Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins nr. 12/2026 vegna ákvörðunar ríkisskattstjóra að hafna beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt
Fimmtudaginn 3. september 2026 er kveðinn upp í fjármála- og efnahagsráðuneytinu svohljóðandi
Ú R S K U R Ð U R
Hinn 19. júní 2026 barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu (hér eftir „ráðuneytið“) stjórnsýslukæra G (hér eftir „kærandi“). Kærð er ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 5. júní 2026, um að hafna beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt fyrir uppgjörstímabilið maí-júní 2023 vegna skráningarnúmers […].
Kærandi krefst þess að ákvörðun ríkisskattstjóra um að hafna beiðni um niðurfellingu dráttarvaxta verði felld úr gildi.
Ákvörðun ríkisskattstjóra er kærð á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 150/2019, um innheimtu opinberra gjalda og skatta, sbr. 26. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 (hér eftir „ssl.“), og barst kæra innan kærufrests. Ráðuneytið óskaði eftir umsögn ríkisskattstjóra um kæru sem barst þann 9. júlí 2026. Kærandi kom á framfæri athugasemdum við umsögn ríkisskattstjóra með bréfi, dags. 24. júlí 2026. Lauk þá gagnaöflun og var málið tekið til úrskurðar.
I. Málavextir
Ágreiningur í málinu lýtur að álagningu dráttarvaxta vegna síðbúinna skila á virðisaukaskattsskýrslu vegna uppgjörstímabils maí-júní 2023 sem send hafði verið ríkisskattstjóra til afgreiðslu hinn 11. apríl 2024 en hafði ekki fengið afgreiðslu fyrr en 16. mars 2026. Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki gert nokkuð sem tafði afgreiðslu erindis síns eða komið í veg fyrir að málið yrði klárað af hálfu ríkisskattstjóra. Við afgreiðslu skýrslunnar var kæranda tilkynnt um skuld vegna uppgjörstímabilsins sem aðgreind var þannig að höfuðstóll kröfunnar var 182.680 og vextir kr. 98.867, heildarfjárhæð hennar var því kr. 281.547.
Kærandi sendi inn erindi til ríkisskattstjóra hinn 1. apríl 2026, sem hafnað var með ákvörðun 5. júní 2026 með vísan til þess að gjalddagi uppgjörstímabils maí-júní 2023 var hinn 8. ágúst 2023 og greiðsla barst ekki vegna álagningar framangreinds uppgjörstímabils fyrr en 28. mars 2026. Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (hér eftir „vskl.“) kemur fram að sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga skuli greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Þá samkvæmt 4. málsl. sama ákvæðis, má fella niður dráttarvexti hafi utanaðkomandi og óviðráðanleg ytri atvik sem aðili ber ekki ábyrgð á, hamlað greiðslu á réttum tíma. Í ákvörðun sinni tók ríkisskattstjóri fram að 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. vskl. sé undantekningarregla sem skýra skal þröngt og aðeins beita að uppfylltum ströngum hlutlægum skilyrðum, svo sem vegna náttúruhamfara eða styrjalda (force majure), sem eru slík utanaðkomandi atvik sem aðili fær engu um ráðið og gerir það að verkum að ekki er hægt að framkvæma greiðslu. Þá var ákvörðun ríkisskattstjóra að ekkert hafi komi upp á í þessu máli sem fella megi undir utanaðkomandi og óviðráðanleg ytri atvik sem hamlað hafi greiðslu á réttum tíma og hafnaði því beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta.
II. Málsástæður og lagarök kæranda
Kærandi krefst þess að ákvörðun Skattsins frá 5. júní 2026, þar sem synjað var um niðurfellingu dráttarvaxta vegna virðisaukaskatts uppgjörstímabilið maí–júní 2023, verði felld úr gildi og málið tekið til nýrrar efnislegrar meðferðar. Til vara er þess krafist að fjármála- og efnahagsráðuneytið taki sjálft efnislega afstöðu til erindisins og felli dráttarvexti niður að hluta eða öllu leyti.
Kærandi tekur fram að ágreiningur málsins lúti hvorki að gjalddaga virðisaukaskattsins né skattskyldunni sjálfri. Ágreiningurinn snúist um hvort réttmætt sé að dráttarvextir safnist að fullu upp á tímabili þar sem leiðréttingarskýrsla kæranda hafi verið til meðferðar hjá skattyfirvöldum í nær tvö ár án afgreiðslu.
Leiðréttingarskýrsla hafi verið lögð fram 11. apríl 2024 en ekki afgreidd fyrr en 16. mars 2026. Á meðan hafi krafa vegna leiðréttingarinnar, að sögn kæranda, hvorki verið fullmótuð né aðgengileg til hefðbundins greiðsluuppgjörs í kröfu- og innheimtukerfum ríkisins. Kærandi hafi greitt kröfuna 28. mars 2026, skömmu eftir að hún varð virk í kerfunum.
Kærandi byggir á því að verulegur hluti dráttarvaxtanna hafi ekki myndast vegna hefðbundinna vanskila af hans hálfu heldur vegna langs afgreiðslutíma hjá skattyfirvöldum. Ekki hafi verið óskað eftir frekari gögnum, viðbótarupplýsingum eða breytingum á leiðréttingarskýrslunni og verði tafirnar því ekki raktar til háttsemi kæranda. Skatturinn hafi jafnframt ekki veitt skýringar á því hvers vegna afgreiðsla málsins hafi tekið nær tvö ár.
Að mati kæranda nægi ekki að vísa eingöngu til formlegs gjalddaga skattsins við ákvörðun dráttarvaxta. Gera verði greinarmun á lögbundnum gjalddaga annars vegar og því tímamarki þegar krafa sé í reynd orðin virk, aðgengileg og greiðanleg í innheimtukerfum ríkisins hins vegar. Þegar krafa sé í biðstöðu vegna meðferðar skattyfirvalda geti full uppsöfnun dráttarvaxta orðið háð innri afgreiðsluhraða stjórnvalds fremur en raunverulegum vanskilum skattaðila.
Kærandi telur að ákvæði 28. gr. vskl. verði ekki túlkað svo þröngt að einungis sé litið til þess hvort óviðráðanleg ytri atvik hafi komið í veg fyrir greiðslu. Við mat á niðurfellingu dráttarvaxta verði einnig að taka efnislega afstöðu til þess hvort stjórnvöld hafi sjálf, með óhæfilegum afgreiðsludrætti, átt verulegan þátt í uppsöfnun vaxtanna.
Þá byggir kærandi á því að meðferð málsins hafi brotið gegn málshraðareglu 9. gr. ssl. Leiðréttingarskýrslan hafi legið óafgreidd í nær tvö ár, án þess að tafirnar hafi verið skýrðar eða að kærandi hafi haft stjórn á framgangi málsins. Vaxtayfirlit Skattsins sýni að dráttarvextir hafi haldið áfram að safnast upp allan þennan tíma. Hefði málið verið afgreitt innan hæfilegs tíma hefðu dráttarvextir orðið verulega lægri.
Kærandi byggir jafnframt á því að rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi, sbr. 10. gr. ssl. Skatturinn hafi ekki rannsakað hvort og að hvaða marki dráttur á afgreiðslu leiðréttingarskýrslunnar hafi leitt til uppsöfnunar dráttarvaxta. Þá hafi ekki verið kannað hvort kærandi hafi haft raunhæfan möguleika á að gera upp kröfuna á meðan málið var óafgreitt og krafan ekki virk í innheimtukerfum ríkisins.
Af sömu ástæðu telur kærandi að rökstuðningur ákvörðunarinnar fullnægi ekki kröfum 22. gr. ssl. Í ákvörðuninni sé einkum vísað til formlegs gjalddaga og skilyrða 28. gr. vskl., án sjálfstæðrar umfjöllunar um afgreiðslutíma málsins, orsök tafanna, raunverulegt greiðsluumhverfi eða áhrif þessara atriða á vaxtabyrði kæranda.
Loks vísar kærandi til meginreglna stjórnsýsluréttar um meðalhóf, sanngirni og vandaða stjórnsýsluhætti. Hann telur ósanngjarnt og óhóflegt að hann beri að fullu fjárhagslegar afleiðingar tafa sem verði ekki raktar til hans sjálfs. Dráttarvextir eigi að endurspegla raunveruleg vanskil skattaðila en ekki verða ígildi fjárhagslegra viðurlaga vegna langrar málsmeðferðar stjórnvalds.
Samkvæmt framangreindu telur kærandi verulega annmarka vera á hinni kærðu ákvörðun. Annars vegar hafi skort á fullnægjandi rannsókn og rökstuðning og hins vegar hafi reglur um dráttarvexti verið túlkaðar of þröngt með því að byggja eingöngu á formlegum gjalddaga. Af þeim sökum beri að fella ákvörðunina úr gildi og taka málið til nýrrar efnislegrar meðferðar eða fallast á niðurfellingu dráttarvaxta að hluta eða öllu leyti.
III. Umsögn ríkisskattstjóra
Ríkisskattstjóri telur að staðfesta beri ákvörðun hans frá 5. júní 2026 um synjun á niðurfellingu dráttarvaxta. Byggir hann á því að virðisaukaskatti vegna tímabilsins maí–júní 2023 hafi borið að skila 8. ágúst 2023, en leiðréttingarskýrsla hafi ekki verið lögð fram fyrr en 11. apríl 2024.
Ríkisskattstjóri byggir á því að virðisaukaskattsskýrslu og greiðslu virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabilsins maí–júní 2023 hafi borið að skila eigi síðar en 8. ágúst 2023, sbr. 24. gr. vskl. Skýrslu hafi ekki verið skilað innan lögbundins frests. Leiðréttingarskýrsla kæranda hafi síðan verið lögð fram 11. apríl 2024. Á grundvelli þeirrar leiðréttingarskýrslu hafi svo krafa að fjárhæð 182.680 kr. verið stofnuð í tekjubókhaldskerfi ríkisins 18. mars 2026. Jafnframt hafi verið lagt á 18.268 kr. álag og dráttarvextir að fjárhæð 81.342 kr. Krafan hafi verið greidd 28. mars 2026.
Ríkisskattstjóri vísar til þess að samkvæmt 1. mgr. 28. gr. vskl. beri að greiða dráttarvexti af vangreiddum virðisaukaskatti þegar skatturinn er ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga. Dráttarvextir leggist því á kröfur sem ekki eru greiddar á gjalddaga samkvæmt lögbundinni reglu.
Ríkisskattstjóri hafnar því að langur afgreiðslutími leiðréttingarskýrslunnar leiði til niðurfellingar vaxta eða ógildingar ákvörðunar. Ekki sé til lagaheimild til niðurfellingar við þessar aðstæður og hann hafi ekki svigrúm til að víkja frá lögbundinni vaxtatöku á grundvelli meðalhófs- eða sanngirnissjónarmiða. Ríkisskattstjóri hafnar að brotið hafi verið gegn málshraðareglu stjórnsýsluréttar og fram kemur að leiðréttingarskýrslan hafi farið í ákveðinn afgreiðsluferil hjá stofnuninni þar sem kærandi er maki starfsmanns ríkisskattstjóra. Þá vísar ríkisskattstjóri til þess að samkvæmt úrskurðarframkvæmd leiði dráttur á málsmeðferð ekki einn og sér til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar og er í því sambandi sérstaklega vísað til úrskurðar yfirskattanefndar nr. 88/2026.
Ríkisskattstjóri hafnar því einnig að rannsóknarskylda í málinu hafi verið brotin. Álagning dráttarvaxta hafi byggst á upplýsingum sem kærandi sjálfur gaf upp í innsendri leiðréttingarskýrslu og hafi því ekki verið þörf á frekari rannsókn til að ákvarða vaxtakröfuna. Þá er bent á að kærandi hafi sjálfur lagt fram upplýsingar um fjárhæð skattsins og hafi getað greitt þá fjárhæð þegar leiðréttingarskýrslan var lögð fram og þannig takmarkað vaxtabyrði sína. Ríkisskattstjóri telur jafnframt að kæranda hafi mátt vera ljóst að krafa myndi stofnast og að henni hafi verið unnt að hafa frumkvæði að því að kanna stöðu málsins meðan afgreiðslu var beðið.
Niðurstaða ríkisskattstjóra er því sú að dráttarvextir hafi verið réttilega lagðir á og að ekki séu lagaskilyrði til niðurfellingar þeirra.
IV. Athugasemdir kæranda við umsögn ríkisskattstjóra
Með athugasemdum sínum um umsögn ríkisskattstjóra telur kærandi rétt að skýra og breyta kröfugerð sinni frá upphaflegri kæru og fellur frá kröfu um að málinu verði vísað aftur til ríkisskattstjóra. Þess í stað er þess krafist að ráðuneytið leysi sjálft efnislega úr málinu og felli niður dráttarvexti sem reiknuðust frá 11. apríl 2024, þegar leiðréttingarskýrsla var lögð fram, til 18. mars 2026, þegar krafa var samkvæmt umsögn ríkisskattstjóra stofnuð í tekjubókhaldskerfi ríkisins.
Kærandi áréttar að ekki sé deilt um lögbundinn gjalddaga virðisaukaskatts eða að dráttarvextir geti almennt reiknast frá gjalddaga. Álitaefnið sé fremur hvort sérstök atvik málsins, einkum rúmlega 700 daga afgreiðslutími leiðréttingarskýrslunnar, geti haft þýðingu við beitingu niðurfellingarheimildar 28. gr. laga nr. 50/1988. Kærandi telur að tilvísun ríkisskattstjóra til Hæstaréttardóms nr. 238/2017 leysi ekki úr því álitaefni, enda hafi sérstök heimild til niðurfellingar dráttarvaxta verið lögfest síðar með lögum nr. 143/2018. Sama eigi við um tilvísun til úrskurðar yfirskattanefndar nr. 88/2026, þar sem kærandi byggi ekki á því að málshraðabrot leiði eitt og sér til ógildingar ákvörðunar.
Kærandi mótmælir sérstaklega þeirri afstöðu ríkisskattstjóra að henni hafi verið „í lófa lagið“ að greiða skattfjárhæðina þegar leiðréttingarskýrslan var lögð fram. Að mati kæranda hefur ekki verið upplýst með hvaða hætti greiða hefði mátt kröfu sem þá hafði ekki verið stofnuð í innheimtukerfi ríkisins eða hvort slík greiðsla hefði í reynd stöðvað frekari dráttarvexti. Þá liggi ekki fyrir að kæranda hafi verið leiðbeint um slíka greiðsluleið. Kærandi byggir því á rannsóknarreglu 10. gr. og leiðbeiningarskyldu 7. gr. ssl.
Jafnframt vísar kærandi til þess að málið hafi samkvæmt umsögn ríkisskattstjóra farið í sérstakan afgreiðsluferil vegna tengsla kæranda við starfsmann Skattsins. Kærandi telur að upplýsa þurfi nánar um þann farveg, ástæður hins langa afgreiðslutíma og hvort henni hafi verið tilkynnt um tafir og áhrif þeirra, sbr. 9. gr. ssl. Þá telur kærandi að líta beri til meðalhófssjónarmiða við mat á því hvort hún eigi að bera óskerta vaxtabyrði vegna tímabils sem hún hafði, að eigin sögn, enga stjórn á.
Kærandi telur því að umsögn ríkisskattstjóra hreki ekki meginrök kærunnar og óskar eftir að ráðuneytið taki sjálfstæða afstöðu til niðurfellingar dráttarvaxta á grundvelli 28. gr. vskl. og þeirra sérstöku atvika sem að framan greinir.
V. Forsendur og niðurstaða
Ágreiningsefni málsins eru dráttarvextir sem ríkisskattstjóri lagði á kæranda á grundvelli 1. mgr. 28. gr. vskl. Kærð er ákvörðun ríkisskattstjóra dags. 5. júní 2026, um að hafna beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt fyrir uppgjörstímabilið maí-júní 2023 vegna skráningarnúmers […].
Kærandi gerir ekki ágreining um að gjalddagi virðisaukaskatts vegna framangreinds uppgjörstímabils hafi verið 8. ágúst 2023. Krafa kæranda lýtur að niðurfellingu þeirra dráttarvaxta sem reiknuðust frá 11. apríl 2024, þegar leiðréttingarskýrsla var lögð fram, til 18. mars 2026, þegar krafa samkvæmt skýrslunni var stofnuð í tekjubókhaldskerfi ríkisins.
1.
Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. vskl. skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af virðisaukaskatti sem ekki er greiddur innan mánaðar frá gjalddaga, sbr. 24. gr. laganna. Sama gildir ef endurgreiðsla hefur verið of há eða virðisaukaskattur er endurákvarðaður til hækkunar. Gildisdagur vaxtatímabils dráttarvaxta skal vera sá sami og gjalddagi viðkomandi uppgjörstímabils. Samkvæmt 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. vskl. má fella niður dráttarvexti hafi utanaðkomandi og óviðráðanleg atvik, sem aðili ber ekki ábyrgð á, hamlað greiðslu á réttum tíma.
Dráttarvextir vegna virðisaukaskatts byggja á hlutlægum skilyrðum sem ákveðin eru með lögum og eru lögbundin afleiðing vangreiddrar peningakröfu. Svigrúm skattyfirvalda til niðurfellingar dráttarvaxta er takmarkað og bundið við þær aðstæður sem tilgreindar eru í 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. vskl. Hefur ráðuneytið í fyrri úrskurðum lagt til grundvallar að skilyrði niðurfellingar dráttarvaxta séu mun þrengri en þau skilyrði sem gilda um niðurfellingu álags. Kemur þá til skoðunar hvort þau atvik sem kærandi byggir á geti talist hafa hamlað greiðslu á réttum tíma í skilningi 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. vskl.
2.
Kærandi byggir einkum á því að leiðréttingarskýrsla hennar hafi legið óafgreidd hjá Skattinum í rúmlega 700 daga og að krafa samkvæmt skýrslunni hafi ekki verið stofnuð í tekjubókhaldskerfi ríkisins fyrr en 18. mars 2026. Af þeim sökum hafi hún ekki haft raunhæfan möguleika til að greiða kröfuna og stöðva frekari uppsöfnun dráttarvaxta.
Ráðuneytið getur ekki fallist á þá málsástæðu kæranda, en fyrir liggur að kærandi lagði sjálf fram leiðréttingarskýrslu 11. apríl 2024 og var henni því frá þeim tíma kunnugt um þá fjárhæð virðisaukaskatts sem samkvæmt skýrslunni bar að greiða. Þótt krafa samkvæmt skýrslunni hafi ekki verið stofnuð í tekjubókhaldskerfi ríkisins fyrr en síðar var kæranda unnt að inna greiðslu af hendi með millifærslu til innheimtumanns ríkissjóðs. Upplýsingar um slíka greiðslumöguleika og framkvæmd greiðslna voru aðgengilegar skattaðilum á heimasíðu Skattsins.
Að þessu virtu verður ekki talið að það eitt að leiðréttingarskýrsla kæranda hafi verið óafgreidd hjá Skattinum eða að krafa hafi ekki verið stofnuð í tekjubókhaldskerfi ríkisins hafi hamlað kæranda að greiða skattfjárhæðina. Kæranda var þannig unnt að greiða þá fjárhæð sem hún hafði sjálf tilgreint í leiðréttingarskýrslu sinni og takmarka með því frekari uppsöfnun dráttarvaxta.
Verður því ekki talið að þær tafir sem urðu á afgreiðslu leiðréttingarskýrslunnar feli í sér utanaðkomandi og óviðráðanleg atvik sem hafi hamlað greiðslu á réttum tíma í skilningi 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. vskl. Eru þannig ekki skilyrði til að fella niður dráttarvexti á þeim grundvelli.
3.
Kærandi hefur jafnframt byggt á því að verulegur dráttur hafi orðið á meðferð leiðréttingarskýrslunnar hjá ríkisskattstjóra og að henni hafi hvorki verið tilkynnt um sérstakan afgreiðsluferil málsins né leiðbeint um hvernig unnt væri að koma í veg fyrir áframhaldandi uppsöfnun dráttarvaxta.
Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. ssl. skulu ákvarðanir í málum teknar svo fljótt sem unnt er. Þá ber stjórnvaldi, þegar fyrirsjáanlegt er að afgreiðsla máls muni tefjast, að skýra aðila frá því, upplýsa um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Leiðréttingarskýrsla kæranda var lögð fram 11. apríl 2024 en afgreiðslu hennar lauk ekki fyrr en í mars 2026. Samkvæmt umsögn ríkisskattstjóra fór skýrslan í sérstakan afgreiðsluferil vegna þess að kærandi er maki starfsmanns Skattsins. Ekki hefur komið fram að á þessu tímabili hafi þurft að afla frekari gagna eða skýringa frá kæranda eða að tafir á afgreiðslunni verði að öðru leyti raktar til hennar.
Ráðuneytið telur að nauðsyn þess að haga meðferð málsins með sérstökum hætti vegna tengsla kæranda við starfsmann embættisins skýri ekki að fullu þann langa afgreiðslutíma sem varð í málinu. Að virtum fyrirliggjandi upplýsingum verður að telja að afgreiðsla leiðréttingarskýrslunnar hafi tekið verulegan tíma og að tilefni hefði verið til að hraða meðferð málsins eftir því sem kostur var, sbr. 1. mgr. 9. gr. ssl.
Þá verður ekki ráðið af gögnum málsins að kæranda hafi verið tilkynnt sérstaklega um að afgreiðsla málsins kynni að tefjast, um ástæður tafanna eða hvenær afgreiðslu væri að vænta. Ráðuneytið telur að, eins og atvikum var háttað, hefði verið rétt að upplýsa kæranda um stöðu málsins og fyrirsjáanlegar tafir í samræmi við þau sjónarmið sem búa að baki 3. mgr. 9. gr. ssl.
Hvað varðar sjónarmið kæranda um skort á leiðbeiningum tekur ráðuneytið fram að upplýsingar um greiðslu virðisaukaskatts með millifærslu voru almennt aðgengilegar skattaðilum. Verður því ekki talið að ríkisskattstjóra hafi af þeirri ástæðu einni borið að leiðbeina kæranda sérstaklega um slíka greiðsluleið. Að mati ráðuneytisins hefði þó, eins og atvikum málsins var háttað og í ljósi þess hversu mjög afgreiðsla málsins dróst, verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti að gera kæranda grein fyrir því að bið eftir afgreiðslu leiðréttingarskýrslunnar stöðvaði ekki útreikning dráttarvaxta og vekja athygli á því að unnt væri að greiða þá fjárhæð sem fram kom í skýrslunni áður en formleg krafa yrði stofnuð.
Framangreindar athugasemdir varðandi meðferð málsins breyta þó ekki því að niðurfelling dráttarvaxta verður að eiga sér stoð í 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. vskl. Eins og áður greinir verður ekki talið að afgreiðsludrátturinn hafi hamlað kæranda að greiða skattinn. Geta annmarkarnir því ekki einir og sér leitt til niðurfellingar hinna umdeildu dráttarvaxta.
4.
Með vísan til alls framangreinds er það mat ráðuneytisins að skilyrði 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. vskl. fyrir niðurfellingu dráttarvaxta séu ekki uppfyllt í máli kæranda. Þrátt fyrir þann drátt sem varð á afgreiðslu leiðréttingarskýrslunnar var kæranda unnt að greiða þá skattfjárhæð sem tilgreind var í skýrslunni og verður því ekki talið að utanaðkomandi og óviðráðanleg atvik hafi hamlað greiðslu hennar í skilningi ákvæðisins.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kröfu kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta er hafnað.