19. ágúst 2026 /

Mál nr. 475/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 475/2026

Miðvikudaginn 19. ágúst 2026

A gegn Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 2. júlí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 24. mars 2026, um að synja umsókn um kæranda örorkulífeyri.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 24. mars 2026, var kæranda synjað um örorkulífeyri á þeim forsendum að endurhæfing væri ekki fullreynd.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. júlí 2026. Með bréfi, dags. 3. júlí 2026, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og var honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði, sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, gætu átt við í málinu. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er greint frá því að kæranda hafi verið synjað um örorku. Kærandi hafi verið í endurhæfingu á vegum B í nokkurn tíma auk þess sem hann hafi nýtt þjónustu á vegum geðheilsuteymis HVE. Samvinna hafi verið með félagsþjónustu, sem hafi umsjón með fötlunarmálum, og allir aðilar verið sammála um að sækja ætti um örorku þannig að hægt yrði að styðja við kæranda með betri hætti, en hann hafi ráðið illa við að stunda endurhæfingu. Kærandi hafi fengið tækifæri á vernduðum vinnustað en hafi ekki ráðið við að nýta sér það án stuðnings. Kærandi búi hjá ömmu sinni og afa sem hugsi um hann en hann þurfi stuðning í búsetu. Rökstuðningur Tryggingastofnunar hafi verið að í greinargerð frá B væri horft til þess að reyna að styðja hann í vinnu síðar og það hafi verið túlkað á þá leið að enn væri möguleiki á að hann skilaði sér í almenna vinnu. Samkvæmt gögnum málsins sé þetta mikil oftúlkun en átt hafi verið við að horft yrði til vinnusamninga öryrkja þegar réttur stuðningur gæti verið í boði.

III.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 24. mars 2026, þar sem kæranda var synjað um örorkulífeyri.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun.

Samkvæmt gögnum málsins liðu þrír mánuðir og átta dagar frá því að kæranda var tilkynnt um hina kærðu ákvörðun, dags. 24. mars 2026, þar til kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. júlí 2026. Kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um almannatryggingar var því liðinn þegar kæran barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort atvik séu með þeim hætti að afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að í hinni kærðu ákvörðun frá 24. mars 2026 var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Í kæru er ekki að finna útskýringu á því hvers vegna kæran barst ekki til úrskurðarnefndarinnar innan kærufrests. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júlí 2026, var kæranda veittur kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum teldi hann að skilyrði, sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, gætu átt við í málinu. Hvorki bárust athugasemdir né gögn frá kæranda.

Í ljósi þessa að kæranda var leiðbeint um kæruheimild í hinni kærðu ákvörðun er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að afsakanlegt sé að kæra hafi ekki borist fyrr. Þá verður ekki heldur séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, enda virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að kærandi geti sótt um örorkulífeyri að nýju. Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir