1. ágúst 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 368/2026

Hinn 27. ágúst 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 368/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25070284

Kæra [...] og barns hennar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. júlí 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Namibíu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 11. júlí 2025, um að synja henni og barni hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara Namibíu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Namibíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 27. mars 2024. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd hér á landi vegna þess að frændi hennar hafi komist að sambandi hennar við aðra konu en slíkt færi mikla skömm yfir fjölskyldu kæranda. Í kjölfarið hafi kærandi farið í felur og ákveðið að koma til Íslands með aðstoð systur sinnar. Kærandi eigi þrjú börn, þar af tvö uppkomin. Faðir A sé í Namibíu og hafi vitað að kærandi væri að fara með A í heimsókn til Íslands. Hann hafi ekki vitað að kærandi hygðist sækja um alþjóðlega vernd og að sögn kæranda hefði barnsfaðir hennar tekið A af kæranda hefði hann vitað af því. Kærandi og A séu heilsuhraustar.

Kærandi kom fyrst til viðtals hjá Útlendingastofnun 19. júní 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og var viðtalinu slitið vegna tungumálaerfiðleika. Viðtalið fór fram á ensku, opinberu tungumáli Namibíu þar sem erfitt reyndist að útvega túlk með næga færni í tungumáli kæranda, [...]. Hafði kærandi samband símleiðis við uppkominn son sinn í Namibíu á meðan viðtalinu stóð og veitti sonur kæranda aðstoð við túlkun áður en viðtalinu var slitið. Mætti kærandi aftur til viðtals hjá Útlendingastofnun 25. febrúar 2025 og greindi frá ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi vera fædd og uppalin í þorpinu [...] í norðurhluta Namibíu en hafa verið búsett í borginni [...] ásamt A áður en hún hafi yfirgefið heimaríki. Af frásögn kæranda má ráða að hún hafi flúið til [...] frá heimaþorpi sínu í ágúst 2022. Kvaðst kærandi eiga þrjú börn, þar af tvö uppkomin börn á [...] í heimaríki. Börn kæranda eigi ekki sama föður og kvað kærandi yngsta barn sitt, A, vera í takmörkuðum samskiptum við föður sinn. Kærandi hafi framfleytt sér í heimaríki með því að elda mat til sölu og starfað sjálfstætt. Af frásögn kæranda má ráða að hún telji sig tilheyra sérstökum þjóðfélagshópi í heimaríki þar sem hún sé af [...] ættbálki, sem sé meirihlutaættbálkur. Kærandi kvaðst ekki vera aðili að stjórnmálaflokki en tilheyra minnihlutahópi í heimaríki á grundvelli kynhneigðar. Kærandi skilgreini sig sem tvíkynhneigða en kvaðst laðast meira að konum en körlum. Hún hafi áttað sig á kynhneigð sinni árið 2002 og byrjað að stunda kynlíf með öðrum konum árið 2003. Að sögn kæranda hafi hún stundað kynlíf í heimaþorpi sínu með fjölda kvenna sem hafi komið í þorpið frá öðrum svæðum. Kærandi telji sig tilheyra LGBTI+ samfélaginu í Namibíu en kvaðst þurfa að halda kynhneigð sinni leyndri af ótta við að vera drepin eða verða fyrir áreiti af hálfu samborgara sinna. Kærandi hafi sagt börnum sínum og systur sinni frá kynhneigð sinni. Aðspurð kvaðst kærandi hafa verið virk í þágu einstaklingsfrelsis og kynfrelsis kvenna í heimaríki en ekki hafa tjáð skoðanir sínar hvað slík málefni varðar opinberlega. Aðspurð um líkamlega og andlega heilsu sína greindi kærandi frá því að henni liði ekki vel, hún sé stressuð og geti ekki sofið. Aðspurð um hvaða atvik í lífi hennar gerðu það að verkum að hún hafi yfirgefið Namibíu kvaðst kærandi hafa flúið af ótta við frænda sinn (hér eftir B) eftir að hann hafi komist að ástarsambandi kæranda við tilgreinda konu (hér eftir X). Að sögn kæranda hafi hún boðið X með sér í afmælisveislu B í heimaþorpi sínu 2. ágúst 2022. Á meðan veislunni stóð hafi kærandi og X verið að kyssast fyrir utan heimili B þegar B hafi komið að þeim, spurt hvað þær væru að gera, tekið upp prik og gert sig líklegan til að lemja til kæranda með prikinu. Kærandi hafi hins vegar náð að hlaupa í burtu. Kærandi kvað B vera höfðingja í heimaþorpi hennar og valdamikinn einstakling í samfélaginu. Hann heyri beint undir drottningu ættbálks kæranda og sé náinn henni. Að sögn kæranda hafi B reynt að hafa uppi á henni í kjölfar framangreinds atviks og tjáð þorpsbúum að hún væri andsetin. Af frásögn kæranda má ráða að hún hafi heyrt B segjast muna drepa hana ef hún yrði á vegi hans og ekki geta leyft henni að giftast konu þar sem það væri andstætt menningu þeirra. Kvaðst kærandi hafa flust úr þorpinu til [...] í september 2022 vegna slæms umtals í garð hennar í formi hljóðskilaboða af hálfu ótilgreindra meðlima hópspjalla á tilteknu samskiptaforriti. Kærandi lýsti framangreindri háttsemi sem ofbeldi í garð hennar. Af frásögn kæranda má ráða að hún hafi verið meðlimur í umræddum hópum án vitundar annarra meðlima hópanna. Aðspurð kvaðst kærandi hafa orðið fyrir áframhaldandi ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar eftir að hún hafi flutt til [...] þar sem B hafi haldið áfram að leita hennar. Þá kvað kærandi B hafa barið son hennar og reynt að þvinga hann til að greina frá dvalarstað kæranda þegar sonur hennar hafi heimsótt heimaþorp þeirra um hátíðirnar. Aðspurð nánar um hvers kyns ofbeldi hún hafi orðið fyrir í [...] kvaðst kærandi hafa verið hrædd vegna þess að B hafi verið að senda frændsystkinum hennar skilaboð og krefjast þess að þau myndu láta hann vita ef þau fengju vitneskju um dvalarstað hennar. Kærandi kvaðst því hafa þurft að halda sig innandyra og breyta nafni sínu í [...] til að koma í veg fyrir að fólk myndi bera kennsl á hana. Aðspurð kvað kærandi X ekki hafa orðið fyrir áreiti eða ofbeldi þar sem X hafi ekki verið frá heimaþorpi kæranda. Þær hafi kynnst á viðburði á vegum kirkju kæranda árið 2018 og haldi enn sambandi í dag. Aðspurð kvaðst kærandi ekki hafa verið smeyk við að bjóða X með sér í afmælisveislu B vegna þess að á þeim tíma hafi kynhneigð kæranda verið ókunn öðru fólki og hún hafi boðið X í veisluna sem vinkonu sína. Kærandi greindi frá því að hafa tilkynnt háttsemi B til sérstakrar deildar lögreglunnar í [...] tileinkaðri ofbeldisbrotum í garð kvenna og jafnframt hafa upplýst ótilgreind samtök lesbía í Namibíu um háttsemi B. Af skriflegu svari kæranda við fyrirspurnum Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2025, má ráða að tilkynningin til lögreglunnar hafi að einhverju leyti leitt til viðbragða, lögreglan hafi haft upp á B og rætt við hann. Kærandi hafi ekki lagt fram formlega kæru þar sem hún hafi talið tilkynninguna nægja. Kærandi kvaðst eingöngu vera í samskiptum við systur sína og uppkomin börn í heimaríki en kvaðst sífellt heyra ofbeldisfulla orðræðu í garð samkynhneigðra í fyrrgreindum spjallhópum. Kærandi kvaðst óttast um líf sitt í heimaríki og að verða fangelsuð eða drepin yrði henni gert að snúa aftur til Namibíu. Kærandi óttist B, íbúa heimaþorps síns og meðlimi kirkjusafnaðarins sem kærandi hafi tilheyrt. Kærandi óttist jafnframt tvo ótilgreinda þingmenn í heimaríki sem hafi sagst ekki vilja hafa samkynhneigða einstaklinga í Namibíu. Að sögn kæranda séu skoðanir umræddra þingmanna í samræmi við ríkjandi viðhorf og stefnu í landinu og m.a. hafa leitt til morða samkynhneigðra einstaklinga. Þá hafi mótmæli átt sér stað í nóvember 2024 í Namibíu þar sem hvatt hafi verið til ofbeldis gegn samkynhneigðum. Kærandi kvaðst hvergi geta falið sig í Namibíu vegna smæðar landsins. B hafi reynt að leita hennar í [...] en ekki haft erindi sem erfiði. Kærandi telji yfirvöld ekki geta veitt henni aðstoð eða vernd og eingöngu veita þeim sem leita ásjár þeirra leiðbeiningar um varúðarráðstafanir til að halda öryggi. Aðspurð um hverjar félagslegar aðstæður hennar yrðu ef henni yrði gert að snúa aftur til heimaríkis kvaðst kærandi ekki vera komin út úr skápnum og því gæti hún lifað eðlilegu lífi en hún þurfi að vera sterk vegna frænda síns. Aðspurð hverjar félagslegar aðstæður A og uppkominna barna kæranda yrðu í heimaríki greindi kærandi frá því að aðstæður þeirra myndu ekki vera auðveldar þar sem helmingur fólks viti kynhneigð kæranda vegna yfirlýsinga B. Kærandi óttist að ef hún og A myndu snúa aftur til Namibíu myndi fólk leggja A í einelti eða níðast á henni. Aðspurð kvaðst kærandi ekki vera gift og ekki hafa verið þvinguð til að giftast feðrum uppkominna barna sinna. B hafi hins vegar reynt að þvinga kæranda til að giftast föður A allt frá árinu 2017, en þá hafi hótanir B í garð kæranda byrjað.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kæranda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við barnið með vísan til ungs aldurs þess og framburðar kæranda. Fram kom að umsókn barns kæranda væri grundvölluð á framburði móður barnsins og henni hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun móður hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnsins og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldris barnsins, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að barni kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til heimaríkis.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda og barni hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Barni kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 25. júlí 2025 og kærunefnd barst greinargerð kæranda 8. ágúst 2025.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Namibíu mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda, er því mati mótmælt og telur kærandi það vera háð slíkum efnislegum og formlegum annmörkum sem brjóti gegn rannsóknarreglu 10. gr. sem og reglu 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og varði við ógildingu hinna kærðu ákvarðana. Þá telur kærandi jafnframt slíka annmarka á rannsókn Útlendingastofnunar á máli hennar hvað varðar tiltekin atriði og stöðu kæranda í heimaríki að varði við rannsóknarreglu stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, og leiði til ógildingar hinna kærðu ákvarðana.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og barni hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum af stjórnvöldum í Namibíu vegna aðildar að þjóðfélagshópi sem tvíkynhneigð kona, þolandi hatursglæpa og nauðungarhjónabands og á grundvelli trúar, sbr. b- og d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að hún hafi verið gefin í nauðungarhjónaband af hálfu frænda síns, B, og að hún hafi orðið fyrir andúð, ofbeldi, margendurteknu áreiti og mismunun af hálfu B, kirkjunnar sem kærandi tilheyri, samborgara og stjórnvalda í heimaríki. Frændi kæranda sé valdamikill einstaklingur í heimaþorpi hennar sem yfirhöfðingi þorpsins og heyri beint undir drottningu ættbálks kæranda. Kærandi vísar til þess að stjórnvöld í Namibíu hafi bannað hjónabönd samkynhneigðra með nýjum hjúskaparlögum í október 2024 og því felast ofsóknir þær er kærandi óttist í lagaumhverfi heimaríkis kæranda. Hvað trúarbrögð varðar vísar kærandi til þess að ljóst sé af málsatvikum að trú hennar og fjölskyldu hennar hafi verið samverkandi ástæða fyrir ofsóknum í garð hennar á grundvelli þjóðfélagshóps. Þeir aðilar sem valdir séu af ofsóknum í garð kæranda falli undir a- og c- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Fyrir liggi að kærandi geti ekki hlotið vernd hjá yfirvöldum í Namibíu þar sem yfirvöld sjálf séu valdur af ofsóknum ásamt öðrum aðilum, sbr. a- og c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefst kærandi þess til vara að henni og barni hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af greinargerð má ráða að kærandi byggi framangreinda kröfu á því að eiga á hættu að sæta pyndingum, ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð og refsingu í Namibíu. Um úrlausn á varakröfu vísar kærandi til stöðu sinnar sem hinsegin einstaklingur sem og röksemda sem fram koma til stuðnings aðalkröfu. Kærandi hafi þegar sætt meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með því að hafa verið gefin í nauðungarhjónaband af hálfu fjölskyldumeðlims, B, og með því að B hafi gert sig líklegan til að þvinga kæranda í hjónaband eftir að honum varð ljóst um kynhneigð hennar. B hafi veist að kæranda með niðurlægjandi hætti, kynt undir samfélagsandúð í garð hennar af hálfu nærsamfélagsins og kirkjunnar og kallað kæranda andsetna. Um sé að ræða niðurlægjandi háttsemi sem sé til þess fallin að valda andlegri vanlíðan og falli undir ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Vísar kærandi jafnframt til þess að hafa beri í huga útilokaða möguleika hennar til þess að leita verndarráðstafana lögreglu fyrir hvers kyns ofbeldi gegn henni í ljósi þess að kærandi þyrfti að upplýsa lögreglu um hvata fyrir slíku ofbeldi, þ.e. kynhneigð kæranda, ef hún myndi leita ásjár lögreglu. Kærandi telur hvorki raunhæft né sanngjarnt að hún setjist að annars staðar í heimaríki sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þar sem stjórnvöld sjálf séu valdur af þeim margvíslegu mannréttindabrotum sem framin séu í Namibíu. Vísar kærandi til þess að hún hafi þegar reynt að setjast annars staðar að í heimaríki í september 2022 en B hafi haldið ofsóknum sínum áfram.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að henni og barni hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að hún hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til almennra aðstæðna og erfiðra félagslegra aðstæðna. Vísar kærandi til bágborins ástands mannréttindamála í Namibíu vegna viðvarandi mannréttindabrota sem stjórnvöld séu ófær um að veita verndarráðstafanir gegn. Þá ýti stjórnvöld sérstaklega undir viss mannréttindabrot með háttsemi sinni, sér í lagi gagnvart hinsegin einstaklingum þar í landi. Hvað erfiðar félagslegar aðstæður varðar vísar kærandi til þess að hún sé tvíkynhneigð kona sem laðist meira að konum en körlum og tilheyri því jaðarsettum hópi í Namibíu. Taka verði tillit til þess að fjölskyldutengsl kæranda séu lítil og félagslegt stuðningsnet hennar skert í ljósi þess að fjölskyldumeðlimur hennar, B, og samborgarar hans hafi afneitað kæranda. Kærandi hafi upplifað takmörkun á tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs í heimaríki vegna kynhneigðar. Vísar kærandi til þess að bág félagsleg staða hennar endurspeglist jafnframt í víðtækum, kerfisbundnum takmörkunum á efnahagslegum réttindum hennar þar sem möguleikar kæranda séu takmarkaðir vegna kynhneigðar hennar.

Loks krefst kærandi þess að henni og barni hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Með endursendingu kæranda og barns hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttarins, m.a. rannsóknarreglunni.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

  1. ríkið,

  2. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

  3. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir þeirra því í hendur.

5.3 Auðkenni

Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað namibískum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og barn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi og barn hennar séu namibískir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Namibíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Namibia (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • Analyzing Social Spending in Namibia (International Monetary Fund, Selected Issues Paper, 10. júlí 2026);
  • Country information and guidance: Sexual orientation and gender identity and expression in Namibia (UK Home Office, október 2024, uppfært 6. janúar 2026);
  • Freedom in the World 2026 – Namibia (Freedom House, 2026);
  • Global Gender Gap Report 2025. Insight Report (World Economic Forum, júní 2025);
  • Health – Namibia Budget Brief 2022-2023 (UNICEF);
  • Namibia Court Decriminalizes Consensual Same-Sex Conduct – A Major Step for Equality, Nondiscrimination, and Inclusion in Africa (Human Rights Watch, 25. júní 2024);
  • Namibia Financial Stability Report – April 2025 (Namibia Financial Institutions Supervisory Authority og Bank of Namibia, apríl 2025);
  • New law changes divorce procedure (The Namibian, 3. júní 2026);
  • San Traditional Authorities, Communal Conservancies, Conflicts, and Leadership in Namibia (Challenging Authorities, Robert K. Hitchcock, 21. september 2021);
  • Stjórnarskrá Namibíu (www.lac.org.na/laws/annoSTAT/Namibian%20Constitution.pdf);
  • Upplýsingasíða World Bank (Overview: Namibia (worldbank.org), sótt 12. ágúst 2026);
  • Upplýsingasíða UNICEF (Namibia – Education (unicef.org), sótt 12. ágúst 2026);
  • Upplýsingasíða UN Women (Namibia (data.unwomen.org), sótt 12. ágúst 2026);
  • Traditional leaders are the backbone of communities (Informanté, 10. september 2024) og
  • Traditional Authorities Act, 2000 (https://namiblii.org/akn/na/act/2000/25/eng@2000-12-22).

Namibía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega þrjár milljónir íbúa. Hinn 23. apríl 1990 gerðist Namibía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1994. Namibía fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1982, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2007. Ríkið hefur jafnframt fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gegn konum (e. UN Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination Against Women, CEDAW) sem og valfrjálsa bókun við samninginn.

Namibía er staðsett í suðvesturhluta Afríku og hlaut sjálfstæði frá Suður-Afríku árið 1990. Opinbert tungumál landsins er enska en í Namibíu eru einnig töluð tungumál á boð við afrikaans, herero og oshiwambo. Um 88% íbúa landsins aðhyllast kristna trú og er réttur einstaklinga til trúfrelsis verndaður samkvæmt stjórnarskrá.

Namibía er metin sem frjálst ríki samkvæmt alþjóðlegum vöktunarstofnunum. Í skýrslu Freedom House frá 2026 fær Namibía einkunnina 73 af 100 í mati stofnunarinnar á lýðræðis- og mannréttindastöðu. Þar kemur fram að landið sé lýðræðisríki með opið fjölflokka kosningakerfi. Vernd borgaralegra réttinda sé almennt góð. Lögregluofbeldi sé viðvarandi áskorun og tilvik um óhóflega valdbeitingu og harkalega framkomu hafi grafið undan trausti almennings til löggæsluyfirvalda. Skortur á óháðu og gagnsæju eftirliti torveldi aðhald og ábyrgð innan kerfisins. Enn fremur sé opinber þjónusta ekki veitt með fullu jafnræði, þar sem einstaklingar í veikri félagslegri stöðu eða á afskekktum svæðum geti átt erfitt með að nýta sér slíka þjónustu. Samkvæmt mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2025 hafi engar verulegar breytingar orðið á mannréttindaástandi Namibíu árið 2024. Engar trúverðugar tilkynningar eða heimildir liggi fyrir um að alvarleg mannréttindabrot hafi átt sér stað í Namibíu árið 2024. Í skýrslunni kemur einnig fram að stjórnvöld hafi leitast við að bera kennsl á og refsa opinberum fulltrúum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot. Stjórnarskrá Namibíu tryggi tjáningarfrelsi, þ.m.t. til handa blaðamönnum og öðrum fjölmiðlum, og virði stjórnvöld þau réttindi almennt í framkvæmd.

Samkvæmt upplýsingum Alþjóðabankans í Namibíu er landið auðugt af náttúruauðlindum, eins og demöntum og úran, og hefur notið góðs af sterkum innviðum stjórnsýslunnar og ábyrgri hagstjórn. Þessi atriði hafi hjálpað landinu að ná stöðu sem hátekjuland á meðal þróunarríkja. Félagslegur og efnahagslegur ójöfnuður sé enn töluverður og hafi versnað eftir Covid-19 faraldurinn. Hagvöxtur hafi dregist saman undanfarin ár, m.a. vegna þurrka. Namibía glími við hátt skuldahlutfall (um 70% af landsframleiðslu), mikið atvinnuleysi (yfir 20%) og efnahagslegan ójöfnuð, en rúmlega 19% íbúa búa undir alþjóðlegum fátæktarmörkum. Í skýrslu Freedom House kemur fram að öryggis- og stjórnmálaástand í Namibíu sé almennt stöðugt og friðsælt. Í þingkosningum í nóvember 2024 hafi ríkjandi stjórnarflokkur haldið meirihluta sínum og í mars 2025 hafi ný ríkisstjórn með áherslu á atvinnusköpun og félagslega vernd tekið við völdum í landinu.

Samkvæmt skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (e. International Monetary Fund (IMF)) frá 2026 séu heildarútgjöld stjórnvalda í Namibíu til félagslegrar aðstoðar hlutfallslega hærri en í öðrum viðmiðunarríkjum. Namibía hafi þróað víðtækt félagslegt verndarkerfi sem samanstandi af bæði lögbundnum greiðslum og óformlegum samfélagslegum stuðningsnetum. Kerfið nái meðal annars til húsnæðis- og framfærslubóta, skólamáltíða, ókeypis grunnheilbrigðisþjónustu og menntunarstuðnings. Sérstök áhersla sé lögð á hópa í viðkvæmri stöðu, einkum börn, aldraða og fatlað fólk. Gögn bendi til þess að félagslegt stuðningskerfi Namibíu dragi úr fátækt, með þeim fyrirvara að vegna takmarkana á gögnum beri að fara varlega í að draga endanlegar ályktanir. Þó félagslega kerfið feli í sér almenna aðgengisreglu takmarki landfræðilegar fjarlægðir og dreifing samfélaga raunverulegt aðgengi að þjónustu, sérstaklega í dreifbýli.

Stjórnarskrá Namibíu kveður á um skyldubundna og endurgjaldslausa grunnmenntun fyrir alla. Skólaskylda nær til barna á aldrinum sex til 16 ára og menntakerfið skiptist í leikskóla-, grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastig. Samkvæmt fjárhagsstöðugleikaskýrslu Seðlabanka Namibíu frá 2025 hafi bæði grunn- og framhaldsskólanám í ríkisreknum skólum verið endurgjaldslaust frá árinu 2016, en efnaminni nemendur á háskólastigi njóti stuðnings í gegnum margvíslega námsstyrki. Áhersla og aðgerðir stjórnvalda í menntamálum undanfarna áratugi hafi leitt til hækkandi hlutfall læsis í Namibíu, en árið 2013 hafi hlutfall læsis verið 89% en 85% á tímabilinu 1995 til 2004. Samkvæmt upplýsingum UNICEF hafi skráning barna í grunnskóla haldist um 86% á tímabilinu 2008 til 2011. Helstu áskoranir sem menntakerfið í Namibíu standi frammi fyrir felist í skorti á hæfum kennurum, ófullnægjandi námsgögnum og veikburða innviðum, einkum á vanþróuðum og fátækari svæðum í dreifbýli. Nemendur á slíkum svæðum þurfi að fara langar vegalengdir til að sækja skóla með óöruggum samgönguleiðum. Framangreint dragi úr skólasókn og hafi bein áhrif á námsárangur. Rafræn menntun standi einnig frammi fyrir áskorunum vegna takmarkaðra tæknilegra innviða þar sem um 65,6% skóla hafi ekki nettengingu og því sé aðgangur að stafrænum kennsluháttum skertur.

Stjórnarskrá Namibíu tryggir konum jafna stöðu fyrir lögum og bannar mismunun á grundvelli kyns, kynþáttar, trúarbragða eða félagslegrar stöðu. Þá er jafnrétti í hjónabandi og fjölskyldulífi einnig sérstaklega verndað. Í Global Gender Gap skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum) frá 2025 kemur fram að Namibía hafi á síðustu árum skipað sér í fremstu röð á heimsvísu hvað kynjajafnrétti varðar. Namibía sé í áttunda sæti af 146 ríkjum og hafi lokað 81,1% af kynjabilinu, yfir meðaltali á heimsvísu, sem endurspegli markvissar aðgerðir stjórnvalda og sterkan pólitískan vilja til að tryggja jafnrétti milli kynja. Samkvæmt tölfræði stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (e. UN Women) sé 88,9% af nauðsynlegum lagaramma til verndar gegn ofbeldi í garð kvenna til staðar í namibískri löggjöf. Framfarir í stjórnmálajafnrétti séu sérstaklega áberandi en í febrúar 2024 sátu konur í 44,2% þingsæta og gegna fjölda ráðherra- og stjórnunarstarfa. Þetta megi rekja til stefnumarkandi aðgerða sem hafi hvatt til aukinnar þátttöku kvenna í ákvarðanatöku. Einnig hafi kynjabilinu verið nánast lokað í menntakerfinu, þar sem konur og karlar hafi jafnan aðgang að öllum skólastigum. Lífslíkur og heilsufarsleg staða kynjanna sé að mestu jöfn, sem bendi til tiltölulega jafnrar heilbrigðisþjónustu milli kynja.

Samkynhneigð er ekki refsiverð samkvæmt lögum í Namibíu. Í frétt Human Rights Watch frá 25. júní 2024 kemur fram að fyrr í mánuðinum hafi héraðsdómur í Windhoek fellt úr gildi eldri ákvæði refsilaga sem kváðu á um að samkynhneigð kynmök milli karla væru refsiverð. Í hinum stefnumarkandi dómi hafi verið kveðið á um að slík refsivæðing bryti gegn stjórnarskrárvörðum rétti til friðhelgi einkalífs og jafnræðis. Af heimildum má ráða að kynferðisleg sambönd milli kvenna hafi aldrei verið refsiverð samkvæmt lögum og í kjölfar dómsins hafi forseti Namibíu neitað að staðfesta frumvarp sem hafi verið ætlað að endurvekja refsigrundvöll fyrri laga.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2024 séu engin sértæk lög til staðar í Namibíu sem banni mismunun á grundvelli kynhneigðar eða kynvitundar og stjórnarskráin nefni hvorki kynhneigð né kynvitund sem sérstaklega verndaða flokka. Fyrir tíma framangreinds héraðsdóms hafi stjórnvöld hins vegar sjaldan ákært hinsegin einstaklinga fyrir slík brot. Í skýrslunni kemur einnig fram að lögreglan beini ekki sjónum sérstaklega að LGBTI+ samfélaginu. Framlagning tveggja frumvarpa sem banni hjónabönd einstaklinga af sama kyni og yfirlýsingar stjórnmálamanna og trúarleiðtoga hafi leitt til aukinnar hómófóbískrar orðræðu og ofbeldisbrota í garð sumra hinsegin einstaklinga. Þá hafi hinsegin einstaklingar greint frá mismunun og hindrunum við aðgengi að tiltekinni grunnþjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu. Réttarvörslukerfi Namibíu sé almennt skilvirkt og lögreglan hafi handtekið einstaklinga fyrir ofbeldisbrot gegn hinsegin einstaklingum. Þó hafi lögreglan verið sögð hafa sýnt hinsegin einstaklingum sem leita ásjár hennar tómlæti.

Í framangreindri skýrslu kemur fram að hjónabönd einstaklinga af sama kyni séu ekki refsiverð en séu þó bönnuð samkvæmt nýlegum hjúskaparlögum frá október 2024. Í vissum tilvikum geti framkvæmd hjónavígslu samkynhneigðra varðað refsingu fyrir opinbera starfsmenn. Landaheimildir bera með sér að hinsegin einstaklingar í Namibíu verði áfram fyrir mismunun, félagslegri útilokun og fordómum, bæði í daglegu lífi og í samskiptum við opinber yfirvöld. Þrátt fyrir að samkynhneigð sé ekki refsiverð samkvæmt lögum séu dæmi um að vernd og aðstoð frá hinu opinbera sé takmörkuð í framkvæmd, einkum utan höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt séu samskipti við lögreglu og opinberar stofnanir misjöfn, stundum sé málum sinnt af fagmennsku, en einnig séu dæmi um vantraust, aðstoðarleysi og óvinsamlega framkomu.

Í Namibíu starfi ýmis virk LGBTI+ félagasamtök sem gegni mikilvægu hlutverki í baráttu gegn mismunun og veiti hinsegin einstaklingum stuðning. Helstu samtökin bjóði upp á fræðslu, stuðningshópa og aðstoð við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lagalegum úrræðum, auk þess að skrásetja brot og veita einstaklingum skjól. Starfsemi þeirra fari að mestu leyti fram í höfuðborginni Windhoek, sem heimildir beri með sér að sé öruggari staður fyrir hinsegin einstaklinga en margir aðrir staðir í Namibíu. Í Windhoek hafi jafnframt verið opnuð fyrsta heilsugæslustöð landsins sem sérhæfi sig í þjónustu við hinsegin samfélagið. Gay Pride viðburðir fari fram á ári hverju í Windhoek og á öðrum stöðum í Namibíu.

Samkvæmt fræðilegum heimildum eru hefðbundnar leiðtogaskipanir í Namibíu þrjár talsins og ólíkar eftir samfélögum, en þær skiptast í konungsveldi, höfðingjaskipan og þorpsforingjaskipan. Í konungsveldum sé æðsti leiðtoginn konungur eða drottning, sem njóti formlegs dóms- og framkvæmdavalds innan ættbálksins. Undir þeim starfi höfðingjar (e. chiefs) sem beri ábyrgð á stjórnun stærri eininga. Neðst í kerfinu séu þorpsforingjar (e. headmen) sem sjái um daglega stjórnun smærri svæða. Í höfðingjaskipan séu höfðingjar æðstu leiðtogar og þorpsforingjar staðsettir á grunnstigi, þar sem þeir miðli upplýsingum, leysi deilumál og stýri smærri samfélagseiningum. Í þorpsforingjaskipan séu þorpsforingjar einu formlegu leiðtogarnir innan einingarinnar án yfirráðandi höfðingja eða drottningar. Hvert kerfi gildi sjálfstætt innan tiltekins ættbálks og tryggi samspil hefðbundins valds við opinber stjórnkerfi í samræmi við lög um hefðbundna leiðtoga (e. Traditional Authorities Act).

Samkvæmt lögum um hefðbundna leiðtoga nær lögbundið vald ættbálkaleiðtoga í Namibíu einungis til meðlima þeirra hefðbundnu samfélaga sem um ræðir. Valdsvið þeirra takmarkast við svokölluð samfélagsbundin svæði (e. communal areas), sem séu staðsett utan sveitarfélaga eins og skilgreint er í sveitarstjórnarlögum, en ná ekki til borgarsvæða þar sem stjórnsýsla og þjónusta heyri undir sveitarstjórnir. Því hafi ættbálkaleiðtogar ekki lögformlegt vald innan slíks sveitarfélagasvæðis. Í grein frá Informanté frá 10. september 2024 kemur fram að samkvæmt orðum ráðherra sveitar- og dreifbýlismála gegni ættbálkaleiðtogar helst lykilhlutverki í menningarvernd og félagslegri samheldni innan eigin samfélaga. Samkvæmt lögreglulögum og stjórnarskrá landsins sé löggæsla og vernd borgara á landsvísu á ábyrgð ríkislögreglu, óháð búsetu eða félagslegum tengslum einstaklings. Hefðbundin yfirvöld hafi ekki vald til að stýra aðgerðum lögreglunnar eða hindra afskipti hennar, hvorki innan eigin samfélaga né utan þeirra.

Í upplýsingum um heilbrigðisástand og fjárútlát til heilbrigðismála í Namibíu frá UNICEF kemur fram að Namibía fjárfesti hlutfallslega meira í heilbrigðismálum en landinu beri skylda til samkvæmt lögum. Heilbrigðiskerfið í Namibíu sé tvískipt í opinbert og einkarekið kerfi. Opinberi geirinn þjónusti um 80 til 82% íbúa landsins, að mestu án endurgjalds eða gegn vægu gjaldi. Einkageirinn þjóni einkum þeim sem njóti trygginga utan hins opinbera kerfis, eða um 18% íbúa, og bjóði almennt upp á þjónustu af hærra gæðastigi. Kerfið endurspegli því tekjuójöfnuð og þjóni betur þörfum fjársterkra einstaklinga en efnaminni einstaklingum.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki af hálfu frænda síns, stjórnvalda og annarra aðila á grundvelli kynhneigðar sinnar.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hennar.

Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum í heimaríki á grundvelli trúar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera kristinnar trúar og tilheyra hinni evangelísku lútersku kirkju í Namibíu. Stjórnarskrá Namibíu kveður á um trúfrelsi og framangreindar heimildir benda til þess að 88% íbúa Namibíu séu kristinnar trúar og að almennt umburðarlyndi ríki gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Namibíu. Er það því mat kærunefndar að aðstæður kæranda vegna trúar hennar séu ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa yfirgefið heimaríki vegna áreitis, hótana og andlegs ofbeldis sem hún kvaðst hafa orðið fyrir af hálfu frænda síns, B, og annarra ótilgreindra einstaklinga vegna kynhneigðar sinnar. Af frásögn kæranda má ráða að hún óttist aðstæður í Namibíu sem tvíkynhneigð kona og telji sig eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda og annarra aðila sem slík. Kærandi hafi áttað sig á kynhneigð sinni árið 2002 og kvaðst hafa stundað kynlíf í heimaþorpi sínu með konum frá utanaðkomandi svæðum frá árinu 2003. Kærandi telji sig tilheyra LGBTI+ samfélaginu í Namibíu en ekki eiga þess kost að lifa opinberlega sem hinsegin kona af ótta við að verða fyrir ofsóknum. Að sögn kæranda sé B yfirhöfðingi í heimaþorpi hennar og valdamikill einstaklingur. Kærandi greindi frá því að B hafi komið að henni vera að kyssa kærustu sína, X, fyrir utan heimili B þar sem þær hafi verið gestir í afmælisveislu í lok ágúst 2022. B hafi brugðist illa við og gert sig líklegan til að lemja kæranda með priki en kærandi hafi náð að hlaupa á brott. Í kjölfar framangreinds atviks hafi B reynt að hafa uppi á kæranda og tjáð öðrum þorpsbúum að kærandi væri andsetin. Kvaðst kærandi hafa flutt úr heimaþorpi sínu til [...] í september 2022 af ótta við B og vegna slæms umtals í garð hennar á hópspjallþræði tiltekins samskiptaforrits. Af frásögn kæranda má ráða að með slíku umtali, sem hafi haldið áfram eftir að kærandi hafi yfirgefið heimaþorp sitt, telji kærandi sig hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi og hótunum. Kærandi kvaðst þó hafa verið meðlimur í hópspjallinu án vitundar annarra meðlima hópsins. Af frásögn kæranda má jafnframt ráða að hún hafi heyrt B hóta lífi hennar og segjast ekki geta leyft henni að giftast annarri konu. Kærandi kvaðst hafa þurft að fara huldu höfði í [...] og taka upp nafnið [...] þar sem B hafi haldið áfram að leita hennar. Greindi kærandi jafnframt frá því að B hafi beitt uppkominn son hennar ofbeldi þegar hann hafi heimsótt heimaþorp kæranda og reynt að þvinga hann til að greina frá dvalarstað hennar. Kvaðst kærandi hafa tilkynnt áreiti B til sérstakrar deildar lögreglunnar í [...] sem rannsaki ofbeldi gegn konum sem og til ótilgreindra LGBTI+ samtaka í Namibíu. Í kjölfarið hafi lögreglan haft uppi á B og rætt við hann, en að sögn kæranda hafi hún ekki lagt fram formlega kæru.

Kærandi hefur lagt fram ýmis gögn til staðfestingar á frásögn sinni um kynhneigð sína, m.a. stuðningsbréf frá [...], dags. 20. mars 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi verið í virkri ráðgjöf hjá samtökunum frá ágúst 2024. Þá hefur kærandi einnig lagt fram skjáskot af samskiptum sínum við tilgreinda kærustu sína, X. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga frásögn kæranda í efa og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé tvíkynhneigð kona.

Til stuðnings frásagnar sinnar um ofsóknir hefur kærandi lagt fram ýmis gögn, m.a. fimm ódagsett hljóðskilaboð og skjáskot af samskiptum sem bera með sér að vera á milli kæranda og fyrrum talsmanns hennar þar sem kærandi gerir stuttlega grein fyrir innihaldi skilaboðanna, hvaðan þau komi og hvenær þau voru send. Um fimm hljóðskilaboð er að ræða sem kærandi kveður hafa verið send af mismunandi einstaklingum á tímabilinu maí 2023 til janúar 2025. Tvær upptökur af fimm bera með sér að vera á ensku en ekki er ljóst á hvaða tungumáli hinar upptökurnar eru. Á framangreindum enskum upptökum má greina ummæli af hálfu ótilgreindra einstaklinga sem lýsa andstöðu við samkynhneigð sem og hótanir sem bera með sér að vera almenns eðlis. Að sögn kæranda hafi ein af framangreindum fimm hljóðskilaboðum borist henni persónulega frá B í maí 2023. Umrædd skilaboð eru ekki á ensku og er því ekki unnt að sannreyna efni þeirra en í þeim má heyra karlmann tala. Að sögn kæranda hafi framlögð hljóðskilaboð ýmist verið send af meðlimum í hópspjalli fjölskyldu kæranda eða meðlimum í hópspjalli andstöðuhópa gagnvart samkynhneigðum á tilgreindu samskiptaforriti. Af framlögðum gögnum verður ekki ráðið hvenær upptökurnar eru teknar upp, hvenær þær voru sendar eða hver sendi þær. Þá er óljóst hver viðtakandi skilaboðanna hafi verið og að hverjum hótanirnar eiga að hafa beinst að undanskildum einum skilaboðum þar sem vísað er til einstaklings að nafni ,,Kim‘‘, en kærandi kvaðst hafa breytt nafni sínu í [...] á meðan hún hafi verið búsett í [...]. Kærandi kvað framangreind skilaboð hafa verið send af ótilgreindum fjölskyldumeðlimi sínum í hópspjalli fjölskyldunnar. Ekki er hægt að útiloka að einhver framlagðra skilaboða feli í sér hótun í garð kæranda eða beinist persónulega að henni þrátt fyrir að ekkert bendi til þess að svo sé. Lítur kærunefnd m.a. til þess að kærandi kvað fjögur af skilaboðunum fimm koma úr hópspjallþráðum hvar kærandi hafi verið meðlimur án vitneskju annarra hópmeðlima og því má ætla að umrædd skilaboð hafi ekki verið beint að kæranda sérstaklega. Eru framlögð gögn hvorki til þess fallin að renna stoðum undir né hrekja fullyrðingu kæranda um sendanda skilaboðanna eða efni þeirra og hafa því takmarkað sönnunargildi.

Með vísan til frásagnar kæranda, gagna málsins og heimilda um heimaríki hennar telur kærunefnd ekki ástæðu til þess að draga í efa að kærandi hafi orðið fyrir áreiti og mögulegum hótunum af hálfu B og annarra ótilgreindra einstaklinga vegna kynhneigðar sinnar. Þá er ekki ástæða til að draga í efa að frændi kæranda gegni stöðu þorpshöfðingja í heimaþorpi hennar. Frásögn kæranda og gögn málsins bera þó ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að þrátt fyrir ýmis framfaraskref verða hinsegin einstaklingar í Namibíu áfram fyrir félagslegri mismunun og fordómum en ekki sé um kerfisbundnar ofsóknir að ræða. Ýmis LGBTI+ félagasamtök starfi í Namibíu og gegna mikilvægu hlutverki í baráttu gegn mismunun og stuðningi við hinsegin einstaklinga. Þá hafi orðið lykilbreyting á réttarstöðu LGBTI+ einstaklinga með nýlegum dómi héraðsdómstóls sem felldi úr gildi ákvæði refsilaga sem gerðu kynlíf tveggja karlmanna refsiverð á þeim grundvelli að slíkt ákvæði bryti gegn stjórnarskrárvörðum rétti til friðhelgi einkalífs og jafnræðis. Verður ekki talið að sú mismunun eða áreiti sem LGBTI+ einstaklingar kunni að eiga á hættu nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.

Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að aðstæður kæranda séu slíkar að hún teljist eiga á hættu að sæta ofsóknum af hálfu B, stjórnvalda eða annarra aðila verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Horfir kærunefnd til þess að kærandi hafi verið búsett í heimaríki í rúmlega tvö ár í kjölfar þess atburðar sem kærandi kveður hafa leitt til flótta síns áður en hún hafi yfirgefið Namibíu. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að kærandi hafi sætt áreiti eftir að hún hafi flutt til [...]. Verður jafnframt að líta til þess að ummæli þau er kærandi lýsir sem ofbeldi í sinn garð eiga rætur að rekja til samskipta milli einstaklinga í tilteknum hópspjallþráðum gegn hinsegin einstaklingum. Þegar litið er til þess sem að framan greinir um aðgerðir yfirvalda, umfjöllunar nefndarinnar um valdheimildir leiðtoga hefðbundinna samfélaga í Namibíu, niðurstöðu nefndarinnar hvað varðar mismunun og áreiti gagnvart LGBTI+ einstaklingum og þeirrar staðreyndar að kærandi hafi leitað til lögreglu vegna áreitis B og viðbragða lögreglunnar í kjölfarið verður talið að kærandi geti leitað til yfirvalda telji hún þörf á því.

Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi verið þvinguð af B til að ganga í hjónaband með föður A gegn vilja sínum. Hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn til stuðnings framangreindu og einkenndist frásögn kæranda í viðtali hvað þetta varðar af talsverðum óskýrleika. Í gögnum málsins liggur jafnframt fyrir umsóknareyðublað kæranda um vegabréfsáritun til Íslands hvar kærandi tilgreinir að hún sé einhleyp, en ekki gift eða fráskilin. Hins vegar er ekki unnt að útiloka að kærandi hafi verið þvinguð eða reynt hafi verið að þvinga hana í hjónaband þrátt fyrir að ekkert í framlögðum gögnum bendi til þess að svo sé. Samkvæmt namibískum lögum og stjórnarskrá byggja hjónabönd á frjálsu og óskilyrtu samþykki beggja aðila og geta þvingun eða hótanir komið í veg fyrir lögmæta hjónavígslu og varðað sekt eða allt að tveggja ára fangelsi. Samkvæmt rannsókn kærunefndar liggja ekki fyrir traustar upplýsingar um umfang nauðungarhjónabanda fullorðinna kvenna og af landaheimildum má ráða að Namibía standi framarlega í samanburði við önnur ríki þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Það er mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að konum í Namibíu standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða, þurfi þær á slíkri aðstoð að halda. Lítur kærunefnd m.a. til þess að samkvæmt namibískum lögum er konum, jafnt sem körlum, heimilt að sækja um skilnað án samþykkis hins aðilans. Með gildistöku nýrra laga um skilnaði í júní 2026 þarf sá sem sækir um skilnað í Namibíu aðeins að bera fyrir sig að hjónabandinu verði ekki bjargað. Fallið er frá kröfu eldri skilnaðarlaga um að sá sem sækir um skilnað þurfi að sanna tiltekna sök hins aðilans, s.s. framhjáhald. Hafi kærandi verið þvinguð í hjónaband er henni því mögulegt að sækja um skilnað frá eiginmanni sínum í heimaríki án takmarkana.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi móður sinni aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir er í fylgd móður sinnar sem er heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings hennar. Eins og áður greinir stendur barni kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það barninu fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum hennar og barns hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og barn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og barns hennar er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barns hennar leiði til þess að þær eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þær til baka.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barns hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og barn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi og barn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þær ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem samþykkt voru á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var fellt brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og A hér á landi 27. mars 2024. Málsmeðferð í máli hennar og A hafði því náð tímamörkum ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku framangreindra breytingarlaga og á ákvæðið því við.

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kom fram að heimilt væri að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um er að ræða barn skal miðað við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum komu fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau voru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Líkt og áður hefur komið fram sótti kærandi um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 27. mars 2024. Kærandi og barn hennar höfðu því ekki fengið niðurstöðu í málum sínum innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Að mati kærunefndar uppfylla kærandi og barn hennar skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf fyrir sig og barn sitt. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi og barn hennar séu, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda og barni hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfu kæranda og barns hennar skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar hvað varðar umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og barni hennar dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar hvað varðar umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda og barni hennar dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

The decisions of the Directorate of Immigration regarding the appellant and her child’s applications for international protection are affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellant and her child residence permits based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.

Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir