12. ágúst 2026 /

Mál nr. 147/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 147/2026

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026

A gegn Sjúkratryggingum Íslands

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með kæru, dags. 23. febrúar 2026, kærði B lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 15. desember 2025 um bætur til kæranda úr sjúklingatryggingu.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um bætur úr sjúklingatryggingu með umsókn, dags. 14. apríl 2023, vegna afleiðinga meðferðar sem fór fram á C og hófst þann X. Sjúkratryggingar Íslands synjuðu umsókn kæranda með ákvörðun, dags. 15. desember 2025, á þeim grundvelli að ekki lægi fyrir bótaskylt tjón sem að öllum líkindum mætti rekja til þátta sem féllu undir gildissvið sjúklingatryggingar samkvæmt þágildandi 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 26. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands ásamt gögnum málsins. Greinargerð Sjúkratrygginga Íslands barst með bréfi, dags. 10. mars 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. mars 2026, var greinargerð Sjúkratrygginga Íslands send lögmanni kæranda til kynningar. Engar athugasemdir bárust.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi fer fram á að hin kærða ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 15. desember 2025 verði felld úr gildi og að bótaskylda stofnunarinnar gagnvart kæranda samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu verði viðurkennd. Til vara er farið fram á að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lagt fyrir Sjúkratryggingar Íslands að taka málið til nýrrar meðferðar.

Í kæru er greint frá því að kærandi hafi slasað sig á löngutöng vinstri handar þann X og leitað í kjölfarið á slysadeild C. Við skoðun hafi komið í ljós að sin hafði slitnað við fjærkjúku fingursins og hafi hún verið greind með svokallaðan mallet áverka. Ákveðið hafi verið að meðhöndla áverkann með spelku. Lagt hafi verið upp með spelkumeðferð í átta vikur og svo hafi hún átt að nota spelkuna um nætur í nokkrar vikur eftir það.

Þann X hafi kærandi leitað á slysdeild C þar sem henni hafi fundist spelkan vera laus og ekki halda nógu vel við fingurinn. Í bráðamóttökuskrá komi fram að kærandi hafi verið í fingurspelku nr. 3. Einnig komi þar fram að það þurfi að passa að dorsal hluti spelkunnar sé teipaður almennilega niður á fingurinn. Samkvæmt þessari skráningu í sjúkraskrá sé ljóst að spelkan hafi verið laus og stutt illa við fingurinn þegar kærandi hafi leitað á slysadeild þann X.

Þann X hafi kærandi leitað aftur á slysadeild C vegna roða og eymsla á áverkasvæðinu og hafi verið ákveðið að senda tilvísun til handasérfræðings. Þann X hafi handaskurðlæknir ráðlagt áframhaldandi spelkumeðferð og talið líklegt að fingurinn hefði ekki verið orðinn alveg gróinn þegar spelkan hafi verið tekin og að upphafstími meðferðar hafi ekki verið fullnægjandi.

Kærandi hafi sótt um bætur úr sjúklingatryggingu þann 14. apríl 2023 vegna afleiðinga meðferðar sem hafi farið fram á  C og hafi byrjað þann X.

Þann 15. desember 2025 hafi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands borist og hafi niðurstaðan verið að tilvikið væri ekki bótaskylt samkvæmt þágildandi lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Að mati Sjúkratrygginga Íslands hafi þau einkenni sem kærandi hafi þá búið við verið að öllu leyti rakin til grunnástands hennar, þ.e. mallet fingurs, en hvorki til meðferðar né skorts á meðferð. Einnig hafi komið fram í ákvörðuninni að ekkert benti til þess að meðferð hafi ekki verið háttað með fullnægjandi hætti og skilyrði 1.-4. tölul 2. gr. laga um sjúklingatryggingu væru ekki uppfyllt.

Kærandi byggi kröfu sína á því að ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands sé byggð á röngum forsendum og beri því að fella hana úr gildi. Sjúkratryggingar Íslands telji að meðferðin hafi verið í samræmi við viðurkennda læknisfræðilega þekkingu og að einkenni kæranda verði rakin til grunnástands en ekki til mistaka sem hafi orðið við meðferð áverkans. Hins vegar bendi málsatvik til þess að meðferðin hafi verið ófullnægjandi og ekki í samræmi við viðurkennda læknisfræði. Ófullnægjandi meðferð hafði tvímælalaust haft áhrif á árangur meðferðarinnar.

Samkvæmt matsgerð D læknis, dags. 27. apríl 2023, búi kærandi við varanlega hreyfiskerðingu, kraftminnkun og óþægindi eftir slysið þann X. Varanleg læknisfræðileg örorka sé metin 3%.

Í umsókn kæranda um bætur úr sjúklingatryggingu, dags. 14. apríl 2023, komi fram að sérfræðingur í handaskurðlækningum hafi sagt við hana að „ef spelkan hefði strax verið sett rétt á hefði þetta ekki farið svona. Spelkan var ekki sett rétt á í upphafi, grisjan var tvöföld og spelkan of víð.“ Þessar upplýsingar, sem Sjúkratryggingar Íslands virðist ekki hafa vefengt, bendi sterklega til þess að mistök hafi átt sér stað í upphaflegri meðferð kæranda. Það sé ógerlegt að halda því fram að meðferð sé fullnægjandi og í samræmi við viðurkennda læknisfræðilega þekkingu sé spelkan, grundvallaratriði í meðferðinni, ekki sett rétt á.

Í forsendum niðurstöðu í ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands, dags. 15. desember 2025, komi fram að mallet fingur sé tiltölulega algengur handaáverki og að hefðbundin meðferð við áverkanum sé spelkumeðferð án aðgerðar. Einnig komi fram að það sé mat Sjúkratrygginga Íslands að sú meðferð sem kærandi hafi fengið á C, í tengslum við mallet áverka, hafi verið í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Í niðurstöðunni komi einnig fram að eftir að kærandi hafi leitað á slysadeild C og kvartað yfir því að spelkan væri of laus þá hafi verið búið þannig um hana að fingurinn hafi legið vel í spelkunni. Í þessu felist bein viðurkenning á að fingurinn hafi ekki legið nægilega vel í spelkunni þegar kærandi hafi leitað á slysadeild  C þann X.

Spelkumeðferð sem upphaflega hafi átt að vera í átta vikur hafi endað á að vera í átta mánuði.

Í greinargerð meðferðaraðila, dags. 10. ágúst 2023, skrifi E, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum, að þegar kærandi hafi leitað á slysdeildina þann X hafi sama stærð af spelku og áður verið notuð en búið þannig um/teipað að spelkan hafi stutt vel við fingurinn og legið vel í spelkunni. Þessi ummæli í greinargerð gefi til kynna að fingurinn hafi ekki legið vel í spelkunni áður og þess vegna hafði þurft að búa betur um hann við komu kæranda á slysadeild.

Í greinargerðinni sé talað um að það hafi orðið seinkun á meðferð í máli kæranda. Þessi ummæli staðfesti að meðferð þann X hafi verið ófullnægjandi.

Í læknabréfi, dags. 30. mars 2023, skrifi F, bæklunarskurðlæknir með sérhæfingu í handaskurðlækningum:

„Kona sem fékk Mallet fingur X. Hún fékk spelku á 3. fingur vinstri og grisjuvafninga. Spelkan var alltof stór eftir þrjár vikur og grisjuvafningar og spelka voru teknir og hún fékk minni spelku. Hún tók spelkuna eins og áætlað var eftir átta vikur samtals og notaði næturspelku en árangurinn hefur ekki orðið góður og fingurinn var líklega ekki orðinn alveg gróinn begar spelkann var tekin.

Þannig líklegt er að upphafstíminn hafi ekki verið nægilega góður (mtt. gróandans) því fingurinn var bólginn og eins og áður segir tiltölulega stór spelka og grisjur (og IP liður gæti hafa hreyfst á meðferðartímanum).“

Samkvæmt framansögðu sé ljóst að sú meðferð sem kærandi hafi fengið á C og hafi byrjað þann X hafi ekki verið hagað eins vel og unnt hefði verið og hún hafi ekki verið í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði, sbr. 1. tölul. 2. gr. þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.

Við mat á bótaskyldu samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu sé beitt líkindareglu, sem þýði að nægilegt sé að sýnt sé fram á að tjón hafi að öllum líkindum hlotist af rannsókn eða meðferð. Líkurnar verði að vera meiri en 50% til að bótaréttur sé fyrir hendi, samanber úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, t.d. í máli nr. 82/2013. Í tilviki kæranda bendi framangreind málsatvik og læknisfræðilegt mat til þess að meiri líkur en minni séu á því að tjón hennar sé að rekja til ófullnægjandi meðferðar frekar en grunnástandsins sjálfs.

Kærandi bendi á að samkvæmt dómaframkvæmd, meðal annars dómi Hæstaréttar í máli nr. 388/2012 og dómi Landsréttar í máli nr. 401/2018, gildi rýmri sönnunarreglur í sjúklingatryggingamálum en í almennum skaðabótarétti.

Í dómi Landsréttar í máli nr. 401/2018 hafi verið staðfest að þegar sýnt hafi verið fram á saknæm mistök heilbrigðisstarfsmanna (eins og hér liggi fyrir), færist sönnunarbyrðin yfir á stofnunina/Sjúkratryggingar Íslands að sýna fram á að líkamstjónið hefði allt að einu orðið þótt mistökin hefðu ekki átt sér stað.

Sjúkratryggingar Íslands hafi engin gögn lagt fram sem sanni að ófullnægjandi meðferð á C hafi verið skaðlaus. Því beri að líta svo á að orsakatengsl séu fyrir hendi milli ófullnægjandi meðferðar og þess „viðbótarheilsutjóns“ sem kærandi búi við umfram frumáverka.

Með vísan til framangreinds sé þess krafist að úrskurðarnefnd velferðarmála felli hina kærðu ákvörðun úr gildi og viðurkenni rétt kæranda til bóta. Mistök liggi fyrir og líklegra sé en ekki að ófullnægjandi meðferð á C hafi aukið tjón kæranda og valdið þeirri varanlegu örorku sem nú hafi verið metin.

III. Sjónarmið Sjúkratrygginga Íslands

Í greinargerð Sjúkratrygginga Íslands segir að kærandi hafi sótt um bætur úr sjúklingatryggingu samkvæmt þágildandi lögum nr. 111/2000 með umsókn sem hafi borist stofnuninni þann 14. apríl 2023. Sótt hafi verið um bætur vegna afleiðinga meðferðar sem hafi farið fram á C og hafi byrjað X. Aflað hafi verið gagna frá meðferðaraðilum. Þá hafi málið verið yfirfarið af lækni og lögfræðingum stofnunarinnar. Með ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands, dags. 24. júlí 2025, hafi stofnunin synjað bótaskyldu á þeim grundvelli að ekki væri um að ræða tjón sem félli undir gildissvið sjúklingatryggingar samkvæmt 2. gr. þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.

Með kæru hafi borist nýtt gagn, þ.e. álitsgerð um læknisfræðilega örorku, dags. 27. apríl 2023. Sjúkratryggingar Íslands telji að gögnin breyti ekki niðurstöðu stofnunarinnar í málinu.

Í kæru sé tekið fram að eftir að kærandi hafi leitað á slysadeild C og kvartað yfir því að spelkan væri of laus þá hafi verið búið þannig um hana að fingurinn hafi legið vel í spelkunni. Í þessu felist bein viðurkenning að fingur kæranda hafi ekki legið nægilega vel í spelkunni þegar kærandi hafi leitað á slysadeild C þann X. Í þessu sambandi vilji Sjúkratryggingar Íslands benda á að oft sé þörf á að hagræða eða skipta um spelku á meðferðartíma. Orsakist þetta af því að bólga sem myndist við áverka hjaðni og verði þá gjarnan rýmra um fingur í upphaflegri spelku. Í bráðamóttökuskrá C þann X sé skráð:

„Hún er í fingurspelku nr. 3. Við prófum nr. 2 en hún er alltof þröng og fingurtoppurinn hvítnar. Þannig er spelka nr. 3 af réttri stærð. Þarf bara að passa að dorsal hluti spelkunnar sé teipaður almennilega niður á fingurinn“.

Að mati Sjúkratrygginga Íslands hafi kærandi því fengið rétta spelku og réttar umbúðir við sínum áverka.

Þá sé eftirfarandi tekið fram í kæru um greinagerð meðferðaraðila:

„Í greinargerðinni er talað um að það hafi orðið seinkun á meðferð í máli kæranda. Þessi ummæli staðfesta að meðferð þann X hafi verið ófullnægjandi.“

Sjúkratryggingar Íslands bendi á að í framangreindri greinargerð sérfræðings í bæklunarskurðlækningum, dags. 10. ágúst 2023, segi:

„Að þessu gefnu, er mat mitt að „seinkunin“ í meðferðinni hafi ólíklega haft afgerandi neikvæð áhrif á endanlegan árangur meðferðarinnar. Slæmur árangur/ástand í dag tel ég ekki vera vegna meðferðar sem veitt var á tímabilinu X.“

Þetta sé skráð í kjölfar umfjöllunar um niðurstöðu rannsóknar sem hafi sýnt að betri árangur hafi náðst hjá þeim sjúklingum sem hafi byrjað spelkumeðferð 20 dögum eða lengur eftir áverka. Sjúkratryggingar hafni því að seinkun hafi átt sér stað í meðferð við áverka kæranda en ljóst sé að fullnægjandi spelkumeðferð hafi byrjað strax við fyrstu komu þann X.

Sjúkratryggingar Íslands telji rétt að ítreka að ekki verði annað séð en að sú meðferð sem kærandi hafi hlotið á C, í tengslum við mallet áverka, hafi verið hagað í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Þá verði þau einkenni sem kærandi búi við nú að öllu leyti rakin til grunnástands hennar, þ.e. mallet fingurs, en ekki til meðferðar eða skorts á meðferð.

Með vísan til framangreinds beri að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Í ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands segir að ljóst sé samkvæmt gögnum málsins að kærandi hafi hlotið svokallaðan mallet fingur, en það sé tiltölulega algengur handaráverki. Ástæða áverkans sé hrörnun í réttisin þar sem hún festist í fjærkjúku og geti hrokkið í sundur við minniháttar hnjask, svo sem að búa um rúm. Hefðbundin meðferð við mallett áverka sé með spelku, án aðgerðar. Samkvæmt tiltækri heimild felist meðferð í því að hindra hreyfanleika liðarins í fullri réttu eða í örlítilli yfirréttu í að minnsta kosti sex vikur, með spelku, og síðan í tvær vikur til viðbótar með næturspelku. Þrátt fyrir að hægt sé að velja úr margs konar spelkum til meðhöndlunar á mallet fingri hafi engin ein þeirra reynst öðrum betri. Samkvæmt tiltækri heimild virðist fræðasamfélagið einnig sammála um að aðgerðir séu ekki viðeigandi meðferðarkostur við mallet áverka. Þá sé algengt að ekki náist full rétta í fjærkjúkuliðinn eftir slíkan áverka, ásamt því að oft geti einnig vantað á beygjugetu, þrátt fyrir viðeigandi og rétta meðferð. Við mat á árangri eftir spelkumeðferð hafi komið í ljós að um 67% sjúklinga hafi lýst árangri sem góðum en 10% hafi lýst árangrinum sem sæmilegum eða slæmum. Því miður sé um erfiðan áverka að ræða sem láti ekki vel undan meðferð.

Að mati Sjúkratrygginga Íslands verði ekki annað séð en að sú meðferð sem kærandi hafi hlotið á C, í tengslum við mallet áverka, hafi verið hagað í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Kærandi hafi hlotið áverka sem falli undir þau skilmerki að vera meðhöndlaður án aðgerðar. Hún hafi fengið spelkumeðferð en tveimur vikum eftir áverka hafi kærandi leitað á bráðamóttöku C þar sem henni hafi þótt spelkan laus. Slíkt geti gerst eftir að bólga hjaðni. Prófuð hafi verið spelka í næstu stærð fyrir neðan sem hafi ekki passað á fingur kæranda. Því hafi sama stærð verið notuð en búið þannig um að spelkan hafi stutt vel við og fingurinn legið vel í spelkunni.

Að mati Sjúkratrygginga Íslands verði þau einkenni sem kærandi búi við nú að öllu leyti rakin til grunnástands hennar, þ.e. mallet fingurs, en ekki til meðferðar eða skorts á meðferð. Með vísan í framangreint sé ljóst að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að meðferð hafi ekki verið háttað með fullnægjandi hætti. Með vísan til þessa séu skilyrði þágildandi 1. - 4. tölul 2. gr. laganna ekki uppfyllt.

Með vísan til þess sem að framan greini og fyrirliggjandi gagna málsins sé það mat Sjúkratrygginga Íslands að ekki liggi fyrir bótaskylt tjón sem að öllum líkindum megi rekja til þátta sem falli undir gildissvið sjúklingatryggingar samkvæmt 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.

Ekki sé því heimilt að verða við umsókn kæranda um bætur úr sjúklingatryggingu.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar synjun Sjúkratrygginga Íslands um bætur á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Kærandi telur að afleiðingar meðferðar sem fór fram á C og hófst þann X séu bótaskyldar samkvæmt 2. gr. laga um sjúklingatryggingu.

Í 2. gr. laga um sjúklingatryggingu segir um tjónsatvik sem lögin taka til:

„Bætur skal greiða án tillits til þess hvort einhver ber skaðabótaábyrgð samkvæmt reglum skaðabótaréttarins, enda megi að öllum líkindum rekja tjónið til einhvers eftirtalinna atvika:

1.    Ætla má að komast hefði mátt hjá tjóni ef rannsókn eða meðferð við þær aðstæður sem um ræðir hefði verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði.

2.    Tjón hlýst af bilun eða galla í tæki, áhöldum eða öðrum búnaði sem notaður er við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð.

3.    Mat sem síðar er gert leiðir í ljós að komast hefði mátt hjá tjóni með því að beita annarri meðferðaraðferð eða -tækni sem völ var á og hefði frá læknisfræðilegu sjónarmiði gert sama gagn við meðferð sjúklings.

4.    Tjón hlýst af meðferð eða rannsókn, þ.m.t. aðgerð, sem ætlað er að greina sjúkdóm og tjónið er af sýkingu eða öðrum fylgikvilla sem er meiri en svo að sanngjarnt sé að sjúklingur þoli það bótalaust. Annars vegar skal líta til þess hve tjón er mikið og hins vegar til sjúkdóms og heilsufars sjúklings að öðru leyti. Þá skal taka mið af því hvort algengt er að tjón verði af meðferð eins og þeirri sem sjúklingur gekkst undir og hvort eða að hve miklu leyti gera mátti ráð fyrir að hætta væri á slíku tjóni.“

Í athugasemdum við 2. gr. í frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu segir að það sé skilyrði bótaskyldu að tjón tengist rannsókn eða sjúkdómsmeðferð, en verði ekki rakið til skaðlegra afleiðinga og tjóns sem hljótist af sjúkdómi sem sjúklingur sé haldinn fyrir. Afleiðingar sem raktar verða til sjúkdóms sjálfs eru þannig ekki bótaskyldar, en hins vegar getur tjón verið bótaskylt ef það er fyrst og fremst rakið til mistaka eða dráttar á greiningu eða við meðferð. Í athugasemdunum segir að bæta skuli tjón sjúklings ef könnun og mat á málsatvikum leiði í ljós að líklegra sé að tjónið stafi af til dæmis rangri meðferð en öðrum orsökum. Sé niðurstaðan hins vegar sú að eins líklegt sé að tjónið sé óháð meðferðinni sé bótaréttur ekki fyrir hendi.

Ákvæði 1. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu lýtur að því hvort rétt hafi verið staðið að læknismeðferð. Ákvæðið tekur til allra mistaka sem verða við rannsókn, meðferð og svo framvegis. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu segir að orðið mistök sé hér notað í mun víðtækari merkingu en almennt tíðkist í lögfræði. Ekki skipti því máli hvernig mistökin séu, átt sé meðal annars við hvers konar ranga meðferð, hvort sem orsök hennar sé röng sjúkdómsgreining sem rekja megi til atriða sem falli undir 1. eða 2. tölul. 2. gr. eða annað sem verði til þess að annaðhvort sé beitt meðferð sem eigi ekki læknisfræðilega rétt á sér eða látið sé hjá líða að grípa til meðferðar sem við eigi. Í athugasemdunum segir enn frekar að samkvæmt 1. tölul. sé það ekki skilyrði að unnt sé að telja að læknir eða annar starfsmaður sem hlut hafi átt að máli hafi við meðferð sjúklings gerst sekur um handvömm eða vanrækslu sem komast hefði mátt hjá með meiri aðgæslu.

Samkvæmt 2. gr. laga um sjúklingatryggingu skal greiða bætur, enda megi að öllum líkindum rekja tjón til nánar tilgreindra tilvika sem meðal annars eru talin röng meðferð. Þetta felur í sér líkindareglu, þannig að séu meiri líkur á því en minni að tjón kæranda verði rakið til dæmis til mistaka skuli að öðrum skilyrðum uppfylltum greiða bætur samkvæmt lögunum.

Kærandi byggir kröfu sína um bætur úr sjúklingatryggingu á 1. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu. Kærandi telur að hún hafi orðið fyrir tjóni á löngutöng vinstri handar vegna ófullnægjandi meðferðar með spelku vegna mallet áverka sem hún hlaut á fingurinn þann X.

Í greinargerð meðferðaraðila, G læknis, dags. 22. ágúst 2023, segir svo:

„Sjúklingur leitar á slysa- og bráðamóttökuna á C þann X eftir að hafa veri ðað undirbúa sig fyrir svefn þegar hún heyrði skyndilegan smell og fær verki í löngutöng hægri handar. Ekkert brot greinist á röntgenmynd, sjáanleg hyperextension í PIP-lið og flexion í DIP-lið og grunur leikur á rof á miðbandi extensor digitorum sin. Ráðlögð var Mallet-spelka í 8 vikur og síðan aðeins um nótt í nokkrar vikur eftir það, engin ráðgerð endurkoma. Leitaði á bráðamóttökuna þann X þar sem að henni fannst spelkan vera laus. Var með spelku nr 3 og prófuð minni stærð en við það hvítnaði fingurtoppurinn og spelkan var of þröng og því metið að spelka nr 3 passaði betur. Kemur aftur á bmt þann X vegna roða og verkja yfir DIP lið dig 3 og þá ákveðið að senda tilvísun á handasérfræðing til frekara mats og meðferðar.

Handarsérfræðingur mælir með lengri spelkumeðferð frekar en skurðaðgerð og endar með að vera með spelku í 8 mánuði. Er með sýnilega afmyndaðan fingur samkvæmt sjúklingaupplýsingum.“

Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, tekur sjálfstæða afstöðu til bótaskyldu í málinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna sem nefndin telur nægjanleg. Fyrir liggur að kærandi fékk rof á réttisin löngutangar og hlaut í kjölfarið svokallaðan Mallet áverka. Hún fékk spelku á fingurinn og ráðleggingar um notkun hennar í átta vikur. Tæpum tveimur vikum síðar leitaði kærandi aftur á bráðamóttökuna þar sem spelkan var að hennar mati víð. Reynd var næsta spelka fyrir neðan í stærð og var sú þröng. Því var notuð sama stærð af spelku áfram en búið vel um.

Að mati úrskurðarnefnd velferðarmála verður að telja líklegt að þegar bólgan hjaðnaði hafi það skýrt hvers vegna spelkan varð rýmri eftir að upphaflega spelkan var lögð og því hafi verið þörf fyrir þéttari spelku í kjölfarið. Tengist þetta eðli áverkans. Þá er rétt að horfa til þess að árangur meðferðar með spelku er oftast góður og sambærilegur jafnvel þó að það dragist að koma meðferð í gang sem var þó ekki í tilviki kæranda.[1] Ljóst er að meðferð kæranda var þannig í góðu samræmi við leiðbeiningar um meðferð áverka hennar.

Að framangreindu virtu verður ekki annað séð að mati úrskurðarnefndar en að meðferð kæranda hafi verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði og að þau einkenni sem hún búi við nú verði rakin til upprunalega áverkans en ekki þeirrar meðferðar sem hún hlaut á C.

Með vísan til þess, sem rakið er hér að framan, er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að skilyrði bótaskyldu samkvæmt þágildandi 1. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu séu ekki uppfyllt í tilviki kæranda. Synjun Sjúkratrygginga Íslands á bótaskyldu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja A, um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 
 

[1] https://www.cfp.ca/content/72/2/93.full