25. júní 2026 /

Mál nr. 152/2026

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 152/2026

Fimmtudaginn 25. júní 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 3. desember 2024 og var umsóknin samþykkt 7. janúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 26. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 20. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 24. mars 2026 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. mars 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að fjarvera kæranda af fundi hafi ekki verið af ásetningi. Kærandi hafi því miður ekki séð tilkynninguna tímanlega og hafi því ekki vitað af fundinum. Um leið og kærandi hafi áttað sig á því að hún hafi misst af fundinum hafi hún farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar sama dag, innan nokkurra klukkustunda, til að skýra málið og sýna fram á samstarfsvilja sinn. Þetta sé í fyrsta og eina skiptið sem slík staða hafi komið upp. Kærandi hafi alltaf mætt á alla tilskilda fundi og uppfyllt skyldur sínar. Þetta hafi ekki verið höfnun á þátttöku heldur óheppilegur misskilningur. Tveggja mánaða stöðvun hafi alvarleg áhrif á fjárhagsstöðu kæranda þar sem atvinnuleysisbætur séu hennar aðaltekjulind. Kærandi óski eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði endurskoðuð og felld úr gildi þar sem að enginn ásetningur hafi verið til staðar og að hún hafi brugðist strax við.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar ítrekar kærandi þau atriði sem fram komi í kæru. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi veruleg fjárhagsleg og persónuleg áhrif á kæranda. Kærandi biðji úrskurðarnefndina um að taka mið af aðstæðum, almennri reglufylgni hennar og þeirri staðreynd að hún hafi ávallt verið í góðri trú. Jafnframt óski kærandi eftir því að úrskurðarnefnd meti hvort áminning eða vægari úrræði séu viðeigandi í hennar tilviki þar sem um einangrað og óviljandi atvik hafi verið um að ræða. Kærandi sé miður sín og staðráðin í að virða allar reglur og skyldur í framtíðinni.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 3. desember 2024. Með erindi, dags. 7. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Með erindi, dags. 26. janúar 2026, hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9 í Reykjavík þann 27. janúar 2026, klukkan 10:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 26. janúar 2026 á „Mínar síður“ kæranda með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum á skráð farsímanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 26. janúar 2026, klukkan 09:36.

Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund en hafi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 27. janúar 2026, klukkan 14:45. Kærandi hafi tjáð starfsmanni Vinnumálastofnunar að ástæða fjarveru hennar um morguninn á upplýsingafundinn hafi verið vegna þess að hann hafi farið fram hjá henni.

Með erindi, dags. 9. febrúar 2026, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs upplýsingafundar. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.

Skriflegar skýringar hafi borist samdægurs frá kæranda þar sem hún hafi sagst ekki hafa séð boðunina í tæka tíð. Þann 10. febrúar 2026 hafi frekari skriflegar skýringar borist frá kæranda þar sem fram komi að boð Vinnumálastofnunar hafi farið fram hjá henni sem rekja mætti til tæknilegra vandamála. Kærandi hafi ítrekað að fjarvera hennar á boðaðan upplýsingafund hafi verið óviljandi og að hún hafi ávallt mætt á boðaða fundi hjá stofnuninni.

Með erindi, dags. 24. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar í tvo mánuði sökum þess að hún hefði ekki sinnt boðun á upplýsingafund. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 25. febrúar 2026. Þær skýringar sem kærandi hafi áður veitt stofnuninni á fjarveru sinni á boðað vinnumarkaðsúrræði samhliða kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 27. janúar 2026 né boðað forföll. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.

Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir fjarveru á fund Vinnumálastofnunar séu að fundarboð frá stofnuninni hafi farið fram hjá sér sem rekja megi til tæknilegra atriða. Líkt og fyrr segi hafi kærandi verið boðuð á umræddan fund með skilaboðum á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Það sé á ábyrgð atvinnuleitenda að kynna sér þau skilaboð sem stofnunin sendi þeim, enda séu allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess.

Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki í skýringum sínum fært fram gildar ástæður fyrir fjarveru í boðað vinnumarkaðsúrræði í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 26. janúar 2026 boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 27. janúar 2026, klukkan 10:00. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var jafnframt greint frá því að fundurinn hæfist stundvíslega klukkan 10:00. Athygli kæranda var vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna.

Fyrir liggur að kærandi mætti á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar nokkrum klukkustundum eftir tímasetningu fundarins, eða þann 27. janúar 2026, klukkan 14:45. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi ekki séð tilkynninguna tímanlega og því ekki vitað af fundinum. Hún hafi farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar um leið og hún hafi áttað sig á því.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Það er á ábyrgð hins tryggða að kynna sér þau skilaboð sem Vinnumálastofnun sendir, enda eru allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir