Mál nr. 446/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 446/2026
Miðvikudaginn 19. ágúst 2026
A gegn Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 22. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 11. maí 2026 um endurreikning og uppgjör greiðslna ársins 2025.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2025 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 789.793 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 11. maí 2025.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. júní 2026. Með bréfi, dags. 25. júní 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 8. júlí 2026, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. júlí 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru er greint frá því að kærð sé ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins vegna kröfu. Kærandi hafi í apríl eða maí 2025 haft samband við Tryggingastofnun til að koma í veg fyrir að hann myndi fá kröfu í uppgjöri. Nú hafi verið mynduð 789.793 kr. krafa. Einnig hafi verið mynduð krafa fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026.
Það sé mat kæranda að hann hafi ekki fengið réttar og skýrar upplýsingar í símtali sem hann hafi átt við stofnunina í apríl 2025 en þá hafi hann fengið þær upplýsingar að hann væri að gera rétt og að hann ætti að halda áfram að gera tekjuáætlun.
Framangreind ákvörðun sé kærð og auk þess sé sótt um niðurfellingu á þeim grundvelli að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kröfuna.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kæra varði endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2025, dags. 11. maí 2026.
Í 26. gr. þágildandi laga nr. 100/2007 um almannatryggingar segi að fjárhæð örorkulífeyris skuli lækka um 9% af eigin tekjum lífeyrisþega, sbr. 30. gr., uns greiðslur falli niður. Í 2. mgr. 28. gr. segi að fjárhæð tekjutryggingar skuli lækka um 38,35% af eigin tekjum greiðsluþega, sbr. 30. gr., uns greiðslur falli niður. Í 2. mgr. 29. gr. laga segi að um útreikning á fjárhæð aldursviðbótar vegna tekna fari skv. 26. og 30. gr.
Í 2. mgr. 9. gr. þágildandi laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, segi að heimilt sé að greiða einstaklingi sem fái örorkulífeyri samkvæmt lögum um almannatryggingar sérstaka uppbót á lífeyri vegna framfærslu ef sýnt sé að hann geti ekki framfleytt sér án þess. Í 13. gr. þágildandi reglugerðar nr. 1200/2018 um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri segi að við mat á því hvort örorkulífeyrisþegi sem fái ekki greidda heimilisuppbót geti framfleytt sér án sérstakrar uppbótar skuli miða við að heildartekjur, sbr. 5. gr. reglugerðar þessarar, væru undir 335.128 kr. á mánuði.
Í 6. mgr. 24. gr. laga um almannatryggingar, eftir að þeim hafi verið breytt með lögum nr. 104/2024, segi að fjárhæð örorkulífeyris skuli lækka um 45% af eigin tekjum lífeyrisþega umfram frítekjumörk skv. 30. gr. uns greiðslur falli niður. Uppfylli lífeyrisþegi jafnframt skilyrði fyrir greiðslu aldursviðbótar skv. 29. gr. og/eða heimilisuppbótar samkvæmt lögum um félagslega aðstoð skuli samanlögð fjárhæð greiðslna lækka um 45% af tekjum lífeyrisþega umfram frítekjumörk skv. 30. gr.
Í 30. gr. laga um almannatryggingar segi að til tekna samkvæmt þessum kafla teljist tekjur skv. II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum. Til tekna teljist einnig tekjur sem aflað sé erlendis og ekki séu taldar fram hér á landi. Í 2. mgr. sömu greinar séu hins vegar taldar upp undantekningar frá þeirri meginreglu. Í 3. til 5. mgr. þágildandi laga hafi verið kveðið á um almenn og sérstök frítekjumörk örorkulífeyrisþega. Í 3. mgr. núgildandi laga sé kveðið á um almennt frítekjumark örorkulífeyrisþega.
Í 1. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar segi að til grundvallar útreikningi greiðslna hvers mánaðar skuli leggja 1/12 af áætluðum tekjum almanaksárs. Þá segi að áætlun um tekjuupplýsingar skuli m.a. vera byggð á nýjustu upplýsingum frá greiðsluþega, sbr. 47. gr. laganna þar sem segi að greiðsluþega sé skylt að veita Tryggingastofnun upplýsingar sem nauðsynlegar séu svo unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna sem og tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem gætu haft áhrif á bætur eða greiðslur.
Í 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar segi að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur greiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna fjárhæðir greiðslna á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009.
Komi í ljós við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það skv. 34. gr. laga um almannatryggingar. Í ákvæðinu sé Tryggingastofnun skylduð til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla að ofgreiddar bætur skuli innheimtar sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.
Undantekningu frá þessari meginreglu sé þó að finna í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 varðandi þær kröfur sem myndist við uppgjör tekjutengdra bóta lífeyristrygginga. Þar segi:
„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“
Kærandi sé örorkulífeyrisþegi og hafi fengið greiddan örorkulífeyri allt árið 2025, ásamt tengdum greiðslum. Í uppgjöri vegna ársins 2025 hafi réttindi kæranda verið endurreiknuð. Heildargreiðslur á árinu hafi numið 4.991.011 kr. en réttindi samkvæmt skattframtali hafi verið 3.788.258 kr. Mismunurinn hafi verið 1.202.753 kr. Þegar tekið hafði verið tillit til staðgreiðslu skatta að upphæð 412.960 kr. hafi skuldin reynst vera 789.793 kr. Kæranda hafi verið tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2025 með bréfi, dags. 11. maí 2026. Með bréfi, dags. 3. desember 2024, hafi Tryggingastofnun tilkynnt kæranda að tillaga að tekjuáætlun vegna ársins 2025 hefði verið birt á Mínum síðum kæranda. Í bréfinu hafi sagt að tekjuáætlun væri á ábyrgð kæranda og að ef þörf væri talin á þyrfti hann að breyta henni. Í tillögunni hafi eingöngu verið gert ráð fyrir fjármagnstekjum, n.t.t. vöxtum af innistæðum, að upphæð 132 kr. á árinu.
Kærandi hafi 20. mars 2025 sent inn breytingu á tekjuáætlun, þar hafi verið gert ráð fyrir atvinnutekjum að fjárhæð 1.066.765 kr. á árinu 2025. Tekjuáætlun hafi tekið gildi 1. apríl 2025, sbr. bréf Tryggingastofnunar, dags. 25. mars 2025. Í bréfinu komi fram:
„Mánaðarlegar greiðslur þínar frá TR hafa verið endurreiknaðar og munu nú lækka í samræmi við uppfærða tekjuáætlun. Ný greiðsluáætlun hefur verið birt á Mínum síðum TR og þar er einnig að finna mánaðarlegar greiðslustaðfestingar.
Greiðslur frá TR eru reiknaðar á ársgrundvelli og því hefur myndast áætluð skuld að upphæð 113.997 kr. vegna fyrri mánaða ársins. Endanleg niðurstaða mun liggja fyrir við uppgjör ársins samkvæmt skattframtali 2026.“
Fram til 1. apríl 2025 hafi tillaga Tryggingastofnunar, dags. 3. desember 2024, verið notuð til útreikninga greiðslna til kæranda. Í kjölfarið hafi borist nokkrar tekjuáætlanir frá kæranda á árinu 2025.
Þann 26. maí 2025 hafi kærandi sent inn tekjuáætlun þar sem gert hafi verið ráð fyrir 1.989.230 kr. í atvinnutekjur. Tekjuáætlunin hafi tekið gildi frá og með 1. júlí 2025, sbr. bréf Tryggingastofnunar, dags. 10. júní 2025. Í bréfinu hafi verið upplýst um myndun áætlaðrar skuldar að upphæð 71.641 kr. vegna fyrri mánaða ársins og að endanleg niðurstaða muni liggja fyrir við uppgjör ársins samkvæmt skattframtali 2026.
Þann 9. júlí 2025 hafi kærandi sent inn tekjuáætlun þar sem gert hafi verið ráð fyrir 2.821.449 kr. í atvinnutekjur. Tekjuáætlunin hafi tekið gildi frá og með 1. ágúst 2025, sbr. bréf Tryggingastofnunar, dags. 21. júlí 2025. Í bréfinu hafi verið upplýst um myndun áætlaðrar skuldar að upphæð 61.726 kr. vegna fyrri mánaða ársins og að endanleg niðurstaða myndi liggja fyrir við uppgjör ársins samkvæmt skattframtali 2026.
Þann 25. ágúst 2025 hafi kærandi sent inn tekjuáætlun þar sem gert hafi verið ráð fyrir 3.941.427 kr. í atvinnutekjur. Tekjuáætlunin hafi tekið gildi frá og með 1. september 2026, sbr. bréf Tryggingastofnunar, dags. 26. ágúst 2025. Í bréfinu hafi verið upplýst um myndun áætlaðrar skuldar að upphæð 292.149 kr. vegna fyrri mánaða ársins og að endanleg niðurstaða myndi liggja fyrir við uppgjör ársins samkvæmt skattframtali 2026.
Þann 30. september 2025 hafi kærandi sent inn tekjuáætlun þar sem gert hafi verið ráð fyrir 3.918.020 kr. í atvinnutekjur. Tekjuáætlunin hafi tekið gildi frá og með 1. nóvember 2025, sbr. bréf Tryggingastofnunar, dags. 23. október 2025. Þar sem um hafi verið að ræða lækkun áætlaðra tekna frá fyrri tekjuáætlun hafi komið fram í bréfinu að mánaðarlegar greiðslur myndu hækka í samræmi við uppfærða tekjuáætlun.
Þann 28. nóvember 2025 hafi kærandi sent inn tekjuáætlun, þar hafi verið gert ráð fyrir 4.450.718 kr. í atvinnutekjur. Tekjuáætlunin hafi tekið gildi frá og með 1. desember 2025, sbr. bréf Tryggingastofnunar, dags. 1. desember 2025. Í bréfinu hafi verið upplýst um myndun áætlaðrar skuldar að upphæð 176.433 kr. vegna fyrri mánaða ársins og að endanleg niðurstaða myndi liggja fyrir við uppgjör ársins samkvæmt skattframtali 2026.
Í 30. gr. laga um almannatryggingar segi að til tekna samkvæmt IV. kafla laganna teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað teldist ekki til tekna og tiltekinna frádráttarliða í 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga eða takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum. Í þessu ákvæði sé því tilgreint við hvaða tekjur Tryggingastofnun skuli miða útreikning og endurreikning greiðslna og jafnframt séu tilgreindar þær undantekningar sem stofnuninni beri að hafa hliðsjón af við þá framkvæmd.
Þegar Tryggingastofnun berist ný tekjuáætlun með breytingum frá lífeyrisþega hafi sú breyting einungis áhrif á komandi mánuði þess árs. Kærandi hafi breytt tekjuáætlun sex sinnum á árinu 2025 og í bréfum stofnunarinnar um staðfestingu á þeim breytingum, dags. 25. mars 2025, 10. júní 2025, 21. júlí 2025, 26. ágúst 2025, 23. október 2025 og 1. desember 2025, segir eftirfarandi:
„Á næstu síðu er uppfærða tekjuáætlunin. Á henni byggist útreikningur á greiðslum TR það sem eftir er ársins.“
Eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur greiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda sé Tryggingastofnun skylt að endurreikna fjárhæðir greiðslna í samræmi við þær, sbr. 33. gr. laga um almannatryggingar. Endanlegar upplýsingar um tekjur greiðsluársins séu þá bornar saman við upplýsingar úr tekjuáætlun greiðsluársins. Hafi tekjur verið ofáætlaðar á tekjuáætlun myndist inneign vegna greiðslna á árinu. Hafi tekjur verið vanáætlaðar á tekjuáætlun ársins myndist skuld og sé hún dregin frá áðurnefndri inneign. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs sé því mismunur heildargreiðslna á árinu 2025 og réttinda vegna ársins samkvæmt skattframtali 2026 að frádregnum mögulegum áður mynduðum skuldum á árinu, að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta. Hafi Tryggingastofnun ofgreitt bætur sé skylt að endurkrefja það sem ofgreitt hafi verið í samræmi við 34. gr. laga um almannatryggingar. Meginreglan sé því sú að ef tekjur sem hafi verið lagðar til grundvallar endurreikningi hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir og ofgreiðsla hafi stafað af því að bótaþegi hafi ekki tilkynnt Tryggingastofnun um tekjuaukninguna eða aðrar breyttar aðstæður þá skuli sú ofgreiðsla endurkrafin. Skipti þá ekki máli hvort greiðsluþegi hafi getað séð fyrir þessa tekjuaukningu eða breyttar aðstæður.
Í 34. gr. laga um almannatryggingar sé fjallað um innheimtu ofgreiddra bóta. Ákvæðin séu ekki heimildarákvæði um innheimtu heldur sé lögð sú skylda á Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd.
Ákvæði 11. gr. reglugerðar 598/2009 um niðurfellingu sé undanþáguheimild og beri að skýra þröngt. Í ákvæðinu felist að við ákvörðun um hvort fella eigi niður kröfu eigi að fara fram mat, annars vegar á fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum umsækjanda, með tilliti til getu hans til að endurgreiða skuldina, og hins vegar á því hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn þegar hann hafi tekið við hinum ofgreiddu bótum. Kærandi hafi ekki sótt um niðurfellingu ofgreiðslukröfu og hafi því mat á því hvort skilyrði undanþáguheimildarinnar hafi verið uppfyllt ekki farið fram.
Kærð ákvörðun sé í samræmi við lög og reglur sem gildi um uppgjör og endurreikning tekjutengdra bóta sem og innheimtu ofgreiddra bóta.
Með hliðsjón af framangreindu fari Tryggingastofnun því fram á að ákvörðun frá 11. maí 2026 um niðurstöðu endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2025 verði staðfest.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2025.
Kærandi fékk greiddan örorkulífeyri og tengdar greiðslur á árinu 2025. Samkvæmt 47. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.
Í 30. og 33. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi greiðslna. Í 1. mgr. 30. gr. laga um almannatryggingar segir að til tekna samkvæmt IV. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Samkvæmt 26. gr. laga um almannatryggingar sem giltu til 31. ágúst 2025 skal örorkulífeyrir lækka um 9% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 30. gr. laganna, uns greiðslur falla niður og í 2. mgr. þágildandi 28. gr. skal fjárhæð tekjutryggingar lækka um 38,35% af eigin tekjum greiðsluþega uns greiðslur falla niður. Samkvæmt núgildandi 6. mgr. 24. gr. laga um almannatryggingar skal örorkulífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans umfram frítekjumark samkvæmt 30. gr. uns greiðslur falla niður. Á grundvelli 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.
Samkvæmt gögnum málsins gerði tillaga Tryggingastofnunar að tekjuáætlun kæranda vegna ársins 2025, dags. 3. desember 2024, ráð fyrir 132 kr. í fjármagnstekjur á árinu og greiddi stofnunin tekjutengdar greiðslur út frá þeirri tekjuáætlun í janúar, febrúar og mars 2025. Kærandi breytti tekjuáætluninni 20. mars 2025 og gerði ráð fyrir 1.066.765 kr. í atvinnutekjur á árinu. Tryggingastofnun samþykkti tekjuáætlun kæranda með bréfi, dags 25. mars 2025, og upplýsti hann um áætlað kröfu að fjárhæð 113.997 kr. og greiddi samkvæmt áætluninni í apríl, maí og júní 2025. Kærandi breytti tekjuáætluninni 26. maí 2025 og gerði ráð fyrir 1.989.230 kr. í atvinnutekjur á árinu. Tryggingastofnun samþykkti áætlunina með bréfi, dags. 10. júní 2025, og upplýsti hann um áætlaða kröfu að fjárhæð 71.641 kr. og greiddi samkvæmt áætluninni í júlí 2025. Kærandi breytti tekjuáætluninni 9. júlí 2025 og gerði ráð fyrir 2.821.449 kr. í atvinnutekjur á árinu. Tryggingastofnun samþykkti áætlunina með bréfi, dags. 21. júlí 2025, og upplýsti kæranda um áætlaða kröfu að fjárhæð 61.726 kr. og greiddi samkvæmt áætluninni í ágúst 2025. Kærandi breytti tekjuáætluninni 25. ágúst 2025 og gerði ráð fyrir 3.941.427 kr. í atvinnutekjur á árinu. Tryggingstofnun samþykkti áætlunina með bréfi, dags. 26. ágúst 2025, og upplýsti hann um áætlaða kröfu að fjárhæð 292.149 kr. og greiddi samkvæmt áætluninni í september og október 2025. Kærandi breytti tekjuáætluninni 30. september 2025 þar sem hann gerði ráð fyrir 3.918.020 kr. í atvinnutekjur á árinu. Tryggingastofnun samþykkti áætlunina með bréfi, bréfi, dags. 23. október 2025, og upplýsti hann um hækkun greiðslna og fékk hann greitt samkvæmt áætluninni í nóvember 2025. Kærandi breytti tekjuáætluninni 28. nóvember 2025 og gerði ráð fyrir 4.450.718 kr. í atvinnutekjur á árinu. Tryggingastofnun samþykkti áætlunina með bréfi, dags. 1. desember 2025, og upplýsti hann um áætlaða kröfu að fjárhæð 176.433 kr. og greiddi samkvæmt henni í desember 2025.
Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2025 reyndust tekjur kæranda hafa verið 4.666.961 kr. í launatekjur og 2.394 kr. í fjármagnstekjur. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2025, leiddi í ljós 789.793 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.
Samkvæmt framangreindu reyndust tekjur kæranda vera hærri á árinu 2025 en gert hafði verið ráð fyrir þrátt fyrir að kærandi hafi reglulega tilkynnt um auknar tekjur. Bent er á að þegar Tryggingastofnun bárust nýjar tekjuáætlanir frá kæranda þá höfðu þær breytingar á áætlun einungis áhrif á komandi mánuði þess árs. Umræddar tekjur voru launatekjur sem er tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 30. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum greiðslum kæranda á árinu 2025.
Úrskurðarnefnd velferðarmála telur rétt benda kæranda á að hann getur freistað þess að leggja fram beiðni um niðurfellingu ofgreiddra bóta til Tryggingastofnunar á grundvelli undanþáguákvæðis 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Þar kemur fram að heimilt sé að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Þá skuli einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna greiðsluþega og þess hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2025, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir