Úrskurður nr. 290/2026
Hinn 24. júní 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 290/2026
Í stjórnsýslumáli nr. KNU25060057
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 14. maí 2025 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Úkraínu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. febrúar 2024, um að synja umsókn hans um vegabréf fyrir útlending.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga nr. 80/2016 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt vegabréf fyrir útlendinga.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærandi kom hingað til lands 19. maí 2023 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd. Kæranda var veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum 25. maí 2023 á grundvelli 44. gr. laga um útlendinga. Var það síðast endurnýjað með gildistíma til 2. mars 2027. Kærandi lagði fram umsókn um vegabréf fyrir útlending 3. mars 2025. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. maí 2025, var umsókn kæranda um vegabréf fyrir útlending synjað á grundvelli 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf nr. 560/2009, með vísan til þess að kærandi hefði ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki. Fram kemur að lagt verði til grundvallar að kæranda standi til boða að fá útgefið vegabréf af yfirvöldum í heimaríki. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 14. maí 2024. Kærandi lagði fram tölvubréf dagana 14. maí, 11., 16., 30. júní, 11. nóvember 2025 og 28. janúar 2026.
3 Málsástæður og rök kæranda
Í tölvubréfi kæranda, dags. 14. maí 2025, kemur m.a. fram að kærandi sé ósammála ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi tekur fram að hann hafi verið búsettur í Zaporishia en ríkið sé hernumið og hafi tilheyrt Rússlandi síðustu þrjú ár. Kærandi vísar til þess að hann þurfi að framvísa hernaðarvottorði til að fá þjónustu úkraínsku ræðismannaskrifstofunnar. Í tölvubréfi, dags. sama dag, vísar kærandi til þess að samkvæmt opinberum upplýsingum á vefsíðu Varnarmálaráðuneytis Úkraínu geti karlmenn á aldrinum 18 til 60 ára fengið útgefið úkraínskt vegabréf án þess að framvísa hernaðarvottorði. Á vefsíðu úkraínsku ræðismannaskrifstofunnar komi hins vegar gagnstætt fram. Kærandi telji upplýsingarnar misvísandi og eigi hann erfitt með að ráða fram úr þeim. Í tölvubréfi, dags. 11. nóvember 2025, vísar kærandi til þess að ferð hans til heimaríkis setji líf hans í hættu og þess vegna geti hann ekki aflað sér vegabréfs í heimaríki. Kærandi vísar til 1. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf nr. 560/2009 og 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að vegbréf fyrir útlendinga sé nauðsynlegt til að tryggja löglega auðkenningu og dvalarleyfi á Íslandi, ekki til ferðalaga.
4 Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal útlendingur sem hefur eða fær dvalarleyfi hér á landi á grundvelli umsóknar um alþjóðlega vernd, en án þess að vera veitt alþjóðleg vernd, fá vegabréf fyrir útlending til ferða til útlanda samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur með reglugerð. Þá má og heimila útgáfu vegabréfs fyrir útlendinga í öðrum tilvikum ef sérstakar ástæður mæla með því.
Í VII. kafla reglugerðar um íslensk vegabréf er fjallað um vegabréf til útlendinga. Í 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt að gefa út vegabréf fyrir útlendinga, sem ekki geti með öðrum hætti aflað sér vegabréfs eða annars ferðaskilríkis. Vegabréf fyrir útlending verður því aðeins gefið út að umsækjandi sé löglega búsettur hér á landi og geti sýnt fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki, eða að hann sé ríkisfangslaus, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar. Gildi vegabréfs fyrir útlending megi binda við tiltekið svæði. Einnig megi gefa slíkt vegabréf út með skemmri gildistíma en mælt sé fyrir um í 1. mgr. 18. gr, sbr. 3. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um vegabréf fyrir útlending á grundvelli 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf með vísan til þess að kærandi hefði ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki.
Kærandi hefur framvísað vegabréfi frá heimaríki sem gildir til 22. júlí 2027. Kærandi byggir á því að hann uppfylli skilyrði 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf þar sem hann geti ekki fengið útgefið vegabréf frá heimaríki vegna herkvaðningar og kröfu ræðismannsskrifstofu Úkraínu um að framvísa þurfi herskráningarskírteini til að fá útgefið vegabréf. Hann vísar til tilkynningar á vef ræðismannaskrifstofu Úkraínu í Póllandi, dags. 6. mars 2023, máli sínu til stuðnings. Einnig liggur fyrir svarbréf ræðismannaskrifstofu Úkraínu í Póllandi, dags. 25. febrúar 2025, er varðar beiðni kæranda, dags. 5. febrúar 2025, um útgáfu nýs vegabréfs þar sem vísað er til reglna um að framvísa herskráningarskírteini við umsókn um vegabréf eða framlengingu vegabréfs.
Fram kemur í tilkynningu á vefsíðu Varnarmálaráðuneytis Úkraínu, dags. 1. apríl 2025, að úkraínskir karlmenn á aldrinum 18 til 60 ára sem staddir eru erlendis geti nú fengið útgefið vegabréf án þess að framvísa herskráningarskírteini eða undirgangast læknisrannsókn hersins. Samkvæmt framangreindum upplýsingum yfirvalda í Úkraínu er ekki lengur krafist herskráningarskírteinis við umsókn um útgáfu vegabréfs. Samkvæmt framangreindu hafa orðið breytingar á reglum varðandi útgáfu vegabréfs frá því að kærandi fékk framangreint svarbréf úkraínskra stjórnvalda. Framangreind tilkynning bendir til þess að nú geti kærandi öðlast vegabréf frá heimaríki án þess að framvísa herskráningarskírteini.
Kæranda hefur verið leiðbeint um að hann þurfi að leggja fram skriflega staðfestingu frá þar til bærum yfirvöldum telji hann sig ekki geta fengið útgefið vegabréf frá heimaríki, ræðisskrifstofu eða sendiráði. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að honum sé ómögulegt að fá ferðaskilríki frá heimaríki líkt og kveðið er á um í 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf.
Kærandi vísar til þess í greinargerð að ferðaskilríki séu nauðsynleg til að tryggja löglega auðkenningu og dvalarleyfi á Íslandi, ekki til ferðalaga. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi handhafi dvalarleyfis með gildistíma til 2. mars 2027 auk þess sem að samkvæmt upplýsingum á vefsíðu íslenskra stjórnvalda frá 17. desember 2024 eru dvalarleyfiskort viðurkennd fyrir útgáfu rafrænna skilríkja. Liggur því ekki annað fyrir en að kærandi hafi fullnægjandi gögn til þess að sanna auðkenni sitt hjá íslenskum stjórnvöldum.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um útgáfu vegabréfs fyrir útlending staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is confirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir