9. júlí 2026 /

Mál nr. 232/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 232/2026

Fimmtudaginn 9. júlí 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 24. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2026, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. mars 2024 og var umsóknin samþykkt 25. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2026, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 24. mars 2026. Með bréfi, dags. 27. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 7. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi verið á atvinnuleysisbótum í næstum tvö ár, hann hafi verið löghlýðinn og sótt alla fundi sem hann hafi verið boðaður á og námskeið eftir þörfum. Kærandi hafi haldið áfram að leita að vinnu, án árangurs en alltaf verið vongóður því hann vilji ekki hanga heima. Um miðjan janúar hafi kærandi rætt við eiganda fyrirtækis um starf sem hann hafi átt að fá í byrjun sumars. Sá aðili hafi spurt kæranda hvort hann kynni að flísaleggja þar sem hann sé múrari. Kærandi hafi svarað neitandi en sagst vera tilbúinn að læra. Maðurinn hafi verið með verkefni við flísalagningu út á landi og boðið kæranda að koma með í viku, launalaust til að læra. Kærandi hafi samþykkt það, bæði til að fá tækifæri til að læra og til að eiga möguleika á að tryggja sér starf. Kærandi hafi samþykkt starfið að hluta til af örvæntingu vegna þess að honum hafi vantað vinnu en tvö ár án vinnu sé langur tími, auk þess hafi kærandi verið orðin áhyggjufullur þar sem ekki hafi verið mikið eftir af bótatímabilinu hjá Vinnumálastofnun.

Kærandi tekur fram að hann hafi ekki tilkynnt starfið til Vinnumálastofnunar þar sem hann hafi ekki fengið greidd nein laun fyrir vinnuna og hann hafi ekki ætlað að greiða krónu fyrir að læra. Í sömu viku sem kærandi hafi farið út á land hafi Vinnumálastofnun haft samband við hann um vinnumarkaðsaðgerðir en hann hafi þá tilkynnt um aðstæður sínar og sagst vera reiðubúinn til að mæta á fund eftir að hann kæmi aftur í bæinn. Kærandi hafi þá verið afskráður af námskeiðinu en að sögn hans hefði hann náð 80% mætingarskyldunni ef hann hefði enn verið skráður. Vinnumálastofnun hafi boðað kæranda á annan fund sem hann hafi mætt á og útskýrt aðstæður. Kærandi hafi boðist til að gefa upplýsingar um eiganda fyrirtækisins sem hafi boðið honum vinnu. Vinnumálastofnun hafi þá beitt hann tveggja mánaða viðurlögum.

Annað námskeið hafi verið skipulagt dagana 2. til 6. febrúar. Kærandi hafi uppfyllt 50% mætingu en farið hafi verið fram á 80% mætingarskyldu. Kærandi hafi gefið skýringar á því að líf hans hefði ekki verið auðvelt upp á síðkastið en 2. febrúar þegar hann hafi ætlað að mæta hafi hann fengið fréttir sem hefði leitt til andlegs áfalls. Vinnumálastofnun hafi ekki tekið tillit til aðstæðna kæranda, ekki einu sinni að hann hafi áður mætt á alla fundi. Stofnunin hafi í staðinn bætt við þriggja mánaða viðurlögum sem nái í heild fimm mánuðum án greiðslna atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi nú fengið tímabundna vinnu sem hann sé ekki viss hversu lengi hann haldi þar sem hann sé aðeins að vinna suma daga. Kærandi sé að leita sér að annarri vinnu og óski því eftir að mál hans verði endurskoðað.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 1. mars 2024. Með erindi, dags. 25. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur hans væri 100%.

Þann 16. janúar 2026 hafi kærandi verið boðaður á starfsleitarnámskeiðið „Virkni í átt að vinnumarkaði“ sem hafi verið haldið á vegum Vinnumálastofnunar og Virk. Námskeiðið hafi verið haldið frá 20. janúar 2026. Daginn áður en námskeið hafi átt að hefjast hafi kærandi haft samband við Vinnumálastofnun og upplýst um að hann væri úti á landi og gæti ekki sinnt mætingu á námskeiðið. Kærandi hafi fengið það svar 20. janúar 2026 að hann hefði verið afskráður af námskeiðinu en væri þess í stað skráður á annað skyldunámskeið. Orðsending Vinnumálastofnunar þess efnis hafi verið send með smáskilaboðum sem kærandi hafi móttekið í símtækið X þann 20. janúar 2026, klukkan 21:47, eða rúmum tveimur sólarhringum eftir að sending hafi átt sér stað. Í samskiptasögu kæranda sé skráð þann 20. janúar að reynt hafi verið að hringja í skráð númer kæranda í tvígang, þ.e. þann 16. janúar 2026 og 19. janúar 2026 í eitt skipti. Í öllum tilvikum hafi verið slökkt á farsíma kæranda. Kærandi hafi ekki mætt dagana 21. og 22. janúar 2026 og engin forföll hafi verið boðuð af hálfu kæranda til Vinnumálastofnunar.

Kærandi hafi aftur fengið boð þann 22. janúar 2026 um að mæta til upplýsingafundar hjá ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 23. janúar 2026, klukkan 09:00. Athygli hafi verið vakin á að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Kærandi hafi verið upplýstur um að ef hann „væri úti á landi“ væri honum heimilt að mæta til næstu þjónustuskrifstofu á uppgefnum tíma. Boðunin hafi verið send út þann 22. janúar 2026, klukkan 08:16. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda, X, þann 22. janúar 2026, klukkan 21:47. Kærandi hafi ekki mætt á fundinn og engin forföll hafi verið boðuð af hálfu kæranda.

Þann 29. janúar 2026 hafi kærandi verið boðaður á starfsleitarnámskeið sem haldið hafi verið 2., 3., 4. og 5. febrúar 2026. Boðunin hafi verið send með sama hætti og áður sem kærandi hafi móttekið í farsíma sinn þann sama dag, klukkan 13:44. Tilgreint hafi verið að kæranda bæri að uppfylla að minnsta kosti 80% mætingarskyldu en að öðrum kosti þyrfti hann að skýra forföll sín og þá framvísa læknisvottorðum eftir atvikum. Í gögnum sem hafi fylgt námskeiðinu sé skráð að kærandi hafi mætt 5. og 6. febrúar og því einvörðungu uppfyllt 50% mætingarskyldunnar.

Þann 5. febrúar 2026 hafi kærandi fengið boð um að mæta til fundar við ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 6. febrúar 2026, klukkan 10:00. Boðunin hafi innihaldið áþekka fyrirvara og fyrri boðanir um mætingarskyldu kæranda. Skráð sé að kærandi hafi mætt í viðtal 6. febrúar 2026 með eftirfarandi færslu:

„A mætti í viðtal. Hann á 7 mánuði eftir af bótatímabili sínu svo að við fórum yfir næstu skref. Hann er búinn að missa af námskeiðum sem hann var boðaður á vegna þess að hann var úti á landi án þess að skrá það. Hann segir að hann hafi verið að læra flísalögn vegna starfs sem honum stendur til boða. ég bað hann um að fá þann sem var að kenna honum að flísaleggja og skrifa upp á það að A hafi verið hjá honum að læra vegna starfs sem stendur honum til boða“

Þann 6. febrúar 2026 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðað námskeið sem haldið hafi verið á tímabilinu 21. til 27. janúar 2026 og vegna fjarveru á boðaðan fund 23. janúar 2026. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila skýringum. Eftirfarandi skýringar hafi borist frá kæranda þann 12. febrúar 2026:

„It's very unfortunate but it wasn't intended that I didn't attend the scheduled meeting on the 23rd of January nor the program scheduled for 21st to 27th January, however prior to being registered to the program I had left for an opportunity to learn to do tiles so as to expand my knowledge in my desired field of work, considering it would open an opportunity for a job offer latest by the summer, which would be a good thing to me having been home for 2 years looking for a job in vain yet am capable of working and am desirous of the same, however I dont intend to miss any other, I have attached a contact of the person with whom I was and is willing to take me on for a job Thank you A“

Með erindi, dags. 24. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að hann skyldi sæta tveggja mánaða viðurlögum sökum þess að hann hafi hvorki mætt á boðað námskeið né á boðaðan fund í janúar 2026. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 2. mars 2026 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðað námskeið sem haldið hafi verið dagana 2., 3., 5. og 6. febrúar 2026. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila skýringum. Eftirfarandi skýringar hafi borist frá kæranda þann 6. mars 2026:

„After two years of looking for a job I have really had a tough time, I really appreciate that the unemployment benefits keep and have kept me floating but surely aren’t enough considering the kinds of responsibilities I have gotten on my shoulders ( not trying to ask for a raise) I didnt make it to the first two classes mandatory because I had gotten to the end of it all in my mind, my son in my country was sick and that needed money at the same time he was supposed to go to school which required money also, yes these are part of my responsibilities and I take them on monthly basis but the peak of it all, I was losing my ailing parent and she had to go for surgery which also required money, that Monday morning with all the above and more on my head I had a psychotic episode or breakdown I felt like ending it because sometimes it’s too much, I’m still young I can work a job but for months I had failed to secure one, besides the 30 months given are running down, without a job where would I be getting income to keep all everything around me going, but here I am I rose again to fight another day, I’m only giving a reason as to why I didn’t attend the least 80% of the course or even 100% but this should be no excuse as to why I didn’t make it, I should be more responsible and hence I’m liable to the consequences of my actions, I’m only requesting for leniency in all because before this time I have been attending courses, meetings hence I have been law abiding, thank you“

Með erindi, dags. 13. mars 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að hann skyldi sæta þriggja mánaða viðurlögum sökum þess að hann hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið í febrúar 2026. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. [61.] gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þar sem um önnur viðurlög hafi verið um að ræða á sama bótatímabili hafi greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda verið stöðvaðar. Í gögnum málsins komi fram misvísandi dagsetningar og staða á mætingu kæranda. Kærandi sé sagður hafa mætt 5. og 6. febrúar á umrætt námskeið en bæði í bréfi, dags. 6. mars, og ákvörðun, dags. 13. mars, sé því ranglega haldið fram að kærandi hafi ekkert mætt á boðað námskeið. Sama niðurstaða hefði verið hvort heldur sem kærandi hefði mætt í helming námskeiðsins eða ekkert mætt. Athygli sé vakin á þessu til að fyrirbyggja misskilning.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt h. lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðuð vinnumarkaðsúrræði í janúar og febrúar 2026. Kærandi hafi ekki mætt og sagst vera staddur úti á landi. Kærandi hafi heldur ekki sinnt mætingu á námskeið og fundi sem hann hafi verið boðaður á eftir það, að undanskildri mætingu á fund 6. febrúar 2026 og mætingu í tvo daga af fjórum námskeiðsdögum í byrjun febrúar. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreindar hafi verið tímasetningar og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi einnig fram að sá sem hafi áður sætt viðurlögum skv. 57-59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir.

Kærandi hafi ekki veitt tilhlýðilegar skýringar á fjarveru sinni á námskeiðið í janúar. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun bendi á að boðanir í símtæki kæranda séu skoðaðar löngu eftir að þær séu sendar sem gefi til kynna að símtæki kæranda sé ekki virkt á þeim tímum sem boðanir séu sendar. Kærandi hafi verið með slökkt á símanum sínum eða ekki með SIM-kort í honum þegar ítrekað hafi verið reynt að ná í hann 16. og 19. janúar 2026, að auki hafi engin tilkynning borist frá kæranda um tilfallandi vinnu eða prufutímabil hjá nokkrum atvinnurekanda á þeim tíma sem námskeiðin hafi verið haldin eða þegar honum hafi verið gert að sinna fundarboðum stofnunarinnar.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.

Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðuð vinnumarkaðsúrræði í tvígang á sama bótatímabili beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. og greiðslum atvinnuleysisbóta til hans séu felldar niður í samtals fimm mánuði.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda falli niður í fimm mánuði á grundvelli 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2026, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Ágreiningur málsins lýtur einnig að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laganna.

Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt meðal annars 3. mgr. 13. gr.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 20. janúar 2026 boðaður á námskeið sem haldið var af hálfu Vinnumálastofnunar dagana 21., 22., 23., 26. og 27. janúar 2026. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að tilkynna án tafar. Athygli kæranda var vakin á því að fjarvera gæti leitt til stöðvunar greiðslna atvinnuleysisbóta.  Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti né boðaði forföll. Kærandi var jafnframt þann 22. janúar 2026 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 23. janúar 2026. Kæranda var einnig greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án tafar á „Mínum síðum“. Athygli kæranda var vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi verið staddur úti á landi við að læra flísalögn í tengslum við mögulegt framtíðarstarf og því hafi hann ekki getað mætt á fund eða námskeið á vegum Vinnumálastofnunar.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Úrskurðarnefndin bendir á að launalaust starf atvinnuleitanda undanskilur ekki viðkomandi því að taka þátt í skylduúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar. Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru í boðuð vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

Kemur þá til skoðunar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2026, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 29. janúar 2026 boðaður á starfsleitarnámskeið sem haldið var af hálfu Vinnumálastofnunar hjá Mími dagana 2., 3., 4. og 5. febrúar 2026. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að ef mæting myndi verða undir 80% þyrfti hann að senda skýringar til Vinnumálastofnunar með tilteknum hætti. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ef hann myndi ekki senda skýringar eða þær yrðu ekki samþykktar mætti hann eiga von á að missa atvinnuleysisbætur í ákveðinn tíma. Fyrir liggur að kærandi mætti ekki dagana 2. og 3. febrúar 2026 og boðaði ekki forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi átt við erfiðleika að stríða á þessum tíma og því ekki getað mætt.

Líkt og að framan greinir kemur skýrt fram í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að honum bæri að uppfylla 80% mætingarskyldu á boðað námskeiðið, ella kæmi til viðurlaga í formi greiðslustöðvunar. Þar sem kærandi uppfyllti ekki mætingarskyldu á boðað námskeið kom réttilega til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Vegna viðurlagaákvörðunar Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, og þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest. Ákvörðun stofnunarinnar, dags. 13. mars 2026, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er einnig staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir