- september 2026 /
Stjórnvaldssekt sýslumanns vegna brota á skilmálum heimagistingar almanaksárið 2023
Mánudaginn 14. september 2026 var í atvinnuvegaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Með bréfi dags 25. mars 2026 bar [A], (hér eftir kærandi), fram kæru vegna ákvörðunar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, (hér eftir sýslumaður) frá 10. mars 2026 um að leggja á stjórnvaldssekt að fjárhæð 94.500 kr. vegna brota á skilmálum heimagistingar almanaksárið 2023 að [X]. Kæruheimild er í 7. mgr. 22. gr. a laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. einnig 26. gr. sömu laga og 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kæran barst innan kærufrests.
Kröfur
Þess er aðallega krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Til vara er þess krafist að stjórnvaldssekt sýslumanns verði lækkuð verulega.
Málsatvik og ágreiningsefni málsins
Líkt og nánar greinir í hinni kærðu ákvörðun má rekja upphaf máls þessa til þess að kærandi fékk skráningu heimagistingar samþykkta vegna almanaksársins 2023 að [X] þann 15. mars 2023. Þann 27. janúar 2024 skilaði kærandi nýtingaryfirliti fyrir almanaksárið 2023 vegna nýtingar á umræddri fasteign. Samkvæmt nýtingaryfirlitinu voru heildartekjur vegna sölu gistingar að fasteigninni 2.322.095 kr. og seldar gistinætur 81. Kærandi fór því 322.095 kr. umfram leyfilegt hámark heimagistingar.
Með bréfi, dags. 17. nóvember 2025, tilkynnti sýslumaður kæranda að fyrirhugað væri að leggja á hann stjórnvaldssekt að fjárhæð 136.500 kr. vegna brota á skilmálum heimagistingar. Kæranda var veittur 14 daga frestur til að koma á framfæri andmælum eða öðrum athugasemdum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Andmæli kæranda bárust sýslumanni þann 20. nóvember 2025.
Með bréfi, dags. 10. mars 2026, tilkynnti sýslumaður kæranda um ákvörðun sína um að leggja á hann stjórnvaldssekt að fjárhæð 94.500 kr. vegna brota á skilmálum heimagistingar almanaksárið 2023.
Þann 25. mars 2026 barst ráðuneytinu stjórnsýslukæra þar sem kærð var ákvörðun sýslumanns um að leggja stjórnvaldssekt á kæranda vegna brota á skilmálum heimagistingar almanaksárið 2023.
Með bréfi, dags. 7. apríl 2026, óskaði ráðuneytið eftir því að sýslumaður veitti umsögn um kæruna. Umsögn sýslumanns ásamt málsgögnum barst ráðuneytinu með bréfi, dags. 16. júlí 2026.
Með bréfi, dags. 16. júlí 2026, óskaði ráðuneytið eftir andmælum kæranda við umsögn sýslumanns. Andmæli kæranda bárust ráðuneytinu með bréfi, dags. 25. júlí 2026.
Málið hefur hlotið umsagnarmeðferð, gagnaöflun er lokið og málið er tekið til úrskurðar.
Sjónarmið kæranda
Í kæru gerir kærandi þá kröfu að ákvörðun sýslumanns um álagningu stjórnvaldssektar vegna brota á skilmálum heimagistingar almanaksárið 2023 verði felld úr gildi, en til vara að sektin verði lækkuð verulega.
Því til stuðnings byggir kærandi á því að sýslumaður hafi með tölvupósti þann 14. febrúar [ÁS1] 2024 veitt honum áminningu en jafnframt lýst því yfir að málið teldist afgreitt. Með þessu hafi sýslumaður beitt vægari úrræðum og skapað hjá kæranda réttmætar væntingar um að máli vegna tekna ársins 2023 væri endanlega lokið án frekari viðurlaga. Að mati kæranda beri að skýra allan vafa um merkingu stjórnvaldsákvörðunar eða samskipta borgaranum í hag.
Þá telur kærandi sektarfjárhæðina of háa þar sem draga beri þrifagjöld að fjárhæð 262.240 kr. frá tekjum hans. Að því frátöldu hafi tekjur hans einungis farið 59.955 kr. yfir leyfilegt hámark auk þess sem fjöldi útleigðra daga hafi einungis verið 81 og því verið undir hámarki leyfilegra dagafjölda.
Kærandi telur ákvörðun um álagningu sektarinnar einnig fara í bága við meðalhófsreglu enda hafi kærandi sýnt fullan samstarfsvilja, skilað gögnum, ekki reynt að leyna tekjum sínum og ekki áður gerst brotlegur gegn ákvæðum laga nr. 85/2007.
Sjónarmið sýslumanns
Líkt og nánar greinir í umsögn sýslumanns fékk kærandi samþykkta heimagistingu vegna almanaksársins 2023 þann 15. mars 2023 og skilaði nýtingaryfirliti vegna þess árs þann 27. janúar 2024. Samkvæmt nýtingaryfirlitinu voru tekjur vegna sölu gistingar í fasteigninni 2.322.095 kr. Kærandi fór því 322.095 kr. umfram leyfilegt hámark heimagistingar samkvæmt 1. mgr. 22. gr. a laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Sýslumaður vísar til þess að samkvæmt 4. mgr. 22. gr. a laga nr. 85/2007 sé litið á hverja selda gistinótt umfram heimildir sem sjálfstætt brot. Kærandi hafi fullnýtt heimildir sínar eftir 74 gistinætur þegar hann hafi náð fjárhæðarmörkum laganna og selt sjö gistinætur eftir það tímamark. Brotin séu því sjö talsins. Sekt geti numið frá 10 þús. kr. til 1 millj. kr. fyrir hvert brot og beita megi henni hvort sem brot er framið af ásetningi eða gáleysi.
Sýslumaður hafnar því að heimilt sé að draga þjónustu- og þrifagjöld frá tekjum við mat á því hvort fjárhæðarmörkum sé náð og við ákvörðun um sektarfjárhæðar.
Þá áréttar sýslumaður að tölvupóstur hans frá 14. febrúar 2024 hafi lotið að samþykkt endurnýjunar á skráningu heimagistingar kæranda fyrir árið 2024. Í póstinum hafi hins vegar verið vakin sérstök athygli á því að kærandi hefði farið yfir leyfileg mörk heimagistingar árið 2023 og að slíkt gæti varðað stjórnvaldssektum.
Sýslumaður kveðst hafa gætt meðalhófs við ákvörðun sektarfjárhæðar og metið kæranda það til málsbóta að hafa gengist greiðlega við brotum, skilað ítarlegu nýtingaryfirliti og ekki áður gerst brotlegur.
Í ljósi framangreinds og meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi sekt verið ákveðin nálægt lögmæltu lágmarki, eða 13.500 kr. fyrir hvert sjö brota gegn skilyrðum heimagistingar. Sektarfjárhæð hafi því verið metin hæfileg 94.500 kr.
Forsendur og niðurstaða
Mál þetta varðar ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að leggja stjórnvaldssekt á kæranda vegna heimagistingar á almanaksárinu 2023 þar sem tekjur fyrir útleigu voru umfram leyfilegt hámark samkvæmt 4. málsl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Ágreiningur málsins lýtur í fyrsta lagi að því hvort kæranda hafi verið heimilt að draga þrifagjöld frá tekjum af sölu gistingar við mat á því hvort fjárhæðarmörkum heimagistingar væri náð, í öðru lagi að því hvort samskipti kæranda og sýslumanns í febrúar 2024 standi álagningu stjórnvaldssektar í vegi og í þriðja lagi að fjárhæð sektarinnar.
Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga nr. 85/2007, eins og ákvæðið hljóðaði árið 2023, er heimagisting gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings eða í einni annarri fasteign sem hann hefur til persónulegra nota og er í hans eigu. Fjöldi útleigðra daga í báðum eignum samanlagt skal ekki fara yfir 90 daga á hverju almanaksári eða samanlagðar tekjur af leigu eignanna nema hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. Sú fjárhæð nam 2.000.000 kr. á árinu 2023. Í samræmi við þetta segir í 2. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, að aðeins sé heimilt að leigja eignirnar út í 90 daga samanlagt á hverju almanaksári eða þar til samanlagðar tekjur af leigu þeirra ná umræddri fjárhæð.
Samkvæmt 1. mgr. 22. gr. a laga nr. 85/2007 getur sýslumaður lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem stundar útleigu lengur en 90 daga á hverju almanaksári eða fyrir hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga nr. 50/1988. Samkvæmt 4. mgr. sömu greinar geta sektir numið frá 10 þús. kr. til 1 millj. kr. fyrir hvert brot, við ákvörðun þeirra skal tekið tillit til alvarleika brots, svo sem umfangs, ætlaðs ávinnings og ítrekunaráhrifa, og er litið á hverja selda gistinótt umfram það sem heimilt er samkvæmt lögunum sem sjálfstætt brot. Þá má beita sektum óháð því hvort brot er framið af ásetningi eða gáleysi, sbr. 6. mgr. greinarinnar.
Fyrir liggur að tekjur kæranda af sölu gistingar að [X] á árinu 2023 námu 2.322.095 kr. samkvæmt því nýtingaryfirliti sem hann skilaði sýslumanni 27. janúar 2024. Kærandi telur að frá þeirri fjárhæð beri að draga þrifagjöld, 262.240 kr.
Hvorki lög nr. 85/2007 né reglugerð nr. 1277/2016 mæla fyrir um frádrátt kostnaðar við mat á því hvort fjárhæðarmörkum heimagistingar sé náð. Í 1. mgr. 3. gr. laganna er miðað við tekjur af leigu eignanna og í 4. mgr. 38. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að í nýtingaryfirliti skuli koma fram upplýsingar um tekjur sem féllu til af sölu gistingar. Fjárhæðarmarkið er auk þess sótt til 3. tölul. 4. gr. laga nr. 50/1988, en það ákvæði miðar við fjárhæð sölu skattskyldrar vöru eða þjónustu en ekki við hagnað af starfseminni. Til skattverðs telst heildarendurgjald hins selda, þar á meðal kostnaður sem seljandi krefur kaupanda sérstaklega um og þjónustugjald sem ekki er innifalið í verði, sbr. 2. og 7. tölul. 2. mgr. 7. gr. sömu laga.
Þrifagjald sem gestum er gert að greiða telst samkvæmt þessu hluti þess endurgjalds sem kærandi fékk fyrir gistinguna. Sé hins vegar litið svo á að um sé að ræða kostnað sem kærandi bar sjálfur af starfseminni er hvorki í lögum né reglugerð heimild til að draga hann frá tekjum við mat á því hvort fjárhæðarmörkum sé náð.
Samkvæmt framansögðu fellst ráðuneytið á það mat sýslumanns að tekjur kæranda af sölu gistingar á árinu 2023 hafi numið 2.322.095 kr. og hann hafi þar með farið 322.095 kr. umfram leyfilegt hámark. Það haggar ekki þeirri niðurstöðu þótt seldar gistinætur hafi verið 81 og því innan 90 daga marksins, enda nægir samkvæmt 1. mgr. 22. gr. a laga nr. 85/2007 að öðru hvoru markinu sé náð.
Kærandi byggir jafnframt á því að með tölvupósti sýslumanns 14. febrúar 2024 hafi honum verið veitt áminning og því jafnframt lýst yfir að málið teldist afgreitt, og að þar með hafi skapast hjá honum réttmætar væntingar um að viðurlögum yrði ekki beitt vegna ársins 2023.
Væntingar aðila njóta því aðeins verndar að þær eigi sér stoð í skýrri og ótvíræðri afstöðu þar til bærs stjórnvalds og ræðst mat á því af efni þeirra samskipta sem um ræðir. Samkvæmt gögnum málsins laut umræddur tölvupóstur að endurnýjun skráningar kæranda á heimagistingu fyrir almanaksárið 2024. Þá var í honum vakin athygli á því að kærandi hefði farið fram úr fjárhæðarmörkum heimagistingar á árinu 2023 og að slíkt gæti varðað stjórnvaldssektum. Ummæli um að erindið væri afgreitt verða samkvæmt þessu ekki skilin á annan veg en að þau hafi tekið til afgreiðslu umsóknar um endurnýjun skráningar. Í póstinum fólst hvorki ákvörðun um viðurlög vegna ársins 2023 né afstaða til þess að viðurlögum yrði ekki beitt. Lög nr. 85/2007 gera ekki ráð fyrir áminningu sem undanfara stjórnvaldssektar. Álagning sektar samkvæmt 22. gr. a laganna verður hvorki bundin því skilyrði að vægara úrræði hafi áður verið reynt né verður talið að ábending sýslumanns hafi falið í sér beitingu slíks úrræðis.
Með vísan til framangreinds verður ekki talið að samskipti kæranda og sýslumanns í febrúar 2024 hafi staðið álagningu stjórnvaldssektar í vegi.
Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 er útleiga heimil þar til samanlagðar tekjur ná fjárhæðarmarkinu. Þær gistinætur sem seldar eru eftir að því marki er náð eru því seldar umfram það sem heimilt er samkvæmt lögum nr. 85/2007 og telst hver þeirra sjálfstætt brot, sbr. 4. mgr. 22. gr. a laganna. Samkvæmt nýtingaryfirliti kæranda voru seldar 81 gistinótt á árinu 2023 og var fjárhæðarmarkinu náð þegar 74 gistinætur höfðu verið seldar. Brotin voru samkvæmt því sjö talsins.
Sýslumaður ákvarðaði 13.500 kr. sekt fyrir hvert brot, eða samtals 94.500 kr., og lækkaði fjárhæðina frá því sem boðað hafði verið í kjölfar andmæla kæranda. Við ákvörðunina var litið til þess að kærandi gekkst greiðlega við brotunum, skilaði nýtingaryfirliti og hafði ekki áður gerst brotlegur, og til þeirra lögboðnu gjalda sem greiða ber af starfseminni. Þessi sjónarmið eru málefnaleg og samrýmast 4. mgr. 22. gr. a laga nr. 85/2007. Sektin er nálægt lögmæltu lágmarki og verður að telja að hún gangi ekki lengra en nauðsyn ber til, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Varakrafa kæranda um verulega lækkun sektarinnar verður samkvæmt þessu ekki tekin til greina.
Kæranda var tilkynnt um fyrirhugaða álagningu og veittur frestur til að koma að andmælum, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga, og lá nýtingaryfirlit hans fyrir við ákvörðunina. Verður ekki séð að annmarkar hafi verið á rannsókn málsins, sbr. 10. gr. sömu laga.
Loks athugast að tæp tvö ár liðu frá því að nýtingaryfirlit kæranda barst sýslumanni þar til honum var tilkynnt um fyrirhugaða álagningu. Sá dráttur samrýmist ekki 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, en hann haggar ekki gildi hinnar kærðu ákvörðunar.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða ráðuneytisins að hin kærða ákvörðun hafi verið reist á fullnægjandi lagagrundvelli og að málsmeðferð sýslumanns hafi, að því frátöldu sem að framan greinir um málshraða, verið í samræmi við lög. Ákvörðunin verður því staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 10. mars 2026 um að leggja stjórnvaldssekt að fjárhæð 94.500 kr. á kæranda vegna brota á skilmálum heimagistingar almanaksárið 2023 er staðfest.