Mál nr. 230/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 230/2026
Miðvikudaginn 2. september 2026
A gegn Sjúkratryggingum Íslands
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.
Með kæru, sem barst 23. mars 2026, kærði B iðjuþjálfi, f.h. AA, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Sjúkratrygginga Íslands frá 7. janúar 2026 á umsókn um styrk til kaupa á drifbúnaði á vinnustól.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 10. nóvember 2025, var sótt um styrk til kaupa á vinnustól ásamt drifbúnaði á stólinn. Með bréfi Sjúkratrygginga Íslands, dags. 7. janúar 2026, var samþykktur styrkur til kaupa á vinnustól en synjað um drifbúnað. Í bréfinu segir að samkvæmt upplýsingum í umsókn séu skilyrði reglugerðar um styrki vegna hjálpartækja ekki uppfyllt.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. mars 2026. Með bréfi, dags. 24. mars 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands ásamt gögnum málsins. Greinargerð stofnunarinnar barst með bréfi, dags. 20. apríl 2026, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. apríl 2026. Athugasemdir bárust frá umboðsmanni kæranda með ódagsettu bréfi þann 5. maí 2026. Þær voru sendar Sjúkratryggingum Íslands til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. maí 2026. Viðbótargreinargerð barst frá Sjúkratryggingum Íslands með bréfi, dags. 27. maí 2026. Hún var send umboðsmanni kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júní 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi óskar eftir að synjun Sjúkratrygginga Íslands um drifbúnað verði felld úr gildi og að veittur verði styrkur/samþykki fyrir drifbúnaði á vinnustól í samræmi við raunverulega þörf kæranda í skólastarfi.
Í kæru segir að ágreiningur málsins snúi að því hvort samþykktur vinnustóll nýtist kæranda án drifbúnaðar og hvort synjun á drifbúnaði sé í samræmi við raunverulega og einstaklingsbundna þörf hans.
Kærandi noti hjólastól til að komast um. Hann þurfi vinnustól í skólanum þar sem hjólastóllinn sé fyrirferðarmikill í skólastofu og mikilvægt sé að hann geti skipt reglulega um setstöðu yfir daginn. Einnig sé þörf á því að hann geti hækkað stólinn í þá hæð sem þörf sé á innan þeirrar kennslustofu sem hann sé í hverju sinni.
Sótt hafi verið um vinnustól (Vela Tango 600E) með drifbúnaði, sem sé aukabúnaður á stólnum og geri honum kleift að færa sig sjálfur stuttar vegalengdir innan skólastofu, sækja námsgögn og taka virkari þátt í daglegu skólastarfi án aðstoðar. Sjúkratryggingar Íslands hafi samþykkt vinnustólinn sjálfan en synjað drifbúnaðinum, þrátt fyrir að án hans nýtist stóllinn ekki að fullu í samræmi við markmið umsóknarinnar.
Stór rafknúinn hjólastóll henti ekki sem lausn í skólastofu vegna stærðar og aðgengis. Vinnustóll án drifbúnaðar uppfylli ekki þörf kæranda fyrir sjálfstæði þar sem hann yrði áfram háður aðstoð annarra við hreyfingu innan skólastofu.
Sjúkratryggingar Íslands hafi synjað drifbúnaðinum meðal annars með vísan til þess að vinnustólar flokkist ekki sem ferilhjálpartæki og að drifbúnaðurinn sé ekki í samningi.
Drifbúnaðurinn sé ekki þægindabúnaður heldur nauðsynlegur svo vinnustóllinn nýtist í samræmi við tilgang og raunverulega þörf kæranda í skólanum. Hann geti flutt sig sjálfur í og úr stólnum og notkun sé afmörkuð við skólaumhverfi.
Í samskiptum við Sjúkratryggingar Íslands hafi jafnframt verið vísað til þess að hleðsludrægni drifbúnaðarins væri takmörkuð. Mat á drægni hafi verið byggt á raunverulegu skólaumhverfi barnsins, þar sem tekið hafi verið mið af stærð húsnæðis, daglegum ferðum innan skólastofu og tíðni stuttra tilfærslna yfir skóladaginn. Í ljósi þess mats hafi verið talið að drægni búnaðarins dugi yfir hefðbundinn skóladag, enda yrði stóllinn settur í hleðslu í lok hvers skóladags líkt og önnur raftæki í skólanum. Drægni teljist því ekki raunhæf hindrun í notkun búnaðarins í því umhverfi sem hér um ræði.
Iðjuþjálfi kæranda ásamt öðrum fagaðilum sem komi að þjónustu hans hafi metið aðra kosti en ekki fundið raunhæfa lausn sem bæði falli innan gildandi ramma og uppfylli þarfir hans, þ.e. nettur vinnustóll, hæðarstilling og þar sem kærandi geti keyrt sig sjálfur um og styðji þannig við aukið sjálfstæði í skólastarfi.
Synjunin virðist fyrst og fremst byggja á formlegri flokkun búnaðar („vinnustóll“ vs. „ferilhjálpartæki“) og samningsstöðu hans. Við mat á slíkum málum þurfi þó að horfa til raunverulegra og einstaklingsbundinna þarfa og þess tilgangs sem hjálpartæki eigi að þjóna, þ.e. að styðja við virkni, þátttöku og sjálfstæði í daglegu lífi.
Í athugasemdum kæranda við greinargerð Sjúkratrygginga Íslands segir að eftir nánari skoðun og samanburð á rafknúnum hjólastólum fyrir börn sem séu í samningi hjá Sjúkratryggingum Íslands telji iðjuþjálfi kæranda nettasta valkostinn vera Q300 M Mini Kids (Sunrise Medical/Fastus). Þrátt fyrir að vera nettastur í sínum flokki sé hann of fyrirferðarmikill á lengdina til notkunar innan hefðbundinnar skólastofu/kennslurýmis, þar sem markmiðið sé stuttar tilfærslur milli staða, við borð og í hefðbundnu kennslurými án þess að rekast á hluti eða fólk.
Í opinberum upplýsingum frá framleiðanda sé lengd Q300 M Mini Kids gefin upp eftir uppsetningu: um 84 cm án fótpalla og um 106 cm með miðjufótpalli . Til samanburðar sé gefið upp að grunnrammi/undirvagn Vela Tango 600E sé 55 × 55 cm (þ.e. um 55 cm í lengd á ramma). Þetta sýni að jafnvel nettasti samningsbundni rafknúni stóllinn sé töluvert lengri (og þar með meiri ferilhjólastóll) en sú innanhússlausn sem umsóknin hafi snúist um.
Umsóknin snúist um vinnustól í skóla (Vela Tango 600E) þar sem hjólastóll sé oft of fyrirferðarmikill í skólastofu og barnið þurfi einnig að geta skipt reglulega um setstöðu og hæð eftir aðstæðum. Sótt hafi verið um drifbúnaðinn („Power wheels/moover“) sem aukabúnað á vinnustól svo drengurinn gæti fært sig sjálfur á milli staða innan skólastofu (t.d. að sækja námsgögn og hluti) og þurfi síður á aðstoð annarra að halda í daglegum verkefnum líkt og jafnaldrar hans. Notkunin sé afmörkuð: innandyra í skóla, á sléttu undirlagi, ekki í brekku, ekki á ójöfnu undirlagi og ekki til lengri ferða.
Í greinargerð Sjúkratrygginga Íslands séu nefnd atriði um bremsu/halla/ójafnt undirlag. Í þessu tilviki sé notkunaráætlun afmörkuð við stýrðar aðstæður í skóla og hægt sé að setja upp skýrt verklag og fræðslu til starfsfólks (t.d. um notkun í tengslum við bremsu, hleðslu og hvaða aðstæður séu/séu ekki heimilar). Þessi atriði ein og sér ættu því ekki að ráða niðurstöðu, heldur sé um að ræða atriði sem hægt sé að stýra með viðeigandi verklagi, líkt og gert sé með önnur hjálpartæki í skóla.
Sjúkratryggingar Íslands hafi samþykkt vinnustólinn sjálfan en synjað drifbúnaðinum. Ágreiningur málsins sé hvort samþykktur vinnustóll nýtist drengnum í samræmi við markmið umsóknar án drifbúnaðar, þar sem drifbúnaðurinn sé forsenda þess að drengurinn geti farið sjálfur um innan hefðbundinnar kennslustofu og tekið þátt án þess að þurfa aðstoð við athafnir sem hann gæti í raun gert sjálfur með réttum hjálpartækjum.
Við mat á úrræðum sé einnig mikilvægt að horfa á áhrifin til lengri tíma. Viðeigandi, snemmtæk hjálpartækjanotkun geti dregið úr varanlegri stuðningsþörf og stuðlað að aukinni sjálfbjargargetu en tafir geti haft þveröfug áhrif og aukið stuðningsþörf til framtíðar.
Með vísan til framangreinds sé ítrekuð krafa kærunnar um að synjun Sjúkratrygginga Íslands á drifbúnaði verði felld úr gildi og að veittur verði styrkur/samþykki fyrir drifbúnaði á vinnustól í samræmi við raunverulega þörf drengsins í skólastarfi.
III. Sjónarmið Sjúkratrygginga Íslands
Í greinargerð Sjúkratrygginga Íslands segir að með ákvörðun, dags. 7. janúar 2026, hafi umsókn kæranda verið synjað á þeim grundvelli að hjálpartækið sem sótt hafi verið um félli ekki undir skilgreiningar reglugerðar nr. 760/2021 um styrki vegna hjálpartækja um tegund hjálpartækisins. Greiðsluþátttaka væri því ekki heimil.
Í niðurlagi bréfs hafi komið fram frekari rökstuðningur fyrir synjun: „Samkvæmt upplýsingum í umsókn eru skilyrði reglugerðar um styrki vegna hjálpartækja ekki uppfyllt. Sjúkratryggingar samþykkja ekki drifbúnað á vinnustóla.“
Tekið er fram að ákvæði 26. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar gildi um hjálpartæki. Ákvæði 1. mgr. 26. gr. laganna kveði á um að sjúkratryggingar taki þátt í kostnaði við öflun nauðsynlegra hjálpartækja sem séu til lengri notkunar en þriggja mánaða, með takmörkunum og samkvæmt nánari ákvæðum reglugerðar sem ráðherra setji.
Í 2. mgr. 26. gr. sé hjálpartæki, í skilningi laganna, skilgreint sem tæki sem ætlað sé að draga úr fötlun, aðstoða fatlað fólk við að takast á við umhverfi sitt, auka eða viðhalda færni og sjálfsbjargargetu eða auðvelda umönnun. Einnig komi fram að hjálpartækið verði að teljast nauðsynlegt og hentugt til að auðvelda athafnir daglegs lífs.
Reglugerð nr. 760/2021 um styrki vegna hjálpartækja sé sett með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar. Sjúkratryggingum Íslands sé falið að gera einstaklingsbundið mat vegna hverrar umsóknar og taka ákvörðun á grundvelli gildandi laga og reglugerða. Farið hafi verið yfir umsókn kæranda og framkvæmt einstaklingsbundið mat vegna hennar.
Þann 10. nóvember 2025 hafi Sjúkratryggingum Íslands borist umsókn frá kæranda þar sem sótt hafi verið um Vela Tango 600E vinnustól með rafknúinni sætishækkun ásamt drifbúnaðinum „Power wheels“.
Í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar um hjálpartæki sé kveðið á um að styrkir séu eingöngu veittir til kaupa á þeim hjálpartækjum sem tilgreind séu í fylgiskjali reglugerðar. Þegar um sé að ræða samninga Sjúkratrygginga Íslands í kjölfar útboðs, sbr. IV. kafla laga um sjúkratryggingar, sé styrkur frá stofnuninni háður því að hjálpartæki sé keypt hjá tilteknu samningsbundnu fyrirtæki. Þegar samningar séu gerðir um tæki séu lagðar fram mjög nákvæmar kröfulýsingar á því hvaða skilyrði tækin þurfi að uppfylla svo fyllsta öryggis sé gætt og uppfylla þurfi staðla sem gerðir séu fyrir hvert og eitt tæki.
Vinnustólar flokkist ekki sem ferlihjálpartæki eins og t.d. hjólastólar og rafmagnshjólastólar. Hjálparmótorar með stýripinna flokkist sem ferlihjálpartæki, séu eingöngu ætlaðir hjólastólum og hafi ISO 122409. Hjálparmótorar þurfi að hafa staðist áhættugreiningu samkvæmt staðlinum ÍST EN ISO 14971:2012; Lækningatæki - Notkun áhættustýringar í tengslum við lækningatæki og staðfesting um það fylgi og staðlinum ÍST EN 12184:2014 eða sambærilegt. Drifbúnaðurinn „Power wheels“ hafi ekki verið prófaður samkvæmt ofangreindum staðli. Það komi skýrt fram hjá framleiðanda að „Power wheels“ sé ekki lækningatæki heldur flokkist sem aukahlutur og þá fyrir Tango 700E og Tango 600E vinnustóla. Aukahlutir flokkist undir ISO 181091 og drifbúnaðurinn „Power wheels“ hafi því ekki staðist prófunarvottun eða kröfur sem gerðar séu til lækningatækja sem flokkist undir ISO 122409.
Í útboðsskilmálum fyrir vinnustóla og sérstaka barnavinnustóla sé hvergi óskað eftir drifbúnaði á vinnustóla þar sem sá búnaður sé ekki flokkaður sem ferilhjálpartæki eins og fram hafi komið. Í samningi við Sjúkratryggingar Íslands sé gott úrval af rafknúnum hjólastólum með stýripinna. Hægt sé að velja rafknúna hjólastóla sem komi með rafknúinni sætishækkun eins og óskað sé eftir.
Samkvæmt reglugerð þá þurfi að reyna til þrautar þá rafknúnu hjólastóla sem séu innan samnings. Henti enginn af þeim sem sé í samningi megi leita að tæki utan samnings. Sjúkratryggingar Íslands geri þá kröfu að tækið standist allar þær kröfur og vottanir sem gerðar séu til rafknúninna hjólastóla til að það sé samþykkt.
Samkvæmt 9. gr. reglugerðar nr. 760/2021 geti Sjúkratryggingar Íslands krafist staðfestingar á gagnreyndri meðferð og árangri tækja þegar sótt sé um ný hjálpartæki, einkum þegar takmörkuð eða engin þekking eða reynsla liggi fyrir um notkun þeirra. „Power wheels“ drifbúnaðurinn hafi ekki verið lengi á markaðnum og ekki langt síðan að hægt hafi verið að fá hann á barnavinnustólana Vela 600E. Þessi búnaður hafi komið á markað í kringum ágúst 2024 og séu því ekki komin tvö ár. Það sé því takmörkuð reynsla komin á notkun hans á barnastólum.
Í 2. gr. reglugerðar nr. 760/2021 komi fram að hjálpartæki sé ætlað að auka eða viðhalda færni og sjálfsbjargargetu eða auðvelda umönnun. Einnig komi fram í sömu grein að hjálpartækið verði jafnframt að teljast nauðsynlegt og hentugt til að auðvelda athafnir daglegs lífs. Sjúkratryggingum Íslands sé gert að gæta hagkvæmni við mat á því hvaða hjálpartæki teljist nauðsynleg hverju sinni og hafi umsókn kæranda verið skoðuð ítarlega til þess að meta hvort drifbúnaðurinn „Power wheels“ myndi teljast nauðsynlegur og hvort hann myndi henta. Við mat á því hvort tæki séu einstaklingum nauðsynleg taki Sjúkratryggingar Íslands meðal annars mið af reynslu annarra notenda á þeim tækjum og lausnum sem komi til greina.
Drifbúnaðurinn „Power wheels“ sem sótt hafi verið um sé framleiddur af fyrirtækinu Vela og sé eins og fram hafi komið seldur sem aukahlutur á vinnustóla. Drifbúnaðurinn sé ekki staðgengill fyrir rafknúna hjólastóla, heldur stuðningur fyrir þá notendur sem þurfi aðstoð við að koma stólnum af stað og halda honum á hreyfingu. Vinnustóll með drifbúnaði skuli notaður á sama hátt og vinnustóll án drifbúnaðar. Það þýði að notandinn þurfi að nota fætur til að „ganga“ stólnum áfram sitjandi í honum. Sé stóllinn notaður með fæturna á fótskemli á meðan ekið sé stytti það endingu rafhlöðunnar. Einnig stytti það endingu rafhlöðu sé notkun drifbúnaðar á teppum, mjúkum gólfum eða flísum, því slíkur undirstöðuflötur auki núning og slík notkun sé ekki ráðlögð. Margt bendi til að líftími rafhlöðu sé ekki góður þar sem gæta þurfi að mörgum þáttum sem geti haft áhrif á hversu oft þurfi að hlaða búnaðinn. Miðað við upplýsingar í umsókn sé viðkomandi með lága vöðvaspennu og máttminnkun í öllum fjórum útlimum, sérstaklega ganglimum. Hann geti því ekki gengið óstuddur. Megi því leiða líkum að því að notkunin sé ætluð til að keyra stól áfram með fætur á fótskemli.
Samkvæmt kröfulýsingu vinnustóla sé skilyrt krafa að það sé hægt að setja vinnustólana í bremsu. Þetta sé mikilvægt til að vinnustóll sé stöðugur þegar sest sé í hann eða staðið upp. Þegar drifbúnaður sé settur undir vinnustóla sé hann virkur þó stóllinn sé í bremsu. Tekið sé sérstaklega fram hjá framleiðanda að á vinnustól megi ekki nota drifbúnaðinn sé vinnustólinn í bremsu. Þarna geti skapast hætta á að sé rekist í stýripinnann eða það gleymist að vinnustóll sé í bremsu að hann falli á hliðina og einstaklingur verði fyrir skaða. Einnig sé tekið sérstaklega fram að ekki skuli aka drifbúnaðinum í halla eða á ójöfnu undirlagi. Þarna geti einnig skapast veruleg hætta á að vinnustóll fari á hliðina þar sem drifbúnaður ráði ekki við mikinn halla eða ójafnt undirlag og einstaklingur geti orðið fyrir skaða.
Tengilið umsóknar hafi verið bent á að þessi búnaður „Power wheels“ yrði ekki samþykktur vegna ofangreindra ástæðna. Bent hafi verið á að skoða gildandi samninga um rafmagnsstóla og kanna hvort einhver gæti hentað. Einnig hafi verið bent á að hafa samband við fyrirtækin sem selji rafknúna hjólastóla til að fá upplýsingar um hvort þeir væru með stóla sem gætu hentað fyrir kæranda sem væri þá fyrirferðarlítill og myndi henta í skóla. Ekki væri útilokað að skoða stóla utan samnings.
Af öllum fyrirliggjandi gögnum verði ekki séð að kærandi hafi látið reyna nægjanlega á útfærslur þeirra rafknúnu hjólastóla sem fáanlegir séu innan samnings eða utan, hvort einhverjir gætu hentað í skóla og/eða í skólastofum. Auk þess uppfylli drifbúnaðurinn „Power wheels“ sem sótt sé um hvorki kröfur né staðla sem Sjúkratryggingar Íslands geri vegna drifbúnaðar.
Með vísan til framangreinds sé það mat Sjúkratrygginga Íslands að ekki sé heimilt að samþykkja drifbúnaðinn „Power wheels“ og beri því að staðfesta hina kærðu ákvörðun.
Í viðbótargreinargerð Sjúkratrygginga Íslands segir að með umsókn, dags. 10. nóvember 2025, hafi verið sótt um vinnustól fyrir kæranda með Power wheels aflbúnaði. Eins og áður hafi komið fram flokkist vinnustólar ekki sem ferlihjálpartæki. Sjúkratryggingar Íslands hafi heimild til að samþykkja aflbúnað á hjólastóla samkvæmt flokki 1224 í fylgiskjali með reglugerð nr. 760/2021 en vinnustólar falli ekki þar undir. Aukahlutir á vinnustóla heyri undir flokk 181091 í fylgiskjalinu en eins og fram hafi komið í fyrri greinargerð stofnunarinnar hafi drifbúnaðurinn Power wheels ekki verið prófaður í samræmi við þær kröfur sem stofnunin geri.
Umboðsmanni kæranda hafi verið bent á aðrar mögulegar lausnir innan samninga en samkvæmt athugasemdum, dags. 5. maí 2026, virðist þær lausnir ekki henta kæranda. Þá vilji Sjúkratryggingar Íslands ítreka, eins og fram hafi komið í fyrri greinargerð, að henti enginn þeirra rafknúnu stóla sem séu innan samnings kæranda megi leita að tæki utan samnings. Í því sambandi bendi stofnunin t.d. á Mercado REAL 6100 Plus* sem gæti mætt þörfum kæranda og uppfyllt kröfur um stærð til notkunar í skólastofu. Þó að kærandi hafi þegar fengið samþykktan vinnustólinn komi það ekki í veg fyrir að hann geti fengið samþykktan framangreindan eða sambærilegan rafknúinn stól. Að öðru leyti vísist til fyrri greinargerðar stofnunarinnar og fyrirliggjandi gagna. Með vísan til framangreinds beri að staðfesta hina kærðu ákvörðun.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn kæranda um styrk vegna kaupa á drifbúnaði á vinnustól.
Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar taka sjúkratryggingar þátt í kostnaði við öflun nauðsynlegra hjálpartækja sem eru til lengri notkunar en þriggja mánaða, með takmörkunum og samkvæmt nánari ákvæðum reglugerðar sem ráðherra setur. Í reglugerðinni skal meðal annars kveðið á um hvaða hjálpartæki sjúkratryggingar taki þátt í að greiða og að hve miklu leyti.
Í 2. mgr. 26. gr. laga um sjúkratryggingar hefur hjálpartæki verið skilgreint þannig að um sé að ræða tæki sem ætlað sé að draga úr fötlun, aðstoða fatlað fólk við að takast á við umhverfi sitt, auka eða viðhalda færni og sjálfsbjargargetu eða auðvelda umönnun. Einnig segir að hjálpartækið verði jafnframt að teljast nauðsynlegt og hentugt til að auðvelda athafnir daglegs lífs.
Reglugerð nr. 760/2021 um styrki vegna hjálpartækja, með síðari breytingum, hefur verið sett með stoð í framangreindu ákvæði. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar greiða Sjúkratryggingar Íslands styrki vegna hjálpartækja sem eru til lengri notkunar en þriggja mánaða til að auðvelda einstaklingum að takast á við almennar athafnir daglegs lífs. Einkum er um að ræða hjálpartæki til sjálfsbjargar og öryggis en einnig hjálpartæki í ákveðnum tilvikum til þjálfunar og meðferðar sem stuðla að því auka virkni einstaklingsins. Við val á hjálpartæki skal horft til þess hversu virkur notandinn er, s.s. þátttaka í atvinnulífi eða skóla og hvort hjálpartækið efli sjálfsbjargargetu við almennar athafnir daglegs lífs. Þegar um er að ræða fötluð börn skal jafnframt horft til þess hvort hjálpartæki sé nauðsynlegt til leiks og tómstunda þeirra.
Samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar eru styrkir eingöngu veittir til kaupa á þeim hjálpartækjum sem tilgreind eru í fylgiskjali með reglugerðinni, að uppfylltum öðrum skilyrðum hennar. Í 2. mgr. ákvæðisins segir síðan:
„Þegar um er að ræða samninga Sjúkratrygginga Íslands í kjölfar útboðs, sbr. IV. kafla laga um sjúkratryggingar, er styrkur frá stofnuninni háður því að hjálpartæki sé keypt hjá tilteknu samningsbundnu fyrirtæki. Sjúkratryggingar Íslands skulu veita upplýsingar um aðila sem stofnunin hefur gert samninga við og um hvaða hjálpartæki er að ræða. Þar sem stofnunin hefur ekki gert samninga er leitað tilboða í einstök hjálpartæki og vörur eða gerðar verðkannanir og styrkveiting miðuð við það verð. Styrkur frá stofnuninni er þannig ávallt bundinn við tiltekna tegund og gerð hjálpartækis.“
Í umsókn um styrk til kaupa á hjálpartæki, dags. 10. nóvember 2025, útfylltri af B iðjuþjálfa, segir svo um sjúkrasögu kæranda:
„A er X ára gamall með greininguna meðfætt vatnshöfuð. Hann er með lága vöðvaspennu og máttminnkun í öllum fjórum útlimum en sérstaklega í ganglimum. Hann getur ekki staðið óstuddur.“
Í umsókninni er rökstuðningur fyrir hjálpartæki eftirfarandi:
„A er X ára drengur með greininguna meðfætt vatnshöfuð. Hann er með lága vöðvaspennu og máttminnkun í öllum fjórum útlimum, mest í ganglimum, og getur ekki staðið óstuddur. Hann notast eingöngu við hjólastól í daglegu lífi og hefur góða hjólastólafærni. Með réttum hjálpartækjum og aðlöguðu umhverfi er A nánast jafn sjálfstæður og önnur X ára börn. Þar sem ljóst er að hann muni nota hjólastól til frambúðar hefur verið lögð sérstök áhersla á að efla þátttöku og sjálfstæði í daglegu lífi. Hann hefur sýnt miklar framfarir, meðal annars í því að flytja sig sjálfur í og úr hjólastólnum. Til að hámarka virkni og þátttöku hans er mikilvægt að hann hafi aðgang að viðeigandi hjálpartækjum og að hindranir í umhverfi hans séu sem minnstar. Árið X fékk A Wombat Living vinnustól með rafknúnni sætalyftingu. Nú er hann orðinn of lítill og ekki lengur við hæfi. Því er sótt um nýjan vinnustól, Tango 600ES, með rafknúnni sætalyftingu og Power Wheels aflbúnaði. Nýr stóll mun tryggja A rétta vinnuhæð, fjölbreyttar setstöður og möguleika á að færa sig sjálfur þar sem hjólastóll kemst ekki að. Stóllinn gerir honum kleift að taka virkan þátt í kennslustundum og verkefnum án þess að þurfa stöðuga aðstoð. Í fögum eins og heimilisfræði, handmennt og smíðum, þar sem borðin eru há, er nauðsynlegt að hann geti fært sig sjálfur á milli vinnusvæða og sótt námsgögn sem annars myndi krefjast mikillar aðstoðar. Vinnustóll með Power Wheels er nettur, léttur og sérstaklega hannaður til notkunar í innirýmum. Hann tekur lítið pláss og tryggir aðgengi að borðum og vinnusvæðum. Með Power Wheels aflbúnaði getur A ekið stólnum sjálfur innan kennslustofu og milli stofa og þannig aukið sjálfstæði sitt og dregið úr aðstoð annarra. Rafhlaða stólsins er hönnuð fyrir daglega notkun í skóla og endist allan skóladaginn. Hlaða þarf stólinn í lok hvers dags líkt og önnur raftæki sem eru í daglegri notkun. Það er mikilvægt að börn eins og A fái tækifæri til að vera eins sjálfstæð og sjálfráða og unnt er. Með Tango 600ES vinnustól með Power Wheels búnaði fær A í fyrsta skiptiðið raunverulegt tækifæri til að taka þátt í skólastarfi til jafns jafnaldra sína. Stóllinn styður við rétta vinnustöðu og hreyfanleika dregur úr þörf á aðstoð og stuðlar að jöfnum tækifærum og sjálfstæði.“
Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, leggur sjálfstætt mat á það hvort kærandi uppfylli skilyrði fyrir styrk til kaupa á drifbúnaði á vinnustól. Við það mat lítur úrskurðarnefndin til allra fyrirliggjandi gagna um aðstæður kæranda og metur þær með einstaklingsbundnum og heildstæðum hætti.
Samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar eru styrkir eingöngu veittir til kaupa á þeim hjálpartækjum sem tilgreind eru í fylgiskjali með reglugerðinni og er gerð krafa um að hjálpartæki sé keypt hjá tilteknu samningsbundnu fyrirtæki. Enn fremur verða hjálpartæki að uppfylla ákveðin skilyrði og staðla um öryggi. Í kæru er greint frá því að kærandi noti vinnustól í skólanum og drifbúnaður geri honum kleift að færa sig sjálfur stuttar vegalengdir innan skólastofu og taka virkari þátt í daglegu skólastarfi án aðstoðar. Í greinargerð Sjúkratrygginga Íslands kemur fram að drifbúnaður á vinnustóla er ekki í samningi stofnunarinnar þar sem hann teljist ekki ferlihjálpartæki. Drifbúnaðurinn „Power wheels“ hafi því ekki staðist prófunarvottun eða kröfur samkvæmt staðli sem gildi um hjálparmótora á hjólastóla. Í kröfulýsingu fyrir vinnustóla er skilyrt krafa um að hægt sé að setja vinnustól í bremsu en sé drifbúnaður settur undir vinnustól sé hann virkur þó stóllinn sé í bremsu. Einnig skapist veruleg hætta á að vinnustóll fari á hliðina þar sem drifbúnaður ráði ekki við mikinn halla eða ójafnt undirlag.
Þar sem drifbúnaður fyrir vinnustóla af gerðinni „Power wheels“ uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til hjálpartækja, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 760/2021 um styrki vegna hjálpartækja og 26. gr. laga nr. 112/2008, hafa Sjúkratryggingar Íslands ekki heimild til greiðsluþátttöku vegna kaupa á umræddum búnaði.
Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn kæranda um styrk vegna kaupa á drifbúnaði á vinnustól er staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn A, um styrk til kaupa á drifbúnaði á vinnustól, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson