11. september 2026 /

Mál nr. 37/2025

Mál nr. 37/2025

 

Úrskurður kærunefndar jafnréttismála

 

A gegn B hf.

 

Frávísun. Gildissvið. Aðild. Lögvarðir hagsmunir.

Kærandi lagði fram kæru sem byggði á því að öðrum einstaklingum en henni hefði verið mismunað á grundvelli fötlunar varðandi veitingu þjónustu, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar. Undir rekstri málsins óskaði kærunefnd eftir nánari skýringum um atvik og aðild málsins og umboð frá þeim sem kærandi teldi að hefði verið mismunað. Kærandi lagði ekki fram slíkt umboð þrátt fyrir áréttingar nefndarinnar. Eins og málið lá fyrir var kærandi ekki talinn hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn þess og var málinu því vísað frá kærunefnd jafnréttismála.

  1. Á fundi kærunefndar jafnréttismála 11. september 2026 er tekið fyrir mál nr. 37/2025 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

  2. Með kæru, dags. 16. nóvember 2025, kærði A að geta ekki tryggt starfsmenn hjá sér hjá kærða  vegna fötlunar. Í kæru kemur fram að hún hafi leitað eftir að tryggja starfsmenn sem vinna hjá C ehf. Þeir vinni við smíðar en í skilmálum vátryggingafélagsins […], fyrir slysatryggingu launþega, segi eftirfarandi: „Undanþágur vegna sjúkdóma o.fl.: Félagið bætir ekki slys sem beint eða óbeint orsakast af sjóndepru, heyrnardeyfð, hreyfihömlun, geðsjúkdómum, flogaveiki, krampa, slagi, sykursýki eða öðrum alvarlegum sjúkdómum eða veiklun. […] Hafi slíkar ástæður verið þess valdandi að vátryggður missir starfsorku sína um stundarsakir eða varanlega, er einungis greitt fyrir þann starfsorkumissi sem ætla má að hann hefði orðið fyrir ef þessar ástæður hefðu ekki komið til.“

  3. Kærandi tekur fram að hún telji vátryggingaskilmálann fela í sér augljósa, ólögmæta og beintengda mismunun á grundvelli fötlunar sem sé andstæð lögum og mannréttindareglum.

  4. Undir rekstri málsins var óskað eftir því að kærandi gerði nánari grein fyrir efni kærunnar og aðild málsins. Einkum var óskað eftir því að kærandi sendi umboð um að hún hefði heimild til að leita til nefndarinnar fyrir hönd viðkomandi starfsmanna. Þá var óskað upplýsinga um hvort starfsmennirnir hefðu fengið synjun frá tryggingafélagi með vísan til fötlunar og þá hvenær sú synjun hefði átt sér stað.

  5. Svör bárust frá kæranda í framhaldinu um að starfsmennirnir hefðu ekki fengið synjun á tryggingu, en hún væri tilgangslaus fyrir […] starfsmenn. Var kæranda leiðbeint í framhaldinu um að nefndin tæki fyrir kæru sem stöfuðu frá einstaklingum, en ef lögaðili kæmi fram sem kærandi, þyrfti að liggja fyrir umboð frá einstaklingum sem teldu rétt á sér brotið.

  6. Í svörum kæranda til nefndarinnar í framhaldinu kom fram að hún gæti fengið umboð frá starfsmönnum en hún vildi nánari rökstuðning og skýringar fyrir þeirri afstöðu nefndarinnar og leiðbeiningar um það á hvaða formi umboð ætti að vera.

  7. Í svari nefndarinnar til kæranda, dags. 9. apríl sl., var ítrekað að kærunefndin tæki almennt ekki almenna framkvæmd til skoðunar ef ekki reyndi á það hvort kæranda hefði verið mismunað. Aðildin væri tengd einstaklingunum sem teldu sér mismunað. Þá fylgdi svari nefndarinnar fyrirmynd umboðs sem unnt væri að nota.

  8. Með tölvupósti kæranda sem barst sama dag spurði kærandi hvort það væri rétt skilið hjá sér að kærunefndin tæki ekki til efnislegrar meðferðar mál nema á þetta ákvæði skilmála tryggingafélagsins hefði reynt. Þá óskaði kærandi svara við því af hverju hún ætti að greiða tryggingu sem hún vissi að dygði ekki fyrir sinn starfsmann bara til þess að hún gæti látið á þetta brot reyna fyrir nefndinni. Kærandi tók að síðustu fram um aðild málsins að hún legði fram kæruna sem launagreiðandi.

  9. Með tölvupósti 22. apríl 2026 var kærandi upplýstur um að nefndin tæki málið fyrir á fundi og myndi ákveða framhald þess.

     

    NIÐURSTAÐA

  10. Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, kemur fram að lögin gildi um jafna meðferð einstaklinga á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnu­markaðar, óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. Í 2. gr. sömu laga kemur fram að markmið laganna sé að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, óháð þeim þáttum sem um geti í 1. mgr. 1. gr.

  11. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórn­sýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, m.a. laga um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, og um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint samkvæmt framansögðu og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna hafi verið brotin.

  12. Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, er mælt fyrir um hverjir geta verið aðilar að málum fyrir nefndinni. Kemur þar fram að einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök sem telja að ákvæði laga um jafnréttismál, sbr. 1. gr., hafi verið brotin gagnvart sér geti leitað til nefndarinnar í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna sinna, eftir því sem við á.

  13. Kæra í máli þessu er lögð fram í nafni einstaklings. Af kæru og gögnum má ráða að kæruefnið snúist um ábyrgðartakmörkun samkvæmt skilmálum kærða fyrir slysatryggingu launþega, þess efnis að kærði bæti ekki slys sem beint eða óbeint orsakast af m.a. sjóndepru, heyrnardeyfð eða hreyfihömlun. Af sömu skilmálum má ráða að vátryggingataki sé atvinnurekandi og vátryggðir séu launþegar í starfi hjá vátryggingataka. Kærandi telur að fyrrgreind ábyrgðartakmörkun feli í sér mismunun á grundvelli fötlunar gagnvart öðrum en sér, en í kæru greinir að hún hafi leitað eftir að tryggja starfsmenn sína hjá kærða þegar hún varð vör við umrædda skilmála.

  14. Undir rekstri málsins var óskað eftir nánari upplýsingum og skýringum frá kæranda um atvik og aðild málsins eins og að framan greinir. Af þeim og gögnum málsins verður ráðið að kærandi byggi á því að hún telji að lög um jafnréttismál hafi verið brotin gagnvart sonum sínum sem eru starfsmenn nafngreinds einkahlutafélags. Ekkert liggur hins vegar fyrir í málinu um tengsl kæranda við fyrrgreint einkahlutafélag að öðru leyti.

  15. Eins og að framan er rakið var kæranda leiðbeint um að leggja fram umboð í málinu sér til handa til þess að beina kæru til nefndarinnar. Kærandi hefur hins vegar ekki lagt fram slíkt umboð þrátt fyrir áréttingar nefndarinnar þar um.

  16. Gildissvið laga nr. 85/2018 tekur samkvæmt 1. mgr. 1. gr. til jafnrar meðferðar ein­staklinga. Af 1. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020 leiðir að aðilar að málum fyrir nefndinni geta annars vegar verið einstaklingar sem telja að ákvæði laga um jafnréttismál hafi verið brotin gagnvart sér, en hins vegar lögaðilar, sem leggja slík mál fram fyrir hönd einstaklings, eða einstaklinga, á grundvelli lögmætrar heimildar eða sérstaks umboðs. Dæmi um það síðarnefnda er þegar stéttarfélag leggur fram kæru til nefndarinnar í eigin nafni sem byggir á mismunun félagsmanna sinna, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar jafnréttismála í máli nr. 19/2024, dags. 19. maí 2026.

  17. Að þessu athuguðu getur lögaðili ekki reist rétt á lögum um jafnréttismál á grundvelli þess að sér hafi verið mismunað á grundvelli mismununarástæðna sem þar eru tilgreindar, sjá t.d. úrskurð kærunefndar jafnréttismála í máli nr. 6/2025, dags. 8. maí 2025. Það sama á við þegar einstaklingur beinir kæru til nefndarinnar, sem er grundvölluð á því að lög um jafnréttismál hafi verið brotin gagnvart öðrum einstaklingi/um en honum, sjá t.d. úrskurð kærunefndar jafnréttismála í máli nr. 2/2025, dags. 8. maí 2025.

  18. Að öllu framangreindu virtu telur nefndin að kærandi hafi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins eins og það liggur fyrir. Er því óhjákvæmilegt að vísa málinu frá nefndinni, sbr. 1. mgr. 23. gr. reglugerðar nr. 1320/2024, um kærunefnd jafnréttismála.

 

Ú r s k u r ð a r o r ð

Máli þessu er vísað frá kærunefnd jafnréttismála.

 

Ari Karlsson

Andri Árnason

Maren Albertsdóttir