12. ágúst 2026 /

Mál nr. 213/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 213/2026

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026

A gegn Sjúkratryggingum Íslands

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með kæru, sem barst 16. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 16. mars 2026 um bætur til kæranda úr sjúklingatryggingu.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um bætur úr sjúklingatryggingu með umsókn, dags. 13. september 2021, vegna afleiðinga bólusetningar gegn Covid-19 þann X sem fram fór á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sjúkratryggingar Íslands synjuðu umsókn kæranda með ákvörðun, dags. 26. mars 2026, á þeim grundvelli að skilyrði þágildandi bráðabirgðaákvæðis I. í lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000 væru ekki uppfyllt.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. mars 2026. Með bréfi, dags.18. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands ásamt gögnum málsins. Viðbótargögn bárust frá kæranda 14. apríl 2026 og voru þau send Sjúkratryggingum Íslands með bréfi úrskurðarnefndar sama dag. Greinargerð Sjúkratrygginga Íslands barst sama dag með bréfi, dags. 26. mars 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. apríl 2026, var greinargerð Sjúkratrygginga Íslands send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 14. apríl 2026, og voru þær sendar Sjúkratryggingum Íslands til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. apríl 2026. Viðbótarathugasemdir bárust frá kæranda með tölvupósti þann 24. apríl 2026 og voru þær sendar Sjúkratryggingum Íslands til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. apríl 2026. Athugasemdir bárust frá Sjúkratryggingum Íslands með tölvupósti þann 8. maí 2026 og voru þær kynntar kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. maí 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi fer fram á það að úrskurðarnefnd velferðarmála endurskoði ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands.

Í kæru segir að kærandi hafi nýlega kært töf á máli. Nú hafi hann fengið neitun á bótum sem hann sé auðvitað 100% ósammála. Því vilji hann kæra þann úrskurð og hvernig hann sé rökstuddur. Í niðurstöðum Sjúkratrygginga Íslands segi:

„þegar farið er yfir sjúkrasögu umsækjanda má sjá að þau einkenni sem hann kvartar yfir í umsókn og telur að rekja megi til bólusetningar gegn Covid-19, þann X, hafa einhver komið fyrir síðustu 5 ár fyrir bólusetninguna, þ.e. verkir bakvið augu, verkir milli herðablaða og í ganglimum og dofi í útlimum og fingrum.“

Kærandi kveðst ekki muna eftir að hafa farið ítrekað til læknis vegna stanslausra verkja og doða í útlimum. Varðandi „verkir bak við augu“ hafi kærandi kannski eitt sinn verið með verk bak við augu þegar hann hafi farið til læknis. Hann hafi ekki kvartað vegna verkja milli herðarblaða vegna Covid sprautu. Það sé líklega vegna brisverkja sem þeir vilji blanda inn í þetta.

Kærandi hafi verið í […] á þessum tíma og í mjög góðu formi. Nú geti hann hvorki staðið né notað hendur almennilega.

Kærandi hafi verið hjá B ónæmislækni á Landspítala vegna þessa máls og hafi nú síðast verið sendur í IVIG meðferð sem hafi því miður ekki farið vel og séu þeir komnir á vegg.

Kærandi segi það hreint út: Það þori enginn að segja að þetta sé vegna Covid sprautu þó svo að ekkert sé augljósara! B sé búinn að segja það við kæranda að þetta sé út af sprautunni. Óskar kærandi eftir að Sjúkratryggingar Íslands fái álit hans á málinu.

Einnig kemur fram að kærandi hafi farið í háþrýstiklefa í mörg skipti án árangurs og eftir það til B. Fyrir það hafi hann reynt margt annað, C, D, hjartalækna, taugalækna, gigtarlækna og ofnæmislækna.

Í athugasemdum kæranda við greinargerð Sjúkratrygginga Íslands er vísað til þess sem fram komi í greinargerðinni varðandi það að alltaf megi búast við því að hluti bólusettra geti fengið almennar aukaverkanir sem gangi alla jafna yfir á fáum dögum. Kærandi segi að það sé ekki það sem hafi gerst hjá honum. Hann sé enn handónýtur. Hann sé ekkert að kvarta yfir öðrum bóluefnum, heldur þessari einu sprautu. Hann hafi farið í aðrar bólusetningar án vandamála.

Þá geri hann athugasemd við rannsókn og rökstuðning Sjúkratrygginga Íslands varðandi þá fullyrðingum að í mörgum tilvikum sé um að ræða einkenni sem þegar hafi verið komin fram fyrir bólusetningu en tilkynning snúi að versnun þeirra. Ekki séu til rannsóknir eða önnur gögn sem bendi til þess að bóluefni gegn Covid-19 geti gert þá undirliggjandi sjúkdóma sem kærandi hafi verið með verri. Kærandi bendir á að hann hafi ekki verið með nein af þessum einkennum fyrir sprautu. Hann spyrji hvaða undirliggjandi sjúkdóma hann hafi verið með sem hafi orðið krónískt verri. Sjúkratryggingar Íslands vilji ekki leita upplýsinga. Þær blandi öðrum málum inn í og tali fram og til baka.

Kærandi segist vera svona eins og hann sé af því að hann hafi farið í þessa sprautu á þessum tíma á þessum degi. Hann hafi lent í bílslysi X og brotið meðal annars tvo hryggjarliði. Spyr hann ef einhver kæmi og sparkaði í bakið á honum í dag og það myndi brjóta hryggjarlið, væri það þá X ára bílslysinu að kenna en ekki þeim sem hafi sparkað í bakið á honum.

Þá spyr kærandi hvort Sjúkratryggingar Íslands ætli ekki að leita álits B. Hann þori líklega ekkert að segja sannleikann heldur fyrst hann hafi bara getað sagt við kæranda undir fjögur augu að þetta væri sprautan en þori ekki að skrifa upp á það. Þannig græði kærandi líklega ekkert á því, en hann vilji sjá hvað hann segi.

Loks spyrji kærandi af hverju sönnunarbyrði sé öfug og hvar það komi fram í rökstuðningi og rannsókn Sjúkratrygginga Íslands að þetta hafi ekki verið Covid-sprautan sem hafi valdið einkennum hans.

III. Sjónarmið Sjúkratrygginga Íslands

Í greinargerð Sjúkratrygginga Íslands segir að kærandi hafi sótt um bætur úr sjúklingatryggingu samkvæmt þágildandi lögum nr. 111/2000 með umsókn sem hafi borist stofnuninni þann 13. september 2021. Sótt hafi verið um bætur vegna afleiðinga bólusetningar gegn Covid-19 sem framkvæmd hafi verið á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þann X. Umsóknin hafi verið til skoðunar hjá stofnuninni og málið hafi verið talið að fullu upplýst. Með ákvörðun, dags. 16. mars 2026, hafi Sjúkratryggingar Íslands synjað bótaskyldu á þeim grundvelli að skilyrði þágildandi bráðabirgðaákvæðis I. í lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000 væru ekki uppfyllt.

Að mati Sjúkratrygginga Íslands komi afstaða stofnunarinnar til kæruefnisins fram með fullnægjandi hætti í ákvörðun stofnunarinnar, dags. 16. mars 2026. Að mati Sjúkratrygginga Íslands sé  því ekki þörf á að svara kæru efnislega með frekari hætti. Sjúkratryggingar Íslands vísi því til þeirrar umfjöllunar sem fram komi í framangreindri ákvörðun og öðrum gögnum málsins.

Þó vilji Sjúkratryggingar Íslands árétta að alltaf megi búast við því að hluti bólusettra geti fengið almennar aukaverkanir svo sem flensulík einkenni, hita, beinverki, höfuðverki, lið- og vöðvaverki, svima, þreytu og jafnvel fleiri einkenni sem alla jafna ganga yfir á fáum dögum, það eigi við um allar bólusetningar. Vegna bólusetningarátaks í heiminum hafi einnig verið fylgst með tilkynntum aukaverkunum af bólusetningum. Lítill hluti tilkynninga varði einstaklinga sem séu með langvinna sjúkdóma af ýmsum toga sem eigi það sameiginlegt að: hafa áhrif á nokkur líffærakerfi, koma tiltölulega seint fram (delayed onset), hafa sveiflukenndan sjúkdómsgang, sé erfitt að greina og þá geti einkennin verið misjöfn milli einstaklinga. Sambærilegar tilkynningar hafi einnig borist vegna annarra bóluefna og þetta sé því síður en svo bundið við Covid-19 bóluefni. Það hafi hins vegar ekki verið sýnt fram á orsakatengsl milli bólusetninga og þeirra einkenna sem lýst sé í framangreindum tilkynningum. Jafnframt sé í mörgum tilvikum um að ræða einkenni sem þegar hafi verið komin fram fyrir bólusetningu en tilkynning snúi að versnun þeirra. Ekki séu til rannsóknir eða önnur gögn sem bendi til þess að bóluefni gegn Covid-19 geti gert þá undirliggjandi sjúkdóma er kærandi hafi verið með verri.

Með vísan til framangreinds beri að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur meðal annars fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi glímt við fjölþættan heilsufarsvanda áður en að hann hafi verið bólusettur gegn Covid-19. Kærandi hafi meðal annars haft fyrri sögu um útbreitt verkjavandamál og brisbólgu. Kærandi hafi verið bólusettur með bóluefninu AstraZeneca, þann X og með bóluefninu Pfizer þann X.

Í kjölfar fyrri bólusetningarinnar hafi kærandi leitað á bráðamóttöku Landspítala, þann X, og lýst því að vera með stingi víða um líkama, verkjasting fyrir brjósti, vinstri fæti og vinstri úlnlið. Þá hafi hann verið með dofa tilfinningu yfir höfði og í báðum höndum. Hann hafi haft sögu um brisbólgu og hafi verið hræddur um að það væri að byrja aftur. Samkvæmt bráðamóttökuskrá, dags. X, hafi öll einkenni horfið við komu. Kærandi hafi lýst sambærilegum einkennum á heilsugæslu þann X. Skoðun á heilsugæslu hafi verið eðlileg. Fengin hafi verið blóðprufa sem hafi sýnt hækkun á amylas og lípas, svipað og hann hafi verið með áður en annað innan eðlilegra marka. Kærandi hafi leitað aftur á bráðamóttöku Landspítala þann X og lýst sínum týpísku brisverkjum. Hann hafi farið í blóðprufu á heilsugæslu deginum áður og hafi verið með hækkaðar lifraprufur og talið að um brisbólgu væri að ræða. Þann X, hafi kærandi mætt aftur á heilsugæslu og lýst slappleika, liðverkjum í fótum auk þess sem hann hafi verið andstuttur og þreklítill. Ákveðið hafi verið að fá tölvusneiðmynd af lungum sem hafi ekkert óeðlilegt sýnt.

Þann X, hafi kærandi leitað til meltingalæknis sem hafi haft hann til meðferðar á Landspítala vegna brisbólgu. Í göngudeildarskrá hafi verið ritað að hann væri með höfuðverk, stingi inn á milli, suð fyrir eyrum, verki yfir nýrnastað auk þess sem hann hafi misst kraft í höndum og fótum. Á heilsugæslu þann X hafi lítil breyting átt sér stað frá síðustu skoðun og hafi heimilislæknir ekki talið þörf á fleiri rannsóknum. Kærandi hafi leitað aftur á heilsugæslu þann X og lýst brunatilfinningu í höndum, kippi fyrir brjósti vinstra megin. Hann hafi farið í rannsóknir á bráðamóttöku Landspítala sem hafi verið eðlilegar, hafi fengið verki í liðamót handa, úlnliðs og olnboga sem hafi lagast en í stað þess hafi hann fengið meiri verki í ristarliði og ökkla. Þann X hafi kærandi leitað á Landspítala vegna óþæginda og verkja í báðum kálfum. Þá hafi hann verið í sjúkraþjálfun sem hafi litlu breytt. Einnig hafi hann lýst krónískum verkjum milli herðablaðanna auk þess sem hann hafi verið með verk upp í höfuð. Við skoðun á heilsugæslu þann X, hafi kærandi lýst mæði, höfuðverk sem kæmi og færi, verk í ökklum og krónískum verkjum milli herðablaðanna. Hann hafi fengið tilvísun til ofnæmislæknis.

Þann X, viku eftir seinni bólusetningu, hafi kærandi lýst því að hann hafi orðið betri af þreytu en hafi enn verið með útbreidda verki, svo sem liðverki í fótum, hnjám og á fleiri stöðum. Þá hafi hann fengið verki í framhandleggi og fengið brunatilfinningu, verk í sköflung, kviðverki og höfuðverk, auk þess sem hann hafi upplifðað verki í augntóftum. Fengin hafi verið blóðprufa sem hafi verið eðlileg, það hafi verið hækkun á lípasa en ekki öðrum lifraprufum og ekki hækkun á CRP. Heilsugæslulæknir  hafi hringt í kæranda þann 23. júlí 2021 og tjáð honum niðurstöður. Þá hafi hann verið aðeins betri af einkennum en fengið sára stingi efst í kviðinn í stuttan tíma sem hafi liðið hjá. Læknirinn hafi ráðlagt kæranda að vera á léttu fæði þar sem það virtist vera álag á brisinu. Kærandi hafi í kjölfarið verið sendur í ómun af lifur, gall og brisi sem hafi ekki sýnt gallsteina og ekki hafi verið að sjá breytingar á brisi.

Kærandi hafi verið í reglulegu eftirliti á heilsugæslu í kjölfarið auk þess sem hann hafi verið í háþrýstisúrefnismeðferð á Landspítala og hjá ónæmislækni á Landspítala.

Í ákvæði I. til bráðabirgða í lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu segi að þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 3. gr. laganna, sem kveði á um að bætur samkvæmt lögunum greiðist ekki ef rekja megi tjón til eiginleika lyfs sem notað sé við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð, greiðist bætur til þeirra sem gangist undir bólusetningu á Íslandi gegn COVID-19 sjúkdómnum á árunum 2020-2023 með bóluefni sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggi til vegna tjóns sem hljótist af eiginleikum bóluefnisins eða rangri meðhöndlun þess, þ.m.t. við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heilbrigðisstarfsmanns.

Í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu nr. 114/2022 segi að markmið bráðabirgðarákvæðisins sé að þeir sem kunni að hljóta líkamstjón vegna eiginleika bóluefnis við Covid-19 sjúkdómnum eða verði fyrir tjóni vegna rangrar meðhöndlunar þess, séu eins settir um rétt til bóta og þeir sem verði fyrir tjóni vegna meðferðar eða rannsóknar sem falli undir 2. gr. laga um sjúklingatryggingu. Lög um sjúklingatryggingu taki til tjónsatvika leiði könnun á málsatvikum í ljós að líklegra sé að tjón stafi af rannsókn eða meðferð en öðrum orsökum, t.d. fylgikvilla sem upp geti komið án þess að meðferð sjúklingsins hafi á það áhrif. Verði engu slegið föstu um orsök tjóns verði að vega og meta allar hugsanlegar orsakir. Verði niðurstaðan sú að eins líklegt sé að tjónið sé óháð meðferðinni sé bótaréttur ekki fyrir hendi.

Samkvæmt gögnum málsins eigi kærandi við fjölþættan heilsufarsvanda að etja. Umkvörtunarefni hans séu margvísleg en þegar farið sé yfir sjúkrasögu kæranda megi sjá að þau einkenni sem hann kvarti yfir í umsókn og telji að rekja megi til bólusetningar gegn Covid-19, þann X, hafi einhver komið fyrir síðustu fimm ár fyrir bólusetninguna, þ.e. verkir bakvið augu, verkir milli herðablaða og í ganglimum og dofi í útlimum og fingrum. Þau einkenni sem kærandi kvarti yfir í umsókn og hafi ekki komið fram í sjúkraskrá hans fyrir bólusetninguna séu, að mati Sjúkratrygginga Íslands, þess eðlis að meiri líkur en minni séu að þau séu ekki að rekja til bólusetningarinnar heldur sé um að ræða þekkta fylgikvilla þeirra sjúkdóma sem kærandi glími við og hafi þegar verið greindur með fyrir umrædda bólusetningu, til að mynda briskirtilsbólgu, verkjaheilkennis eftir bílslys, geðrænna sjúkdóma og lyfja sem kærandi hafi tekið vegna þessa. Að mati Sjúkratrygginga Íslands sé ekki að sjá af gögnum málsins að kærandi hafi orðið fyrir heilsubresti vegna bólusetningarinnar, sbr. upplýsingar um aukaverkanir bóluefnisins.

Að mati Sjúkratrygginga Íslands sé af gögnum málsins ekki hægt að staðfesta að meiri líkur en minni séu á því að rekja megi einkenni kæranda til bólusetningar þann X en ekki til grunnástands kæranda. Sjúklingatryggingu sé ekki ætlað að bæta tjón sem sé afleiðing grunnsjúkdóms og því sé skilyrði bóta úr sjúklingatryggingu að orsakatengsl séu á milli heilsutjóns kæranda og bólusetningarinnar þann X. Að mati Sjúkratrygginga Íslands sé það orsakasamband ekki til staðar í máli kæranda og verði því ekki talið að þau einkenni sem hann kenni nú megi rekja til áðurnefndrar bólusetningar heldur verði þau rakin til grunnástands hans.

Með vísan til þess er að framan greini og fyrirliggjandi gagna málsins sé það mat Sjúkratrygginga Íslands að skilyrði þágildandi bráðabirgðaákvæðis I. í lögum um sjúklingatryggingu séu ekki uppfyllt. Ekki sé því heimilt að verða við umsókn kæranda um bætur úr sjúklingatryggingu.

Í athugasemdum Sjúkratrygginga Íslands er tekið fram að gagnaöflun sé lokið í málinu af hálfu stofnunarinnar. Meðal gagna málsins séu sjúkraskrárgögn frá Landspítala sem nái fram til mars 2025 og innihaldi meðal annars færslur frá þeim lækni sem nefndur sé í athugasemdum kæranda.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar synjun Sjúkratrygginga Íslands um bætur á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Kærandi telur að afleiðingar bólusetningar gegn Covid-19 þann X sem framkvæmd hafi verið á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins séu bótaskyldar samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu.

Samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 greiðast bætur samkvæmt lögunum ekki ef rekja má tjón til eiginleika lyfs sem notað er við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð nema þegar um er að ræða klínískar lyfjarannsóknir á mönnum, án bakhjarls, samkvæmt staðfestingu viðkomandi heilbrigðisstofnunar. Í bráðabirgðaákvæði með lögunum er veitt undanþága frá framangreindri 3. mgr. 3. gr. vegna Covid-19 bólusetningar, en ákvæðið er svohljóðandi:

„Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 3. gr. greiðast bætur til þeirra sem gangast undir bólusetningu á Íslandi gegn COVID-19-sjúkdómnum á árunum 2020–2023 með bóluefni sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggja til vegna tjóns sem hlýst af eiginleikum bóluefnisins eða rangri meðhöndlun þess, þ.m.t. við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heilbrigðisstarfsmanns. Sjúkratryggingastofnunin ber bótaábyrgð samkvæmt ákvæði þessu, sbr. 9. gr.“

Í frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu segir að eðlilegast, og í samræmi við jafnræðisreglur, þyki að þeir sem kunni að hljóta líkamstjón vegna eiginleika bóluefnis við Covid-19 sjúkdómnum eða verði fyrir tjóni vegna rangrar meðhöndlunar þess, þar með talið við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu séu eins settir um rétt til bóta og þeir sem verði fyrir tjóni vegna meðferðar eða rannsóknar sem falli undir 2. gr. laga um sjúklingatryggingu. Það feli í sér vægara mat á orsakatengslum en leiði af almennum reglum skaðabótaréttarins og vægara mat á orsakatengslum en leiði af almennum reglum, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.

Þá segir í frumvarpinu að lagt sé til að bætur greiðist vegna tjóns sem hljótist af eiginleikum bóluefnis eða rangrar meðhöndlunar þess, þar með talið við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heilbrigðisstarfsmanns. Notast sé við orðalagið eiginleika bóluefnis þar sem það orðalag sé að finna í gildandi 3. mgr. 3. gr. laganna og hafi ákveðin framkvæmd skapast við túlkun þess, sem ætla megi að hægt verði að styðjast við, við framkvæmd nýs bráðabirgðaákvæðis. Undir eiginleika lyfs falli meðal annars aukaverkanir en aukaverkun hafi verið skilgreind sem viðbrögð við lyfi sem séu skaðleg og ótilætluð, sbr. reglugerð nr. 545/2018 um markaðsleyfi sérlyfja, merkingar þeirra og fylgiseðla.

Ágreiningur málsins lýtur að því hvort kærandi eigi rétt til bóta úr sjúklingatryggingu á grundvelli bráðabirgðaákvæðis I. laga um sjúklingatryggingu. Kærandi telur að ýmis einkenni hans sé að rekja til bólusetningar við Covid-19 í maí 2021. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I. laganna skal greiða bætur til þeirra sem gangast undir bólusetningu á Íslandi gegn Covid-19 sjúkdómnum á árunum 2020 til 2023 með bóluefni sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggja til vegna tjóns sem hlýst af eiginleikum bóluefnisins eða rangri meðhöndlun þess, þar með talið við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heilbrigðisstarfsmanns.

Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, tekur sjálfstæða afstöðu til bótaskyldu í málinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna sem nefndin telur nægjanleg. Fyrir liggur að kærandi var með langa sögu um misnotkun áfengis og hafði af þeim völdum fengið langvinna brisbólgu. Einnig er saga um aðra geðsjúkdóma sem kærandi hefur sótt meðferð við. Þá lenti kærandi í umferðarslysi 18 ára og hefur verið með erfiða verki í kjölfar þess. Ljóst er að framangreind veikindi hafa verið kæranda erfið og verður að telja að meiri líkur en minni séu á því að einkenni kæranda nú megi rekja til þeirra. Þá verður af framlögðum gögnum og því sem lýst er hér að framan ekki ráðið að sérstök versnun hafi orðið á heilsufari kæranda sem tímanlega er tengjanleg við bólusetningar hans við Covid-19 sjúkdómnum. Það er því niðurstaða úrskurðarnefndar að ekki séu orsakatengsl á milli bólusetningarinnar og einkenna kæranda.

Með vísan til þess, sem rakið er hér að framan, er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að skilyrði bótaskyldu samkvæmt þágildandi bráðabirgðaákvæði I. með lögum um sjúklingatryggingu séu ekki uppfyllt í tilviki kæranda. Synjun Sjúkratrygginga Íslands á bótaskyldu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja A, um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson