Mál nr. 384/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 384/2025
Miðvikudaginn 19. ágúst 2026
A gegn Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 28. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 11. maí 2026 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2025 og innheimtu ofgreiddra bóta.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2025 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 524.403 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 11. maí 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. maí 2026. Með bréfi, dags. 11. júní 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 24. júní 2026, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. júní 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru er greint frá því að samkvæmt endurreikningi og uppgjöri tekjutengdra greiðslna ársins 2025, dags. 11. maí 2026, hafi niðurstaða verið krafa til innheimtu að fjárhæð 524.403 kr.
Kærandi hafi á árinu 2025 fengið lífeyri frá Gildi lífeyrissjóði að fjárhæð 1.010.107 kr. Hún hafi ekki fengið nein laun frá október 2024 til dagsins í dag.
Kærandi eigi fasteign sameiginlega með eiginmanni sínum. Eignin sé leigð út og allar tekjur séu færðar á bankareikning maka. Þau hjónin skili inn sameiginlegu skattframtali. Nafn kæranda sé efst á framtali og aðalskatturinn (stærsti) sé dreginn af reikningi kæranda.
Eiginmaður kæranda og annar einstaklingur séu eigendurnir félagsins B. Fjárfest hafi verið í eða lánað fyrirtækinu til að kaupa fasteignir, sem fyrirtækið leigi út. Kærandi eigi ekki hlut í félaginu B. Vextir af verðbréfum eða innistæðum frá B hafi aldrei verið greiddir neinum. Þau hjónin hafi fært vexti af verðbréfum í B í sameiginlegt skattframtal og hafi greitt skatt af því. Til að greiða skattinn hafi eiginmaður kæranda millifært peninga af persónulegum bankareikningi til kæranda. Þau eigi einnig fyrirtækið B og C og hafi frá árinu 2000 greitt virðisaukaskatt og skatt af heildarupphæðinni meira en 55.000.000 kr. frá árinu 2000, sem sé nú með vöxtum líklegast 80.000.000 kr.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2025.
Í 22. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun skuli standa að útreikningi bóta. Samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skuli til tekna samkvæmt VI. kafla laganna teljast tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með þeim undantekningum sem þar greini. Í 4. mgr. ákvæðisins segi að tekjur maka lífeyrisþega hafi ekki áhrif á útreikning á fjárhæð ellilífeyris. Þó skuli fjármagnstekjur, sbr. 11. tölul. 2. gr., skiptast til helminga milli hjóna við útreikning lífeyris. Skipti ekki máli hvort þeirra sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða.
Samkvæmt 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum.
Ákvæði um endurreikning sé jafnframt að finna í reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.
Komi í ljós við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Þar sé kveðið á um skyldu Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé jafnframt ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.
Undantekningu frá þeirri meginreglu sé að finna í 11. gr. reglugerðarinnar. Þar komi fram að þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar sé heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Við það mat skuli einkum líta til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn.
Í 47. gr. laga um almannatryggingar sé fjallað um upplýsingaskyldu umsækjenda og greiðsluþega gagnvart Tryggingastofnun. Þar komi fram að umsækjanda eða greiðsluþega sé skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar svo unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta samkvæmt lögunum, sem og endurskoðun þeirra. Þá beri greiðsluþega jafnframt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bótarétt eða fjárhæð greiðslna.
Kærandi sé fædd X og hafi flutt til Íslands frá D 29. september 2000, þá X ára gömul. Hún hafi fengið íslenskan ríkisborgarétt X 2008, hún hafi náð X ára aldri X og hafi hafið töku ellilífeyris […] 2025.
Þann 2. júní 2025 hafi Tryggingastofnun sent kæranda tillögu að tekjuáætlun vegna ársins 2025. Kærandi hafi samdægurs gert breytingu henni og aftur 15. ágúst 2026, Tryggingastofnun hafi þá birt bréf, dags. 28. ágúst 2026.
Með bréfi, dags. 8. maí 2026, hafi kæranda verið tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2025. Niðurstaðan hafi verið krafa að fjárhæð 524.406 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hafi óskað eftir skýringum vegna kröfunnar og sem hafi verið veittar með tölvupósti 21. maí 2026.
Þann 2. júní 2025 hafi Tryggingastofnun sent kæranda bréf þess efnis að stofnuninni hefði borist umsókn um ellilífeyri og að réttindi yrðu samþykkt frá 1. júní 2025 en að ekki yrði um greiðslur að ræða vegna tekna. Í bréfinu hafi verið vísað í meðfylgjandi upplýsingabréf til lífeyrisþega ásamt greiðsluáætlun sem hafi verið byggð á fyrirliggjandi tekjuáætlun. Kæranda hafi verið bent á að áætlunin myndi gilda á meðan forsendur væru óbreyttar. Það hafi verið ítrekað að nauðsynlegt væri að upplýsa stofnunina ef breytingar yrðu á aðstæðum sem gætu haft áhrif á greiðslurétt eða fjárhæð greiðslna og að uppfæra yrði tekjuáætlun ef breytingar yrðu á tekjum. Í kjölfarið hafi verið farið yfir á hvaða tekjuáætlun hafi verið byggt og hafi hún verið upplýst um að fjármagnstekjur teljist til sameignar hjóna sem skiptist til helminga við útreikning greiðslna. Gert hafi verið ráð fyrir 1.009.189 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 360.866 kr. í vexti af innistæðum, 2.751.480 kr. í vexti af verðbréfum og 10.224.963 kr. í leigu af íbúðarhúsnæði.
Kærandi hafi 2. júní 2026 sent inn nýja tekjuáætlun þar sem gert hafði verið ráð fyrir lífeyrissjóðsgreiðslum að fjárhæð 1.009.189 kr., leigugreiðslum að fjárhæð 10.224.963 kr. og vöxtum og verðbætum að fjárhæð 3.112.346 kr. Ekki hafi verið um að ræða breytingu í fjárhæð innan flokksins „fjármagnstekjur“ frá fyrri tekjuáætlun.
Kærandi hafi 15. ágúst 2026 breytt tekjuáætlun, gert hafi verið ráð fyrir greiðslum úr lífeyrissjóði að fjárhæð 1.009.189 kr. og fjármagnstekjum að fjárhæð 10.224.963 kr., vegna alls ársins 2025. Í kjölfarið hafi kærandi fengið bréf, dags. 28. ágúst 2026, þess efnis að greiðslur myndu hækka. Greiðslur vegna þess sem eftir hafi verið af árinu 2025 hafi verið greiddar í samræmi við þá tekjuáætlun.
Skuldin komi einkum til þar sem fjármagnstekjur kæranda hafi reynst töluvert hærri samkvæmt skattframtali en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Í bréfi vegna endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2025 hafi verið miðað við tekjur kæranda á tímabilinu júní til desember, en það hafi verið þeir mánuðir sem kærandi hafi fengið lífeyri frá stofnuninni. Samkvæmt skattframtali hafi lífeyrissjóðstekjur kæranda á tímabilinu verið 595.918 kr., vextir og verðbætur 2.387.446 kr., leigutekjur 7.254.767 kr. og söluhagnaður 40.141 kr.
Í síðustu tekjuáætlun frá kæranda hafi ekki verið gert ráð fyrir vöxtum, verðbótum eða söluhagnaði á árinu 2025. Sé litið til þeirra tekna sem eigi við þá mánuði ársins sem kærandi hafi fengið greiddan lífeyri, hafi verið gert ráð fyrir 595.000 kr. í lífeyristekjur og 5.964.563 kr. í leigutekjur.
Tryggingastofnun sé, lögum samkvæmt, skylt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur greiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattayfirvalda á opinberum gjöldum, sbr. 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar. Stofnuninni sé ekki heimilt að líta fram hjá þeim tekjum sem fram komi á skattframtali greiðsluþega, né heldur breyta því hvernig þær séu skráðar, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og dómstólum. Þá sé ítrekað að fjármagnstekjur skuli skiptast til helminga milli hjóna við útreikninglífeyris og skipti þá ekki máli hvort þeirra sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða, sbr. 4. mgr. 22. gr. laga um almannatryggingar.
Á grundvelli framangreinds fari Tryggingastofnun fram á að ákvörðun, dags. 8. maí 2026, um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2025, verði staðfest.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2025.
Kærandi fékk greiddan ellilífeyrir frá 1. júní 2025. Samkvæmt 47. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.
Í 22. gr. og 33. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 1. mgr. 22. gr. segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Samkvæmt 21. gr. laga um almannatryggingar skal ellilífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 22. gr., uns lífeyririnn fellur niður. Þá segir að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 2.400.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna. Samkvæmt 5. mgr. 22. gr. laganna hafa tekjur maka lífeyrisþega ekki áhrif á útreikning á fjárhæð ellilífeyris en fjármagnstekjur, sbr. 11. tölul. 2. gr., skiptast til helminga milli hjóna við útreikning lífeyris. Skiptir ekki máli hvort þeirra er eigandi þeirra eigna sem mynda tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða. Á grundvelli 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.
Samkvæmt gögnum málsins var umsókn kæranda um ellilífeyri samþykkt frá 1. júní 2025, með bréfi, dags. 2. júní 2025. Vegna búsetuskerðingar var greiðsluhlutfall kæranda ákvarðað 62,25% og vegna tekna var ekki réttur á greiðslum en gert var ráð fyrir 1.009.189 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 360.866 kr. í vexti af innistæðum, 2.751.480 kr. í vexti af verðbréfum og 10.224.963 kr. í leigutekjur. Í kjölfar nýrra upplýsinga um maka kæranda breytti Tryggingastofnun tekjuáætlun kæranda hvað varðar leigutekjur með bréfi, dags. 7. ágúst 2024, á þá leið að gert var ráð fyrir 10.224.963 kr. í leigutekjur sameiginlegar með maka. Við þá breytingu hófust greiðslur ellilífeyris til kæranda. Með bréfi, dags. 28. ágúst 2025, var kærandi upplýst um hækkun greiðslna vegna breytinga hennar á tekjuáætlun þar sem gert var ráð fyrir á 1.009.189 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 10.224.963 kr. í leigutekjur sameiginlegar með maka.
Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2025 reyndust tekjur kæranda hafa verið 595.918 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 9.682.354 kr. í fjármagnstekjur sameiginlegar með maka vegna tímabilsins 1. júní 2025 til 31. desember 2025. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins leiddi í ljós 524.403 kr. ofgreiðslu á árinu 2025 að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.
Samkvæmt framangreindu reyndust tekjur kæranda vera hærri á árinu 2025 en gert hafði verið ráð fyrir. Um var að ræða fjármagnstekjur sem er tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 22. gr. laga um almannatryggingar og C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda á árinu 2025.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2025, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir