6. október 2026 /

Mál nr. 7/2026 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 24. september 2026

í máli nr. 7/2026

A og B

gegn

C ehf.

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A og B

Varnaraðili: C ehf.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 170.000 kr.

Varnaraðili hefur ekki tekið til varna í málinu þrátt fyrir áskorun þar um með tölvubréfum 11. og 25. febrúar 2026.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 23. janúar 2025.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. apríl til 30. nóvember 2025 um leigu sóknaraðila á fasteign varnaraðila að D. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár sem sóknaraðilar lögðu fram við upphaf leigutíma.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðilar kveðast hafa flutt úr eigninni mánuði áður en umsömdum leigutíma skyldi ljúka en allt að einu greitt varnaraðila síðasta mánuðinn til að efna sinn hluta leigusamnings aðila. Samskipti aðila hafi verið góð framan af á leigutíma en hegðun varnaraðila gagnvart þeim breyst er þau hafi ekki þegið að flytja í aðra íbúð hans innan saman húss. Sóknaraðilar hafi skilað eigninni við lok leigutíma vel þrifinni og í sama ástandi og hún hafi verið við upphaf leigutíma. Er liðnar voru meira en fjórar vikur frá afhendingu eignarinnar, eða 30. desember, hafi varnaraðili sent sóknaraðilum skilaboð þar sem þess var krafist að sóknaraðilar myndu greiða fyrir fagþrif á eigninn auk þess sem kvartað var yfir að sóknaraðilar hefðu notað krydd varnaraðila. Báðar kröfurnar hafi verið tilhæfulausar og sóknaraðilar hafi hafnað þeim og formlega krafist endurgreiðslu á tryggingarfénu en varnaraðili í engu svarað.

V. Niðurstaða

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka og verður úr ágreiningi leyst á grundvelli þeirra gagna sem sóknaraðilar hafa lagt fram.

Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lögðu sóknaraðilar fram tryggingarfé að fjárhæð 170.000 kr. við upphaf leigutíma. Leigutíma lauk 30. nóvember 2025 og 30. desember þess árs sendi varnaraðili skilaboð þar sem gerð var krafa um að sóknaraðilar myndu greiða fyrir flutningsþrif á eigninni. Sóknaraðilar höfnuðu því og kröfðust endurgreiðslu tryggingarfjár.

Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skuli hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu.

Leigutíma lauk 30. nóvember 2025. Fyrir liggur að varnaraðili gerði ekki skriflega kröfu í tryggingarfé sóknaraðila innan fjögurra vikna frá þeim degi, sbr. 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. Ber honum þegar af þeirri ástæðu að skila sóknaraðila tryggingarfénu, 170.000 kr., ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá þeim degi er tryggingarfé var lagt fram, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi er fjórar vikur voru liðnar frá skilum húsnæðis, 30. nóvember 2025, til greiðsludags.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðilum tryggingarfé að fjárhæð 170.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994, frá 20. febrúar 2025 til 28. desember 2025, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.

 

Reykjavík, 24. september 2026

 
 

Auður Björg Jónsdóttir

 

Eyþór Rafn Þórhallsson                                              Þorvaldur Hauksson