Mál nr. 254/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 254/2026
Fimmtudaginn 9. júlí 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 2. apríl 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2026, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. desember 2025 og var umsóknin samþykkt 16. febrúar 2026. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2026, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. apríl 2026. Með bréfi, dags. 7. apríl 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. maí 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 8. júní 2026 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. júní 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að vegna óvænts slyss hafi sími kæranda eyðilagst sem hafi valdið því að hún hafi misst aðgang að tölvupósti sínum, rafrænum skilríkum og öðrum mikilvægum samskiptaleiðum. Kærandi hafi þar af leiðandi hvorki getað séð né svarað boðinu í viðtal í tæka tíð. Þessi staða hafi verið algjörlega utan stjórnar kæranda. Atvinnuleit kæranda sé í forgangi og hún stefni á að leysa úr stöðunni eins fljótt og auðið sé. Kærandi sé háð stöðugum tekjum til að standa straum af leigu og daglegum framfærslukostnaði sem geri þetta tækifæri sérstaklega mikilvægt fyrir hana. Kærandi biðjist innilega afsökunar á að hafa misst af viðtalinu og fyrir öll óþægindi sem það kunni að hafa valdið.
Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar kemur fram að hún hafi því miður ekki getað mætt í viðtalið þann 3. mars 2026 þar sem farsíminn hennar hafi verið bilaður og hún hafi ekki séð tilkynninguna í tæka tíð. Um leið og kæranda hafi orðið vör við stöðuna hafi hún sent inn skýringu á aðstæðum sínum. Varðandi fund þann 12. maí 2026 hafi kærandi verið á ferðalagi um Ísland með eiginmanni sínum og því ekki getað komið til Egilsstaða í tæka tíð fyrir fundinn. Kærandi hafi gert sitt besta til að útskýra fjarveru sína með því að fara á skrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 13. maí 2026, eða daginn eftir og einnig sent tölvupóst varðandi málið. Kærandi sé virk í atvinnuleit en það að vera atvinnulaus og að atvinnuleysisbætur hafi verið stöðvaðar hafi skapað verulega fjárhagslega erfiðleika fyrir kæranda. Kærandi treysti á þennan stuðning til að standa straum af nauðsynlegum útgjöldum, þar á meðal leigu á íbúð og daglegum framfærslukostnaði. Kærandi sé staðráðin í að finna vinnu eins fljótt og auðið sé og muni halda áfram að sækja um þar til hún fái vinnu. Á meðan biðji kærandi um skilning og tillitssemi við yfirferð á kæru hennar og að atvinnuleysisbætur hennar verði endurreistar þar sem aðstoðin myndi veita henni nauðsynlegan stuðning á meðan hún vinni úr núverandi erfiðleikum sínum.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 11. desember 2025. Með erindi, dags. 16. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt með 100% bótarétti. Með vísan til starfsloka kæranda hjá fyrrverandi atvinnurekanda hafi bótaréttur hennar verið felldur niður í tvo mánuði.
Þann 2. mars 2026 hafi kærandi verið boðuð í viðtal hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar á Egilsstöðum þann 3. mars 2026, klukkan 11:30. Kærandi hafi verið upplýst að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna í gegnum „Mínar síður“ atvinnuleitenda. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin ekki borist í símtæki kæranda af óþekktum ástæðum. Kærandi hafi ekki mætt til boðaðs viðtals við ráðgjafa stofnunarinnar og hafi ekki tilkynnt um forföll.
Kæranda hafi verið sent erindi 11. mars 2026 þar sem henni hafi verið gefin kostur á að skila skýringum á fjarveru sinni í boðað viðtal þann 3. mars 2026. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum.
Engar skýringar eða gögn hafi borist frá kæranda. Kæranda hafi verið send ákvörðun stofnunarinnar þann 24. mars 2026 um að fella niður greiðslur henni til handa í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 2. apríl 2026. Í kæru bendi kærandi á að sími hennar hafi eyðilagst með þeim afleiðingum að hún hafi ekki haft aðgang að tölvupóstfangi, rafrænum skilríkum né öðrum samskiptaleiðum. Kærandi hafi af þeim sökum ekki fengið boð frá Vinnumálastofnun og því ekki mætt í boðað viðtal þann 3. mars 2026.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt h. lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.
Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til upplýsingafundarfunda hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi verið bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar þann 3. mars 2026. Kærandi hafi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga sé umsækjandi upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Ástæða þess að kærandi hafi ekki mætt til boðaðs viðtals hafi verið sú að sími hennar hafi verið bilaður á þeim tíma sem boðun Vinnumálastofnunar hafi verið send. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað lesið skilaboð sem henni hafi verið send.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð í viðtal hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Kærandi hafi í upphafi umsóknar verið upplýst með fullnægjandi hætti um hvernig henni yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðunin hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án tafar.
Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri henni því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr.
Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis. Þar sem um önnur viðurlög séu að ræða á sama bótatímabili, komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna og beri kæranda að sæta þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt meðal annars 3. mgr. 13. gr.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 2. mars 2026 boðuð í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 3. mars 2026. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi var jafnframt upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Að lokum var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti í boðað viðtal né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi ekki séð boðunina í viðtalið þar sem sími hennar hafi verið í ólagi.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Fyrir liggur að þegar umsókn kæranda var samþykkt 16. febrúar 2026 var henni greint frá því að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hennar á „Mínum síðum“, með tölvupósti eða smáskilaboðum. Það er á ábyrgð atvinnuleitanda að kynna sér þau skilaboð sem Vinnumálastofnun sendir þeim, enda eru allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess. Kæranda bar því að tryggja að hún gæti nýtt sér þá boðleið sem Vinnumálastofnun hafði upplýst hana um að notast væri við. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 16. febrúar 2026 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir