Mál nr. 328/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 328/2026
Fimmtudaginn 13. ágúst 2026
A gegn Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 7. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Fæðingarorlofssjóðs, dags. 17. og 28. apríl 2026, um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið nóvember 2025 til og með febrúar 2026 og að synja beiðni hennar um niðurfellingu 15% álags.
I. Málavextir og málsmeðferð
Kærandi þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu nóvember 2025 til og með febrúar 2026. Með ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 17. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en heimilt væri fyrir tímabilið nóvember 2025 til og með febrúar 2026. Henni bæri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði 546.743 kr., að meðtöldu 15% álagi. Með erindi, dags. 27. apríl 2026, fór kærandi fram á niðurfellingu álagsins og lagði fram frekari skýringar vegna málsins. Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 28. apríl 2026, var beiðni kæranda um niðurfellingu álagsins synjað.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. maí 2026. Með bréfi, dags. 12. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst 26. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi krefjist þess að endurkrafa og álag verði fellt niður og að málið verði ekki metið sem hefðbundið tilvik ofgreiðslu heldur sem afleiðing rangrar og ófullnægjandi málsmeðferðar stjórnvalds á fyrri stigum málsins.
Fyrir liggi að réttur fjölskyldunnar til nýtingar og tilfærslu fæðingarorlofs hafi upphaflega verið ranglega takmarkaður af hálfu stjórnvalds þrátt fyrir að aðstæður hafi fallið undir tilgang og efni 9. gr. laga nr. 144/2020, þar sem faðir barnsins hafi verið á endurhæfingarlífeyri og því ófær um að nýta rétt sinn með hefðbundnum hætti. Sú afstaða hafi síðar verið leiðrétt eftir andmæli og frekari málsmeðferð af hálfu Fæðingarorlofssjóðs sjálfs og hafi greiðslur til kæranda byggt á þeirri leiðréttingu og samþykki stjórnvalds.
Á umræddu tímabili hafi kærandi verið í föstu 70% starfshlutfalli samhliða 30% hlutdeildarfæðingarorlofi sem sé heimilt samkvæmt lögum nr. 144/2020. Meðfylgjandi gögn frá vinnuveitanda og launaseðlar sýni að starfshlutfall og launatekjur kæranda hafi verið stöðugar, fyrirsjáanlegar og byggðar á föstum ráðningarkjörum. Engar rangar eða villandi upplýsingar hafi verið veittar og engin tilraun gerð til að afla greiðslna með óeðlilegum eða ófyrirséðum hætti.
Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs hafi hins vegar ekki verið gerð fullnægjandi grein fyrir þeirri aðferðarfræði sem lögð sé til grundvallar útreikningi endurkröfunnar samkvæmt 25. gr. laga nr. 144/2020. Í ákvörðun stjórnvalds komi ekki fram með skýrum og gagnsæjum hætti hvernig raunverulegar launatekjur kæranda séu umreiknaðar í þær viðmiðunartekjur sem séu sagðar leiða til skerðingar greiðslna, né hvernig sú fjárhæð sem krafist sé endurgreiðslu á sé fengin. Þá sé ekki tekin efnisleg afstaða til þeirra gagna og skýringa sem kærandi hafi lagt fram. Með þessu telji kærandi að rannsóknarskylda stjórnvalds samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi ekki verið uppfyllt með fullnægjandi hætti, auk þess sem rökstuðningur ákvörðunar uppfylli ekki þær kröfur sem leiði af 22. gr. sömu laga. Þá verði einnig að líta til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga, enda sé um verulega íþyngjandi ákvörðun að ræða gagnvart foreldri sem hafi tekið við greiðslum í góðri trú á grundvelli samþykktrar málsmeðferðar stjórnvaldsins sjálfs.
Sérstaklega sé mótmælt beitingu 15% álags samkvæmt 2. mgr. 41. gr. laga nr. 144/2020. Álag samkvæmt ákvæðinu verði ekki lagt á sjálfkrafa án mats á aðstæðum máls og góðri trú viðkomandi. Í þessu máli liggi fyrir að kærandi hafi veitt allar upplýsingar sem óskað hafi verið eftir, kærandi hafi ekki haft tilefni til að ætla annað en að greiðslur væru réttar og hafi byggt með réttu á ákvörðunum og leiðbeiningum stjórnvalds. Því verði ekki séð að skilyrði séu uppfyllt til beitingar slíkra viðurlaga. Með vísan til framangreinds og 2. mgr. 41. gr. laga nr. 144/2020 sé þess krafist að ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs verði felld úr gildi og að endurkrafa verði felld niður í heild sinni ásamt 15% álaginu.
III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs
Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærð sé ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið nóvember 2025 til og með febrúar 2026 þar sem hún hafi fengið of háar greiðslur frá sínum vinnuveitendum á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu X 2024.
Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 8. apríl 2026, hafi athygli hennar verið vakin á því að stofnunin væri með til meðferðar mál hennar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu fyrir tímabilið nóvember 2025 til og með febrúar 2026. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, skýringum vinnuveitanda og skýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.
Launaseðlar og skýringar vinnuveitenda hafi borist í tölvupósti, dags. 16. apríl 2026. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 17. apríl 2026, sem sé hin kærða ákvörðun. Litið hafi verið svo á samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins og innsendum skýringum og gögnum að kærandi hefði fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof og 2. mgr. 41. gr. laganna. Þann 27. apríl 2026 hafi borist beiðni frá kæranda um niðurfellingu á 15% álagi. Með bréfi, dags. 28. apríl 2026, hafi því erindi verið hafnað.
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 144/2020 sé fæðingar- og foreldraorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu barns, frumættleiðingu barns sem sé yngra en átta ára og töku barns sem sé yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra til fæðingarorlofs og í 13. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.
Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 144/2020 komi fram að þrátt fyrir 1. mgr. 13. gr. sé starfsmanni með samkomulagi við vinnuveitanda heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri en eitt tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr. Þó megi aldrei taka fæðingarorlof skemur en hálfan mánuð í senn. Vinnuveitandi skuli leitast við að koma til móts við óskir starfsmanns um tilhögun fæðingarorlofs samkvæmt ákvæði þessu.
Í 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020 sé kveðið á um skerðingu á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þar komi meðal annars fram í 1. og 2. málsl. að réttur foreldris sem sé starfsmaður og/eða sjálfstætt starfandi, sbr. 3. til 5. tölul. 4. gr., til greiðslna í fæðingarorlofi sé bundinn því að foreldri uppfylli skilyrði um rétt til fæðingarorlofs samkvæmt III. og IV. kafla og leggi niður launuð störf á því tímabili sem það nýti rétt sinn til fæðingarorlofs. Greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem myndi stofn til tryggingagjalds samkvæmt lögum um tryggingagjald og séu hærri en sem nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 24. gr. og meðaltals heildarlauna á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 4. mgr. 23. gr. í réttu hlutfalli við tilhögun fæðingarorlofs foreldris í þeim almanaksmánuði eða hluta úr almanaksmánuði sem greitt sé fyrir, sbr. 4. mgr. 24. gr. og 13. gr., skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Þá komi fram í 7. og 8. málsl. sömu greinar að heimilt sé að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launahækkana sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris frá því að viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. ljúki og fram að fyrsta degi fæðingarorlofs foreldris. Taka skuli tillit til breytinga á framangreindu tímabili á sama hátt og gert sé við útreikninga á meðaltali heildarlauna foreldris samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr.
Með umsókn, dags. 7. október 2024, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barns sem hafi fæðst X 2024. Tilkynningar auk breytinga hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hún hafi verið afgreidd í fæðingarorlof í samræmi við þær, sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 6. nóvember 2025.
Óumdeilt sé að kærandi hafi átt aukinn rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga nr. 144/2020. Kærandi hafi því átt rétt til greiðslna í alls 12 mánuði. Ágreiningur málsins lúti að greiðslu launa samhliða greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Á viðmiðunartímabili kæranda samkvæmt 1. mgr. 23 gr. laga nr. 144/2020 hafi viðmiðunarlaun hennar verið 521.031 kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili hafi lokið og fram að upphafi fæðingarorlofs hafi þau hækkað í 635.516 kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda, henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu samkvæmt 7. og 8. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020.
Tímabilið 1. til 30. nóvember 2025 hafi kærandi fengið greiddar 125.048 kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði henni því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem hafi numið mismun á 635.516 kr. og fjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, eða 510.469 kr. án þess að það kæmi til skerðingar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir nóvember 2025 hafi kærandi þegið 740.726 kr. í laun. Á launaseðli megi sjá að í þeim mánuði hafi kærandi fengið greidda desemberuppbót að fjárhæð 77.000 kr. sem rétt sé að undanskilja við útreikning á ofgreiðslu. Laun fyrir nóvember 2025 séu því 663.726 kr. Í skýringum kæranda og vinnuveitanda hafi komið fram að um sé að ræða greiðslu launa fyrir vinnu unna í nóvember 2025, auk desemberuppbótarinnar. Hún hafi því fengið 153.257 kr. hærri greiðslu frá vinnuveitendum sínum en hún hafi mátt og beri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir nóvember 2025 sé því 118.857 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Tímabilið 1. til 31. desember 2025 hafi kærandi fengið greiddar 125.047 kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði henni því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem hafi numið mismun á 635.516 kr. og fjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, eða 510.469 kr. án þess að það kæmi til skerðingar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. máls. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir desember 2025 hafi kærandi þegið 657.391 kr. í laun. Í skýringum kæranda og vinnuveitanda hafi komið fram að um sé að ræða greiðslu launa fyrir vinnu unna í desember 2025. Hún hafi því fengið 146.922 kr. hærri greiðslu frá vinnuveitendum sínum en hún hafi mátt og beri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir desember 2025 sé því 118.857 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Tímabilið 1. til 31. janúar 2026 hafi kærandi fengið greiddar 125.047 kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði henni því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem hafi numið mismun á 635.516 kr. og fjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, eða 510.469 kr. án þess að það kæmi til skerðingar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. máls. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir janúar 2026 hafi kærandi þegið 686.513 kr. í laun. Í skýringum kæranda og vinnuveitanda hafi komið fram að um sé að ræða greiðslu launa fyrir vinnu unna í janúar 2026. Hún hafi því fengið 176.044 kr. hærri greiðslu frá vinnuveitendum sínum en hún hafi mátt og beri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir janúar 2026 sé því 118.857 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Tímabilið 1. til 28. febrúar 2026 hafi kærandi fengið greiddar 125.047 kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði henni því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem hafi numið mismun á 635.516 kr. og fjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, eða 510.469 kr. án þess að það kæmi til skerðingar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. máls. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir febrúar 2026 hafi kærandi þegið 686.513 kr. í laun. Í skýringum kæranda og vinnuveitanda hafi komið fram að um sé að ræða greiðslu launa fyrir vinnu unna í febrúar 2026. Hún hafi því fengið 176.044 kr. hærri greiðslu frá vinnuveitendum sínum en hún hafi mátt og beri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir febrúar 2026 sé því 118.857 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Í 41. gr. laga nr. 144/2020 sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eða hærri fæðingarstyrk en því hafi borið samkvæmt ákvæðum laganna miðað við álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Fella skuli niður álagið samkvæmt þessari málsgrein sýni foreldri fram á með skriflegum gögnum að því verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Í athugasemdum með frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 144/2020 segi meðal annars um 2. mgr. 41. gr. að enn fremur þyki mikilvægt að árétta að álagið sem lagt sé á fyrrnefnda endurgreiðslu foreldra sé ekki bundið við að foreldri hafi af ásettu ráði ætlað sér að fá hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eða fæðingarstyrk en því hafi borið samkvæmt ákvæðum laganna heldur nægi gáleysi foreldris hvað það varði. Í því sambandi megi nefna þau tilvik þegar foreldri upplýsi ekki Fæðingarorlofssjóð um breyttar aðstæður sínar sem gætu hugsanlega leitt til þess að viðkomandi foreldri fái greiddar hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjói en því hafi borið samkvæmt ákvæðum frumvarpsins.
Samkvæmt skýringum kæranda sé um að ræða greiðslu launa fyrir vinnu í nóvember 2025 til og með febrúar 2026. Þar sem óumdeilt sé að kærandi hafi fengið greitt frá vinnuveitanda vegna vinnu fyrir sama tímabil og greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði eigi við um verði ekki séð að kæranda verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í samræmi við það sé ekki tilefni til að fella niður 15% álag á kæranda.
Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 144/2020 komi fram að foreldri sé heimilt að taka fæðingarorlof samhliða skertu starfshlutfalli og að ekki sé heimilt að taka fæðingarorlof skemur en hálfan mánuð í senn. Foreldri geti því ekki nýtt fæðingarorlof yfir staka daga heldur þurfi hvert tímabil fæðingarorlofs að ná yfir að minnsta kosti hálfan mánuð í senn. Í tilfelli kæranda hafi hún sótt um 30% fæðingarorlof fyrir tímabilið frá 1. nóvember 2025 til 28. febrúar 2026. Kærandi hafi verið afgreidd í fæðingarorlof í samræmi við tilkynningar þar um. Greiðslur frá vinnuveitanda hafi verið hærri en sem nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 24. gr. og meðaltals heildarlauna á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. í réttu hlutfalli við tilhögun fæðingarorlofs kæranda í þeim almanaksmánuði sem greitt hafi verið fyrir, sbr. 4. mgr. 24. gr. og 13. gr. laganna., og skuli því koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt skýrum fyrirmælum í 25. gr. laganna og athugasemdum við þá grein.
Í kæru taki kærandi fram að hún hafi verið í föstu 70% starfshlutfalli samhliða 30% fæðingarorlofi og skýringar vinnuveitanda auk launaseðla sýni að starfshlutfall og launatekjur hafi verið stöðug, fyrirsjáanleg og byggð á föstum ráðningarkjörum. Í 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020 komi meðal annars fram að réttur foreldris til greiðslna í fæðingarorlofi sé bundinn því að foreldri uppfylli skilyrði um rétt til fæðingarorlofs og leggi niður launuð störf á því tímabili sem það nýti rétt sinn til fæðingarorlofs. Í greiðsluáætlun til kæranda sé einnig bent á að „þegar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði er dreift samhliða vinnu getur komið til skerðingar ef heildargreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og frá vinnuveitanda fara yfir meðaltal heildarlauna foreldris fyrir fyrsta dag fæðingarorlofs, óháð starfshlutfalli og hlutfalli fæðingarorlofs.“
Við ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 17. apríl 2026, hafi legið fyrir launaseðlar og skýringar kæranda og vinnuveitanda og beri skýringar ekki með sér annað en að um sé að ræða laun fyrir vinnu unna sama tímabil og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eigi við um. Fæðingarorlofssjóður telji því rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 uppfyllta sem og aðrar reglur stjórnsýslulaga.
Samkvæmt gögnum málsins sé óumdeilt að kærandi hafi fengið greitt frá vinnuveitanda fyrir sama tímabil og greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði eigi við. Í lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 144/2020 sé ekki að finna heimild til að fella niður eða lækka endurkröfu vegna aðstæðna eins og þeirra sem lýst sé í kæru á högum kæranda og fjölskyldu hennar.
Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda 475.429 kr. að viðbættu 15% álagi, 71.314 kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði 546.743 kr., sbr. bréf til hennar ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 17. apríl 2026.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið nóvember 2025 til og með febrúar 2026 og ákvörðun sjóðsins um að synja beiðni kæranda um niðurfellingu 15% álags.
Í V. kafla laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof er kveðið á um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Þar segir í 1. mgr. 25. gr. að réttur foreldris sem sé starfsmaður og/eða sjálfstætt starfandi, sbr. 3. til 5. tölul. 4. gr., til greiðslna í fæðingarorlofi sé bundinn því að foreldri uppfylli skilyrði um rétt til fæðingarorlofs samkvæmt III. og IV. kafla og leggi niður launuð störf á því tímabili sem það nýti rétt sinn til fæðingarorlofs. Greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem mynda stofn til tryggingagjalds samkvæmt lögum um tryggingagjald og eru hærri en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 24. gr. og meðaltals heildarlauna á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 4. mgr. 23. gr. í réttu hlutfalli við tilhögun fæðingarorlofs foreldris í þeim almanaksmánuði eða hluta úr almanaksmánuði sem greitt er fyrir, sbr. 4. mgr. 24. gr. og 13. gr., skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Um þetta segir í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga nr. 144/2020 að gert sé ráð fyrir því að foreldri geti fengið þann tekjumissi sem Fæðingarorlofssjóði sé ekki ætlað að bæta greiddan frá vinnuveitanda samhliða fæðingarorlofi. Samkvæmt 4. málsl. 1. mgr. 25. gr. skulu eingöngu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi í hverjum almanaksmánuði koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Um þetta segir í athugasemdum við ákvæðið að átt sé við tímabil sem hefjist frá og með fyrsta degi fæðingarorlofs foreldris innan tiltekins almanaksmánaðar og ljúki frá og með þeim degi sem foreldrið nýti ekki lengur rétt sinn til fæðingarorlofs innan tiltekins almanaksmánaðar. Hið sama gildi hvort sem foreldri nýti rétt sinn til fæðingarorlofs að fullu eða samhliða minnkuðu starfshlutfalli á fyrrnefndu tímabili.
Í 7. og 8. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna kemur fram að þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launahækkana sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris frá því að viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 4. mgr. 23. gr. ljúki og fram að fyrsta degi fæðingarorlofs foreldris. Taka skuli tillit til breytinga á framangreindu tímabili á sama hátt og gert sé við útreikninga á meðaltali heildarlauna foreldris samkvæmt 1. til 4. mgr. 23. gr. Foreldri skuli sýna fram á með skriflegum gögnum á hvaða grundvelli umræddar launabreytingar samkvæmt 7. málsl. séu byggðar og Vinnumálastofnun sé heimilt að óska eftir staðfestingu frá vinnuveitanda á þeim gögnum sem foreldri leggi fram í þessu sambandi, sbr. 9. málsl. ákvæðisins.
Um framangreint er ítarlega fjallað í athugasemdum með ákvæði 25. gr. í frumvarpi til laga nr. 144/2020 en þar segir meðal annars svo:
„Ljóst er að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eiga eingöngu að bæta þann tekjumissi sem foreldrar verða fyrir er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri bættan tekjumissinn, sem Fæðingarorlofssjóði er ætlað að bæta, frá vinnuveitanda þykir eðlilegt að þær greiðslur komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Er því eins og áður segir miðað við að greiðslur sem eru hærri en sem nemur mismun á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris á mánuði á viðmiðunartímabili komi til frádráttar fæðingarorlofsgreiðslum. Er þar með tekið tillit til þess að vinnuveitandi geti bætt starfsmanni sínum upp þann tekjumissi sem Fæðingarorlofssjóður bætir ekki. Er því við það miðað í frumvarpinu að foreldrar geti hagað störfum sínum líkt og þeir kjósa utan þess tíma er þeir eru skráðir í fæðingarorlof án þess að það hafi áhrif á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á því tímabili sem þeir nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Þannig á það ekki að koma að sök, í tengslum við útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabil þar sem foreldri nýtir rétt sinn til fæðingarorlofs, þótt foreldri hafi unnið fleiri yfirvinnutíma en á viðmiðunartímabili eða tekið að sér aukavaktir rétt fyrir töku fæðingarorlofs enda oftast eðlilegar ástæður sem liggja þar að baki, svo sem vinna við stór verkefni eða breytt vaktafyrirkomulag. Í því sambandi skiptir það jafnframt ekki máli þótt vinnan hafi farið fram innan sama almanaksmánaðar og fæðingarorlof hófst svo lengi sem vinnan fór fram áður en orlofið hófst.“
Þá segir í 10. málsl. 1. mgr. 25. gr. að ef foreldri hafi fengið óvenjuháar greiðslur frá vinnuveitanda fyrir eða eftir fæðingarorlof eða meðan á fæðingarorlofi standi miðað við tekjur á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 4. mgr. 23. gr. þannig að ætla megi að þær hafi að hluta eða öllu leyti verið ætlaðar fyrir sama tímabil og það tímabil sem foreldri nýti rétt sinn til fæðingarorlofs skuli Vinnumálastofnun óska eftir að viðkomandi foreldri sýni fram á með skriflegum gögnum fyrir hvaða tímabil umræddar greiðslur hafi verið ætlaðar. Hið sama gildi um óvenjuháar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris á tímabili þar sem foreldri hafi minnkað starfshlutfall sitt samhliða nýtingu réttar til fæðingarorlofs, sbr. 11. málsl. ákvæðisins. Að endingu segir í 12. málsl. 1. mgr. 25. gr. að Vinnumálastofnun sé heimilt að óska eftir staðfestingu frá vinnuveitanda á þeim gögnum sem foreldri leggi fram í þessu sambandi.
Líkt og að framan greinir gera lög nr. 144/2020 ráð fyrir því að einstaklingar geti skipt fæðingarorlofi sínu niður í nokkur tímabil og þá stundað vinnu á öðrum tímabilum en fæðingarorlof er tekið. Eins að hægt sé að nýta rétt til fæðingarorlofs samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. 2. mgr. 13. gr. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi í 30% fæðingarorlofi frá nóvember 2025 til og með febrúar 2026, sbr. greiðsluáætlun frá 17. apríl 2026.
Meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili, frá júlí 2023 til og með júní 2024, voru 625.237 kr. og áætluð greiðslufjárhæð á mánuði miðað við 80% af meðaltali heildarlauna var því 521.031 kr. miðað við 100% fæðingarorlof, sem var hámarksgreiðsla á mánuði á þessu tímabili. Frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að upphafi töku fæðingarorlofs höfðu þau hækkað í 762.619 kr. miðað við 100% fæðingarorlof. Tekið var mið af þeirri fjárhæð við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu samkvæmt 7. og 8. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020, kæranda til hagsbóta.
Kærandi fékk greiddar 125.048 kr. úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið 1. til 30. nóvember 2025 og var á því tímabili einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismun á 635.516 kr. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði, eða 510.469 kr. án þess að kæmi til skerðingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir nóvember 2025 þáði kærandi alls 663.726 kr. í laun fyrir þann mánuð, eða 153.257 kr. umfram það sem heimilt var samkvæmt framangreindu. Ofgreiðsla fyrir nóvember 2025 nam því 118.857 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Kærandi fékk greiddar 125.048 kr. úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið 1. til 31. desember 2025 og var á því tímabili einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismun á 635.516 kr. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði, eða 510.469 kr. án þess að kæmi til skerðingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir desember 2025 þáði kærandi alls 657.391 kr. í laun fyrir þann mánuð, eða 146.922 kr. umfram það sem heimilt var samkvæmt framangreindu. Ofgreiðsla fyrir desember 2025 nam því 118.857 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Kærandi fékk greiddar 125.048 kr. úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið 1. til 31. janúar 2026 og var á því tímabili einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismun á 635.516 kr. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði, eða 510.469 kr. án þess að kæmi til skerðingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir janúar 2026 þáði kærandi alls 686.513 kr. í laun fyrir þann mánuð, eða 176.044 kr. umfram það sem heimilt var samkvæmt framangreindu. Ofgreiðsla fyrir janúar 2026 nam því 118.857 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Kærandi fékk greiddar 125.047 kr. úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið 1. til 28. febrúar 2026 og var á því tímabili einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismun á 635.516 kr. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði, eða 510.469 kr. án þess að kæmi til skerðingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir febrúar 2026 þáði kærandi alls 686.513 kr. í laun fyrir þann mánuð, eða 176.044 kr. umfram það sem heimilt var samkvæmt framangreindu. Ofgreiðsla fyrir febrúar 2026 nam því 118.857 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Í 41. gr. laga nr. 144/2020 er kveðið á um leiðréttingu á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þar segir í 2. mgr. að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eða hærri fæðingarstyrk en því hafi borið samkvæmt ákvæðum laganna miðað við álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd að viðbættu 15% álagi óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Fella skuli niður álagið sýni foreldri fram á með skriflegum gögnum að því verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Af fyrirliggjandi gögnum er ljóst að kærandi fékk ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið nóvember 2025 til febrúar 2026 þar sem hún fékk of háar greiðslur frá vinnuveitanda samhliða greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. það sem að framan er rakið. Ákvæði 41. gr. laga nr. 144/2020 er fortakslaust að því er varðar skyldu til að endurgreiða ofgreiddar bætur óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Enga heimild er að finna í lögum nr. 144/2020 til að fella niður endurkröfu eins og kærandi hefur farið fram á. Þar sem ekki liggja fyrir skrifleg gögn um að kæranda verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar er ekki ástæða til að fella niður álagið sem lagt var á endurkröfuna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið nóvember 2025 til og með febrúar 2026, er því staðfest. Þá er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja beiðni hennar um niðurfellingu 15% álags staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 17. apríl 2026, um að krefja A, um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið nóvember 2025 til og með febrúar 2026, er staðfest. Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 28. apríl 2026, um að synja beiðni kæranda um niðurfellingu 15% álags er einnig staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir