Mál nr. 218/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 218/2026
Miðvikudaginn 12. ágúst 2026
A gegn Sjúkratryggingum Íslands
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.
Með kæru, sem barst 17. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 17. mars 2026 um bætur úr sjúklingatryggingu.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um bætur úr sjúklingatryggingu með umsókn, dags. 30. nóvember 2022, vegna afleiðinga meðferðar sem hófst á Landspítala þann X. Með ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands, dags. 17. mars 2026, var atvikið fellt undir 4. tölul. 2. gr. þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu á þeirri forsendu að kærandi hefði orðið fyrir alvarlegum og sjaldgæfum fylgikvilla aðgerðar þann X og var bótaskylda viðurkennd.
Samkvæmt niðurstöðu stofnunarinnar var stöðugleikapunktur ákveðinn X. Tímabil þjáningabóta var ákveðið 7 dagar rúmliggjandi og 36 dagar veikur án þess að vera rúmliggjandi, en tímabundið atvinnutjón, varanlegur miski og varanleg örorka var metin engin.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. mars 2026. Með bréfi, dags. 18. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands ásamt gögnum málsins. Greinargerð Sjúkratrygginga Íslands barst með bréfi, dags. 25. mars 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. apríl 2026, var greinargerð Sjúkratrygginga Íslands send lögmanni kæranda til kynningar. Engar athugasemdir bárust.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi óskar þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi að hluta og breytt þannig að viðurkennt verði að tjón kæranda sé ekki einvörðungu að rekja til fylgikvilla aðgerðar þann X heldur einnig til rangrar eða ófullnægjandi greiningar og meðferðar á árunum þar á undan, að bótaskylda verði metin einnig samkvæmt 1. og/eða 2. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu nr. 111/2000, að heilsutjón kæranda verði endurmetið með tilliti til raunverulegra afleiðinga, þar með talið lífsgæðaskerðingar og mögulegs miskatjóns, að tímabil þjáningabóta verði framlengt verulega umfram það sem ákveðið hafi verið, að atvinnutjón verði endurmetið með hliðsjón af raunverulegri skerðingu á starfsgetu og að bótafjárhæð verði endurákvörðuð til verulegrar hækkunar.
Í kæru er greint frá því að kærandi hafi gengist undir ósæðarlokuskipti árið X og hafi í kjölfarið verið í eftirliti. Þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir um versnandi heilsu, þar á meðal mæði, úthaldsleysi og bjúgsöfnun, hafi kæranda hvorki verið veitt meðferð né framkvæmdar rannsóknir sem samrýmdust alvarleika einkenna. Árið X hafi komið í ljós að lífræna lokan væri verulega biluð. Við enduraðgerð hafi komið fram að lokan hafi í reynd verið óstarfhæf. Í kjölfarið hafi heilsufar kæranda batnað verulega, sem sé sterkt vísbendingaratriði um orsakasamband. Í kjölfar aðgerðar þann X hafi kærandi orðið fyrir alvarlegum fylgikvilla (blæðingu í gollurshús), sem Sjúkratryggingar Íslands hafi viðurkennt bótaskyldan.
Í hinni kærðu ákvörðun sé bótaskylda takmörkuð við fylgikvilla aðgerðar árið X. Sú afmörkun sé of þröng og ekki í samræmi við lög um sjúklingatryggingu. Kærandi hafi frá upphafi lýst viðvarandi og versnandi einkennum sem hafi að lokum leitt til alvarlegrar hjartabilunar. Sú staðreynd að einkenni hafi horfið í kjölfar enduraðgerðar bendi ótvírætt til þess að orsök þeirra hafi legið í starfsemi lokunnar. Þessi atriði bendi til vangreiningar eða ófullnægjandi eftirfylgni sem falli undir 1. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu.
Sjúkratryggingar Íslands byggi niðurstöðu sína á almennum tölfræðilegum forsendum um endingartíma lífrænna loka. Slík almenn viðmið geti ekki komið í stað einstaklingsbundins mats. Fyrir liggi að lokan hafi verið óstarfhæf við aðgerð, sem sé verulegt frávik frá eðlilegum væntingum. Af þessu leiði að skilyrði bótaskyldu samkvæmt 2. tölul. 2. gr. laga kunni að vera uppfyllt.
Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga beri stjórnvaldi að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin. Í máli þessu liggi ekki fyrir að fullnægjandi rannsókn hafi farið fram á þróun einkenna kæranda yfir tíma, tengsl einkenna við lokubilun og raunverulegt ástand lokunnar fyrir enduraðgerð. Þessi annmarki hafi veruleg áhrif á niðurstöðu málsins.
Í hinni kærðu ákvörðun sé komist að þeirri niðurstöðu að kærandi hafi ekki orðið fyrir varanlegu tjóni og að þjáningabætur skuli takmarkast við 43 daga. Slík niðurstaða endurspegli ekki raunverulegt tjón kæranda. Fyrir liggi að kærandi hafi búið við verulega skerta heilsu um langt skeið og hafi orðið fyrir verulegri röskun á lífi sínu. Við mat á bótarétti beri einnig að líta til miskabóta samkvæmt skaðabótalögum, enda sé um að ræða verulega skerðingu á lífsgæðum.
Sjúkratryggingar Íslands byggi á því að kærandi hafi haldið launum og því ekki orðið fyrir atvinnutjóni. Slíkt mat sé ekki í samræmi við viðurkennda skaðabótaréttarlega nálgun. Atvinnutjón taki einnig til skertrar starfsgetu, minni afkasta og mögulegs framtíðartaps.
Samkvæmt 22. gr. stjórnsýslulaga skulu ákvarðanir vera rökstuddar. Í hinni kærðu ákvörðun skorti fullnægjandi rökstuðning fyrir því hvers vegna frásögn kæranda sé ekki lögð til grundvallar, hvers vegna langvarandi einkenni séu ekki talin tengjast lokubilun og hvers vegna bótaskylda sé takmörkuð við afmarkaðan fylgikvilla.
Með vísan til framangreinds sé ljóst að hin kærða ákvörðun sé haldin verulegum efnis- og formannmörkum. Af þeim sökum sé þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi að hluta og bótaréttur kæranda metinn á ný með hliðsjón af heildartjóni og réttum lagagrundvelli.
III. Sjónarmið Sjúkratrygginga Íslands
Í greinargerð Sjúkratrygginga Íslands segir að kærandi hafi sótt um bætur úr sjúklingatryggingu samkvæmt þágildandi lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu með umsókn sem hafi borist Sjúkratryggingum Íslands þann 30. nóvember 2022. Sótt hafi verið um bætur vegna afleiðinga meðferðar sem hafi farið fram á Landspítala og hafist þann X
Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 17. mars 2026, hafi umsókn kæranda um bætur úr sjúklingatryggingu verið synjað að hluta á þeim grundvelli að ekki væri um að ræða bótaskylt atvik á grundvelli 1. - 3. tölul. 2. gr. þágildandi laga um sjúklingatryggingu. Bótaskylda hafi þó verið samþykkt á grundvelli 4. tölul. 2. gr. laganna.
Skömmu eftir lokuaðgerð sem kærandi hafi gengist undir á Landspítala þann X hafi verið ljóst að blætt hefði inn í gollurshús (tamponade), sem hafi leitt til endurinnlagnar, þann X þar sem blæðing hafi verið tæmd út gollurshúsinu með ástungu og dreni. Að mati Sjúkratrygginga Íslands hafi þannig verið ljóst að kærandi hafi orðið fyrir alvarlegum og sjaldgæfum fylgikvilla aðgerðarinnar þann X. Kærandi hafi ekki verið talinn hafa orðið fyrir varanlegu tjóni af völdum sjúklingatryggingaratburðar en að mati Sjúkratrygginga Íslands hafi þó verið ljóst að hann hafði hlotið tímabundnar afleiðingar. Tímabil þjáningabóta hafi verið ákveðið 43 dagar, þar af sjö dagar rúmliggjandi og 36 dagar, án rúmlegu. Ekki hafi komið til greiðslu bóta fyrir tímabundið atvinnutjón þar sem ekki hafi verið að sjá að kærandi hafði orðið fyrir tekjutapi vegna óvinnufærni á tímabilinu.
Í ljósi þess að ekki verði annað séð en að afstaða Sjúkratrygginga Íslands til kæruefnis hafi nú þegar komið fram í ákvörðun stofnunarinnar frá 17. mars 202 þyki ekki efni til að svara kæru efnislega og vísi Sjúkratryggingar Íslands til þeirrar umfjöllunar sem fram komi í gögnum málsins. Engin ný gögn hafi verið lögð fram sem taka þurfi afstöðu til. Í hinni kærðu ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands komi fram:
„Málavextir
Samkvæmt sjúkraskrárgögnum málsins hafði tjónþoli sögu um hjartaóhljóð frá X ára aldri og var hann greindur með bicuspid ósæðaloku. Hann var í eftirliti hjá lyf- og hjartalækni á B en var einkennalaus framan af, hafði fullt þrek og var í íþróttum.
Í eftirliti hjá lyf- og hjartalækni í B, dags. X var ritað að versnun væri á aorta stenosu, hámarks gradient hafði aukist frá 45 upp í 71 mmHg og lokuflatamál úr 1.3 og niður í 0.9 cm2 . Fram kom að tjónþoli væri þó nánast einkennalaus en stefndi á lokuaðgerð. Aðgerðin var að lokum framkvæmd þann X. Tjónþoli fékk lífræna gerviloku og í aðgerðarlýsingu kom fram að aðgerð hefði gengið vel, lokan starfaði eðlilega og ekki var sýnilegur leki. Í nótu hjartalæknis, dags. X var ritað að tjónþoli væri klínískt góður og væri farinn að vinna. Þá sagði jafnframt í nótu frá B, dags. X að gengið hefði vel, líðan tjónþola væri góð. Tjónþoli var áfram í eftirliti og í sérfræðinótu, dags. X var m.a. ritað að tjónþoli væri klínískt góður og að hann hefði engin óþægindi frá hjarta. Aftur þann X var ritað að vel gengi með lífrænu aortagervilokuna. Þann X var gerð ómun af hjarta og var niðurstaða rannsóknarinnar „Lífræn aorta gerviloka sem er með aðeins sclerosu breytingar og vægt aukinn gradient og smá lega en starfar annars þokkalega. Vi. Slegill er ekki afgerandi skertur. Lokan er síðan X. Klínískt kontról og síðan aftur ómskoðun ef þörf.“ Í eftirliti þann X var svo ritað „Hefur gengið ágætlega nema að hann var á sínum tíma of hár í blóðþrýstingi, aðallega út af lakkrísáti en er nú hættur að stunda slíkt.“. Í eftirliti þann X kvartaði tjónþoli yfir mæði og úthaldsleysi sem fór versnandi og þann X var tjónþoli lagður inn á hjartagátt LSH og var hann með verulega hjartabilun sem var talin vera vegna ósæðalokuleka í lífrænu lokunni sem hann hafði fengið. Í framhaldi var ákveðið að taka tjónþola til aðgerðar.
Þann X var skipt um ósæðaloku á ný. Í aðgerðinni var eldri lokan fjarlægð og ný saumuð inn sem sat vel. Gangur eftir aðgerð var góður og tjónþoli útskrifaðist við góða líðan þann X.
Tjónþoli fékk þó blæðingu í gollurshús skömmu eftir aðgerðina sem leiddi til endurinnlagnar, þann X þar sem einn og hálfur lítri af gömlu blóði var drenað út úr gollurshúsinu. Eftir það fór tjónþola hægt og bítandi fram og var hann farinn að vinna aftur í X. Ritað var í sjúkraskrárnótu þann X að þrek væri miklu betra og að tjónþoli gæti gengið án vandræða og án einkenna. Í göngudeildarskrá, dags. X kom svo fram að tjónþoli væri orðinn mjög góður af mæðinni, eftir seinni lokuaðgerðina. Fram kom að hann hafði farið í kransæðamyndatöku eftir aðgerðina sem hafi komið vel út. Þá segir að hann hafi fengið óreglulegan hjartslátt eftir aðgerðina (post op AFib) og að hann hafi verið á betablokkerum síðan, bæði Eliquis og Seloke, og að gengið hefði vel og hann verið í sinus síðan.
Forsendur niðurstöðu
Ljóst er samkvæmt gögnum málsins að tjónþoli fékk lífræna gerviloku þann X. Samkvæmt aðgerðarlýsingu gekk aðgerðin vel, lokan starfaði eðlilega og ekki var sýnilegur leki. Fyrir hjartalokuaðgerðir er aflað upplýsts samþykkis sjúklings og farið yfir ýmsa þætti, þar á meðal líftíma lokunnar, áhættu á hrörnun lokunnar með tímanum, og mögulega þörf fyrir enduraðgerð í framtíðinni. Í umsókn kemur fram að tjónþoli telji að hann hafi fengið gallaða loku árið X og þess vegna hafi hann þurft að gangast undir enduraðgerð níu árum síðar. Ljóst er að almennur líftími á lífrænum svínalokum er um 10 - 15 ár, en getur verið styttri en einnig lengri. Vissulega var endingartími lokunnar hjá tjónþola í styttra lagi en ýmsir þættir hafa áhrif endingartíma lokunnar. Þannig er endingartími að öðru jöfnu styttri hjá ungum einstaklingum, sér í lagi ef fleiri einstaklingsbundnir þættir eru til staðar. Í tilfelli tjónþola voru ýmsir þættir sem höfðu þar áhrif, svo sem tiltölulega ungur aldur tjónþola, háþrýstingur og efnaskiptaþættir. Þegar á heildina er litið, m.t.t. heilsufarssögu tjónþola með hliðsjón af lokusjúkdómi hans og öðrum þáttum, var enduraðgerð innan þess tíma sem búast mátti við, samkvæmt tilgreindum rannsóknum. Að öllu ofangreindu sögðu verður ekki talið að lokan hafi verið gölluð, sbr. 2. tl. 2. gr. þágildandi laga um sjúklingatryggingu. Þá verður heldur ekki annað séð en að sú meðferð sem tjónþoli hlaut á LSH á árunum X til X hafi verið hagað eins vel og unnt var og í samræmi við almennt viðurkennda og gagnreynda læknisfræði. Þá fékk tjónþoli viðeigandi eftirfylgd og rannsóknir þegar á hefur þurft að halda. Með vísan til þessa eru skilyrði 1. tl. 2. gr. þágildandi laga ekki uppfyllt.
Ljóst er þó að tjónþoli fékk blæðingu í gollurshús (tamponade) skömmu eftir lokuaðgerðina þann X sem leiddi til endurinnlagnar, þann X þar sem blæðing var tæmd út gollurshúsinu með ástungu og dreni. Að mati Sjúkratrygginga eru meiri líkur en minni á því að götun hafi orðið á slegilvegg í aðgerðinni sem leiddi svo til blæðingar í gollurshús en slíkt gerist í um það bil 1% ísetningaraðgerða. Blæðinguna þurfti svo að tæma með aðgerð. Að mati Sjúkratrygginga er því ljóst að tjónþoli varð fyrir alvarlegum og sjaldgæfum fylgikvilla aðgerðarinnar þann X. Í þessu felst hinn eiginlegi sjúklingatryggingaratburður, skv. 4. tl. 2. gr. þágildandi laga um sjúklingatryggingu og er tjónsdagsetning ákveðin X.
Núverandi ástand og heilsufarssaga
Samkvæmt sjúkraskrárgögnum sem liggja fyrir í málinu kemur fram að tjónþoli hafi verið með sögu um hjartaóhljóð frá X ára aldri og greindur með bicuspid loku, hann var einkennalaus framan af en í X var hann með vaxandi þrengsl í ósæð (aorta stenosis) og fór í aðgerð X þar sem hann fékk ígrædda lífræna gerviloku. Aðgerðin gekk vel og starfaði lokan eðlilega samkvæmt hjartaómskoðun. Í X var svo skipt um ósæðaloku á ný sem gekk eftir atvikum vel, þó þannig að tjónþoli fékk blæðingu í gollurshús skömmu síðar sem leiddi til innlagnar og þurfti að tæma út. Samkvæmt sjúkraskrárgögnum málsins fór tjónþola hægt og bítandi fram og í X hafði hann endurheimt þrek sitt.
Að mati Sjúkratrygginga varð tjónþoli þannig ekki fyrir varanlegum skaða af völdum sjúklingatryggingaratburðar. Um er að ræða blæðingu í gollurshús í kjölfar lokuaðgerðar, sem framkvæmd var þann X, sem þurfti að tæma út með ástungu og dreni. Strax eftir var talsverður léttir á einkennum tjónþola en ljóst er að hann varð fyrir tímabundnum afleiðingum vegna þessa.
Verður heilsutjón metið með eftirfarandi hætti:
Stöðugleikapunktur
Samkvæmt skaðabótalögum er unnt að meta varanlegar afleiðingar líkamstjóns á því tímamarki þegar heilsufar tjónþola er orðið stöðugt. Ákvæðið miðar við svonefndan stöðugleikapunkt sem er læknisfræðilegt mat. Við matið er tekið tillit til þeirrar læknismeðferðar eða endurhæfingar sem tjónþoli hefur þegar undirgengist.
Að virtu eðli sjúklingatryggingaratburðar og þeirrar meðferðar sem tjónþoli hlaut telst heilsufar hans í skilningi skaðabótalaga hafa verið stöðugt þann X þegar ritað var í sjúkraskrá að þrek tjónþola var miklu betra og hann gat gengið án vandræða og án einkenna. Stöðugleikapunkti var því náð þann X. Tímabil tímabundins atvinnutjóns – 2. gr. skaðabótalaga
Tímabil tímabundins atvinnutjóns, 2. gr. skaðabótalaga og tímabil þjáningabóta, 3. gr. skaðabótalaga
Í 2. gr. skaðabótalaga segir að bætur fyrir atvinnutjón skuli ákveða fyrir tímann frá því að tjón varð þangað til tjónþoli getur hafið vinnu að nýju eða þar til heilsufar er orðið stöðugt. Við mat á tímabili tímabundins atvinnutjóns þarf að draga frá áætlað veikindatímabil vegna grunnsjúkdóms, þ.e. hjartasjúkdóms tjónþola, við það tímabil sem rakið verður til hins eiginlega sjúklingatryggingaratburðar, fylgikvilla aðgerðarinnar þann X.
Þá ræðst réttur til þjáningabóta af 3. gr. sömu laga. Í ákvæðinu segir að greiða skuli þjáningabætur frá þeim tíma, sem tjón varð og þar til heilsufar tjónþola er orðið stöðugt. Það er þó áskilnaður um að tjónþoli hafi verið veikur í skilningi ákvæðisins, ýmist rúmliggjandi eða ekki. Við mat á tímabilinu þarf að draga frá áætlað veikindatímabil vegna grunnsjúkdóms, við það tímabil sem rakið verður til hins eiginlega sjúklingatryggingaratburðar. Þá miðar tímabil þjáningabóta við tímabil óvinnufærni í skilningi skaðabótalaga nema þegar aðstæður eru sérstakar.
Almennt er batatími eftir opna hjartaaðgerð, eins og lokuaðgerð, um fjórir til sex mánuðir. Tjónþoli gekkst undir lokuaðgerð þann X og útskrifaðist heim þann X. Alla jafnan fara sjúklingar fyrst í þjálfun á LSH í nokkrar vikur eða mánuði eftir lokuaðgerðir og í kjölfarið á Reykjalund í endurhæfingu og svo loks á endurhæfingarstöð fyrir hjarta- og lungnasjúklinga. Vegna sjúklingatryggingaratviks, þ.e. fylgikvilla aðgerðarinnar þann X gat tjónþoli ekki hafið sína endurhæfingu eftir lokuaðgerðina fyrr en sárið í hjartanu hafði gróið og blóðið úr gollurshúsinu fjarlægt.
Samkvæmt sjúkraskrárnótu, dags. X var tjónþoli farinn að mæta í vinnuna aftur þá og greindi hann einnig frá því að hann væri betri með hverjum degi. Að öllu virtu telst tímabili þjáningabóta vegna hins eiginlega sjúklingatryggingaratburðar hafa verið frá tjónsdegi þann X til þess dags, þ.e. X eða 43 dagar. Tjónþoli telst hafa verið veikur og rúmfastur í sjö daga er hann lá inni á LSH vegna blæðingarinnar í gollurshús og aðgerðarinnar í kjölfarið (X - X) en veikur án þess að vera rúmfastur í 36 daga.
Samkvæmt gögnum Ríkisskattstjóra varð tjónþoli ekki fyrir tekjutapi vegna óvinnufærni í tengslum við sjúklingatryggingaratburðinn, þar sem hann hélt launum á ofangreindu tímabili. Þar af leiðandi er ljóst, að hann hefur ekki orðið fyrir tekjutapi vegna missi launatekna vegna sjúklingatryggingaratburðar og ekki kemur til greiðslu bóta fyrir tímabundið atvinnutjón.“
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar ágreining um bætur á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna afleiðinga sjúklingatryggingaratviks sem kærandi varð fyrir vegna afleiðinga meðferðar sem hófst á Landspítalanum þann X.
Kærandi byggir á því að meðferð málsins hjá Sjúkratryggingum Íslands hafi brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 22. gr. laganna um rökstuðningsskyldu stjórnvalda.
Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Af þessu leiðir að þegar sótt er um tiltekin réttindi hjá stjórnvaldi verður það að meta hvort þær upplýsingar sem liggi fyrir séu fullnægjandi til að hægt sé að taka ákvörðun í málinu eða hvort ástæða sé til að kalla eftir frekari upplýsingum eða skýringum og leiðbeina umsækjanda hverjar séu afleiðingar þess að nauðsynleg gögn berist ekki. Samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga getur aðili máls krafist þess að stjórnvald rökstyðji ákvörðun sína skriflega hafi slíkur rökstuðningur ekki fylgt ákvörðuninni þegar hún var tilkynnt. Beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðun skal bera fram innan 14 daga frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðunina og skal stjórnvald svara henni innan 14 daga frá því að hún barst. Í 22. gr. laganna er síðan fjallað um efni rökstuðnings.
Sjúkratryggingar Íslands leggja mat á það í hverju máli fyrir sig hvort þau gögn sem stofnunin hefur undir höndum séu nægjanleg svo að unnt sé að taka ákvörðun um rétt til bóta úr sjúklingatryggingu. Í tilviki kæranda öfluðu Sjúkratryggingar Íslands meðal annars gagna frá meðferðaraðilum og sérfræðiálits hjá sérfræðingi í lyf- og öldrunarlækningum. Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, hefur farið yfir gögn málsins og telur þau nægjanleg til að geta lagt mat á bótaskyldu úr sjúklingatryggingu.
Með vísan til framangreinds telur úrskurðarnefnd velferðarmála að málið hafi verið nægjanlega upplýst samkvæmt rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá telur úrskurðarnefndin ekkert benda til þess að rökstuðningsskylda stjórnsýslulaga hafi verið brotin þar sem ekki verður ráðið af gögnum málsins að kærandi hafi óskað eftir rökstuðningi fyrir ákvörðuninni frá Sjúkratryggingum Íslands.
Úrskurðarnefnd velferðarmála telur því ekki tilefni til að gera athugasemdir við málsmeðferð Sjúkratrygginga Íslands og verður ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands ekki felld úr gildi á þeirri forsendu að málsmeðferðin hafi brotið í bága við ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Í 2. gr. laga um sjúklingatryggingu segir um tjónsatvik sem lögin taka til:
„Bætur skal greiða án tillits til þess hvort einhver ber skaðabótaábyrgð samkvæmt reglum skaðabótaréttarins, enda megi að öllum líkindum rekja tjónið til einhvers eftirtalinna atvika:
1. Ætla má að komast hefði mátt hjá tjóni ef rannsókn eða meðferð við þær aðstæður sem um ræðir hefði verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði.
2. Tjón hlýst af bilun eða galla í tæki, áhöldum eða öðrum búnaði sem notaður er við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð.
3. Mat sem síðar er gert leiðir í ljós að komast hefði mátt hjá tjóni með því að beita annarri meðferðaraðferð eða -tækni sem völ var á og hefði frá læknisfræðilegu sjónarmiði gert sama gagn við meðferð sjúklings.
4. Tjón hlýst af meðferð eða rannsókn, þ.m.t. aðgerð, sem ætlað er að greina sjúkdóm og tjónið er af sýkingu eða öðrum fylgikvilla sem er meiri en svo að sanngjarnt sé að sjúklingur þoli það bótalaust. Annars vegar skal líta til þess hve tjón er mikið og hins vegar til sjúkdóms og heilsufars sjúklings að öðru leyti. Þá skal taka mið af því hvort algengt er að tjón verði af meðferð eins og þeirri sem sjúklingur gekkst undir og hvort eða að hve miklu leyti gera mátti ráð fyrir að hætta væri á slíku tjóni.“
Í athugasemdum við 2. gr. í frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu segir að það sé skilyrði bótaskyldu að tjón tengist rannsókn eða sjúkdómsmeðferð, en verði ekki rakið til skaðlegra afleiðinga og tjóns sem hljótist af sjúkdómi sem sjúklingur sé haldinn fyrir. Afleiðingar sem raktar verða til sjúkdóms sjálfs eru þannig ekki bótaskyldar, en hins vegar getur tjón verið bótaskylt ef það er fyrst og fremst rakið til mistaka eða dráttar á greiningu eða við meðferð. Í athugasemdunum segir að bæta skuli tjón sjúklings ef könnun og mat á málsatvikum leiði í ljós að líklegra sé að tjónið stafi af til dæmis rangri meðferð en öðrum orsökum. Sé niðurstaðan hins vegar sú að eins líklegt sé að tjónið sé óháð meðferðinni sé bótaréttur ekki fyrir hendi.
Ákvæði 1. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu lýtur að því hvort rétt hafi verið staðið að læknismeðferð. Ákvæðið tekur til allra mistaka sem verða við rannsókn, meðferð og svo framvegis. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu segir að orðið mistök sé hér notað í mun víðtækari merkingu en almennt tíðkist í lögfræði. Ekki skipti því máli hvernig mistökin séu, átt sé meðal annars við hvers konar ranga meðferð, hvort sem orsök hennar sé röng sjúkdómsgreining sem rekja megi til atriða sem falli undir 1. eða 2. tölul. 2. gr. eða annað sem verði til þess að annaðhvort sé beitt meðferð sem eigi ekki læknisfræðilega rétt á sér eða látið sé hjá líða að grípa til meðferðar sem við eigi. Í athugasemdunum segir enn frekar að samkvæmt 1. tölul. sé það ekki skilyrði að unnt sé að telja að læknir eða annar starfsmaður sem hlut hafi átt að máli hafi við meðferð sjúklings gerst sekur um handvömm eða vanrækslu sem komast hefði mátt hjá með meiri aðgæslu.
Samkvæmt 2. gr. laga um sjúklingatryggingu skal greiða bætur, enda megi að öllum líkindum rekja tjón til nánar tilgreindra tilvika sem meðal annars eru talin röng meðferð. Þetta felur í sér líkindareglu, þannig að séu meiri líkur á því en minni að tjón kæranda verði rakið til dæmis til mistaka skuli að öðrum skilyrðum uppfylltum greiða bætur samkvæmt lögunum.
Sjúkratryggingar Íslands hafa viðurkennt bótaskyldu á grundvelli 4. tölul. 2. gr. laganna vegna alvarlegs og sjaldgæfs fylgikvilla aðgerðar þann X. Kærandi telur að einnig eigi að meta honum bætur á grundvelli 1. og/eða 2. tölul. 2. gr. laganna þar sem ófullnægjandi eftirfylgni hafi verið með ósæðarloku, sem hafi verið óstarfhæf við aðgerð.
Í sérfræðiáliti C, dags. 29. maí 2025, segir svo:
„Málavextir samkvæmt gögnum:
Fyrir liggja sjúkraskrárgögn úr Sögu tjónþola frá tímabilinu frá 01.01.2012 til 30.05.2024.
Vottorð D hjartalæknis frá X vegna sjúkdómatryggingar tjónþola. Ég hef einungis séð A í tvígang, fyrst X þá tæplega X ára gamall. Hann kom til mín vegna hjartaóhljóðs en það óhljóð mun hafa greinst þegar hann var X ára gamall. X leitar hann síðan til E og er hans álit að annað hvort sé um að ræða functionalt óhljóð eða hugsanlega bicuspid ósæðaloku. Segir hann að eðlilegt sé að meta þetta aftur eftir 2-3 ár. Sé ekki að hann hafi leitað til annars hjartalæknis fyrr en hann kom til mín X. Hann segir að hjartaóhljóð hafi greinst þegar hann var X ára. í upphafi stóð til að gera hjartaþræðingu en ekkert varð úr því. Við komu til mín er hann algjörlega einkennalaus frá hjarta. Var í íþróttum og hafði fullt þrek á við hvern sem var. Skoðun: Hann er hraustlegur að sjá. Tensio er 160/100 liggjandi, 140/100 standandi. það er reglulegur rhythmi, S1 og S2 eðlilegir. Það er svokallað ejections click á undan tígullaga systolisku óhljóði 3/6 sem leiðir upp í háls. 2. hjartatónn eðlilegur. Lungnahlustun eðlileg.
Á þeim tíma var eingöngu M-mode echo og segir hér í umsögn að echo samrýmist congenit aortustenosu. Þegar ég gerði þá rannsókn mældi ég blóðþrýsting sem var 150/95. Hann kom ekki til mín aftur en þess skal getið að þeir sjúklingar sem að eru með meðfædda hjartasjúkdóma koma gjarnan til mín á 1-2 ára fresti og oftar ef að einhver einkenni koma fram en ég hef sem sagt ekki séð hann frá X. En eins og kemur fram í gögnum hér á B þá hefur hann verið í eftirliti hjá F.
NótaF þann X:
Versnun á aorta stenosu, hámarks gradient aukist frá 45 upp í 71 mmHg og lokuflatamál úr 1.3 og niður í 0.9 cm2. Talsvert stór maður þó hann hafi grennt sig mikið, er nánast einkennalaus. Stefnir þó í lokuaðgerð, mun taka tíma að bíða eftir kransæðamyndatöku og lokuaðgerð svo ég skrifa beiðni á biðlistastjóra um kransæðamyndatöku og sjáum svo tímasetningu á lokuaðgerð síðar.
Lega á hjartaskurðdeild þann X-X:
Þá er tjónþoli X ára og tekinn til ósæðalokuskipta. Þar segir að það hafi verið nokkur ósæðalokuþrengsli tveimur árum áður og farinn að finna fyrir vaxandi mæði við áreynslu. Þá var hann í yfirþyngd en nú hafi honum snarvernsað með þrýstingsfall yfir loku 71 mm Hg og því hafi hann verið tekinn til aðgerðar. Í aðgerð kom í ljós að um tveggja blöðku loku var að ræða sem var samvaxin að hluta og verulega stíf. Var lokan fjarlægð og í staðinn sett grindarlaus svínaloka. Lagðist hún vel og voru blöðkuhreyfingar eðlilegar fríar við lokun. Við lok aðgerðar starfar lokan eðlilega og ekki sýnilegur leki. Fyrir útskrift sést 61 mm Hg þrýstingsfall yfir loku. Sagt er að þetta geti verið vegna bólgu sem jafnan lagist þegar lengra líður fram.
Nóta F þann X:
Fékk lífræna aortagerviloku X, gengið vel var í hjartaómskoðun hjá mér í X s.l. þar sem að loka starfaði eðlilega og vinstri slegilsstarfsemi einnig viðunandi. Klínískt góður, farinn að vinna.
Nóta X á hjartadeild segir:
Umsækjandi er X ára maður með ósæðalokuleka í „freestyle“ loku, gáttatif, kæfisvefn og ofþyngd sem lagðist inn vegna versnandi mæði. Reyndist hjartabilaður og fær furix í æð í nokkra daga. Vélindaómun sýnir að ósæðalokan opnast vel og það eru engin þrengsli, en það er pandiastoliskur leki í lokunni sem virðist vera meðal alvarlegur. Það sést prolaps á einu lokublaðinu. Í framhaldi er ákveðið að taka hann til aðgerðar, þar sem það er nauðsynlegt. Hann er án kransæðasjúkdóms. Umsækjandi er upplýstur um áhættu aðgerðar og samþykkir hann aðgerð og velur lífræna lausn.
Í aðgerðinni X sést stór prolaps á hægra coronar blaðinu og einnig finnst op milli gáttar og slegils sem skýrir lekann eftir upphaflegu aðgerðina. Eldri lokan er fjarlægð og ný saumuð inn sem situr vel. Útskrifaðist við góða líðan X. Endurinnlagður X með mikla mæði og reynist haf blæðingu inn í gollurshús sem er tæmd út.
Í nótu þann X segir að honum fari hægt og bítandi fram með hverri vikunni. Og í nótu þann X finnur umsækjandi að þrekið er miklu betra og getur nú gengið með hundana sína án vandræða og án einkenna.
Læknisvottorð frá G hjartalækni ti SÍ, X:
Svar við bréfi frá Sí dags X er "varðar umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu". Bendi á að ég hef hitt þennan sjúkling einu sinni eða X en hann var mest í eftirliti annarra hjartalækna. Eftirfarandi er stutt samantekt á hans sjúkrasögu er varðar hans hjartasjúkdóm. Saga um hjartaóhljóð frá X ára aldri og greindur með bicuspid loku, hittir D og E en er lengst í eftirliti hjá F. Var einkennalaus framan af. í nótu frá X er talað um að hann sé of þungur fyrir hjartaaðgerð eða X kg.
X er hann með versandi aorta stenosis og fer í aðgerð X og sett lífræn gerviloka. Er á BÞ lækkandi meðferð, klínískt góður skv nótum og ómanir sýna eðl starfandi gerviloku. Nótur minnast á að hann sé í yfirþyngd. Hámarksgradient um 30mmHg. X er kominn leki í lokuna en TEE á LSH sýnir vægan til meðal leka.
Ég hitti hann X og er hann þá þokkalegur, ómun á LSH sýndi max gradient 42mmHg og meðal 24mmHg, AVA 1,7cm2. Átti að koma í eftirlit 6 mánuðum seinna en afbókaði sig. Skv nótum frá LSH kemur hann inn um haustið með endurtekin gáttatif sem þurfa rafvendingu, versnandi hjartabilun og sýnir endurtekin TEE að lekinn í lokunni hefur versnað, hann er kominn með skertan og stækkaðan slegil og er tekið ákvörðun um að skipta um loku sem er gert X. Verið i eftirliti á LSH síðan og er ekki hjá mér.
Lífræn gerviloka starfaði vel í 9 ár sem er i styttri kantinum fyrir slíka loku en ég myndi segja innan marka. Hann var allan tímann á bþ lækkandi meðferð og í mikilli yfirþyngd eða vel yfir Xkg. Skv því sem er greint frá fyrir ofan myndi ég ekki telja að um "mistök" hafi verið að ræða X heldur meira óheppni sjúklings. Hann var í góðu eftirliti allan tímann og virtist lokan starfa vel í 9 ár eftir aðgerð.
Samantekt málavaxta:
Saga um hjartaóhljóð frá X ára aldri og greindur með bicuspid loku, hittir D og E en er lengst í eftirliti hjá F. Var einkennalaus framan af. X er hann með versandi aorta stenosis og fer í aðgerð X og sett lífræn gerviloka. Umsækjandi segir að biðin eftir fyrri lokuaðgerðinni hafi verið í þyngjandi. Nóta hjartalæknis í X segir að umsækjandi sé klínískt góður og sé farinn að vinna.
Umsækjandi segist aldrei hafa orðið jafngóður eftir fyrri lokuskiptin. Síðustu tvö árin fyrir lokuskipti tvö var hann versnandi og skömmu fyrir aðgerð var hann með verulega hjartabilun sem var greind vera vegna ósæðalokuleka í lífrænu lokunni sem hann hafði fengið.
Í X er skipt um ósæðaloku á ný sem gekk eftir atvikum vel, þó þannig að hann fékk blæðingu í gollurshús skömmu síðar sem leiddi til innlagnar og þurfti að tæma út. Fór umsækjanda hægt og bítandi fram og í X hefur hann endurheimt þrek sitt.
Umræða:
Málið snýst um að umsækjandi hafi orðið fyrir miska með því að ósæðarlokan sem hann fékk í aðgerð eitt hafi verið „gölluð“ og því hafi hann gengið í gegnum aukin veikindi sem hafi leitt til enduraðgerðar 9 árum síðar.
Samkvæmt skoðun hjartalæknis var umsækjandi klínískt góður hálfu ári eftir fyrri aðgerðina. Árið X var greindur ósæðaleki sem leiddi til enduraðgerðar. Mat hjartalæknis G er að lokan hafi starfað vel í 9 ár eftir fyrri aðgerðina og að umsækjandi hafi allan tímann verið í góðu eftirliti.
Fyrir hjartalokuaðgerðir er aflað upplýsts samþykkis og farið yfir ýmsa þætti, sem dæmigert eru líftími lokunnar, áhætta á hrörnun lokunnar með tímanum og mögulega þörf fyrir enduraðgerð í framtíðinni. Almennur líftími á lífrænum svínalokum er um 10-15 ár, en getur verið styttri en einnig lengri. Endingartími umsækjanda er í styttri kantinum en ekki óeðlilega stuttur. Ýmsir þættir hafa áhrif á endingu, sjá heimild 1. Þar á meðal eru þættir sem umsækjandi hefur: tiltölulega ungur aldur, háþrýstingur og efnaskiptaþættir.
Álit:
Umsækjandi fór í ósæðaloku skipti vegna ósæðalokuþrengsla og fékk lífræna svínaloku. Það er þekkt að þær lokur hafa takmarkaðan líftíma og þarf því oft að gera enduraðgerð. Líftími aðgerðar er háður ýmsum þáttum, þar sem tíminn er að öðru jöfnu styttri hjá ungum einstaklingum, sér í lagi ef fleiri einstaklings þættir koma inn í söguna. Þegar á heildina er litið er heilsufarssaga umsækjanda með hliðsjón af lokusjúkdómi og aðgerð innan þess sem búast má við samkvæmt rannsóknum. Umsækjandi hefur fengið viðeigandi eftirfylgd og rannsóknir þegar á hefur þurft að halda.
Ég tel ekki að um bótaskyldu samkvæmt lögum um sjúkratryggingu, 2. tölulið þar sem fjallað er um bilun eða galla í tæki, áhöldum eða öðrum búnaði. Þá á heldur ekki við að um tjón hafi verið að ræða skv. 1. tölulið, þar sem segir að komast hefði mátt hjá tjóni ef meðferð við þær aðstæður hefði verið hagað eins og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Ekki hefur verið sýnt fram á að lokan hafi verið gölluð eða meðferðin í ósamræmi við bestu þekkingu og reynslu á sviðinu.“
Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, tekur sjálfstæða afstöðu til bótaskyldu í málinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna sem nefndin telur nægjanleg. Fyrir liggur að kærandi greindist barnungur með ósæðarlokugalla sem hann lengst af hafði ekki óþægindi af. Hann fór síðan að fá einkenni af þessu og í X var hann kominn með versandi ósæðarlokukölkun (aorta stenosis). Fór hann þá í aðgerð á árinu X þar sem sett var lífræn gerviloka. Kærandi er hins vegar í yfirþyngd og með háþýsting og árið X var hann kominn með ósæðarleka. Þó þessar lokur endist oftast 10 til 15 ár þá geta þær enst mun skemur ef mikið álag er á hjarta og æðakerfi. Ending á lokunni hjá kæranda er þannig í neðri hluta þess bils, um 9 ár.
Kærandi fór þess vegna í nýja lokuaðgerð X þar sem eldri lokan var fjarlægð og ný saumuð inn sem situr vel. Hann útskrifaðist við góða líðan X. Hann var endurinnlagður X með mikla mæði og reyndist hafa blæðingu inn í gollurshús sem var tæmd út. Í þessu felst hinn eiginlegi sjúklingatryggingaratburður. Ekki verður annað séð að mati úrskurðarnefndar en að meðferð kæranda hafi verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Verður ekki talið að núverandi einkenni kæranda verði rakin til vangreiningar eða ófullnægjandi eftirfylgni sem falli undir 1. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu.
Samkvæmt 2. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu kemur til skoðunar hvort tjón hafi orðið af bilun eða galla í tæki, áhöldum eða öðrum búnaði sem notaður var við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð. . Kærandi byggir á því að lokan hafi verið óstarfhæf við aðgerð, sem sé verulegt frávik frá eðlilegum væntingum. Við skoðun er ljóst að lífræn gerviloka kæranda var í sjálfu sér með eðlilegan líftíma en þó í neðri mörkum hans. Að mati úrskurðarnefndar verður ekki séð að aðrar aðferðir eða lausnir hefðu verið heppilegri.
Með vísan til þess, sem rakið er hér að framan, er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að skilyrði bótaskyldu samkvæmt þágildandi 1. og 2. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatryggingu séu ekki uppfyllt í tilviki kæranda.
Sjúkratryggingar Íslands hafa viðurkennt bótaskyldu á grundvelli 4. tölul. 2. gr. laganna vegna alvarlegs og sjaldgæfs fylgikvilla aðgerðar þann X. Sjúkratryggingar Íslands hafa metið kæranda þjáningabætur fyrir 7 daga rúmliggjandi og 36 daga veikan án þess að vera rúmliggjandi. Kærandi telur að tímabil þjáningabóta ætti að vera lengra, bótafjárhæð verulega hærri og að hann hafi orðið fyrir varanlegu tjóni og eigi rétt til miskabóta og örorkubóta.
Samkvæmt 5. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu fer um ákvörðun bótafjárhæðar samkvæmt þeim lögum eftir skaðabótalögum nr. 50/1993, sbr. þó 2. mgr. 10. gr. síðarnefndu laganna. Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. skaðabótalaga skal sá sem ber bótaábyrgð á líkamstjóni greiða skaðabætur fyrir atvinnutjón, sjúkrakostnað og annað fjártjón sem af því hlýst og enn fremur þjáningabætur.
Þjáningabætur
Í 3. gr. skaðabótalaga er kveðið á um þjáningabætur. Þar segir í 1. mgr. að greiða skuli þjáningabætur fyrir tímabilið frá því að tjón varð og þar til heilsufar tjónþola er orðið stöðugt. Í 2. mgr. sömu greinar segir að þegar sérstaklega standi á sé heimilt að greiða þjáningabætur þótt tjónþoli sé vinnufær. Um mat á stöðugleikapunkti í hinni kærðu ákvörðun segir meðal annars svo:
„Að virtu eðli sjúklingatryggingaratburðar og þeirrar meðferðar sem tjónþoli hlaut telst heilsufar hans í skilningi skaðabótalaga hafa verið stöðugt þann X þegar ritað var í sjúkraskrá að þrek tjónþola var miklu betra og hann gat gengið án vandræða og án einkenna. Stöðugleikapunkti var því náð þann X.“
Í hinni kærðu ákvörðun segir meðal annars svo um mat á þjáningabótum:
„Almennt er batatími eftir opna hjartaaðgerð, eins og lokuaðgerð, um fjórir til sex mánuðir. Tjónþoli gekkst undir lokuaðgerð þann X og útskrifaðist heim þann X. Alla jafnan fara sjúklingar fyrst í þjálfun á LSH í nokkrar vikur eða mánuði eftir lokuaðgerðir og í kjölfarið á Reykjalund í endurhæfingu og svo loks á endurhæfingarstöð fyrir hjarta- og lungnasjúklinga. Vegna sjúklingatryggingaratviks, þ.e. fylgikvilla aðgerðarinnar þann X gat tjónþoli ekki hafið sína endurhæfingu eftir lokuaðgerðina fyrr en sárið í hjartanu hafði gróið og blóðið úr gollurshúsinu fjarlægt.
Samkvæmt sjúkraskrárnótu, dags. X var tjónþoli farinn að mæta í vinnuna aftur þá og greindi hann einnig frá því að hann væri betri með hverjum degi. Að öllu virtu telst tímabili þjáningabóta vegna hins eiginlega sjúklingatryggingaratburðar hafa verið frá tjónsdegi þann X til þess dags, þ.e. X eða 43 dagar. Tjónþoli telst hafa verið veikur og rúmfastur í sjö daga er hann lá inni á LSH vegna blæðingarinnar í gollurshús og aðgerðarinnar í kjölfarið (X - X) en veikur án þess að vera rúmfastur í 36 daga.“
Kærandi byggir á því að þjáningabætur vegna afleiðinga sjúklingatryggingaratviksins séu vanmetnar hjá Sjúkratryggingum Íslands. Hann kveðst hafa búið við verulega skerta heilsu um langt skeið og orðið fyrir verulegri röskun á lífi sínu. Úrskurðarnefnd velferðarmála fær ekki annað ráðið af gögnum málsins en að kærandi hafi verið veikur vegna sjúklingatryggingaratburðarins á tímabilinu X – X, þar af rúmliggjandi á tímabilinu X - X. Ljóst er að veikindi kæranda án rúmlegu eru metin að álitum og skarast við grunnsjúkdóm, en gera má ráð fyrir 4 til 8 vikna veikindatíma í heild, sértækt vegna blæðingar í gollurshúsi til viðbótar við veikindatíma vegna grunnsjúkdóms. Að framangreindu virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að tímabil þjáningabóta sé 36 dagar þar sem kærandi telst hafa verið veikur án þess að vera rúmliggjandi og sjö dagar rúmliggjandi.
Tímabundið atvinnutjón
Samkvæmt 2. gr. skaðabótalaga skal ákveða bætur fyrir atvinnutjón tímann frá því að tjón varð þangað til tjónþoli getur hafið vinnu að nýju eða þar til heilsufar er orðið stöðugt.
Í hinni kærðu ákvörðun segir meðal annars svo um mat á þjáningabótum:
„Við mat á tímabili tímabundins atvinnutjóns þarf að draga frá áætlað veikindatímabil vegna grunnsjúkdóms, þ.e. hjartasjúkdóms tjónþola, við það tímabil sem rakið verður til hins eiginlega sjúklingatryggingaratburðar, fylgikvilla aðgerðarinnar þann X.
[…]
Samkvæmt gögnum Ríkisskattstjóra varð tjónþoli ekki fyrir tekjutapi vegna óvinnufærni í tengslum við sjúklingatryggingaratburðinn, þar sem hann hélt launum á ofangreindu tímabili. Þar af leiðandi er ljóst, að hann hefur ekki orðið fyrir tekjutapi vegna missi launatekna vegna sjúklingatryggingaratburðar og ekki kemur til greiðslu bóta fyrir tímabundið atvinnutjón.“
Úrskurðarnefnd velferðarmála fær ráðið af gögnum málsins að kærandi hafi ekki orðið fyrir tekjutapi vegna óvinnufærni á tímabilinu frá aðgerð þann X fram að stöðugleikapunkti þann X. Það er því mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi ekki orðið fyrir tímabundnu atvinnutjóni.
Varanlegur miski og varanleg örorka
Um mat á varanlegum miska segir í 1. mgr. 4. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að litið skuli til eðlis og hversu miklar afleiðingar tjóns séu frá læknisfræðilegu sjónarmiði, svo og til erfiðleika sem það valdi í lífi tjónþola. Varanlegur miski er metinn til stiga og skal miða við heilsufar tjónþola eins og það er þegar það er orðið stöðugt. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 á tjónþoli rétt á bótum fyrir varanlega örorku valdi líkamstjón, þegar heilsufar tjónþola er orðið stöðugt, varanlegri skerðingu á getu til að afla vinnutekna. Við
Úrskurðarnefndin telur ljóst af því sem fram hefur komið í málinu að kærandi varð ekki fyrir varanlegu heilsutjóni, hvorki vegna upphaflegrar meðferðar árið X, enda var þar ekki um sjúklingatryggingaratburð að ræða, né af völdum meðferðar í X enda var því lýst í X að hann hefði náð fullu þreki. Það er mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki hafi orðið varanlegt tjón vegna fylgikvilla aðgerðar þann X. Úrskurðarnefndin telur því að hvorki sé um varanlegan miska eða varanlega örorku að ræða vegna sjúklingatryggingaratviksins.
Með vísan til þess, sem rakið hefur verið hér að framan, er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um bætur úr sjúklingatryggingu.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um bætur til A, samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson