Mál nr. 480/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 480/2026
Fimmtudaginn 27. ágúst 2026
A gegn Reykjavíkurborg
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 18. janúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 1. júlí 2026, um að synja umsókn hans um sérstakan húsnæðisstuðning.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 9. apríl 2026, sótti kærandi um sérstakan húsnæðisstuðning frá Reykjavíkurborg. Með bréfi Austurmiðstöðvar Reykjavíkurborgar, dags. 6. maí 2026, var umsókn kæranda synjað og var sú ákvörðun staðfest af áfrýjunarnefnd velferðarráðs 1. júlí 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. júlí 2026. Með bréfi, dags. 13. júlí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 16. júlí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. júlí 2026. Viðbótargögn bárust frá kæranda 30. júlí 2026 og voru þau kynnt Reykjavíkurborg með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust frá Reykjavíkurborg og voru þær kynntar kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. ágúst 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála kemur fram að kærandi vilji kæra ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar og fari fram á að ákvörðunin verði felld úr gildi eða henni breytt. Kærandi telji að málið hafi ekki verið rannsakað með fullnægjandi hætti og að forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hafi ekki verið nægilega skýrðar. Kærandi hafi ítrekað óskað eftir sundurliðun útreikninga og rökstuðningi fyrir niðurstöðunni en hann telji að þær skýringar sem honum hafi borist hafi ekki verið fullnægjandi. Þá telji kærandi að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til þeirra upplýsinga og gagna sem hann hafi lagt fram.
Kærandi krefjist þess að úrskurður áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar verði felldur úr gildi. Til vara krefjist kærandi þess að málinu verði vísað aftur til nýrrar meðferðar þar sem gætt verði að rannsóknarreglu, leiðbeiningarskyldu, jafnræðisreglu og skyldu stjórnvalda til að rökstyðja ákvarðanir sínar samkvæmt stjórnsýslulögum.
Kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Umsókn hans hafi verið synjað og hafi kærandi kært þá ákvörðun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Kærandi hafi ítrekað óskað eftir skýringum á útreikningum og forsendum ákvörðunarinnar en hann hafi ekki fengið fullnægjandi sundurliðun eða rökstuðning.
Kærandi telji að rannsókn málsins hafi ekki verið fullnægjandi samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga. Rökstuðningur hafi ekki uppfyllt kröfur 22. gr. stjórnsýslulaga. Þá telji kærandi að leiðbeiningarskylda samkvæmt 7. gr., jafnræðisregla samkvæmt 11. gr. og meðalhófsregla samkvæmt 12. gr. hafi ekki verið virtar.
Kæran byggi á 7., 10., 11., 12. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, auk meginreglna stjórnsýsluréttar um vandaða málsmeðferð, gagnsæi og rétt borgara til fullnægjandi rökstuðnings.
Með vísan til framangreinds telji kærandi að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar sé haldin verulegum annmörkum. Kærandi fari því fram á að úrskurðurinn verði felldur úr gildi eða málinu verði vísað aftur til nýrrar meðferðar.
Kærandi tekur fram að hann hafi flutt aftur til Íslands og sótt um sérstakan húsnæðisstuðning frá Reykjavíkurborg. Við flutning að B hafi umsókn kæranda verið samþykkt og hafi hann fengið sérstakan húsnæðisstuðning greiddan. Kærandi hafi aðeins búið þar í stuttan tíma og hafi síðan flutt að C. Eftir þann flutning hafi kærandi sótt aftur um sama stuðning.
Þrátt fyrir að aðstæður kæranda hafi í meginatriðum verið sambærilegar hafi umsókn kæranda verið synjað. Frá þeim tímapunkti hafi hafist löng og umfangsmikil samskipti við Reykjavíkurborg þar sem kærandi hafi reynt að fá skýringar á því hvers vegna niðurstaðan hefði breyst. Kærandi hafi ítrekað óskað eftir rökstuðningi, sundurliðun útreikninga, upplýsingum um hvaða tekjur hafi verið lagðar til grundvallar, hvaða reglur giltu um þetta og hvernig niðurstaðan hafi verið reiknuð. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir hafi kærandi aldrei fengið skýra og fullnægjandi sundurliðun sem hafi gert honum kleift að sannreyna ákvörðunina. Í samskiptunum hafi kæranda ítrekað verið vísað á milli Reykjavíkurborgar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Annars vegar hafi verið vísað til upplýsinga eða reglna frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun en hins vegar hafi komið fram að Reykjavíkurborg bæri ábyrgð á ákvörðuninni. Þetta hafi gert kæranda afar erfitt fyrir að átta sig á því hvaða stjórnvald bæri ábyrgð á einstökum þáttum málsins og hvert hann ætti að beina athugasemdum sínum.
Það sem veki sérstaka athygli sé að þrátt fyrir synjun á umsókn kæranda hafi honum síðar borist greiðslur að fjárhæð um 600 krónur sem hafi tengst sama stuðningi. Ef umsókninni hafi í raun verið synjað hafi þessi greiðsla vakið eðlilegar spurningar um hvort útreikningar, afgreiðsla eða framkvæmd ákvörðunarinnar hafi verið rétt. Um þetta atriði hafi kæranda aldrei verið veittar fullnægjandi skýringar á.
Vegna synjunar hafi kærandi kært ákvörðunina til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Í kærunni hafi kærandi meðal annars bent á að rannsókn málsins og rökstuðningur væri ófullnægjandi, að kærandi hafi ekki fengið þær leiðbeiningar sem stjórnvöldum hafi borið að veita, að ekki hafi verið brugðist við öllum þeim atriðum sem kærandi hafi vakið athygli á og að kærandi hafi ekki fengið fullnægjandi skýringar á þeim útreikningum sem ákvörðunin hafi byggt á.
Áfrýjunarnefnd hafi hins vegar staðfest synjunina án þess að taka efnislega afstöðu til þessara annmarka. Vegna þessa hafi kærandi ekki talið sig eiga aðra kosta völ en að kæra málið til úrskurðarnefndar velferðarmála. Kæran byggi á því að málsmeðferð stjórnvalda hafi ekki uppfyllt þær kröfur sem stjórnsýslulög geri um rannsókn máls, leiðbeiningarskyldu, jafnræði, meðalhóf og fullnægjandi rökstuðning. Kærandi telji jafnframt að þau gögn sem fylgi kæru hans sýni skýrt fram á að kærandi hafi ítrekað reynt að fá skýringar og leiðréttingar, án árangurs.
Þegar litið sé til málsins í heild blasi við að verulegt ósamræmi hafi verið í meðferð þess. Kærandi hafi áður fengið samþykktan sérstakan húsnæðisstuðning við búsetu að B en honum hafi síðar verið synjað, eftir flutning að C, án þess að honum hafi verið veittar fullnægjandi skýringar á hvers vegna. Þrátt fyrir synjun hafi kæranda borist greiðslur sem hafi ekki samræmst niðurstöðu málsins. Á sama tíma hafi kæranda ítrekað verið vísað á milli Reykjavíkurborgar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi ábyrgð á útreikningum og forsendum ákvörðunar.
Að mati kæranda sýni þetta að málið hafi hvorki verið rannsakað né rökstutt með þeim hætti sem stjórnsýslulög geri ráð fyrir. Kærandi telji því að ákvörðunin sé haldin verulegum annmörkum og fari fram á að úrskurður áfrýjunarnefndar velferðarráðs verði felldur úr gildi eða málinu vísað aftur til nýrrar og lögmætra meðferðar.
III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar
Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi sé X ára gamall karlmaður. Kærandi hafi lent í slysi árið 2017 og hafi flutt tímabundið til D til að leita sér aðstoðar vegna endurhæfingar þar í landi. Kærandi hafi flutt aftur til Íslands um haustið 2025. Kærandi hafi fyrst sótt um sérstakan húsnæðisstuðning með umsókn þann 9. desember 2025. Framangreind umsókn hafi verið samþykkt þann 2. janúar 2026 fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2026 og hafi kærandi fengið greiddar 607 kr. á mánuði í sérstakan húsnæðisstuðning fyrir umrætt tímabil. Kærandi hafi ekki fengið samþykkt fyrir tímabilið 1. til 31. desember [2025] þar sem hann hafi verið yfir tekjuviðmiði þann mánuð. Kærandi hafi flutt í aðra íbúð og hafi því sótt aftur um sérstakan húsnæðisstuðning með umsókn, dags. 9. apríl 2026, sem hafi verið synjað með bréfi Austurmiðstöðvar Reykjavíkurborgar, dags. 6. maí 2026, þar sem kærandi uppfyllti ekki skilyrði 5. tölul. 1. mgr. 3. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning. Kærandi hafi óskað etir að áfrýja framangreindri synjun með bréfi, dags. 24. júní 2026. Áfrýjunarnefnd velferðarrás hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 1. júlí 2026 og hafi afgreitt það með eftirfarandi bókun:
„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun starfsmanna á Austurmiðstöð Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning vegna tekna, skv. 5. tl. 1. mgr. 3. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning.“
Kærandi hafi nú kært ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs, dags. 1. júlí 2026, til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Um sérstakan húsnæðisstuðning gildi reglur Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning sem hafi verið samþykktar á fundi velferðarráðs þann 3. nóvember 2016 og á fundi borgarráðs þann 10. nóvember 2016, með síðari breytingum. Umræddar reglur séu settar á grundvelli laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur, auk 2. mgr. 45. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Í lögum um húsnæðisbætur segi að Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun annist framkvæmd húsnæðisbóta samkvæmt framangreindum lögum, sbr. 2. mgr. 5. gr. laganna. Kafli IV. framangreindra laga fjalli um umsóknir um húsnæðisbætur og upplýsingaskyldu. Í 1. mgr. 13. gr. laganna komi fram að umsækjandi skuli sækja um húsnæðisbætur til framkvæmdaraðila skv. 5. gr. og að umsóknin skuli vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og skuli nauðsynleg gögn fylgja henni. Þá sé kveðið á um að framkvæmdaraðila sé heimilt að kalla eftir frekari upplýsingum og gögnum sem hann telji þörf á til að staðreyna rétt umsækjanda til húsnæðisbóta. Fram komi í 1. mgr. 14. gr. laganna að umsækjandi skuli veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað sé eftir og nauðsynlegar séu til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Þá segi í 2. mgr. 14. gr. að umsækjandi og aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, skuli veita skriflegt umboð fyrir því að framkvæmdaraðili afli nauðsynlegra upplýsinga og gagna til að afgreiða umsókn um húsnæðisbætur og framfylgja lögunum að öðru leyti.
Í 2. mgr. 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga komi fram að sveitarfélög skuli veit sérstakan húsnæðisstuðning í samræmi við nánari reglur sem sveitarstjórn seti á grundvelli leiðbeininga ráðherra um sérstakan húsnæðisstuðning skv. 4. mgr. 45. gr. laganna. Í 4. mgr. 45. gr. laganna komi fram að ráðherra skuli, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, gefa út leiðbeiningar til sveitarstjórna um úthlutun félagslegs íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga samkvæmt lögum þessum sem og framkvæmd stuðnings skv. 2. og 3. mgr. ásamt viðmiðunarfjárhæðum. Í 1. gr. framangreindra leiðbeininga sé kveðið á um markmið sérstaks húsnæðisstuðnings. Þar segi að sérstökum húsnæðisstuðningi sé ætlað að lækka greiðslubyrði vegna húsnæðiskostnaðar hjá þeim sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði eða séu með íþyngjandi húsnæðiskostnað sökum lágra tekna eða lítilla eigna, þungrar framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna. Sambærilegt ákvæði sé einnig að finna í 1. mgr. 1. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning. Í 8. gr. framangreindra leiðbeininga fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings, skv. 2. mgr. 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, séu tilgreindar viðmiðunarfjárhæðir vegna mats á áhrifum tekna. Sambærilegt ákvæði sé að finna í reglum Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning en í 5. gr. þeirra reglna sé kveðið á um áhrif tekna á fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings.
Í reglum Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning sé tilgreint að sérstakur húsnæðisstuðningur sé fjárstuðningur til greiðslu á húsaleigu umfram húsnæðisbætur sem veittar séu á grundvelli laga um húsnæðisbætur. Líkt og að framan greini sé kveðið á um að sérstakur húsnæðisstuðningur sé ætlaður þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og félagslegra aðstæðna. Þá segi meðal annar í 2. gr. reglna að velferðarsvið Reykjavíkurborgar annist afgreiðslu umsókna um sérstakan húsnæðisstuðning og að með umsókn skuli fylgja öll nauðsynleg gögn. Við undirritun umsókna veita umsækjandi og annað heimilisfólk, 18 ára og eldra, velferðarsviði Reykjavíkurborgar heimild til að afla upplýsinga frá opinberum aðilum, svo sem framkvæmdaraðila húsnæðisbóta, skattyfirvöldum, Þjóðskrá Íslands, Menntasjóði námsmanna og sýslumönnum. Sama gildi um heimild til að afla upplýsinga frá öðrum aðilum svo sem viðurkenndum menntastofnunum innan hins almenna menntakerfis og leigusölum íbúðarhúsnæðis sem nauðsynlegar séu við afgreiðslu umsóknar. Hið sama eigi við um öflun nauðsynlegra upplýsinga frá sambærilegum aðilum erlendis þegar við eigi. Í 3. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning sé að finna skilyrði fyrir því að umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning verði samþykkt en öll skilyrði ákvæðisins þurfi að vera uppfyllt. Kærandi hafi uppfyllt alla töluliði 1. mgr. 3. gr. fyrir utan 5. tölul. ákvæðisins. Í 5. tölul. 1. mgr. 3. gr. reglnanna segi:
„Samanlagðar tekjur umsækjanda og annars heimilisfólks 18 ára og eldra, séu undir efri tekjumörkum samkvæmt 5. gr. reglna þessa.“
Við útreikning á sérstökum húsnæðisstuðning frá Reykjavíkurborg sé stuðst við upplýsingar frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, sbr. 2. gr. reglna. Samkvæmt upplýsingum sem hafi legið fyrir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi tekjur kæranda verið yfir efri tekjumörkum samkvæmt 5. gr. reglna. Austurmiðstöð Reykjavíkurborgar hafi því synjað umsókn kæranda um sérstakan húsnæðisstuðning með bréfi þann 6. maí 2026.
Þess megi geta að kærandi hafi óskað eftir upplýsingum frá Austurmiðstöð Reykjavíkurborgar um hvaða tekjur hafi legið til grundvallar framangreindri ákvörðun og hafi honum verið bent á að óska eftir framangreindum upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Líkt og framan greini sé upplýsingum um tekjur aflað af hálfu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar við útreikning á húsnæðisbótum og þær upplýsingar séu lagðar til grundvallar af hálfu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar við ákvörðun um greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings, sbr. 5. gr. reglna. Ef kærandi telji tekjuupplýsingar sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi undir höndum vera rangar sé hér með ítrekað að hann leiti þangað til að fá nánari skýringar.
Með hliðsjón af öllu framangreindu hafi það verið mat áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar að staðfesta bæri synjun Austurmiðstöðvar Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning þar sem skilyrði 5. tölul. 1. mgr. 3. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning hafi ekki verið uppfyllt.
Með hliðsjón af öllu því sem að framan greini sé ljóst að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning, sbr. 2. mgr. 45. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, né öðrum ákvæðum laganna eða stjórnsýslulögum nr. 37/1993.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um sérstakan húsnæðisstuðning. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að skilyrði 5. tölul. 1. mgr. 3. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning væru ekki uppfyllt.
Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við húsnæðismál, sbr. 1. mgr. 2. gr.
Í XII. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 2. mgr. 45. gr. laganna skulu sveitarfélög veita sérstakan húsnæðisstuðning í samræmi við nánari reglur sem sveitarstjórn setur.
Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á húsnæðismálum einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.
Reykjavíkurborg hefur sett reglur um sérstakan húsnæðisstuðning í samræmi við 2. mgr. 45. gr. laga nr. 40/1991 til útfærslu á þeirri þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita samkvæmt 45. gr. laganna. Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárstuðningur til greiðslu á húsaleigu umfram húsnæðisbætur sem veittar eru á grundvelli laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og ætlaður þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og félagslegra aðstæðna, sbr. 1. og 2. mgr. 1. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning.
Í 3. gr. framangreindra reglna er kveðið á um skilyrði fyrir samþykki umsóknar og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í 1. til 6. tölul. 1. mgr. ákvæðisins. Þá þurfa skilyrðin að vera uppfyllt á meðan umsækjandi fær greiddan sérstakan húsnæðisstuðning.
Samkvæmt 5. tölul. 1. mgr. 3. gr. þurfa samanlagðar tekjur umsækjanda og annars heimilisfólks 18 ára og eldra að vera undir efri tekjumörkum samkvæmt 5. gr. reglnanna. Þegar kærandi sótti um sérstakan húsnæðisstuðning voru efri tekjumörkin 655.010 kr. á mánuði miðað við einn heimilismann eins og á við í tilviki kæranda. Í 5. gr. reglnanna kemur einnig fram að miða skuli við sömu tekjur og liggi til grundvallar ákvörðun húsnæðisbóta hverju sinni og að með tekjum sé átt við allar tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. og 3. gr. 17. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Umsókn kæranda var sem fyrr segir synjað á þeirri forsendu að tekjur hans væru yfir framangreindum tekjumörkum en að sögn Reykjavíkurborgar voru þær 712.247 kr. í umsóknarmánuðinum, apríl 2026, byggðar á þeim tekjuupplýsingum sem lágu fyrir hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun við afgreiðslu húsnæðisbóta.
Er því ljóst að kærandi var yfir tilgreindum tekjumörkum og skilyrði 5. tölul. 1. mgr. 3. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning því ekki uppfyllt.
Af hálfu kæranda hefur meðal annars komið fram að málið hafi ekki verið rannsakað með fullnægjandi hætti og að forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hafi ekki verið nægilega skýrðar. Kærandi hafi ítrekað óskað eftir sundurliðun útreikninga og rökstuðningi fyrir niðurstöðunni en hann telji að þær skýringar sem honum hafi borist hafi ekki verið fullnægjandi. Þá telji kærandi að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til þeirra upplýsinga og gagna sem hann hafi lagt fram
Af gögnum málsins og afstöðu Reykjavíkurborgar verður ekki annað ráðið en að sveitarfélagið hafi rannsakað mál kæranda með fullnægjandi hætti og er niðurstaðan í samræmi við fyrirliggjandi reglur þess. Í því samhengi ber að nefna það sem að framan greinir um að Reykjavíkurborg beri að miða við sömu tekjur og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leggur til grundvallar útreikningi húsnæðisbóta en við það mat kemur ekki til skoðunar framfærslukostnaður umsækjanda. Að því virtu og með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 1. júlí 2026, um að synja umsókn A, um sérstakan húsnæðisstuðning, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir