Mál nr. 210/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 210/2026
Fimmtudaginn 2. júlí 2026
A gegn Reykjanesbæ
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 16. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 16. desember 2025, um að synja umsókn hennar um fjárhagsaðstoð.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 17. nóvember 2025, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ fyrir nóvembermánuð 2025. Með erindi Reykjanesbæjar, dags. 18. nóvember 2025, var óskað eftir frekari gögnum frá kæranda til að ljúka afgreiðslu umsóknarinnar. Sú beiðni var ítrekuð 24. nóvember og 3. desember 2025. Umsókn kæranda var synjað 16. desember 2025 með vísan til þess að kærandi hefði ekki skilað umbeðnum gögnum.
Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 16. mars 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. mars 2026, var óskað eftir að kærandi sendi nefndinni afrit af hinni kærðu ákvörðun. Sú beiðni var ítrekuð 14. apríl 2026. Svar barst ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. apríl 2026, var óskað eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun frá Reykjanesbæ. Gögn bárust frá Reykjanesbæ 4. maí 2026.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi krefjist þess að ákvörðun velferðarsviðs Reykjanesbæjar frá 16. desember 2025 um synjun á fjárhagsaðstoð fyrir nóvember 2025 verði felld úr gildi og að Reykjanesbæ verði gert að afgreiða umsókn hennar að nýju. Umsókn kæranda hafi verið synjað vegna þess að staðfestingu á skráningu í virka atvinnuleit án bótaréttar hjá Vinnumálastofnun hafi vantað. Það hafi verið kerfislega ómögulegt að uppfylla það skilyrði þar sem umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 19. nóvember 2025 hafi verið í vinnslu og kerfi Vinnumálastofnunar hafi ekki leyft breytingu á stöðu. Þann 15. desember 2025 hafi kærandi lagt fram skriflega staðfestingu frá Vinnumálastofnun sem staðfesti þetta. Ákvörðun um synjun hafi verið tekin 16. desember, einum degi síðar, án þess að taka tillit til þessara gagna. Þann 29. desember 2025 hafi Vinnumálastofnun synjað umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur þar sem hún hafi ekki unnið í a.m.k. sex mánuði. Það staðfesti að kæranda hafi verið ómögulegt að uppfylla það skilyrðið frá upphafi.
III. Sjónarmið Reykjanesbæjar
Í svari Reykjanesbæjar við beiðni úrskurðarnefndar um afhendingu gagna var vísað til þess að tilskilin gögn hefðu ekki enn borist. Því væri ekki unnt að klára afgreiðslu umsóknar um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir nóvember 2025. Þá kemur fram að velferðarsvið Reykjanesbæjar hafi tekið ákvörðun um að taka mál kæranda fyrir á áfrýjunarnefndarfundi þrátt fyrir að meira en fjórar vikur væru liðnar frá því að ákvörðun um synjun hafi verið birt.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 16. desember 2025, um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir nóvembermánuð 2025 með vísan til þess að nauðsynleg gögn hefðu ekki borist.
Fyrir liggur að umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð var synjað af ráðgjafa velferðarsviðs Reykjanesbæjar 16. desember 2025. Kæranda var leiðbeint að unnt væri að skjóta þeirri ákvörðun til áfrýjunarnefndar sveitarfélagsins innan fjögurra vikna og þeirri ákvörðun væri svo unnt að skjóta til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þær leiðbeiningar eru í samræmi við 3. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga en ákvæðið er svohljóðandi:
„Sveitarstjórn getur ákveðið í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins að áður en hægt er að kæra stjórnvaldsákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. 1. mgr., skuli máli fyrst skotið til félagsmálanefndar eða annars tiltekins aðila innan stjórnsýslu sveitarfélaga. Nýti sveitarstjórn þessa heimild skal málsaðila leiðbeint bæði um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum og skal niðurstaða liggja fyrir innan 30 daga.“
Kærandi lagði inn beiðni til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar 23. mars 2026 sem ákvað að taka mál hennar fyrir þrátt fyrir að framangreindur fjögurra vikna frestur væri liðinn. Í kjölfarið var kæranda greint frá því að enn skorti nauðsynleg gögn til að unnt væri að afgreiða mál hennar. Fyrir úrskurðarnefndinni hefur Reykjanesbær vísað til þess að sú staða sé óbreytt.
Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 9. júlí 2025, í máli nr. 12250/2023, kom til skoðunar sú afgreiðsla úrskurðarnefndar velferðarmála að framsenda kæru til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar með vísan til þess að málið hefði ekki verið tekið fyrir hjá áfrýjunarnefndinni sem væri nauðsynlegur undanfari kæru til nefndarinnar. Var það meðal annars niðurstaða umboðsmanns að aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku í tengslum við félagsþjónustu borgarinnar væri ekki í samræmi við lög. Í álitinu segir meðal annars svo:
„Um heimildir velferðarráðs Reykjavíkurborgar, áfrýjunarnefndar ráðsins og velferðarsviðs til fullnaðarafgreiðslu mála er hvorki mælt í samþykkt um stjórn borgarinnar nr. 1020/2019 né viðaukum við hana líkt og lög nr. 40/1991, sveitarstjórnarlög og samþykktin sjálf gera ráð fyrir, sbr. það sem áður hefur verið rakið. Þvert á móti liggur ekki annað fyrir en að framsal valds til töku ákvarðana í félagsþjónustu sveitarfélagsins hafi verið útfært í þeirri samþykkt sem borgarstjórn hefur sett sér fyrir velferðarráð, reglum um þá félagsþjónustu sem borgin veitir, þar á meðal framangreindum reglum um stoð- og stuðningsþjónustu við fatlað fólk, og reglum sem settar hafa verið um áfrýjunarnefnd velferðarráðs. Enn fremur liggur fyrir að hvorki samþykktin fyrir velferðarráð né reglur borgarinnar um stoð- og stuðningsþjónustu hlutu þá málsmeðferð sem sveitarstjórnarlög gera ráð fyrir hvað snertir samþykktir um stjórn sveitarfélaga. Þá hefur samþykkt um velferðarráð ekki verið birt í Stjórnartíðindum. Því verður að leggja til grundvallar að sú aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku um stuðningsþjónustu, sem hér hefur verið lýst, sé ekki í samræmi við lög. Líkt og áður greinir hefur raunar komið fram af hálfu sveitarfélagsins að nauðsynlegt sé að gera úrbætur á umgjörð valdframsals til starfsmanna til afgreiðslu mála í félagsþjónustu þess. Því verður jafnframt að leggja til grundvallar að hvorki starfsmaður velferðarsviðs né áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi verið bær til þess að taka ákvörðun í máli A.“
Með vísan til framangreinds álits umboðsmanns Alþingis og vegna annars máls sem var til meðferðar hjá úrskurðarnefnd velferðarmála óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá Reykjanesbæ um hvernig þessum málum væri háttað hjá sveitarfélaginu, þ.e. hvort mælt væri fyrir um heimildir starfsmanna og áfrýjunarnefndar til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í kjölfarið upplýsti Reykjanesbær úrskurðarnefndina um að svo væri ekki en vegna ábendingu nefndarinnar hefði verið gerð breyting á bæjarmálasamþykktinni þann 16. júní 2026. Nýrri grein hafi verið bætt við í viðauka 1.1. sem sé svohljóðandi:
„Velferðarráð skipar tvo fulltrúa úr ráðinu, einn frá meirihluta og annan frá minnihluta, til setu í áfrýjunarnefnd velferðarráðs og felur áfrýjunarnefnd valdheimild til fullnaðarafgreiðslu umsókna sem falla utan reglna um félagslega þjónustu í Reykjanesbæ, þar á meðal reglum um fjárhagsaðstoð, sérstakan húsnæðisstuðning, félagslegt húsnæði og stoð- og stuðningsþjónustu, varði þau ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun og víki þau ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum. Ákvarðanir áfrýjunarnefndar velferðarráðs eru endanlegar, en hægt að kæra þær til úrskurðarnendar velferðarmála og skal málsaðila leiðbeint um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum.“
Í sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 er kveðið á um framsal sveitarstjórnar á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála. Þar segir í 2. mgr. 40. gr. að ályktanir nefnda sveitarfélaga sem ekki hafi verið falin fullnaðarafgreiðsla máls samkvæmt lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins teljist tillögur til sveitarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar. Sveitarstjórnum er hins vegar fengin heimild til að ákveða í samþykktinni að fela fastanefnd eða einstökum starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, meðal annars að lög eða eðli máls mæli ekki sérstaklega gegn því, sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laganna. Af því leiðir að starfsmönnum sveitarfélags er ekki heimilt að taka stjórnvaldsákvarðanir í málum einstaklinga á sviði félagsþjónustu nema frá því sé gengið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Í ljósi þess sem að framan er rakið um fyrirkomulag valdframsals til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að hin kærða ákvörðun hafi á þeim tíma sem hún var tekin ekki verið tekin af þar til bærum aðila hjá Reykjanesbæ. Þar sem réttra formreglna var ekki gætt við töku ákvörðunarinnar er ljóst að málsmeðferð var að því leyti ábótavant. Það er meginregla í stjórnsýslurétti að valdþurrð leiði til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar og því telur úrskurðarnefndin rétt að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og vísa málinu til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.
Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi getur sent nýja kæru til nefndarinnar þegar ný ákvörðun liggur fyrir frá áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar, sé hún ekki sátt við niðurstöðuna.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 16. desember 2025, um að synja umsókn A, um fjárhagsaðstoð, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir