Mál nr. 161/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 161/2026
Mánudaginn 15. júní 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 26. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. maí 2024 og var umsóknin samþykkt 23. maí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 5. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. apríl 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi nýlega greinst með X og hafi átt erfitt með að glíma við sjúkdóminn. […] .
Vinnumálastofnun hafi óskað eftir upplýsingum um fjarveru hennar og hún hafi sent þeim bréf þar sem hún hafi útskýrt ástæður fjarveru hennar. Þrátt fyrir það hafi stofnunin ákveðið, án tillits til aðstæðna hennar, að beita kæranda viðurlögum með því að stöðva atvinnuleysisbætur til hennar í tvo mánuði á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, nánar tiltekið samkvæmt 58. gr. laganna. Kærandi hafi engar aðrar tekjur til að greiða húsaleigu, lyf eða mat. Hún þurfi að fylgja sérstöku fæði, grænmetisfæði, annars gæti það haft hættulegar afleiðingar fyrir heilsu hennar.
Kærandi hafi aldrei neitað að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum. Hún hafi alltaf mætt á alla fundi, lokið nokkrum námskeiðum í íslensku og hlotið skírteini með fullnægjandi mætingu. Kærandi hafi ávallt sýnt mikinn áhuga á öllu sem tengist vinnumarkaðsaðgerðum. Kærandi ítreki að það sé alrangt að hún hafi neitað að taka þátt í atvinnumarkaðinum. Hún hafi aðeins misst af einum fundi vegna heilsufarsástæðna. Af framangreindum ástæðum óski kærandi þess að ákvörðunin verði endurskoðuð af nefndinni.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 2. maí 2024. Með erindi, dags. 23. maí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Með erindi, dags. 22. janúar 2026, hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund sem hafi átt að fara fram hjá Vinnumálastofnun þann 23. janúar 2026, klukkan 09:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 22. janúar 2026 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 22. janúar 2026, klukkan 08:17. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund. Þá hafi engar tilkynningar borist af hálfu kæranda um forföll né skráning um veikindi í janúar 2026.
Með erindi, dags. 9. febrúar 2026, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs kynningarfundar. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.
Þann 11. febrúar 2026 hafi skriflegar skýringar borist frá kæranda þar sem fram komi að boð Vinnumálastofnunar á kynningarfund hafi farið fram hjá henni. Hún hafi af þeim sökum ekki mætt á fundinn. Kærandi hafi beðist afsökunar á fjarveru sinni og tekið fram að hún myndi mæta ef það stæði henni aftur til boða. Kærandi hafi jafnframt tekið fram að hún hafi undanfarið verið að glíma við heilsufarsvandamál sem hafi haft áhrif á getu hennar til að mæta á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Með erindi, dags. 26. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar í tvo mánuði sökum þess að hún hefði ekki sinnt boðun á kynningarfund. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 26. febrúar 2026. Þær skýringar sem kærandi hafi tiltekið í kæru til nefndarinnar séu í grunnin efnislega þær sömu og lágu fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar. Í kæru segi kærandi að boð Vinnumálastofnunar hafi farið fram hjá henni sem rekja megi til þess að hún væri að glíma við heilsufarsvandamál. Kærandi hafi lagt fram læknisvottorð þar sem fram komi að kærandi sé að glíma við sykursýki.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 23. janúar 2026. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreindar hafi verið tímasetning og staðsetning fundarins. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.
Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir fjarveru á fund Vinnumálastofnunar séu að hún hafi ekki séð fundarboð frá stofnuninni og því ekki getað mætt. Þá hafi kærandi lagt fram gögn þar sem fram komi að hún glími við heilsufarsvandamál sem hún telji að kunni að hafa áhrif á að boð Vinnumálastofnunar hafi farið fram hjá sér. Einnig liggi fyrir læknisvottorð þar sem fram komi að kærandi hafi verið óvinnufær með öllu þann dag sem umræddur fundur hafi farið fram. Líkt og fyrr segi hafi kærandi verið boðuð á umræddan fund með skilaboðum á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Það sé á ábyrgð atvinnuleitenda að kynna sér þau skilaboð sem stofnunin sendi þeim, enda séu allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynning um forföll og hafi kærandi ekki gert neina tilraun til að hafa samband við stofnunina fyrr en leitað hafi verið eftir skýringum hennar.
Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki í skýringum sínum fært fram gildar ástæður fyrir fjarveru í boðað vinnumarkaðsúrræði í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 22. janúar 2026 boðuð á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 23. janúar 2026. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og ef upp kæmu forföll bæri að tilkynna þau á „Mínum síðum“. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi ekki séð fundarboð frá stofnuninni. Hún sé að glíma við heilsufarsvandamál sem kunni að hafa áhrif á að boð Vinnumálastofnunar hafi farið fram hjá henni. Þá liggur fyrir læknisvottorð þar sem fram kemur að kærandi var óvinnufær með öllu þann dag sem umræddur fundur fór fram.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Það er á ábyrgð hins tryggða að kynna sér þau skilaboð sem Vinnumálastofnun sendir, enda eru allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir