2. júlí 2026 /

Mál nr. 81/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 81/2026

Fimmtudaginn 2. júlí 2026

A gegn Reykjanesbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 29. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Reykjanesbæjar um að synja umsóknum hans um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 29. nóvember 2025, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir nóvembermánuð 2025 hjá Reykjanesbæ. Umsókn kæranda var synjað 4. desember 2025 af ráðgjafa velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Með umsókn, dags. 18. desember 2025, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir desembermánuð 2025. Umsókn kæranda var synjað 29. desember 2025 af ráðgjafa velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar staðfesti framangreindar ákvarðanir ráðgjafa á fundi 13. febrúar 2026. Sú ákvörðun var kynnt kæranda með bréfi, dags. 17. febrúar 2026.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 29. janúar 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 3. febrúar 2026, var óskað eftir að kærandi sendi nefndinni afrit af hinni kærðu ákvörðun. Sú beiðni var ítrekuð með tölvupósti til kæranda 17. og 26. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 9. mars 2026, var óskað eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun frá Reykjanesbæ. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi nefndarinnar, dags. 13. apríl 2026. Gögn bárust frá Reykjanesbæ 22. apríl 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. maí 2026, var óskað eftir greinargerð Reykjanesbæjar vegna kærunnar. Greinargerð barst 18. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála greinir kærandi frá því að hann kæri synjun á umsókn hans um fjárhagsaðstoð fyrir nóvembermánuð sem honum hafi verið tilkynnt með stuttri og órökstuddri tilkynningu þar sem einungis hafi komið fram að synjun væri vegna innborgana. Kærandi óski þess að mál hans verði tekið til fullrar endurskoðunar samkvæmt ákvæðum 46. og 48. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð þar sem hann telji að ákvörðunin hafi verið tekin á ófullnægjandi grundvelli og án heildstæðs mats á aðstæðum hans.

Kærandi tekur fram að umræddar innborganir séu ekki tekjur í skilningi reglna um fjárhagsaðstoð. Um hafi verið að ræða tímabundna fjölskylduaðstoð frá bróður kæranda. Þeir búi saman og hann taki þátt í sameiginlegum útgjöldum, þar á meðal afborgun húsnæðisláns sem nemi um 270.000 kr. á mánuði. Þessar greiðslur séu því hvorki atvinnutekjur né reglulegar tekjur, heldur eingöngu stuðningur til að hindra vanskil og tryggja að kærandi geti haldið húsnæði sínu. Samkvæmt 13. gr. reglna Reykjanesbæjar skuli líta til tekna einstaklings, svo sem atvinnutekna, bóta, lífeyris o.s.frv. Reglurnar taki ekki sérstaklega fram að tímabundin fjölskylduaðstoð teljist tekjur. Þegar um sé að ræða aðstoð til að mæta brýnum framfærsluþörfum, og sérstaklega þegar greiðandi búi á heimilinu, beri að meta slíkar greiðslur með hliðsjón af raunverulegri fjárhagsstöðu og hvort þær leiði í raun til aukinna ráðstöfunartekna. Það eigi ekki við í tilviki kæranda þar sem greiðslurnar fari beint í nauðsynlegar skuldbindingar.

Að mati kæranda sé synjunin í ósamræmi við 10. gr. reglna sveitarfélagsins um mat á fjárþörf. Samkvæmt því ákvæði skuli greiðsla fjárhagsaðstoðar byggjast á því að meta grunnfjárþörf og draga frá henni heildartekjur. Í tilviki kæranda séu útgjöld hans um 400.000 kr. á mánuði (húsnæðislán og aðrar nauðsynjar) en fjárhagsaðstoðin frá Reykjanesbæ nemi einungis 195.000 kr. Án fjölskylduaðstoðar myndi kærandi strax lenda í vanskilum og glata húsnæðinu. Reglurnar geri skýrt ráð fyrir að markmið fjárhagsaðstoðar sé að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúa og stuðla að velferð. Synjun án þess að skoða heildstæða stöðu kæranda gangi gegn þessu markmiði. Þá sé ákvörðunin ekki í samræmi við 47. gr. en samkvæmt því ákvæði beri að rökstyðja synjun skýrt og vísa til viðeigandi ákvæða reglnanna. Í tilviki kæranda hafi synjunin verið án rökstuðnings, án lagatilvísunar og án nokkurra skýringa um hvernig aðstæður hans hafi verið metnar. Slík málsmeðferð sé ekki í samræmi við stjórnsýslulög nr. 37/1993 né reglur Reykjanesbæjar. Kærandi vísi einnig til þess að sérstakar aðstæður hafi ekki verið metnar en samkvæmt 46. gr. reglna Reykjanesbæjar geti velferðarráð veitt undanþágu frá reglum þegar sérstakar málefnalegar ástæður liggi fyrir. Í tilviki kæranda séu slíkar ástæður ótvíræðar. Fjárhagsaðstoð kæranda sé langt undir lágmarks framfærslukostnaði. Greiðslur frá bróður kæranda séu tímabundnar og tryggi aðeins að hann haldi húsnæði. Hann búi hjá kæranda og greiði hlut í sameiginlegum útgjöldum. Raunverulegar ráðstöfunartekjur kæranda hækki ekki þrátt fyrir innborganirnar. Reykjanesbæ hafi því borið að meta hvort undanþága væri réttlætanleg en það hafi ekki verið gert.

Að mati kæranda sé rannsókn málsins ófullnægjandi. Samkvæmt 41. gr. skuli velferðarsvið tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin. Í máli kæranda hafi ekki verið óskað eftir frekari útskýringum, heildarfjárhagsstaðan hafi ekki verið metin, samhengi innborgana hafi ekki verið skoðað, ekki hafi verið rætt við kæranda né hann boðaður í viðtal. Þetta sé verulegur annmarki á málsmeðferð.

Með vísan til framangreinds krefjist kærandi þess í fyrsta lagi að synjunin verði felld úr gildi. Í öðru lagi að umsókn hans verði tekin til nýrrar efnismeðferðar. Í þriðja lagi að innborganir frá bróður kæranda verði ekki taldar sem tekjur, enda séu þær tímabundin aðstoð til að koma í veg fyrir félagslega neyð. Í fjórða lagi að sérstakar aðstæður hans verði metnar samkvæmt 2., 10., 11. og 46. gr. reglna Reykjanesbæjar. Kærandi óski jafnframt eftir fullum rökstuðningi fyrir upphaflegri ákvörðun í samræmi við 47. gr., ef málskot hans leiði ekki strax til endurskoðunar.

III.  Sjónarmið Reykjanesbæjar

Í greinargerð Reykjanesbæjar kemur fram að kæranda hafi verið synjað um fjárhagsaðstoð í nóvember og desember 2025 og aftur í janúar 2026. Reykjanesbær muni í greinargerð þessari fara yfir ástæðu synjunar allra þriggja mánaðanna, ásamt ákvörðunum um veitingu fjárhagsaðstoðar þá mánuði sem það hafi verið gert frá ágúst 2025.

Kærandi hafi fyrst sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Reykjanesbæ í ágúst 2025. Umsókn hafi verið synjað þar sem kærandi hafi þá átt rétt til atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi aftur sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Reykjanesbær fyrir september 2025. Viðmiðmunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu fyrir septembermánuð hafi verið 8.610 kr. þar sem kærandi hafi fengið 127.160 kr. frá Atvinnuleysistryggingarsjóði í sama mánuði. Viðmiðunarfjárhæðin hafi verið mismunurinn af fullri viðmiðunarfjárhæð Reykjanesbæjar miðað við einstaklinga sem búi einir í eigin húsnæði og þeim greiðslum sem hann hafi fengið frá Vinnumálastofnun þann mánuð. Umsókn um fjárhagsaðstoð til framfærslu hafi verið samþykkt í október 2025 en þá hafi kærandi fengið 195.770 kr. í aðstoð, eða fulla viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklinga sem búi einir í eigin húsnæði, enda hafi hann gefið upplýsingar um að hann byggi einn. Þann 29. nóvember 2025 hafi borist umsókn um fjárhagsaðstoð til framfærslu frá fyrir nóvember 2025. Þann 2. desember 2025 hafi velferðarsvið óskað eftir stöðuyfirliti um innistæður í bönkum, sparisjóðum og/eða öðrum fjármálastofnunum fyrsta dag mánaðar í umsóknarmánuði og fyrsta dag mánaðarins á undan, þ.e. 1. nóvember og 1. október 2025. Auk þess hafi kærandi verið beðinn um að skila inn yfirliti yfir allar innborganir á alla bankareikninga þá mánuði sem og staðfestingu á því að hann væri skráður í virka atvinnuleit án bótaréttar hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi skilað inn innborgunaryfirliti bankareiknings þann 3. desember 2025. Á innborgunaryfirlitinu komi fram að hann hafi fengið 270.000 kr. lagðar inn á reikning sinn bæði í október og nóvember 2025. Aðspurður út í þær innborganir hafi kærandi svarað með eftirfarandi hætti

„The deposit of approximately 270,000 ISK per month comes from my brother. The reason is that my monthly financial obligations, including my mortgage, amount to about 270,000 ISK, and my total expenses are around 400,000 ISK per month. Since the financial assistance from the municipality is 195,000 ISK, my brother has been helping me by depositing money so that I can keep up with my mortgage and other necessary expenses. He also lives with me and contributes to shared costs. These payments are not income but temporary family support due to my situation.“

Í kjölfarið, eða þann 4. desember 2025, hafi umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir nóvember 2025 verið synjað með vísan í 2. mgr. 13. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð og honum bent á áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar. Þann 5. desember 2025 hafi kærandi sent inn áfrýjun vegna synjunar velferðarsviðs Reykjanesbæjar á fjárhagsaðstoð fyrir nóvembermánuð 2025. Kærandi hafi óskað eftir því að málið yrði tekið til fullrar endurskoðunar með vísan í 46. og 48. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð. Í 46. gr. komi fram að velferðarráði sé heimilt að veita undanþágu frá reglunum ef sérstakar málefnalegar ástæður liggi fyrir og notandi fari fram á slíkt með sérstakri beiðni. Slíkar beiðnir fari fyrir áfrýjunarnefndina með málskoti sem fjallað sé um í 48. greininni. Áfrýjunarnefnd hafi fundað 2. desember 2025 og ekki hafi verið fyrirhugaður annar fundur nefndarinnar fyrr en á nýju ári. Þann 15. desember 2025 hafi verið haldinn stuttur aukafundur áfrýjunarnefndar fyrir þau mál sem talið væri að gætu ekki beðið fram yfir jólahátíðina. Mál kæranda hafi ekki verið þar á meðal. Þann 18. desember 2025 hafi kærandi sent tölvupóst á bæjarstjóra Reykjanesbæjar og kvartað undan vinnubrögðum velferðarsviðs. Honum hafi þá verið bent á að vera í samskiptum við teymisstjóra virkni- og ráðgjafarteymis sem hann hafi gert daginn eftir, þ.e. 19. desember 2025. Teymisstjórinn hafi svarað kæranda eftirfarandi skilaboðum:

„Sæll A, Leitt að heyra af aðstæðum þínum. Ég sé að þú hefur sent okkur áfrýjunarerindi 5. desember sl. Það erindi er móttekið. Næsti fundur áfrýjunarnefndar er 15. janúar 2025. Ekki er mögulegt að afturkalla synjun fjárhagsaðstoðarumsóknarinnar, heldur þarf málið að fara fyrir áfrýjunarfundinn. Synjunin byggir á því að þú hafir fengið innborgun að fjárhæð 270.000 kr., sem er hærri en viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar með vísan í 3. mgr. 8. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð. Reglur Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð. Til þess að byggja betur undir áfrýjunarerindi þitt ráðlegg ég þér að gera betur grein fyrir útgjöldum þínum, sem þú talar um að séu 400.000 kr. á mánuði. Við getum boðið þér 20.000 kr. inneignarkort í Krónunni þar sem við erum að gefa nokkur slík núna fyrir jólin. Kortið verður á þínu nafni í afgreiðslu ráðhússins. Þú getur nálgast það eftir helgi. Bestu kveðjur, B Teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis.“

Kærandi hafi fengið afhent svokallað Krónukort sem velferðarsvið fái að gjöf frá versluninni fyrir jólin og geti boðið fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna fyrir jólahátíðina. Kærandi hafi þegið Krónukortið en hafi enn verið ósáttur við vinnubrögð sviðsins og afgreiðslu erindis síns. Teymisstjórinn hafi rætt við kæranda á milli jóla og nýárs og útskýrt að ekki væri hægt að breyta afgreiðslu umsóknar hans fyrr en á áfrýjunarfundi. Hann hafi talið brotið á sér út frá því að innborganir væru ekki launatekjur. Mál kæranda hafi verið tekið fyrir á fundi áfrýjunarnefndar þann 15. janúar 2026. Á þeim fundi hafi áfrýjunarnefnd talið nauðsynlegt að fá mat bæjarlögmanns á afgreiðslu velferðarsviðs á umsóknum kæranda út frá áhrifum innborgana og stöðu reikninga. Ákvörðun í máli kæranda hafi því verið frestað. Mánudaginn 26. janúar hafi kærandi mætt ásamt bróður sínum í viðtal til tveggja ráðgjafa hjá virkni- og ráðgjafarteymi velferðarsviðs. Fyrir viðtalið hafi kærandi sent tölvupóst á teymið með spurningum sem hann óskaði svara við. Þar hafi kærandi spurt hver myndi sitja fundinn, hvers vegna hann hefði ekki verið upplýstur um niðurstöðu áfrýjunarnefndar fyrr, óskað upplýsinga um feril umsóknar og synjunar, ástæðu frestunar á upptöku málsins á áfrýjunarnefndarfundum, fundargerðum áfrýjunarnefndarfunda og afriti af öllum gögnum máls er varði hann sjálfan. Kærandi hafi jafnframt upplýst að hann hygðist taka upp viðtalið sem ætti að fara fram þann 26. janúar 2026. Eftir að ráðgjafar hafi árangurslaust reynt að fá bræðurna ofan af því að taka upp samtalið hafi verið óskað eftir því að teymisstjóri yrði með í viðtalinu, sem hafi verið gert. Teymisstjórinn hafi rætt við kæranda sem hafi samþykkt að fundargerð yrði rituð í sameiningu sem hafi verið skrifuð upp á skjá í fundarherberginu í stað þess að viðtalið yrði tekið upp. Teymisstjórinn hafi gert tilraun til þess að leggja mat á félagslegar aðstæður kæranda og fjárhagslega stöðu. Kærandi hafi verið lítið samvinnuþýður og fáu viljað svara. Erfiðlega hafi gengið að vinna traust kæranda til þess að geta átt möguleika á því að meta félagslegar aðstæður hans. Meðfylgjandi séu minnispunkta fundarins sem hafi farið fram 26. janúar 2026.

Næsti áfrýjunarnefndarfundur þar á eftir hafi verið 13. febrúar 2026. Þá hafi erindi kæranda verið tekið fyrir út frá þeim gögnum sem hann hafi lagt fram og mati ráðgjafa virkni- og ráðgjafarteymis á aðstæðum hans og fjárhagslegri stöðu. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar hafi staðfest þá synjun velferðarsviðs á fjárhagsaðstoð fyrir nóvember og desember 2025.

Umsókn um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir janúarmánuð hafi borist þann 26. janúar 2026. Eftirfarandi skilaboð hafi verið send í gegnum Veitu þann 30. janúar 2026

„Til þess að hægt sé að ljúka afgreiðslu umsóknarinnar þurfa eftirfarandi upplýsingar að liggja fyrir. Stöðuyfirliti um innistæður í bönkum, sparisjóðum eða öðrum fjármálastofnunum fyrsta dag mánaðar í umsóknarmánuði og fyrsta dag mánaðarins á undan í PDF formi. Yfirliti yfir allar innborganir inn á alla bankareikninga síðustu tvo mánuði í PDF formi. Upplýsingarnar sendir þú inn á stöðusíðu umsóknarinnar.“

Þann 3. febrúar 2026 hafi kærandi sent yfirlit yfir innborganir á einn reikning í hans eigu. Þann sama dag hafi verið send skilaboð til kæranda þess efnis að yfirlit yfir fjóra reikninga til viðbótar, sem hann væri skráður fyrir skv. skattframtali, vanti. Þegar þau gögn hefði ekki borist þann 17. febrúar 2026 hafi umsókn um fjárhagsaðstoð fyrir janúar 2026 verið synjað á þeim forsendum að umbeðin gögn hefðu ekki borist. Ekki hafi heyrst í kæranda frá þeim tíma.

Reykjanesbær telji tilskilin gögn og fullnægjandi upplýsingar um félagslegar aðstæður kæranda ekki hafi borist. Tilraunir til þess að eiga samtal um félagslegar aðstæður hafi ekki gengið eftir og teljast fullreyndar sem standi. Af þeim sökum sé ekki talið mögulegt að afturkalla ákvörðun um synjun á fjárhagsaðstoð út frá innborgunum og eignaviðmiðum.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að synjun Reykjanesbæjar á umsóknum kæranda um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir nóvember og desember 2025. Fyrir liggur að áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar tók mál kæranda fyrir á fundi 13. febrúar 2026, eða eftir að kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála, og staðfesti þá synjun með vísan til 8. mgr. 13. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð. Kæranda var kynnt sú ákvörðun með bréfi, dags. 17. febrúar 2026, og leiðbeint að unnt væri að skjóta ákvörðuninni til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þær leiðbeiningar eru í samræmi við 3. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga en ákvæðið er svohljóðandi:

„Sveitarstjórn getur ákveðið í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins að áður en hægt er að kæra stjórnvaldsákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. 1. mgr., skuli máli fyrst skotið til félagsmálanefndar eða annars tiltekins aðila innan stjórnsýslu sveitarfélaga. Nýti sveitarstjórn þessa heimild skal málsaðila leiðbeint bæði um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum og skal niðurstaða liggja fyrir innan 30 daga.“

Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 9. júlí 2025, í máli nr. 12250/2023, kom til skoðunar sú afgreiðsla úrskurðarnefndar velferðarmála að framsenda kæru til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar með vísan til þess að málið hefði ekki verið tekið fyrir hjá áfrýjunarnefndinni sem væri nauðsynlegur undanfari kæru til nefndarinnar. Var það meðal annars niðurstaða umboðsmanns að aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku í tengslum við félagsþjónustu borgarinnar væri ekki í samræmi við lög. Í álitinu segir meðal annars svo:

„Um heimildir velferðarráðs Reykjavíkurborgar, áfrýjunarnefndar ráðsins og velferðarsviðs til fullnaðarafgreiðslu mála er hvorki mælt í samþykkt um stjórn borgarinnar nr. 1020/2019 né viðaukum við hana líkt og lög nr. 40/1991, sveitarstjórnarlög og samþykktin sjálf gera ráð fyrir, sbr. það sem áður hefur verið rakið. Þvert á móti liggur ekki annað fyrir en að framsal valds til töku ákvarðana í félagsþjónustu sveitarfélagsins hafi verið útfært í þeirri samþykkt sem borgarstjórn hefur sett sér fyrir velferðarráð, reglum um þá félagsþjónustu sem borgin veitir, þar á meðal framangreindum reglum um stoð- og stuðningsþjónustu við fatlað fólk, og reglum sem settar hafa verið um áfrýjunarnefnd velferðarráðs. Enn fremur liggur fyrir að hvorki samþykktin fyrir velferðarráð né reglur borgarinnar um stoð- og stuðningsþjónustu hlutu þá málsmeðferð sem sveitarstjórnarlög gera ráð fyrir hvað snertir samþykktir um stjórn sveitarfélaga. Þá hefur samþykkt um velferðarráð ekki verið birt í Stjórnartíðindum. Því verður að leggja til grundvallar að sú aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku um stuðningsþjónustu, sem hér hefur verið lýst, sé ekki í samræmi við lög. Líkt og áður greinir hefur raunar komið fram af hálfu sveitarfélagsins að nauðsynlegt sé að gera úrbætur á umgjörð valdframsals til starfsmanna til afgreiðslu mála í félagsþjónustu þess. Því verður jafnframt að leggja til grundvallar að hvorki starfsmaður velferðarsviðs né áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi verið bær til þess að taka ákvörðun í máli A.“

Með vísan til framangreinds álits umboðsmanns Alþingis og vegna annars máls sem var til meðferðar hjá úrskurðarnefnd velferðarmála óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá Reykjanesbæ um hvernig þessum málum væri háttað hjá sveitarfélaginu, þ.e. hvort mælt væri fyrir um heimildir starfsmanna og áfrýjunarnefndar til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í kjölfarið upplýsti Reykjanesbær úrskurðarnefndina um að svo væri ekki en vegna ábendingu nefndarinnar hefði verið gerð breyting á bæjarmálasamþykktinni þann 16. júní 2026. Nýrri grein hafi verið bætt við í viðauka 1.1. sem sé svohljóðandi:

„Velferðarráð skipar tvo fulltrúa úr ráðinu, einn frá meirihluta og annan frá minnihluta, til setu í áfrýjunarnefnd velferðarráðs og felur áfrýjunarnefnd valdheimild til fullnaðarafgreiðslu umsókna sem falla utan reglna um félagslega þjónustu í Reykjanesbæ, þar á meðal reglum um fjárhagsaðstoð, sérstakan húsnæðisstuðning, félagslegt húsnæði og stoð- og stuðningsþjónustu, varði þau ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun og víki þau ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum. Ákvarðanir áfrýjunarnefndar velferðarráðs eru endanlegar, en hægt að kæra þær til úrskurðarnendar velferðarmála og skal málsaðila leiðbeint um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum.“

Í sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 er kveðið á um framsal sveitarstjórnar á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála. Þar segir í 2. mgr. 40. gr. að ályktanir nefnda sveitarfélaga sem ekki hafi verið falin fullnaðarafgreiðsla máls samkvæmt lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins teljist tillögur til sveitarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar. Sveitarstjórnum er hins vegar fengin heimild til að ákveða í samþykktinni að fela fastanefnd eða einstökum starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, meðal annars að lög eða eðli máls mæli ekki sérstaklega gegn því, sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laganna. Af því leiðir að starfsmönnum sveitarfélags er ekki heimilt að taka stjórnvaldsákvarðanir í málum einstaklinga á sviði félagsþjónustu nema frá því sé gengið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

Í ljósi þess sem að framan er rakið um fyrirkomulag valdframsals til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að hin kærða ákvörðun hafi á þeim tíma sem hún var tekin ekki verið tekin af þar til bærum aðila hjá Reykjanesbæ. Þar sem réttra formreglna var ekki gætt við töku ákvörðunarinnar er ljóst að málsmeðferð var að því leyti ábótavant. Það er meginregla í stjórnsýslurétti að valdþurrð leiði til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar og því telur úrskurðarnefndin rétt að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og vísa málinu til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi getur sent nýja kæru til nefndarinnar þegar ný ákvörðun liggur fyrir frá áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar, sé hann ekki sáttur við niðurstöðuna.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 17. febrúar 2026, um að synja umsóknum A, um fjárhagsaðstoð fyrir nóvember og desember 2025, er felld úr gildi málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir