1. september 2026 /

Kæra vegna ákvörðunar lögreglustjóra um synjun á umsókn um leyfi til þess að starfa sem dyravörður

Mánudaginn, 14. september 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Stjórnsýslukæra

Með bréfi dags. 9. janúar 2024 bar [A], f.h. [B], fram kæru vegna ákvörðunar lögreglustjórans á [X] frá 3. janúar 2024, um að synja kæranda um leyfi til að starfa sem dyravörður skv. 1. mgr. 6. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 85/2007.

Kærandi vísar til kæruheimildar 26. gr. sömu laga, sbr. einnig 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

Kröfur

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt leyfi til dyravörslu. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt leyfi til dyravörslu er tvö ár eru liðin frá broti kæranda, þ.e. þann 23. febrúar 2024. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lögreglustjóranum gert að taka umsókn kæranda til meðferðar á ný.

 

Málsatvik og málsmeðferð ráðuneytisins

Með umsókn, dags. 18. desember 2023, sótti kærandi um leyfi frá lögreglustjóranum á [X] til að starfa sem dyravörður. Með bréfi, dags. 3. janúar 2024, var umsókn kæranda hafnað með vísan til 21. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Ákvæði reglugerðarinnar kveður á um að enginn geti gengt dyravörslu nema þeir sem lögreglustjóri samþykki. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að dyraverðir mega ekki hafa gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnabrot á síðustu fimm árum. Leggja skuli fram sakavottorð því til staðfestu. Samkvæmt bréfi lögreglustjórans hafnaði embættið umsókn kæranda vegna undirritaðrar sektargerðar vegna fíkniefnabrots á árinu 2022.

Umrætt fíkniefnabrot er frá 23. febrúar 2022. Samkvæmt lögregluskýrslu, dags. 24. febrúar 2022, var kærandi stöðvaður fyrir of hraðan akstur á [Y]. Að beiðni lögregluþjóna veitti kærandi munnvatnssýni sem og öndunarsýni sem bæði reyndust neikvæð. Þá heimilaði kærandi leit í bifreiðinni. Eftir stutta leit í bifreiðinni vísaði kærandi sjálfur á efni í hanskahólfi bifreiðarinnar en um var að ræða kannabisefni í tveimur pokum. Annað fannst ekki við leitina. Í kjölfarið voru efnin handlögð.

Í málinu liggur fyrir vettvangsskýrsla frá 23. febrúar 2022. Samkvæmt henni játar kærandi vörslu efnanna en neitar að hann sé eigandi þeirra. Kærandi veitti aukinheldur upplýsingar um hver sé eigandi efnanna. Þá liggur einnig fyrir efnaskýrsla í málinu. Samkvæmt henni er um að ræða 2,82 grömm af marijúana. Sem fyrr segir játaði kærandi vörslu efnanna og skrifaði undir sektargerð þess efnis. Þar með var málinu lokið.

Með bréfi dags. 3. janúar 2024 tilkynnti lögreglustjóri kæranda um ákvörðun lögreglustjóra um að synja umsókn kæranda um starfsleyfi sem dyravörður.

Þann 9. janúar 2024 barst ráðuneytinu stjórnsýslukæra þar sem kærð var ákvörðun lögreglustjórans.

Með bréfi dags. 8. ágúst 2025 óskaði ráðuneytið eftir því að lögreglustjóri veitti umsögn um kæruna.

Umsögn lögreglustjóra barst ráðuneytinu með tölvupósti dags. 2. september 2025.

Með bréfi dags. 4. september 2025 óskaði ráðuneytið eftir því að kærandi kæmi andmælum sínum á framfæri vegna umsagnar lögreglustjóra.

Með tölvupósti dags. 24. september 2025 kvaðst kærandi ekki hafa frekari andmæli.

Málið hefur hlotið umsagnarmeðferð, gagnaöflun er lokið og málið er tekið til úrskurðar.

Sjónarmið kæranda

Í kæru gerir kærandi þá kröfu aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt leyfi til dyravörslu. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt leyfi til dyravörslu er tvö ár eru liðin frá broti kæranda, þ.e. þann 23. febrúar 2024. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lögreglustjóranum gert að taka umsókn kæranda til meðferðar á ný.

Kærandi byggir á því að umrætt brot sé smávægilegt og refsing við því varði eingöngu sekt. Um sé að ræða minniháttar magn, neysluskammt, sem kærandi var ekki eigandi að. Brotið varði ekki við almenn hegningarlög nr. 19/1940 heldur eingöngu lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Þá sé umrætt brot jafnframt fyrsta og eina brot kæranda. Kærandi játaði brotin skýlaust og greiddi sína sekt.

Þá byggir kærandi á því að hin kærða ákvörðun brjóti gegn atvinnufrelsi manna sem jafnframt telst til grundvallarmannréttinda og nýtur stjórnarskrárverndar í 75. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944. Ákvæði stjórnarskrár kveður á um tvö skilyrði svo unnt sé að takmarka atvinnufrelsi manna, annars vegar að það sé gert með lögum og hins vegar að almannahagsmunir krefjist þess. Kærandi telur að síðara skilyrði 75. gr. stjórnarskrárinnar um almannahagsmuni séu ekki fyrir hendi í sínu tilviki. Þó fallast megi á sjónarmið löggjafans um að stemma stigum við að einstaklingar sem gerst hafa sekir um ofbeldis- og fíkniefnabrot starfi við dyravörslu þá verður að telja að fimm ára tímarammi sem ákvæðin setja sé langt fram úr hófi. Kærandi vísar máli sínu til rökstuðnings til þess að samkvæmt 1. tölulið 1. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrnast brot á tveimur árum þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en eins árs fangelsi eða refsing sú, sem til er unnið, fer ekki fram úr sektum. Aftur á móti kveða fyrrnefnd laga- og reglugerðarákvæði um að enginn megi gegna dyravörslu hafi hann gerst sekur um ofbeldis- eða fíkniefnabrot á síðustu fimm árum.

Einnig byggir kærandi á því að óeðlilegt og ósanngjarnt sé að ekki sé litið til aðstæðna í hverju máli fyrir sig. Fyrrnefnd laga- og reglugerðarákvæði gera þannig ráð fyrir fortakslausu banni við að dyraverðir hafi gerst sekir um ofbeldis- og fíkniefnabrot sama hvers eðlis slík brot eru eða hverjar aðstæður séu hjá hlutaðeigandi einstaklingum. Krafan um að umsækjandi um leyfi til að starfa sem dyravörður hafi ekki gerst sekur um ofbeldi- eða fíkniefnabrot hefur veruleg áhrif á stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi. Að mati kæranda er með annars vegar þessu fortakslausa banni og hins vegar með svo löngum tímaramma vegið gróflega að atvinnufrelsi sínu sem er meðal grundvallarmannréttinda í lýðræðislegu samfélagi.

 

Sjónarmið lögreglustjóra

Í framhaldi þess að kæra barst óskaði ráðuneytið eftir umsögn lögreglustjórans á [X]. Umsögn lögreglustjórans barst þann 2. september 2025. Í umsögn lögreglustjóra kemur fram að það sé mat hans að kærandi uppfylli ekki skilyrði laganna um að geta orðið dyravörður fyrr en í febrúar 2027 þar sem að hann gerðist sekur um fíkniefnabrot árið 2022. Lög nr. 85/2007 og reglugerð nr. 1277/2016 eru skýr varðandi þennan þátt og veita leyfisveitanda ekki svigrúm til að meta hvort um minniháttar brot sé að ræða eða líta til aðstæðna hverju sinni.

Forsendur og niðurstaða

Í máli þessu byggir kærandi á því að um smávægilegt brot sé að ræða sem ekki varði við almenn hegningarlög nr. 19/1940 heldur eingöngu lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Með höfnun á umsókn kæranda hafi lögreglustjórinn brotið gegn atvinnufrelsi hans þar sem skilyrði um almannahagsmuni sé ekki uppfyllt að mati kæranda. Þá sé það einnig óeðlilegt og ósanngjarnt að ekki sé litið til aðstæðna í hverju máli fyrir sig.

Kveðið er á um hæfi dyravarða í 21. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 85/2007. Samkvæmt b. lið 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar skulu dyraverðir fullnægja því skilyrði að hafa ekki gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnabrot á síðustu fimm árum og skal leggja fram sakavottorð því til staðfestu. Umsókn kæranda um starfsleyfi sem dyravörður var hafnað með vísan til umrædds ákvæðis.

Í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum nr. 85/2007 segir um 6. gr. þeirra að dyravarsla sé mjög mikilvæg þegar kemur að eftirliti með því sem fram fer á veitingastöðum og mikilvægt að gott samstarf sé á milli dyravarða og lögreglu. Með vísan til eðlis starfa dyravarða eru almannahagsmunir fólgnir í því að til starfans ráðist einstaklingar sem hæfir séu til þess og hafi ekki gerst brotlegir gegn tilteknum ákvæðum laga.

Að mati ráðuneytisins er það ljóst af orðalagi ákvæðis b. liðar 21. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 að skilyrði til þess að starfa sem dyravörður séu skýr og leyfisveitanda er ekki veitt svigrúm til frekara mats. Ráðuneytið tekur því undir sjónarmið lögreglustjóra hvað þetta varðar og hafnar því að brotið hafi verið gegn atvinnufrelsi kæranda. Með vísan til alls framangreinds er synjun lögreglustjóra staðfest.

Vegna anna hefur meðferð málsins hjá ráðuneytinu dregist úr hófi. Beðist er velvirðingar á því.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun lögreglustjórans á [X] um synjun á umsókn kæranda til að starfa sem dyravörður, dags. 3. janúar 2024, er staðfest.