3. september 2026 /

Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins nr. 13/2026 vegna ákvörðunar ríkisskattstjóra að hafna beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt

Fimmtudaginn 3. september 2026 er kveðinn upp í fjármála- og efnahagsráðuneytinu svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R

Hinn 22. júní 2026 barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu (hér eftir „ráðuneytið“) stjórnsýslukæra Í ehf. (hér eftir „kærandi“). Kærð er ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 11. júní 2026, um að hafna beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt fyrir öll uppgjörstímabil ársins 2019 til og með mars-apríl 2026 vegna skráningarnúmers […].

Kærandi krefst þess að ákvörðun ríkisskattstjóra um að hafna beiðni um niðurfellingu dráttarvaxta verði felld úr gildi.

Ákvörðun ríkisskattstjóra er kærð á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 150/2019, um innheimtu opinberra gjalda og skatta, sbr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, og barst kæra innan kærufrests. Ráðuneytið óskaði eftir umsögn ríkisskattstjóra um kæru sem barst þann 9. júlí 2026. Kærandi kom á framfæri athugasemdum við umsögn ríkisskattstjóra með bréfi, dags. 24. júlí 2026. Lauk þá gagnaöflun og var málið tekið til úrskurðar.

I. Málavextir

Kærandi, Í ehf., er einkahlutafélag sem hefur um nokkurra ára skeið unnið að undirbúningi verkefna á sviði raforkuvinnslu. Meðal þeirra verkefna er fyrirhuguð virkjanaframkvæmd við […]vatn, sem unnið er að í samstarfi við […]. Framkvæmdaraðili verkefnisins er H ehf., dótturfélag kæranda, en gert er ráð fyrir að […] eignist hlut í félaginu eftir því sem verkefninu vindur fram.

Kærandi fékk heimild ríkisskattstjóra til afturvirkrar skráningar á grunnskrá virðisaukaskatts vegna undirbúnings og uppbyggingar framangreindrar virkjanaframkvæmdar frá og með árinu 2019 og var honum úthlutað virðisaukaskattsnúmerinu 160356. Þá fékk H ehf. jafnframt afturvirka skráningu vegna sama tímabils. Kæranda var úthlutað skráningarnúmeri 11. febrúar 2026 og H ehf. þann 22. maí sama ár.

Kostnaður vegna undirbúnings virkjanaframkvæmdarinnar hafði upphaflega verið reikningsfærður af þjónustuveitendum til kæranda. Einkum var um að ræða kostnað vegna verkfræðiþjónustu, mats- og umsagnaraðila og almennrar umsýslu verkefnisins. Kærandi endurreikningsfærði eða seldi síðan þann kostnað til dótturfélags síns H ehf. með virðisaukaskatti. Samkvæmt skýringum kæranda var þetta fyrirkomulag viðhaft þar sem félögin töldu ekki forsendur til að færa kostnaðinn beint á H ehf. fyrr en nægileg vissa lægi fyrir um að nauðsynleg virkjunar- og framkvæmdaleyfi fengjust og að verkefnið yrði að veruleika.

Í kjölfar afturvirkrar skráningar kæranda skilaði hann virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabila áranna 2019 til 2025. Samkvæmt þeim skýrslum myndaðist útskattur til greiðslu hjá kæranda en samsvarandi inneign hjá H ehf. vegna þjónustu kæranda. Við álagningu vegna afturvirkra skýrslna kæranda myndaðist skuld vegna vangreidds virðisaukaskatts á þeim uppgjörstímabilum þar sem útskattur var hærri en innskattur, frá og með gjalddaga þeirra. Reiknaði því ríkisskattstjóri dráttarvexti af þeirri skuld frá lögbundnum gjalddögum viðkomandi uppgjörstímabila.

Kærandi taldi óeðlilegt að félagið yrði talið hafa verið í vanskilum vegna tímabila áður en því var úthlutað virðisaukaskattsnúmeri. Byggði kærandi á því að félaginu hefði ekki verið unnt að standa skil á virðisaukaskatti með lögmæltum hætti á þeim tíma, enda hefði það hvorki verið skráð á virðisaukaskattsskrá né haft virðisaukaskattsnúmer.

Með erindi, dags. 3. mars 2026, óskaði kærandi eftir niðurfellingu álagðra dráttarvaxta. Beiðnin var reist á því að kæranda hefði verið ómögulegt að greiða virðisaukaskattinn á réttum tíma þar sem félagið hefði ekki verið skráð á virðisaukaskattsskrá á þeim uppgjörstímabilum sem málið varðar.

Ríkisskattstjóri hafnaði beiðni kæranda með ákvörðun, dags. 11. júní 2026. Í ákvörðuninni kom fram að afturvirk skráning breytti ekki lögbundnum gjalddögum virðisaukaskatts. Þá vísaði ríkisskattstjóri til þess að niðurfelling dráttarvaxta samkvæmt 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, kæmi aðeins til álita þegar utanaðkomandi og óviðráðanleg atvik, sem aðili bæri ekki ábyrgð á, hefðu hamlað greiðslu á réttum tíma. Að mati ríkisskattstjóra hefðu slík atvik ekki verið fyrir hendi í máli kæranda.

II. Málsástæður og lagarök kæranda

Af hálfu kæranda er byggt á því að hann geti ekki talist hafa verið í vanskilum með virðisaukaskatt vegna þeirra uppgjörstímabila sem útskattur var umfram innskatt, enda hafi hann ekki verið á virðisaukaskattsskrá á þeim tíma. Kærandi telur að ómögulegt hafi verið að standa skil á greiðslu virðisaukaskatts meðan hann hafði ekki fengið úthlutað virðisaukaskattsnúmeri og hafi því ekki haft raunhæfa eða lagalega möguleika á að greiða skattinn með hefðbundnum hætti.

Kærandi mótmælir þeirri afstöðu ríkisskattstjóra að skilyrði 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 50/1988 séu ekki uppfyllt. Að mati kæranda beri að líta svo á að sú staðreynd að hann hafi ekki verið skráður á virðisaukaskattsskrá hafi verið atvik sem stóðu utan áhrifasviðs félagsins og kom í veg fyrir greiðslu á réttum tíma. Kærandi telur því að ríkisskattstjóra beri að fella niður dráttarvexti sem lagðir voru á kæranda.

Kærandi vísar til þess að rekstur og undirbúningur virkjanaframkvæmda hafi verið í þróun um lengri tíma og að kostnaður vegna verkefnisins hafi upphaflega verið reikningsfærður af öðrum aðilum og síðar áfram með virðisaukaskatti. Það fyrirkomulag hafi helgast af því að ekki hafi þótt forsendur til að færa kostnaðinn beint á verkefnið fyrr en tryggt væri að nauðsynleg virkjana- og framkvæmdaleyfi fengjust. Einkum hafi verið um að ræða kostnað vegna verkfræðiþjónustu, mats- og umsagnaraðila og almenns umsýslukostnaðar.

Þá byggir kærandi á því að ríkisskattstjóri hafi ekki virt jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar við ákvörðun um fjármunatilfærslur milli aðila og Skattsins. Kærandi bendir á að ríkisskattstjóri hafi ekki greitt dráttarvexti af inneignum sem mynduðust hjá tengdum félögum vegna innsendra virðisaukaskattsskýrslna, á sama tíma og dráttarvextir hafi verið reiknaðir á meintar vangreiddar fjárhæðir kæranda. Að mati kæranda leiði þetta til ósamræmis og þess að skattaðilar beri skarðan hlut frá borði gagnvart ríkissjóði.

Loks telur kærandi að ákvörðun ríkisskattstjóra fari gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Í því sambandi er áréttað að kærandi hefði í reynd getað staðið skil á virðisaukaskatti mun fyrr ef honum hefði verið úthlutað virðisaukaskattsnúmeri eða ef skráningarmál hans hefðu verið leyst með öðrum hætti. Þar sem tafir og skráningarstaða félagsins hafi ráðið úrslitum um möguleika þess til greiðslu telur kærandi ósanngjarnt og óhóflegt að leggja á hann dráttarvexti vegna tímabila áður en kærandi gat staðið skil á skattinum með venjubundnum hætti.

III. Umsögn ríkisskattstjóra

Ríkisskattstjóri vísar til þess að beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta, dags. 3. mars 2026, hafi verið synjað með ákvörðun, dags. 11. júní 2026. Kærandi hafi fengið afturvirka skráningu á virðisaukaskattsskrá frá árinu 2019 vegna virkjanaframkvæmda sinna. Ríkisskattstjóri telur að slík afturvirk skráning breyti ekki lögbundnum gjalddögum einstakra uppgjörstímabila. Hafi virðisaukaskattur ekki verið greiddur innan mánaðar frá gjalddaga beri að greiða dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 28. gr. laga nr. 50/1988.

Að mati ríkisskattstjóra er heimild til niðurfellingar dráttarvaxta samkvæmt sama ákvæði bundin við utanaðkomandi og óviðráðanleg atvik sem hamlað hafi greiðslu skattsins á réttum tíma. Ekkert slíkt hafi komið fram í málinu. Sú staðreynd að kærandi hafi ekki verið skráður á virðisaukaskattsskrá fyrr en árið 2026 breyti þeirri niðurstöðu ekki.

Ríkisskattstjóri hafnar jafnframt sjónarmiðum kæranda um brot gegn jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Kærandi og H ehf. séu sjálfstæðir skattaðilar og meðferð inneigna hjá H ehf. hafi ekki þýðingu fyrir mál kæranda. Þá hafi dráttarvextir verið lagðir á samkvæmt skýrum fyrirmælum laga.

Með vísan til framangreinds telur ríkisskattstjóri ekki skilyrði til niðurfellingar dráttarvaxta og krefst þess að kröfum kæranda verði hafnað.

IV. Athugasemdir kæranda við umsögn ríkisskattstjóra

Kærandi áréttar að hann hafi ekki talið nægilega vissu ríkja um að virkjunaráformin yrðu að veruleika fyrr en sótt var um skráningu á virðisaukaskattsskrá. Þegar sú vissa lá fyrir hafi verið óskað eftir afturvirkri skráningu, sem ríkisskattstjóri hafi samþykkt.

Kærandi telur að líta beri á skráningu og virðisaukaskattsskil kæranda og dótturfélags síns H ehf. í samhengi, enda hafi meginhluti skattskyldra tekna kæranda stafað af viðskiptum við dótturfélagið. Ríkisskattstjóra hafi verið kunnugt um tengsl félaganna og að útskattur kæranda leiddi jafnframt til samsvarandi inneignar hjá H ehf.

Að mati kæranda hafi ríkisskattstjóra borið, með hliðsjón af leiðbeiningarskyldu 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að upplýsa félögin þegar í skráningarferlinu um þá afstöðu að dráttarvextir yrðu lagðir á skuld kæranda, en dráttarvextir ekki greiddir af samsvarandi inneign H ehf. Kærandi telur þessa meðferð ekki samræmast skyldum ríkisskattstjóra samkvæmt stjórnsýslulögum.

V. Forsendur og niðurstaða.

Ágreiningsefni málsins lýtur að þeirri ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 11. júní 2026, að hafna beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta sem reiknaðir voru á vangreiddan virðisaukaskatt vegna uppgjörstímabila áranna 2019–2025. Af hálfu kæranda er á því byggt að félagið hafi ekki getað staðið skil á virðisaukaskatti á réttum tíma, þar sem það var ekki skráð á virðisaukaskattsskrá og hafði ekki fengið úthlutað virðisaukaskattsnúmeri á þeim tíma sem um ræðir.

Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, skal hver sá sem skattskyldur er samkvæmt 3. gr. laganna ótilkvaddur og eigi síðar en átta dögum áður en starfsemi hefst tilkynna atvinnurekstur sinn eða starfsemi til skráningar hjá ríkisskattstjóra. Þá skal skráningarskyldur aðili samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laganna greiða virðisaukaskatt ótilkvaddur eftir lok hvers uppgjörstímabils og skal virðisaukaskatti ásamt virðisaukaskattsskýrslu skila eigi síðar en á fimmta degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils vegna viðskipta á því tímabili.

Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laganna telst skattskyld velta á hverju uppgjörstímabili heildarskattverð allra vara sem afhentar hafa verið og allrar skattskyldrar vinnu og þjónustu sem innt hefur verið af hendi á tímabilinu. Sé reikningur gefinn út vegna afhendingar telst afhending hafa farið fram á útgáfudegi reiknings, enda sé reikningur gefinn út fyrir eða samtímis afhendingu skv. 2. mgr. 13. gr. laganna. Af þessu leiðir að það ræðst af afhendingu þjónustunnar og reikningsútgáfu á hvaða uppgjörstímabili virðisaukaskattsskyld velta telst hafa myndast.

Í málinu liggur fyrir að kærandi gaf út reikninga vegna sölu á þjónustu vegna undirbúnings virkjanaframkvæmda til H ehf. með virðisaukaskatti, á þeim uppgjörstímabilum sem málið varðar. Þar sem þjónusta kæranda var afhent á umræddum tímabilum bar að telja hana til skattskyldrar veltu hans á þeim uppgjörstímabilum, sbr. framangreinda afhendingarreglu 1. mgr. 13. gr. laganna. Hefði sala eða afhending þjónustunnar ekki farið fram fyrr en síðar, til dæmis eftir að kæranda hafði verið úthlutað virðisaukaskattsnúmeri, hefðu gjalddagar virðisaukaskatts vegna þeirrar sölu ráðist af afhendingu hennar sem hefðu þá orðið á síðari uppgjörstímabilum. Þar sem kærandi gengur sjálfur út frá því að þjónustan hafi verið afhent á árunum 2019–2025 gilda lögbundnir gjalddagar þeirra uppgjörstímabila.

Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af gjaldföllnum virðisaukaskatti sé hann ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga. Sama gildir ef endurgreiðsla hefur verið of há eða ef virðisaukaskattur er endurákvarðaður til hækkunar. Þá kemur fram að gildisdagur vaxtatímabils dráttarvaxta skuli vera sá sami og gjalddagi viðkomandi uppgjörstímabils. Fella má niður dráttarvexti hafi utanaðkomandi og óviðráðanleg ytri atvik, sem aðili ber ekki ábyrgð á, hamlað greiðslu á réttum tíma.

Ráðuneytið hefur áður lagt til grundvallar að dráttarvextir samkvæmt 28. gr. laganna séu annars eðlis en álag samkvæmt 27. gr. þeirra. Dráttarvextir eru ekki refsikennd viðurlög heldur lögbundin afleiðing greiðsludráttar og leggjast sjálfkrafa á skattkröfu þegar hlutlæg skilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Svigrúm skattyfirvalda til að fella niður dráttarvexti er því verulega takmarkað og bundið við þau þröngu skilyrði sem fram koma í 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. laganna.

Við mat á því hvort skilyrði niðurfellingar séu uppfyllt verður að líta til þess að það var á ábyrgð kæranda sjálfs að sækja um skráningu á virðisaukaskattsskrá á réttum tíma og haga skattskilum sínum í samræmi við lög. Kærandi einn bjó yfir upplýsingum um starfsemi sína, tímasetningar sölu og afhendingu þjónustu sinnar til H ehf., fyrirkomulag verkefnisins og þau viðskipti sem leiddu til færslu veltu og samsvarandi útskatts á umræddum uppgjörstímabilum. Í úrskurðaframkvæmd ráðuneytisins hefur jafnframt verið lagt til grundvallar að það sé gjaldanda að gera fullnægjandi grein fyrir virðisaukaskatti í starfsemi sinni, enda hafi hann einn þær upplýsingar í fórum sínum þar til virðisaukaskattsskýrslur og viðeigandi gögn berast skattyfirvöldum.

Ráðuneytið getur ekki fallist á að sú staðreynd að kærandi var ekki skráður á virðisaukaskattsskrá á þeim tíma sem afhending og útgáfa reiknings átti sér stað feli í sér utanaðkomandi og óviðráðanlegt ytra atvik í skilningi 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Skráningarleysi kæranda verður þvert á móti rakið til þess að kærandi sótti ekki um skráningu fyrr en síðar. Það að kærandi hafi ekki fengið úthlutað virðisaukaskattsnúmeri fyrr en árið 2026 breytir ekki því að honum bar, hafi skilyrði skráningar verið uppfyllt frá fyrri tíma, að gera ríkisskattstjóra grein fyrir starfsemi sinni og óska eftir skráningu á þeim tíma þegar starfsemin og viðskiptin hófust.

Afturvirk skráning hefur þau réttaráhrif að virðisaukaskattsskil eru færð til samræmis við þá starfsemi og þau viðskipti sem fram fóru á hinum afturvirku tímabilum. Hún breytir hins vegar ekki lögbundnum reglum um það á hvaða uppgjörstímabili sala telst til skattskyldrar veltu né um þá gjalddaga sem gilda um virðisaukaskatt af þeirri sölu. Þegar kærandi skilaði virðisaukaskattsskýrslum vegna áranna 2019–2025 eftir að skráning hafði fengist kom í ljós að útskattur var umfram innskatt á tilteknum uppgjörstímabilum. Sú virðisaukaskattsskuld sem af því leiddi miðaðist við lögbundna gjalddaga viðkomandi uppgjörstímabila.

Þá verður ekki fallist á að það leiði til annarrar niðurstöðu þótt samsvarandi innskattur hafi eftir atvikum myndast hjá H ehf., vegna sömu viðskipta. Kærandi og H ehf. eru aðskildir skattaðilar og verður inneign annars félags ekki lögð að jöfnu við greiðslu kæranda á eigin útskatti nema skýr lagaheimild standi til slíkrar skuldajöfnunar. Ákvæði 5. málsl. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt tekur til tilvika þar sem endurákvörðun virðisaukaskatts tekur til fleiri en eins uppgjörstímabils innan sama árs og skuld og inneign myndast við sömu skattbreytingu hjá viðkomandi skattaðila. Það ákvæði á ekki við með þeim hætti að inneign H ehf. geti komið til frádráttar skuld kæranda vegna útskatts.

Ráðuneytið telur jafnframt að sjónarmið kæranda um jafnræði og meðalhóf geti ekki leitt til niðurfellingar dráttarvaxta. Dráttarvextir samkvæmt 28. gr. laganna byggjast á hlutlægum lögbundnum skilyrðum. Þegar virðisaukaskattur hefur ekki verið greiddur á réttum tíma ber að reikna dráttarvexti nema skilyrði niðurfellingar samkvæmt ákvæðinu séu uppfyllt. Af gögnum málsins verður ekki séð að náttúruhamfarir, styrjaldir, atvik er varða innheimtumann ríkissjóðs eða önnur sambærileg utanaðkomandi og óviðráðanleg atvik hafi hamlað greiðslu kæranda á réttum tíma.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða ráðuneytisins að lagaskilyrði hafi verið til staðar til að reikna dráttarvexti á vangreiddan virðisaukaskatt kæranda vegna þeirra uppgjörstímabila þar sem útskattur var umfram innskatt. Þá hefur kærandi ekki sýnt fram á að skilyrði 4. málsl. 1. mgr. 28. gr. laganna fyrir niðurfellingu dráttarvaxta séu uppfyllt.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kröfu kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta er hafnað.