Mál nr. 18/2025
Mál nr. 18/2025
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála
A gegn B ehf.
Mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna. Þjónusta. Fallist á brot.
A sem var erlendur ferðamaður kærði ákvörðun B um að neita sér um þjónustu á veitingastað í eigu kærða á grundvelli þjóðernisuppruna. B staðfesti lýsingu kæranda á atvikum málsins, baðst afsökunar og kvaðst taka fulla ábyrgð. Þar sem fyrir lá afdráttarlaus viðurkenning af hálfu kærða á atvikum máls og því að mismunun hefði átt sér stað á grundvelli þjóðernisuppruna kæranda var B talinn hafa brotið gegn 1. mgr. 7. gr. og 9. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar.
- Á fundi kærunefndar jafnréttismála hinn 11. september 2026 er tekið fyrir mál nr. 18/2025 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
- Með kæru, dags. 24. júlí 2025, kærði A mismunun B ehf. á grundvelli þjóðernisuppruna á veitingastað kærða […] 2025. Mismununin hafi falist í því að starfsfólk kærða hafi neitað honum og maka hans um þjónustu á veitingastaðnum. Kærandi telur að kærði hafi með hegðun sinni mismunað þeim á grundvelli þjóðernisuppruna og þar með brotið gegn lögum nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar.
- Kæran ásamt fylgigögnum var kynnt kærða með bréfi, dags. 12. ágúst 2025, og óskað var eftir afstöðu kærða til kærunnar. Svar kærða, dags. 12. september s.á., var sent kæranda 26. janúar 2026 og bárust athugasemdir kæranda degi síðar.
MÁLAVEXTIR
- Í kæru er því lýst svo að […] 2025 hafi kærandi, sem er frá Ísrael, farið ásamt maka sínum, á veitingastað kærða og pantað mat og greitt 3.000 kr. fyrir. Þau hafi spjallað við tvo starfsmenn kærða. Í samtalinu hafi komið fram að kærandi og maki hans væru frá Ísrael. Um tíu mínútum síðar hafi annar starfsmaður kærða en sem afgreiddi þau beðið kæranda um að staðfesta pöntunina. Í kjölfarið hafi starfsmaðurinn endurgreitt kæranda 2.300 kr. og sagt að hann myndi ekki veita þeim þjónustu.
- Kærandi hafi þá spurt hvort ástæðan væri byggð á einhverju persónulegu, eins og hvort þau hefðu móðgað hana eða orðið misskilningur, eða hvort það væri tengt þjóðernisuppruna þeirra. Viðkomandi hafi svarað skýrt að þau hefðu ekki móðgað hana á nokkurn hátt og að ákvörðunin um að neita þeim um þjónustu hefði verið byggð á því frá hvaða landi þau væru.
- Kærandi hafi bent á að hann hefði ekki fengið að fullu greitt til baka. Starfsmaðurinn hafi brugðist við með því að skella 5.000 kr. á afgreiðsluborðið og skipað kæranda og maka hans að fara út.
- Þau hafi síðan fengið rétta skiptimynt til baka frá hinum starfsmanninum sem hefði afgreitt þau. Sá starfsmaður hafi ekki beðið þau um að fara heldur virtist honum finnast aðstæðurnar óþægilegar. Kærandi hafi í kjölfarið óskað starfsmönnunum góðs kvölds og farið út af veitingastaðnum.
SJÓNARMIÐ KÆRANDA
- Kærandi telur að kærði hafi brotið gegn lögum nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, með því að neita þeim um þjónustu. Kærandi byggir á því að sér hafi verið mismunað á grundvelli þjóðernisuppruna, sbr. 1. mgr. 1 gr. laganna sem sé óheimilt samkvæmt 9. gr. laganna.
- Kærandi lýsir því hvernig atvikið hafi valdið þeim hugarangri og þau hafi tekið það nærri sér. Starfsmaður kærða sem hafi mismunað þeim hafi ekki litið á þau sem manneskjur með ákveðin gildi heldur mismunað þeim á grundvelli þess frá hvaða landi þau kæmu. Kærandi tekur fram að markmið með kærunni sé að sjá til þess að viðlíka hegðun eigi sér ekki stað aftur á veitingastaðnum og að tekið sé á móti öllum viðskiptavinum af virðingu, á manneskjulegan hátt og án mismununar.
SJÓNARMIÐ KÆRÐA
- Í svörum kærða í málinu staðfesti kærði að framangreind atvik hefðu átt sér stað. Túlkun kæranda á aðstæðunum væri sannleikanum samkvæm. Kærði baðst afsökunar á óþægindunum sem þetta hefði valdið og sagðist taka fulla ábyrgð á því.
NIÐURSTAÐA
- Mál þetta snýr að því hvort kærði hafi mismunað kæranda á grundvelli þjóðernisuppruna og með því brotið gegn 1. mgr. 7. gr., sbr. 9. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, með því að neita honum um þjónustu á veitingastað sínum […] 2025.
- Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018 kemur fram að lögin gildi um jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði.
- Í 1. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2018 er tekið fram að hvers kyns mismunun á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, hvort heldur bein eða óbein, vegna einhverra þeirra þátta sem getur um í 1. mgr. 1. gr. sé óheimil, sbr. einnig lög um jafna meðferð á vinnumarkaði. Fjölþætt mismunun sé einnig óheimil. Fyrirmæli um mismunun vegna einhverra þeirra þátta sem getur um í 1. mgr. 1. gr. teljist einnig mismunun samkvæmt lögunum sem og áreitni þegar hún tengist einhverjum þeim þáttum. Neitun um viðeigandi aðlögun skv. 7. gr. teljist jafnframt mismunun.
- Í 9. gr. laga nr. 85/2018 er tekið fram að hvers kyns mismunun vegna einhverra þeirra þátta sem um getur í 1. mgr. 1. gr. í tengslum við aðgang að eða afhendingu á vöru sé óheimil. Hið sama gildi um þjónustu og aðgang að þjónustu og jafnframt um húsnæði sem sé í boði fyrir almenning. Ákvæðið gildi þó ekki um viðskipti á sviði einka- og fjölskyldulífs.
- Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, meðal annars lög um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, og um störf kærunefndar jafnréttismála. Verkefni kærunefndar jafnréttismála er að taka erindi til meðferðar og kveða upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laga nr. 85/2018 hafi verið brotin, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 151/2020.
- Eins og að framan er rakið er ekki ágreiningur um atvik málsins heldur liggur fyrir afdráttarlaus viðurkenning kærða á því að atvik hafi verið með þeim hætti sem lýst er í kæru. Í því ljósi verður talið að kærði hafi brotið gegn 1. mgr. 7. gr., sbr. 9. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, með því að neita kæranda um þjónustu á grundvelli þjóðernisuppruna í umrætt sinn.
- Sjónarmið kærða voru kynnt kæranda sem kvaðst ánægður með að starfsmennirnir hefðu viðurkennt að atvikið hefði átt sér stað og þann vanda og mismunun sem það hefði falið í sér. Hann tók jafnframt fram að hann og maki hans tækju við afsökunarbeiðni kærða.
- Uppkvaðning úrskurðar í málinu hefur tafist umfram þann tveggja mánaða frest sem nefndin hefur til að úrskurða í máli eftir að gagnaöflun í því er lokið samkvæmt 5. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála. Er ástæða þess einkum mikill fjöldi mála sem er til meðferðar hjá nefndinni auk breytinga á vistun nefndarinnar og starfsmannahaldi hennar.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Kærði braut gegn lögum nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, með því að neita kæranda um þjónustu á veitingastað sínum […] 2025, á grundvelli þjóðernisuppruna.
Ari Karlsson
Andri Árnason
Maren Albertsdóttir