Úrskurður nr. 254/2026
Hinn 4. júní 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 254/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26020012
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 3. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. febrúar 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í sjö ár.
Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi en til vara krefst kærandi þess að endurkomubannið verði eins stutt og lög leyfa. Kærandi krefst þess til þrautavara að ákvörðun um að fella niður frest til sjálfviljugrar heimfarar verði felld úr gildi og að honum verði veittur frestur til að yfirgefa landið.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, EES-samningurinn, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsrar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (Sambandsborgaratilskipunin), auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Hinn 25. janúar 2023 skráði kærandi dvöl sína hér á landi. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er kærandi handhafi dvalarleyfis hér á landi sem maki EES- eða EFTA borgara með gildistíma til 9. febrúar 2028.
Samkvæmt gögnum málsins hafði lögreglan afskipti af kæranda við komu hans til landsins 29. janúar 2026. Lögregla sendi Útlendingastofnun sama dag beiðni um að taka til skoðunar að brottvísa kæranda og ákvarða honum endurkomubann. Í umsögn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, dags. 29. janúar 2026, og skýrslu Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 30. janúar 2026, er brotaferill kæranda frá 23. mars 2019 rakinn. Fram kemur að lögregla hafi þurft að hafa ítrekuð afskipti af kæranda vegna margvíslegra brota. Kærandi hafi verið skráður sakborningur í 16 málum sem feli í sér 26 brot gegn almennum hegningarlögum. Samkvæmt fyrirliggjandi sakarvottorði, dags. 29. janúar 2026, hefur kærandi hlotið einn refsidóm hér á landi, dags. 23. október 2023, vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og umferðarlögum nr. 77/2019. Því til viðbótar hefur kærandi gert tvær lögreglustjórasáttir vegna umferðarlagabrota og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Nánar er fjallað um sakaferil kæranda í kafla IV.
Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2026, var kæranda tilkynnt að til skoðunar væri að brottvísa honum og ákvarða endurkomubann með vísan til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis, sbr. 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Í bréfinu vísaði Útlendingastofnun til refsidóms kæranda hérlendis en einnig til umsagnar lögreglu, dags. 29. janúar 2026, þar sem fjallað er um opin mál til meðferðar hjá lögreglu vegna ítrekaðra brota kæranda gegn almennum hegningarlögum. Einnig sé mál vegna gruns um fíkniefnainnflutning í ákærumeðferð hjá héraðssaksóknara. Lögregla telji að kærandi muni halda brotaferli sínum áfram hér á landi og ógna grundvallarhagsmunum samfélagsins. Með bréfinu var kæranda veittur þriggja daga frestur til að leggja fram greinargerð vegna málsins. Bréfið var birt fyrir kæranda 30. janúar 2026. Kærandi lagði fram andmæli vegna málsins með bréfi, dags. 30. janúar 2026. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. febrúar 2026, var kæranda vísað brott frá Íslandi á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga og honum ákvarðað endurkomubann til landsins í sjö ár, sbr. 1. mgr. 96. gr. sömu laga.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um brotaferil kæranda hér á landi og umsögn lögreglu sem fjallar um ítrekuð afskipti lögreglu af kæranda vegna margvíslegra brota. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga stæði ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 3. febrúar 2026. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafi Héraðsdómur Reykjaness ekki falllist á kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir kæranda. Honum hafi því verið gert að sæta tilkynningarskyldu. Kæranda hafi verið heimilað að fara úr landi að eigin beiðni.
Hinn 3. febrúar 2026 var ákvörðunin kærð til kærunefndar útlendingamála. Hinn 17. febrúar 2026 lagði kærandi fram greinargerð vegna málsins ásamt fylgigögnum. Líkt og þegar hefur komið fram er kærandi farinn úr landi.
III. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi vísar til þess að hann hafi verið hér á landi frá árinu 2019 og átt skráð lögheimili hér frá 25. janúar 2023. Kærandi hafi greitt staðgreiðslu skatta hér á landi á ýmsum tímabilum frá ágúst 2022 til nóvember 2025. Lögregla hafi haft afskipti af kæranda við komu hans til landsins en tilefnið hafi verið brotaferill hans. Í tilkynningu um hugsanlega brottvísun sé vísað til þess að kærandi sé skráður sakborningur í 16 málum sem feli í sér 26 brot gegn almennum hegningarlögum sem nái aftur til mars 2019. Kærandi mótmæli þessu sem röngu. Af þeim sextán málum sem rakin séu í framangreindri tilkynningu séu þrjú mál opin sem feli í sér sex brot í heildina. Þrettán mál hafi verið felld niður hjá lögreglu sem hafi falið í sér tuttugu brot. Kærandi telur að erfitt sé að átta sig á framsetningu Útlendingastofnunar þar sem ekki sé tiltekið hvort kærandi komi við sögu í framangreindum málum sem sakborningur, vitni eða brotaþoli. Kærandi telur framangreint ekki fullnægjandi grundvöll fyrir brottvísun.
Kærandi andmælir því að mál sé í ákærumeðferð hjá héraðssaksóknara þar sem honum sé gefið að sök fíkniefnainnflutningur, sala og dreifing, en hið rétta sé að málið sé enn í rannsókn. Kærandi vísar til þess að hann hafi aðeins hlotið einn dóm og kærandi sé með eitt mál í ákærumeðferð fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Um sé að ræða eitt umferðalagabrot sem varði aðeins fjársekt.
Kærandi mótmælir ákvörðun Útlendingastofnunar og krefst þess að hún verði felld úr gildi eða að endurkomubanninu verði markaður skemmri tími. Kærandi vísar til þess að ákvörðunin byggi á einum refsidómi og óupplýstum sakamálum. Sá grundvöllur sé ófullnægjandi. Refsidómur kæranda sé ekki einn og sér fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar um brottvísun. Samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga nægi fyrri refsilagabrot ekki til brottvísunar nema um sé að ræða háttsemi sem gefi til kynna að viðkomandi muni fremja refsivert brot á ný. Kærandi telur að hin kærða ákvörðun byggi á almennum forvarnasjónarmiðum, í andstöðu við skýr fyrirmæli lagaákvæðisins.
Kærandi vísar til þess að í tilkynningu Útlendingastofnunar sé vísað til lögreglumála sem hafi ýmist ekki verið leidd til lykta fyrir dómstólum eða verið felld niður gagnvart kæranda. Nálgunin gangi þvert gegn meginreglunni um sakleysi uns sekt sé sönnuð, sem varin sé af stjórnarskrá. Kærandi gerir athugasemdir við upplýsingaskýrslu lögreglu, dags. 29. janúar 2026. Hún hafi ekki verið borin undir kæranda svo honum gæfist tækifæri að sannreyna það sem komi fram og eftir atvikum koma að athugasemdum. Leiði þetta til þess að andmælaréttar hans hafi aðeins verið gætt að takmörkuðu leyti sem aftur leiði til þess að málið verði ekki talið nægilega upplýst í skilningi 10. gr. stjórnsýslulaga.
Kærandi telur að skilyrði 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga séu ekki uppfyllt. Brotin séu fá og minniháttar og Útlendingastofnun hafi ekki fært fullnægjandi rök fyrir því að framferði kæranda gefi til kynna að af honum stafi sú raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins sem áskilin sé. Kærandi mótmælir því að brot hans séu þess eðlis að hann muni halda brotaferli sínum áfram. Þá vísar kærandi til þess að hann hafi greitt skatta og gjöld og eigi hér maka, félagslíf og heimili.
Kærandi telur að hin kærða ákvörðun feli í sér brot gegn reglum um meðalhóf. Við beitingu 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga vegist á hagsmunir samfélagsins af brottvísun gegn hagsmunum viðkomandi útlendings og aðstandenda hans. Kærandi hafi myndað tengsl við landið, sé búsettur hér á landi á grundvelli dvalarleyfis og eigi maka hér. Ákvörðun um brottvísun myndi raska því og telja verði að slík ákvörðun myndi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar um að fella niður frest hans til sjálfviljugrar heimferðar verði felld úr gildi. Hann telur að ákvæði c-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga séu ekki uppfyllt en ákvæðið beri að túlka þröngt. Kærandi vísar til tengsla sinna við landið máli sínu til stuðnings. Þá telur kærandi að endurkomubann hans sé of langt og ekki í samræmi við 12. gr. stjórnsýslulaga.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í samræmi við 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, hefur tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna verið tekin upp í íslenskan rétt, sbr. m.a. XI. kafla laga um útlendinga sem felur í sér sérreglur um útlendinga sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
Í 95. gr. laga um útlendinga er fjallað um brottvísun EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans. Samkvæmt 1. mgr. greinarinnar er heimilt að vísa EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans úr landi ef það er nauðsynlegt með skírskotun til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Í 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga segir að brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. sé heimil ef framferði viðkomandi feli í sér raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins. Ákvörðun um brottvísun skuli ekki eingöngu byggjast á almennum forvarnaforsendum. Ef viðkomandi hafi verið dæmdur til refsingar eða sérstakar ráðstafanir ákvarðaðar, sé brottvísun af þessari ástæðu því aðeins heimil, að um sé að ræða háttsemi sem geti gefið til kynna að viðkomandi muni fremja refsivert brot á ný. Fyrri refsilagabrot nægi ekki ein og sér til þess að brottvísun sé beitt.
Líkt og kemur fram í málsatvikalýsingu skráði kærandi dvöl sína hér á landi 25. janúar 2023. Samkvæmt fyrirliggjandi sakarvottorði, dags. 29. janúar 2026, hefur kærandi hlotið einn refsidóm hér á landi, dags. 23. október 2023, vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Því til viðbótar hefur kærandi gert tvær lögreglustjórasáttir vegna umferðarlagabrota nr. 77/2019 og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-5109/2023 frá 23. október 2023 var kærandi sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft fíkniefni í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni. Kærandi var dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundin til tveggja ára.
Í málinu liggur fyrir umsögn lögreglu, dags. 29. janúar 2026. Í umsögninni er brotaferill kæranda hér á landi frá árinu 2019 rakinn. Fram kemur að lögregla hafi haft ítrekuð afskipti af kæranda vegna margvíslegra brota. Kærandi hafi verið skráður sakborningur í sextán málum sem feli í sér 26 brot gegn almennum hegningarlögum. Kærandi hafi einnig verið skráður í rúmlega 30 málum sem aukaaðili án þess að vera kærður. Kærandi sé iðulega í félagahópi sem þekktir séu í kerfum lögreglu og hafi félagar í þeim hópi verið grunaðir um fíkniefnalagabrot og sé kærandi talinn vera hluti af skipulagðri brotastarfsemi hér á landi. Kærandi hafi hlotið einn dóm hér á landi frá 23. október 2023. Kærandi eigi þrjú opin mál hjá lögreglu sem feli í sér sex brot í heildina. Það sé mat lögreglu að kærandi verði sakfelldur fyrir þau refsiverðu brot sem séu til meðferðar hjá lögreglu. Að auki sé mál í ákærumeðferð hjá héraðssaksóknara en í því máli sé kærandi grunaður um flutning fíkniefna milli landa og sölu og dreifingu fíkniefna. Lögreglan meti það sem svo að kærandi muni halda áfram brotaferli sínum og þar með ógna grundvallarhagsmunum samfélagsins. Miðað við fjölda brota sem kærandi sé grunaður um sé það mat lögreglu að framkvæmd þeirra sé af miklum ásetningi. Kærandi sé ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins. Það sé mat lögreglunnar að brottvísun sé nauðsynleg ráðstöfun til verndar allsherjarreglu og almannahagsmunum.
Við mat á því hvort framferði kæranda sé þess eðlis að skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga sé uppfyllt, sbr. 27. gr. Sambandsborgaratilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38, verður einkum að líta til þess að kærandi hefur í eitt skipti verið dæmdur til skilorðsbundinnar refsingar hér á landi fyrir fíkniefnalagabrot. Samkvæmt gögnum málsins hefur lögreglan hér á landi haft afskipti af kæranda frá árinu 2019 er hann gekkst undir sekt fyrir vörslu fíkniefna og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Lögregla hefur haft ítrekuð afskipti af kæranda en fyrir utan umferðarlagabrot gekkst hann undir sekt vegna vörslu ávana- og fíkniefna árið 2023 auk þess að hljóta dóm sama ár fyrir vörslu ávana- og fíkniefna í sölu og dreifingarskyni. Auk þess eru til rannsóknar brot sem m.a. varða hótanir, vopnalagabrot og stórfellda líkamsárás frá árinu 2024. Þar að auki er mál í ákærumeðferð hjá héraðssaksóknara þar sem kærandi er grunaður um flutning fíkniefna milli landa og sölu og dreifingu fíkniefna. Hluti brota kæranda hér á landi hafa verið umferðarlagabrot, þar af einkum akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis. Akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna eru almannahættubrot. Sérstök hætta er af slíkum brotum, enda felst í háttseminni mikið skeytingarleysi og hætta gegn lífi og velferð annarra. Þá er til þess litið að löggjafinn hér á landi hefur tekið skýra afstöðu gegn sölu og dreifingu fíkniefna með lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 auk almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Af gögnum málsins og umsögn lögreglu verður ráðið að kærandi hafi frá árinu 2019 endurtekið komið við sögu lögreglu hér á landi og að brotahegðun hans hafi stigmagnast. Hefur kærandi bæði undirgengist sátt vegna vörslu ávana- og fíkniefni auk þess að hafa verið dæmdur fyrir slíka vörslu í sölu- og dreifingarskyni. Ítrekuð afskipti lögreglu af kæranda vegna umferðarlagabrota, opnar rannsóknir á kæranda vegna annarra brota og tengingar hans við aðra aðila sem komið hafa við sögu lögreglu benda eindregið til þess að kærandi muni brjóta af sér aftur hér á landi.
Í greinargerð vísar kærandi m.a. til þess að brot hans séu hvorki alvarleg ógn við almannaöryggi né allsherjarreglu auk þess sem hann ber fyrir sig að það geti ekki verið grundvöllur brottvísunar að horfa til ólokinna mála sem séu til meðferðar hjá lögreglu. Nálgunin gangi þvert gegn meginreglunni um sakleysi uns sekt sé sönnuð, sem varin sé af stjórnarskrá. Kærandi gerir auk þess athugasemd við framangreinda umsögn. Áréttað er að einstök refsiverð afbrot fela ekki sjálfkrafa í sér alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins, sbr. til hliðsjónar niðurlag 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Þvert á móti þarf mat stjórnvalda á 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga að endurspegla háttsemi og brotastarfsemi málsaðila í víðara samhengi. Í því ber m.a. að líta til tíðni brota og lengdar brotaferils til samræmis við dvalarleyfi. Að auki hefur, í úrskurðaframkvæmd kærunefndar, verið litið til málaskrár lögreglu sem vísbendingu um hegðunarmynstur brotamanna, til viðbótar við önnur gögn, sbr. til hliðsjónar dóm Landsréttar nr. 419/2022, dags. 1. desember 2023. Þá hefur einkum verið litið til þess hvort að hegðun og framferði viðkomandi sé með þeim hætti að lögregla hafi þurft að hafa ítrekuð afskipti af þeim. Þá er ekki talin ástæða til að draga í efa umsögn lögreglu. Ekki verður fallist á að kæranda hafi ekki verið veittur andmælaréttur við meðferð málsins vegna umsagnar lögreglu um mál hans í kerfum lögreglunnar. Kæranda var greint frá innihaldi umsagnar lögreglu í tilkynningu um hugsanlega brottvísun og veittur frestur til andmæla.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að framferði kæranda feli í sér raunverulega og yfirvofandi ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins í skilningi 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga og er skilyrðum fyrir brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga fullnægt. Háttsemi kæranda gefur til kynna að hann muni fremja refsiverð afbrot á ný, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að a-c -liður 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga ættu ekki við um tilvik kæranda. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands skráði kærandi dvöl sína hér á landi 25. janúar 2023 og hefur lögmæt dvöl hans því ekki varað í fimm ár. Kærandi nýtur því ekki réttar til ótímabundinnar dvalar, sbr. 87. gr. laga um útlendinga. Nýtur hann því ekki aukinnar verndar gegn brottvísun, sbr. a-lið 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga. Þá eiga ákvæði b- og c-liðar 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga ekki við um mál kæranda.
Í 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga koma fram takmarkanir á heimild til brottvísunar samkvæmt 95. gr. laganna. Í ákvæðinu segir að brottvísun skuli ekki ákveða ef það, með hliðsjón af málsatvikum og tengslum EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans við landið, myndi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart viðkomandi eða nánustu aðstandendum hans. Við matið skuli m.a. taka mið af lengd dvalar á landinu, aldri, heilsufari, félagslegri og menningarlegri aðlögun, fjölskyldu og fjárhagsaðstæðum og tengslum viðkomandi við heimaland sitt, sbr. 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga.
Kærandi byggir á því að hann eigi maka á Íslandi, hafi átt heimili hér á landi og myndað tengsl við landið, m.a. atvinnutengsl. Við mat á ósanngjarnri ráðstöfun gagnvart málsaðila eða nánustu aðstandendum í skilningi 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Í dómaframkvæmd hefur Mannréttindadómstóll Evrópu vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Þá hefur dómstóllinn lagt til grundvallar að aðildarríki mannréttindasáttmálans hafi vald til þess að brottvísa útlendingi sem hefur hlotið dóma fyrir refsiverð afbrot enda sé það nauðsynlegt með tilliti til allsherjarreglu, svo sem í máli Üner gegn Hollandi (46410/99) frá 18. október 2006. Þó verði að horfa til þess hvort ákvörðunin skerði rétt viðkomandi til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu samkvæmt 8. gr. mannréttindasáttmálans. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um, stefna að lögmætu markmiði, og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. Þau sjónarmið sem mannréttindadómstóllinn hefur lagt til grundvallar í málum af þessum toga eru t.a.m. eðli þess brots sem viðkomandi hefur gerst sekur um, lengd dvalar viðkomandi í því ríki sem tekur ákvörðun um brottvísun og félags-, menningar-, og fjölskyldutengsl viðkomandi við dvalarríki og heimaríki, sbr. t.d. mál Balogun gegn Bretlandi (nr. 60286/09) frá 4. október 2013 og Ndidi gegn Bretlandi (nr. 41215/15) frá 14. september 2017. Dómstóllinn hefur almennt veitt ríkjum talsvert svigrúm til mats þegar kemur að brottvísun aðila vegna alvarlegra brota með vísan til almannaöryggis þótt aðili hafi fjölskyldutengsl, sbr. t.d. mál Üner gegn Hollandi.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er kærandi skráður í hjúskap. Af gögnum málsins verður ráðið að kærandi hafi komið hingað til lands 29. janúar 2026 eftir að hafa dvalið erlendis í sex mánuði. Kærandi greindi frá því að sambandi hans og maka hafi lokið árið snemma árs árið 2025. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafi maki kæranda ekki dvalið á landinu frá 1. október 2023. Þá kvaðst kærandi vera kominn með nýja kærustu en þau hafi kynnst í mars 2025. Kærandi hafi greint frá því að hafa starfað hjá tilteknu fyrirtæki hér á landi en ekki síðustu tvo til þrjá mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum fékk kærandi greidd laun frá fyrirtækinu á meðan hann dvaldi erlendis. Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins greiddi kærandi staðgreiðslu af launum í fimm mánuði árið 2022, í tíu mánuði árið 2023 og átta mánuði árið 2025. Kærandi fékk þá greiðslur úr atvinnuleysistryggingarsjóði í þrjá mánuði árið 2024. Með vísan til framangreinds má telja að atvinnutengsl kæranda við landið séu nokkuð rík. Þrátt fyrir það hefur kærandi verið í virkri brotastarfsemi á landinu frá árinu 2019, líkt og þegar hefur verið rakið, og er brotaferill kæranda til marks um lítinn ásetning til félags- og menningarlegrar aðlögunar að íslensku samfélagi.
Samkvæmt framangreindu eru tengsl kæranda við landið ekki slík að í brottvísun hans felist ósanngjörn ráðstöfun gagnvart honum eða nánustu aðstandendum hans í skilningi 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi er einnig litið til þess að í ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu felst ekki skilyrðislaus réttur til fjölskyldulífs á Íslandi, heldur er stjórnvöldum heimilt að mæla fyrir um takmarkanir á réttinum, sbr. áðurnefndan dóm Üner gegn Hollandi. Í þessu samhengi er litið til þess að kærandi hefur greint frá því að vera ekki lengur í sambandi með maka sínum og hann sé kominn með nýja kærustu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafi maki kæranda auk þess ekki dvalið á landinu frá árinu 2023. Af því verður ráðið að forsendur dvalarréttar kæranda sem maki EES- eða EFTA borgara séu brostnar. Verður ekki talið að ákvörðun um brottvísun brjóti gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga.
Að framangreindu virtu stendur 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda frá landinu. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun því staðfest.
Samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga um útlendinga felur brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. í sér bann við komu til landsins síðar. Í sama ákvæði er kveðið á um að endurkomubann geti verið varanlegt eða tímabundið en þó ekki styttra en tvö ár. Við mat á því skuli sérstaklega litið til atriða sem talin eru upp í 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda bönnuð endurkoma til Íslands í sjö ár. Að málsatvikum virtum og með hliðsjón af tíðni brota kæranda og lítilli aðlögun að íslensku samfélagi verður endurkomubannið staðfest en fallist er á varakröfu kæranda um styttingu endurkomubannsins og það stytt úr sjö árum í sex ár. Athygli er vakin á því að samkvæmt 2. mgr. 96. gr. laga um útlendinga er heimilt að fella endurkomubann úr gildi ef nýjar aðstæður mæla með því og rökstutt er að orðið hafi verulegar breytingar á þeim aðstæðum sem réttlættu ákvörðun um endurkomubann. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi farinn úr landi og tók endurkomubann hans gildi þann dag.
Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt c-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar slíkt telst nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Að teknu tilliti til málsatvika og þar sem komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að brottvísa beri kæranda á grundvelli 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til c-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Er því ekki fallist á þrautavarakröfu kæranda.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun staðfest en endurkomubann kæranda skal vera sex ár.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun er staðfest. Endurkomubann er stytt í sex ár.
The decision of the Directorate of Immigration on expulsion is affirmed. The re-entry ban is shortened to six years.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir