Mál nr. 155/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 155/2026
Mánudaginn 15. júní 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 25. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. júlí 2025 og var umsóknin samþykkt 13. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 11. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. apríl 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 14. apríl 2026 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. apríl 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi fengið skilaboð frá Vinnumálastofnun þann 22. janúar 2026 um að hann þyrfti að mæta á fund þann 23. janúar 2026. Í boðuninni hafi staðið að ef kærandi gæti ekki mætt ætti hann að láta vita af því, auk þess hafi verið tekið fram að fundurinn væri ekki opinn börnum af virðingu fyrir öðrum. Í fyrsta lagi hafi það verið heppilegt að kærandi hafi tekið eftir þessum tölvupósti því hann hafi verið utan Reykjavíkur og hvorki athugað síma sinn né tölvu allan tímann. Kærandi hafi verið í sumarbústað með fjölskyldu sinni sem hafi komið erlendis frá í heimsókn til að halda upp á afmæli. Kærandi hafi útskýrt fyrir Vinnumálastofnun þann 22. janúar að hann væri út á landi og gæti ekki komið aftur til Reykjavíkur daginn eftir, þ.e. 23. janúar, sérstaklega þar sem hann eigi lítið barn. Þetta sé fyrsta skipti sem slíkt gerist. Kærandi hafi bent á að hann væri opinn fyrir því að koma á aðra fundi. Kærandi hafi sérstaklega ekki komist þar sem Vinnumálastofnun hafi látið hann vita degi fyrir fundinn en hann þyrfti að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara til að skipuleggja. Þar að auki hafi kærandi verið með barnið sitt en það hafi verið nefnt að það væri ekki leyfilegt að koma með börn. Að mati kæranda sé það ekki virðingarvert gagnvart foreldrum sem séu ekki með leikskólapláss og séu heima með börnin af þeirri ástæðu.
Á „Mínum síðum“ kæranda sjái hann að Vinnumálastofnun hafi ekki opnað skilaboðin hans fyrr en 26. janúar 2026. Kærandi velti því fyrir sér hvers vegna hann sé beðinn um að láta vita ef hann komist ekki ef Vinnumálastofnun sé ekki að athuga tölvupóstinn. Kærandi hafi aftur þann 28. janúar 2026 sent skýringar á ástæðum þess að hann hafi ekki komist. Vinnumálastofnun hafi opnað það 3. febrúar 2026. Kærandi hafi þann 10. febrúar 2026 fengið tvo tölvupósta frá Vinnumálastofnun um að þeir þyrftu aftur skýringar hans þrátt fyrir að hann hafi þegar sent hana og þeir hafi staðfest móttöku hennar. Kærandi hafi aftur sent skýringar sínar þann 24. febrúar 2026. Það að kærandi sé ekki í vinnu núna og sé með barn heima þýði ekki að hann hafi engar áætlanir og sitji heima líkt og hann sé veikur.
Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar kemur meðal annars fram að kærandi sé að leita sér að vinnu sem henti honum og til að standa straum af öllum útgjöldum sínum. Kærandi staðfesti atvinnuleit í hverjum mánuði og tali við hugsanlega vinnuveitendur. Kærandi hafi látið Vinnumálastofnun vita að hann sé opinn fyrir því að koma hvenær sem er en umræddan dag hafi hann verið fjarri Reykjavík og því ekki haft tök á að mæta á fundinn. Kærandi hafi ekki heyrt frá Vinnumálastofnun síðan í janúar sem hann telji að bendi til þess að fundurinn hafi ekki verið mikilvægur. Kæranda hafi ekki verið boðið að koma annan dag þrátt fyrir að hann hafi verið á námskeiði í tvær vikur hjá Vinnumálastofnun í desember og fylgi öllum reglum.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 18. júlí 2025. Með erindi, dags. 13. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur kæranda væri 100%.
Með erindi, dags. 22. janúar 2026, hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9 í Reykjavík þann 23. janúar 2026, klukkan 11:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 22. janúar 2026 á „Mínar síður“ kæranda með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum á skráð farsímanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 22. janúar 2026, klukkan 10:51. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund en skilaboð hafi borist frá kæranda þann 22. janúar 2026 þar sem eftirfarandi komi fram:
„Good day, I would like to inform, that currently I am outside of Reykjavik. Coming back tomorrow late in the evening. I already visited the information meeting previously, but if it is necessary to do it again I can, but only next week. Hope for understanding Kind regards, A“
Þann 28. janúar hafi frekari skýringar borist á ástæðum fjarveru hans á boðaðan upplýsingafund þar sem eftirfarandi komi fram:
„Good day, to add to my previous explanation, I wanted to let you know, that today I was trying to send message to you, but all day My Page did not work, it showed all the time white page. Now finally it is working, but I can write only here. Regarding the meeting. I would like to inform, that, 23.01 I did not go to the information meeting, because I received an invitation day before, and only saw it in the evening, as I did not have an internet and computer to check it. That day I was outside of Reykjavik and I was not able to drive to Reykjavik so fast, because I was in summer house in Family Birthday. I already visited it two times, and every time is the same information. If I would know it at least two days before, I could plan, but that was very last minute. Kv, A“
Vinnumálastofnun hafi sent kæranda erindi þann 10. febrúar 2026 þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan upplýsingafund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Skýringar hafi borist frá kæranda þann 13. febrúar 2026 þar sem kærandi hafi bent á að hann hafi boðað forföll á boðaðan upplýsingafund. Kærandi hafi verið staddur á ótilgreindum stað fjarri Reykjavík þegar Vinnumálastofnun hafi boðað hann á upplýsingafund og ekki getað keyrt til Reykjavíkur. Þá hafi hann bent á að hann hefði þegar mætt á svipuð vinnumarkaðsúrræði og að allar upplýsingar um ástæður fjarveru hans hafi þegar legið fyrir hjá Vinnumálastofnun.
Með erindi, dags. 24. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans í tvo mánuði sökum þess að hann hafi ekki sinnt boðun á upplýsingafund. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann [25. febrúar] 2026. Kæra til nefndarinnar sé efnislega samhljóða þeim skýringum sem þegar hafi borist Vinnumálastofnun og hafi borist eftir að kæra hafi verið sett fram. Kærandi ítreki fyrri skýringar sínar um að hann hafi boðað forföll sín.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 23. janúar 2026. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Kærandi hafi veitt þær skýringar á fjarveru sinni á boðaðan upplýsingafund að hann hafi verið staddur fjarri Reykjavík. Kærandi hafi boðað forföll sín þar sem hann hafi ekki getað keyrt til Reykjavíkur en samkvæmt skýringum hafi kærandi verið staddur á ótilgreindum stað fjarri Reykjavík. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.
Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.
Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í tvo mánuði.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 22. janúar 2026 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 23. janúar 2026. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ kæranda. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ef hann væri ekki á sínu þjónustusvæði gæti hann mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á boðuðum tíma. Athygli kæranda var vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggur að kærandi boðaði forföll sama dag og fundarboðið var sent vegna þess að hann væri staddur utan Reykjavíkur. Hann væri ekki væntanlegur aftur til Reykjavíkur fyrr en seint um kvöldið 23. janúar.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Líkt og að framan greinir er Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara og er þeim skylt að sinna slíkum boðunum. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir