6. október 2026 /

Mál nr. 11/2026 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 24. september 2026

í máli nr. 11/2026

A og B

gegn

C ehf.

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A og B.

Varnaraðili: C ehf.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 390.000 kr. ásamt vöxtum.

Varnaraðili krefst þess að viðurkennt verði að honum sé  heimilt að halda eftir 50.000 kr. af tryggingarfé vegna þrifa á hinu leigða.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 25. janúar 2025.

Greinargerð varnaraðila, dags. 4. mars 2026

Viðbótarathugasemdir aðila, dags. 20. mars, 1 og 8. apríl 2026

 

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. desember 2021 til 30. nóvember 2022 um leigu sóknaraðila á fasteign varnaraðila að D, en framlengdu samninginn árlega  til 30. nóvember 2025. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár sem sóknaraðilar lögðu fram við upphaf leigutíma.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðilar kveðast hafa afhent varnaraðila aftur umráð hinnar leigðu eignar við lok umsamins leigutíma, 31.nóvember 2025. Íbúðin hafi verið vel þrifin og varnaraðili ánægður með ástand hennar og ekki gert neinar athugasemdir. Þrátt fyrir það hafi varnaraðili ekki endurgreitt þeim tryggingarfé, 390.000 kr.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili kveðst tilbúinn til að endurgreiða tryggingarfé en sóknaraðilar hafi ekki viljað gefa upp reikningsnúmer sitt. Því hafni hann dráttarvaxtakröfu þeirra. Þá hafi sóknaraðilum verið kunnugt um 50.000 kr. kostnað við þrif á eigninni í lok leigutíma og ekki gert athugasemd við hann.

IV. Viðbótarathugasemdir aðila

Aðilar kveðast báðir eiga kröfu á hendur hinum vegna greiðslu veitureikninga. Þá urðu sóknaraðilar ekki við áskorun varnaraðila um að gefa upp bankaupplýsingar svo varnaraðili geti endurgreitt þeim tryggingarfé en sóknaraðilar kveðast ekki vilja fá einhverja hlutagreiðslu.

V. Niðurstaða

Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lögðu sóknaraðilar fram tryggingarfé að fjárhæð 390.000 kr. fyrir upphaf leigutíma, 23. nóvember 2021. Leigutíma lauk 30. nóvember 2025 og sóknaraðilar kveða varnaraðila ekki hafa svarað beiðnum þeirra um endurgreiðslu tryggingarfjár. Undir meðferð málsins hjá kærunefnd óskaði varnaraðili eftir bankaupplýsingum sóknaraðila þar sem hann hygðist endurgreiða þeim tryggingarfé að frádregnum 50.000 kr. vegna þrifa.

Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skuli hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu.

Leigutíma lauk 30. nóvember 2025. Fyrir liggur að varnaraðili gerði ekki skriflega kröfu í tryggingarfé sóknaraðila innan fjögurra vikna frá þeim degi, sbr. 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. Ber honum þegar af þeirri ástæðu að skila sóknaraðila tryggingarfénu, 390.000 kr., ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá 23. nóvember 2021, er tryggingarfé var lagt fram,  en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 29. desember 2025, er liðnar voru fjórar vikur frá skilum húsnæðis, til greiðsludags.

Í viðbótarathugasemdum gerðu aðilar kröfu á hendur hvor öðrum um greiðslu kostnaðar vegna hita og rafmagns. Báðir aðilar studdu kröfu sína við skjáskot af færslum í heimabanka án frekari skýringa eða rökstuðnings. Ekki er því unnt að fallast á kröfur aðila þar um.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðilum tryggingarfé að fjárhæð 390.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá 23. nóvember 2021 til 29. desember 2025, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.

 

Reykjavík, 24. september 2026

 
 

Auður Björg Jónsdóttir

 

Eyþór Rafn Þórhallsson                                              Þorvaldur Hauksson