13. ágúst 2026 /

Mál nr. 273/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 273/2026

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026

A og B gegn Suðurnesjabæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 10. apríl 2026, kærðu A, og B, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Suðurnesjabæjar, dags. 27. febrúar 2026, á beiðni þeirra um skammtímadvöl fyrir son sinn.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Í febrúar 2026 óskuðu kærendur eftir skammtímadvöl fyrir son sinn í C. Umsóknin var tekin fyrir á fundi fjölskyldu- og velferðarráðs Suðurnesjabæjar 26. febrúar 2026 og henni frestað. Sú ákvörðun var tilkynnt kærendum með bréfi, dags. 27. febrúar 2026.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. apríl 2026. Með bréfi, dags. 14. apríl 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Suðurnesjabæjar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Suðurnesjabæjar barst 5. maí 2026 og var hún kynnt kærendum með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kærenda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærendur óski eftir að sonur þeirra fái skammtímavistun, þjálfun og öryggi í C. Sonur kærenda sé með mikla og þunga umönnun, metinn í flokk 15 í SIS mati og sé farinn að sýna ofbeldisfulla hegðun. Kærendur hafi verið á biðlista í tíu ár hjá félagsþjónustunni og séu núna að fá tvo sólarhringa í mánuði í skammtímavistun, enga liðveislu, stuðningsfjölskyldu né neina aðra þjónustu fyrir drenginn eða þau sjálf. Kærendur eigi rétt á, og félagsþjónustan mæli með, sjö sólarhringum í mánuði sem sveitarfélagið hafi ekki og muni líklega aldrei geta veitt þeim. Ákvörðunartöku í beiðni kærenda um þjónustu í C hafi verið frestað vegna stækkunar á úrræði hjá félagsþjónustunni sem mögulega eigi að geta veitt kærendum betri þjónustu. Stækkun sem ekki sé búið að samþykkja hjá sveitarfélaginu eða leggja nokkra áætlun um hvenær eða hvort verði. Kærendur óski eftir að fá samþykki fyrir því að sonur þeirra fái faglega þjónustu hjá C.

III.  Sjónarmið Suðurnesjabæjar

Í greinargerð Suðurnesjabæjar kemur fram að sonur kærenda sé X ára drengur sem búi í Suðurnesjabæ. Hann sé með [...]. Drengurinn hafi farið í DNA rannsókn og það hafi fundist galli á geni en enn sé ekki vitað hver sé orsökin. Búið sé að óska eftir endurmati og skoða eigi alvarleika á þroskastöðu drengsins. Frumgreining liggi fyrir og beðið sé eftir lokagreiningu.

Drengurinn hafi tvisvar farið í mat á stuðningsþörfum (SIS-C) hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð. Hann hafi fyrst farið í slíkt mat á árinu 2019 og hafi þá verið í stuðningsflokki 12, með heilsuþörf 9 og hegðunarþörf 13 sem hafi gefið til kynna mikla stuðningsþörf. Hann hafi farið í endurmat á árinu 2025. Drengurinn sé nú í stuðningsflokki 15, með heilsuþörf 12 og hegðunarþörf 14 sem sé mjög mikil stuðningsþörf.

Drengurinn hafi verið með stuðning hjá félagsþjónustu Suðurnesjabæjar frá árinu 2018. Þá hafi hann byrjað að nýta skammtímadvöl í tvo sólarhringa á mánuði í D og sé enn í dag með þann stuðning. Á árunum 2019 til 2025 hafi drengurinn farið í tvo sólarhringa á mánuði til stuðningsfjölskyldu. Frændfólk og systir drengsins hafi sinnt því hlutverki á þeim tíma. Drengurinn hafi einnig verið með félagslegan stuðning á árunum 2019 til 2024. Nokkrir liðveitendur hafi sinnt stuðningi flesta mánuði á þeim tíma. Drengurinn sé í eftirskólaúrræði fyrir fötluð börn og ungmenni og hafi farið í sumarúrræði á vegum sveitarfélagsins síðustu þrjú sumur. Sumarið 2025 hafi drengurinn ekki klárað tímabilið. Drengurinn fái akstursþjónustu í skammtímadvöl, sjúkraþjálfun og á Eæfingar í Reykjanesbæ.

Drengurinn sé í X. bekk í F. Hann stundi nám og þjálfun í G sem sé [...]. Drengurinn sé með einstaklingsnámskrá í öllum fögum.

Á síðustu árum hafi stuðningsþarfir drengsins aukist, bæði heilsu- og hegðunarþörf hans. Erfitt hafi verið að finna einstakling til að sinna félagslegum stuðningi og einnig stuðningsfjölskyldu við hæfi. Því sé drengurinn nú á bið eftir þeirri þjónustu. Í september 2025 hafi foreldrar hans óskað eftir fleiri sólarhringum í skammtímadvölinni D. Það hafi verið samþykkt en ekki sé hægt að bæta við sólarhringum að svo stöddu þar sem að biðlisti sé í það úrræði.

Beiðni um dvöl í C hafi borist félagsþjónustunni í febrúar 2026. Málstjóri í málefnum drengsins hafi haft samband við foreldra með símtali þann 16. febrúar 2026 þar sem þeim hafi verið boðinn viðtalstími til að fara yfir beiðni þeirra um dvöl í C. Þá hafi ferlið vegna beiðni þeirra verið útskýrt. Þann 23. febrúar 2026 hafi málstjóri haft samband við móður og farið yfir greinargerð sem lögð yrði fyrir fjölskyldu- og velferðarráð vegna beiðni þeirra um dvöl í C. Móðir hafi haft tvær athugasemdir sem hafi verið lagfærðar.

Beiðni um dvöl í C hafi verið tekin fyrir á 64. fundi fjölskyldu- og velferðarráðs þann 26. febrúar 2026 þar sem eftirfarandi bókun hafi verið gerð:

„Fjölskyldu- og velferðarráð hefur fjallað um umsókn um skammtímadvöl í C vegna barns með fötlunargreiningu og miklar, staðfestar stuðningsþarfir samkvæmt fyrirliggjandi SIS-mati. Ráðið áréttar að ljóst er að barnið hefur þörf fyrir aukna skammtímadvöl og hefur verið á biðlista eftir slíkri þjónustu um nokkurt skeið. Ráðið lýsir skilningi á þeirri stöðu sem upp er komin og þeim áskorunum sem biðtími hefur í för með sér fyrir barn og fjölskyldu. Sveitarfélagið vinnur að útfærslu á stækkun núverandi skammtímadvalar til að mæta biðlista og óskum um lengri dvöl utan heimilis. Jafnframt er unnið að því að finna stuðningsfjölskyldu og liðveitanda til að sinna þjónustunni á meðan barnið er á biðlista og vonast sveitarfélagið til að geta hafið þjónustu við barnið sem fyrst. Umsókn um að sveitarfélagið kaupi þjónustu í C er frestað.“

Foreldrar hafi verið upplýstir um bókun fjölskyldu- og velferðarráðs með símtali 27. febrúar 2026 og með tölvupósti sama dag.

Óumdeilt sé að barnið hafi þörf fyrir aukna skammtímadvöl eins og staðfest sé með greiningargögnum. Sveitarfélagið viðurkenni þá þörf og beri að tryggja viðeigandi þjónustu samkvæmt lögum nr. 38/2018. Samkvæmt 34. gr. laganna beri sveitarfélaginu einnig að tryggja aðra viðeigandi þjónustu á meðan beðið sé eftir varanlegri lausn.

Barnið njóti nú skammtímadvalar tvo sólarhringa í mánuði og hafi jafnframt fengið boðvist þegar rými losni vegna forfalla. Þá hafi barnið haft aðgang að stuðningsfjölskyldu og liðveislu en sú þjónusta hafi verið óstöðug vegna starfsmannaveltu.

Við mat á umsókn um kaup á þjónustu í C verði að líta til þess að slík þjónustukaup séu ekki innan samþykktrar fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins. Fyrir liggi að kostnaður við þjónustuna nemi yfir 3.000.000 kr. á mánuði fyrir tvær helgar í mánuði eða tæplega 40.000.000 kr. á ársgrundvelli. Sveitarfélaginu beri að gæta meðalhófs og jafnræðis við ráðstöfun opinbers fjár og tryggja að fjármunir nýtist þannig að þeir mæti þörfum fleiri barna til lengri tíma.

Núverandi skammtímadvöl sé fullnýtt og eftirspurn hafi aukist verulega meðal annars vegna fólksfjölgunar á Suðurnesjum. Þjónustan sé rekin í samstarfi sveitarfélaganna á svæðinu og byggi á sameiginlegri ábyrgð á uppbyggingu. Fjölmörg börn séu á biðlista og þörf fyrir aukna dvöl sé víða til staðar.

Unnið sé að tímabundnum og varanlegum úrbótum, þar á meðal stækkun núverandi úrræðis með nýtingu viðbótarhúsnæðis. Gert sé ráð fyrir að þær aðgerðir geti komið til framkvæmda á næstu mánuðum (ágúst/september) með það að markmiði að auka framboð þjónustu og stytta biðtíma. Suðurnesjabær og Vogar hafi þegar samþykkt þær tillögur en afgreiðsla Reykjanesbæjar liggi ekki fyrir.

Með hliðsjón af framangreindu telji sveitarfélagið réttlætanlegt og málefnalegt að fresta ákvörðun um kaup á þjónustu í C á þessu stigi. Unnið sé að því að tryggja barninu viðeigandi þjónustu til bráðabirgða samhliða uppbyggingu sjálfbærrar þjónustu sem muni nýtast fleiri börnum til lengri tíma.

IV.  Niðurstaða

Kærendur lögðu fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála vegna afgreiðslu Suðurnesjabæjar á beiðni þeirra um skammtímadvöl í C fyrir son þeirra. Umsókn kærenda var frestað á fundi fjölskyldu- og velferðarráðs 26. febrúar 2026.

Í IV. kafla laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er fjallað um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Þar segir í 1. mgr. 13. gr. að tryggja skuli að fötluð börn fái nauðsynlega þjónustu svo að þau geti notið mannréttinda og mannhelgi til jafns við önnur börn, lifað sjálfstæðu lífi og tekið þátt í samfélaginu án aðgreiningar. Þá skuli fötluð börn hafa raunverulegan aðgang að og njóta menntunar, þjálfunar, starfsundirbúnings og tómstunda. Í öllum aðgerðum sem snerti fötluð börn skuli fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem sé viðkomandi barni fyrir bestu og stuðla að félagslegri aðlögun og þroska þess. Fötluð börn hafi rétt til að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós með tilliti til aldurs þeirra og þroska. Þá segir í 2. mgr. 13. gr. að fjölskyldur fatlaðra barna skuli fá nægilega þjónustu til þess að fötluð börn þeirra geti notið réttinda sinna til fulls og jafns við aðra.

Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. laga nr. 38/2018 eiga fötluð börn og ungmenni rétt á skammtímadvöl utan heimilis þegar þörf krefur. Skammtímadvöl sé ætlað að veita fötluðum einstaklingum tímabundna dvöl vegna mikilla umönnunarþarfa umfram jafnaldra. Foreldrar barns sem eigi rétt á skammtímadvöl geti fengið stuðning inn á heimili sitt í stað vistunar utan heimilis óski foreldrar þess. Þá segir í 2. mgr. að ráðherra sé heimilt að setja reglugerð um framkvæmd þjónustunnar og að sveitarstjórnum sé jafnframt heimilt að setja reglur um þjónustuna.

Í f. lið mgr. 3. gr. reglna Suðurnesjabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra segir að fötluð börn og ungmenni með þroska- og/eða geðraskanir á aldrinum 0-18 ára eigi rétt á skammtímadvöl utan heimilis þegar þörf krefji. Markmið með skammtímadvöl sé að gefa fötluðum börnum kost á að dvelja tímabundið utan heimilis síns þegar um sé að ræða  miklar stuðningsþarfi umfram jafnaldra og til að styðja við fjölskyldur barnsins. Stuðningur í skammtímadvöl geti verið allt frá hluta úr degi og í allt að 15 sólarhringa á mánuði. Þá segir að dvöl barns í skammtímadvöl og hjá stuðningsfjölskyldu geti samanlagt verið að hámarki 15 sólarhringar á mánuði.

Fyrir liggur að sonur kærenda fær tvo sólarhringa í mánuði í skammtímadvöl. Suðurnesjabær hefur vísað til þess að það sé óumdeilt að sonur kærenda hafi þörf fyrir aukna skammtímadvöl. Kærendur hafi fengið samþykkta fleiri sólarhringa í skammtímadvöl að D í september 2025 en biðlisti sé í það úrræði. Vegna þessa óskuðu kærendur eftir skammtímadvöl fyrir son sinn í C.

Af hálfu Suðurnesjabæjar hefur komið fram að unnið sé að tímabundnum og varanlegum úrbótum er varðar skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni, þar á meðal stækkun núverandi úrræðis með nýtingu viðbótarhúsnæðis. Gert sé ráð fyrir að þær aðgerðir geti komið til framkvæmda í ágúst/september með það að markmiði að auka framboð þjónustu og stytta biðtíma. Með hliðsjón af því hafi sveitarfélagið talið réttlætanlegt og málefnalegt að fresta ákvörðun um kaup á þjónustu í C.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ástæðu til að gera athugasemd við framangreinda málsmeðferð Suðurnesjabæjar. Sveitarfélaginu bar að taka efnislega ákvörðun um beiðni kærenda, þ.e. um synjun eða samþykkt á grundvelli gildandi reglna eins fljótt og unnt var, sbr. 34. gr. laga nr. 38/2018. Ekki er réttlætanlegt að fresta afgreiðslu umsóknar með vísan til þess að unnið sé að úrbótum hjá sveitarfélaginu vegna skammtímadvalar fyrir fötluð börn og ungmenni. Að því virtu er óhjákvæmilegt að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og leggja fyrir Suðurnesjabæ að taka beiðni kærenda til afgreiðslu.

Úrskurðarnefndin bendir á að kærendur geta sent nýja kæru til nefndarinnar þegar beiðni þeirra hefur hlotið efnislega meðferð hjá Suðurnesjabæ, verði þau ekki sátt við niðurstöðuna.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Afgreiðsla Suðurnesjabæjar, dags. 26. febrúar 2026, á beiðni A, og B, um skammtímadvöl fyrir son þeirra í C, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir