Mál nr. 8/2026 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 24. september 2026
í máli nr. 8/2026
A
gegn
B
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila hafi verið óheimilt að fjarlægja dekk hans úr bílageymslu og farga með þeim hætti sem gert var og að varnaraðila beri að greiða honum 300.000 kr. í skaðabætur.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 22. janúar 2026.
Greinargerð varnaraðila, dags. 3. febrúar 2026.
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 2. mars 2026.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Sóknaraðili leigir stúdentaíbúð af varnaraðila. Ágreiningur snýr að heimild varnaraðila til að farga dekkjum í eigu sóknaraðila.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveðst hafa verið á leið í skóla að morgni 8. janúar er hann hafi séð miða á dekkjum í hans eigu þar sem fram kom að dekkin mættu ekki vera í bílageymslu og að það yrði að fjarlægja þau. Þar sem hann hafi ekki viljað verða of seinn í kennslustund hafi hann ákveðið að koma dekkjunum annað í geymslu eftir skóla. Er hann hafi komið aftur heim í lok dags hafi aftur á móti verið búið að fjarlægja dekkinn. Hann hafi sent tölvupóst á varnaraðila sem hafi svarað degi síðar að búið væri að farga dekkjunum. Varnaraðili hafi talið dekkin fela í sér brunahættu og væru bönnuð í byggingunni. Þar sem ekki hafi verið brugðist við viðvörun, sem varnaraðili hafi sagst hafa límt á dekkinn 7. janúar, hafi þeim verið fargað.
Sóknaraðili kveður dekkin hafa verið tvo umganga, alls átta dekk, og verðmæti þeirra um 300.000 kr. Þau hafi verið staðsett beint fyrir framan bifreið hans í stæði hans í bílageymslu hússins og þannig augljóst bæði hver var eigandi þeirra sem og að þau hefðu ekki verið skilin eftir.
Á viðvöruninni sem hafi verið sett á dekkinn í lok dags 7. janúar hafi ekki verið tilgreindur sérstakur frestur eða sérstök hætta tilgreind. Hafi sóknaraðili því talið sjálfsagt að fara með dekkinn innan dags 8. janúar, sem væri innan eins sólarhrings frá því viðvörun hafi verið sett á þau. Þá sé ekki að finna sérstök ákvæði varðandi dekk í húsreglum varnaraðila eða öðrum skjölum sem hann vísi til máli sínu til stuðnings.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveður dekkin hafa verið fjarlægð vegna brunahættu og vísi til 23. gr. mannvirkjalaga um skyldur eigenda og forráðamanna mannvirkja auk þess að vísa til fyrirliggjandi samskipta aðila.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Sóknaraðili kveður tilkynningarskyldu ekki hafa verið nægilegt uppfyllta og meðalhófs ekki gætt í framkvæmd. Of skammur tími hafi liðið frá því viðvörun var sett á dekkinn þar til varnaraðili fjarlægði þau. Um gróft brot gegn eignarrétti sóknaraðila sé að ræða. Þá hafi spurningum hans um hver hafi farið með dekkin, hvar þeim hafi verið fargað og hvort til sé kvittun fyrir því, ekki verið svarað. Eðlilegast hefði verið að fjarlægja þau, hafi varnaraðili ekki getað beðið í eðlilegan tíma frá því viðvörun var gefin, og geyma í tiltekin tíma þar til eigandi myndi vitja þeirra. Teljist varnaraðili hafa heimild til að færa til muni leigjenda vegna reglna um sameinleg rými í eigninni eða vegna eldvarnarregla, hafi hann þó ekki heimild til að farga eignum íbúa, hvað þá án frekari aðvörunar eða sanngjarns frests.
V. Niðurstaða
Ágreiningur er með aðilum um hvort varnaraðila hafi sem eiganda hússins og leigusala verið heimilt með eins dags fyrirvara að fjarlægja átta dekk í eigu sóknaraðila úr hinu leigða og farga þeim en sóknaraðili kveður verðmæti þeirra vera 300.000 kr.
Kærunefnd telur sýnt að varnaraðili hafði ekki heimild til að farga munum í eigu sóknaraðila með þeim hætti sem gert var, meðal annars vegna þess að honum var ekki gefinn raunhæfur kostur á að færa sjálfur dekkin til geymslu annars staðar vegna hins skamma frests, sem þó var ekki tilgreindur í viðvörun varnaraðila. Varnaraðili hefur ekki svarað spurningum sóknaraðila um hvar dekkjunum hafi verið fargað og framvísað kvittun þar um, svo sem hann óskaði eftir. Þá hefur varnaraðili ekki mótmælt fullyrðingu sóknaraðila um að verðmæti dekkjanna sé 300.000 kr. Kærunefnd fellst á með sóknaraðila að með því að farga dekkjunum án samþykkis hans og án þess að hafa gefið honum fullnægjandi frest til að bæta úr því ástandi sem varnaraðili taldi ófullnægjandi hafi varnaraðili brotið gegn skyldum sínum sem leigusali til að virða eigur og réttindi leigutaka í hinu leigða. Varnaraðili verður því talinn bera skaðabótaábyrgð á tjóni sóknaraðila.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.
ÚRSKURÐARORÐ:
Varnaraðila ber að greiða sóknaraðila skaðabætur að fjárhæð 300.000 kr.
Reykjavík, 24. september 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson