Mál nr. 174/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 174/2026
Fimmtudaginn 2. júlí 2026
A gegn Reykjanesbæ
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 2. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 13. febrúar 2026, um að synja beiðni hans um greiðslu meðlags vegna þess tíma er hann naut fjárhagsaðstoðar til framfærslu.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með beiðni, dags. 18. september 2025, sótti kærandi um að fá greiddar meðlagsgreiðslur í samræmi við 14. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð og afturvirkar greiðslur fyrir það tímabil sem hann var á fjárhagsaðstoð og uppfyllti skilyrði ákvæðisins. Beiðni kæranda var synjað og staðfesti áfrýjunarnefnd velferðarráðs þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 13. febrúar 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. mars 2026. Með bréfi, dags. 5. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjanesbæjar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjanesbæjar barst 24. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi telji að Reykjanesbær hafi ekki uppfyllt leiðbeiningarskyldu 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kæranda hafi hvorki við upphaf fjárhagsaðstoðar né við endurupptöku hennar verið gerð fullnægjandi grein fyrir rétti hans samkvæmt 14. gr., né þeim skilyrðum sem kunni að takmarka rétt hans, svo sem þýðingu skuldastöðu eða nauðsyn þess að gera greiðslusamkomulag við Innheimtustofnun sveitarfélaga. Kæranda hafi ekki verið tilkynnt skriflega að stuðningur við meðlagsgreiðslur hefði fallið niður né hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir réttarstöðu hans. Kærandi haldi því fram að hefði honum verið leiðbeint með fullnægjandi hætti hefði hann getað gripið til viðeigandi ráðstafana, m.a. gert greiðslusamkomulag og komið í veg fyrir þá skuldastöðu sem nú sé vísað til sem synjunarástæðu.
Í 14. gr. segi að heimilt sé að greiða áfallandi meðlagsgreiðslur og að átt sé við meðlagsgreiðslur hverju sinni en ekki uppsafnaðar skuldir. Að mati kæranda kveði ákvæðið ekki skýrt á um að skuldastaða ein og sér útiloki greiðslur. Kærandi telji að túlkun sveitarfélagsins sé of þröng og að beita hefði átt reglunni með hliðsjón af meðalhófsreglu og markmiðum laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Í svari sveitarfélagsins komi fram að kærandi hafi ekki nefnt að hann ætti börn þegar hann hafi sótt um fjárhagsaðstoð. Sú fullyrðing eigi sér ekki stoð í gögnum málsins. Kærandi sé faðir fjögurra barna og hafi í samskiptum sínum við sveitarfélagið upplýst um það, m.a. í skriflegri beiðni, dags. 23. september 2024. Kærandi hafni því að réttur hans hafi fallið niður vegna meints skorts á upplýsingagjöf af hans hálfu.
Kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að málið verði tekið til nýrrar meðferðar með hliðsjón af framangreindum annmörkum á málsmeðferð og lagatúlkun. Jafnframt sé þess krafist að metið verði hvort kæranda beri réttur til greiðslu áfallandi meðlags á tímabilinu maí 2024 til júlí 2025.
III. Sjónarmið Reykjanesbæjar
Í greinargerð Reykjanesbæjar kemur fram að það hafi verið samþykkt á fundi áfrýjunarnefndar þann 13. febrúar 2026 að greiða meðlagsskuld kæranda sem hafi myndast í framhaldi af þeim tíma sem samþykkt hefði verið að styrkja hann með meðlagsgreiðslur með vísan í 14. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð, þ.e. febrúar og mars 2023 og fram til janúar 2024 eða samtals tíu mánuði. Rökin hafi verið þau að kærandi hafi verið samfellt með fjárhagsaðstoð á þessum tíma, þ.e. til janúar 2024.
Kærandi hafi fyrst fengið greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ í janúar 2023. Hann hafi sótt um styrk vegna meðlagsgreiðslna sinna í febrúar 2023 og fengið samþykki fyrir þeim styrk í febrúar og mars 2023, enda hafi hann sýnt fram á staðfestingu frá Innheimtustofnun sveitarfélaga um að hann væri ekki í mikilli skuld við stofnunina. Reykjanesbær hafi þá samþykkt að greiða áfallandi meðlagsgreiðslu eins og fram komi í dagnótum ráðgjafa frá 28. febrúar og 11. apríl 2023.
Kærandi hafi fengið mánaðarlega fjárhagsaðstoð til framfærslu frá janúar 2023 til janúar 2024 og hefði því getað fengið stuðning með meðlagsgreiðslur fram til janúar 2024 samkvæmt samþykktinni sem hafi komið fram í dagnótum ráðgjafa.
Kærandi hafi aftur haft samband við Reykjanesbæ þann 23. september 2024 með því að senda tölvupóst á [email protected]. Þar hafi komið fram að hann væri fjögurra barna faðir sem óskaði eftir fjárhagsaðstoð. Þá hafi hann ekki verið með fjárhagsaðstoð í átta mánuði. Ráðgjafi á velferðarsviði hafi leiðbeint honum með umsókn um fjárhagsaðstoð eins og sjáist á tölvupóstsamskiptunum. Í umsókninni hafi hann ekki óskað eftir aðstoð við meðlagsgreiðslur.
Frá september 2024 til júlí 2025 hafi kærandi verið samfleytt með fjárhagsaðstoð. Þá hafi komið tveggja mánaða bil, þ.e. í ágúst og september 2025 þar sem hann hafi ekki verið með fjárhagsaðstoð vegna tekna sem hann hafi haft af sölu bifreiðar í hans eigu með vísan í 13. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð. Hann hafi aftur sótt um aðstoð í október 2025 og fengið hana samþykkta. Kærandi hafi frá þeim tíma verið með mánaðarlega fjárhagsaðstoð til framfærslu.
Kærandi hafi óskað eftir stuðningi með meðlagsgreiðslur að nýju þann 18. september 2025. Ráðgjafi hafi svarað kæranda þann 2. desember 2025 og bent honum á áfrýjunarleið, enda ekki mögulegt að samþykkja meðlagsgreiðslur aftur í tímann á málafundum virkni- og ráðgjafarteymis velferðarsviðs.
Reykjanesbær telji ljóst að samþykktin fyrir styrk til meðlagsgreiðslna hefði átt að standa frá þeim tíma sem styrkur til meðlagsgreiðslna hafi verið veittur, þ.e. í febrúar 2023 og þar til kærandi hafi hætt með fjárhagsaðstoð í janúar 2024. Reykjanesbær hafi samþykkt, á framangreindum forsendum, að greiða meðlagsskuld sem hafi myndast frá þeim tíma sem sveitarfélagið hafi hætt að greiða til Innheimtustofnunar sveitarfélaga, þ.e. apríl 2023 og fram til þess tíma sem kærandi hafi hætt að fá fjárhagsaðstoð á því tímabili, þ.e. janúar 2024. Samtals sé fjárhæð meðlagsskuldarinnar sem hafi myndast á þessum tíu mánuðum 1.744.996 kr.
Á þeim tíma sem að kærandi hafi ekki verið með fjárhagsaðstoð hafi hann ekki greitt meðlag og því hafi frekari skuld á meðlagsgreiðslum myndast. Því hefði hann þurft að semja um greiðslu meðlagsskuldar áður en mögulegt væri að samþykkja frekari styrk til meðlagsgreiðslna með vísan í 14. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð.
Kærandi hafi sótt um aðstoð með meðlagsgreiðslurnar og skuldina sem hafi myndast í september 2025. Hann hafi fengið synjun við beiðni sinni í desember 2025 og honum verið bent á áfrýjunarleið velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Ekki sé veitt samþykki fyrir styrk fyrir meðlagsgreiðslum aftur í tímann fyrir skuldinni sem hafi myndast á þeim tíma sem hann hafi ekki fengið fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Ekki sé heldur samþykkt að veita styrk fyrir meðlagsgreiðslum aftur í tímann frá þeim tíma sem hann hafi farið að fá fjárhagsaðstoð aftur, þ.e. í september 2024, enda hefði myndast skuld sem ekki hafi verið samið um í samræmi við 14. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Reykjanesbæjar um að synja beiðni kæranda um greiðslu meðlags vegna þess tíma sem hann naut fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 14. gr. reglna velferðarsviðs Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð.
Fyrir liggur að framangreind beiðni kæranda var tekin fyrir á fundi áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar 13. febrúar 2026 þar sem henni var synjað. Kæranda var leiðbeint að unnt væri að skjóta þeirri ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þær leiðbeiningar eru í samræmi við 3. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga en ákvæðið er svohljóðandi:
„Sveitarstjórn getur ákveðið í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins að áður en hægt er að kæra stjórnvaldsákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. 1. mgr., skuli máli fyrst skotið til félagsmálanefndar eða annars tiltekins aðila innan stjórnsýslu sveitarfélaga. Nýti sveitarstjórn þessa heimild skal málsaðila leiðbeint bæði um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum og skal niðurstaða liggja fyrir innan 30 daga.“
Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 9. júlí 2025, í máli nr. 12250/2023, kom til skoðunar sú afgreiðsla úrskurðarnefndar velferðarmála að framsenda kæru til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar með vísan til þess að málið hefði ekki verið tekið fyrir hjá áfrýjunarnefndinni sem væri nauðsynlegur undanfari kæru til nefndarinnar. Var það meðal annars niðurstaða umboðsmanns að aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku í tengslum við félagsþjónustu borgarinnar væri ekki í samræmi við lög. Í álitinu segir meðal annars svo:
„Um heimildir velferðarráðs Reykjavíkurborgar, áfrýjunarnefndar ráðsins og velferðarsviðs til fullnaðarafgreiðslu mála er hvorki mælt í samþykkt um stjórn borgarinnar nr. 1020/2019 né viðaukum við hana líkt og lög nr. 40/1991, sveitarstjórnarlög og samþykktin sjálf gera ráð fyrir, sbr. það sem áður hefur verið rakið. Þvert á móti liggur ekki annað fyrir en að framsal valds til töku ákvarðana í félagsþjónustu sveitarfélagsins hafi verið útfært í þeirri samþykkt sem borgarstjórn hefur sett sér fyrir velferðarráð, reglum um þá félagsþjónustu sem borgin veitir, þar á meðal framangreindum reglum um stoð- og stuðningsþjónustu við fatlað fólk, og reglum sem settar hafa verið um áfrýjunarnefnd velferðarráðs. Enn fremur liggur fyrir að hvorki samþykktin fyrir velferðarráð né reglur borgarinnar um stoð- og stuðningsþjónustu hlutu þá málsmeðferð sem sveitarstjórnarlög gera ráð fyrir hvað snertir samþykktir um stjórn sveitarfélaga. Þá hefur samþykkt um velferðarráð ekki verið birt í Stjórnartíðindum. Því verður að leggja til grundvallar að sú aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku um stuðningsþjónustu, sem hér hefur verið lýst, sé ekki í samræmi við lög. Líkt og áður greinir hefur raunar komið fram af hálfu sveitarfélagsins að nauðsynlegt sé að gera úrbætur á umgjörð valdframsals til starfsmanna til afgreiðslu mála í félagsþjónustu þess. Því verður jafnframt að leggja til grundvallar að hvorki starfsmaður velferðarsviðs né áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi verið bær til þess að taka ákvörðun í máli A.“
Með vísan til framangreinds álits umboðsmanns Alþingis og vegna annars máls sem var til meðferðar hjá úrskurðarnefnd velferðarmála óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá Reykjanesbæ um hvernig þessum málum væri háttað hjá sveitarfélaginu, þ.e. hvort mælt væri fyrir um heimildir starfsmanna og áfrýjunarnefndar til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í kjölfarið upplýsti Reykjanesbær úrskurðarnefndina um að svo væri ekki en vegna ábendingu nefndarinnar hefði verið gerð breyting á bæjarmálasamþykktinni þann 16. júní 2026. Nýrri grein hafi verið bætt við í viðauka 1.1. sem sé svohljóðandi:
„Velferðarráð skipar tvo fulltrúa úr ráðinu, einn frá meirihluta og annan frá minnihluta, til setu í áfrýjunarnefnd velferðarráðs og felur áfrýjunarnefnd valdheimild til fullnaðarafgreiðslu umsókna sem falla utan reglna um félagslega þjónustu í Reykjanesbæ, þar á meðal reglum um fjárhagsaðstoð, sérstakan húsnæðisstuðning, félagslegt húsnæði og stoð- og stuðningsþjónustu, varði þau ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun og víki þau ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum. Ákvarðanir áfrýjunarnefndar velferðarráðs eru endanlegar, en hægt að kæra þær til úrskurðarnendar velferðarmála og skal málsaðila leiðbeint um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum.“
Í sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 er kveðið á um framsal sveitarstjórnar á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála. Þar segir í 2. mgr. 40. gr. að ályktanir nefnda sveitarfélaga sem ekki hafi verið falin fullnaðarafgreiðsla máls samkvæmt lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins teljist tillögur til sveitarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar. Sveitarstjórnum er hins vegar fengin heimild til að ákveða í samþykktinni að fela fastanefnd eða einstökum starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, meðal annars að lög eða eðli máls mæli ekki sérstaklega gegn því, sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laganna. Af því leiðir að starfsmönnum sveitarfélags er ekki heimilt að taka stjórnvaldsákvarðanir í málum einstaklinga á sviði félagsþjónustu nema frá því sé gengið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Í ljósi þess sem að framan er rakið um fyrirkomulag valdframsals til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að hin kærða ákvörðun hafi á þeim tíma sem hún var tekin ekki verið tekin af þar til bærum aðila hjá Reykjanesbæ. Þar sem réttra formreglna var ekki gætt við töku ákvörðunarinnar er ljóst að málsmeðferð var að því leyti ábótavant. Það er meginregla í stjórnsýslurétti að valdþurrð leiði til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar og því telur úrskurðarnefndin rétt að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og vísa málinu til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.
Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi getur sent nýja kæru til nefndarinnar þegar ný ákvörðun liggur fyrir frá áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar, sé hann ekki sáttur við niðurstöðuna.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 13. febrúar 2026, í máli A, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir