1. ágúst 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Staðfest ákvörðun sýslumanns um að synja umsóknum um rekstarleyfi fyrir gististað

Mánudaginn, 31. ágúst 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

Stjórnsýslukæra

Með bréfi, dags. 5. nóvember 2019, lögðu [A] og [B] fram kæru f.h. félagsins [C] ehf. (hér eftir kærandi) á ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 13. ágúst 2019 um synjun á umsókn um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að [X].

Stjórnsýslukæran er byggð á 26. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald  og barst innan kærufrests.

Mál þetta var upphaflega kært til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins en fluttist með stjórnarmálefninu ferðamál, verslun og þjónusta til menningar- og viðskiptaráðuneytisins með forsetaúrskurði nr. 6/2022. Með forsetaúrskurði nr. 14/2025 færðist það aftur til atvinnuvegaráðuneytisins. Verður hér eftir og til einföldunar talað um „ráðuneytið“ í þessum efnum.

Kröfur

Ráðuneytið leggur þann skilning í kæru málsins að þess sé óskað að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Málsatvik og ágreiningsefni málsins

Hinn 27. febrúar 2019 lagði kærandi fram umsókn til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að [X] í Reykjavík. Við meðferð umsóknarinnar aflaði sýslumaður umsagnar Reykjavíkurborgar. Í umsögn skrifstofu borgarstjóra, dags. 28. mars 2019, lagðist Reykjavíkurborg gegn útgáfu leyfisins með vísan til þess að gististaðurinn væri á svæði sem skilgreint væri sem landnotkunarsvæði íbúðarsvæðis […]. Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins væri ekki heimilt að veita ný leyfi fyrir gististaði í flokki II á svæðinu.

Með bréfi, dags. 3. júlí 2019, tilkynnti sýslumaður kæranda að fyrirhugað væri að synja umsókninni og veitti honum 14 daga frest til að koma á framfæri andmælum eða öðrum athugasemdum. Athugasemdir kæranda bárust sýslumanni hinn 9. júlí 2019. Í þeim var meðal annars gerð grein fyrir fyrirhuguðum rekstri að [X], fyrri gistirekstri í húsnæðinu og annarri atvinnu- og gististarfsemi í nágrenninu. Sýslumaður óskaði eftir afstöðu Reykjavíkurborgar til athugasemda kæranda með tölvupósti hinn 29. júlí 2019. Með tölvupósti, dags. 7. ágúst 2019, staðfesti Reykjavíkurborg fyrri afstöðu sína. Þar kom jafnframt fram að sú lóð að […] sem kærandi hafði vísað til sneri að […], sem væri skilgreindur sem aðalgata.

Með endanlegri ákvörðun, dags. 13. ágúst 2019, synjaði sýslumaður umsókn kæranda um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að [X] með vísan til neikvæðrar umsagnar Reykjavíkurborgar.

Málsmeðferð ráðuneytisins

Kæra á ákvörðun sýslumanns barst ráðuneytinu hinn 6. nóvember 2019. Ráðuneytið óskaði umsagnar sýslumanns hinn 10. febrúar 2020 og barst hún 25. febrúar 2020. Kæranda var veittur kostur á að koma á framfæri andmælum vegna umsagnarinnar en kaus að gera það ekki.

Sjónarmið kæranda

Af hálfu kæranda er einkum byggt á því að hin kærða ákvörðun feli í sér brot á jafnræðisreglu. Bent er á að við sömu götu, að […], sé rekið hótel sem staðsett sé á íbúðasvæði […]. Vísað er á bug þeim skýringum borgaryfirvalda að umrætt hótel snúi að […] sem sé skilgreindur sem aðalgata. Tekið er fram að hótelið sé skráð við […] og að umferð gesta og lagning bifreiða á þeirra vegum fari raunverulega fram við þá götu. Einnig er vísað til annarrar gististarfsemi í hverfinu, svo sem farfuglaheimilis sem staðsett sé við […] sem teljist ekki aðalgata, auk stærri hótela í nánasta nágrenni. Það feli í sér skýra mismunun að heimila rekstur hótels í sömu götu en hafna umsókn um tvær litlar gistieiningar, enda sé þar um margfalt minna umfang að ræða.

Þá er tekið fram að fyrirhugaður rekstur sé mjög hófstilltur. Félagið hafi sótt um leyfi fyrir tveimur einingum á heimili eigenda þess; annars vegar kjallaraíbúð fyrir allt að fjóra einstaklinga og hins vegar stúdíóíbúð fyrir tvo gesti. Að hámarki verði því um sex gestir á hverjum tíma og engir aðrir en eigendur séu til heimilis í húsinu. Fyrri reynsla af gistirekstri í flokki I á sama stað hafi gefist vel og umferð gesta, sem ýmist séu gangandi eða á fólksbílum, falli vel að ríkjandi búsetumynstri án þess að umferð hópferðabíla fylgi rekstrinum. Slíkt samræmist markmiðum sveitarfélagsins um blandaða byggð.

Loks er bent á að ýmis önnur smáfyrirtæki hafi verið rekin í íbúðahverfinu og í næstu húsum um áratugaskeið í góðri sátt við nágranna. Að banna eina tegund rekstrar í smáum stíl á meðan aðrar tegundir séu leyfðar skjóti skökku við og er þess óskað að ákvörðunin verði metin með langtímaþróun samfélagsins í huga.

Umsögn Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu

Í umsögn sýslumanns er vísað til þess að samkvæmt 2. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sé það meðal annars markmið laganna að tryggja að starfsemi sem þau taki til falli að skipulagi viðkomandi sveitarfélags hverju sinni. Samkvæmt 4. mgr. 10. gr. laganna sé hlutverk sveitarstjórnar meðal annars að staðfesta að fyrirhuguð starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála. Reykjavíkurborg hafi lagst gegn útgáfu leyfisins með umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 28. mars 2019, og staðfest óbreytta afstöðu sína þann 7. ágúst sama ár. Í afstöðu borgarinnar komi fram að gististaðurinn sé staðsettur á svæði sem skilgreint sé sem íbúðasvæði […]. Þar sé ekki heimilað að veita ný leyfi vegna gististaða í flokki II samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur 2010–2030, sem feli í sér almennar takmarkanir á rekstri gististaða innan íbúðarbyggða. Að því er varði tilvísun kæranda til hótels að […] komi jafnframt fram hjá borginni að framhlið þeirrar lóðar snúi að […], sem skilgreindur sé sem aðalgata.

Þá er á það bent að samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 sé sýslumanni óheimilt að gefa út rekstrarleyfi í bága við neikvæða umsögn umsagnaraðila. Slíkar umsagnir séu bindandi fyrir leyfisveitanda eins og fram komi í lögskýringargögnum sem og í 2. mgr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Ekkert hafi komið fram í málinu sem hrófli við skyldubundnu mati þessa lögbundna umsagnaraðila.

Loks er áréttað að meðferð málsins hafi verið í samræmi við meginreglur stjórnsýslulaga og vandaða stjórnsýsluhætti.

Forsendur og niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að synja umsókn kæranda um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að [X].

Gististöðum er í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, skipt í fjóra flokka, sbr. 3. mgr. 3. gr. laganna. Flokkur I er heimagisting sem takmarkast við 90 útleigða gistidaga á hverju almanaksári. Flokkur II tekur til annarra gististaða án veitinga. Flokkur III eru gististaðir þar sem boðið er upp á aðrar veitingar en áfengisveitingar og flokkur IV eru síðan gististaðir með áfengisveitingum. Í 7. gr. laganna er kveðið á um að sá sem hyggst stunda starfsemi sem fellur undir gistiflokka II–IV skuli hafa til þess rekstrarleyfi útgefið af leyfisveitanda. Leyfisveitendur samkvæmt lögunum eru sýslumenn, sbr. 3. mgr. 7. gr. laganna.

Samkvæmt 4. mgr. 10. gr. laganna ber leyfisveitanda, áður en rekstrarleyfi er veitt, að afla umsagnar sveitarstjórnar, vinnueftirlits og lögreglu í því umdæmi þar sem starfsemi er fyrirhuguð. Skulu umsagnir vera skýrar og rökstuddar. Í umsögn sveitarfélags skal m.a. staðfesta að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála, sbr. a-lið 1. tölul. fyrrgreindrar 4. mgr. 10. gr. laganna. Óheimilt er að gefa út rekstrarleyfi ef sveitarfélag eða aðrir umsagnaraðilar leggjast gegn útgáfu leyfisins, sbr. 5. mgr. 10. gr.

Í kafla 19.4 í III. hluta gildandi aðalskipulags Reykjavíkurborgar frá 2022 er að finna sérstök ákvæði um hótel- og gistirými. Samkvæmt því sem þar kemur fram eru gististaðir í íbúðabyggð, að undanskildum nærþjónustukjörnum og aðalgötum, því aðeins leyfðir að þeir heyri undir fyrrgreindan flokk I samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laga nr. 85/2007. Nema annað sé sérstaklega tekið fram í aðalskipulagi eru gististaðir í öðrum flokkum, þ.m.t. flokki II, almennt ekki leyfðir í íbúðabyggð. Sambærilegt ákvæði var að finna í því aðalskipulagi sem lá til grundvallar hinni kærðu ákvörðun, þ.e. aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010 til 2030.

Kærandi hefur haldið því fram að það feli í sér skýra mismunun að synja honum um rekstrarleyfi en heimila á sama tíma sambærilegan rekstur annars staðar í hverfinu. Samkvæmt jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga skulu stjórnvöld gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti við úrlausn mála. Í reglunni felst hins vegar ekki að leysa skuli úr máli á hátt sem eigi samræmist lögum. Fyrir liggur að Reykjavíkurborg lagðist gegn útgáfu rekstrarleyfis til kæranda með vísan til þess að fyrirhuguð gististarfsemi kæranda samrýmdist ekki skipulagssskilmálum. Ráðuneytið fær ekki annað séð en að sú niðurstaða eigi sér stoð í framangreindum skilmálum aðalskipulags sveitarfélagsins, sem skilgreinir það svæði sem [X] er staðsettur á sem íbúðabyggð. Umsókn kæranda laut sem fyrr segir að rekstri gististaðar í flokki II. Að þessu virtu verður ekki annað séð en að Reykjavíkurborg hafi verið rétt að leggjast gegn útgáfu leyfisins.

Sem fyrr segir er samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 óheimilt að gefa út rekstrarleyfi ef sveitarfélag eða aðrir umsagnaraðilar leggjast gegn útgáfu leyfisins. Í ljósi þessa, og þar sem ekkert bendir til þess að umsögn Reykjavíkurborgar hafi verið annmörkum háð, telur ráðuneytið að sýslumanni hafi verið rétt að synja umsókn kæranda um rekstrarleyfi.

Að öðru leyti hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að hnekkja beri hinni kærðu ákvörðun og verður hún því staðfest. Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu úrskurðarins.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 13. ágúst 2019, um að synja umsókn kæranda um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að [X], er hér með staðfest.