12. ágúst 2026 /

Mál nr. 390/2026

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 390/2026

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026

A gegn Sjúkratryggingum Íslands

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með kæru, sem barst 26. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands frá 24. febrúar 2026 á umsókn um styrk til kaupa á hjálpartæki.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um styrk til kaupa á lyftu til að setja hjólastóla á eða inn í bifreið með umsókn, dags. 2. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 24. febrúar 2026, afgreiddu Sjúkratryggingar Íslands umsóknina þannig að ákvörðun væri frestað og hafa ætti samband við stofnunina þegar val á bifreið lægi fyrir.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. maí 2026. Með bréfi, dags. 2. júní 2026, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og var honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði, sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, gætu átt við í málinu. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

II.  Sjónarmið kæranda

Ráða má af gögnum málsins að kærandi óski endurskoðunar á afgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands.

Rökstuðningur fylgdi ekki kæru en í færnimati iðjuþjálfa, dags. 27. maí 2026, sem fylgdi kæru, er greint frá því að kærandi hafi þörf fyrir bifreið með hjólastólalyftu eða rafdrifnum rampi sem geri honum kleift að aka hjólastól sínum beint inn í bifreið.

Kærandi sé orðinn algjörlega bundinn við hjólastól og sé mjög hreyfihamlaður. Færni hans til að pakka saman hjólastól og lyfta honum inn og út úr bifreið hafi verið verulega skert og sé það nú ekki raunhæfur möguleiki fyrir hann án verulegs álags og hættu á frekara líkamlegu álagi eða meiðslum.

Bifreið sé kæranda afar mikilvægt hjálpartæki og lykilforsenda þess að hann geti viðhaldið sjálfstæði sínu og áfram tekið þátt í daglegu lífi. Hann reiði sig mjög á bifreið til að sinna athöfnum daglegs lífs (ADL) og athöfnum tengdum samfélagsþátttöku og sjálfstæðri búsetu (IADL), svo sem:

● að versla nauðsynjar,

● sækja læknisþjónustu og þjálfun,

● heimsækja fjölskyldu og viðhalda félagslegum tengslum,

● og sinna daglegum erindum sjálfstætt.

Kærandi sé mjög duglegur, sjálfstæður og ósérhlífinn einstaklingur sem leitist við að reiða sig sem minnst á aðstoð annarra. Mikilvægt sé að styðja við þá getu hans til áframhaldandi sjálfstæðis og samfélagsþátttöku eins og kostur sé.

Hjólastólalyfta eða rafdrifinn rampur sé ekki einungis þægindi heldur nauðsynleg aðlögun sem geri honum kleift að nýta bifreið á öruggan og raunhæfan hátt. Slík aðlögun myndi hafa verulega jákvæð áhrif á lífsgæði hans, sjálfstæði, andlega líðan og getu til áframhaldandi þátttöku í samfélaginu.

Jafnframt geti stuðningur við slíka lausn haft ákveðinn samfélagslegan og fjárhagslegan ávinning til lengri tíma litið, þar sem hún styðji við áframhaldandi sjálfstæði kæranda og geti dregið úr þörf fyrir aukna aðstoð og þjónustu frá öðrum. Með hliðsjón af framangreindu teljist þörf kæranda fyrir bifreið með hjólastólalyftu eða rafdrifnum rampi vera bæði málefnaleg og nauðsynleg.

III.  Niðurstaða

Mál þetta varðar afgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands frá 24. febrúar 2026 á umsókn um styrk til kaupa á hjálpartæki.

Fram kemur í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, að rísi ágreiningur um grundvöll, skilyrði eða upphæð bóta samkvæmt III. kafla sé heimilt að kæra ákvörðun sjúkratryggingastofnunarinnar til úrskurðarnefndar velferðarmála samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 2. mgr. 36. laga nr. 112/2008 og 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal kæra vera skrifleg og berast úrskurðarnefndinni innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun.

Samkvæmt gögnum málsins liðu þrír mánuðir og tveir dagar frá því að kæranda var tilkynnt um hina kærðu ákvörðun með bréfi Sjúkratrygginga Íslands, dags. 24. febrúar 2026, þar til kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. maí 2026. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála var því liðinn þegar kæran barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að í hinni kærðu ákvörðun frá 24. febrúar 2026 var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. júní 2026, var kæranda veittur kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum teldi hann að skilyrði, sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, gætu átt við í málinu. Engar skýringar bárust frá kæranda. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála verður ekki ráðið af gögnum málsins að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður ekki heldur séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar

Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson