Mál nr. 365/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 365/2026
Miðvikudaginn 19. ágúst 2026
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 20. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna frá 25. nóvember 2025 og endurkrefja kæranda um ofgreitt meðlag.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn 17. mars 2026 sótti barnsfaðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins á meðlagsgreiðslum með dóttur þeirra frá 25. nóvember 2025. Með tveimur bréfum Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. apríl 2026, var kæranda annars vegar tilkynnt um að stofnunin hefði samþykkt umsókn barnsföður kæranda um milligöngu meðlagsgreiðslna frá 25. nóvember 2025 og hins vegar stöðvun milligöngu meðlagsgreiðslna til hennar og innheimtu ofgreidds meðlags. Kærandi andmælti ákvörðuninni með tölvupósti 6. maí 2026. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 11. maí 2026, var kæranda tilkynnt um að ákvörðun um innheimtu meðlags myndi standa.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 20. maí 2026. Með bréfi, dags. 21. maí 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 3. júní 2026, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. júní 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að samkvæmt dómsátt eigi lögheimili dóttur kæranda að fara frá henni til barnsföður hennar við undirritun dómsáttar, dags. 11. mars 2026. Greiðslur hennar til til barnsföður hennar í gegnum Tryggingastofnun ríkisins ættu því að byrja 11. mars 2026.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé ákvörðun um að verða við beiðni barnsföður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hans vegna dóttur þeirra aftur í tímann fyrir tímabilið 25. nóvember 2025 til 11. mars 2026. Ekki sé ágreiningur um samþykki Tryggingastofnunar á milligöngu meðlags frá 11. mars 2026.
Í 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.
Í 4. mgr. 42. gr. laga um laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 40. gr. ekki við.
Samkvæmt 65. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé sýslumanni heimilt að breyta meðlagsúrskurði stjórnvalds eða ákvörðun um meðlag, sem tekin hafi verið með dómi, ef rökstudd krafa komi fram um það, enda sé sýnt fram á að hagir foreldra eða barns hafi breyst.
Samkvæmt 67. gr. barnalaga sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns um meðlag eða samningi foreldra um meðlag staðfestum af sýslumanni, þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemi einföldu meðlagi.
Í reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga komi fram í 8. gr. að meðlagsgreiðslur falli niður frá þeim degi er barn verði 18 ára. Greiðslur skuli einnig falla niður í þeim tilfellum er breyting sé gerð á meðlagsákvörðun sem leiði til þess að greiðsluheimild sé ekki lengur til staðar.
Tryggingastofnun hafi haft milligöngu um greiðslu meðlags til kæranda vegna dóttur hennar allt frá 1. janúar 2016.
Tryggingastofnun hafi 16. mars 2026 borist beiðni um stöðvun meðlags frá kæranda. Tryggingastofnun hafi tilkynnti kæranda með bréfi, dagsett sama dag, að greiðslur meðlags til hennar yrðu stöðvaðar frá og með 1. apríl 2026.
Með bréfi, dags. 28. apríl 2026, hafi Tryggingastofnun tilkynnt kæranda að stofnuninni hafi borist ný meðlagsákvörðun, dómsátt dags. 11. mars 2026, þar sem kærandi hafi verið tilgreind sem meðlagsgreiðandi frá 25. nóvember 2025 og hefðu því greiðslur meðlags til hennar verið stöðvaðar afturvirkt frá 25. nóvember 2025 til 30. mars 2026. Í bréfinu hafi andmælafrestur verið veittur til 12. maí 2026.
Tryggingastofnun hafi 6. maí 2026 borist tölvupóstur frá kæranda:
„Sæl
Þetta er ekki rétt.
1. Lögheimilið færist ekki til B fyrr en 11.mars2026. Því á ég að fá einfalt meðlag frá honum til þess dags. Hún er á minni framfærslu á þessum tíma að fara í aðgerðir og annað.
2.Hitt er úrskurður samkvæmt dómstólnum um að borga einfalt meðlag frá 25.nóv2025 til 11.mars2026. Það var til vara í hans dómsmáli.
Vinsamlegast skoðið og leiðréttið.“
Tryggingastofnun hafi sent kæranda bréf, dags. 11. maí 2026, og upplýst hana að ákvörðun um stöðvun meðlags, dags. 28. apríl 2026, standi nema annar meðlagsúrskurður berist stofnuninni innan 14 daga. Annar meðlagsúrskurður hafi ekki borist.
Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags allt að 12 mánuði aftur í tímann.
Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. dómsátt, dags. 11. mars 2026, sem kveði á um meðlagsskyldu kæranda.
Með vísan til framangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um greiðslu meðlags samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnuna allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu á meðlagi til barnsföður frá 25. nóvember 2025. Stofnunin hafi engar heimildir að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun og hafi ekki heimild til að taka til greina það sem kærandi taki fram í kæru um lögheimili barnsins. Af því tilefni sé áréttað að skráning lögheimili barns, hafi í sjálfu sér ekki áhrif á gildi eða efni lögmætrar meðlagsákvörðunar. Meðlag ræðst af formlegri ákvörðun eða samningi um meðlag, en ekki af búsetu barns hverju sinni.
Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi margsinnis í úrskurðum sínum staðfest þetta hlutverk Tryggingastofnunar og að ekki sé heimilt að horfa til annarra atriða við ákvörðun um milligöngu meðlagsgreiðslna.
Tryggingastofnun telji að miðað við fyrirliggjandi gögn sé það ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda frá 25. nóvember 2025 og endurkrefja hana um ofgreitt meðlag.
Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla laganna, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga. Samkvæmt 4. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi 4. mgr. 40. gr. laganna ekki við.
Í 44. gr. laga um almannatryggingar segir m.a. að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd greinarinnar þar sem meðal annars sé kveðið á um fyrirframgreiðslu meðlags þegar foreldri eða börn séu búsett erlendis og um hámarksgreiðslur sem Tryggingastofnun inni af hendi.
Með framangreindri lagastoð hefur reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga verið sett. Í 8. gr. reglugerðarinnar segir að meðlagsgreiðslur falli niður í þeim tilfellum þegar breyting hafi verið gerð á meðlagsákvörðun sem leiði til þess að greiðsluheimild sé ekki lengur til staðar. Um ofgreiðslu er fjallað í 16. gr. reglugerðarinnar. Ákvæðið hljóðar svo:
„Hafi Tryggingastofnun ofgreitt meðlagsmóttakanda meðlag eða önnur framfærsluframlög samkvæmt reglugerð þessari á stofnunin endurkröfurétt samkvæmt almennum reglum. Einnig skal stofnunin tilkynna Innheimtustofnun sveitarfélaga um leiðréttingu á greiðslum.“
Með hliðsjón af framangreindu ber Tryggingastofnun að hafa milligöngu um greiðslu meðlags í samræmi við lögformlega meðlagsákvörðun, berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsfaðir kæranda sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með dóttur þeirra frá 25. nóvember 2025 með umsókn 17. mars 2026. Stofnunin samþykkti umsóknina á grundvelli dómsáttar, dags. 11. mars 2026, en samkvæmt henni ber kæranda að greiða barnsföður sínum meðlag með dóttur þeirra frá 25. nóvember 2025 til 18 ára aldurs hennar.
Í kæru greinir kærandi frá því að samkvæmt dómsátt eigi lögheimili dóttur kæranda að fara til barnsföður hennar við undirritun dómsáttarinnar og þess vegna eigi meðlagsgreiðslur hennar að byrja þann dag.
Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni falið að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, sé þess farið á leit við stofnunina, í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir. Fyrir liggur lögformleg meðlagsákvörðun um meðlagsskyldu, n.t.t. dómsátt, dags. 11. mars 2026, þar sem fram kemur að kæranda beri skylda til að greiða barnsföður sínum meðlagsgreiðslur frá 25. nóvember 2025. Í ljósi þess að fyrir lá löggild meðlagsákvörðun sem kvað á um greiðsluskyldu kæranda frá 25. nóvember 2025 bar Tryggingastofnun að fallast á umsókn barnsföður kæranda um milligöngu um meðlagsgreiðslur. Ljóst er að kærandi fékk greitt meðlag frá Tryggingastofnun frá 25. nóvember 2025 til 31. mars 2026 þrátt fyrir að uppfylla ekki skilyrði fyrir greiðslum. Tryggingastofnun á því endurkröfurétt á hendur kæranda samkvæmt almennum reglum vegna framangreinds tímabils.
Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda frá 25. nóvember 2025 og endurkrefja hana um ofgreitt meðlag.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna til A, frá 25. nóvember 2025 og innheimta ofgreitt meðlag, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson