1. september 2026 /

Úrskurður nr. 356/2026

Hinn 20. ágúst 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 356/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26050029

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 11. maí 2026 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Namibíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. apríl 2026, um að synja umsókn hennar um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara, samkvæmt 69., sbr. 70. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Kæranda var jafnframt brottvísað frá Íslandi á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og ákveðið endurkomubann til tveggja ára, sbr. 2. mgr. 101. gr. laganna.

Kærandi krefst þess að sá hluti ákvörðunar Útlendingastofnunar varðandi brottvísun og endurkomubann verði felldur úr gildi og henni veitt heimild til dvalar á meðan umsókn hennar um dvalarleyfi á grundvelli skorts á starfsfólki, sbr. 62. gr. laga um útlendinga sé til meðferðar hjá Útlendingastofnun, með vísan til ríkra sanngirnisástæðna, sbr. 3. mgr. 51. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi hefur ekki verið með dvalarleyfi á Íslandi. Hinn 10. júlí 2025 lagði kærandi fram fyrstu umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands hafi kærandi og maki hennar skilið að lögum 17. apríl 2026. Með tölvubréfi Útlendingastofnunar, dags. 27. mars 2026, var kæranda veittur frestur til þess að leggja fram andmæli við fyrirhugaðri synjun á umsókn þeirra með vísan til lögskilnaðarins, með vísan til 12. og 13. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi lagði ekki fram frekari gögn eða andmæli til Útlendingastofnunar. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. apríl 2026, var umsókn kæranda um dvalarleyfi synjað. Í hinni kærðu ákvörðun kom fram að kærandi og maki hennar væru skilin að lögum og af þeim sökum uppfyllti kærandi ekki skilyrði 1. mgr. 69. gr. og 1. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar var birt kæranda samdægurs.

Hinn 11. maí 2026 lagði kærandi fram kæru til kærunefndar ásamt beiðni um frestun réttaráhrifa og 13. maí 2026 barst greinargerð kæranda með beiðni hennar um frestun réttaráhrifa ásamt fylgigögnum. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 26. maí 2026 ásamt fylgigögnum. Frekari gögn bárust kærunefnd 19. maí 2026. Með úrskurði kærunefndar nr. 318/2026, dags. 13. júlí 2026, var beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa hafnað. Hinn 17. júlí 2026 lagði kærandi fram beiðni um endurupptöku á úrskurði nr. 318/2026 á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi kynnst fyrrverandi eiginmanni sínum í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook. Ástarsamband þeirra hafi hafist í desember árið 2024 og þau í kjölfarið gengið í hjónaband 23. júní 2025. Fljótlega hafi komið í ljós að eiginmaður kæranda hafi byrjað að beita hana andlegu, fjárhagslegu og kynferðislegu ofbeldi sem hafi verið endurtekið og varað í langan tíma. Með stuðningi vinnufélaga sinna hafi hún fengið kjark til að yfirgefa eiginmann sinn og notið aðstoðar þeirra við lögskilnað auk fjárhagslegs og persónulegs stuðnings. Kærandi hafi leitað aðstoðar Kvennaathvarfsins og Bjarkarhlíðar vegna ofbeldisins auk þess sem hún hafi lagt fram kæru til lögreglu.

Kærandi telji að hún uppfylli skilyrði dvalarleyfis samkvæmt b- og c-lið 9. mgr. 70. gr. laga um útlendinga, sbr. 78. gr. laganna. Kærandi sé þolandi ofbeldis af hálfu fyrrverandi eiginmanns og hafi lagt fram ítarleg gögn um það ofbeldi sem hún hafi mátt þola. Þá uppfylli hún skilyrði 1. og 2. mgr. 55. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfylli skilyrði ákvæðisins með vísan til aðstæðna kvenna í Namibíu og hættu á útskúfun vegna dvalar hér á landi og lögskilnaðar. Kærandi telji að Útlendingastofnun hafi borið skylda til að skoða mál hennar út frá þessum nýju upplýsingum og meta hvort kærandi uppfyllti skilyrði b- og c-liða 9. mgr. 70. gr., sbr. 78. gr. laganna en slíkt mat hafi ekki farið fram. Kærandi vísar til þess að beita beri markmiðsskýringu við túlkun framangreindra ákvæða. Þá vísar kærandi til athugasemda við frumvarp það sem varð að núgildandi lögum um útlendinga en í þeim komi m.a. fram að meginmarkmið ákvæðisins sé að útlendingur finni sig ekki tilneyddan til að halda áfram í ofbeldisfullu sambandi til þess eins að fá eða halda dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar áfram. Ákvæðið sé sett til verndar þolendum ofbeldis og tryggi að hjúskaparmaki geti ekki nýtt sér valdaójafnvægi sem skapist þegar þolandinn sé erlendur ríkisborgari. Kærandi telji að þrengri túlkun ákvæðisins leiði til útilokunar þolenda ofbeldis sem sæti ofbeldi af hálfu maka á meðan umsókn um dvalarleyfi vegna hjúskapar sé enn til afgreiðslu. Verði ekki fallist á beitingu markmiðsskýringar telur kærandi að beita verði rýmkandi lögskýringu eða lögjöfnun við matið. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 8/2020 þar sem nefndin hafi sagt að túlka yrði 9. mgr. 70. gr. með rýmkandi lögskýringu. Kærandi telur jafnframt að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi farið í bága við leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, sbr. 3. mgr. 7. gr. laga um útlendinga og 7. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi hafi upplýst Útlendingastofnun um breytta hagi 8. apríl 2026 og óskað eftir að mál hennar yrði metið út frá því. Kærandi hafi sætt grófu og endurteknu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns mánuðum saman sem hún hafi sjálf átt frumkvæði í að upplýsa Útlendingastofnun um, en í slíku tilviki hafi hvílt rík leiðbeiningarskylda á stofnuninni. Útlendingastofnun hafi því borið að leiðbeina kæranda um réttaráhrif lögskilnaðar og skyldu hennar til að sækja um dvalarleyfi á nýjum grundvelli með hliðsjón af þeim upplýsingum sem fyrir hafi legið í málinu. Þá vísar kærandi til álita Umboðsmanns Alþingis um leiðbeiningarskyldu máli sínu til stuðnings. Kærandi telur framangreint jafnframt fela í sér brot á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga.

Til vara byggir kærandi á því að sá hluti ákvörðunar Útlendingastofnunar sem varði brottvísun og endurkomubann til tveggja ára verði felldur niður og henni veitt heimild til dvalar á meðan umsókn hennar um dvalarleyfi á grundvelli skorts á starfsfólki, sbr. 62. gr. laga um útlendinga, sé til meðferðar hjá Útlendingastofnun vegna ríkra sanngirnisástæðna, sbr. 3. mgr. 51. gr. laganna. Kærandi hafi lagt fram umsókn um dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki sem hafi verið móttekin af Útlendingastofnun 12. maí 2026. Kærandi telji sig uppfylla skilyrði ákvæðisins og því beri að veita henni heimild til dvalar með vísan til ríkra sanngirnisástæðna. Kærandi hafi m.a. leitað til Bjarkarhlíðar og Kvennaathvarfsins en sú meðferð sé yfirstandandi og liður í langtímaúrvinnslu sem ekki sé hægt að rjúfa. Þá hafi kærandi lagt fram kæru til lögreglu og bíði þess að vera kölluð til skýrslutöku. Kærandi telji að brottflutningur áður en kæra hennar fái efnislega meðferð myndi gera úrlausn kærunefndar marklausa þar sem þeir hagsmunir sem hún byggi mál sitt á, vernd hennar sem þolanda heimilisofbeldis og uppbygging sjálfstæðs lífs hér á landi, yrði þá þegar farin forgörðum. Vísar kærandi til meginreglu stjórnsýsluréttar um að málskotsréttur og kæruréttur sé virkur og raunhæfur en ekki einungis fræðilegur. Þá vísar kærandi til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi.

Með tölvubréfi kæranda, dags. 17. júlí 2026, var óskað eftir endurupptöku úrskurðar kærunefndar nr. 318/2026, dags. 13. júlí 2026, þar sem beiðni um frestun á réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar var hafnað. Byggir kærandi m.a. á því ekki hafi verið tekin afstaða til allra krafna hennar, einkum beiðni um að Útlendingastofnun tæki afstöðu til heimildar hennar til dvalar á meðan umsókn um dvalarleyfi á grundvelli 62. gr. laga um útlendinga sé til meðferðar. Jafnframt byggir kærandi á því að úrskurður kærunefndar hafi verið reistur á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum þar sem kærunefnd hafi ekki verið ljóst þegar úrskurðað var í málinu hversu alvarlegt mál hennar hjá lögreglu væri. Vísar kærandi jafnframt til 3. mgr. 51. gr. laga um útlendinga.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 70. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi hér á landi hyggist hann flytjast hingað til lands til að búa með maka sínum eða sambúðarmaka. Skilyrði þess er að makinn hafi rétt til fjölskyldusameiningar samkvæmt VIII. kafla laga um útlendinga og að hann sé annað hvort í hjúskap eða sambúð, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 70. gr. laganna. Í 7. mgr. ákvæðisins kemur fram að makar og sambúðarmakar skuli hafa fasta búsetu á sama stað í samræmi við ákvæði laga um lögheimili og aðsetur. Heimilt er að víkja frá þessu ákvæði ef sérstakar tímabundnar ástæður eru fyrir hendi.

Kærandi hefur aldrei haft dvalarleyfi á Íslandi. Hinn 10. júlí 2025 lagði kærandi fram fyrstu umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands gekk lögskilnaður kæranda og eiginmanns hennar í gegn 17. apríl 2026 og af þeim sökum synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 70. gr. laga um útlendinga 28. apríl 2026. Dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar, sbr. 70. gr. laga um útlendinga, er bundið við tiltekinn hjúskap. Samkvæmt framangreindu uppfyllir kærandi ekki skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli hjúskapar, sbr. 1. og 7. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi á Íslandi, sbr. 1. mgr. 69. gr. og 1. mgr. 70. gr. laga um útlendinga því staðfest.

Í málatilbúnaði kæranda er byggt á því að túlka verði 9. mgr. 70. gr. laga um útlendinga með rýmkandi lögskýringu. Samkvæmt orðalagi ákvæðisins getur útlendingur sem hefur haft dvalarleyfi samkvæmt ákvæðinu fengið dvalarleyfi ef sérstaklega stendur á og ríkar sanngirnisástæður mæla með því. Kemur fram í lokamálslið b-liðar ákvæðisins að líta beri til tengsla útlendings við landið við mat á því hvort rétt sé að veita dvalarleyfi á þeim grundvelli. Ákvæðinu er ætlað að tryggja einstaklingi sem hafi dvalist hér á landi á grundvelli hjúskapar síns um einhvern tíma og myndað tengsl við landið, s.s. með atvinnuþáttöku eða önnur félagsleg tengsl möguleika á að dvelja áfram hér á landi á grundvelli þeirra tengsla látist maki þeirra eða útlendingur eða barn þess hefur verið beitt ofbeldi og hjúskap lýkur með skilnaði af þeim sökum. Í greinargerð sinni vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 8/2020, dags. 4. febrúar 2020, til stuðnings þess að beitt verði rýmkandi lögskýringu hvað varðar kæranda. Í því máli hafði kærandi fengið útgefið og dvalið hér á landi á grundvelli dvalarleyfis á grundvelli hjúskapar en hafði gengið erfiðlega að ná fram skilnaði við maka sinn og hafði það dregist á langinn. Í úrskurðinum var það mat nefndarinnar að túlka bæri b-lið 9. mgr. 70. gr. laga um útlendinga rúmt þannig að ekki væri fortakslaust skilyrði að útlendingur og maki hefðu formlega fengið lögskilnað, til þess að hjúskapur teldist slitinn í skilningi ákvæðisins. Var vísað til þess að slík fortakslaus túlkun myndi ganga þvert gegn markmiði ákvæðisins enda myndi það leiða til þess að útlendingur glataði dvalarleyfi sínu vegna óviðráðanlegra tafa við að fá fram lögskilnað. Myndi því ákvæðið við slíkar aðstæður verða óvirkt og ekki veita þolendum ofbeldis þá vernd sem ákvæðinu væri ætlað. Kærandi hefur aldrei fengið útgefið dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 70. gr. laga um útlendinga og hafði aðeins verið í hjúskap með maka sínum í tæpt ár þegar til lögskilnaðar kom. Þrátt fyrir að játa verði kæranda að hún hafi á þeim tíma sem hún hefur dvalið hér á landi myndað einhver tengsl við landið, s.s. með atvinnuþátttöku verður ekki séð að tengsl hennar hér á landi séu slík eða aðstæður hennar í heimaríki þannig að ríkar sanngirnisástæður heimili að vikið verði frá skýru orðalagi ákvæðisins. En heimildir um heimaríki kæranda, m.a. skýrsla breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2025, greina frá því að ofbeldi gegn konum sé refsivert í Namibíu og konum sé tryggt jafnrétti í stjórnarskrá landsins. Eru því málsatvik í tilvísuðum úrskurði ólík fyrirliggjandi máli og ekki fallist á þá málsástæðu kæranda að beita beri rýmkandi lögskýringu við beitingu 9. mgr. 70. gr. laga um útlendinga enda er skýrt af orðalagi ákvæðisins að það taki til þeirra útlendinga sem hafa áður haft útgefið dvalarleyfi samkvæmt 1. mgr. 70. gr. laganna.

Í greinargerð gerir kærandi marvíslegar athugasemdir við málsmeðferð Útlendingarstofnunar. Ekki er tilefni til að gera athugasemd við rannsókn og leiðbeiningar Útlendingastofnunar í máli kæranda.

Með vísan til framangreindrar niðurstöðu verður beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar kærunefndar nr. 318/2026 á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga vísað frá.

V. Brottvísun og endurkomubann

Í 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, eins og ákvæðinu var breytt með lögum nr. 136/2022, segir að svo framarlega sem 102. gr. eigi ekki við skuli vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu. Líkt og þegar hefur verið rakið hefur synjun Útlendingastofnunar á umsókn kæranda um dvalarleyfi verið staðfest og hefur kærandi ekki heimild til dvalar hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Namibíu og samkvæmt því þarf hún vegabréfsáritun til að ferðast hingað til lands og dvelja um stund. Kærandi hefur dvalið hér á landi á grundvelli vegabréfsáritunar til Finnlands og Schengen-svæðisins sem heimilaði henni dvöl á svæðinu í 90 daga frá 15. apríl til 26. júlí 2025. Kæranda var veitt heimild til dvalar á meðan Útlendingastofnun hafði umsókn hennar um dvalarleyfi til meðferðar. Með hinni kærðu ákvörðun var umsókn hennar synjað og endir bundinn á heimild hennar til dvalar hér á landi. Þá var kæranda brottvísað og henni gert að sæta tveggja ára endurkomubanni. Var skilyrðum 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga fullnægt þegar hin kærða ákvörðun var tekin og birt kæranda.

Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 27. mars 2026, var kæranda bent á framangreinda heimild til brottvísunar, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, og veittur frestur til að skila inn andmælum. Kærandi lagði ekki fram andmæli til Útlendingastofnunar. Í greinargerð byggir kærandi á því að hún hafi lagt fram umsókn um dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki sem hafi verið móttekin af Útlendingastofnun 12. maí 2026. Kærandi telji sig uppfylla skilyrði ákvæðisins og því sé ósanngjarnt að ákveða henni brottvísun og endurkom. Þá beri að veita henni heimild til dvalar með vísan til ríkra sanngirnisástæðna, sbr. 3. mgr. 51. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu fyrrverandi eiginmanns síns og m.a. leitað til Bjarkarhlíðar og Kvennaathvarfsins, en sú meðferð sé yfirstandandi og liður í langtímaúrvinnslu sem ekki sé hægt að rjúfa. Þá hafi kærandi lagt fram kæru til lögreglu og bíði þess að vera kölluð til skýrslutöku. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um tengsl kæranda hér á landi og aðstæður hennar í heimaríki verður ekki fallist á að brottvísun og endurkomubann hennar teljist ósanngjörn ráðstöfun gagnvart kæranda að nánustu aðstandendum hennar. Þá getur kærandi verið í samskiptum við lögreglu og lögmann sinn vegna sakamálsins þrátt fyrir að hún sé ekki stödd á landinu, m.a. í gegnum fjarfundarbúnað. Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda er því staðfest.

Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið en kæra frestaði ekki réttaráhrifum. Með úrskurði kærunefndar nr. 318/2026, dags. 13. júlí 2026, var beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa hafnað. Í ljósi þess mun endurkomubann kæranda að óbreyttu hefjast þegar hún yfirgefur landið sjálfviljug eða er flutt úr landi.

VI. Samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Hinn 12. maí 2026 sótti kærandi um dvalarleyfi á grundvelli skorts á starfsfólki, sbr. 62. gr. laga um útlendinga, og er sú umsókn til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda vísað brott frá landinu á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og ákveðið endurkomubann til Íslands í tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laga um útlendinga skal óafgreiddum umsóknum um dvalarleyfi vísað frá í kjölfar ákvörðunar um brottvísun og endurkomubann. Kæranda er því leiðbeint um að hún getur sótt um dvalarleyfi að nýju á sama eða öðrum grundvelli telji hún sig uppfylla skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis. Með þessum leiðbeiningum hefur þó ekki verið tekin afstaða til þess hvort kærandi uppfylli önnur skilyrði laga um útlendinga til útgáfu dvalarleyfis.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir