kærendur telja að starfslok teymisstjórans séu m.a. vegna framferði hennar gagnvart fjölskyldu hans. Mál fjölskyldunnar hafi að auki verið flutt til G.
Í hinum kærða úrskurði umdæmisráðs komi fram að umdæmisráð telji að stuðningsúrræði samkvæmt 24. og 25. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 hafi ekki borið árangur og vísi til þess að kærendur hafi ekki verið til samstarfs. Kærendur telja staðreyndina hins vegar þá að barnavernd hafi ekki viljað koma til móts við kröfur kærenda sem hafi verið skýrar frá byrjun, þ.e. að vísa teymisfulltrúanum frá málefnum fjölskyldunnar. Barnavernd hafi ekki orðið við þessum kröfum og byggi kærendur á því, líkt og ítarlega sé rökstutt í greinargerð til umdæmisráðs að hvorki hafi verið gætt að meðalhófi né jafnræði við vinnslu máls þeirra hjá barnavernd. Aðgerðir barnaverndarþjónustunnar séu ekki reistar á málefnalegum sjónarmiðum sem réttlætast af hagsmunum barnsins. Það að barnaverndarþjónustan hafi farið fram á við umdæmisráð að úrskurða um þvingunarráðstafanir samkvæmt 26. gr. barnaverndarlaga án þess að vilja koma á móts við kröfur fjölskyldunnar og reyna þannig að byggja upp samstarf við kærendur sé að mati kærenda skýrt brot á meðalhófs- og jafnræðisreglum stjórnsýsluréttarins, þar sem það liggur fyrir að lögmæltum markmiðum yrði náð með öðrum og vægari hætti, t.a.m. með því að vísa teymisfulltrúanum frá málefnum fjölskyldunnar enda sé það skýr vilji kærenda að gera það sem barninu sé fyrir bestu. Hefði það orðið til þess að skapa sátt og grundvöll til samvinnu kærenda við barnavernd. Með úrskurði sínum hafi umdæmisráð samþykkt framferði barnaverndar sem brotið hafi m.a. gegn stjórnarskrárvörðum rétti fjölskyldunnar, t.a.m. friðhelgi einkalífs, sbr. 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, sbr. 65. gr. stjskr.
Í hinum kærða úrskurði komi fram að umdæmisráð hafi tekið réttmætt tillit til afstöðu drengsins og telji það ótvíræða hagsmuni hans að fá frekari aðstoð. Í gögnum málsins komi fram í skýrslu talsmanns barnsins að líðan þess sé góð og skipulag sé komið á heimilið. Telji barnið því ekki þörf á frekari afskiptum af hálfu barnaverndar. Vísar umdæmisráð til 2. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga og 1. tl. 12. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barns, sbr. lög nr. 18/1992 um að taka réttmætt tillit til skoðana barns í samræmi við aldur þess og þroska. Það liggi fyrir að með hinum kærða úrskurði umdæmisráðs sé ekki verið að taka mið af óskum og líðan barnsins. Röksemdafærsla umdæmisráðs sé því afar mótsagnarkennd þar sem að í málinu liggur fyrir skýr vilji barnsins sem sé X ára gamalt og sé úrskurður ráðsins ekki í samræmi við þann vilja.
Í kjölfar þess að málefni fjölskyldunnar hafi farið til umdæmisráðs hafi G samþykkt að taka yfir málefni fjölskyldunnar. Kærendur telji þetta vera jákvætt skref og hafi þau væntingar um farsælla samstarf og að teknar séu ákvarðanir í samstarfi við þau framvegis. Þau telja einnig ljóst að pottur hafi verið brotinn við meðferð málsins hjá C fyrst tekin hafi verið ákvörðun um það, eftir fyrirtöku málsins hjá umdæmisráði, að flytja málið. Þyki kærendum því efni til þess að aðgerðir fyrri barnaverndarþjónustu komi ekki til með að flytjast yfir með málinu heldur fái þau tækifæri til þess að vinna með G, án þess að málið verði mengað af hinni ólögmætu málsmeðferð sem einkenndi vinnubrögð fyrri barnaverndarþjónustu. Einnig vilji kærendur koma því á framfæri að líkurnar á góðu samstarfi séu talsvert meiri séu þvingunarráðstafanir ekki í gildi.
Hvað málavexti og aðstæður kærenda að öðru leyti varðar sé vísað til gagna málsins og greinargerðar kærenda til umdæmisráðs.
III. Sjónarmið C
Í greinargerð barnaverndarnefndar kemur fram að með hinum kærða úrskurði hafi verið fallist á kröfu barnaverndarþjónustunnar um að óboðað eftirlit skuli vera með heimili drengsins skv. a. lið 1. mgr. 26. gr. bvl. og að samþætta skuli þjónustu í þágu færsældar drengsins skv. d. lið 1. mgr. 26. gr. bvl. og að ráðstafanirnar skyldu gilda til sex mánaða frá og með uppkvaðningu úrskurðarins. Ekki hafi verið var fallist á kröfu um að drengurinn skyldi fá sálfræðiaðstoð skv. b. lið 1. mgr. 26. gr. bvl.
Barnaverndarþjónustan telji ekki tilefni til þess að fallast á kröfur kæranda enda sé það í samræmi við hagsmuni drengsins að hinn kærði úrskurður standi óraskaður og sé í því sambandi vísað til forsendna í hinum kærða úrskurði.
Vinnsla barnaverndarmáls er varðar drenginn sé ítarlega rakin í úrskurði umdæmisráðs E og í greinargerð barnaverndarþjónustunnar sem lögð hafi verið fyrir fund umdæmisráðs E og sé vísað til umfjöllunar á málavöxtum og þeirra gagna og annarra gagna málsins en gerð verði grein fyrir helstu málavöxtum sem lúta að kæru kærenda sérstaklega.
Barnaverndarþjónustan hafnar þeim fullyrðingum kærenda að ekki hafi verið gætt að meðalhófi eða jafnræði við vinnslu málsins og að vinnsla málsins hafi ekki verið reist á málefnalegum sjónarmiðum. Frá því að vinnsla málsins hófst hjá barnaverndarþjónustunni hafi ítrekað verið reynt að hafa samstarf við kærendur um vinnslu málsins og til þess að stuðla að aukinni velferð drengsins hjá kærendum.
Barnaverndarþjónustan telji líkt og gögn málsins bera með sér að stuðningsúrræði samkvæmt 24. og 25. gr. barnaverndarlaga hafi ekki borið árangur. Faðir hafi ekki verið til samstarfs um stuðningsúrræði og líkt og fram komi í hinum kærða úrskurði greindi hann skýrt frá þeirri afstöðu sinni á fundi umdæmisráðs að hann hafnaði allri samvinnu við barnaverndarþjónustuna. Barnaverndarþjónustan taki undir mat umdæmisráðs að tilkynningar um aðbúnað á heimilinu hafi bent til alvarlegs vanbúnaðar og skorts á hreinlæti sem yrði að bregðast við. Við vinnslu málsins hafi komið fram rökstuddar áhyggjur af vanrækslu drengsins sökum veikinda móður sem og fjarveru og hegðun föður. Fyrir liggi umsagnir starfsfólks úr skóla drengsins um aðbúnað og líðan sem og umsögn sálfræðings sem benda til þess að brýn þörf sé til að bregðast við krefjandi aðstæðum fjölskyldunnar. Fram komi í hinum kærða úrskurði að barnaverndarþjónustan hafi frá upphafi máls reynt víðtækan stuðning án þess að tekist hafi nema að hluta að fá faðir til samstarfs. Það hafi því verið mat umdæmisráðs að brýnir hagsmunir drengsins stæðu til þess að eftirlit færi fram á heimilinu sem og vegna krefjandi fjölskylduaðstæðna og líðan. Þá væri þjónusta við drenginn samþætt í þágu farsældar hans mikilvæg enda sé slíkri þjónustu ætlað tryggja að drengnum einstaklingsbundnum og markvissum stuðningi á forsendum hans. Taldi umdæmisráð að skilyrði 1. mgr. 26. gr. bvl. vegna kröfugerðar barnaverndarþjónustunnar hafi verið uppfyllt.
Barnaverndarþjónustan hafni þeim fullyrðingum kærenda að ekki hafi verið reynt að koma til móts við óskir föður við vinnslu málsins. Reynt hafi verið eftir fremsta megni að byggja upp samstarf við hann allt frá því að vinnsla málsins hófst. Tekið sé fram að á fundi föður og barnaverndarþjónustunnar þann 19. ágúst 2024 hafi hann tekið fram við teymistjóra barnaverndarþjónustunnar að hann væri tilbúinn til samstarfs og að þau væru í þessu saman. Síðar við vinnslu málsins hafi farið að bera á óánægju hans í garð umrædds teymisstjóra og vinnslu málsins hjá barnaverndarþjónustunnar. Þá hafi verið reynt eftir fremsta megni að láta aðra starfsmenn barnaverndarþjónustunnar vera í samskiptum við föður til þess að koma til móts við óskir hans og til þess að láta reyna á samvinnu hans um hagsmuni og velferð drengsins. Þær ráðstafanir hafi engum árangri skilað og hafi faðir ekki verið tilbúinn til samstarfs við barnaverndarþjónustuna um þau stuðningsúrræði sem lagt hafi verið upp með í meðferðaráætlunum sem liggi fyrir í málinu að undanskildi meðferðaráætlun nr. 4 sem einungis sneri að sálfræðiaðstoð fyrir drenginn, þrátt fyrir þær ráðstafanir. Rétt sé að benda á að afskipti barnaverndar af málefnum fjölskyldna geta verið íþyngjandi fyrir fjölskyldur og því séu barnaverndarmál ekki opin nema að ástæða sé til og skilyrði laga uppfyllt. Meðalhófsreglan sé ein af grunnreglum barnaverndarstarfs og gildir hún gagnvart foreldrum en ekki síst gagnvart börnunum en það getur verið mjög íþyngjandi fyrir aðila að þriðji aðili sé með afskipti af þeirra daglega lífi. Afskipti barnaverndar af högum barns sé hins vegar ekki valkvæð og sé það skylda barnaverndarþjónustu að hafa afskipti af börnum telji barnavernd að öryggi þeirra og velferð sé í hættu. Séu forsjársaðilar ekki tilbúnir til samstarfs ber barnaverndarþjónustu að beita þeim úrræðum sem barnaverndarlögin kveða á um heimild til.
Hvað varðar fullyrðingar kærenda um að teymisstjóri barnaverndarþjónustu hafi látið af störfum hjá barnaverndarþjónustunni vegna framferði hennar við vinnslu máls kærenda sé harðlega mótmælt. Teymisstjórinn sé enn starfsmaður barnaverndarþjónustunnar og telji barnaverndarþjónustan þær fullyrðingar kærenda í kæru vera ámælisverðar enda eiga þær ekki við nein rök að styðjast.
Á fundi umdæmisráðs E þann 3. desember 2025 hafi ítrekað komið fram hjá föður að hann hafnaði öllu samstarfi við barnaverndarþjónustuna og að hann kæmi ekki til með að samþykkja að barnaverndarþjónustan eða nokkur á hans vegum myndi fá að koma inn á heimili hans. Í kjölfar fundarins og vegna yfirlýsingar hans um höfnun á öllu samstarfi við barnaverndarþjónustuna hafi það verið mat barnaverndarþjónustunnar að hagsmunir allra aðila myndu felast í því að vinnsla málsins yrði rekin í öðru umdæmi skv. 15. gr. bvl. og hafi verið óskað eftir því að G tæki við vinnslu málsins. Þann 17. desember 2025 samþykkti G að taka við útvistun barnaverndarmáls drengsins. Flutningur málsins hafi verið með hagsmuni drengsins að leiðarljósi og til þess að reyna að skapa sátt um stuðningsúrræði fjölskyldunnar og vegna mikilvægi þess að hægt yrði að vinna að bættum hag drengsins hjá kæranda. Þrátt fyrir flutning málsins skv. 15. gr. bvl. sé það mat barnaverndarþjónustunnar að nauðsynlegt sé að úrskurður umdæmisráðs E standi óraskaður enda hafi forsendur fyrir beitingu úrræða 1. mgr. 26. gr. bvl. ekki breyst við flutninginn. Enn sé nauðsynlegt að hafa eftirlit með heimili drengsins og samþætta þjónustu í þágu farsældar hans.
Barnaverndarþjónustan telji könnun og vinnslu málsins hafa verið unna í samræmi við ákvæði barnaverndarlaga. Í ljósi þess að lítil sem engin samvinna hafi náðst við föður um að þiggja stuðningsúrræði sem honum hafa verið boðin og að samþykkja meðferðaráætlanir hafi það verið mat barnaverndarþjónustunnar að ekki væri unnt að gripa til vægari úrræða en að fara fram á heimild hjá umdæmisráð E þess efnis að barnaverndarþjónustunni væri heimilt að framkvæma boðað og óboðað eftirlit með heimili drengsins án samþykkis forsjár aðila og samþættingu þjónustu í þágu farsældar drengsins skv. a. og d. lið 1. mgr. 26. gr. bvl., í ljósi þeirra brýnu hagsmuna drengsins og réttinda sem felast í að búa við öryggi í daglegu lífi og þroskavænleg uppeldisskilyrði, sbr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003.
Barnaverndarþjónustan telji beitingu þessara úrræða vera í samræmi við meginreglur barnaverndarstarfs sem tilgreindar séu í 4. gr. bvl. þar sem mælt sé fyrir um að í barnaverndarstarfi skuli beita þeim ráðstöfunum sem ætla megi að séu barni fyrir bestu og að hagsmunir barna skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi í starfsemi barnaverndaryfirvalda.
Að mati barnaverndarþjónustunnar sé kröfugerðin í málinu í samræmi við meðalhófsreglu enda sé hún að mati barnaverndarþjónustunnar sú vægasta sem hægt sé að grípa til þannig að hagsmunir drengsins verði tryggðir á meðan áfram sé unnið að bættum aðstæðum drengsins og kærenda.
Kröfugerð barnaverndarþjónustunnar um heimild til þess að beita úrræðum a. og d. liðar 1. mgr. 26. gr. sé í samræmi við hagsmuni drengsins og skyldur stjórnvalda gagnvart honum skv. samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem lögfestur hafi verið á Íslandi með lögum nr. 19/2013. Í 2. og 6. gr. samningsins sé kveðið á um að aðildarríki hans skuli í hvívetna virða réttindi barna og tryggja eftir fremsta megni að börn megi lifa og þroskast. Í 1. mgr. 3. gr. samningsins kemur fram að það sem sé barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðilar, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir er varða börn.
Að mati barnaverndarþjónustunnar verði að virða réttindi drengsins sem um ræðir til þess að búa við viðunandi aðstæður og umönnun í daglegu lífi sbr. fyrrgreind ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sbr. lög nr. 19/2013 og ákvæði barnalaga enda sé ekki forsvaranlegt að ekki sé eftirlit með heimili drengsins á þessu tímamarki. Barnaverndarþjónustan telji einsýnt að engin vægari úrræði séu tæk til þess að tryggja öryggi drengsins á meðan látið verði reyna á hvort kærandi fáist til þess að vera í samvinnu og þiggja viðeigandi stuðningsúrræði. Barnaverndarþjónustan byggi jafnframt á því að réttindi drengsins felist í því að búa við öryggi og stöðugleika í daglegu lífi. Það sé því mat barnaverndarþjónustunnar að hagsmunir kæranda verði að víkja fyrir brýnum hagsmunum drengsins við vinnslu málsins.
Áréttað sé að það sé mat barnaverndarþjónustunnar að við vinnslu málsins og í hinum kærða úrskurði hafi verið tekið réttmætt tillit til vilja drengsins í samræmi við aldur hans og þroska. Drengnum hafi verið skipaður talsmaður og afstaða hans könnuð. Ekki sé unnt í ljósi alls þess sem að framan hafi verið rakið, í hinum kærða úrskurði og greinargerð barnaverndarþjónustunnar sem lögð hafi verið fyrir umdæmisráð að taka að fullu til greina óskir drengsins að þessu leyti sem fram komu í viðtali drengsins við talsmanns hans, enda verði það ekki talið þjóna hagsmunum og velferð hans að ekki verði áfram fylgst með öryggi, þroska og velferð hans í umsjá kærenda að svo stöddu.
VI. Niðurstaða
Drengurinn, F, er X ára og fara kærendur með sameiginlega forsjá. Með hinum kærða úrskurði umdæmisráðs E var fallist á að eftirlit verði haft með heimili drengsins á grundvelli a-liðar 1. mgr. 26. gr. bvl. og að þjónustu við drenginn skyldi samþætta í þágu farsældar hans á grundvelli d-liðar 1. mgr. 26. gr. bvl.
Kærendur krefjast þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og að hafnað verði öllum kröfum barnaverndarþjónustunnar í málinu.
Kærendur telja að barnavernd hafi ekki sýnt vilja til samvinnu og hafi því brotið gegn 5. mgr. 4. gr. bvl. Kærendur telja að hvorki jafnræðis né meðalhófs hafi verið gætt við meðferð málsins, sbr. 6. og 7. mgr. 4. gr. bvl. sbr. Þá telja kærendur að framferði barnaverndarþjónustunnar hafi brotið m.a. gegn stjórnarskrárvörðum rétti fjölskyldunnar, t.a.m. friðhelgi einkalífs, sbr. 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, sbr. 65. gr. stjskr. Barnaverndarþjónustan gerir kröfu um að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Í 26. gr. bvl. er fjallað um úrræði án samþykkis foreldra. Í a-lið 1. mgr. 26. gr. bvl. segir að hafi úrræði skv. 24. og 25. gr. ekki skilað árangri að mati barnaverndarþjónustu, eða barnaverndarþjónusta hefur eftir atvikum komist að þeirri niðurstöðu að þau séu ófullnægjandi, getur barnaverndarþjónusta farið fram á það við umdæmisráð barnaverndar að ráðið með úrskurði gegn vilja foreldra kveði á um eftirlit með heimili. Í d-lið 1. mgr. 26. gr. bvl. er með sama hætti kveðið á um að samþætta skuli þjónustu í þágu farsældar barnsins. Í 4. mgr. 26. gr. bvl. segir að þegar kveðið hafi verið á um samþættingu þjónustu skv. d-lið 1. mgr. með úrskurði tekur barnaverndarþjónusta við hlutverki málstjóra samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Að öðru leyti fer um samþættingu þjónustunnar samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nema öðruvísi sé mælt fyrir um í lögum þessum. Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. bvl. kemur fram að ráðstafanir samkvæmt 1. mgr. skuli ávallt vera tímabundnar og eigi standa lengur en þörf krefur hverju sinni og skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en á sex mánaða fresti.
Að mati barnaverndarþjónustunnar hefur samvinna við föður ekki skilað viðunandi árangri og hafnaði faðir frekari aðstoð vegna meðferðar málsins hjá barnaverndarþjónustunni. Málið hefur nú verið flutt til G og hafa kærendur nú væntingar um farsælla samstarfs um málefni fjölskyldunnar.
Úrskurðarnefndin óskaði eftir upplýsingum frá G með bréfi, dags. 18. mars 2026. Svar barnaverndarþjónustunnar barst með bréfi, dags. 1. apríl 2026 ásamt þeim gögnum sem orðið hafa til við vinnslu málsins hjá barnaverndarþjónustunni. Í bréfi G kemur fram að samstarf við foreldra hafi ekki verið fullnægjandi að því leiti að forsjáraðili hafi neitað því að framfylgja úrskurði og hleypa starfsmönnum í eftirlit á heimili.
Samkvæmt gögnum málsins eru fjölskylduaðstæður drengsins erfiðar m.a. vegna alvarlegra veikinda móður og eru eðli málsins samkvæmt áhyggjur af líðan hans. Heilsa drengsins virðist vera nokkuð góð og líður honum vel í skóla og heima. Fram kemur þó í gögnum málsins að drengurinn glímir við frammistöðukvíða í námi, slakan málþroska og er hann greindur með ADHD sem hann fær lyfjameðferð við. Að mati úrskurðarnefndarinnar er ljóst að drengurinn er í krefjandi aðstæðum sem rekja má til fyrrgreindra veikinda sem eru fjölskyldunni erfiðar. Nefndin fær þó ekki séð að nauðsynlegt sé að hafa eftirlit með heimili kærenda enda bera gögn málsins ekki með sér að aðstæður drengsins séu óviðunandi. Hins vegar telur úrskurðarnefndin að drengurinn og fjölskylda hans þurfi þjónustu sveitarfélagsins í góðri samvinnu en að vinnsla málsins á grundvelli úrræða barnaverndarlaga sé ekki þörf að svo stöddu.
Með vísan til alls framangreinds er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála í ljósi aðstæðna að það séu hagsmunir drengsins að látið verði af eftirliti með heimili hans og að samþætting þjónustu í þágu farsældar hans verði ekki undir málastjórn barnaverndarþjónustu. Með vísan til alls framangreinds ber að fella hinn kærða úrskurð úr gildi.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Úrskurður umdæmisráðs E, dags. 3. desember 2025, um úrræði án samþykkis foreldra vegna drengsins, F, á grundvelli 1. mgr. 26. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, er felldur úr gildi.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson