13. ágúst 2026 /

Mál nr. 319/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 319/2026

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026

A gegn Reykjanesbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 23. febrúar 2026, um að lækka viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi hefur þegið fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ frá árinu 2024. Í ágúst 2025 lækkaði velferðarsvið viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðarinnar til hans og var það staðfest á fundi 29. október 2025. Kærandi áfrýjaði þeirri afgreiðslu þann 3. febrúar 2026. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar staðfesti ákvörðun velferðarsviðs á fundi 13. febrúar 2026 og var sú ákvörðun kynnt kæranda með bréfi, dags. 23. febrúar 2026.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 4. maí 2026. Með bréfi, dags. 6. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjanesbæjar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjanesbæjar barst úrskurðarnefndinni 26. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. maí 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 8. júní 2026 og voru þær kynntar Reykjanesbæ með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. júní 2026. Viðbótarathugasemdir bárust frá kæranda 18. júní 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi sé B og að hann hafi fengið vernd frá stríðinu á Íslandi. Frá því í janúar 2026 hafi kærandi fengið fjárhagsaðstoð að upphæð 60.000 til 65.000 kr. á mánuði. Félagsþjónustan í Reykjanesbæ rökstyðji ákvörðun sína, að minnka upphæð fjárhagsaðstoðar til kæranda, á þeim grundvelli að hann búi með tengdadóttur sinni og afadóttur og að hann greiði ekki fyrir húsnæði. Það sé hins vegar ekki staðan.

Sumarið 2025, áður en að afadóttir kæranda hafi byrjað í skóla, hafi kærandi og tengdadóttir hans ákveðið að leigja stærri íbúð eða 62 fermetra. Fyrir það hafi þau búið í 40 fermetra íbúð. Þar sem afadóttir kæranda sé að stækka, kærandi sé aldraður og tengdadóttir hans sé annað hvort að vinna eða læra þurfi þau öll sitt persónulega rými. Þau hafi verið sammála um að kærandi myndi aðstoða tengdadótturina við að greiða leigu fyrir stærri íbúðina þar sem leigan þar sé hærri. Hluti kæranda af leigunni, sem hann hafi greitt tengdadótturinni, hafi verið 75.000 kr. Kærandi hafi haldið eftirstöðvum fjárhagsaðstoðarinnar fyrir persónuleg útgjöld. Áður hafi kærandi aðstoðað við að greiða fyrir leikskóla til að gera tengdadóttur sinni auðveldara fyrir þar sem hún sé ein á Íslandi með sex ára gamalt barn.

Nafn kæranda sé formlega skráð á leigusamninginn. Auk þess hafi leigufélagið ALMA formlega staðfest að félagið geti ekki gefið út sitthvorn reikninginn til kæranda og tengdadóttur hans. Kærandi hafi skilað þessari staðfestingu ásamt yfirlýsingu bankans til félagsþjónustu Reykjanesbæjar en þær skýringar hafi ekki verið teknar gildar. Kærandi sé ekki að óska eftir því að fá greiddar 204.000 kr. eins og komi fram á vefsíðu Reykjanesbæjar. Kærandi hafi áður fengið um það bil 140.000 til 145.000 kr. og það hafi verið nóg fyrir hann til að aðstoða tengdadóttur hans við að greiða fyrir húnsæði og til að greiða fyrir hans eigin framfærslu ásamt lyfjakostnaði. Í hverjum mánuði þurfi kærandi um það bil 14.000 kr. til að greiða fyrir lyf og þá sé ekki litið til annars framfærslukostnaðar.

Kærandi skilji ákvörðun Reykjanesbæjar en á sama tíma sé hann fangi þessarar ákvörðunar. Kærandi sé X ára gamall, næstum X ára. Hann hafi ekki komið til Íslands því hann hafi verið hræddur við stríðið. Á hans aldri hafi hann engu að tapa. Kærandi hafi komið til að aðstoða tengdadóttur sína við að sjá um afadóttur sína þar sem faðir barnsins, sonur kæranda, megi ekki yfirgefa B. B mönnum á aldrinum 18 til 60 ára sé bannað að yfirgefa landið á stríðstímum nema á sérstökum lagalegum forsendum. Samt sem áður, sökum aldurs, geti kærandi ekki fundið atvinnu svo hann þurfi ekki að vera háður tengdadóttur sinni. Tengdadóttir hans sé að gera út af við sig með vinnu og námi til að geta útvegað sæmileg lífskjör fyrir dóttur sína og sjálfa sig og nú þurfi hún líka að sjá fyrir kæranda.

Auk þess sé kærandi með málmplötur í bæði handlegg og mjöðm. Kærandi kunni ekki tungumálið og í reynd geti hann aðeins séð um barnabarnið til að leyfa tengdadóttur sinni að vinna í stað þess að reiða sig á félagsþjónustu.

Ákvörðunin um að minnka fjárhagsaðstoð til kæranda hafi haft verulega neikvæð áhrif á persónulegar aðstæður hans. Kærandi geti ekki verið fjárhagslega háður tengdadóttur sinni en auk þess geti hann ekki yfirgefið hana þar sem hún myndi þurfa að hætta í vinnunni til að hugsa um sex ára gamla dóttur sína. Kærandi taki fram að hin kærða ákvörðun sé ólögleg, ósamsvarandi og ósamrýmanleg íslenskri stjórnarskrá og velferðarlöggjöf, sérstaklega í ljósi þess að kærandi sé X ára og með stöðu flóttamanns.

Í 76. gr. stjórnarskrár Íslands sé kveðið á um skýra skyldu ríkisins til að útvega einstaklingum aðstoð sem geti ekki staðið undir sér sökum aldurs, sjúkleika, fötlunar eða sambærilegra atvika. Einstaklingur sem sé X ára falli undir flokk þeirra sem þurfi aukna félagslega vernd. Fjárhagsaðstoð sem sé takmörkuð við 65.000 kr. á mánuði geti ekki með sanngirni talist uppfylla stjórnarskrárbundna skyldu til að tryggja lágmarks lífskjör óháð húsnæðis fyrirkomulagi. Stjórnarskráin heimili ekki að fjárhagsaðstoð sé lækkuð niður í einungis táknræna upphæð sem mistakist að tryggja grunnframfærslu.

Í 12. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga sé kveði á um að sveitarfélög skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Auk þessa sé til formlegt skjal útgefið af sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem fram komi að sveitarfélögum sé skylt að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga sem geti ekki séð sér og sínum farboða án aðstoðar. Tilgangur slíkrar aðstoðar sé til að tryggja umsækjanda grunnframfærslu, þar á meðal mat, föt, lyf, persónulegar nauðsynjar og annan nauðsynlegan framfærslukostnað. Þó að íslensk lög skilgreini ekki föst lögbundin lágmarkslífskjör í peningalegu tilliti krefjist lagaramminn augljóslega þess að fjárhagsaðstoðin sé nægjanleg til að uppfylla grunnframfærslu. Fjárhagsaðstoð sem geri einstaklingi ekki kleift að standa straum af daglegum útgjöldum sínum uppfylli ekki þetta lögbundna markmið. Fjárhagsaðstoð upp á 65.000 kr. sé ekki einu sinni næg til að greiða fyrir grunnframfærslu aldraðs einstaklings og þar með tryggi aðstoðin ekki lágmarkslífskjör líkt og lögin kveði á um.

Í 21. gr. laga nr. 40/1991 sé kveðið á um að félagsmálanefnd meti þörf og ákveði fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar. Þetta ákvæði samsvari í raun orðalaginu að félagsþjónustu verði að veita eftir einstaklingsbundið mat á raunverulegum fjárhagsþörfum umsækjanda. Hins vegar sé sú staðreynd að búa hjá ættingjum ekki lagaleg sönnun á fjárhagslegri framfærslu. Í þessum máli hafi öll gögn sem óskað hafi verið eftir af félagsþjónustunni, til að sýna að kærandi borgi leigu, verið lögð fram að fullu og á réttum tíma í samræmi við kröfur yfirvalda. Auk þess hafi leigufélagið útvegað formlega ritaða staðfestingu á því að ekki sé mögulegt að skipta reikningnum fyrir leigunni á milli tveggja aðila. Þrátt fyrir þetta hafi félagsþjónustunni mistekist að líta til þessara gagna og haldið áfram með málið líkt og kærandi beri engan leigukostnað. Það teljist vera vanræksla á að meta framlögð sönnunargögn á réttan hátt og brot á skyldu til að framkvæma raunverulegt einstaklingsbundið mat. Sambúð útiloki ekki persónuleg útgjöld líkt og mat, lyf, föt, hreinlætisvörur, samgöngur og aðrar nauðsynjar. Húsnæði útvegað af ættingjum, sérstaklega þar sem leigan sé sannarlega greidd, sé ekki hægt að jafna á við fulla fjárhagslega framfærslu. Það að minnka fjárhagsaðstoð einungis vegna sambúðar á sama tíma og framlögð gögn séu hunsuð, sýni formbundna og ósamrýmanlega nálgun sem sé ósamkvæm tilgangi ákvæðisins og almennum meginreglum íslensk stjórnsýsluréttar.

Einstaklingum sem sé veitt alþjóðleg vernd eigi rétt á jöfnum aðgangi að félagslegri þjónustu og þjónustu samkvæmt íslenskum lögum. Hvorki landslög né stjórnsýsluframkvæmd heimili að flytja skyldur ríkisins varðandi félagsþjónustu á einkaaðila, þar á meðal fjölskyldumeðlimi. Það að minnka fjárhagsaðstoð niður fyrir það stig að hún tryggi ekki lágmarksframfærslu aldraðs flóttamanns sé í mótsögn við stjórnarskrárbundna skyldu til að vernda viðkvæma einstaklinga og skyldur Íslands til að tryggja viðunandi lífskjör einstaklinga sem njóti alþjóðlegrar verndar.

Grunnfjárhæð atvinnuleysisbóta á Íslandi árið 2026, með 100% rétti til bóta, sé 383.870 kr. á mánuði. Á sama tíma sé ellilífeyrir árið 2026 rúmlega 365.592 kr. fyrir skatt. Á meðan þessar fjárhæðir sýni ekki formlegt framfærslulágmark þá sýni þær í meginatriðum innkomu aldraðra. Þessar fjárhæðir séu veittar óháð því hvort að aldraður einstaklingur búi einn eða með ættingjum og óháð því hvort þeir greiði leigu eða aðrar nauðsynjar. Í ljósi þessa sé nauðsynlegt að meta hversu nægjanlegar þessar fjárhæðir séu miðað við núverandi efnahagsaðstæður og íslenskt verðlag á matvælum, lyfjum og nauðsynjavörum og hvort réttlætanlegt sé að bera saman 65.000 kr. á mánuð fyrir aldraðan einstakling við þær. Auk þessa séu barnabætur á Íslandi að fjárhæð 130.000 kr. fyrir hvert barn til sjö ára aldurs óháð því hvort barnið búi hjá foreldrum sínum eða ekki. Á sama tíma sé fjárhæðin háð heimilistekjum og engin forsenda gerð fyrir því að sambúð foreldra útiloki sjálfstæðar þarfir barnsins. Foreldrum sé samt skylt að standa straum af aukakostnaði eins og tómstundastarfi, máltíðum og dagvistun. Bæturnar séu veittar fyrir þarfir barnsins sem slíkar. Í ljósi þessa sé erfitt að réttlæta hvers vegna upphæð eins lág og 65.000 kr. teljist nægjanleg fyrir aldraða einstaklinga sem séu ekki lengur vinnufærir eingöngu vegna þess að þeir búi hjá ættingja. Með tilliti til framangreindra upphæða skilji kærandi ekki hvernig hægt sé að lifa á fjárhagsaðstoð sem sé 65.000 kr., jafnvel þó hann sé X ára og búi með tengdadóttur sinni.

Af framangreindum ástæðum kæri kærandi ákvörðun um að lækka viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar í 65.000 kr. á grundvelli þess að hann búi með öðrum þó hann hafi lagt fram gögn sem sanni að hann greiði leigu. Hin kærða ákvörðun brjóti gegn 76. gr. stjórnarskrár Íslands, einstaklingsbundnu mati, meðalhófi og lagalegri skyldu sveitarfélaga til að tryggja lágmarkslífskjör samkvæmt íslenskum velferðarlögum. Kærandi óski eftir því að hin kærða ákvörðun verði endurskoðuð og henni breytt til að tryggja fjárhagsaðstoð sem nægi til að tryggja kæranda grunnframfærslu.

Við mat á þörf teljist X ára aldur vera þáttur sem skylt sé að taka tillit til þar sem kærandi sé einstaklingur sem hafi náð eftirlaunaaldri, geta hans til að sjá fyrir sér með vinnu sé takmörkuð eða engin og aukin hætta sé á fjárhagslegum, félagslegum og heilsufarslegum vanmætti. Þar af leiðandi sé ekki hægt að meta kæranda á sama hátt og einstakling á vinnualdri.

Þegar 21. gr. laga nr. 40/1991 sé beitt gagnvart öldruðum einstaklingi verði mat á þörf að vera einstaklingsbundið og byggjast á raunverulegum aðstæðum þar sem meðal annars sé tekið tillit til raunverulegra tekna umsækjanda, skorts á öðrum stuðningsleiðum, aldurstengdra útgjalda þar á meðal húsnæðiskostnaðar, hitakostnaðar, lyfja og læknisþjónustu. Þá verði að taka tillit til heilsufars kæranda og takmarkana á virkni og getu einstaklings til að stjórna fjármálum og lifa daglegu lífi sjálfstætt. Allt framangreint falli beint undir hugtakið þörf í skilningi ákvæðisins. Fyrir einstakling sem sé X ára þýði þetta að sveitarfélagið hafi ekki heimild til að hunsa aldur og viðkvæmni hans, ákvarðanir um fjárhagsaðstoð geti ekki verið formbundnar eða byggðar á stöðluðum forsendum og að synjun sem sé veitt án þess að einstaklingsbundið mat fari fram á raunverulegum þörfum hins aldraða geti verið brot á lögum nr. 40/1991.

Samkvæmt 21. gr. laga nr. 40/1991 sé skylt að framkvæma einstaklingsbundið mat á þörfum umsækjanda. Ef um sé að ræða einstakling sem sé X ára verði slíkt mat að taka mið af takmörkuðum möguleikum til að sjá fyrir sér sjálfum, föstum lífeyristekjum og auknum útgjöldum vegna aldurs og heilsufars.

Kærandi vilji einnig koma á framfæri þakklæti sínu til sjóðsins og félagsþjónustunnar fyrir aðstoðina sem þau hafi veitt B flóttamönnum og fjölskyldum þeirra á Íslandi. Stuðningurinn sem hafi verið veittur fólki sem hafi flúið stríðið hafi verið ómetanlegur og kunni kærandi innilega að meta þá viðleitni að hjálpa fjölskyldum að endurbyggja líf sitt í öryggi. Á sama tíma óski kærandi eftir því að skýra fjölskylduaðstæður sínar. Tengdadóttir kæranda sé einstæð móðir að ala upp sex ára gamalt barn og sé í tveimur vinnum. Hún vinni til skiptist á vöktum í um það bil 11 til 12 klukkustundir á dag ásamt því að stunda háskólanám. Það sé ljóst að tekjur af einu starfi dugi ekki til að tryggja barninu viðunnandi og lágmarkslífskjör og þess vegna sé hún neydd til að vera í tveimur vinnum. Sonur kæranda geti ekki yfirgefið B vegna stríðsástandsins sem ríki þar og B laga sem banni mönnum á vinnualdri að yfirgefa landið á meðan herlög séu í gildi. Sem aldraður einstaklingur hafi kærandi komið til Íslands sérstaklega til þess að aðstoða tengdadóttur sína með barnið svo að hún gæti haldið áfram að vinna og séð fyrir barninu sínu.

Það myndi setja óeðlilega og ósanngjarna byrði á tengdadóttur kæranda ef hann þyrfti að vera fjárhagslega háður henni þar sem hún sé nú þegar undir miklu álagi. Tengdadóttirin vinni langa vinnudaga og stundi nám til að uppfylla grunnþarfir fjölskyldu sinnar. Sú forsenda að sambúð feli í sér fjárhagslegan stuðning endurspegli ekki raunveruleikann í stöðu kæranda og hætti á að grafa undan stöðugleika fjölskyldu sem sé nú þegar að gera allt sem í hennar valdi standi til að vera sjálfbjarga. Kærandi hafi ekki komið hingað til lands til að fela sig eða því hann sé hræddur við stríðið. Á hans aldri breyti það engu fyrir hann og að hann hafi eitthvað að missa. Kærandi eigi tvo yndislega syni og afastrák sem hann hafi skilið eftir í B. Einn sona kæranda sé hermaður en hann hafi verið að verja B frá upphafi innrásarinnar og nú sé elsti afastrákurinn hans líka að berjast. Kærandi hafi komið hingað til lands þar sem tengdadóttir hans hafi þurft aðstoð með dóttur sína. Sonur kæranda geti ekki verið hér á landi þar sem hann geti ekki yfirgefið B samkvæmt lögum þar í landi. Þökk sé þeirri staðreynd að kærandi sé hér á landi að annast afastelpuna sína geti tengdadóttir hans unnið tvö störf ásamt því að stunda háskólanám. Á þeim takmarkaða frítíma sem tengdadóttirin hafi geti hún einbeitt sér að dóttur sinni, séð um heimilið og annast kæranda.

Kærandi sé því innilega þakklátur fólkinu á Íslandi fyrir þeirra aðstoð. Hins vegar, frá fjárhagslegu sjónarhorni og miðað við aðstæður, séu 65.000 kr. á mánuði ekki nægjanlegar til að tryggja eðlileg og viðunandi grunnlífskjör á Íslandi, jafnvel þó að kærandi búi með ættingjum.

Í athugasemdum vegna greinargerðar Reykjanesbæjar greini kærandi frá því að hann vilji skýra nokkur atriði. Kærandi hafi aldrei reynt að fela þá staðreynd að hann búi með tengdadóttur sinni. Það hafi verið ástæða þess að hann hafi komið til Íslands, til að aðstoða tengdadóttur sína við að sjá um barn hennar. Barnabarn kæranda sé nú sjö ára gömul. Kærandi hafi tekið þetta fram í fyrsta viðtali sínu við Útlendingastofnun þann 27. desember 2023.

Kæranda langi mikið til að snúa aftur heim til D til að vera með sonum sínum og afastrák sem þjóni í hernum. Aftur á móti geti kærandi ekki yfirgefið tengdadóttur sína þar sem hún myndi ekki ráða við vinnuálagið, vaktakerfi þar sem unnið sé 2-2-3, auk annarra hlutastarfstöðu þar sem launin úr aðalstarfinu dugi ekki til. Ef kærandi myndi fara myndi tengdadóttirin líklega þurfa að hætta báðum störfum og einbeita sér að því að annast barn sitt þar sem barnið sé enn of ungt til að ganga eitt til og frá skóla og vera eitt heima.

Miðað við upphæð fjárhagsaðstoðarinnar sem kærandi fái, um það bil 65.000 kr. á mánuði, sé hann í raun fjárhagslega háður tengdadóttur sinni. Áður hafi hann getað hjálpað henni að greiða leikskólakostnað og síðar hafi hann getað lagt inn sinn hluta af íbúðarleigunni, 75.000 kr. á mánuði, en það geti hann ekki lengur.

Kærandi taki fram að það sé rétt að hann búi við góðar aðstæður en tengdadóttir hans hafi aðeins fimm frídaga á mánuði, ef það. Restina af tímanum sé hún að vinna. Á kvöldin eftir vinnu stundi tengdadóttirin nám en hún sé að sækja íslenskunámskeið hjá Háskólanum á Bifröst þrisvar í viku. Þetta sé hin raunverulegi kostnaður við að búa við góðar aðstæður, þar sem það sé mikilvægt fyrir tengdadótturina að dóttir hennar alist upp í góðu hverfi, búi í góðri íbúð, borði vel og sæki góðan skóla. Tengdadóttirin hjálpi dóttur sinni oft með heimavinnu þegar hún komi örmagna heim úr vinnu. Auk þessa lifi kærandi nú alfarið á kostnað tengdadóttur sinnar. Áður, þökk sé Reykjanesbæ og þeirrar fjárhagsaðstoðar sem hann hafi fengið hafi hann getað lagt eitthvað af mörkum til heimilisins en hann hafi verið að fá um það bil 145.000 kr. á mánuði, sem kærandi hafi talið nægilegt og sé allt sem hann biðji um. Þessum fjármunum hafi einnig verið varið innan íslenska hagkerfisins.

Kærandi greinir frá mánaðarlegum útgjöldum tengdadóttur sinnar sem hún beri ein. Tengdadóttir kæranda hafi fengið kennitölu 12. maí 2022 og byrjað að vinna 1. júlí 2022. Síðan þá hafi hún aldrei reitt sig á atvinnuleysisbætur eða félagslegaþjónustu. Tengdadóttirin hafi unnið á hóteli á meðan hún hafi verið að sjá um þriggja ára gamalt barn sitt. Í fyrstu hafi hún ekki einu sinni átt bíl. Á meðan hún, lögfræðingur með háskólagráðu og sextán ára starfsreynslu hafi verið að þrífa hótel herbergi hafi barnabarn kæranda sofið í herbergjum sem hótelgestir hefðu nýlega yfirgefið. Þrátt fyrir allt þetta hafi hún aldrei beðið sveitarfélagið eða stjórnvöld um aðstoð.

Frá 1. október 2026 þurfi þau að flytja úr núverandi íbúð sinni þar sem að leigufélagið ALMA, eigandi eignarinnar, sé að selja íbúðina. Þeim hafi verið boðinn sá möguleiki að búa í tveimur aðskildum íbúðum við hliðina á hvorri annarri með aðskildum leigusamningum. Tengdadóttir kæranda hafi hafnað þeirri hugmynd, jafnvel þó að slíkt fyrirkomulag myndi gera kæranda kleift að fá hámarks fjárhagsaðstoð. Í staðinn hafi þau fundið íbúð með 325.000 kr. mánaðarleigu sem sé töluvert dýrara en núverandi íbúð þeirra sem fari á sölu 1. október 2026. Tengdadóttirin sé að ganga inn í þriggja ára leigusamning.

Vegna þessa sé kærandi sammála Reykjanesbæ um að hann búi við góðar aðstæður. Hins vegar sé það tengdadóttir hans sem greiði fyrir þessar góðu aðstæður með hennar heilsu, tíma, takmarkaða tímanum sem hún fái að eyða með barninu sínu og með því að styðja kæranda fjárhagslega.

Tengdadóttirin hafi heldur enga aðra valkosti. Í B hafi hún verið lögfræðingur með sextán ára starfsreynslu, góð laun og virta félagslega stöðu. Hér sé hún flóttamaður rétt eins og barnabarn kæranda og kærandi sjálfur. Tengdadóttirin þéni flóttamannalaun sem dugi varla fyrir útgjöldum hennar en hún sjái líka um kæranda.

Á sama tíma virðist Reykjanesbær ekki taka tillit til þess að kærandi sé X ára gamall maður með útgjöld vegna lyfja við blöðruhálskirtilsbólgu, verkjastillingu vegna málmplatna í bæði handlegg og mjöðm og lyf til að draga úr magasýru sem og venjulegra útgjalda vegna matar, fatnaðar, hreinlætisvara og annarra nauðsynjavara. Af þeim sökum óski kærandi þess að upphæð fjárhagsaðstoðar til hans verði endurskoðuð. Kærandi skilji ekki hvernig það sé mögulegt að búa á Íslandi á 65.000 kr. á mánuði, jafnvel þó einstaklingur búi við eitthvað sem sé lýst sem góðum aðstæðum.

III.  Sjónarmið Reykjanesbæjar

Í greinargerð Reykjanesbæjar kemur fram að kærandi búi hjá tengdadóttur sinni og að fjárhæð fjárhagsaðstoðar miðist að þeim aðstæðum, sbr. 7. mgr. 11. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð.

„Í þeim tilvikum sem umsækjandi býr hjá foreldrum eða ættingjum og á rétt á fjárhagsaðstoð getur mánaðarleg fjárhagsaðstoð numið allt að grunnfjárhæð x 0,4.“

Samkvæmt Þjóðarsýn hafi kærandi verið nýskráður á Íslandi þann 27. desember 2023. Hann hafi því verið X ára þegar hann hafi flutt til landsins og hafi því ekki átt rétt á ellilífeyrisgreiðslum frá Tryggingarstofnun ríkisins. Kærandi fái tæpar 20.000 kr. í lífeyrisgreiðslur frá B svo réttur hans til fjárhagsaðstoðar frá Reykjanesbæ taki mið af því. Viðmiðunarfjárhæð 0,4 sé 81.832 kr. og lækki hún sem nemi þeirri fjárhæð sem hann fái greidda frá B í hverjum mánuði.

Kærandi hafi fyrst sótt um fjárhagsaðstoð sér til framfærslu frá Reykjanesbæ í janúar 2024 og hafi samfleytt fengið aðstoð frá þeim tíma. Kærandi hafi  komið til Íslands til þess að aðstoða tengdadóttur sína með dóttur hennar, það er afabarn kæranda. Sonur kæranda, það er eiginmaður tengdadótturinnar og faðir barnabarnsins, búi og starfi í B. Þar eigi kærandi annan son og fjölskyldu þess sonar. Kærandi fari því reglulega til B til þess að heimsækja syni sína og barnabarn sem hann eigi þar. Kærandi láti yfirleitt vita þegar hann fari til B og fái þá ekki greidda aðstoð fyrir þá daga sem hann sé ytra.

Kærandi búi við góðar aðstæður hjá tengdadóttur sinni og barnabarni. Hann aðstoði við heimilishald og sjái um að keyra barnabarnið í og úr skóla og tómstundir. Tengdadóttirin sé virk á vinnumarkaði hér á landi og sonur hans starfi í ráðuneyti í B. Hinn sonur kæranda í B sé í hernum þar ytra og hafi kærandi miklar áhyggjur af honum og fari því ört í heimsókn til fjölskyldunnar í B.

Kærandi hafi komið í þjónustu velferðarsviðs Reykjanesbæjar í gegnum Vinnumálastofnun en hann hafi fengið greiddan dagpening frá Vinnumálastofnun fyrstu vikur sínar á Íslandi. Velferðarsvið hafi tekið við máli kæranda af Vinnumálastofnun en hann hafi ekki farið í samræmda móttökuþjónustu flóttafólks. Kærandi hafi haft litla þörf fyrir aðra aðstoð en fjárhagsaðstoð. Fyrst um sinn hafi kærandi fengið aðstoð eins og hann byggi með öðrum, það er samkvæmt viðmiðunarfjárhæð 0,8 en í ágúst 2025 hafi velferðarsvið orðið vart við að hann byggi með tengdadóttur sinni og hafi því lækkað viðmiðunarfjárhæðina til hans í 0,4.

Kærandi og tengdadóttir hans séu óánægð með að ekki sé tekið tillit til aðstæðna hans þar sem hann eigi ekki rétt á almennum ellilífeyrisgreiðslum og geti ekki séð fyrir sér með þeirri innkomu sem hann fái. Kærandi sé upp á fjölskyldu sína kominn.

Kærandi hafi áfrýjað afgreiðslu velferðarsvið þann 3. febrúar 2026 með þeim rökum að Reykjanesbær tryggi honum ekki lágmarks framfærsluskilyrði. Á fundi áfrýjunarnefndar velferðarráðs þann 13. febrúar 2026 hafi afgreiðsla velferðarsvið á fjárhagsaðstoð til framfærslu út frá viðmiðunarfjárhæð 0,4 verið staðfest og hafi afgreiðsla umsókna hans frá þeim tíma verið með þeim hætti. Bókun áfrýjunarnefndar sé því miður rangt skráð í fundargerð velferðarráðs en þar sé afgreiðsla fundarins bókuð sem að synjun á umsókn kæranda sé staðfest en hið rétta sé að verið sé að óska eftir endurskoðun á viðmiðunarfjárhæð líkt og fram komi í erindi bókunarinnar í fundargerð áfrýjunarnefndar. Afgreiðsla fundarins hafi verið sú að staðfesta afgreiðslu velferðarsviðs um að greiða viðmiðunarfjárhæð 0,4 til kæranda út frá því að hann búi með ættingjum og njóti hagræðis af því. Á næsta fundi áfrýjunarnefndar, sem áætlaður sé þann 10. júní 2026, verði gerð leiðrétting á bókun fundarins frá febrúar af þessum sökum.

Velferðarsvið meti það sem svo að kærandi búi við góð skilyrði, hann eigi ekki við félagslegan vanda að etja og geti vel ráðið fram úr málum sínum með vísan í 2. mgr. 12. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Í ljósi aðstæðna kæranda og fleira eldra fólks frá B telji Reykjanesbær rétt að benda á aðstæður þessa fólks hér á Íslandi. Um sé að ræða einstaklinga sem eigi ekki rétt á lífeyrisgreiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins og sé því gert að vera til lengri tíma með fjárhagsaðstoð til framfærslu frá sveitarfélögunum.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjanesbæjar um að lækka viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar til kæranda. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 11. gr. reglna velferðarsviðs Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð.

Fyrir liggur að hin kærða ákvörðun var tekin fyrir á fundi áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar 13. febrúar 2026. Kæranda var leiðbeint að unnt væri að skjóta þeirri ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála sem er í samræmi við 3. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga en ákvæðið er svohljóðandi:

„Sveitarstjórn getur ákveðið í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins að áður en hægt er að kæra stjórnvaldsákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. 1. mgr., skuli máli fyrst skotið til félagsmálanefndar eða annars tiltekins aðila innan stjórnsýslu sveitarfélaga. Nýti sveitarstjórn þessa heimild skal málsaðila leiðbeint bæði um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum og skal niðurstaða liggja fyrir innan 30 daga.“

Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 9. júlí 2025, í máli nr. 12250/2023, kom til skoðunar sú afgreiðsla úrskurðarnefndar velferðarmála að framsenda kæru til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar með vísan til þess að málið hefði ekki verið tekið fyrir hjá áfrýjunarnefndinni sem væri nauðsynlegur undanfari kæru til nefndarinnar. Var það meðal annars niðurstaða umboðsmanns að aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku í tengslum við félagsþjónustu borgarinnar væri ekki í samræmi við lög. Í álitinu segir meðal annars svo:

„Um heimildir velferðarráðs Reykjavíkurborgar, áfrýjunarnefndar ráðsins og velferðarsviðs til fullnaðarafgreiðslu mála er hvorki mælt í samþykkt um stjórn borgarinnar nr. 1020/2019 né viðaukum við hana líkt og lög nr. 40/1991, sveitarstjórnarlög og samþykktin sjálf gera ráð fyrir, sbr. það sem áður hefur verið rakið. Þvert á móti liggur ekki annað fyrir en að framsal valds til töku ákvarðana í félagsþjónustu sveitarfélagsins hafi verið útfært í þeirri samþykkt sem borgarstjórn hefur sett sér fyrir velferðarráð, reglum um þá félagsþjónustu sem borgin veitir, þar á meðal framangreindum reglum um stoð- og stuðningsþjónustu við fatlað fólk, og reglum sem settar hafa verið um áfrýjunarnefnd velferðarráðs. Enn fremur liggur fyrir að hvorki samþykktin fyrir velferðarráð né reglur borgarinnar um stoð- og stuðningsþjónustu hlutu þá málsmeðferð sem sveitarstjórnarlög gera ráð fyrir hvað snertir samþykktir um stjórn sveitarfélaga. Þá hefur samþykkt um velferðarráð ekki verið birt í Stjórnartíðindum. Því verður að leggja til grundvallar að sú aðferð Reykjavíkurborgar við að framselja vald til ákvörðunartöku um stuðningsþjónustu, sem hér hefur verið lýst, sé ekki í samræmi við lög. Líkt og áður greinir hefur raunar komið fram af hálfu sveitarfélagsins að nauðsynlegt sé að gera úrbætur á umgjörð valdframsals til starfsmanna til afgreiðslu mála í félagsþjónustu þess. Því verður jafnframt að leggja til grundvallar að hvorki starfsmaður velferðarsviðs né áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi verið bær til þess að taka ákvörðun í máli A.“

Með vísan til framangreinds álits umboðsmanns Alþingis og vegna annars máls sem varðaði Reykjanesbæ og var til meðferðar hjá úrskurðarnefnd velferðarmála óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá Reykjanesbæ um hvernig þessum málum væri háttað hjá sveitarfélaginu, þ.e. hvort mælt væri fyrir um heimildir starfsmanna og áfrýjunarnefndar til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í kjölfarið upplýsti Reykjanesbær úrskurðarnefndina um að svo væri ekki en vegna ábendingu nefndarinnar hefði verið gerð breyting á bæjarmálasamþykktinni þann 16. júní 2026. Nýrri grein hafi verið bætt við í viðauka 1.1. sem sé svohljóðandi:

„Velferðarráð skipar tvo fulltrúa úr ráðinu, einn frá meirihluta og annan frá minnihluta, til setu í áfrýjunarnefnd velferðarráðs og felur áfrýjunarnefnd valdheimild til fullnaðarafgreiðslu umsókna sem falla utan reglna um félagslega þjónustu í Reykjanesbæ, þar á meðal reglum um fjárhagsaðstoð, sérstakan húsnæðisstuðning, félagslegt húsnæði og stoð- og stuðningsþjónustu, varði þau ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun og víki þau ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum. Ákvarðanir áfrýjunarnefndar velferðarráðs eru endanlegar, en hægt að kæra þær til úrskurðarnendar velferðarmála og skal málsaðila leiðbeint um málskot og kæruleið þegar ákvörðun í máli er kynnt honum.“

Í sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 er kveðið á um framsal sveitarstjórnar á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála. Þar segir í 2. mgr. 40. gr. að ályktanir nefnda sveitarfélaga sem ekki hafi verið falin fullnaðarafgreiðsla máls samkvæmt lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins teljist tillögur til sveitarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar. Sveitarstjórnum er hins vegar fengin heimild til að ákveða í samþykktinni að fela fastanefnd eða einstökum starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, meðal annars að lög eða eðli máls mæli ekki sérstaklega gegn því, sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laganna. Af því leiðir að starfsmönnum sveitarfélags er ekki heimilt að taka stjórnvaldsákvarðanir í málum einstaklinga á sviði félagsþjónustu nema frá því sé gengið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

Í ljósi þess sem að framan er rakið um fyrirkomulag valdframsals til fullnaðarafgreiðslu mála á grundvelli laga nr. 40/1991 er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að hin kærða ákvörðun hafi á þeim tíma sem hún var tekin ekki verið tekin af þar til bærum aðila hjá Reykjanesbæ. Þar sem réttra formreglna var ekki gætt við töku ákvörðunarinnar er ljóst að málsmeðferð var að því leyti ábótavant. Það er meginregla í stjórnsýslurétti að valdþurrð leiði til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar og því telur úrskurðarnefndin rétt að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og vísa málinu til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi getur sent nýja kæru til nefndarinnar þegar ný ákvörðun liggur fyrir frá áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar, sé hann ekki sáttur við niðurstöðuna.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 13. febrúar 2026, um að lækka viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar til A, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir