Úrskurður nr. 450/2026
Hinn 13. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 450/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26030017
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 6. mars 2026 kærði [...], fd. 14. janúar 2008, ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. febrúar 2026, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Auk þess gerir kærandi kröfu um endurskoðun á því hvort kærandi geti átt rétt á annarri dvalarheimild samkvæmt lögum um útlendinga, þ. á m. dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla, náms, atvinnu eða fjölskyldutengsla.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 18. ágúst 2025. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi þar sem hann ætti hvorki fjölskyldu í Venesúela né Sýrlandi. Aðspurður um foreldra sína kvað hann þau búa í Sýrlandi og hann hafi sjálfur farið þaðan fyrir um einu ári og þremur mánuðum síðan vegna stríðsins þar í landi. Kærandi hafi fæðst í Venesúela en flutt til Sýrlands ásamt fjölskyldu sinni við tveggja ára aldur. Kærandi ætti sýrlenskt vegabréf en hann hafi skilið það eftir í Venesúela. Hann sé 17 ára og í fylgd frænku sinnar og frænda sem einnig séu að sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Kærandi hafi verið í umsjá þeirra þegar hann dvaldi í Venesúela. Þá hafi faðir frænku kæranda og frænda greitt fyrir flugmiða þeirra allra. Kærandi hafi ekki verið í skóla í Venesúela en hann hafi verið að læra spænsku hjá fjölskyldu sinni. Hann hafi ekki sakaferil, sé við góða heilsu og eigi ættmenni á Íslandi sem hann hyggst dvelja hjá. Kærandi kvaðst ekki hafa nein skjöl frá foreldrum sínum en þeir væru meðvitaðir um að hann sé á Íslandi.
Kærandi kom til viðtals í Barnahúsi 25. september 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur í Guárico fylki í Venesúela en hafi flutt til Sweida í Sýrlandi ásamt fjölskyldu sinni þegar hann var 18 mánaða gamall. Hann hafi búið í Sýrlandi með foreldrum sínum ásamt bróður hans og systur. Kærandi greindi frá því að systir hans sem sé sex ára glími við krabbamein og bróðir hans sé fimm ára og gangi í skóla. Móðir kæranda sé heimavinnandi og hugsi um börnin og faðir hans vinni fyrir heimilinu. Kærandi hafi snúið aftur til Venesúela þegar hann var 16 ára gamall og búið þar hjá frændsystkinum sínum sem hann ferðaðist með til Íslands. Þau séu um 27 ára, hafi stundað nám og verið í vinnu. Þá séu faðir þeirra og faðir kæranda bræður. Kærandi hafi búið á heimili þeirra í Puerto Píritu í Venesúela og þau hafi aðstoðað hann með framfærslu. Kærandi kvað föður frændsystkina sinna, sem búsettur sé á Íslandi, hafa einnig sent þeim peninga. Aðspurður um fjölskyldumeðlimi í Sýrlandi og Venesúela kvaðst kærandi einungis eiga ættmenni í Sýrlandi, þ.e. móður, föður og systkini. Þá séu systkini foreldra hans og amma hans búsett hér á landi.
Kærandi hafi stundað nám í Sýrlandi og lokið þar níunda bekk. Hann hafi oft unnið við landbúnað frá miðnætti til kl. sjö á morgnanna í Sýrlandi og farið síðan beint í skólann sem hafi verið honum erfitt. Hann hafi hins vegar ekki gengið í skóla í Venesúela því það hafi ekki verið hægt en hann hafi verið að læra spænsku á heimili fjölskyldunnar. Hann hafi ekki getað unnið því hann talaði ekki tungumálið og atvinnumöguleikar hans ekki verið góðir. Þá hafi kærandi ekki þurft að leita sér heilbrigðisþjónustu.
Aðspurður um ástæður þess að kærandi og fjölskylda hans hafi flutt frá Venesúela til Sýrlands þegar hann var ungur kvaðst hann ekki vita það. Hann hafi farið frá Sýrlandi til Venesúela við 16 ára aldur því hann hafi talið að lífið væri betra í Venesúela, sem hafi þó ekki verið raunin. Þá hafi hann verið að flýja stríð í Sýrlandi. Kærandi kvað foreldra sína og systkini ekki hafa komið með sér þar sem þau hafi ekki getað fjármagnað ferð þeirra allra. Auk þess séu systkini hans fædd í Sýrlandi og séu þannig ekki með ríkisfang til að ferðast til Venesúela. Kærandi kvaðst hafa haft áform um að endurnýja pappíra sína í Venesúela og fara til Íslands. Aðspurður um hvort eitthvað hafi gerst í Sýrlandi eða Venesúela sem hafi látið honum líða illa svaraði kærandi neitandi. Hann hafi ekki verið þvingaður til að gera eitthvað sem hann langaði ekki að gera og enginn hafi sært eða meitt hann á einhvern hátt.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 6. mars 2026. Greinargerð barst kærunefnd samdægurs.
3 Greinargerð til kærunefndar
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Kærandi gerir athugasemdir við mat stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum hans og telur að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til stöðu hans sem fylgdarlauss barns við komu til landsins. Þá telur kærandi að úrlausn málsins byggist að verulegu leyti á almennum upplýsingum um aðstæður í Venesúela en síður á mati á persónulegum aðstæðum hans. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi niðurstöðu nefndarinnar er ekki ástæða til að reifa nánar önnur sjónarmið í greinargerð kæranda.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Rannsóknarregla 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem séu nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Kröfur til rannsóknar í hverju máli ráðast af lagagrundvelli málsins og einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, þ.m.t. þeim málsástæðum sem hann ber fyrir sig.
Í 28. gr. laga um útlendinga er kveðið á um hvernig viðtali skuli háttað við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í 2. mgr. sömu greinar kemur fram að viðtali skuli hagað þannig að sem mestar líkur séu á að aðstæður sem geta haft þýðingu fyrir umsókn umsækjanda upplýsist. Í slíku viðtali skuli Útlendingastofnun gæta að því hvort taka þurfi sérstakt tillit til umsækjanda vegna persónulegra aðstæðna hans.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 18. ágúst 2025 og var 17 ára við komuna til landsins. Kærandi mætti til viðtals sem fram fór í Barnahúsi 25. september 2025 þá 17 ára. Tæpum mánuði áður en Útlendingastofnun tók ákvörðun í máli kæranda náði hann 18 ára aldri. Fyrir liggur að þrátt fyrir að kærandi hafi náð 18 ára aldri áður en ákvörðun var tekin í máli hans þá var hann ekki boðaður í hefðbundið viðtal hjá Útlendingastofnun og viðtalið sem fram fór í Barnahúsi látið duga til að komast að niðurstöðu í máli hans. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að af frásögn kæranda í viðtali í Barnahúsi, framlagðri greinargerð talsmanns í málinu og öðrum gögnum málsins mætti ráða að hann hafi yfirgefið heimaríki sitt, Venesúela, vegna almenns ástands í landinu. Kærandi hafi ekki borið fyrir sig að óttast tiltekna einstaklinga eða eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í heimaríki eða annarra tiltekinna aðila þar í landi. Þá yrði af frásögn kæranda ekki ráðið að hann hafi áður en hann flúði heimaríki sitt upplifað áreiti eða ofbeldi af hálfu stjórnvalda eða tiltekinna einstaklinga sem talist gæti ná því alvarleikastigi að teljast getur ofsóknir, ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda jafnframt brottvísað og ákveðið endurkomubann til landsins og annarra Schengen-ríkja í tvö ár.
Samkvæmt 28. gr. laga um útlendinga skal taka viðtal við umsækjanda um alþjóðlega vernd eins fljótt og unnt er eftir skráningu umsóknar og skal því hagað þannig að sem mestar líkur séu á að aðstæður sem geti haft þýðingu fyrir umsókn umsækjanda upplýsist. Í slíku viðtali skal gæta að því hvort taka þurfi sérstakt tillit til umsækjanda vegna persónulegra aðstæðna hans. Þar undir myndi falla nauðsynleg aðlögun vegna ungs aldurs umsækjanda. Í samantekt viðtalsins úr Barnahúsi sem liggur fyrir í gögnum málsins má sjá að kærandi er aðeins spurður einfaldra spurninga um aðstæður hans í Venesúela og ástæður flótta. Þá liggur fyrir í málinu greinargerð talsmanns og upplýsingar frá barnaverndaryfirvöldum sem varpa frekara ljósi á málsástæður kæranda. Þrátt fyrir það verður ekki litið fram hjá því að kærandi var 17 ára að aldri þegar hann sótti um alþjóðlega vernd og varð 18 ára áður en ákvörðun Útlendingastofnunar var tekin. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi hafi ekki haft aldur og þroska til þess að mæta í viðtal vegna umsóknar sinnar til Útlendingastofnunar og gera þar grein fyrir ástæðum umsóknar sinnar og aðstæðum sínum með ítarlegri hætti. Þá eru slík viðtöl einatt ítarlegri um mögulegar ástæður umsókna um vernd auk þess sem þar er farið yfir mögulegar ástæður er geta mælt gegn brottvísun og endurkomubanni. Að mati kærunefndar var fullt tilefni til að fá nánari upplýsingar um stöðu hans í heimaríki með ítarlegra viðtali. Þá er ljóst af gögnum málsins að kæranda var ekki gefinn kostur á að koma á framfæri andmælum um þau atriði sem að lögum hefðu þýðingu við töku ákvörðunar um brottvísun og endurkomubann en slíkt er jafnan gert í viðtali Útlendingastofnunar vegna umsóknar um alþjóðlega vernd.
Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Að mati kærunefndar ber framangreint með sér að ekki hafi farið fram viðhlítandi mat á aðstæðum hans. Telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn stofnunarinnar þar sem aðstæður hans voru ekki skoðaðar með hliðsjón af hans persónulegu aðstæðum í Venesúela. Auk þess sem kæranda var ekki gefinn kostur á að tjá sig um ákvörðun um mögulega brottvísun og endurkomubann. Málsmeðferð Útlendingastofnunar og rökstuðningur ákvörðunar í máli kæranda er, með vísan til framangreinds, er ekki í samræmi við reglur stjórnsýsluréttar, m.a. 10., 13. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Framangreindir annmarkar á málsmeðferð Útlendingastofnunar eru verulegir og er ekki unnt að bæta úr þeim á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki ástæða til umfjöllunar um aðra þætti ákvörðunar Útlendingastofnunar.
Samantekt
Með vísan til þess sem að framan hefur verið rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri hina kærðu ákvörðun úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Þorsteinn Gunnarsson