Mál nr. 20/2024 - Úrskurður
Mál nr. 20/2024
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála
A
gegn
Landspítala
Launamunur. Mismunun á grundvelli kyns. Kærufrestur. Fallist á brot. Málskostnaður.
A krafðist staðfestingar kærunefndar jafnréttismála á því að kærði, Landspítali, hefði gerst brotlegur við lög nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, með því að mismuna kæranda í launakjörum og launasetningu gagnvart karlkyns sérfræðilæknum í sömu eða sambærilegri stöðu á árunum 2020 til 2023. Talið var að kærði hefði ekki sýnt fram á að munur sá sem var á launakjörum kæranda og karlkyns sérfræðilækna á tímabilinu ætti sér aðrar skýringar en vegna kyns. Samkvæmt því var það niðurstaða kærunefndar að kærði hefði gerst brotlegur við lög nr. 150/2020. Kærða var gert að greiða kæranda kr. 400.000 í málskostnað.
- Á fundi kærunefndar jafnréttismála hinn 26. ágúst 2026 er tekið fyrir mál nr. 20/2024 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
- Með kæru, dags. 29. ágúst 2024, kærði A brot Landspítala á ákvæðum laga nr. 150/2020 gagnvart sér. Kærandi telur sér hafa verið mismunað í launakjörum á árabilinu 2020−2023 í samanburði við karlkyns sérfræðilækna sem gegndu sama eða sambærilegu starfi og kærandi. Þá krefst kærandi málskostnaðar fyrir að hafa kæruna uppi fyrir nefndinni.
- Kæran ásamt fylgigögnum var kynnt kærða með bréfi kærunefndar jafnréttismála, dags. 15. október 2024. Greinargerð kærða er dags. 11. desember s.á. Var hún send kæranda til athugasemda með bréfi dags. 14. janúar 2025, og eru athugasemdir kæranda dags. 6. febrúar s.á. Voru þær kynntar kærða með bréfi, dags. 20. febrúar, og eru athugasemdir kærða vegna þeirra dags. 21. mars. Voru þær kynntar kæranda með bréfi, dags. 24. mars 2025.
MÁLAVEXTIR
- Kærandi er sérfræðingur í […] og […]. Hún hóf störf hjá kærða sem sérfræðilæknir árið 2007 eftir sérnám erlendis. Kærandi var frá upphafi ráðningar í launaflokki 300 samkvæmt launatöflu kjarasamnings Læknafélags Íslands og íslenska ríkisins. Við gildistöku nýs kjarasamnings árið 2015 var innleidd sú breyting að tilteknir starfsbundnir þættir gátu haft vægi til launahækkunar. Við þessa breytingu fengu allir starfandi læknar hjá kærða hækkun um einn launaflokk. Til viðbótar fékk kærandi hækkun um einn launaflokk eins og aðrir læknar, í launaflokk 301, og að auki einn launaflokk til viðbótar. Tók kærandi samkvæmt því laun samkvæmt launaflokki 302, allt til ársins 2021 er kærandi hafnaði launaflokkun sinni, og tók í framhaldinu laun á grundvelli launaflokks 301.
- Í […] 2023 hóf karlkyns sérfræðilæknir störf á sömu deild og kærandi og var honum raðað í launaflokk 303. Kveðst kærandi hafa komist að launaröðun hans fyrir tilviljun 20. s.m. Gerði kærandi athugasemd við kærða um launasetningu karlsins og var launaröðun hennar í kjölfarið breytt í launaflokk 304 og miðaðist breytingin afturvirkt við 1. júní 2023.
- Í framhaldi þessa kveðst kærandi hafa komist að því að aðrir karlkyns sérfræðilæknar, sem starfað hefðu um árabil í sambærilegri stöðu og kærandi hjá kærða, hefðu verið hærra launasettir en hún á árabilinu 2020−2023. Hinn 11. mars 2024 krafðist kærandi því leiðréttingar launaflokkunar sinnar fyrir árin 2020 til 2023. Í kjölfarið voru frekari samskipti milli kæranda og kærða um málið en kærði hafnaði kröfu kæranda endanlega hinn 12. júní 2024.
SJÓNARMIÐ KÆRANDA
- Í kæru til nefndarinnar kemur fram eins og að framan er getið að kærandi hafi verið í grunnlaunaflokki 300 frá upphafi ráðningar árið 2007. Eftir gerð nýs kjarasamnings árið 2015 hafi sérfræðingum sem störfuðu hjá kærða á þeim tíma verið veittur ótímabundinn launaflokkur, svokallaður sólarlagsflokkur, og eftir það hafi grunnlaunaflokkur kæranda verið 301. Samkvæmt kjarasamningnum hafi læknar og getað hækkað um launaflokka vegna tiltekinna starfsbundinna þátta. Kærandi bendir á að samkvæmt gildandi kjarasamningi beri að raða lækni með sérfræðileyfi í launaflokk 300 til 307. Meta skuli starfsbundna þætti og viðbótarmenntun til viðbótar við grunnlaunaflokka til allt að fimm launaflokka. Kærandi hafi uppfyllt starfsbundnu þættina kennslu, rannsóknir, gæðastarf, teymisvinnu og sérþekkingu sem meta hefði átt til hækkunar launaflokka. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hafi kærandi ekki fengið metinn nema einn starfsbundinn þátt á starfstíma sínum, þ.e. á tímabilinu 1. júní 2019 til 31. maí 2021 þegar kæranda hafi verið raðað í launaflokk 302.
- Þegar karlkyns sérfræðilæknir hóf störf […] 2023 í […] hafi hann verið launasettur í flokk 303, eða með þrjá starfsbundna þætti ofan á grunnflokk 300. Kærandi hafi komist að þessu hinn 20. september 2023. Þegar kærandi hafi komist að nefndum launamun hafi hún ítrekað beiðni um hækkun vegna starfsbundinna þátta og bent á þá kynbundnu mismunun sem komið hafi í ljós. Kærði hafi brugðist við og hækkað laun kæranda vegna fyrrnefndra þriggja starfsbundinna þátta afturvirkt frá 1. júní 2023.
- Kærandi telur því ljóst að brotið hafi verið gegn ákvæðum laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, við launasetningu karlsins er hann var settur í launaflokk 303 á meðan hún sjálf, sem hafi mun meiri og lengri starfsreynslu og fleiri starfsbundna þætti, hafi einungis verið í launaflokki 301.
- Þá telur kærandi að ólögmætur kynbundinn launamunur hafi náð mun lengra aftur í tímann og að kærði hafi einnig brotið gegn ákvæðum laga nr. 150/2020, og lögum nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, með því að greiða kæranda lægri laun en öðrum karlkyns sérfræðilæknum í sambærilegum stöðum og kærandi. Hafi hún því gert kröfu um að kynbundinn launamunur yrði leiðréttur afturvirkt og lengur en til 1. júní 2023. Þeirri kröfu kæranda hafi kærði hafnað endanlega hinn 12. júní 2024. Kærandi bendir á að tvo starfsbundna þætti, þ.e. sérfræðileyfi og undirsérgrein, hafi kærandi haft í fjölda ára, án þess að það hafi verið metið til hækkunar launa. Því telur hún fráleitt að leiðrétta einungis laun frá 1. júní 2023, en ekki lengra aftur í tímann. Kærandi telur að launamunur milli hennar og karlkyns sérfræðilækna hafi verið kynbundinn og ólögmætur.
- Hvað þetta varðar vísar kærandi til þess að á árunum 2020 til 2023 hafi þrír karlkyns sérfræðilæknar, í svipuðum stöðum og kærandi, verið launasettir hærra en hún, þrátt fyrir að sinna alveg sambærilegum og jafn verðmætum störfum og vera með álíka starfsbundna þætti og kærandi. Hún hafi sinnt verkefnum sem hefðu átt að veita henni allt að fimm launaflokka umfram grunnlaunaflokk, þ.e. kennslu, rannsóknir, gæðastarf og teymisvinnu. Þá hafi kærandi sérfræðileyfi í annarri undirsérgrein sem veita hefði átt einn staðbundinn launaflokk fyrir það.
- Kærandi bendir á að launamunur milli hennar og karlanna verði ekki rökstuddur með starfsreynslu, daglegri vinnu innan […], rannsóknarvinnu, umbótastarfi, alþjóðlegu samstarfi, kennslumálum eða viðurkenningum þar sem kærandi hafi sinnt öllum þessum þáttum til jafns eða umfram samstarfsmenn sína. Þannig hafi einn karlkyns sérfræðingur, sem gegnt hafi sama starfi og kærandi, verið í launaflokki 305 á tímabilinu 2020 til 2023, þar af hafi hann haft einn svokallaðan sólarlagsflokk (301) og einn flokk fyrir svonefnt amerískt „board“-próf. Bæði hafi þau uppfyllt að lágmarki fimm starfsbundna þætti samkvæmt kjarasamningi. Annar karlkyns sérfræðingur sem kærandi beri sig saman við hafi verið í launaflokki 306 meðan kærandi hafi verið í launaflokki 301. Karlinn hafi verið með sama grunnlaunaflokk og kærandi, þ.e. svokallaðan sólarlagsflokk 301. Doktorspróf veiti honum tvo flokka til viðbótar. Þess utan sé hann með þrjá starfsbundna þætti metna, en hann hafi sinnt alveg sambærilegu starfi og starfsbundnum þáttum og kærandi. Sá þriðji sem samanburðurinn nái til hafi verið í launaflokki 304 á árunum 2020 til 2023, en í flokki 305 frá þeim tíma. Grunnflokkur hans sé 301, en hann hafi og einn flokk fyrir amerískt „board“-próf. Hann hafi haft, líkt og hinir karlarnir, þrjá starfsbundna þætti til hækkunar, þrátt fyrir að gegna sambærilegu starfi og jafn mörgum starfsbundnum þáttum og kærandi.
- 1Með því að meta ekki starfsbundna þætti kæranda til hækkunar eins og karlsins hafi kærði mismunað kæranda með kynbundnum hætti. Kærandi telji launasetninguna með óyggjandi hætti hafa falið í sér mismunun á grundvelli kyns.
- Kærandi tekur fram að hún hafi ekki vitað, fyrr en við meðferð málsins hjá kærunefndinni, að nefndir þrír karlkyns sérfræðilæknar hefðu haft 15% hámarksálag á grunnlaun sín fyrir gildistöku kjarasamningsins árið 2015. Kærandi hafi ekki haft slíkt 15% álag á laun sín á árunum 2007 til 2015. Kærandi hafi unnið á öllum deildum […] og starf hennar hafi hið minnsta verið til jafns við þá þrjá og hefði kærandi átt að njóta launaálags og launaflokkunar til jafns við þá.
- Kærandi bendir sérstaklega á að með því að leiðrétta launakjör kæranda frá 1. júní 2023 hafi kærði viðurkennt að til staðar hafi verið ólögmætur kynbundinn launamunur. Þar sem ljóst sé að launamunur hafi verið til staðar fyrir þann tíma eigi kærandi rétt á leiðréttingu lengra aftur í tímann, eða fyrir tímabilið 2020−2023. Fordæmi séu fyrir leiðréttingu á launamun gagnvart kvenkyns sérfræðilæknum lengra aftur í tímann. Mál þriggja lækna sem nýlega hafi fengið leiðréttingu aftur til ráðningardags, þ.e. aftur til ársins 2019, staðfesti það.
- Að því er varðar kærufrest til kærunefndar jafnréttismála fer kærandi fram á að beitt verði undantekningarreglu 3. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, sem kveður á um að heimilt sé, þegar sérstaklega standi á, að taka erindi til meðferðar þótt sex mánaða frestur 1. málsl. 3. mgr. ákvæðisins sé liðinn. Kærandi hafi fyrst komist að kynbundnum launamun 20. september 2023 er karl var ráðinn sem læknir í sama teymi og kærandi. Hafi kærandi sent tölvupóst hinn 21. september s.á. þar sem hún hafi ítrekað kröfu um endurmat á launasetningu. Í kjölfar þessa hafi kærandi fengið þrjá starfsbundna þætti metna til launaflokkahækkunar, afturvirkt frá 1. júní s.á. Fljótlega í kjölfarið hafi kærandi komist að því að aðrir karlkyns sérfræðilæknar í sambærilegum störfum og hún væru einnig launasettir hærra þrátt fyrir að sinna sambærilegum starfsbundnum þáttum. Hafi kærandi því talið leiðréttingu til 1. júní 2023 óásættanlega og krafist þess hinn 11. mars 2024, að launasetning yrði leiðrétt lengra aftur í tímann. Boðað hafi verið til fundar vegna þessa 21. mars s.á., en engin niðurstaða hafi fengist. Voru kröfur ítrekaðar 27. maí og 4. júní s.á. Endanlega höfnun hafi kærandi fengið hinn 12. júní 2024.
- Kærandi bendir og á í þessu sambandi að líta megi svo á að hinu brotlega ástandi sé ekki lokið og því sé sex mánaða kærufrestur ekki hafinn, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020. Þá bendir kærandi á að eftir að hún hafi leitað skýringa á launamun gagnvart sér í september 2023 hafi fleiri kvenkyns sérfræðilæknar krafist leiðréttinga og hafi þrír af þeim fengið leiðréttingu í fjögur ár aftur í tímann, eða frá ráðningu 2019. Þetta hafi verið í desember 2023. Hafi launamál kæranda verið til skoðunar í framhaldinu og tekin fyrir á samráðsfundi með Læknafélaginu sem fram hafi farið í byrjun maí 2024. Í kjölfar höfnunar á kröfum kæranda hinn 12. júní 2024 hafi kærandi farið fram á frekari launaupplýsingar vegna sérfræðilækna. Var þeirri málaleitan hafnað án álits frá úrskurðarnefnd um upplýsingarmál, en í kjölfar álits nefndarinnar voru kæranda veittar umbeðnar upplýsingar hinn 12. ágúst s.á. Kæra var send kærunefnd jafnréttismála hinn 29. ágúst 2024.
SJÓNARMIÐ KÆRÐA
- Kærði krefst þess að máli þessu verði vísað frá kærunefndinni þar sem kæran hafi verið lögð fram utan lögmælts kærufrests 3. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020. Að öðru leyti hafnar kærði ásökunum kæranda um ólögmætan kynbundinn launamun og ítrekar að málsmeðferð og ákvarðanir hafi verið í samræmi við gildandi kjarasamning Læknafélags Íslands og íslenska ríkisins.
- Í greinargerð kærða kemur m.a. fram að kærandi hafi starfað hjá kærða sem sérfræðilæknir á […] frá 1. janúar 2007, og sé sem slík í grunnlaunaflokki 300. Með nýjum kjarasamningi árið 2015 hafi verið bætt við möguleika til launaákvörðunar á forsendum starfsbundinna þátta í starfi læknis. Á grundvelli 2. mgr. í bókun 4 við kjarasamninginn hafi kærandi fengið metinn einn launaflokk (svokallaðan sólarlagsflokk). Eftir gildistöku samningsins var gert ráð fyrir að starfsbundnir þættir lækna skyldu endurmetnir árlega og hafi kæranda frá 1. júní 2015 verið boðnir tveir launaflokkar á forsendum starfsbundinna þátta umfram grunnröðun, þ.e. að hún færi í launaflokk 302, þar sem hún hafi verið með einn sólarlagsflokk sem hafi verið meðtalinn. Hafi kærandi samþykkt þetta og hafi samningur verið endurnýjaður árlega allt til 1. júní 2021. Við framlengingu samnings þá hafi kærandi hafnað honum sem ófullnægjandi. Hafi kærandi því frá 1. júní 2021 til 1. júní 2023 verið í launaflokki 301. Frá þeim tíma hafi kærandi verið hækkuð í launaflokk 304, þ.e. fengið metna starfsbundna þætti til samtals fjögurra launaflokka.
- Kærði bendir á að kjarasamningur lækna hafi nokkra sérstöðu þar sem hann sé alfarið miðlægur og án stofnanaþáttar. Ákvæði samningsins um mat á starfsaldri, viðbótarmenntun og starfsbundnum þáttum sem geti haft áhrif á röðun lækna í launaflokka hafi verið efnislega óbreytt frá gildistöku kjarasamningsins frá 2015. Grunnlaun allra sérfræðilækna sé launaflokkur 300, fyrir „board“-próf eða sambærilegt fái sérfræðilæknir einn launaflokk til viðbótar og annan vegna doktorsprófs, þ.e. allt að tvo flokka fyrir viðbótarmenntun. Vegna starfsbundinna þátta geti sérfræðilæknar átt rétt á allt að fimm launaflokkum til viðbótar og hámarksröðun sé þá launaflokkur 307.
- Í umfjöllun um mat á forsendum starfsbundinna þátta í starfi sérfræðilæknis séu stjórnendur bundnir af fjárhagslegu svigrúmi sem stofnun eða viðkomandi stjórnareining hafi á hverjum tíma og hafi þessar hömlur verið ljósar allt frá gildistöku kjarasamnings 2015. Þar komi fram að fjárhagslegt svigrúm til greiðslu viðbótarþátta skuli við gildistöku vera 4,5% af launasummu félagsmanna í Læknafélagi Íslands og hafi 3% verið ráðstafað með einum launaflokki til hvers og eins (sólarlagsflokkur) án sérstaks mats á starfsbundnum þáttum. Þá hafi einungis 1,5% staðið eftir til umbunar vegna starfsbundinna þátta sem hafi að jafnaði verið ½ launaflokkur á hvern lækni. Fyrir 2015 hafi verið gert ráð fyrir að umbuna mætti sérfræðilæknum fyrir tiltekna viðbótarþætti með álagsgreiðslu, allt að 15% af grunnlaunaflokki. Við gildistöku nýrra ákvæða um starfsbundna þætti árið 2015 hafi verið samið sérstaklega um afdrif álagsgreiðslna samkvæmt eldra fyrirkomulagi þannig að tryggt yrði að þeir sem þeirra nutu misstu ekki launaumbun sem þeir áður höfðu og lækkuðu örugglega ekki í launum. Álagsgreiðsla (allt að 15%) skyldi breytast í flokka ofan á grunnlaun þannig að fyrir hver 5% kæmi einn launaflokkur, alls 3 flokkar. Til viðbótar við þetta fyrirkomulag var kveðið á um, eins og fyrr greinir, að allir sérfræðilæknar fengju einn launaflokk ofan á launaröðun sína. Launaflokkar vegna eldra álags og vegna forgjafar inn í fyrirkomulag starfsbundinna þátta skyldu lúta lögmálum „sólarlagsflokka“ sem þýði að aðeins þeir sem voru við störf við gildistökuna 2015 væru með slíka viðbótarflokka (allt að fjórir flokkar) en launaflokkun þeirra sem eru ráðnir séu eftir gildistökuna fari samkvæmt ákvæðum kjarasamningsins um mat á starfsbundnum þáttum.
- Sérfræðilæknar sem njóta sólarlagsflokka teljist ekki vera með hærri grunnröðun, launaflokkurinn sé 300. Launaröðun þeirra hækki ekki fyrr en þeir hafi uppfyllt skilyrði kjarasamningsins til hækkunar umfram þann fjölda sólarlagsflokka sem þeir hafi. Í svari skrifstofu kjara- og mannauðsmála hjá ríkinu frá 23. nóvember 2015 komi skýrt fram að launaflokkshækkun 1. júní 2015 skuli ganga upp í þegar nýjar röðunarforsendur séu metnar. Ef starf raðast þannig í framtíðinni að viðkomandi uppfylli ekki þá röðun sem hann hafi verið með þá þurfi fyrst að uppfylla forsendur starfsins áður en viðkomandi fái frekari hækkanir.
- Af hálfu kærða er bent á að í kæru sé ranglega miðað við að kærandi sé með grunnflokk 301 á þeim forsendum að hún hafi fengið einn sólarlagsflokk frá 1. júní 2015. Umræddan sólarlagsflokk hafi kærandi fengið á grundvelli 2. mgr. bókunar 4, sem allir hafi fengið. Kærandi hafi ekki verið með álagsgreiðslur ofan á grunnlaunin samkvæmt eldri kjarasamningi og hafi því ekki fengið sólarlagsflokk eða -flokka samkvæmt fylgiskjali 1, þ.e. þegar álagsprósentur, hver 5%, voru metin til hækkunar um einn launaflokk ofan á grunnröðun í nýrri launatöflu. Eftir sem áður hafi grunnlaunaflokkur kæranda verið 300. Kærandi hafi því þurft að uppfylla mat stjórnenda á starfsbundnum þáttum til tveggja launaflokka ofan á grunnröðun til að eiga rétt á launaflokki 302. Kæranda hafi boðist tveir launaflokkar allt frá 1. júní 2015, þ.e. flokkur 302, sem kærandi hafi verið í til 2021, eins og fram komi í breytingatilkynningum til kæranda frá 2016−2020.
- Þá áréttar kærði að tilgangur breytinganna 2015 hafi verið að efla stjórnun, auka sveigjanleika og auka möguleika stofnana til að bregðast við breyttum aðstæðum í rekstri og starfsmannahaldi. Gætu stjórnendur lagt mat á störf og umbunað í samræmi við það mat með tilliti til dugnaðar, áhuga, hæfni og frammistöðu starfsmanns sem gæti stuðlað að því að honum yrðu falin aukin og verðmætari verkefni sem leiddu til hærra mats vegna starfsbundinna þátta. Þannig væri gengið út frá einstaklingsbundnu mati og að starfsbundnir þættir gætu leitt til þess að laun sérfræðilækna væru mismunandi. Fullyrðingar kæranda um að störf hennar og samanburðarlækna séu að öllu leyti eins séu alfarið byggðar á áliti kæranda en ekki á mati stjórnenda sem þó sé samkvæmt kjarasamningi ætlað að leggja mat á starfsbundna þætti í störfum hvers og eins.
- Þeir sérfræðilæknar sem kærandi beri sig saman við og voru við störf 2015 hafi allir fengið metna fjóra sólarlagsflokka fyrir gildistöku kjarasamnings 2015. Einn hafi verið með 15% álag á þeim tíma og því fengið þrjá sólarlagsflokka til viðbótar við flokk samkvæmt 2. mgr. bókunar 4, eða alls 4 sólarlagsflokka, auk tveggja launaflokka vegna doktorsnáms. Annar hafi og verið með 15% álag fyrir 2015 og fengið þrjá sólarlagsflokka og einn samkvæmt 2. mgr. bókunar 4, eða alls 4 sólarlagsflokka. Sá þriðji sem vísað sé til hafi og verið með 15% álag fyrir 2015 og fengið þrjá sólarlagsflokka og einn samkvæmt 2. mgr. bókunar 4, eða alls 4 sólarlagsflokka, og til viðbótar einn flokk vegna svokallaðs „board“-prófs. Kærandi sem ekki hafi verið með álag ofan á laun 2015 hafi því ekki fengið sólarlagsflokk á grundvelli fylgiskjals 1 með kjarasamningi, en fengið einn launaflokk samkvæmt 2. mgr. bókunar 4, þ.e. einn sólarlagsflokk. Kærandi hafi verið í launaflokki 302 frá 1. júní 2015, þ.e. tvo flokka vegna frammistöðumats, þar af einn flokk vegna sólarlags ótímabundið og einn flokk tímabundið, sem hafi verið óbreytt til 31. maí 2021. Frá þeim tíma hafi kærandi hafnað launasetningu sinni og hafi færst í flokk 301 til 31. maí 2023, en miðað við þau tímamörk hækkaði kærandi í flokk 304. Af framangreindu telur kærði ljóst að forsendur launaákvarðana kæranda annars vegar og nefndra þriggja karlmanna hins vegar séu mismunandi, einkum vegna yfirfærslu þeirra síðarnefndu á milli kerfa með tilkomu starfsbundinna þátta í kjarasamningi árið 2015.
- Að því er varðar sjónarmið kæranda um að í máli þessu verði beitt undanþágu 3. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020 frá sex mánaða kærufresti tekur kærði fram að vitneskja kæranda um meint brot á lögum nr. 150/2020 hafi legið fyrir í september 2023 eða í tæpt ár áður en kæra er lögð fram. Þá hafi kærandi allt frá árinu 2019 verið ósátt við laun sín og mat stjórnenda á starfsbundnum þáttum. Kærandi hafi í kjölfar ráðningar karlkyns sérfræðilæknis […] 2023 fengið upplýsingar um launaflokkun hans. Kærandi hafi áður, eða vorið 2023, rætt við launadeild kærða o.fl., um hækkun launa sinna og hafi það máli verið í ferli. Kærandi hafi ítrekað það erindi með tölvupósti hinn 21. september s.á. Kærði bendir á að kærandi telji sig, í framhaldi af leiðréttingu launanna, fljótlega hafa komist á snoðir um að aðrir karlkyns sérfræðilæknar sem kærandi telji vera í sambærilegri stöðu og kærandi væru hærra launasettir en hún. Kærandi hafi hins vegar ekki kært meint brot kærða til kærunefndar jafnréttismála fyrr en síðar. Hafnar kærði því að afstaða hans og synjun á leiðréttingu hafi fyrst legið fyrir hinn 12. júní 2024, hún hafi legið fyrir allt frá september 2023, þ.e. að ekki kæmi til leiðréttingar launa nema til 1. júní 2024. Kæranda hafi því verið í lófa lagið að kæra hin meintu brot þegar hún hafi talið sig hafa fengið upplýsingar um þau í september 2023. Kærufrestur byrji að líða samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020 þegar vitneskja um ætlað brot liggi fyrir eða frá því að ástandi sem talið er brot lýkur. Fær kærði ekki séð að afsakanlegt sé að kæra hafi borist svo seint þannig að til greina komi að beita undanþágu frá almennum sex mánaða kærufresti laganna.
NIÐURSTAÐA
- Mál þetta snýr að því hvort kærði hafi brotið gegn 18. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sbr. 6. gr. sömu laga, með því að greiða kæranda sem sérfræðilækni á […] kærða lægri laun en karlkyns sérfræðilæknum á árabilinu 2020 til 2023 og synja henni um leiðréttingu launa til samræmis við laun karla á tímabilinu sem kærandi telur að gegnt hafi sömu eða jafnverðmætum störfum og hún.
- Í 1. gr. laga nr. 150/2020 kemur fram að markmið laganna sé að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, m.a. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, og um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint samkvæmt framansögðu og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna hafi verið brotin.
- Í 1. mgr. 16. gr. laga nr. 150/2020 er tekið fram að hvers kyns mismunun á grundvelli kyns, hvort heldur bein eða óbein, sé óheimil. Samkvæmt 1. mgr. 18. gr. laganna er atvinnurekendum óheimilt að mismuna konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá í launum og öðrum kjörum á grundvelli kyns. Kjör eru skilgreind sem laun ásamt lífeyris-, orlofs- og veikindaréttindum og hvers konar öðrum starfskjörum eða réttindum sem metin verða til fjár, sbr. 10. tölul. 2. gr. laganna. Samkvæmt sönnunarreglu 2. mgr. 18. gr. kemur það í hlut þess sem telur á sér brotið að leiða líkur að því að honum hafi verið mismunað í launum og/eða öðrum kjörum á grundvelli kyns. Takist sú sönnun skal atvinnurekandi sýna fram á, ef um launamun er að ræða, að munurinn skýrist af öðrum þáttum en kyni, eða að hann fari ekki gegn lögunum að öðru leyti. Af framangreindu er ljóst að það kemur í hlut kæranda að færa fram staðreyndir eða önnur gögn og upplýsingar sem leiða líkur að því að kærði hafi mismunað kæranda í launum og/eða öðrum kjörum á grundvelli kyns.
- Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, geta einstaklingar sem telja að ákvæði laga um jafnréttismál hafi verið brotin gagnvart sér leitað atbeina kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. skulu erindi berast nefndinni skriflega innan sex mánaða frá því að vitneskja um ætlað brot á lögum um jafnréttismál lá fyrir, frá því að ástandi sem talið er brot lýkur eða frá því að sá sem málið varðar fékk vitneskju um ætlað brot. Í niðurlagi 3. mgr. er kveðið á um að kærunefnd jafnréttismála geti þegar sérstaklega stendur á ákveðið að taka erindi til meðferðar þótt framangreindur sex mánaða frestur sé liðinn, þó aldrei ef liðið er meira en eitt ár.
- Erindi kæranda til nefndarinnar barst 29. ágúst 2024. Þar greinir að kærandi hafi komist að kynbundnum launamun gagnvart sér hinn 20. september 2023 er karlkyns sérfræðilæknir var ráðinn til starfa og settur í hærri launaflokk en kærandi. Á þessu vakti kærandi athygli í tölvupósti til kærða hinn 21. september 2023. Af hálfu kæranda er því haldið fram að í framhaldi af þessu eða fljótlega í kjölfarið hafi kærandi komist að því að aðrir karlkyns sérfræðilæknar í sambærilegum störfum hafi og verið hærra launasettir þrátt fyrir að sinna sambærilegum starfsbundnum þáttum. Kærandi taldi að leiðrétting launaflokka einungis til 1. júní 2023 hafi því verið ófullnægjandi. Áttu aðilar í ýmsum samskiptum vegna þessa allt fram á mitt ár 2024.
- Í kæru er gerð krafa um að kærunefndin staðfesti að kærði hafi brotið í bága við ákvæði laga nr. 150/2020 með þeim mismun sem var í launakjörum og launasetningu kæranda og karlkyns lækna í sambærilegri stöðu á árunum 2020 til 2023. Skilja verður kæruna svo að hún lúti að kröfu kæranda um leiðréttingu launa lengra aftur í tímann en 1. júní 2023 á þeim grunni að hún hafi að auki átt rétt á leiðréttingu vegna launamunar gagnvart þremur öðrum karlkyns sérfræðilæknum fyrir þann tíma. Vitneskja kæranda um launaflokk […] sérfræðilæknis í september 2023 telst því ekki marka upphaf kærufrests, heldur það tímamark þegar kæranda mátti vera ljóst að kynbundinn launamunur kunni að hafa og tekið til annarra karlkyns sérfræðilækna á árabilinu 2020 til 2023. Ekki nýtur við beinna upplýsinga um það í málinu hvenær kæranda var það fullljóst, en í tölvupósti kæranda til kærða, dags. 11. mars 2024, vísar kærandi til þess að hún hafi þá, eftir nokkur forföll haustið 2023, haft tök á að leita sér „talsverðra upplýsinga“ um kaup og kjör sérfræðilækna af mismunandi kyni sem gegna sömu eða svipuðum störfum og kærandi. Í tölvupóstinum áréttar kærandi að vegna ætlaðra brota á lögum nr. 150/2020 ráðgeri kærandi að senda kæru til nefndarinnar. Af hálfu kærunefndar er litið svo á að erindi kæranda til nefndarinnar hafi borist innan sex mánaða frá því að þessi staða var komin upp og kæranda var eða mátti vera ljóst að ætlað brot á lögum hafi staðið yfir lengur en miðað við 1. júní 2023. Er því ekki tilefni til að vísa málinu frá nefndinni af þeim sökum að kæra hafi borist utan lögmælts frests.
- Í málinu deila málsaðilar um launaflokkun kæranda í starfi sérfræðilæknis á […] kærða, forsendur hennar og hvort í henni felist kynbundin mismunun gagnvart kæranda að teknu tilliti til launasetningar karlkyns sérfræðilækna sem kærandi ber sig saman við. Kæranda, sem sérfræðilækni hjá kærða, hefur verið raðað í grunnlaunaflokk 300, en undir þann flokk falla læknar sem hafa lokið sérnámi og hafa sérfræðileyfi. Með kjarasamningi milli Læknafélags Íslands og íslenska ríkisins frá 2015 voru þær breytingar gerðar á launaflokkun að bætt var inn möguleika til launaákvörðunar á forsendum starfsbundinna þátta í starfi hvers og eins læknis og sem endurmeta skyldi árlega. Á grundvelli bókunar með kjarasamningnum fékk kærandi grunnflokk 300 og tvo flokka vegna frammistöðumats, þar af einn flokk, sólarlagsflokk, sem var ótímabundinn, og annan sem var tímabundinn (302). Hélt kærandi þeirri launaflokkun allt til ársins 2021 er kærandi hafnaði framlengingu þeirrar launasetningar. Byggði kærandi þá afstöðu á því að allt frá árinu 2015 hafi henni aðeins verið boðinn eins launaflokks hækkun vegna starfsbundinna þátta, þar sem kærandi hafi samkvæmt kjarasamningnum verið í launaflokki 301 en kærandi hafi eins og aðrir hækkað um þennan flokk við gildistöku kjarasamningsins. Því hafi hún einungis fengið einn starfsbundinn þátt metinn, en ekki tvo, eins og kærði hafi haldið fram. Hafi kærandi þá farið niður í launaflokk 301.
- Nokkuð ber á milli hjá málsaðilum að því er varðar skilning á ákvæði 2. mgr. bókunar 4 með kjarasamningum frá 2015, sem kvað á um að við gildistöku breytinga á ákvörðun launa samkvæmt samningnum skyldi tryggt að allir læknar skyldu hækka um einn launaflokk við breytinguna, en sú hækkun hefði ekki áhrif þegar starfsbundnir þættir, sem innleiddir voru, væru metnir. Kærandi hefur byggt á því að þessi ótímabundni launaflokkur sé grunnlaunaflokkur hennar og að starfsbundnir þættir sem kærandi telur sig eiga rétt á komi þessum grunnflokki til viðbótar. Af hálfu kærða er aftur á móti til þess vísað að eins launaflokks hækkun við gildistöku kjarasamningsins hafi ekki falið í sér hærri grunnröðun, hún hafi eftir sem áður verið launaflokkur 300. Launaröðun þeirra sem hafi verið með sólarlagsflokk hækki ekki fyrr en þeir hafi uppfyllt skilyrði kjarasamningsins til hækkunar umfram þann fjölda sólarlagsflokka sem þeir hefðu. Um þetta vísar kærði til skýringa skrifstofu kjara- og mannauðsmála hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá 2015, þar sem kveðið sé á um að launaflokkshækkunin eigi að ganga upp í þegar nýjar röðunarforsendur séu metnar. Sú hækkun hafi ekki áhrif þegar starfsbundnir þættir samkvæmt fylgiskjali með samningnum séu metnir. Ef starfið raðist þannig í framtíðinni að viðkomandi uppfyllir ekki þá röðun sem hann er með þurfi fyrst að uppfylla forsendur starfsins áður en viðkomandi fær frekari hækkanir. Haldi menn þeim eina launaflokki sem fenginn var 1. júní 2015, en það þýði ekki að sá launaflokkur komi til viðbótar röðun starfsins samkvæmt nýjum röðunarforsendum. Kærði bendir á í þessu sambandi að við launasetningu kæranda í kjölfar gildistöku kjarasamningsins frá 2015 hafi kærandi fengið tvo launaflokka vegna frammistöðumats, þar af annan sem sólarlagsflokk. Þessi flokkun hafi haldist til 2021 enda hafi kærandi ekki fengið frekari hækkun vegna starfsbundinna þátta.
- Með kjarasamningi sem gildi tók á árinu 2015 voru, svo sem áður er rakið, gerðar breytingar sem fólu í sér að bætt var við möguleika til launaákvörðunar á forsendum starfsbundinna þátta. Af hálfu kærða er til þess vísað, varðandi mat á hinum starfsbundnu þáttum, að matið byggi á stigagjöf sem alfarið sé háð mati stjórnenda en ekki mati starfsmanna sjálfra og ekki sé um sjálfstæðan rétt starfsmanna að ræða. Væri þannig gengið út frá persónubundnu mati og gætu laun sérfræðilækna því verið mismunandi. Kærði bendir á í þessu sambandi að fullyrðingar kæranda um að störf annarra séu að öllu leyti eins eða alveg sambærileg störfum kæranda séu alfarið byggðar á einhliða áliti kæranda en ekki á mati stjórnenda sem þó sé samkvæmt kjarasamningi ætlað að leggja mat á starfsbundna þætti hvers og eins.
- Samkvæmt kjarasamningnum gátu alls 11 þættir haft vægi til launahækkana og var litið til ábyrgðar og umfangs verkefna eftir því sem við gæti átt. Umræddir flokkar tóku til stjórnunar, kennslu, gerð vaktaáætlana, rannsókna, teymisvinnu, þróunarvinnu, nýsköpunar/árangurs, aukningar á aðgengi að þjónustu, sérþekkingar, gæðastarfs og til sérstakra verkefna. Gátu starfsbundnu þættirnir ýmist verið varanlegir eða tímabundnir. Í málinu liggur fyrir matsblað þar sem þættirnir eru brotnir niður í stig á bilinu 0−5, svo og almenn samantekt kærða á launasamsetningu sérfræðilækna og yfirlækna frá 11. september 2023 sem rekja má til fyrirspurnar Læknafélags Íslands um m.a. notkun viðbótarlaunaflokka. Að auki liggur fyrir lýsing á verklagi vegna úthlutunar launaflokka til sérfræðilækna og sem gilti fyrir úthlutun 2023−2024, þar sem gerð er grein fyrir ákvörðunarferlinu, þ.m.t. hlutverki mannauðsstjóra, yfirlækna, framkvæmdastjóra eða forstöðumanns, og launadeildar.
- Í málinu nýtur ekki við annarra gagna um ákvörðun um úthlutun launaflokka til kæranda vegna starfsbundinna þátta en það sem fram kemur í árlegri tilkynningu til kæranda árin 2016 til 2021, þ.e. að grunnlaunaflokkur kæranda væri 300, tveir viðbótarflokkar væru vegna frammistöðumats, þar af einn vegna sólarlags (ótímabundinn) og einn flokkur tímabundinn. Eftir að karlkyns sérfræðilæknir tók til starfa á sömu deild og kærandi vakti hún athygli á því í tölvupósti til kærða hinn 21. september 2023 að sá sérfræðilæknir, með sömu sérgrein en langtum minni starfsaldur en kærandi, hefði strax við ráðningu fengið þrjá starfsbundna launaflokka umfram grunnflokk, eða launaflokk 303. Strax daginn eftir, eða hinn 22. september, var kæranda tilkynnt að farið hafi verið yfir launasetningu kæranda og niðurstaðan hafi verið sú að launaröðun breyttist svo að kærandi fengi tvo launaflokka fyrir sérfræðileyfi og undirsérgrein, einn sólarlagsflokk (ótímabundinn) og einn flokk vegna frammistöðumats, eða launaflokk 304. Yrði þessi breyting afturvirk frá 1. júní 2023.
- Samkvæmt ákvæði 18. gr., sbr. 6. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, er atvinnurekendum óheimilt að mismuna konum og körlum í launum og öðrum kjörum á grundvelli kyns. Af þessari lagaskyldu leiðir að launaákvarðanir atvinnurekanda sem byggja á mati á starfsbundnum þáttum mega ekki fela í sér að karlar og konur njóti mismunandi launakjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf og fela þannig í sér kynbundna mismunun samkvæmt lögum nr. 150/2020. Þótt mat á starfsbundnum þáttum sé háð mati stjórnenda verður við það mat að gæta að umræddri lagaskyldu. Á sama hátt verður við úthlutun fjárveitinga til launahækkana að taka mið af framangreindum skyldum.
- Fyrir liggur að kærandi hefur um langt skeið gert athugasemd við launaflokkun sína vegna starfsbundinna þátta þótt misskilnings hafi gætt í samskiptum aðila varðandi þýðingu svonefnds sólarlagsflokks við mat á starfsbundnum þáttum. Hvað sem þessu líður verður ekki annað séð en að breyting sú sem gerð var á launaröðun kæranda, eftir kvörtun sem gerð var í september 2023, hafi byggst á því að kærandi hafi ekki verið réttilega metin fram til þess tíma, enda hefur kærði ekki sérstaklega vísað til breytinga á störfum eða starfsbundnum þáttum í starfi kæranda, sem réttlætt hafi þá breytingu eða hafi átt sér stað á umræddum tíma eða hafi ekki verið til staðar á tímabili því sem mál þetta nær til. Af gögnum málsins má því ráða að kærandi hafi fyrir þá leiðréttingu, sem miðaðist við 1. júní 2023, verið launasett lægra í samanburði við karlkyns sérfræðilækna sem hún ber sig saman við. Telst kærandi því hafa leitt líkur að því að því að henni hafi verið mismunað í launum í skilningi 2. mgr. 18. gr. laga nr. 150/2020. Kemur það því í hlut kærða að sýna fram á að munurinn skýrist af öðrum þáttum en kyni.
- Af hálfu kærða er einkum til þess vísað, varðandi samanburð á launum kæranda og þeirra þriggja karla sem hún vísar til, að forsendur launaákvarðana séu mismunandi einkum vegna yfirfærslu karlanna milli kerfa með tilkomu starfsbundinna þátta í kjarasamningnum 2015. Karlarnir hafi verið með 15% álag ofan á laun á því tímamarki, og hafi vegna þess fengið þrjá sólarlagsflokka. Ekki verður fallist á með kærða að úrslitum ráði í þessu sambandi að launakjör þeirra hafi að þessu leyti ráðist af yfirfærslu álagsgreiðslna karlanna við gildistöku kjarasamningsins, enda ber að líta á að grundvöllur álagsgreiðsla, sem yfirfærðar voru við gildistöku kjarasamningsins, samsvari að meginstefnu til mati á starfsbundnum þáttum sem teknir voru upp árið 2015. Kærandi naut aftur á móti ekki nema að litlu leyti launahækkana vegna starfsbundinna þátta í samanburði við karlana á tímabilinu 2020 til 2023. Með vísan til þessa og þar sem kærði hefur ekki teflt fram öðrum sjónarmiðum sem máli skipta varðandi réttlætingu launamunar sem í framangreindu fólst, telst kærði ekki hafa sýnt fram á að launamunurinn fyrir sömu eða jafnverðmæt störf kæranda og karlanna hafi skýrst af öðrum þáttum en kyni.
- Lög nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, voru birt í A-deild Stjórnartíðinda hinn 5. janúar 2021, en með þeim voru lög nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, felld úr gildi. Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 10/2008 var mælt fyrir um að markmið laganna væri að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Í 1. mgr. 19. gr. laganna var mælt fyrir um að konum og körlum er störfuðu hjá sama atvinnurekanda skyldu greidd jöfn laun og skyldu njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Í 1. mgr. 25.gr. laganna greindi að atvinnurekendum væri óheimilt að mismuna konum og körlum í launum og öðrum kjörum á grundvelli kyns. Í 2. mgr. var lögfest samsvarandi sönnunarregla og nú er lögfest í 2. mgr. 18. gr. laga nr. 150/2020. Þá var loks í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 10/2008 mælt fyrir um að verkefni kærunefndar jafnréttismála væri að taka erindi til meðferðar og kveða upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna hefðu verið brotin.
- Að öllu framangreindu virtu verður talið að kærði hafi brotið gegn 18. gr., sbr. 6. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, með ákvörðun launakjara kæranda á tímabilinu 6. janúar 2021 til 1. júní 2023, en gegn 1. mgr. 25. gr., sbr. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, með ákvörðun launakjara á tímabilinu frá 1. janúar 2020 til 5. janúar 2021. Í samræmi við þá niðurstöðu og 4. mgr. 8. gr. laga nr. 151/2020 verður fallist á kröfu kæranda um að kærði greiði kæranda málskostnað við að hafa kæruna uppi að fjárhæð 400.000 kr.
- Uppkvaðning úrskurðar í málinu hefur tafist umfram þann tveggja mánaða frest sem nefndin hefur til að úrskurða í máli eftir að gagnaöflun í því er lokið samkvæmt 5. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála. Er ástæða þess einkum mikill fjöldi mála sem er til meðferðar hjá nefndinni, svo og breytingar á vistun hennar og starfsmannahaldi.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Kærði, Landspítali, braut annars vegar gegn 18. gr., sbr. 6. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, við launasetningu kæranda, á tímabilinu 6. janúar 2021 til 1. júní 2023, en hins vegar gegn 1. mgr. 25. gr., sbr. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, við launasetningu kæranda tímabilinu frá 1. janúar 2020 til 5. janúar 2021.
Kærði greiði kæranda kr. 400.000 í málskostnað við að hafa kæruna uppi.
Ari Karlsson
Andri Árnason
Maren Albertsdóttir