6. október 2026 /

Mál nr. 23/2026 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 24. september 2026

í máli nr. 23/2026

A

gegn

B

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að honum sé heimilt að ganga að tryggingu varnaraðila vegna kröfu um skaðabætur að fjárhæð 371.465 kr.

Krafa varnaraðila er að kröfu sóknaraðila verði hafnað.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 10. mars 2026.

Greinargerð varnaraðila, dags. 23. mars 2026.

 

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu samning um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að C frá 1. september 2024 til 31. ágúst 2026. Aðilar sammældust um að ljúka leigutíma fyrr en ágreiningur er um heimild sóknaraðila til að ganga að tryggingu varnaraðila vegna skemmda á hinu leigða.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveður tjón hafa orðið á eigninni á leigutíma vegna leka frá þvottavél í eigu vanaraðila en vatn flæddi um gólf íbúðarinnar og skemmdir urðu á innréttingum og fleiru. Tjónið hafi verið tilkynnt til tryggingarfélags sóknaraðila sem hafi metið heildarkostnað við úrbætur 638.815 kr. en sóknaraðili þurft að bera sjálfsábyrgðina, 135.100 kr. Gerir hann kröfu um að varnaraðili greiði honum fjárhæð sem sjálfsábyrgðinni nemur sem og kostnað við viðgerð á innréttingum sem tryggingafélagið hafi ekki bætt en efniskostnaður sé alls 102.371 kr., og vinnuliður alls 134.000 kr.  Heildarkrafa sóknaraðila hljóði því upp á 371.465 kr.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili kveðst hafna kröfu um greiðslu sem nemur sjálfábyrgð sóknaraðila með vísan til 5. gr. samnings aðila þar sem segi að leigusali skuli ætíð bæta tjón á hinu leigða sem bótaskylt sé samkvæmt skilmálum venjulegrar húseigendatryggingar, þar á meðan sjálfsábyrgð vátryggingartaka.

Hvað varði skemmdir á innréttingum sem trygging sóknaraðila hafi ekki tekið til þá séu skemmdir á þeim að rekja til byggingargalla en hvorki vanrækslu eiganda né afnotahafa. Þá sé fjárhæð kröfu sóknaraðila síbreytileg sem sýni að hún sé ekki byggð á raunverulegum reikningum.

IV. Viðbótarathugasemdir sóknaraðila

Sóknaraðili hafnar málatilbúnaði varnaraðila og ítrekar fyrri sjónarmið.

V. Niðurstaða

Ágreiningur er um kröfu sóknaraðila í tryggingu varnaraðila að fjárhæð 580.000 kr.

Krafa sóknaraðila um skaðabætur vegna viðskilnaðar byggir á 63. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 þar sem kveðið er á um að leigutíma loknum skuli leigjandi skila húsnæðinu í hendur leigusala í sama ástandi auk þess sem hann beri óskerta bótaábyrgð á allri rýrnun húsnæðisins eða spjöllum á því að svo miklu leyti sem slíkt telst ekki eðlileg afleiðing venjulegrar eða umsaminnar notkunar húsnæðisins eða stafar af atvikum sem eru leigjanda óviðkomandi.

Aðilar gerðu hvorki sameiginlega úttekt við upphaf né lok leigutíma í samræmi við ákvæði 69. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994 og verður sóknaraðili að bera hallann af því.

Sóknaraðili krefst þess að varnaraðili greiði honum skaðabætur sem nemi sjálfsábyrgð sem dregin var af bótagreiðslu til hans frá tryggingarfélagi hans í kjölfarið á vatnstjóni í eigninni sem rakið var til þvottavélar í eigu varnaraðila. Í 4. mgr. 19. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að tjón á hinu leigða, sem er bótaskylt samkvæmt skilmálum venjulegrar húseigendatryggingar, þar á meðal sjálfsábyrgð vátryggingartaka samkvæmt skilmálum tryggingarinnar, skuli leigusali ætíð bera ef um íbúðarhúsnæði er að ræða, samanber einnig samhljóma ákvæði í leigusamningi aðila. Ekki er því unnt að fallast á þessa kröfu sóknaraðila.

Þá gerir sóknaraðili kröfu um að varnaraðili greiði honum skaðabætur vegna skemmda sem orðið hafi á innréttingum á leigutíma sem féllu ekki undir húseigendatryggingu hans. Varnaraðili hefur mótmælt því að bera ábyrgð á téðum skemmdum og kveður um byggingagalla að ræða. Gegn mótmælum varnaraðila hefur sóknaraðila ekki tekist sönnun þess að varnaraðili beri ábyrgð á skemmdunum, sbr. 63. gr. húsaleigulaga.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kröfum sóknaraðila er hafnað.

 

Reykjavík, 24. september 2026

 
 

Auður Björg Jónsdóttir

 

Eyþór Rafn Þórhallsson                                              Þorvaldur Hauksson