2. júlí 2026 /

Mál nr. 80/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 80/2026

Fimmtudaginn 2. júlí 2026

A gegn Reykjanesbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 29. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 29. desember 2025, um að synja umsókn hans um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 19. desember 2025, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir desembermánuð 2025 hjá Reykjanesbæ. Umsókn kæranda var synjað 29. desember 2025 af ráðgjafa velferðarsviðs Reykjanesbæjar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 29. janúar 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 3. febrúar 2026, var óskað eftir að kærandi sendi nefndinni afrit af hinni kærðu ákvörðun. Sú beiðni var ítrekuð með tölvupósti til kæranda 17. og 26. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 9. mars 2026, var óskað eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun frá Reykjanesbæ. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi nefndarinnar, dags. 13. apríl 2026. Gögn bárust frá Reykjanesbæ 16. og 22. apríl 2026.

Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. maí 2026, var óskað eftir upplýsingum frá Reykjanesbæ um hvort mælt væri fyrir um heimild starfsmanna og áfrýjunarnefndar til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Svar barst 26. júní 2026 þar sem fram kom að svo hafi ekki verið en breyting hafi verið gerð á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar 16. júní 2026. Einnig kemur fram að kærandi hafi ekki áfrýjað synjun á umsókn hans til þá starfandi áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála greinir kærandi frá því að hann telji synjun Reykjanesbæjar ekki byggða á réttum grundvelli. Kærandi hafi verið í þörf fyrir pening og því hafi hann fengið innborgun á bankareikning sinn. Kærandi tekur fram að hann búi með bróður sínum og þeir þurfi að framfleyta sér. Ein innborgun á bankareikning kæranda hafi verið endurgreiðsla frá Ikea og önnur síðbúin greiðsla frá fyrirtæki sem hann hafi verið að vinna hjá.

II.  Sjónarmið Reykjanesbæjar

Í svari Reykjanesbæjar, dags. 16. apríl 2026, kemur fram að kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu þann 19. desember 2025 fyrir desembermánuð og þann 26. janúar 2026 fyrir janúarmánuð í gegnum Veitu, stafrænt umsóknarferli fjárhagsaðstoðar. Þann 22. desember 2025 hafi þess verið óskað að kærandi sendi inn stöðuyfirlit um innistæður í bönkum, sparisjóðum eða hjá öðrum fjármálastofnunum fyrsta dag mánaðar í umsóknarmánuði og fyrsta dag mánaðarins þar á undan. Jafnframt hafi verið óskað eftir yfirliti yfir allar innborganir á alla bankareikninga í eigu kæranda síðustu tvo mánuði á undan umsóknarmánuði. Þann 29. desember 2025 hafi umsókn um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir desember 2025 verið synjað með vísan í 2. mgr. 13. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð vegna innborgana að fjárhæð 335.356 kr. frá Atvinnuleysistryggingasjóði í nóvember 2025. Viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar einstaklinga sem búi með öðrum hafi þá verið 156.616 kr. og þar sem greiðslur Atvinnuleysistryggingarsjóðs hafi verið meira en tvöfalt hærri en viðmiðunarfjárhæð Reykjanesbæjar hafi kærandi ekki átt rétt á fjárhagsaðstoð til framfærslu í desember 2025, enda hafi allar tekjur í umsóknarmánuði og mánuðinum þar á undan áhrif á útreikning á viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar. Umsókn um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir janúar 2026 hafi fyrst verið svarað þann 26. janúar 2026. Þá hafi kærandi verið upplýstur um að hann þyrfti að senda staðfestingu frá RSK um stöðvun atvinnureksturs til þess að hægt væri að afgreiða umsókn um fjárhagsaðstoð, enda eigi atvinnurekendur og sjálfstætt starfandi einstaklingar aðeins rétt á aðstoð hafi þeir stöðvað reksturinn, sbr. 15. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð. Sú beiðni hafi verið áréttuð þann 2. febrúar 2026. Þann 16. febrúar 2026 hafi umsókn um fjárhagsaðstoð fyrir janúar 2026 verið synjað á þeim forsendum að umbeðin gögn hefðu ekki borist. Kæranda hafi þá verið bent á að skjóta mætti synjuninni til áfrýjunarnefndar innan fjögurra vikna. Það hafi hann ekki gert.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 29. desember 2025, um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir desembermánuð 2025 á grundvelli 3. mgr. 8. gr. reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð.

Fyrir liggur að umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð var synjað af ráðgjafa velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Kæranda var leiðbeint að unnt væri að skjóta þeirri ákvörðun til áfrýjunarnefndar sveitarfélagsins innan fjögurra vikna og þeirri ákvörðun væri svo unnt að skjóta til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þær leiðbeiningar eru í samræmi við 3. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga en ákvæðið er svohljóðandi:

„Sveitarstjórn getur ákveðið í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins að áður en hægt er að kæra stjórnvaldsákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. 1. mgr., skuli máli fyrst skotið til félagsmálanefndar eða annars tiltekins aðila innan stjórnsýslu sveitarfélaga. Nýti sveitarstjórn þessa heimild skal málsaðila leiðbeint bæði um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum og skal niðurstaða liggja fyrir innan 30 daga.“

Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 9. júlí 2025, í máli nr. 12250/2023, kom til skoðunar sú afgreiðsla úrskurðarnefndar velferðarmála að framsenda kæru til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar með vísan til þess að málið hefði ekki verið tekið fyrir hjá áfrýjunarnefndinni sem væri nauðsynlegur undanfari kæru til nefndarinnar. Var það meðal annars niðurstaða umboðsmanns að aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku í tengslum við félagsþjónustu borgarinnar væri ekki í samræmi við lög. Í álitinu segir meðal annars svo:

„Um heimildir velferðarráðs Reykjavíkurborgar, áfrýjunarnefndar ráðsins og velferðarsviðs til fullnaðarafgreiðslu mála er hvorki mælt í samþykkt um stjórn borgarinnar nr. 1020/2019 né viðaukum við hana líkt og lög nr. 40/1991, sveitarstjórnarlög og samþykktin sjálf gera ráð fyrir, sbr. það sem áður hefur verið rakið. Þvert á móti liggur ekki annað fyrir en að framsal valds til töku ákvarðana í félagsþjónustu sveitarfélagsins hafi verið útfært í þeirri samþykkt sem borgarstjórn hefur sett sér fyrir velferðarráð, reglum um þá félagsþjónustu sem borgin veitir, þar á meðal framangreindum reglum um stoð- og stuðningsþjónustu við fatlað fólk, og reglum sem settar hafa verið um áfrýjunarnefnd velferðarráðs. Enn fremur liggur fyrir að hvorki samþykktin fyrir velferðarráð né reglur borgarinnar um stoð- og stuðningsþjónustu hlutu þá málsmeðferð sem sveitarstjórnarlög gera ráð fyrir hvað snertir samþykktir um stjórn sveitarfélaga. Þá hefur samþykkt um velferðarráð ekki verið birt í Stjórnartíðindum. Því verður að leggja til grundvallar að sú aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku um stuðningsþjónustu, sem hér hefur verið lýst, sé ekki í samræmi við lög. Líkt og áður greinir hefur raunar komið fram af hálfu sveitarfélagsins að nauðsynlegt sé að gera úrbætur á umgjörð valdframsals til starfsmanna til afgreiðslu mála í félagsþjónustu þess. Því verður jafnframt að leggja til grundvallar að hvorki starfsmaður velferðarsviðs né áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi verið bær til þess að taka ákvörðun í máli A.“

Með vísan til framangreinds álits umboðsmanns Alþingis óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá Reykjanesbæ um hvernig þessum málum væri háttað hjá sveitarfélaginu, þ.e. hvort mælt væri fyrir um heimildir starfsmanna og áfrýjunarnefndar til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í kjölfarið upplýsti Reykjanesbær úrskurðarnefndina um að svo væri ekki en vegna ábendingu nefndarinnar hefði verið gerð breyting á bæjarmálasamþykktinni þann 16. júní 2026. Nýrri grein hafi verið bætt við í viðauka 1.1. sem sé svohljóðandi:

„Velferðarráð skipar tvo fulltrúa úr ráðinu, einn frá meirihluta og annan frá minnihluta, til setu í áfrýjunarnefnd velferðarráðs og felur áfrýjunarnefnd valdheimild til fullnaðarafgreiðslu umsókna sem falla utan reglna um félagslega þjónustu í Reykjanesbæ, þar á meðal reglum um fjárhagsaðstoð, sérstakan húsnæðisstuðning, félagslegt húsnæði og stoð- og stuðningsþjónustu, varði þau ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun og víki þau ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum. Ákvarðanir áfrýjunarnefndar velferðarráðs eru endanlegar, en hægt að kæra þær til úrskurðarnendar velferðarmála og skal málsaðila leiðbeint um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum.“

Í sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 er kveðið á um framsal sveitarstjórnar á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála. Þar segir í 2. mgr. 40. gr. að ályktanir nefnda sveitarfélaga sem ekki hafi verið falin fullnaðarafgreiðsla máls samkvæmt lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins teljist tillögur til sveitarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar. Sveitarstjórnum er hins vegar fengin heimild til að ákveða í samþykktinni að fela fastanefnd eða einstökum starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, meðal annars að lög eða eðli máls mæli ekki sérstaklega gegn því, sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laganna. Af því leiðir að starfsmönnum sveitarfélags er ekki heimilt að taka stjórnvaldsákvarðanir í málum einstaklinga á sviði félagsþjónustu nema frá því sé gengið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

Í ljósi þess sem að framan er rakið um fyrirkomulag valdframsals til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að hin kærða ákvörðun hafi á þeim tíma sem hún var tekin ekki verið tekin af þar til bærum aðila hjá Reykjanesbæ. Þar sem réttra formreglna var ekki gætt við töku ákvörðunarinnar er ljóst að málsmeðferð var að því leyti ábótavant. Það er meginregla í stjórnsýslurétti að valdþurrð leiði til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar og því telur úrskurðarnefndin rétt að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og vísa málinu til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi getur sent nýja kæru til nefndarinnar þegar ný ákvörðun liggur fyrir frá áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar, sé hann ekki sáttur við niðurstöðuna.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 29. desember 2025, um að synja umsókn A, um fjárhagsaðstoð fyrir desember 2025, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir