Mál nr. 207/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 207/2026
Þriðjudaginn 16. júní 2026
A gegn Reykjanesbæ
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 12. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 13. febrúar 2026, um að synja umsókn hans um styrk til greiðslu umsóknar fyrir fjölskyldusameiningu.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um styrk að fjárhæð 270.000 kr. frá Reykjanesbæ til greiðslu umsóknar um fjölskyldusameiningu hjá Útlendingastofnun fyrir eiginkonu sína og tvö börn. Umsókn kæranda var synjað og staðfesti áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 13. febrúar 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. mars 2026. Með bréfi, dags. 17. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjanesbæjar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjanesbæjar barst 7. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi lýsi yfir ósætti sínu um að ekki sé hægt að aðstoða hann við þann kostnað sem það kosti að sameinast fjölskyldu sinni, eiginkonu og börnum sem séu föst í X. Kærandi óski eftir undantekningu þar sem hann hafi ekki átt von á að gjaldskrá Útlendingastofnunar myndi taka róttækum breytingum frá og með 1. janúar 2026. Kærandi greini frá því að hann þiggi fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ. Hann fái um 205.000 kr. á mánuði. Kærandi leigi húsnæði á 220.000 kr. á mánuði og fái 50.000 kr. í húsnæðisbætur og 38.000 kr. í sérstakar húsnæðisbætur frá Reykjanesbæ. Kærandi eigi um það bil 50.000 kr. eftir þegar hann hafi greitt alla sína reikninga.
Kærandi geri sér grein fyrir því að fjárhagsleg staða hans sé ekki góð en hann hafi áhyggjur af öryggi fjölskyldu hans og velferð þeirra. Kærandi muni finna vinnu og gera sitt besta til að framfleyta þeim en hann þurfi bara smá fjárhagslega aðstoð núna. Kærandi hafi fengið lán frá ættingjum til að borga fyrir sameininguna og hann verði að borga þeim til baka. Kærandi hafi beðið Reykjanesbæ um aðstoð en honum hafi verið synjað. Kærandi óski eftir að málið verði skoðað betur út frá aðstæðum hans og fjölskyldu hans. Kærandi vilji líka að það komi fram að ef þetta geti ekki verið í formi styrks að honum verði veitt lán sem hann geti borgað hægt og rólega.
III. Sjónarmið Reykjanesbæjar
Í greinargerð Reykjanesbæjar kemur fram að kærandi sé af X uppruna. Hann hafi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi í maí 2025. Kærandi hafi fengið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli alþjóðlegrar verndar með vísun í viðbótarvernd þann 13. október 2025 og með vísun í samræmda móttökuþjónustu Reykjanesbæjar 16. október 2025. Kærandi sé giftur konu sem sé stödd á Y í X með tveimur yngri börnum þeirra. Saman eigi þau jafnframt son sem sé fæddur árið 2001, sem búi á Íslandi en hann hafi gert það um nokkurt skeið.
Kærandi hafi unnið að því að fá eiginkonu sína og yngri börn til landsins svo þau geti sameinast hér á Íslandi. Dvalarleyfisumsókn fyrir eiginkonuna og börnin [tvö] kosti 270.000 kr., það er 90.000 kr. fyrir hverja umsókn. Kærandi hafi verið með fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ frá þeim tíma sem hann hafi fengið dvalarleyfi hér á landi, enda hafi allur hans tími farið í að vinna að fjölskyldusameiningunni og megi segja að hann sé óvinnufær vegna þess.
Kærandi hafi lýst yfir þungum áhyggjum sínum yfir því ástandi sem nú ríki á Y þar sem fjölskylda hans dvelji. Hann hafi ákveðið að bregðast snöggt við og sé búinn að greiða fyrir dvalarleyfisumsóknina með aðstoð skyldmenna hér á landi. Kærandi standi nú í skuld við skyldmenni sín og sjái ekki fram á að geta gert upp skuldina nema með aðstoð sveitarfélagsins.
Reykjanesbær hafi synjað kæranda um styrk að fjárhæð 270.000 kr. til greiðslu á kostnaði við dvalarleyfisumsókn hjá Útlendingastofnun fyrir eiginkonu hans og tvö börn. Reykjanesbær telji umsóknina ekki falla að reglum Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð né heldur leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks. Kærandi hafi áfrýjað synjun velferðarsviðs og hafi málið verið tekið fyrir á áfrýjunarfundi velferðarráðs Reykjanesbæjar þann 13. febrúar 2026 þar sem synjun velferðarsviðs hafi verið staðfest.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Reykjanesbæjar um að synja umsókn kæranda um styrk til greiðslu umsóknar um fjölskyldusameining hjá Útlendingastofnun.
Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.
Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Sveitarfélög skuli tryggja að stuðningur við íbúa sem hafi barn á framfæri sé í samræmi við það sem sé barninu fyrir bestu. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.
Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.
Samkvæmt 1. gr. reglna velferðarsviðs Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð er markmið fjárhagsaðstoðar hjá Reykjanesbæ að styðja við einstaklinga og fjölskyldur til þess að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi þeirra og stuðla að velferð íbúa sveitarfélagsins.
Í 2. gr. framangreindra reglna er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 3. gr. reglnanna kemur fram sama grundvallarregla og í 19. gr. laga nr. 40/1991 að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.
Í IV. kafla reglna velferðarsviðs Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð er kveðið á um heimildir vegna sérstakra aðstæðna. Að mati nefndarinnar verður ekki séð að styrkur vegna umsóknar fyrir fjölskyldusameiningu falli þar undir.
Við mat á því hvort styrkur vegna umsóknar fyrir fjölskyldusameiningu falli undir reglur Reykjanesbær um fjárhagsaðstoð verður að líta til markmiðs og gildissviðs reglnanna. Reglurnar lúta að því að tryggja einstaklingum lágmarksframfærslu, stuðla að félagslegri virkni og auðvelda þátttöku í samfélaginu. Ekki verður séð af orðalagi reglnanna eða markmiðsákvæðum að þær taki til kostnaðar vegna umsókna um fjölskyldusameiningu.
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur farið yfir gögn málsins og telur ekki ástæðu til að gera athugasemd við framangreint mat Reykjanesbæjar. Þegar af þeirri ástæðu er ákvörðun Reykjanesbæjar, um að synja umsókn kæranda um styrk til greiðslu umsóknar um fjölskyldusameiningu, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 13. febrúar 2026, um að synja umsókn A, um styrk til greiðslu umsóknar um fjölskyldusameiningu, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir