Úrskurður nr. 432/2026
Hinn 9. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 432/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26020027
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 9. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. febrúar 2026, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 28. október 2025. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd hér á landi vegna pólitískra ofsókna. Yfirvöld beri enga virðingu fyrir fólkinu í landinu og þau séu á eftir honum vegna pólitískra skoðana hans. Kærandi hafi starfað í fata- og skóverslun í heimaríki, þekki engan á Íslandi og hafi hvorki sakaferil né hlotið herþjálfun. Þá sé kærandi við góða heilsu.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 17. desember 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í Karakas í Venesúela. Hann hafi búið í íbúð ömmu sinnar í Cúa í Miranda fylki og verið án atvinnu. Hann hafi starfað með föður sínum í skóverslun þegar hann hafi verið 16 ára og verið í námi samhliða því. Hann hafi ekki fengið aðstoð frá stjórnvöldum en hann hafi óskað eftir aðstoð frá mannúðarsamtökum og ekki fengið hana. Þá hafi frænka hans veitt honum aðstoð. Kærandi kvaðst búa við góða líkamlega heilsu og andleg heilsa hans hafi verið góð þangað til nú vegna atvika sem hann hafi upplifað. Hann taki ekki lyf að staðaldri og hafi ekki þurft að sækja heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Þá kvaðst kærandi hvorki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki né verið virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki.
Aðspurður um ástæðu flótta kvaðst kærandi hafa fengið hótanir frá stjórnvöldum í bréfformi á heimili sitt. Hann væri andsnúinn stjórnvöldum í heimaríki og hafi tekið þátt í mótmælum gegn þeim í maí og júlí 2024. Hann hafi verið í fararbroddi mótmælanna og lýsti mótmælunum sem árásargjörnum. Þá kvaðst kærandi hafa beitt ofbeldi á mótmælunum. Hann hafi verið handtekinn í maí 2024 en verið látinn laus eftir að frænka hans greiddi fyrir lausn hans. Kæranda hafi í kjölfarið verið veitt viðvörun um að ef hann héldi áfram þátttöku í mótmælum yrði hann fangelsaður. Kærandi kvaðst hafa fengið hótunarbréf eftir þátttöku sína í mótmælunum. Bréfið hafi verið sett undir hurð á heimili hans og í því hafi komið fram að hann gæti ekki dvalið áfram í Venesúela. Beðinn um að skýra betur innihald bréfsins kvað kærandi að ótilgreindir aðilar hafi sagt að ef þeir sæju hann þarna aftur yrði hann drepinn fyrir framan fjölskyldu hans. Þá greindi kærandi frá því að ótilgreindir aðilar hafi komið að heimili hans og merkt það. Að hans sögn hafi merkingin gefið til kynna að hann væri á lista yfir einstaklinga sem ætti að „eyða“. Kærandi kvað hótanirnar hafa haldið áfram eftir brottför hans frá heimaríki og að amma hans og frænka hafi greint honum frá þeim. Aðspurður um hvað myndi gerast snéri hann aftur til heimaríkis kvaðst kærandi telja að hann myndi deyja. Hann ætti ekki atvinnumöguleika og hann gæti ekki framfleytt sjálfum sér þar í landi. Þá væri enginn staður öruggur í heimaríki þar sem allt sé tengt.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 9. febrúar 2026. Greinargerð barst kærunefnd 23. febrúar 2026.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er vísað til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 2. janúar 2026 hvað varðar málsatvik og málsástæður að svo miklu leyti sem við á.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Kærandi byggir m.a. á því að framkvæmd túlkunar í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi verið ófullnægjandi þar sem túlkað hafi verið af spænsku yfir á ensku og öfugt, en kærandi tali hvorki ensku né íslensku. Telur kærandi að sú framkvæmd geti hafa leitt til misskilnings og ónákvæmni í framburði hans. Kærandi mótmælir því jafnframt að framburður hans beri ekki með sér að hann hafi verið handtekinn, hann hafi greint frá því að hafa verið handtekinn, hvenær handtakan hafi átt sér stað og hvar hann hafi verið í haldi. Hann hafi hins vegar ekki getað lagt fram gögn frásögn sinni til stuðnings. Kærandi hafnar því að ósamræmi sé á milli framlagðra gagna og frásagnar hans. Þá telur hann minni háttar ónákvæmni geta skýrst af túlkun og ólíkum skilningi á hugtökum á borð við „stjórnmálaflokkur“ og „political party“ eða óformlegri þátttöku í hreyfingu. Þá telur kærandi að rannsókn málsins hafi verið ábótavant. Hafi Útlendingastofnun talið misræmi milli framburðar hans og framlagðra gagna varða svo miklum hafi stofnuninni borið að afla frekari skýringa, m.a. með framhaldsviðtali.
Kærandi gerir einnig athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á framlögðu skjali frá rannsóknarlögreglunni CICPC. Stofnunin hafi byggt synjun sína m.a. á því að skjalið hafi komið frá fulltrúa rannsóknarlögreglunnar og varði flutning máls kæranda til saksóknaraembættis, en stafi ekki beint frá saksóknara, eins og fram hafi komið í umsókn kæranda. Þá hafi verið fundið að því að skjalið sé ekki í frumriti. Kærandi vísar til þess að gögnin hafi verið lögð fram á spænsku ásamt óformlegri þýðingu talsmanns og að sérstaklega hafi verið óskað leiðbeininga um hvort afla þyrfti löggiltrar þýðingar. Kærandi hafi þó hvorki fengið leiðbeiningar né verið krafinn um þýðingu löggilts skjalaþýðanda og telur hann að ófullnægjandi þýðing skjalsins hafi verið lögð til grundvallar sem hluti af trúverðugleikamati kæranda.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir kröfu sína á því að hann fái ekki atvinnu, enda komi stjórnvöld í veg fyrir að þeir sem mótmæla þeim fái aðgang að störfum. Hann hafi dvalið á heimili ömmu sinnar í heimaríki en hún hafi látist nýverið og er kærandi því án húsnæðis þar í landi og mun ekki geta fengið þar húsaskjól. Þá vísar kærandi til þess að stjórnvöld um heim allan hafi nýverið gefið út ferðaviðvaranir í efsta hættustigi til Venesúela í heild sinni og hvatt fólk til að ferðast ekki þangað sökum hættuástands.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að máli hans verði vísað til Útlendingastofnunar að nýju til lögmætrar og fullnægjandi málsmeðferðar, verði fallist á að málsmeðferð sé haldin slíkum ágöllum að ekki sé unnt að taka efnislega afstöðu til framangreindra krafna kæranda.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknar- og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar auk leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, sbr. 7., 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Vísar kærandi í því sambandi einkum til framkvæmdar túlkunar í efnisviðtali, þess að ekki hafi verið tekið framhaldsviðtal við hann þrátt fyrir að meint misræmi í framburði hans og gögnum hafi verið lagt til grundvallar trúverðugleikamati og þess að stofnunin hafi ekki óskað eftir löggiltri þýðingu framlagðra gagna þrátt fyrir að talsmaður hans hefði sérstaklega óskað leiðbeininga þar að lútandi.
Kærunefnd hefur farið yfir hljóðupptöku af viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun og telur spurningar stofnunarinnar og svör kæranda hafa verið skýr. Þá var ítrekað fyrir kæranda að tilkynna fulltrúa Útlendingastofnunar ef eitthvað væri óskýrt eða hann skildi ekki. Til þess er einnig að líta að í lok viðtalanna var tekin samantekt á helstu málsástæðum kæranda og borið undir hann hvort rétt væri haft eftir honum og svaraði kærandi játandi. Þá var kæranda og talsmanni hans boðið að bæta við frekari upplýsingum eða gera athugasemdir í lok viðtalsins. Hvorki kærandi né talsmaður hans gerðu athugasemd við framkvæmd viðtalanna eða bættu við frásögnina. Þá hafa verið lagðar fram greinargerðir til Útlendingastofnunar og kærunefndar fyrir hönd kæranda og hefur hann því haft tækifæri til að koma á framfæri ítarlegri frásögn og skýringum.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
ríkið,
hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Country Security Report – Venezuela (OCAS, U.S. Department of State, 12. mars 2025);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- Freedom in the World 2025 – Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
- Freedom in the World 2026 – Venezuela (Freedom House, 19. mars 2026);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for human rights (OHCHR), 28. ágúst 2025);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
- UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 14. júní 2026);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, júlí 2026);
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 29. maí 2026);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders
- (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025) og
- World Report 2026 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2026.
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Þrátt fyrir að hluti stjórnarandstöðunnar hafi lýst Juan Guaido yfir sem bráðabirgðaforseta hafi Nicolás Maduro haldið raunverulegum yfirráðum ríkisins með stuðningi öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar leitt til þess að í desember 2022 hafi bráðabirgðastjórn Juan Guaido verið lögð af. .. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan tilnefnt Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum, en 30. október s.á. hafi Hæstiréttur Venesúela ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan tilnefnt Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Samkvæmt heimildum fóru forsetakosningar fram í Venesúela 28. júlí 2024 og í kjölfarið hafi landkjörstjórn lýst því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör, á skjön við fullyrðingar stjórnarandstöðunnar. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi verið kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert. Í skýrslu Freedom House frá 2026 kemur fram að stjórnarandstaðan hafi sniðgengið þingkosningar í maí 2025 í mótmælaskyni og, líkt og í forsetakosningunum 2024, hafi landskjörstjórnin ekki opinberað niðurstöður kosninganna, hvorki kjörsókn né kosningaúrslit.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024, 2025 og 2026 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.
Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. í skýrslum Human Rights Watch og Freedom House frá 2026, kemur fram að í kjölfar forsetakosninganna árið 2024 hafi stjórnvöld, með aðstoð vopnaðra hópa, haldið áfram að fremja umfangsmikil mannréttindabrot. Í skýrslu Freedom House kemur ennfremur fram að þrátt fyrir að venesúelsk stjórnvöld hafi látið um tvö hundruð pólitíska fanga lausa frá júlí fram í desember 2025 bendi heimildir til þess að rúmlega níu hundruð pólitískir fangar hafi enn verið í haldi í árslok 2025.
Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 hafi saksóknara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í mars 2022 verið heimilt að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að dómstóllinn hafi tilkynnt um áframhaldandi rannsókn meintra glæpa gegn mannkyni í Venesúela og opnun skrifstofu þarlendis í júní 2023. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2026 var rannsóknin enn yfirstandandi árið 2025.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi hvorki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar. Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 28. ágúst 2025, kemur fram að frá því í maí 2024 og fram í apríl 2025 hafi takmarkanir á borgaralegum réttindum almennings í Venesúela aukist enn frekar.
Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Nýrri heimildir, m.a. skýrsla Human Rights Watch frá 2026 og upplýsingar á vefsíðu Insight Crime, renna jafnframt stoðum undir hlutverk Colectívos sem hópa sem starfi að undirlagi yfirvalda.
Í skýrslu EUAA frá 2023 og 2026 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Samkvæmt skýrslu EUAA frá júlí 2026 hafi áætluð morðtíðni árið 2024 vegna dauðsfalla af völdum ofbeldis verið 26,2 á hverja hundrað þúsund íbúa skv. Venezuealan Observatory of Violence sem sé fækkun frá árinu 2023, sem var 26,8, og enn frekar frá árinu 2022 sem var 40,4.
Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2023 og 2026 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Fjölbreyttir aðilar standi þar að baki, þar á meðal öryggissveitir ríkisins, vopnaðir hópar og skipulögð glæpasamtök. Aðferðirnar séu margvíslegar og feli meðal annars í sér svokölluð verndargjöld, ólögmæta skatta, mannrán gegn lausnargjaldi, hótanir og ofbeldi. Helstu fórnarlömb séu almennir borgarar, fyrirtæki, kaupmenn, flutningafyrirtæki og einstaklingar í viðkvæmri stöðu. Árið 2026 hafi upplýsingar bent til aukinna fjárkúguna og ofbeldis gegn bændum, þar á meðal morðum, íkveikjum og hótunum af hálfu skipulagðra glæpahópa. Einnig hafi meðlimir glæpagengis í Aragua verið handteknir fyrir að hafa kúgað fjölda fyrirtækja. Samhliða efnahagskreppunni hafi sum venesúelsk glæpagengi fært starfsemi sína til annarra ríkja í Suður-Ameríku, en haldi jafnframt áfram að kúga íbúa innanlands, einkum í fátækum hverfum þar sem yfirvöld grípi sjaldan til árangursríkra aðgerða. Fjárkúgun af hálfu öryggissveita ríkisins byggist oft á því að einstaklingar séu stöðvaðir við eftirlitsstöðvar eða handteknir með upplognum ásökunum. Einstaklingum sé síðan boðið að greiða háar fjárhæðir til að forðast ákæru eða langvarandi málsmeðferð. Ef einstaklingar neiti greiðslu geti þeir orðið fyrir frekari kúgun innan réttarkerfisins af hálfu dómara, saksóknara eða annarra embættismanna. Þessi framkvæmd bitni einkum á ungu fólki og eldri einstaklingum, þar sem talið sé að fjölskyldur þeirra geti greitt lausnargjöld sem nemi oft nokkrum þúsundum Bandaríkjadala. Glæpasamtök beiti einnig harðri fjárkúgun og grípi til hefndaraðgerða, svo sem eignaspjalla, þjófnaðar, líkamsárása eða mannrána, ef fórnarlömb greiði ekki. Aðstoð frá yfirvöldum sé almennt takmörkuð vegna útbreiddrar spillingar, samráðs embættismanna við glæpasamtök og veikra stofnana. Þótt til staðar séu staðbundin forvarnarverkefni hafi raunverulegur árangur verið lítill og efnahagsástand landsins, þar á meðal aukin dollaravæðing hagkerfisins, hafi gert fjárkúgun að enn arðbærari tekjulind fyrir skipulagða glæpastarfsemi.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun trúar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu, einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.
Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2026 hafi tæplega átta milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta frá því árið 2014.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2026 kemur fram að margir hafi neyðst til að grípa til sjálfslyfjameðferðar eða treysta á stuðning fjölskyldu og annarra persónulegra tengslaneta til að afla sér meðferðar.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.
Heimildum kemur saman um að á árunum 2024 og 2025 hafi bandarísk stjórnvöld haldið áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beinst hafi að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Hinn 7. ágúst 2025 birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna myndskeið hvar þáverandi dómsmálaráðherra landsins, Pam Bondi, hét því að verðlauna hvern þann sem veitt gæti upplýsingar sem leitt gætu til handtöku Maduro 50 milljónir bandaríkjadollara. Á seinni hluta árs 2025 hafi þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela aukist enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Samkvæmt fréttatilkynningum fjármála- og dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak með það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á sama tíma hafi bandarísk yfirvöld kyrrsett fjölda olíuskipa sem þau hafi talið reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Samkvæmt heimildum, þ. á m. frétt á vefsíðu The Washington Post 16. desember 2025, tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í færslu á Truth Social um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Í fréttinni er aðgerðinni lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.
Í skýrslu EUAA frá júlí 2026 kemur fram að í byrjun árs 2026 hafi verulegar pólitískar breytingar átt sér stað í Venesúela í kjölfar hernaðarinngrips Bandaríkjanna. Hinn 3. janúar 2026 framkvæmdu bandarískir hermenn aðgerð í Karakas sem leiddi til handtöku Nicolás Maduro forseta og eiginkonu hans. Í kjölfarið hafi yfirvöld í Bandaríkjunum lýst því yfir að þau myndu styðja tímabundin umskipti í Venesúela og jafnframt endurskipuleggja samskipti ríkjanna, þar á meðal aflétta hluta viðskiptaþvingana. Fjöldi þeirra sem hafi fallið í aðgerðinni sé ekki ljós, en heimildir bendi til þess að tugir meðlima öryggissveita Venesúela og kúbverskra hermanna hafi látið lífið. Hinn 5. mars 2026 hafi Delcy Rodríguez verið skipuð bráðabirgðaforseti af þjóðþinginu. Þrátt fyrir að stjórnskipan landsins hafi að mörgu leyti haldist óbreytt hafi Rodríguez að sögn tekið nokkra stefnumarkandi fjarlægð frá stjórnarháttum Maduro og hafið náið samstarf við Bandaríkin. Sama dag hafi stjórnmálasambönd ríkjanna verið endurvakin eftir sjö ára hlé og nokkrum dögum síðar hafi Bandaríkin viðurkennt Rodríguez formlega sem forseta.
Í kjölfar valdatökunnar hafi verið gerðar breytingar á framkvæmdavaldinu í Venesúela, hernum og öryggisstofnunum. Meðal annars hafi varnarmálaráðherra verið leystur frá störfum, nýir herforingjar skipaðir og breytingar gerðar á stjórn leyniþjónustunnar og forsetavarðliðsins. Hins vegar hafi kröfum um tafarlausar forseta- og þingkosningar verið hafnað og þeim frestað um óákveðinn tíma. Heimildir bendi til þess að borgaralegt og pólitískt svigrúm hafi aukist eftir brottvikningu Maduro. Skoðanakannanir sýni að meirihluti svarenda telji að borgaraleg réttindi og lýðræðisleg skilyrði hafi batnað. Stjórnmálaflokkar og frjáls félagasamtök hafi endurvakið starfsemi sína, rannsóknir og opinbera gagnrýni, auk þess sem þátttaka í mótmælum hafi aukist. Þrátt fyrir þessar jákvæðu breytingar beiti stjórnvöld sér enn gegn stjórnarandstæðingum og enn sé hætta á mannréttindabrotum af þeirra hálfu.
Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 8. mars 2026, hafði 670 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Telja samtökin að enn séu um 508 pólitískir fangar í haldi. Ennfremur voru svokölluð sakaruppgjafarlög (e. Amnesty law) samþykkt á venesúelska þjóðþinginu sem vonir standi til að leiði til þess að fjölda pólitískra fanga verði sleppt. Lögin nái þó ekki til þeirra sem hafi verið ákærðir eða sakfelldir fyrir að hvetja til hernaðaraðgerða gegn landinu. Hafa stjórnvöld verið hvött til þess að ganga úr skugga um að aðeins þeir sem hafi verið handteknir fyrir að nýta sér rétt sinn til tjáningar, skoðunar og samkomu/funda njóti verndar laganna en ekki aðilar sem hafi gerst sekir um alvarleg mannréttindabrot og glæpi gegn mannkyni, s.s. herlið á vegum yfirvalda og skæruliða.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína á því að hann eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela vegna stjórnmálaskoðana sinna og þátttöku í mótmælum gegn stjórnvöldum.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurriti af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi tekið þátt í mótmælum í tvígang, í maí og júlí 2024, og verið þar í fararbroddi. Hann lýsti mótmælunum sem árásargjörnum og kvaðst hafa beitt ofbeldi á meðan þeim stóð. Honum hafi borist hótunarbréf frá stjórnvöldum í kjölfar mótmælaþátttöku hans þar sem honum hafi verið hótað lífláti héldi hann áfram að dvelja í heimaríki, og þá hafi aðilar komið að heimili hans og merkt það. Kvaðst kærandi telja merkinguna gefa til kynna að hann væri á lista yfir einstaklinga sem ætti að „eyða“. Þá kvaðst kærandi hafa verið handtekinn í maí 2024 og færður á lögreglustöð en verið látinn laus eftir að frænka hans greiddi fyrir lausn hans. Kvaðst kærandi jafnframt hafa fengið viðvörun um að yrði hann aftur viðstaddur mótmæli yrði hann fangelsaður. Kærandi kvaðst þó hvorki hafa verið meðlimur í stjórnmálaflokki né verið virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki og tilheyri ekki minnihlutahóp þar í landi. Í greinargerð kæranda er þó vísað til þess að misræmi í frásögn hans megi rekja til ófullnægjandi og óskilvirkrar túlkunar í viðtali. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur fram að hann hafi verið virkur þátttakandi byltingarsinnuðu ungliðahreyfingarinnar COPEI og tekið þar þátt í hagsmunagæslu í þágu samfélagsins, dreifingu pólitísks efnis og starfsemi sem stuðli að lýðræðislegum gildum.
Til stuðnings frásagnar sinnar lagði kærandi fram þrjú skjöl, dags. 11., 14 september og 6. október 2025, sem bera með sér að stafa frá stjórnmálaflokknum COPEI í Cúa í Miranda fylki. Bréfin eru undirrituð af nafngreindum manni sem tilgreindur er sem formaður COPEI í Cúa. Af þýðingu kærunefndar verður ráðið að í bréfunum komi fram að kærandi hafi tekið virkan þátt í stjórnmálastarfi á vegum flokksins og ungliðahreyfingar hans, m.a. við dreifingu áróðursefnis, veggjamálun, kosningastörf og samfélagsleg verkefni. Í bréfinu frá 14. september 2025 er kærandi sagður vera meðlimur í Juventud Revolucionaria Copeyana (JRC), ungliðahreyfingu COPEI. Þá kemur fram að kærandi hafi vegna stjórnmálaþátttöku sinnar sætt líkamlegum árásum, hótunum og ofsóknum af hálfu Colectivos, sem og af hálfu hálfopinberra lögreglusveita og stuðningsmanna valdastéttarinnar í Venesúela. Í bréfunum frá 11. og 14. september 2025 er jafnframt vísað til þess að skotið hafi verið að heimili kæranda. Í bréfinu frá 14. september kemur einnig fram að kærandi hafi sætt stöðugri eftirför Colectivos og að líf hans sé talið í hættu í Venesúela. Þar sem aðeins er um afrit að ræða er ekki hægt að meta trúverðugleika þeirra. Þá samræmist innihald þeirra ekki frásögn kæranda sem hann gaf í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi minntist þar ekki á framangreind störf í þágu stjórnmálaflokksins og kvaðst hvorki vera aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málstaðar. Þótt kærandi hafi vísað til þess að misræmið kunni að skýrast af framkvæmd túlkunar og ólíkum skilningi á hugtökum um stjórnmálaþátttöku telur kærunefnd þær skýringar ekki skýra með fullnægjandi hætti þann mun sem er á framburði kæranda og þeirri umfangsmiklu og skipulögðu stjórnmálaþátttöku sem lýst er í bréfunum. Að framangreindu virtu verður ekki lagt til grundvallar að kærandi hafi starfað fyrir stjórnmálaflokkinn COPEI.
Kærandi hefur einnig lagt fram skjal, dags. 30. nóvember 2024, sem ber með sér að stafa frá rannsóknarlögreglunni Cuerpo de Investigaciones Científicas, Penales y Criminalísticas (CICPC) í Ocumare del Tuy og vera stílað á saksóknaraembætti í Venesúela. Af þýðingu kærunefndar verður ráðið að í skjalinu komi fram að CICPC framsendi gögn úr rannsókn sem hafin hafi verið af lögregluyfirvaldinu La División de Inteligencia Estratégica (DIE) vegna atviks sem hafi átt sér stað 30. júlí 2024 í Cúa. Kærandi er þar tilgreindur vegna rannsóknar á meintum brotum sem lúta að hvatningu til haturs, landráðum, röskun á allsherjarreglu og hindrun frjálsrar umferðar. Þá kemur fram að enginn hafi verið í handtekinn við rannsóknina og að óskað sé eftir því að viðeigandi dómstóll gefi út handtökuskipun á hendur kæranda. Kærandi hefur ekki lagt fram frumrit skjalsins og ekki liggja fyrir frekari gögn sem staðfesta uppruna skjalsins. Hefur skjalið því takmarkað sönnunargildi að þessu leyti. Skjalið ber ekki með sér að handtökuskipun hafi í reynd verið gefin út á hendur kæranda, að ákæra hafi verið gefin út eða hver staða þeirrar rannsóknar sem þar er vísað til sé nú, tæpum tveimur árum síðar.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnmálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Kærunefnd telur ekki unnt að útiloka að kærandi hafi verið handtekinn og settur í varðhald í maí 2024 vegna þátttöku sinnar í mótmælum. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðasta áratug. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Ekkert í frásögn kæranda eða gögnum málsins bendir til þess að hann hafi gegnt áberandi hlutverki innan stjórnarandstöðuhreyfingarinnar en kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hvorki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki né verið virkur í þágu tiltekins málsstaðar. Er það því mat kærunefndar að kærandi eigi ekki frekar á hættu að verða fyrir áreiti en aðrir einstaklingar í heimaríki sem séu mótfallnir stjórnvöldum. Þá verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að kærandi hafi búið í heimaborg sinni án vandkvæða þangað til hann yfirgaf heimaríki sitt í lok október 2025. Þá er til þess að líta að í gögnum málsins liggur fyrir venesúelskt vegabréf kæranda, útgefið 25. ágúst 2025. Í vegabréfinu má sjá útstimpil af Simon Bolivar flugvellinum í La Guaira fylki með dagsetninguna 26. október 2025. Gefur það til kynna kærandi hafi getað sótt um vegabréf og farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvaður vegna opinna mála í venesúelska réttarkerfinu. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana kæranda, sbr. e- lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Kærandi byggir á því að hann hafi orðið fyrir ofsóknum og hótunum frá meðlimum hóps sem starfar í þágu ríkisstjórnar Venesúela. Hann hefur vísað til þess að honum hafi borist hótanir í formi bréfs á heimili sitt í kjölfar þátttöku sinnar á mótmælum í árið 2024. Téð bréf liggur ekki fyrir í máli þessu. Þótt að í framlögðum bréfum kæranda, sem bera með sér að stafa frá COPEI, sé einnig vísað til hótana, árása og ofsókna telur kærunefnd, með vísan til framangreinds mats á sönnunargildi þeirra og ósamræmis við framburð kæranda, að þau renni ekki fullnægjandi stoðum undir þá frásögn kæranda að hann hafi sætt þeim ofsóknum og hótunum sem hann lýsir. Þá liggja ekki fyrir önnur gögn sem renna stoðum undir frásögn kæranda um framangreindar hótanir. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi upplifað ofbeldi, áreiti eða hótanir af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila í heimaríki sínu sem nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Þá er ekkert í frásögn kæranda eða í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á almennu ástandi í heimaríki. Kærandi vísar til þess að heimildir þær sem liggja að baki ákvörðunar Útlendingastofnunar séu ekki í samræmi við núverandi ástand og stjórnvöld um allan heim hafi nýverið gefið út ferðaviðvaranir í efsta hættustigi til Venesúela í heild sinni.
Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga áhættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka. Við það mat hefur kærunefnd sérstaklega litið til málsástæðu kæranda um stjórnmálaþátttöku hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í Cúa í Miranda fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Miranda fylki í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í Venesúela síðustu ár þá sé hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök.
Hinn 24. júní 2026 urðu tveir öflugir jarðskjálftar og töluverður fjöldi eftirskjálfta í mið-norðurhluta Venesúela. Í 21. ástandsskýrslu Skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) vegna jarðskjálftanna, dags. 14. júlí 2026, kemur fram að þau fylki sem verst hafi orðið úti vegna skjálftanna séu La Guaira, Distrito Capital, Miranda, Carabobo, Yaracuy, Falcón og aðliggjandi svæði. Nokkur þúsund manns hafi látist í jarðskjálftunum sjálfum eða í kjölfar þeirra og á sautjánda þúsund manns hafi slasast. Jarðskjálftarnir hafi leitt til skemmda á yfir 2.500 innviðum, þ. á m. 38 heilsugæslustöðvum. Í skýrslunni kemur fram að venesúelsk stjórnvöld, með aðstoð og í samstarfi við undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna og samstarfssamtök þeirra, séu að bregðast við afleiðingum af völdum jarðskjálftanna með fjölþættum aðgerðum, m.a. leitar- og björgunaraðgerðum og mannúðaraðstoð, og muni halda áfram að auka umfang þeirrar aðstoðar á þeim svæðum sem hafi orðið fyrir áhrifum skjálftanna. Þá hafi fjöldi hjálparsamtaka, frjálsra félagasamtaka og annarra ríkja veitt aðstoð sína. Benda upplýsingar um aðstæður í heimaríki kæranda, því ekki til þess að almennar aðstæður þar í landi nái því alvarleikastigi að venesúelskir ríkisborgarar teljist hafa ríka þörf fyrir vernd í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi búa við góða líkamlega heilsu. Hann hafi ekki þurft að sækja sér heilbrigðisþjónustu í heimaríki og taki ekki lyf að staðaldri. Andleg heilsa hans hafi verið góð þangað til nú þar sem hann hugsi stundum um hvað hafi komið fyrir, en hann telji sig geta komist yfir slíkar hugsanir.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa dvalið í íbúð ömmu sinnar í heimaríki og verið án atvinnu. Hann hafi starfað í skóverslun með föður sínum þegar kærandi var 16 ára samhliða því að hafa verið í námi. Þá hafi kærandi fengið aðstoð frá frænku sinni. Fjölskylda kæranda búi í Venesúela en faðir hans sé staddur í Mexíkó þar sem hann hefur sótt um hæli.
Kærandi hefur greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að hann hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er ungur að árum og almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 28. október 2025 og hafði málsmeðferð í máli hans þá ekki náð tímamörkum ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga þegar breytingarlögin tóku gildi og á ákvæðið því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að kærandi eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Sé einstaklingi brottvísað á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og ákveðið endurkomubann skal veittur frestur til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laganna. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst engin tengsl hafa við Schengen-svæðið og muni ekki fara gegn niðurstöðu stjórnvalda.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Vera Dögg Guðmundsdóttir