Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar Matvælastofnunar um innflutning á fæðubótarefninu Berberine HCL.
Miðvikudaginn, 7. október 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Þann 28. janúar 2026 barst ráðuneytinu tölvupóstur frá [X] (hér eftir „kærandi“) þar sem kærð er sú afstaða og framkvæmd Matvælastofnunar að koma í veg fyrir innflutning kæranda á Berberine HCL til einkanota.
Kröfur
Kærandi krefst þess að heimiluð verði tollafgreiðsla á Berberine HCL í gegnum almennar tollstöðvar en ekki einungis í gegnum tollstöðvar flugvalla. Þess er krafist að efni sem ekki er bannað fáist tollafgreitt í því magni sem svarar til skynsamlegra almennra einstaklingsnota.
Málsatvik
Þann 25. apríl 2025 lagði kærandi fram umsókn á þjónustuvef Matvælastofnunar vegna póstsendingar einstaklinga með leyfisskyldum vörum en um var að ræða Berberine HCL frá Swanson sem keypt hefði verið frá iHerb. Í umsókn kæranda var vísað til sendingar [Y] og kom fram að sendingin hefði verið stöðvuð vegna Berberine HCL. Kærandi upplýsti að varan væri ætluð til einkanota auk þess að halda því fram að hún væri til sölu á Íslandi og leyfð um allan heim. Matvælastofnun upplýsti kæranda með tölvupósti þann 6. maí 2025 að sendingin hefði verið stöðvuð af tollgæslu þar sem í vörunni væri óleyfilegt innihaldsefni, Berberine HCL. Stofnunin upplýsti kæranda um að Berberine HCL hefði ekki fengið leyfi til að vera á markaði og væri því ekki leyfilegt hérlendis. Í svarinu kom einnig fram að markaðsaðilum væri ekki heimilt að markaðssetja óleyfilega vöru til landsins auk þess sem tilgreint var að Matvælastofnun hefði ekki heimild til að veita stakar undanþágur í slíkum málum. Kæranda var leiðbeint um að hafa samband við póstinn um hvort hann vildi nálgast vörur úr sendingunni sem ekki væru stöðvaðar og farga öðru eða hvort kæranda vildi frekar endursenda alla sendinguna.
Í stjórnsýslukæru kemur fram að kæran varði sendingu með sendingarnúmerið [Z]. Framangreint sendingarnúmer ber með sér að sendingin var send frá Belgíu þann 22. október 2025. Samhliða stjórnsýslukæru lagði kærandi fram reikning frá iHerb, dags. 17. október 2025, sem tilgreindi m.a. tvær einingar af „Natural Factors, WellBetX, Berberine, 120 Vegetarian Capsules (500 mgr. per Capsule)“. Vísar kærandi almennt til þess í kæru sinni að honum hafi borist tilkynningar frá tollmiðlurum að sending innihéldi Berberine og það efni væri á bannlista og fengist því ekki afhent.
Með tölvupósti til Matvælastofnunar þann 23. október 2025 óskaði kærandi eftir leiðbeiningum um hvernig hægt væri að fá undanþágu á vörunni til einkaneyslu. Tölvupósturinn var sendur sem svar við eldri tölvupóstsamskipti kæranda og starfsmanns Matvælastofnunar frá því í apríl það ár í tengslum við aðra sendingu. Í erindinu kom ekki fram að um nýja sendingu væri að ræða og erindið bar ekki með sér að öðru leyti að tollurinn hefði stöðvað aðra sendingu með annað sendingarnúmer.
Í svari Matvælastofnunar þann 24. október 2025 er vísað til þess að markaðsaðilum sé ekki heimilt að selja vöruna til neytenda á Íslandi því sé innflutningur stöðvaður. Fái heilbrigðiseftirlit ábendingu um sölu vörunnar hafi hún verið stöðvuð. Í svari Matvælastofnunar kemur einnig fram að það sé ekki bannað að eiga efnið eða ferðast með það auk þess sem tilgreint er að persónuleg not fólks falli ekki undir eftirlit Matvælastofnunar. Þá er vísað til þess að Lyfjastofnun svari spurningum um lyf og undanþáguheimildir varðandi þau.
Með tölvupósti kæranda til Matvælastofnunar þann 25. október 2025 gerir kærandi athugasemdir við svör Matvælastofnunar varðandi þau atriði sem hann telur að standist ekki skoðun. Vísar kærandi m.a. til þess að Matvælastofnun tilgreini að ekki sé bannað að eiga efnið eða ferðast með það sem hljóti þá að merkja að kæranda sé heimilt að eiga efnið og nota það til einkanota. Einnig vísar kærandi í að Matvælastofnun tilgreini í svari sínu að persónuleg not fólks falli ekki undir eftirlit stofnunarinnar en þrátt fyrir það sé stofnunin að svipta hann efni sem sé til einkanota. Þá ítrekar kærandi að Matvælastofnun láti af því að koma í veg fyrir að kærandi geti notað fæðubótarefnið sem hafi reynst honum vel.
Í tölvupósti Matvælastofnunar þann 27. október 2025 er vísað til þess að markaðsaðilum sé ekki heimilt að selja vöruna til neytenda á Íslandi. Þá er vísað til þess að Matvælastofnun hafi enga beina aðkomu að sendingunni, meðhöndlun hennar né stöðvun. Sendingin sé stöðvuð af tollyfirvöldum og Matvælastofnun hafi ekki heimild til að veita undanþágur í slíkum málum. Þá hafi kæranda verið veittar ríflegar upplýsingar og leiðbeiningar. Að lokum er tilgreint að stjórnvaldsákvarðanir tollyfirvalda þurfi að kæra á þann hátt sem tollyfirvöld tilgreina.
Kærandi bendir í tölvupósti sínum þann 27. október 2025 á að um sé að ræða kerfislega þversögn. Heimilt sé að fara í gegnum tollskoðun í Keflavík með efnið í magni sem telst til einkanota en ekki sama magn í gegnum tollskoðun í Hafnarfirði. Þá geti 1-3 smásölueiningar ekki verið skilgreindar sem markaðssetning eða vara til endursölu. Þá óskar kærandi eftir upplýsingum um hver geri þá kröfu til tollyfirvalda að varan sé stöðvuð.
Matvælastofnun svarar kæranda samdægurs um að það sé skýrt að markaðssetning óöruggra eða óleyfilegra matvæla til landsins sé ekki heimil. Þá sé sala eða dreifing á vörum erlendis til neytenda erlendis ekki undir eftirliti Matvælastofnunar. Markaðsaðilum sé ekki heimilt að senda til landsins ómælt magn af óleyfilegri vöru, í smærri sendingum beint til neytenda. Vísað er til þess að Evrópusambandið líti á slíkt sem markaðssetningu yfir landamæri. Afstaða Matvælastofnunar standi og vísað er til þess að tollyfirvöld þurfi að svara fyrir eigin stjórnsýsluákvarðanir.
Með tölvupósti sama dag spyr kærandi Matvælastofnun á ný um hver það sé sem geri þá kröfu til tollyfirvalda að efnið sé stöðvað.
Í svari Matvælastofnunar, einnig sama dag, er vísað til þess að efnið teljist nýfæði og hafi ekki fengið leyfi sem slíkt. Í því samhengi vísar stofnunin til lista á heimasíðu Matvælastofnunar.
Málsmeðferð ráðuneytisins
Með tölvupósti, dags. 28. janúar 2026, barst ráðuneytinu stjórnsýslukæra frá kæranda.
Þann 29. janúar 2026 óskaði ráðuneytið eftir umsögn Matvælastofnunar auk annarra fylgigagna er varða málið. Þau gögn bárust ráðuneytinu þann 20. febrúar 2026. Í kjölfarið var kæranda veittur frestur til andmæla og bárust þau þann 11. mars 2026.
Þann 7. júlí 2026 var óskað eftir viðbótarupplýsingum frá Matvælastofnun og bárust svör stofnunarinnar þann 11. ágúst 2026. Upplýsingarnar vörðuðu skráningu og meðferð erinda kæranda hjá Matvælastofnun og samskipti sem kæranda voru þegar kunn. Þar sem þær höfðu ekki þýðingu fyrir úrlausn málsins umfram það sem fram kemur í gögnum sem kærandi hafði þegar undir höndum var ekki talið nauðsynlegt að gefa honum kost á að tjá sig um þær, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Málið er tekið til úrskurðar á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Beðist er velvirðingar á þeim drætti sem orðið hefur á uppkvaðningu úrskurðarins.
Sjónarmið kæranda
Í stjórnsýslukæru kæranda, dags. 28. janúar 2026, vísar kærandi til sendingar með sendingarnúmer [Z] sem grundvöll fyrir kærunni. Vísar kærandi til þess að hafa í gegnum tíðina flutt inn fæðubótarefnið Berberine en fyrir nokkru hafi farið að berast tilkynningar frá tollmiðlurum að efnið væri á bannlista og fengist ekki afhent.
Kærandi bendir á að misræmi sé á milli vinnulags tollyfirvalda annars vegar og þeirra krafna sem Matvælastofnun geri hins vegar, einkum hvað varðar meðferð efnisins Berberine HCL. Þá telur kærandi að Matvælastofnun hafi með framkvæmd sinni skapað sér sérstöðu á EES- og ESB-svæðinu varðandi meðferð og túlkun reglna um Berberine HCL.
Samkvæmt sjónarmiðum kæranda er Berberine HCL leyfilegt á Íslandi til einkanota. Heimilt sé að ferðast með efnið, hafa það í fórum sínum og flytja það til landsins frá útlöndum í því magni sem teljist til persónulegra nota, þar á meðal í gegnum tollstöð. Kærandi bendir þó á að Matvælastofnun telji óheimilt að afgreiða efnið í sama magni í gegnum almenna tollafgreiðslu, sem kærandi telur ósamrýmanlegt og óskýrða framkvæmd.
Kærandi vísar jafnframt til þess að Berberine HCL sé almennt leyft víða um heim, utan Evrópu án takmarkana og innan Evrópu með þeim hætti að heimilt sé að kaupa efnið og eiga það til einkanota. Í tilviki kæranda hafi varan verið keypt frá stórum og viðurkenndum dreifingaraðila og framleidd af kanadíska framleiðandanum Natural Factors undir vörumerkinu WellbetX, sem kærandi telur vera virtan framleiðanda á þessu sviði.
Kærandi telur ljóst að í Evrópu sé almennt gert ráð fyrir því að heimilt sé að kaupa og nota Berberine HCL til einkanota. Þá byggir kærandi á því að magn sem nemi einni til tveimur neytendapakkningum geti ekki talist til endursölu eða dreifingar, heldur verði slíkt magn eingöngu talið til persónulegra nota.
Kærandi telur að með framgöngu Matvælastofnunar sé verið að koma í veg fyrir einkanot á Berberine HCL. Krefst kærandi þess að heimiluð verði tollafgreiðsla á Berberine HCL í gegnum almennar tollstöðvar en ekki einungis í gegnum tollstöðvar flugvalla. Auk þess krefst kærandi þess að efni sem ekki er bannað fáist tollafgreitt í því magni sem svarar til skynsamlegra almennra einstaklingsnota.
Sjónarmið Matvælastofnunar
Í umsögn Matvælastofnunar sem barst þann 20. febrúar 2026 kemur fram að löggjöf um innihaldsefni í fæðubótarefnum sé mismunandi eftir löndum og sérstaklega sé munur þegar kemur að ríkjum innan og utan EES.
Matvælastofnun hafi sett saman lista sem birtur er á heimasíðu stofnunarinnar um efni sem eru algeng í fæðubótarefnum en búast megi við að verði stöðvuð í póstsendingum af tollgæslunni. Berberine sé tilgreint á þeim lista þar sem um „óleyfilegt nýfæði“ sé að ræða. Í skýringum um óleyfilegt nýfæði segir: „Efnið flokkast sem nýfæði (novel food) og hefur ekki fengið leyfi sem slíkt“.
Þá er tilgreint að tollgæslan hafi eftirlit með póstsendingum sem berast til landsins. Þá séu sendingar sem innihalda vörur sem lúta eftirliti Matvælastofnunar og innihalda óleyfileg efni eða eru háðar sérstökum innflutningsskilyrðum stöðvaðar af tollgæslunni. Vísað er til þess að tollgæslan notist m.a. við þann lista sem Matvælastofnun birtir á heimasíðu sinni við ákvörðun um hvort viðkomandi matvæli/fæðubótarefni sé stöðvað.
Matvælastofnun bendir á að hægt sé að sækja um leyfi fyrir vörum sem sæta eftirliti stofnunarinnar, sbr. eyðublað frá kæranda dags. 25. apríl 2025. Matvælastofnun veitir hins vegar ekki heimild til innflutnings á matvælum/fæðubótarefnum sem innihalda efni sem eru á framangreindum lista stofnunarinnar.
Þá er í umsögn Matvælastofnunar vísað til þeirra réttarheimilda sem við eiga varðandi nýfæði og bent á að stofnunin annist, skv. i. lið 6. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, opinbert eftirlit með innflutningi annarra matvæla en getið er um í a.-h. lið 6. gr., þ.m.t. innflutning á fæðubótarefnum. Þá sé í gildi reglugerð nr. 735/2017 um nýfæði, með síðari breytingu, sem innleiðir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði. Samkvæmt reglugerðinni þarf að fara fram áhættumat og leyfisveiting fyrir matvælum og hráefnum til matvælaframleiðslu sem ekki hefur verið neytt í umtalsverðum mæli innan sambandsins áður en reglugerðin tók gildi (1997). Framkvæmdastjórninni er heimilt að binda enda á málsmeðferðina um leyfisveitingu nýfæðis á hvaða stigi sem er, skv. 6. tl. 10. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283. Framkvæmdastjórnin tók ákvörðun þann 29. apríl 2025 að hætta leyfisveitingarferli fyrir vöru sem innihélt Berberine hydrochloride. Þá var síðasta tilkynning í RASFF um stöðvun á sölu Berberine HCL sem óleyfilegs nýfæðis var af hálfu Þýskalands þann 17. júní 2025.
Matvælastofnun heldur því fram að stofnunin hafi ekki tekið stjórnvaldsákvörðun í málinu hvað stöðvun vörunnar varðar og því sé ekki til staðar kæranleg ákvörðun skv. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Bendir stofnunin á að með stjórnvaldsákvörðun sé átt við ákvarðanir um rétt og skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Með stjórnvaldsákvörðun sé átt við ákvörðun sem tekin er í skjóli stjórnsýsluvalds og er beint milliliðalaust út á við að tilteknum aðila eða aðilum og með henni er kveðið á bindandi hátt um rétt eða skyldur þeirra í ákveðnu og fyrirliggjandi máli. Þá er það yfirleitt einkennandi fyrir stjórnvaldsákvarðanir að þær eru teknar einhliða af stjórnvöldum og oftast á skriflegan hátt.
Heldur stofnunin því fram að kærandi hafi óskað eftir undanþágu með umsókn vegna „póstsendingar einstaklinga með leyfisskyldum vörum“, þrátt fyrir að á heimasíðu stofnunarinnar komi skýrt fram að ekki séu veittar undanþágur fyrir fæðubótaefni með innihaldsefninu Berberine. Umsóknin var send Matvælastofnun þann 25. apríl 2025 og í kjölfarið upplýsti stofnunin kæranda þann 6. maí 2025 um að sendingin hefði verið stöðvuð af tollgæslu. Matvælastofnun hafi með hliðsjón af framangreindri skilgreiningu ekki tekið neina stjórnvaldsákvörðun hvað stöðvun vörunnar varðar.
Þá bendir stofnunin á að kærufrestur vegna stöðvunar fæðubótarefnisins í apríl 2025 hafi verið liðinn þegar kæra var lögð fram. Af kröfugerð kæranda megi þó ráða að kæran lúti ekki með beinum hætti að því að vara kæranda hafi verið stöðvuð í apríl 2025 heldur snúi krafan, sem sé almennt orðuð, að því að kæranda verði heimiluð tollaafgreiðsla á vörum sem innihalda Berberine HCL í gegnum almennar tollstöðvar.
Að lokum bendir Matvælastofnun á að samskipti stofnunarinnar og kæranda, daganna 24.-27. október 2025, um fyrirhugaðan innflutning kæranda geti ekki fallið undir skilgreiningu á stjórnvaldsákvörðun enda teljist almenn stjórnvaldsfyrirmæli, álit eða umsagnir stjórnvalda, tilmæli leiðbeiningar og ráðgjöf ekki til stjórnvaldsákvarðana.
Með vísan til alls framangreinds telur stofnunin að vísa eigi málinu frá.
Athugasemdir kæranda við umsögn Matvælastofnunar
Andmæli kæranda við umsögn Matvælastofnunar bárust þann 11. mars 2026. Kærandi bendir á að svar Matvælastofnunar til atvinnuvegaráðuneytisins, sé byggt á röngum forsendum, þar sem vísað sé til annarrar vörusendingar og annars vörureiknings en kæran lúti að.
Af hálfu kæranda er þess krafist að ráðuneytið endurmeti þá framkvæmd sem felur í sér að póstsendingar sem innihalda Berberine HCL til einkanota séu stöðvaðar, þrátt fyrir að samkvæmt skýringum stjórnvalda sé einstaklingum heimilt að hafa efnið í fórum sínum og flytja það með sér til landsins í farangri til eigin nota.
Kærandi tekur fram að ekki sé byggt á því að heimila eigi almenna markaðssetningu Berberine HCL hér á landi án tillits til reglna um nýfæði. Kjarni málsins lúti hins vegar að því hvort fyrir hendi sé skýr og ótvíræð lagaheimild til að jafna póstsendingu í mjög litlu magni til persónulegra nota við markaðssetningu vöru á íslenskum markaði, án þess að fram fari sérstök efnisleg athugun á magni, tilgangi og meðalhófi.
Samkvæmt gögnum málsins hafi umrædd sending falið í sér tvær neytendapakkningar ætlaðar kæranda sjálfum. Telur kærandi að slíkt magn geti ekki talist gefa til kynna endursölu eða dreifingu. Þegar stjórnvöld beiti íþyngjandi úrræðum gagnvart svo litlu magni beri þeim að sýna fram á skýra lagaheimild og rökstyðja hvers vegna ekki sé gerður greinarmunur á almennri markaðssetningu annars vegar og innflutningi til einkanota hins vegar, í samræmi við framkvæmd í Evrópu almennt.
Kærandi vísar sérstaklega til þess að í samskiptum við Matvælastofnun hafi komið fram að „persónuleg not fólks falli ekki undir eftirlit MAST“ og að „ekki sé bannað að eiga efnið eða ferðast með það“. Telur kærandi að þessar skýringar samrýmist illa þeirri framkvæmd að stöðva sjálfkrafa póstsendingu með sama efni í sama magni til sama einstaklings.
Þá telur kærandi að núverandi fyrirkomulag leiði til réttaróvissu. Í umsögn Matvælastofnunar sé byggt á því að ekki hafi verið tekin kæranleg stjórnvaldsákvörðun af hálfu stofnunarinnar, þar sem tollgæslan hafi stöðvað sendinguna. Á sama tíma liggi fyrir að tollgæslan styðjist við efnisflokkun og leiðbeiningar Matvælastofnunar. Að mati kæranda verði að liggja skýrt fyrir hvaða stjórnvald taki efnislega ákvörðun um stöðvun sendingar, á hvaða lagagrundvelli sú ákvörðun byggi og með hvaða hætti unnt sé að kæra hana.
Að lokum bendir kærandi á að óljóst sé hvernig ábyrgð stjórnvalda skiptist í framkvæmd, þar sem tollgæslan virðist framfylgja fyrirmælum Matvælastofnunar í slíkum málum og líta á stofnunina sem yfirvald en á sama tíma hafni stofnunin aðild að málinu.
Forsendur og niðurstaða
Kærandi hefur í kæru sinni og síðari athugasemdum afmarkað kæruna við sendingu nr. [Z], sem stöðvuð var í október 2025, og samskipti sín við Matvælastofnun í kjölfarið. Ráðuneytið leggur þá afmörkun til grundvallar. Afgreiðsla stofnunarinnar frá 6. maí 2025 á umsókn kæranda vegna sendingar sem stöðvuð var í apríl 2025 kemur því ekki til endurskoðunar í málinu. Sá skilningur Matvælastofnunar að kæran lyti að apríl sendingunni á sér skýringu í því að kærandi sendi fyrirspurn sína í október 2025 sem svar í fyrri samskiptum aðila vegna þeirrar sendingar.
II.
Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er aðila máls heimilt að kæra stjórnvaldsákvörðun til æðra stjórnvalds til þess að fá hana fellda úr gildi eða henni breytt. Það er því skilyrði þess að kæra verði tekin til efnismeðferðar að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Stjórnsýslulög gilda þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna, sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna. Samkvæmt athugasemdum við frumvarp það er varð að lögunum er þar átt við ákvarðanir sem teknar eru í skjóli stjórnsýsluvalds og beint er út á við að tilteknum aðila eða aðilum, og með þeim er kveðið á bindandi hátt um rétt eða skyldu þeirra í ákveðnu og fyrirliggjandi máli. Við það mat ræður efni þess sem stjórnvald lætur frá sér fara en ekki form. Almennar upplýsingar, leiðbeiningar og álit stjórnvalds teljast að jafnaði ekki stjórnvaldsákvarðanir, enda er með þeim ekki kveðið á bindandi hátt um rétt eða skyldu aðila.
Í tölvupósti kæranda til Matvælastofnunar 23. október 2025 vísaði hann til fyrri samskipta aðila og spurði hvort til væri vettvangur þar sem unnt væri að fara fram á undanþágu fyrir efnið til persónulegra nota, og hvort þar væri átt við matvælaráðuneytið og þá hvaða svið, deildir eða einstaklingar kæmu til greina. Í erindinu var ekki óskað eftir því að stofnunin tæki afstöðu til þess hvort kærandi fengi tiltekna sendingu afhenta og engar upplýsingar komu fram í erindinu um að kærandi hefði fengið nýja sendingu til landsins sem tollurinn hefði stöðvað. Í síðari tölvupóstum gerði kærandi athugasemdir við svör stofnunarinnar og spurði hver gerði þá kröfu til tollyfirvalda að efnið væri stöðvað, en óskaði ekki eftir ákvörðun stofnunarinnar. Erindi kæranda bar því með sér að vera fyrirspurn um leiðbeiningar en ekki umsókn um leyfi eða beiðni um ákvörðun.
Í svörum Matvælastofnunar dagana 24.–27. október 2025 voru kæranda veittar almennar upplýsingar um afstöðu stofnunarinnar til markaðssetningar vörunnar hér á landi og um hlutverk annarra stjórnvalda. Þá tók stofnunin fram að hún hefði enga beina aðkomu að sendingunni, meðhöndlun hennar eða stöðvun. Með svörunum var ekki kveðið á bindandi hátt um rétt eða skyldu kæranda í tilteknu máli.
Að mati ráðuneytisins fólu samskipti kæranda og Matvælastofnunar því hvorki í sér umsókn um leyfi né stjórnvaldsákvörðun. Þegar af þeirri ástæðu eru skilyrði 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga fyrir kæru ekki uppfyllt og ber að vísa kærunni frá. Sama á við um almenna kröfu kæranda um að vörur sem innihalda Berberine HCL fáist framvegis tollafgreiddar í magni sem svarar til einstaklingsnota.
III.
Þótt kærunni verði vísað frá telur ráðuneytið, í ljósi yfirstjórnunar- og eftirlitshlutverks síns gagnvart Matvælastofnun, rétt að taka fram eftirfarandi.
Samkvæmt 1. mgr. 130. gr. tollalaga nr. 88/2005 skulu tollyfirvöld stöðva tollafgreiðslu sendingar ef innflutningur vöru sem hún inniheldur er háður skilyrðum eða leyfum samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum sem ekki er sýnt fram á að hafi verið fullnægt eða aflað. Samkvæmt 2. mgr. greinarinnar er ákvörðun um stöðvun tollafgreiðslu kæranleg til ráðuneytis tollamála, en ákvörðun um að vara sé leyfisskyld til þeirrar stofnunar sem tók ákvörðun um leyfisskylduna og/eða fagráðuneytis hennar. Í athugasemdum við frumvarp það er varð að lögum nr. 33/2015, sem bættu 2. mgr. við greinina, kemur fram að stöðvun tollafgreiðslu feli ekki í sér efnislega afstöðu til leyfisskyldu heldur sé hún framkvæmd á grundvelli efnislegrar ákvörðunar annars stjórnvalds.
Löggjafinn hefur þannig gengið út frá því að forsenda stöðvunar sendingar á grundvelli 130. gr. tollalaga sé sú að skilyrðum eða leyfisskyldu samkvæmt ákvörðun annars stjórnvalds sé ekki fullnægt, og að efnisleg ákvörðun um það, og þar með um það hvort til endanlegrar tollafgreiðslu geti komið, sé í höndum þess stjórnvalds. Af því leiðir að aðili sem hyggst flytja inn sendingu sem stöðvuð hefur verið á þessum grundvelli á rétt á því, óski hann þess, að tekin verði ákvörðun í máli hans um hvort innflutningurinn sé heimill, og að slík ákvörðun sé stjórnvaldsákvörðun sem kæranleg er til æðra stjórnvalds á viðkomandi málefnasviði. Í máli þessu liggur fyrir að engin slík ákvörðun var tekin þrátt fyrir að sendingin hafi verið stöðvuð og þrátt fyrir að kærandi hafi sérstaklega óskað eftir leiðbeiningum um hvort og þá hvernig hann gæti fengið heimild til innflutningsins.
Samkvæmt 7. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald veita þeim sem til þess leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þess. Óháð því hvort þær upplýsingar sem Matvælastofnun veitti kæranda hafi verið réttar svo langt sem þær náðu, var kæranda ekki leiðbeint um að hann gæti óskað eftir ákvörðun stofnunarinnar um innflutning vörunnar, til dæmis með eyðublaði nr. 7.01 á þjónustugátt stofnunarinnar, né um að slík ákvörðun væri kæranleg til ráðuneytisins. Þess í stað var honum tjáð að stofnunin veitti ekki undanþágur, að hún hefði enga aðkomu að sendingunni og að stjórnvaldsákvarðanir tollyfirvalda þyrfti að kæra með þeim hætti sem tollyfirvöld tilgreindu. Að þessu leyti var meðferð Matvælastofnunar á erindi kæranda ekki í samræmi við 7. gr. stjórnsýslulaga. Afleiðing þess var sú að kærandi átti þess ekki kost að fá efnislega og rökstudda ákvörðun í máli sínu og eftir atvikum leita endurskoðunar á henni.
Af gögnum málsins verður ráðið að viðtakendum póstsendinga sem stöðvaðar eru vegna innihaldsefna á lista Matvælastofnunar sé almennt ekki leiðbeint um að þeir geti óskað eftir ákvörðun stofnunarinnar um innflutninginn og kært hana. Á vef stofnunarinnar kemur fram að hún hafi enga heimild til að veita undanþágur og að viðtakandi þurfi því að óska eftir endursendingu eða förgun, og í umsögn sinni til ráðuneytisins byggir stofnunin á því að hún taki ekki stjórnvaldsákvarðanir um stöðvun slíkra sendinga. Sú framkvæmd samrýmist illa þeirri verkaskiptingu sem 130. gr. tollalaga gerir ráð fyrir og leiðbeiningarskyldu stjórnvalda. Ráðuneytið beinir því til Matvælastofnunar að endurskoða verklag sitt og leiðbeiningar, í samráði við tollyfirvöld, þannig að viðtakendum stöðvaðra sendinga sé ljóst að þeir geti óskað eftir ákvörðun stofnunarinnar og að slík ákvörðun sé kæranleg til ráðuneytisins.
Úrskurðarorð
Stjórnsýslukæru, dags. 28. janúar 2026, er vísað frá ráðuneytinu.