Mál nr. 309/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 309/2026
Fimmtudaginn 13. ágúst 2026
A gegn Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 28. apríl 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 25. febrúar 2026, um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 9. til 25. júní 2025 og ákvörðun sjóðsins, dags. 3. mars 2026, um að synja beiðni hans um niðurfellingu 15% álags.
I. Málavextir og málsmeðferð
Kærandi þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu 9. til 25. júní 2025. Með ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 25. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að hann hefði fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en heimilt væri fyrir tímabilið 9. til 25. júní 2025. Honum bæri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði 271.442 kr., að meðtöldu 15% álagi. Með erindi, dags. 2. mars 2026, fór kærandi fram á niðurfellingu álagsins. Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 3. mars 2026, var beiðni kæranda um niðurfellingu álagsins synjað.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. apríl 2026. Með bréfi, dags. 29. apríl 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst 13. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. maí 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda sama dag og voru þær kynntar Fæðingarorlofssjóði með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi kæri ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um ofgreiðslu. Kærandi telji að um misskilning sé að ræða. Greiðslur sem hann hafi fengið frá vinnuveitanda hafi tengst tímabili áður en hann hafi farið í fæðingarorlof, vegna veikinda barns hans, sem kærandi geti staðfest með læknisvottorði. Síðar hafi þetta verið leiðrétt með því að taka orlof, 100 klukkustundir, þannig að ekki hafi verið um tvöfaldar greiðslur á sama tíma að ræða. Kærandi óski eftir því að ákvörðun verði endurskoðuð og felld niður.
Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi ekki haft ásetning til að fá greiðslur sem hann ætti ekki rétt á. Aðstæður á þessum tíma hafi verið erfiðar þar sem barn kæranda hafi verið veikt og greiðslur frá vinnuveitanda hafi tengst þeim aðstæðum. Kærandi hafi talið að fyrirkomulagið hefði verið leiðrétt með orlofstöku og hafi ekki haft skilning á því að um óheimilar tvígreiðslur væri að ræða. Kærandi óski eftir því að tekið verði tillit til aðstæðna hans og að álag verði fellt niður eða krafa lækkuð eftir því sem unnt sé.
III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs
Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærð sé ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið 9. til 25. júní 2025 þar sem hann hafi fengið ósamrýmanlegar greiðslur frá sínum vinnuveitendum á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu X 2024.
Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 10. október 2025, hafi athygli hans verið vakin á því að stofnunin væri með til meðferðar mál hans vegna hugsanlegrar ofgreiðslu fyrir tímabilið 9. til 30. júní 2025. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, skýringum vinnuveitanda og skýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.
Launaseðlar, tímaskýrslur og skýringar kæranda hafi borist með tölvupósti, dags. 16. október 2025 og 19. nóvember 2025. Samkvæmt skýringum kæranda hafi kærandi ekki verið í vinnu tímabilið 9. til 30. júní 2025 en kærandi hafi fengið greitt orlof frá vinnuveitanda í júní 2025. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 25. febrúar 2026, sem sé hin kærða ákvörðun. Litið hafi verið svo á samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins og innsendum skýringum og gögnum að kærandi hefði fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 7. mgr. 53. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof og 2. mgr. 41. gr. laganna. Þann 2. mars 2026 hafi borist beiðni kæranda um niðurfellingu á 15% álagi. Með bréfi, dags. 3. mars 2026, hafi því erindi verið svarað.
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 144/2020 sé fæðingar- og foreldraorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu barns, frumættleiðingu barns sem sé yngra en átta ára og töku barns sem sé yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra til fæðingarorlofs og í 13. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.
Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 144/2020 komi fram að þrátt fyrir 1. mgr. 13. gr. sé starfsmanni með samkomulagi við vinnuveitanda heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri en eitt tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr. Þó megi aldrei taka fæðingarorlof skemur en hálfan mánuð í senn. Vinnuveitandi skuli leitast við að koma til móts við óskir starfsmanns um tilhögun fæðingarorlofs samkvæmt ákvæði þessu.
Í 53. gr. laga nr. 144/2020 sé kveðið á um réttindi sem séu ósamrýmanleg greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þar komi meðal annars fram í 7. mgr. að foreldri sem njóti orlofslauna geti ekki nýtt rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögunum á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um.
Með umsókn, dags. 8. apríl 2024, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu X 2024. Tilkynningar auk breytinga um tilhögun fæðingarorlofs hafi borist frá kæranda og hafi hann verið afgreiddur í fæðingarorlof í samræmi við þær, sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 13. mars 2025.
Tímabilið 9. til 30. júní 2025 hafi kærandi fengið greiddar 470.931 kr. úr Fæðingarorlofssjóði vegna 100% fæðingarorlofs. Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins hafi kærandi þegið 1.044.733 kr. í laun fyrir júní 2025. Í skýringum kæranda komi fram að um sé að ræða greiðslu vegna veikinda barna að fjárhæð 74.520 kr., greiðsla yfirvinnu að fjárhæð 180.245 kr., greiðsla orlofs af yfirvinnu að fjárhæð 19.178 kr. og greiðsla fæðishlunninda að fjárhæð 7.000 kr. Auk þessa hafi kærandi fengið greiðslu vegna orlofs að fjárhæð 465.750 kr. Fæðingarorlofssjóður geri ekki athugasemd við greiðslu launa fyrir vinnu sem unnin hafi verið tímabilið 26. maí til 8. júní 2025.
Ágreiningur málsins lúti að greiðslu orlofslauna vegna 100 klukkustunda eða 465.750 kr. samhliða 100% greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði en samkvæmt 7. mgr. 53. gr. laga nr. 144/2020 geti foreldri sem njóti orlofslauna ekki nýtt rétt sinn til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um. Eins og áður segi hafi kærandi fengið greiddar 100 klukkustundir sem orlofslaun sem jafngildi um það bil 12 virkum starfsdögum sem nemi 17 fæðingarorlofsdögum frá og með 9. júní 2025. Samkvæmt því eigi kærandi ekki rétt á greiðslum frá Fæðingarorlofssjóði tímabilið 9. til 25. júní 2025. Ofgreiðsla fyrir tímabilið 9. til 25. júní 2025 sé því 236.036 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Í 41. gr. laga nr. 144/2020 sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eða hærri fæðingarstyrk en því hafi borið samkvæmt ákvæðum laganna miðað við álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Fella skuli niður álagið samkvæmt þessari málsgrein sýni foreldri fram á með skriflegum gögnum að því verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og skýringum kæranda sé um að ræða greiðslu orlofslauna í júní 2025 sem kærandi hafi fengið greitt í samráði við vinnuveitanda. Í samræmi við það sé ekki tilefni til að fella niður 15% álag á kæranda.
Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 144/2020 komi fram að foreldri sé heimilt að taka fæðingarorlof samhliða skertu starfshlutfalli og að ekki sé heimilt að taka fæðingarorlof skemur en hálfan mánuð í senn. Foreldri geti því ekki nýtt fæðingarorlof yfir staka daga heldur þurfi hvert tímabil fæðingarorlofs að ná yfir að minnsta kosti hálfan mánuð í senn. Í tilfelli kæranda hafi hann sótt um 100% fæðingarorlof fyrir tímabilið frá 9. til 30. júní 2025. Kærandi hafi verið afgreiddur í fæðingarorlof í samræmi við tilkynningar þar um. Í kæru haldi kærandi því fram að greiðsla orlofs eigi við tímabil fyrir upphaf fæðingarorlofs. Í athugasemdum við 23. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 144/2020 komi fram að tekjur foreldris vegna orlofslauna samkvæmt lögum um orlof nr. 30/1987 skuli koma til útreiknings á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi í þeim mánuði sem þær hafi verið skattlagðar og greitt af þeim tryggingagjald. Í athugasemdum við 25. gr. laga nr. 144/2020 komi fram að „Hafi foreldri ekki lagt niður launuð störf á því tímabili sem það ákvað að nýta til fæðingarorlofs skulu einungis þær greiðslur frá vinnuveitanda sem mynda stofn til tryggingagjalds samkvæmt lögum um tryggingagjald, fyrir sama tímabil, koma til skerðingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði séu þær hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði skv. 4. mgr. 24. gr. og meðaltals heildarlauna á viðmiðunartímabili skv. 1.-3. mgr. 23. gr. í réttu hlutfalli við tilhögun fæðingarorlofs foreldris í þeim almanaksmánuði.“
Af gögnum málsins megi sjá að greiðsla til kæranda vegna orlofs hafi myndað stofn til tryggingagjalds í júní 2025 og beri því að koma til útreiknings á hugsanlegri ofgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði í þeim mánuði í beinu framhaldi af lokum starfstímabils kæranda innan þess mánaðar þann 8. júní. Þá hafi ekki borist gögn né skýringar vinnuveitanda um að greiðsla orlofs tilheyri öðru tímabili.
Samkvæmt gögnum málsins sé óumdeilt að kærandi hafi fengið greitt orlof frá vinnuveitanda fyrir sama tímabil og greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði eigi við. Í lögum nr. 144/2020 sé ekki að finna heimild til að fella niður eða lækka endurkröfu vegna aðstæðna eins og þeirra sem lýst sé í kæru á högum kæranda og fjölskyldu hans.
Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda 236.036 kr. að viðbættu 15% álagi, 35.405 kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði 271.442 kr., sbr. bréf til hans ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 25. febrúar 2026.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 9. til 25. júní 2025 og ákvörðun sjóðsins um að synja beiðni kæranda um niðurfellingu 15% álags.
Í V. kafla laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof er kveðið á um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Þar segir í 1. mgr. 25. gr. að réttur foreldris sem sé starfsmaður og/eða sjálfstætt starfandi, sbr. 3. til 5. tölul. 4. gr., til greiðslna í fæðingarorlofi sé bundinn því að foreldri uppfylli skilyrði um rétt til fæðingarorlofs samkvæmt III. og IV. kafla og leggi niður launuð störf á því tímabili sem það nýti rétt sinn til fæðingarorlofs. Greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem mynda stofn til tryggingagjalds samkvæmt lögum um tryggingagjald og eru hærri en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 24. gr. og meðaltals heildarlauna á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 4. mgr. 23. gr. í réttu hlutfalli við tilhögun fæðingarorlofs foreldris í þeim almanaksmánuði eða hluta úr almanaksmánuði sem greitt er fyrir, sbr. 4. mgr. 24. gr. og 13. gr., skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Um þetta segir í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga nr. 144/2020 að gert sé ráð fyrir því að foreldri geti fengið þann tekjumissi sem Fæðingarorlofssjóði sé ekki ætlað að bæta greiddan frá vinnuveitanda samhliða fæðingarorlofi. Samkvæmt 4. málsl. 1. mgr. 25. gr. skulu eingöngu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi í hverjum almanaksmánuði koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Um þetta segir í athugasemdum við ákvæðið að átt sé við tímabil sem hefjist frá og með fyrsta degi fæðingarorlofs foreldris innan tiltekins almanaksmánaðar og ljúki frá og með þeim degi sem foreldrið nýti ekki lengur rétt sinn til fæðingarorlofs innan tiltekins almanaksmánaðar. Hið sama gildi hvort sem foreldri nýti rétt sinn til fæðingarorlofs að fullu eða samhliða minnkuðu starfshlutfalli á fyrrnefndu tímabili.
Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 144/2020 kemur fram að þrátt fyrir 1. mgr. 13. gr., þar sem segir að starfsmaður skuli eiga rétt á að taka fæðingarorlof í einu lagi, sé starfsmanni með samkomulagi við vinnuveitanda heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri en eitt tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr. Þó megi aldrei taka fæðingarorlof skemur en hálfan mánuð í senn.
Í 53. gr. laga nr. 144/2020 er kveðið á um réttindi sem séu ósamrýmanleg greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þar segir í 7. mgr. að foreldri sem nýtur orlofslauna geti ekki nýtt rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögunum á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um.
Óumdeilt er að kærandi fékk greidd orlofslaun vegna 100 klukkustunda eða 465.750 kr. frá vinnuveitanda sínum í júnímánuði 2025 samhliða 100% greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði. Kærandi hefur vísað til þess að greiðsla orlofs eigi við tímabil fyrir upphaf fæðingarorlof.
Það leiðir af 7. mgr. 53. gr. laga nr. 144/2020 að taka verður afstöðu til þess fyrir hvaða tímabil orlofslaun sem kærandi fékk frá vinnuveitanda sínum eiga við um. Í því samhengi verður að horfa til þess fyrirkomulags sem þessum greiðslum er búið í orlofslögum og eðlis þeirra. Í 1. gr. orlofslaga nr. 30/1987 er kveðið á um að allir þeir, sem starfa í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau eru greidd í peningum eða öðrum verðmætum, eigi rétt á orlofi og orlofslaunum samkvæmt reglum laganna. Tekið er fram í 2. mgr. 3. gr. laganna að orlofsárið, þ.e. sá tími sem unnið er til orlofslauna, sé frá 1. maí til 30. apríl. Í 1. mgr. 4. gr. laganna kemur fram sú meginregla að orlof skuli veitt í einu lagi á tímabilinu 2. maí til 15. september en atvinnurekandi ákveði í samráði við launþega hvenær orlof skuli veitt, sbr. upphafsmálslið 5. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. á launþegi rétt til orlofslauna í samræmi við áunninn orlofsrétt á síðasta orlofsári. Launþega skal greidd orlofslaun í samræmi við reiknireglu 2. mgr. 7. gr. næsta virkan dag fyrir töku orlofs, sbr. 3. mgr. 7. gr.
Að virtum framangreindum reglum orlofslaga og þess að kærandi valdi að fá greidda orlofsdaga í júní 2025 tekur úrskurðarnefndin undir með Fæðingarorlofssjóði að greiðsla orlofslaunanna sé ósamrýmanleg greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Að því virtu er ljóst að kærandi fékk greitt of mikið úr Fæðingarorlofssjóði frá 9. til 25. júní 2025.
Í 41. gr. laga nr. 144/2020 er kveðið á um leiðréttingu á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þar segir í 2. mgr. að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eða hærri fæðingarstyrk en því hafi borið samkvæmt ákvæðum laganna miðað við álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd að viðbættu 15% álagi óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Fella skuli niður álagið sýni foreldri fram á með skriflegum gögnum að því verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Ákvæði 41. gr. laga nr. 144/2020 er fortakslaust að því er varðar skyldu til að endurgreiða ofgreiddar bætur óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Enga heimild er að finna í lögum nr. 144/2020 til að fella niður endurkröfu eins og kærandi hefur farið fram á. Þar sem ekki liggja fyrir skrifleg gögn um að kæranda verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar er ekki ástæða til að fella niður álagið sem lagt var á endurkröfuna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna að fjárhæð 271.442 kr. fyrir tímabilið 9. til 25. júní 2025 því staðfest. Þá er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja beiðni hans um niðurfellingu 15% álags staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 25. febrúar 2026, um krefja A, um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 9. til 25. júní 2025, er staðfest. Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 3. mars 2026, um að synja beiðni kæranda um niðurfellingu 15% álags er einnig staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir