15. júní 2026 /

Mál nr. 146/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 146/2026

Mánudaginn 15. júní 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 24. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. september 2023 og var umsóknin samþykkt 26. september 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um veikindi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 24. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 25. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 20. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.

 
 

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann hafi slasast í bílslysi. Hann hafi […] verið í gifsi í tvo mánuði. Kærandi sé nú í endurhæfingu. Kærandi greinir frá því að hann hafi safnað skuldum vegna læknismeðferðar og rannsókna. Hann sé ekki með neinar tekjur til að greiða fyrir meðferðina.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 17. september 2023. Með erindi, dags. 26. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 31%.

Með erindi, dags. 21. janúar 2026, hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 22. janúar 2026, klukkan 12:00. Þá hafi kæranda verið tilkynnt að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausra tafa. Forföll bæri að tilkynna með því að senda skilaboð í gegnum „Mínar síður“ á vef Vinnumálastofnunar, vmst.is Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Boðunin hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang kæranda, X og í farsímanúmerið X þann 21. janúar 2026, klukkan 11:19. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan upplýsingafund né boðað forföll.

Kærandi hafi einnig verið boðaður þann 23. janúar 2026 á námskeið í Microsoft hugbúnaði sem hafi farið fram dagana 27., 28. og 30. janúar 2026. Þann 3. febrúar 2026 hafi borist tilkynning frá kæranda þar sem fram hafi komið að hann hafi ekki getað mætt á boðað námskeið þar sem hann hafi lent í bílslysi.

Með erindi, dags. 9. febrúar 2026, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan upplýsingafund þann 22. janúar 2026. Kærandi hafi samdægurs skilað skýringum þar sem fram hafi komið að hann væri í endurhæfingu og myndi hitta lækni og leggja fram læknisvottorð. Þann 12. febrúar 2026 hafi borist læknisvottorð frá kæranda þar sem fram komi að hann hafi ekki getað mætt þann 22. janúar 2026 sökum meiðsla. Jafnframt hafi verið tilgreint í læknisvottorðinu að kærandi væri óvinnufær að hluta frá 23. desember 2025 til 12. febrúar 2026.

Með erindi, dags. 19. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt ákvörðun stofnunarinnar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki tilkynnt um veikindi sín til Vinnumálastofnunar og því ekki uppfyllt tilkynningarskyldu sína. Þar sem að kærandi hefði fengið greitt meira en 24 mánuði á yfirstandandi bótatímabili hafi greiðslur atvinnuleysistrygginga verið stöðvaðar að fullu, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.

Framangreind ákvörðun hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 23. febrúar 2026. Skýringar kæranda samhliða kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi ekki sinnt mætingu á boðuð vinnumarkaðsúrræði.

Samkvæmt a. lið 13. gr. og [h. lið] 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist m.a. að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysistryggingar skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði um mætingu á þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun hafi boðað hann til í janúar 2026, né tilkynnt stofnuninni um forföll eða ástæður þeirra fyrr en stofnunin hafi kallað eftir skýringum.

Hin kærða ákvörðun, dags. 19. febrúar 202[6], varði viðurlög sem honum hafi verið gert að sæta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund þann 22. janúar 2026 né á boðað námskeið dagana 27., 28. og 30. janúar 2026. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynningar um forföll þrátt fyrir að í erindi því sem kæranda hafi verið sent þann 21. og 23. janúar 2026 hefði sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll skyldu tilkynnast til Vinnumálastofnunar. Eins og framan greinir þá hafi ekki borist tilkynning frá kæranda um að hann gæti ekki mætt á boðuð vinnumarkaðsúrræði vegna þess að hann hefði lent í bílslysi. Hann hafi verið í endurhæfingu og í gifsi frá því í desember. Eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda hafi borist læknisvottorð þar sem fram komi að hann hafi verið óvinnufær að hluta og ekki getað mætt á boðaðan fund þann 21. janúar 2026 sökum meiðsla.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að tilkynna Vinnumálastofnun ekki um breytingar á högum sínum hafi hann brugðist skyldum sínum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þar sem að kærandi hafi nýtt rúmlega 26 mánuði af bótarétti sínum þegar atvik hafi átt sér stað virkist ákvæði 4. mgr. 59. gr. sem hljóði svo:

„Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. mgr. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Engin tilkynning af hálfu kæranda um breytingar á högum né forföll hafi borist frá kæranda til Vinnumálastofnunar. Þann 19. febrúar 2026 hafi kærandi verið látinn sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. þar sem að kærandi hafi nýtt rúmlega 26 mánuði af yfirstandandi bótatímabili hafi greiðslur atvinnuleysisbóta til hans verið stöðvaðar frá og með dagsetningu ákvörðunar, sbr. 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr. og 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar til hann uppfylli skilyrði 31. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnun um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Þá segir í 4. mgr. 59. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 22. janúar 2026 vegna meiðsla. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi lent í bílslysi. Hann hafi verið í endurhæfingu og í gifsi frá því í desember. Fyrir liggur að kærandi hvorki boðaði forföll né upplýsti Vinnumálastofnun um meiðsl sín. Kærandi skilaði inn læknisvottorði, dags. 12. febrúar 2026, þar sem kemur fram að kærandi hafi verið óvinnufær að hluta frá 23. desember 2025 til 12. febrúar 2026.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um óvinnufærni sína. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Þegar kærandi var beittur viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna hafði hann þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í 26 mánuði. Því voru atvinnuleysisbætur til hans stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir